Heimskringla - 03.02.1932, Síða 7

Heimskringla - 03.02.1932, Síða 7
WINNIPEG 3. FEBR. 1932. HEIMSKRINGLA 7. SfiXA ENDURMINNINGAR Frh frá 3. bla. sögur sínar lúta að því mark- miði, að opna augun á mönn- um fyrir óheilindunum. Prest- arnir gerðu sér upp sérstaka háttprýði, sem svo var kallað. I»egar þeir eru komnir inn hjá manni og hafði verið boðið sæti, þá tyltu þeir sér niður allra snöggvast, en stukku strax á fætur og fóru að ganga um gólf og þurftu mikið pláss. Þá fóru þeir að kjamta undur hæ- versklega, kallað prestakjamt á Norðurlandi. Oft gengu þeir hratt um gólf, eins og þeir ætl- uðu sér að ná einhverjum viss- um áfangastað, og það eins þeir prestar, sem ekki gátu gengið stutta bæjarleið í góðu göngufæri, hvað mikið sem á lægi. Þeir töluðu undur hæ- versklega og stungu latneskum orðum á stöku stað inn í setn- ingar sínar, þó þeir væru að tala við kotkarl; en það átti auðvitað fremur að þýða mikla mentun en minnisleysi á móð- urmálið. Þegar þeir gengu um gólf, þá höfðu þeir, sem náðu beztu taki á háttprýðinni, aðra- hvora hendina á baki neðarlega undir frakkalöfunum, og hos- uðu þefm ofurlítið upp annað slagið. Gárungar sögðu að þessi slægi taglinu. Eg hefi séð einn pilt í Winnipeg, hann var úr Strandasýslu, minnir mig, ganga um gólf eins og prest- amir gerðu á þeim árum, sem ■eg tala hér um. Hann hafði auðsjáanlega séð þetta og skil- ið það rétt, að það var heldri manna siður, en hann átti svo bágt, af því að hann var ekki í frakka, og þó hann væri að reyna að dingla treyjufaldinum, þá var það svo snubbótt. En hann hafði rétta aðferð. Eg veit, að margir muna orð- ið “prestareið”. Það einkendi suma prestana að þeir riðu svo hart, að það lá við að þeir dræpu hestana. Hvort það var ónærgætni eða annað verra — máske mikilmenska — skal lát- ið ósagt. En það sat illa á þjón- um kærleikans. Menn kannast við vísuna: “Það er séra Einar Pálsson á Hálsi.” Eg þekti hann ekkert, nema hvað eg hafði séð hann á fundi um daginn. Jú, það var sjálfsagt, og liann kom inn til mín. Hann þurfti ekkert sér- stakt pláss á gólfinu. Hann hafði ekki lært að kjamta. Það var sem hann hefði aldrei opn- að latneska bók, eða kynni nokkurn graut í því máli. Fyrst kunni eg ekki almennilega við hann, var eins og karlinn, sem saknaði nöldursins, þegar kerl- ingin hans andaðist, en því meira fanst mér að lokum til um prúðmensku hans. Eg sá hann aldrei framar, minnir að hann flytti suður í Borgarfjörð. Eg sagði hér að framan, að mér hefði fundist að alþýðan una vel látalátum prestanna; en það er ekki nóg að segja svo. Alþýðan beinlínis kaus það, forsvaraði frábrugðna fram- komu prestsins og konu hans, þegar þó ekkert tillit er tekið til klæðnaðar þeirra, sem allir ákusu að skaraði fram úr. — Presturinn, sem reið á 8 dög- um til Reykjavíkur, kom aftur með sérstaklega myndarlega konu upp alda í höfuðstaðnum. Hún var sjálfsagt eins hrifin af fegurðinni og framtaks- hyggjunni í sveitinni, eins og alþýðumaðurinn hugsaði sér höfuðstaðinn, öllu öðru frá- brugðinn og fagrann. Þar sem hún kom á bændabýli, vildi hún koma inn í búr og eldhús til konunnar, þar sem hún ríkti öllum óháð, og sjá með eigin augum, hvað hún hefði fyrir stafni. Þetta fór eins og hval- saga um alla bygðina, og það setti hroll að konunum yfirleitt, hvað gengi að manneskjunni. Einhver þóttist kanske sjá það í réttu ljósi, og sagði að hún væri óskólagengin, þó prestur- inn væri lærður maður, og hún vildi læra af því að sjá hvað konurnar hefðust að, því hún hugsaði sér líklega að vinna sjálf í búri og eldhúsi. Nei, þetta var eitthvað skakt, þótt ekki væri þægilegt að útlista það; vissast að hafa þessa kofa altaf sópaða og fægða, eins og líka hvern einasta dall á heim- “Prestar ljúga manna mest, xninsta hafa ást á Krist; bestum ríða hrókar verst, hrista sig með orðin byrst.’’ Mjög álitlegur prestur kom í mína sýslu, þegar eg var inn- an við fermingu. Hann var trú- j lofaður stúlku í höfuðstað landsins. Þegar hann seinna var undir það búinn að gifta sig, þá reið hann í kring sveit- j ir einhesta á átta dögum ti! Keykjavíkur. Sömu leiðina fóv hann seinna á jafnmörgum dög- «m, en hafði þrjá hesta til reið- ar. Sérkennleg framkoma, við- mót og háttalag prestanna á Þeim tíma finst mér að hafi verð skilið af alþýðunni eins i og óhjákvæmileg afleiðing mik- illar mentunar, og eg man, að , eg sá ekkert rangt við ýmsan j uppgerðar tepruskap þeirra, fyr; en eg fór að rekast á presta, er voru lausir við allan slíkan hé- j góma, og mér þótti þeim fara' það svo undur vel, og kom þá fyrst auga á yfirhafnir þeirra. Eg man vel eftir fyrsta prest- inum, sem vakti athygli mína í þessum efnum. Það var fyrir 1890, að eg var staddur á sam- eiginlegum sýslufundi á Húsa- vík, og gisti þá hjá tengdaföð- ur mínum, Jakobi Hálfdanar- syni. Um kvöldið, þegar átti að fara að hátta, spyr Jakob mig að því, hvort mér sé ekki sama, þótt prestur sofi hjá mér Um nóttina. Við séra Árni Jóns- son á Skútustöðum höfðum átt í hálfgerðu stríði saman um daginn viðvíkjandi fundarmál- efni, og mér þótti hann óhlíf- inn og stirðbusi mesti, og datt ' fyrst af öllu í hug, að nú ætti eg ekki heldur að hafa frið fyr- ir honum á nóttunni; svo eg sPyr hvaða prestur það sé. ilinu, því enginn vissi hvenær prestkonan kynni að vera kom- in heim á hlað og á svipstundu inn í búr. Það var alt í einu orðin plága að eiga þetta yfir höfði sér. Prestkonan var of auðveld, — allir sögðu að hún væri blátt áfram, en hún átti ekki að vera það. Eftir árið, eða tvö, var hún alstaðar elsk- uð og virt, og vel komin inn í öll búr, og allir könnuðust við, að hún væri mesta búkonan í sveitinni, hafði tekið upp það bezta, sem hún sá á hverjum stað fyrir sig, og sameinað það alt í sínu búri og eldhúsi. Al- þýðan fann til þess, að það gæti farið prestkonum vel að vera blátt áfram. Eg þarf lítið eitt að minnast. á embættisstarfsemi prestanna yfir höfuð, til samanburðar við það sem nú er algengast. Fyrir minn skilning og mína lífs- reynslu, get eg ekki verið því samþykkur að trúarlífi manna fari stöðugt hnignandi. Gamlir menn þykjast hafa trúarhnign- uninni öfluga sönnun í því, hve kirkjan var margfalt betur sótt á þeirra uppvaxtarárum. Þetta segja þeir alveg satt. Eg var orðinn fertugur, þegar kirkj- urnar fóru óðum að tæmast. En þegar á að gera sér grein fyrjr sönnu trúarlífi, þá er nauðsynlegt að vita, hvað al- þýðan var að sækja í kirkj- urnar, og þá kemur til að minnast þess, sem prestarnir höfðu á boðstólum. Fyrst af öllu ætla eg þó að kannast við það, að eg met það mikils, sem er að gerast innbyrðis með hverjum einstökum manni, þeg- ar hann er kominn samhliða öðrum í kirkjuna. Þannig get- ur heyrnarlaus maður haft gagn af því að sækja kirkju, af því að sætið í kirkjunni, og myndir viðburðanna flytja hans eigin skilning upp í næstu tröppu. Það var alt að því und- antekningarlaus regla, að prest- arnir skrifuðu sínar ræður,. og eg bæti því hiklaust við, að eftir að þeir höfðu verið prest- ar í tvö til þrjú ár, þá reyndu margir þeirra ekki mikið á sig við ræðusmíði. Á leið frá kirkju heyrðist það löngum: “Þetta var sama ræðan og hann hafði þenna dag í fyrra.” Ræðan var kanske góð, og menn sögðu að góð vísa væri ekki of oft kveð- in. Ekki nema fáir af öllum söfnuðinum veittu þessu eftir- tekt. En hvaðan koma lífæðar hinnar andlegu framþróunar, ef presturinn er 25 til 40 ár á sama stað, og oftast með sömu tvær þrjár ræðurnar, sama sunnudag á árinu? Önnur regla var það, sem, samkvæmt minni eftirtekt, takmarkaði prestana sem kennimenn. Þeir álitu eins og skylt að leggja út af guðspjalli eða pistli dags- ins, svo að ekki var til neins að flýja í aðra kirkju, til að heyra annað efni útlistað. Það var því eingöngu aflsmunur á sama kaðlinum. Eg hefi aldrei verið prestahatari,, heldur hafa þeir þvert á móti flestallir verið mínir uppáhaldsmenn. Eg er því ekki að niðra þeim, heldur að segja eins og minn skilning- ur ræður við minningarnar. Eg gleymi því ekki, að þessari em- bættisstarfsemi klerkanna má finna margar afsakanir, máske fyrst prestaskólann og gjald- mátann til prestanna. Það var raunar engin furða þó prest- arnir þyrftu að ganga um gólf, sér til hita í helgidagablæjunni. Heimshyggjan sveikst ekki um að kemba, spinna, vefa og þæfa til skjóls allar aðrar stundir. Eg man undur vel eftir hús- vitjun prestanna. Margir halda að þær hafi verið kák eitt, og þær voru það, hefði setið við það eitt, sem prestinum ávanst meðan hann stóð við. En þýð- ingarmikið gildi fengu þær af tveim ástæðum, að börnin vissu það og voru stöðugt mint á það, að presturinn kæmi bráð- um til að spyrja þau, og það hélt þeim að verkinu, einkum metnaðartilfinningin, að reyn- ast ekki meira flón en hann þessi, eða hún þessi. En allra mest gildi höfðu húsvitjanirnar upp úr því, að afinn eða amm- an, móðirin eða faðirinn, með öðrum orðum kærleikurinn til barnanna, var ávalt heyrandi í holti nær, þó honum væri ekki af prestinum boðið til sam- vinnu, og það var skilningur og dómgreind elskandi ástvina barnanna, sem aldrei í framtíð- inni uppgafst á að minna á og segja til og útskýra. Nú er eg kominn að þýðing- armiklu atriði, sem allra sízt má hlaupa athugalaust fram hjá, en það er utanaðbókarlær- dómur barnanna, á mínum æskuárum, og skal eg strax taka það fram, að það er eina afturförin, sem eg er sannfærð- ur um að hafi átt sér stað á trúmálasviði alþýðunnar, hvað lagst hefir niður að læra und- irstöðuatriði trúarinnar utan i bókar. Það liefir löngum hrygt mig, hvað ekki einungis ungir prestar, heldur jafnvel gamlir, hafa haldið þeirri skoðun fram, að utanbókarlærdómur sé ó- þarfur, alt sé innifalið í því, að vekja skilninginn, lesa með barninu. Þetta hefi eg reynt bæði á sjálfum mér og mörg- um öðrum, að er öldungis röng staðhæfing. Barninu og ung- lingnum er ekki víaxinn sá skilningur, sem útheimtist til þess að skilja þýðingarmikið trúaratriði, fremur en því er vaxið afl til að lyfta þyngsta bagga á klakk. En barnið hef- ir hins vegar lært utan að og kann það lengi, sem það lærði ungt, og þrítugur, fertugur, sex- tugur, er maðurinn að skilja sér til fullkomlegs gagns, það sem hann lærði ungur utan bókar. Helgi biskup Thordarsen segir á einum stað í helgidaga- prédikunarbók sinni, að við skulum ekki ætlast til of mik- ils af skilningi barnanna og unglinganna, en ávalt minnast þess með þakklæti og lotningu, hvað unglingarnir eru lengi að þroskast, svo ekki verði saman- borið við neinar aðrar lifandi skepnur, af því að hið mikil- væga ætlunarverk mannsins verði ekki skilið og afskastað á svipstundu. Enginn má ætl- ast til að eg muni þetta orð- rétt síðan árið 1900, að eg eft- irlét Arnljóti Gíslasyni bónda við Manitobavatn, prédikunar- bók Helga, og gat ekki fengið hana keypta aftur. En efnið og hugsunin er sú, sem eg hefi tekið fram. Og þá er það hverj- um manni holt að þroskast andlega við yfirvegun æsku- námsins, eiga sjálfir óhreyfða undirstöðusteinana, og geta bygt ofan á þá eftir því sem skilningurinn leyfir, og verða aldrei sekur um það, að fylgj- ast með af hræsni. Frh. FRÚ SALBJÖRG ÁSGEIRSDÓTTIR frá Ásgarði í Dölum. Fædd 24 nóvember 1870. Dáin 22. ágúst 1931. Sungið við útför hennar. Orðstí sæmdaræfi engum tekst að farga, augu hvarfla yfir áratugi marga — fylling dýrra dáða dugur sérhver léði, — Gervileiki og gifta garði þessum réði. Upp frá goðans arni eldar stöðugt brunnu — garðsins rausn og góðvild grannar allir kunnu — dáður er um dali drengskapar þegninn mesti — heiður Ásgarðs hjóna héraðs sóminn bezti. í garðinn flokkar fara, fyrri daga minnast — húsfreyjunni horfnu heilar þakkir ynnast; — lyftir hönd í ljósið lífsins dýra arði; hreinum skildi heldur húsfreyjan úr garði. Ásgarð vissu allir æðsta héraðs staðinn — vandi er þó að vera virðing slíkri hlaðinn; átti kona önnur erviðleika meiri. Engin svanga saddi sínu brauði fleiri. Bærinn miklu mestur margir þangað sóttu, — Ásgarð gistu allir eins á miðri nóttu; hlið að goðans garði gesti opin standa, matur, hús og heyin heimilt vegfaranda. Aldrei heyrðist æðra yfir neinu tapi; ýms var stundin örðug, aldrei brugðið skapi. Húsfreyjunnar heiður hefja kostir góðir — framar öllu öðru eiginkona og móðir. Heiðurskona háttprúð heil í starfi góðu — þreytti ei með þysi þá er nærri stóðu; — fálát mjög í fasi, fjarlæg allri kynning; stilling hennar stendur sterk í hverri minning. Garðinn kunna gistu gestir í stórum lestum, — vakti hún þá og vermdi vosklæðin af gestum. Svefninn er þó sætur seytján barna móður. — Þjáning, fórn og þreyta, þetta er lífsins óður. Lýsir æfi auðna | «4 Nafns pjöld «* 1 i Dr. M. B. Halldorson 4C1 BoT* Bld*. Bkrifatcfuslml: 18074 Btuudar •4r«takl.«a luncnasjúk- dóma. ■r a« flnna 4 skrlfatofu kl 10—12 f. k. 0( 2—4 c. h. Halmill: 46 Allowap Avo Tulalu.lt SSIÍIK G. S. THORVALDSON B.A., L.L.B. Logfraðingur ' 702 Confederation Life Bldg. Talsími 24 587 DR A. BLONDAL 602 Hedlcal Arts Bld« Talslml: 22 286 Btuadar •drstakl.aa kv.nalúkdóma o* harnasjúkdðma. — At» hltta: kl. 10—1* « h. og 8—6 .. h. H.tmtll: «06 Vlotor 8t. Sfml 28 180 W. J. LINDAL, K.C. BJÖRN STEFÁNSSON tSLENZKIB IXIGFRÆÐIN GAB á oðru gólft 325 Main Street Tals. 24 963 Hafa einnig skrifstofur að Lnudar og Gimli og eru þar að hitta, fyrsta miðvikudaj 1 hverjum mánuði. Dr. J. Stefansson 21« M KDK’AL ART8 BLDG. Hornl Konnedy og Gr&h&m Sfoadar etasAafD ■ufCtaa- eyrna *V kverka-iJOkdAna ■r &« hltt* frA kl. 11—12 f. h o§ kl. 8■1 6 0 b Taleímii 31834 Holmtll: 688 McMlll&n Avo 42691 Telephone: 21613 J. Christopherson. tsUnskur Lögfr’erSingur 845 SOMERSBT BLK. Winnipeg, Manltobe. MOORE’S TAXI LTD. Cor. Donald and Graham. 50 Centa Taxl Frá elnum st&B tll ann&rs hr&r sem er i bœnum: 6 m&nns fyrlr s&m& og einji. Allir f&rþeg&r á- byrjstir, &U!r bíl&r hit&blr. Sfml 33 80« (8 Ifnnr) Ktstur, töskur o *hú«*a*n&- flutnlncur. DR. L. A. SIGURDSON 216-220 Medical Arts Bldg;. Phone 21 834 Offtce tíruar 2-4 Heimill: 104 Home St. Phone 72 409 yfir dauðans myrkur; lífið alt til enda öðrum traust og styrkur. Fús til líknar-ferða framar hverjum manni. Sólargeisli sannur sængurkonu ranni. Farsælt lán og friður fylgdu dánu vífi; móðurhendur mjúkar mættu barna lífi; — lyfti hún þeim í ljósið, létti þjáning sára; hóf þau fyrst að faðmi fjóra tugi ára. Ennþá vakir auðna yfir þessu setri; arfi skilar enginn auði þínum betri. Annan hlutann áttu, orðstí sæmdar nægan, góðverka er gerðu garðinn þjóðu frægann. Andlát kyrt, sem æfin, enginn fegurr breytti. Enginn starf og auðlegð öðrum glaðar veitti. Eftir þína æfi eigum minning sæla. Guðs þökk fyrir greiðann, gestir þínir mæla. Stefán frá Hvítadal. —Tíminn. (Birt að beiðni systur hinn- ar látnu, Mrs. G. Jörundsson, Lundar, Man.) FORNLEIFAFUNDUR Fyrir skömmu var rofinn steinhaugur mikill hjá bænum Skinvík í Austfirði í Noregi. Náði haugur þessi yfir um einn sjöunda úr vallardagssláttu, og var 2 metrar á hæð, þar sem hann var hæstur. í honum fanst sverð, spjót, öxi, leifar af beizl- ismélum og brot úr steinkeri. Þar fanst einnig aska og við- arkolarusl, og þykjast menn því vita, að sá, sem átti þenna haug, hafi verið brendur. öxin hafði haldið sér sæmilega, en hin vopnin voru mjög skemd af ryði. Það er talið að haugur þessi muni vera að minsta kosti 1000 ára gamall. Hjá bænum Skinvík eru fleiri slíkir haugar, og á nú að rjúfa þá og vita hvar þar finst. Lesb. Mbl. A. S. BARDAL ••lur llkklatur ©g innut um úttmr- tr. Allur útbúnatíur it ImU. linfriraur a«tur hann nllaknuur ‘mlnnfirnrDt »g li(itilnt. (4S SHSRBROOKE BT. PhMci mmt wnnriPBMi HEALTH RESTORED Lakningar &n lyfja DR. 1. O. S1HP0ON, N.B., D.O., D.O. Chronic Diseases Phone: 87 208 Suite 642-44 Somertet Blk. WINNIPEG —MAN. MARGARET DALMAN TRACH0R OP PIAKO H.-H BANNINQ BT. PHONE: 26 420 Dr. A. V. Johnson fslenzkur Tannlæknir. 212 Curry Bldg., Winnipeg Gegat pósthúsinu. Slml: 23 742 Hetmllls: 33 328 Jacob F. Bjamason —TRAN SFER— ■•((•«« •■! Pumttnrc ÉtmHmm 762 VIOTOR ST. SIMI 24.5#e Aenaat allskonar flutnlnga fram og aftur uhj bœlnn. J. T. THORSON, K. C. Iilfmknr lt(lrcSln(ar Skrlfstofa: 411 PARIS BLDG. Síml: 24 471 DR. K. J. AUSTMANN Wynyard —:— Sask. Talafmt t 28 888 DR. J. G. SNIDAL TANNLÆKNIR •14 Somer aet Block Portn&e Aremue WINNIPEG BRYNJ THORLAKSSON Söngstjórl StUllr Pianos og Orgel Sími 38 345, 594 Alverstene St.

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.