Heimskringla - 25.05.1932, Qupperneq 2
2. SIÐA
HEIM3KRINGLA
WINNIPEG 25. MAI 1932.
'Tl
HARALDUR B. EINARSSON
Wynyard
Fæddur 1. sept. 1882
Dáinn 1. apríl 1932.
Haraldur sál var fæddur að
Mountain N. D. 1. sept. 1882
Foreldrar hans voru þau merkis
hjónin Björn sál. Einarsson frá
Brú á Jökuldal í Norður Múla-
sýslu og Jóhanna Jóhannes-
dóttir frá Tjöm í Reykjadal í
Norður-Þingeyjarsýslu. Komu
þau hingað til lands 1876. Har-
aldur ólst upp hjá foreldrum
sínum sem þá bjuggu á Moun-
tain, og fluttist með þeim 1895
til Rouseau County, Minn., hvar
þau dvöldu til 1903.
Árið 1902 fór Haraldur með
öðrum manni, Þorvaldi Þor-
valdssyni, sem nú er kaupmað-
ur í “Bank End", í landaleit hér
til Saskatchewan, og tók þá
heimilisfestu land fyrir sig og
föður sinn í svo nefndri “Foam
Lake” bygð skamt frá þar sem
nú er Kristnes pósthús, og
íluttu þeir feðgar þangað um
vorið 1903.
Þann 22 nóvember 1903 gift-
ist Haraldur eftirlifandi konu
sinni Elínu Guðvaldsdóttir Jack-
son og Kristínar Þorgrímsdótt-
ur, sem þá bjuggu í Rouseau,
en síðar (1907) fluttu til Vatna
bygða í Saskatchewan og
bjuggu við Elfros.
Við Kristnes bjuggu þau hjón
Haraldur og Elín í 15 ár eða
til 1918 og búnaðist farsællega,
því þau voru bæði mjög sam-
höfðu fengið búhyggindi að arfi
í báðar ættir. Var engum í
kot vísað, sem þar leitaði skjóls
eða ráða, og má Kristnes bú-
um vel vera minnisstæð vera
þeirra þar, fyrir það marga
góða, er þau létu af sér leiða.
Árið 1917 andaðist Bjöm fað-
ir Haraldar og var öllum harm-
dauði, sem hann þektu, en þó
einkum syni hans og öðrum að-
standendum, og mun fráfall
hans hafa fremur öllu öðru
Ieitt til þess að Haraldur 1918
ákvað að selja lönd sín og flytj-
ust til Elfros hvar hann keypti
járnvöruverslun og stundaði
hann hana þar til árið 1922.
Eftir það tók hann fyrir að
selja eingöngu jarðyrkju verk-
færi, en hafði jafnhliða aðal
■imsjón með lýsingarvél þorps-
ins.
Árið 1930, þegar Saskat-
chewan stjórnin tók að sér
ljósa og hitunar vélar allar í
flestar og bestar íslenzkar bæk-
ur og tímarit. Las hann með
kostgæfni alt sem hann náði
til af nytum bókum og tíma-
ritum sem í félaginu var og
margt fleira og var ánægja að
tala við hann um þau efni og
finna hve hann gat vel sett sig
inn í kringumstæður samlanda
sinna heima á Fróni og eins
fylgdist hann vel með í stjórn-
málum íslands og framförum.
Meðan hann dvaldi við Krist-
nes, hafði hann ætíð ýms trún-
aðar störf með höndum; þannig
var hann flest öll árin í stjórn
Kristnes skóla og mörg ár í
sveitarstjórn fyrir þá deild, sem
Kristnes tilheyrði eftir að föst
sveitarstjórn komst á í Foam
Lake bygð, og þótti hann ætíð
heilráður og tillögugóður til
umbóta, jafnhliða því sem hann
vildi í frammi hafa skynsam-
lega sparsemi. Hann var og
einn þeirra manna, sem öflug-
VIÐ ANDLÁTSFREGN
vinar míns
Gunnlaugs Ólafssonar Armfelds
,, . ... , * „ lega studdi að því að símakerfi
Vatnabygðinni og settt aðai-afl- kQmgt . . bygðinnL
stöð í Wynyard, fluttist Harald
ur til Wynyard og gerðist starfs
maður við þær vélar og vann
þar, þar til rétt fyrir síðustu
irslok að hann varð að hætta
^ökum lasleika, sem, þó hann
væri flesta daga á fótum og
brautalítill, mun hafa leitt til
dauða hans, sem bar að hönd-
um þann 1. apríl eftir fárra
daga rúmlegu.
Þau Haraldur og Elín eign-
uðust 5 börn, sem öll eru á
lífi: Anna gift Magnúsi Þór-
arinssyni Bjarnarsonar frá EI-
fros, nú búsett hér í Wynyard
hjá ekkjunni, Hróðný gift
Valdimar Jónssyni Hörgdal nú
í Spruce Lake, Valdimar, Har-
ildur og Walter, allir ungir og
heimahúsum. Þess utan ólu
>au hjón upp systurson Har-
xldar, Ronald Vatnsdal, son
Friðriks Vatnsdal sál. frá Wad-
ena Sask.
Haraldur sál. var hár maður
xg vel vaxinn, fjörmaður og
brekmaður til átaka og allrar
•innu og sístarfandi. Þó hann
æri hér fæddur, unni hann
oðrum fremur öllu sem íslenzkt
ar og gerði sér far um að
kynnast því, sem þar var að
ske. — Hann mun hafa verið
einn af aðal frumkvöðlum að
stofnun lestrarfélags á Kristnes
hent í dugnaði og þrifnaði og sem kappkastaði að kaupa sem
Árið 1914 veiktist Haraldur
af illkynjaðri gigt. Leitaði hann
þá lækninga til Winnipeg en
fékk enga bót, fór hann þá
til St. Martin's Hot Springs og
var þar um tíma. Virtist hon
um batna þar talsvert um tíma
en sú lækning varð skamm-
vinn og náði hann sér aldreí
til fulls frá þeim tíma og var
oftlega sárþjáður þó að hann
reyndi að fylgja fötum og vinna
í trúarefnum fylgdi hann
frjálslyndu stefnunni og taldi
sér “einn guð’’ nægja; en hann
misti aldrei sjónar á kenningu
“meistarans’’, sem kendi mest
um kærleika til meðbræðra og
munaðarlausra, og sýndi í verk
inu að hann unni henni og var
létt að breyta eftir henni.
Haraldur sál var jarðsunginn
þann 5. apríl af Rev. Bulley
ment, hélt kann fyrst hús-
kveðju heima og svo ræðu
Elfros, þar sem Haraldur var
lagður til hvíldar. Að viðstödd-
um fjölda fólks, víðsvegar að
úr Vatnabygð. — Er hans sárt
saknað af fjölda vina og þó
einkum af konu og börnum sem
í honum áttu á bak að sjá ást
ríkum eiginmanni og föður.
Þökk fyrir samleiðina; hún var
hugðnæm en stutt.
Vinur.
Loksins er þá leiðin búin,
lamaður ertu burtu flúinn,
biluð hjá þér bamatrúin,
brautin var svo hál og grýtt,
ekki er lífið öllum hlýtt.
Inn á vegi aðra snúinn
andi þinn í sárum,
laugaður í lífsins beisku tárum.
Lífið heldur lækna fáir,
ljóslaus hugur birtu þráir,
myrkur löngum leiðum spáir:
loksins bilar allan þrótt,
dynur yfir dauðans nótt.
Leiðina þessa lágir, háár,
leggja út í bláinn,
horfin lífsins heilög, sterka
þráin.
Vissi eg af veikleik þínum,
vonin brotin horfin sýnum.
Vandratað á lífsins línum
löngum verður oft hjá þeim,
sem að missa sjónir heim.
Hulin spá í huga mínum
horfir á nýjar brautir,
eitt mun lífið allar sigra þrautir.
■ I
Ekki snertir ilt það góða,
eina er það vonin þjóða,
varla um annað vert að ljóða.
Víðtæk heilsu rætist spá
öllum, sem að lífið þrá.
Alfaðir mun öllum bjóða
áframhald til gæða;
ei þarf dauðinn okkur hér að
hræða.
Sá, sem þessar lagði leiðir,
iífsins flækjur allar greiðir;
faðminn móti börnum breiðir,
blíður græðir þeirra sár,
þerrar sérhvert tegatár;
sorgar-skuggum öllum eyðir,
öllum sigur gefur,
lífið alt í örmum kærleiks vef-
ur.
Sofðu vært á sjóar botni,
seinna þó að hismið rotni;
yfir þér vorsins bárur brotni
brosandi við Eyjafjörð;
mjúk er sæng hjá móður jörð
Varla held eg vonir þrotni
við að digna í fætur;
alheims valdið gefur að þér
gætur.
Sigurður Jóliannsson
Þú segir satt/
það borgar sig að
“VEFJA
SINAR
SJALFUR” með..
Þúsundir neytenda segja þetta, því
þeir hafa reynt það, upp aftur og aftur.
Þér getið vafið upp að minsta kosti 50
cígarettur úr 20c pakka af Turret Fine
Cut, cígarettu tóbaki.
Og yður mun geðjast að hverri cíga-
rettu sem þér vefjið upp. Þess fleiri
sem þér vefjið upp, þess meiri nautnar
njótið þér af þeim.
-C
ÓKEYPIS Chantecler cígarettu
pappír fylgir hverjum pakka.
TURRET
F I N E
Cigarettu
C U T
T o b a k
Sigurdsson, Thorvaldson
GENERAL MERCHANTS
CO.
LTD.
OTSÖLUMENN FYRIR IMPERIAL OIL LIMITED
ROYALITE COAL OIL, PREMIER GASOLINE
TRACTOR AND LUBRICATING OILS
ARBORG
Phone 1
RIVERTON
Phone 1
HNAUSA
Phone 51, Ring 14
MANITOBA — CANADA
BÚNAÐARBANKINN
Yfirlit um starfsemina.
sjóði hefir verið lánað alls síð-
an sjóðurinn tók til starfa kr.
1,638,900,00, alls 217 lán. Með-
alupphæð um 8 þús. kr. Skuld
sjóðsins við ríkið í árslok 600
þús. kr. (Hambro's lánið), auk
þess um 550 þús. kr. skuld við
3parisjóðsdeild, sem mun eiga
að greiða með eftirstöðvum af
Hambro’s láninu, sem nú eru
í vörzlum bankans.
Skuldlaus eign bankans í árs-
lok 1931 er talin sem hér segir:
Sparisjóðs- og rekstrar-
lánadeild ......... 21,542.02
Veðdeild ............ 16,783.99
Ræktunarsjóður 2,674,799.79
Byggingar- og landnáms-
sjóður............ 491,807.55
Viðlagasjóður...... 2,041,960.08
Skuldlaus eign alls 5,246,893.43
Skuldlaus eign bankans alls
hefir aukist á árinu 1931 um
kr. 387,746.38.
Bein framlög ríkissjðs til
ræktunarsjóðs fram að þessu
hafa numið:
Lögákveðið tillag.... 250,000.00
Útflutningsgjald .... 682,767.76
Auk þess andvirði seldra sjóð
jarða, /og eignir ' híns eldna
ræktunarsjóðs.
Árlegt framlag til byggingar-
ag landnámssjóðs er 200 þús.
krónur.
Tíminn.
stúlkur við samlagið.
Starfrækslan byrjaði seinni-
hluta febrúar síðastliðinn.
Mjólk frá samlaginu er nú í
þann veginn að koma á mark-
aðinn og heitir “Baulumjólk ’.
Er hún einasta íslenzka niður-
suðumjólkin á markaðnum, að
undanskildum birgðum er eftir
kunna að vera af “Mjallar-
mjólk’’.
Öli önnur mjólk með íslenzk-
um heitum er útlend.
—Tíminn.
BRÚIN Á ÞVERÁ
Reikningar Búnaðarbankans
fyrir árið 1931 eru nýútkomnir.
Hér fara á eftir nokkrar tölur
viðvíkjandi stafsemi bankans,
sumpart teknar eftir reikning-
unum sjálfum og sumpart eftir
skýrslu þeirri, sem banka-
stjórnin hefir sent ríkisstjórn-
inni.
í árslok 1931 hefir bankinn
átt í útlánum, sjóði og öðrum
eignum rúmiega 14 míljónir
króna.
Útistandandi lán sparisjóðs-
og rekstrarlánadeildar námu í
árslok:
f skuldabréfum .... 791,244.02
í víxlum ........ 1,480,654.50
Innlánsfé deildarinnar í R-
vík var í árslok:
f sparisjóðsbókum (438
alls) .................. 3....
alls ........ 1,258,863.76
Á viðtökuskírteinum 248,035.80
f hlaupareikningi .... 87,241.46
Skuld deildarinnar við ríkis-
sjóð (Hambro's lánið) var í
árslok hálf miljón króna.
Úr veðdeild hafa verið veitt
lán alls um íx/i kr. til ársloka
1931. Veðdeildarbréfin hefir rík
issjóður keypt (Hambro’s lán-
ið). Veðdeildarlánin eru 223
alls.
lánveitingar úr ræktunarsjóði
eru alls orðnar til ársloka 1931
krónur 4,989,780.000.
Þau skiptast svo:
Til ræktunar- og áburð-
arhúsa ........ 2,316,530.00
Til húsabóta ..... 1,928,880.00
Til rafmagnsstöðva 341,050.00
Til girðinga og annara
framkvæmda ...... 403,220.00
Tala lána alla 1648.
Úr byggingar- og landnáms-
NÝ ÍSLENZK FRAMLEIÐSLA.
Á síðastliðnu vori keypti
Kaupfélag Borgfirðinga niður-
suðuverksmiðjuna Mjöll í Borg-
arnesi. í sumar hefir verið bygð
ur rúmgóður vélasaiur, er rúm-
ar allar gömlu vélarnar og þær
nýju er keyptar voru til við-
bótar til niðursuðu mjólk og
til smjör- og skyrgerðar. Getur
samlagið nú bæði soðið niður
mjólk og búið til smjör og skyr.
Kaupfélagið hefir komið upp
rannsóknarstofu og keypt öil
nauðsynlegustu áhöld til rann-
sóknar á mjólkurafurðum.
Tilkostnaðnrinn er nú orð-
inn um 120 þús. kr., þó er eft-
ir að bæta við húsum og vél-
um. Sérstaklega vantar hús-
næði fyrir dósagerð, þegar nið-
ursuða á kjöti fer fram, og vél-
ar fyrir ostagerð og kælitæki
til kælingar á mjólkurafurðum
og verður þetta gert þegar
möguleikar eru til framkvæmda
Samlagið sýður nú niður frá
1400 til 2000 lítra á dag, og með
örlitlu lengri vinnutíma eða
auknum starfskrafti mætti
koma af 3000 lítrum á dag. —
Pasteur-hitunartæki öll, skil-
vinda og vélar til smjör- og
skyrgerðar eru miðaðar við 2
milj. lítra á ári.
Til samlagsins er flutt mjólk
úr öllum héruðum innan Skarðs
heiðar að undanskildum Háls-
hreppi, Álftaneshreppi og Hraun
hreppi. En búist er við, að þeir
verði með, og jafnvel þrír næstu
hrepparnir úr Snæfellsnessýslu.
Forstöðu fyrirtækisins hefir
á hendi danskur maður N. Ras-
mussen. Hefir hann beztu með-
mæli þess, að veita niðursuðu-
verksmiðju forstöðu frá K. Jen-
sen prófessor, sem kennir þá
grein mjólkurfræðinnar við
landbúnaðarháskóla Dana.
Auk hans vinna við samlag-
ið þeir Sigurður Guðbrandsson
frá Hrafnkelsstöðum er lokið
heflr námi við mjólkurskóla í
Noregi og Ásbjörn Jónsson véla-
maður. Hnnfremur starfa 5—6
Eftir því sem horfur eru á
nú, verður Þverá í Rangárvalla
sýslu brúuð á sumri komanda.
Væri þar með yfirstiginn ein-
hver versti og tilfinnanlegasti
samgönguörðuglekinn, sem nú
er hér á landi. Hér er um mik-
ið og dýrt mannvirki að ræða.
En að öðru leyti er þessi fyrir-
hugaða samgöngubót merkileg
með tililti til þess á hvern hátt
til hennar er stofnað og fram-
kvæmdin gerð möguleg á þessu
erfiða ári.
Þegar kreppan skall á síðast-
liðið ár, þótti ýmsum þeim, er
mikinn áhuga höfðu á því að
Þverá yrði sem fyrst brúuð
óvænlega horfa, og fóru að
bera ráð sín saman um, hvað
hægt væri að gera málinu til
framkvæmdar. Kom þá fram
sú hugmynd, að reynandi væri
að fara þess á leit, að héraðs-
búar sjálfir legðu fram bygg-
ingarkostnaðinn, sem lán til
ríkissjóðs, í því skyni, að hægt
væri að hefjast handa þegar í
stað. Þessi uppástunga var
þvínæst færð í tal við ríkis-
stjómina og vegamálastjóra.
Eftir að vissa var fengin fyrir
því að ríkisstjórnin eða vega-
málastjóri rnyndu ekkert hafa
á móti því, að þessi leið yrði
farin, var boðaður almennur
fundur á Stórólfshvoli, til að
ræða málið. Fundarboðenduf
voru þeir Björgvin Vigfússon
sýslumaður á Efra Hvoli og
Páll Zophóníasson ráðunautur
í Reykjavík.
í samræmi við ályktanir þessa
fundar var sent út um héraðið
rétt eftir áramótin boðsbréf
til þátttöku í láninu ásamt
hvatningu til héraðsbúa um
að taka höndum saman um
þessa mikilsverðu framkvæmd.
Bréfið undirrituðu Páll Zop-
hóníasson ráðunautur, Björgvin
Vigfússon sýslumaður, sr.
Sveinbjörn Högnason alþm. og
Ágúst Einarsson bóndi í Hemlu.
Árangurinn er sá, að tekist
hefir að safna innan héraðsins
fjárupphæð, sem nemur um
120 þús. kr.
Mun nú engin fyrirstaða vera
á, að framkvæmd geti hafist í
sumar i samræmi við löggjöf
þá og áætlanir um lausn vatna
málsins, sem nú er vel á veg
komið á Alþingi.
Samtök Rangæinga í þessu
máli eru eftirtektaverð og hér-
aðinu til sóma.
—Tíminn.
Nýgift kona: ‘Hvernig líkaði
þér maturinn hjá mér í dag.
góði minn?”
Ný gifti maðurinn: “Hann
var góður, hjartað mitt. Mér
smakkaðlst hann vel. En eg er
ósköp hræddur um að það sé
slæm prentvilla í matreiðslu
bókinni þinni.”