Heimskringla - 24.02.1932, Síða 8
8. SÍÐA
HEIMSKRfNGLA
WINNIPEG, 24. FEB. 1932.
FJÆR OG NÆR.
Flóvent Jónsson, til heimilis
norður í Sherridan fyrir norð-
an The Pas, kom 8.1. viku til
bæjarins til þess að leita sér
lækninga. Hver veikin er, vita
læknarnir ekki þegar þetta er
ritað, en það er verið að rann-
saka. Hann er á Almenna sjúkra
húsinu hér í bænum.
* * *
Karlakór íslendinga söng s.l.
miðvikudag í Sambandskirkj-
unni í Winnipeg við allgóða að'
sókn. Er blaðinu sagt, að söng-
urinn hafi verið með bezta móti.
Einsöng sungu Mrs. K. Jóhann-
esson og Guðmundur Stefáns-
son, og hafði verið gerður mjög
góður rómur að.
* * *
Hallur Johnson frá VíSár,
Man., kom til bæjarins síðast-
liðinn fimtudag. Hann var að
leita sér lækninga við kviðsliti.
Var hann skorinn upp á Al-
menna sjúkrahúsinu um helg-
ina og líður eftir öllum vonum
* * *
Páll Kjernested bóndi norður
við Manitobavatn, andaðist um
miðja síðastliðna viku að heim-
ili sínu að The Narrows, Man.
Hann var háaldraður maður,
um hálf-nírætt, og hefir búið
stórbúi þar norðurfrá um 40
ár. Hans verður minst nánar
síðar.
* * *
Magnús Gíslason lézt síðast-
liðinn mánudag að heimili sínu
að Lundar, Man. Hann mun
hafa verið á áttræðisaldri. Góð-
ur bóndi og dugnaðarmaður
mesti. Verður nánar minst síð-
ar.
* * *
Sæbjörn Jóhannsson, til heim
ilis í Ruth Apts. hér í bænum,
var í gær skorinn upp við kvið-
sliti á Grace sjúkrahúsinu. Hon-
um heilsast eftir vonum.
* * *
Guðmundur Pálsson frá The
Narrows, Man., og Jón Einars-
son frá Lundar, Man., komu til
bæjarins í gær. Þeir gerðu ráð
fyrir að vera á þjóðræknisþing-
inu, er sett var í morgun.
Guðmundur Jónsson bóndi
við Vogar, Man., kom til bæjar-
ins í gær. Hann dvelur hér fram
yfir þjóðræknisþingið.
• • •
Uppskurður var gerður á Mrs.
Páll Guðmundsson, 1852 Willi-
am Ave., á Grace sjúkrahúsinu,
fyrir viku síðan. Er hún á góð-
um batavegi, en þó enn á spít-
alanum.
* * *
Mrs. Tom ísfjörð, á Simcoe
3t., sem hefir legið á Grace
sjúkrahúsinu undanfarið er um
það að verða albata.
* * *
Í3lendingamót Fróns er ann-
að kvöld (fimtudwgskvöldið 25
febrúar).
* * *
Nokkuð af ritgerðum og ým-
islegu öðru, or af tll vill hefir
verið ætlast til að birtist í
þessu blaði, verður rúmsins
vegna að bíða næsta blaðs. —
Sru höfundamir beðnir vel-
virðingar á drættinum.
• • •
Þakkarorð.
Hér með vottum við okkar
nnilegasta þakklæti fyrir alla
>4 hluttekningu, sem okk
var auð9ýnd í sambandi við
veikindi og fráfall okkar elsku-
?ga eiginmanns og föður.
Öllum þeim mörgu, sem heim
"»óttu hann á meðan hann var
eikur, og eins þeim sem heiðr-
’ðu minnngu hans með nær
veru sinni við jarðarförina, þökk
im við af hrærðu hjarta.
Guðrún Egp,e,'tssOii.
og börn.
* * *
Á þjóðr.þinginu urðum vér í
morgun varir þessara gesta,
auk þeirra, sem áður voru nefnd
lr: Halldórs Gíslasonar frá Les-
lie, Sask., Jóns J. Húnfjörð, frá
Brown, Man., Th. Thorsteins-
sons og B. Dalmans frá Sel-
kirk, Man.
* * *
VIÐ ANDLÁTSFREGN
Jóns Eggerssonar.
ROSE
THEATRE
Thur., Fri., Sat.. This Week
Febr. 25-26-27
Street Scene
Comedy — Varltey — Newí
Mon., Tue., Wed.. Next Week
Febr. 29 and Mar. 1-2
Borrowed Wives
and
77 PARK LANE
Comedy — Varlety — New»
‘ Mercury ’
The New
All-Weather
Coal
Phone 42 321
Foe a Ton
Today
“ARCTIC”
CARL THORLAKSON
úrsmiður
627 Sargent Ave., Winnipeg
Sími: 27 117. Heima 24 141
J. A.
JOHANNSON
Garage and Repair Servica
Banning and Sargent
Sfml 33573
Hafma afml 87136
Kxpert Repair and Complete
Garage Service
G«j, 09«. Rrtras, Tire»,
Batteries, Etc.
Nú dimmir í huga og daprast
mín lund,
því dagsverkið þrotið er, vinur;
það veitti mér ánægju og un-
aðarstund.
er á þig eg hlustaði og sótti
þinn fund,
og þess vegna þanki minn
stynur.
Hún gleymist víst engum, þótt
glepji margt sýn,
þín gestrisna höfðingjalundin.
Sem leiftrandi sól inn í svart-
viðri skín,
var sögunnar þekking og kunn-
átta þín, —
að hlusta var helgasta stundin.
Vinur.
• • •
Ársfundur
íslendingadags nefndarinnar
verður haldinn í neðri sal G. T.
hússins á Sargent og McGee
St., föstudaginn þann 4. marz
n.k., og byrjar kl. 8 e. h. Á
þessum fundi leggur nefndin
fram skýrslur og reikninga fyr
ir árið 1931. Þá þarf að kjósa
sex menn í nefndina fyrir yfir-
j Gefðu
! fjölskyldunni
} daglegan skamt af heilsu-
1° og hamingjulyfinu, sem er
í hverri flösku af —
iCITY
(MILK
: Vertu viss um að fá það, j
| sem reynst hefir bezt — ‘
gerilsneydd City Mjólk.
Q04
Sími 87 647
►<u
standandi ár og ráðstafa ís-
lendingadagshaldi á komand
sumri. ialendingar hér í borg
ættu allir að sækja þenna fund
G. P. Magnússon,
ritari nefndarinnar.
* * *
Munið eftir fundum stúkunr
ar Heklu; ýmislegt til fróðleik:
og skemtunar. Einnig verðu
spilasamkepni annan hverr
fund yfirstandandi ársfjórðung
og verðlaun veitt.
* * *
Mr. John Bergman, frá Medi
’.ine Hat, Alta., kom til bæjar-
ins s.l. mánudag.
* • •
Mrs. Hinrik Johnson frá
Ebor Station, Man., kom hing-
xð til bæjarins á þriðjudaginr
i síðastliðinni viku. Hún er í
kynnisför til dóttur sinnar, Mr?
?. E. Sipley, 607 Agnes St., or
Ivelur hjá henni um tíma.
* * *
Brynjólfur Árnason kaupmað
ír lagði af stað á mánudags-
kvöldið vestur til Mozart, Sask.
Rak hann þar áður verzlun um
langt skeið, en seldi hana fyrir
lokkrum árnm. Nú er hann að
byrja þar aftur verzlun í félagi
við Mr. George Sigmar.
* * *
John J. Arkie, R.O., special-
ist on sight testing and fitting
af glasses, will be at Eriksdale
Hotel Thursday, March 3, and
bundar Hotel Friday, March 4.
• • *
OFURLfTlÐ ÁVARP.
Eg hefi þessa undanfarna
daga sent til allra kaupenda
síðustu heftin af “Iðunni’’,
“Eimreiðinni” og “Perlum” fyr-
ir 1931. Hafa þá allir kaupend-
ur hér vestra fengið fullan ár-
gang af þeim fjórum íslenzk-
um tímaritum, sem eg annast
um, því áður voru “Kvöldvök-
urnar” allar frá mér sendar.
Það er ekkert spaug að ann-
ast um þessa útsölu hér, eins
og nú árar, en þó má eg segja
að fjöldi af kaupendum hafa
reynst mér mjög vel og verð-
skulda mitt bezta þakklæti fyr-
ir greið skil. En það er alveg
nauðsynlegt, að allir kaupend-
ur borgi reiðulega, því að þess-
ar smáu upphæðir mega ekki
safnast saman í stærri skuldir.
Eg veit að nú kreppir víða skór-
inn að en mikið má góður vilji.
Þessi rit flytja jafnan ágæt inn-
legg um vandamál þjóðanna yf-
irleitt, einnig um markverðustu
nýjungar á sviði vísindanna og
svo fyrirtaks ljóðagerð og góð-
ar skáldsögur. Þeir, sem ann-
ars vilja nokkuð á íslenzku
lesa, þurfa ekki að sjá eftir
smásentunum fyrir þessi rit.
Svo vil eg þá biðja hvern ein-
asta kaupanda, er skuldar fyrir
eitt eða fleiri af þessum ritum,
að láta ekki dragast að senda
mér þær litlu upphæðir. Hvert
korn hjálpar til að fylla mælir-
inn. Og eg verð að senda út-
gefendunum peninga hið allra
bráðasta.
Magnús Peterson.
313 Horace St.,
Norwood, Man., Can.
* * *
Almenna guðsþjónustu held
eg undirritaður sunnudaginn
28. febrúar kl. 3 e. h. í G. T.
húsinu á Sargent Ave.. Aðal-
umræðuefni, hin fullkomnasta
lífsreglugerð sem allir geta
skilið. Gerið svo vel og hafið
kirkjusálmabókina með.
Allir velkomnir.
G. P. Johnson.
TREGÐAN AÐ LÁNA.
(Frh. frá 1. bls.)
Til þess að glæða aftur eðlilegt
starfslíf, þarf að veita rífari
lán og með betri kjörum. Það
eina, sem læknar kreppuna, er
að leysa peningana úr læðingi.
Það lítur margt ósennilegar
út en þetta, sem sagt hefir ver-
ið um kreppuna. En hverjum
er lántregðan að kenna?
BRÉF TIL HKR.
Frh. frá 7 bls.
og leiða mann og konu út ú
ópnum að uppbúnu borði, C'
)á gall við giftingarmars frá
djóðfærinu. Maðurinn og kon
m eru þau heiðurshjónin Jór
Laxdal og Ruth kona hans, ei
eiga heima í National City, og
eru þau elskuð og virt af öli-
jm okkar íslenzka hóp. Jór
hefir verið forseti okkar félags-
skapar í mörg ár og hróku-
allra félagssamtaka og fagn
aöar. Hann er greindur og skýr
maður, og hún er ein af þess-
um indælu, greindu og gætnr
ag kærleiksríku íslenzku kon-
im. Þau lijón eiga þrjár dæt-
ur, allar fullorðnar; sú elzta er
gift, en þær yngri (tvíburar)
\ inna, önnur er útlærð hjúkrun-
arkona en hin vinnur á skrif-
stofu.
Mr. Orr gat þess, að 22 des-
smber hefðu þau Mr. og Mrs
Laxdal verið búin að Vera í
íjónabandi í 25 ár. Hefði sére
Einar heitinn Vigfússon gefið
bau saman í hjónaband að þá-
verandi heimili Jóns, við Mo-
:art, Sask. Þakkaði hann þeim
fyrir samferðina á umliðnum
árum, og óskaði þeim fyri
hönd sína og alls hópsins ti1
allrar hamingju og blessunar á
komandi æfiárum. Svo að end-
ingu afhenti hann þeim fyrit
alla mjög vandaðan silfurborð-
búnað. Einnig afhenti lítill
drengur, Jónas Melan, silfur-
brúðurinni blómvönd. Sömu-
leiðis afhenti Snorri Kristjáns-
son þeim blómakörfu úr silfri
frá systkinum Mr. Laxdals, og
las upp aðkomandi Iukku- og
blessunar-ávörp frá systkinum
Jóns, þeim Þorsteini Laxdal í
vlozart og ínu systur hans í Mo-
zart, og Þóru Sigurðsson og
Margrétu Laxdal frá Winnipeg,
Sigmundi Laxdal að Garðar,
N. D. og Guðrúnu Laxdal í St.
Louí9. Ein systir hans, Elín
Kristjánsson, var hér viðstödd
enda á hún sér heima. Einnig
voru lesin upp sérstök ávörp
frá Sigmundi og annað frá
Guðrúnu. Líka var lesið upp
gullfallegt kvæði, er skáldið
aldna, Friðrik Guðmundsson að
Mozart sendi Jóni við þetta
tækifæri. Hann hafði verið ná-
granni og vinur Jóns þegar
hann bjó þar nyrðra.
Margar ræður voru fluttar
og stökum kastað fram við
þetta tækifæri, því ekki fer Í9-
lenzku hagmælskunni neitt aft-
ur í loftslaginu hér í Californíu.
og til að sanna þetta flutti Jón
Jónsson Yukonfari frá Seattle,
sem var hér staddur, heilt brúð
kaupskvæði, fyndið og fjörugt,
eins og hann er sjálfur. Einnig
barst þeim lukku og blessunar-
ósk frá Mr. Einari Scheving,
sem býr hér í San Diego, en
gat ekki verið viðstaddur 9ök-
um þess, að hann iá mjög hættu
lega veikur, en er nú, sem bet-
ur fer, kominn til góðrar heilsu.
Og svo bárust þeirn fleiri skeyti
sem ekki vanst tími til að lesa
UPP. og þó hélzt veizlan til kl.
2 á sunnudagsmorgun.
Að endingu þökkuðu silfur-
brúðhjónin hvort í sínu lagi
með mjög vel völdum orðum,
þá góðvild og alúð sem, sam-
kvmæið sjálft lýsti og bæri með
sér, og báðu þau góðan guð að
launa okkur þá ánægjustund,
sem við veittum þeim nú. '
«•
Svo héldu allir til heimila
sinna mjög ánægðir með kvöld-
stundina.
Núna rétt um jólin kom frá
Comox, B. C., Páll Guðmunds-
son frændi minn. Hann er gam
all Winnipegmaður, faðir þeirra
Björgvins Kerúlfs Guðmunds-
sonar og Humphreys. Ætlar
hann að dvelja hér yfir vetur-
inn hjá sonum sínum.
Eg bið þig að birta í blaði
þínu þau minningarstef, er eg
læt innan í þetta bréf. Sömu-
leiðis legg eg með 3 dali, 9em
borgun fyrir Heimskringlu fyrir
1932-
Og að endngu óska eg öllum
góðs og farsæls nýárs.
Þinn vinur,
Sigfús Paulson.
San Diego, Calif.
3951 Gamma St.
R. 3. Box 540
MINNING.
f orðastað Páls Guðmundssonar
eftir konu hans Dorothy
Guðmundsson.
Nú sezt er blessuð sólin,
eg sé ei nema ský,
og fokið flest í skjólin,
mér finst eg rökkri í;
því hana mist eg hefi,
sem hlúði að mér bezt. *
Eg óska að guð mér gefi,
við getum bráðum sézt.
Eg krýp við kaldan náinn,
eg kyssi á föla kinn,
því Dóróthea er dáin,
nú dvínar kjarkur minn;
hún ama stundum eyddi,
hún alla mýkti þraut;
hún bezt mér lýsti og leiddi
á lífsins huldu braut. »
Þig syrgja maki og synir
og sonabörnin kær;
þig kveðja vildu vinir,
sem voru álengdar fjær.
En minning mæta geyma
MESSUR 0G FUNDIR
í kirkju Sambandssafnaðar
Messur: — á hverjum sunnudegl
kl. 7. e. h.
Safnaðamefndin: Fundir 2. og 4.
fimtudagskveld í hverjum
mánuði.
Hjálpamefndin. Fundir fyrsta
mánudagskveld í hverjum
mánuði.
Kvenfélagið: Fundir annan þriðju-
dag hvers mánaðar, kl.,8 að
kveldinu.
Sönrflokkurinn. Æfingar á hverju
fimtudagskveldi.
Sunnudíioiskólinn: — Á hverjum
sunnudegi, kl. 11 f. h.
meðan hjörtu slá.
Þér aldrei, aldrei gleyma,
þig aftur fá að sjá. %
Þú kunnir ekki að kvarta
né kvíða sárri und;
til himins hug og hjarta
þú hófst á dauðastund.
Og drottins dásemd prísa
þín dagleg unun var.
Nú fegurst ijós þér lýsa
á landi sælunnar.
Draumur.
Mér heyrðist klukkur hringja,
og hljóminn berast mér,
með englasveit þig syngja,
eg sá þig álengdar, fjær.
Hve rómur þinn var þýður;
eg þekki sönginn þinn,
eins og fyr unaðs blíður.
Endar svo draumur minn.
PENINGARI
í sparisjóðs reikningi
falla aldrei
í verði
Hvað sem öðrum fyrirtækjum yðar líður, ættuð
þér að hafa nægilega upphæð á sparisjóði. Það
er sú ábyggilegasta og handbærasta eign sem þér
getið haft.
Ef allir peningar yðar eru í veðskulda eða hluta-
bréfum eða öðrum eignum, getur farið svo, að þér
neyðist til að selja yður í skaða, er þér þurfið á pen-
ingum að halda, því jafnvel öruggustu veðskulda-
bréf geta fallið í verði. En peningar í sparisjóði eru
ávalt handbærir, — draga 3% í vexti — og falla
aldrei í verði.
Á móti sparisjóðs reikningi yðar, hvort sem hann
er stór eða smár, verður tekið á öllum útibúum
The Royal Bank of Canada, er varðveitir hann og
veitir yður kurteisa afgreiðslu.
Þessi útibú mætti tilgreina meðal hinna 22 er vér
höfum í Winnipeg bæ.
Portage & Arlington
Portage & Good
Sargent & Arlington
Sargent & Sherbrook
Sherbrook & Portage
William & Sherbrook
Th© Royal Bank
of Canada
Höfuðstóll og viðlagssjóður
Eignir samtals rúmar —
- $74,155,106.
$750,000,000.
|)'M»-o-<Ba»(>'^V'(>'«a»'(>'^»(>'«a»(>4aa».(>'«»().^»()4aB»(>'«a»(g
I ÍSLENDINGAMOT
| Þjóðræknisdeildarinnar “Frón
FIMTUDAGSKVÖLDIÐ 25. FEBRÚAR 1932
I GOODTEMPLARAHÚSINU
SKEMTISKRÁ:
1. Ávarp forseta.
2. Píanó Sóló
3. Kvæði
4. Ræða
5. Einsöngur 1\
6. Fiðluspil
7. Ræða
8. 9. Einsöngur Kvæði
10. Píanó Sóló
11. Veitingar.
12. Dans til kl. 1 f. h.
ar P. Jónsson
B. B. Jónsson
K. Jóhannesson
i S. Pálmason
Ragnar
Inngangseyrir 75c — Byrjar kl. 8 e. h.