Heimskringla - 06.07.1932, Blaðsíða 1
AMAZING NEWS
PHONE
37 266
DRESSES
Any kind Af
Beautifully
Dry Cleaned
PcpOís
MEN! YOUR CHANGE
Regular
* *
* *
Service
SUITS
Dry Cleaned
and Smartly
Pressed
PHONE 37 20«
PertJis
XLiVI. ÁRGANGUR.
WENNIPEG MIÐVTKUDAGINN 6. JÚLÍ 1932.
NÚMER 41
ROOSEVELT FORSETA-EFNI
Forseta-tilnefningu sérveldis-
manna í Bandaríkjunum lauk
þannig s. 1. föstudag, að Frank-
lin Delano Roosevelt, ríkisstjóri
frá New York hlaut kosningu.
Hann er náfrændi Theodore
Roosevelts, fyrrum forseta, og
<eins hins mikilhæfasta manns
sem þessa veglegu stöðu hefir
skipað.
Á tilnefningar fundinum, sem
haldinn var í borginni Chicago,
féllu atkvæðin að lokum þann-
tg: Roosevelt 945 atkv.
Smith 190£ atkv.
Baker 5^
Richie 3i atkv.
White 3 atkv.
Cox 1 atkv.
Alls voru atkvæðin um 1,150,
sem Roosevelt þurfti að fá tvo
þriðju af til þess að verða kos-
inn. Hlaut hann þann hluta
fyllilega. En svo bitur var
hríðin milli þeirra er keptu með
honum um tilnefningu, einkum
af hálfu Smiths, og hans fylg-
ismanna, að tilnefningin var
ekki gerð í einu hljóði. Er nú
keppinautunum lagt þetta frem-
ur út til hins verra, ekki sízt
vegna þess, að Roosevelt hafði
áður fylgt Smith og átt mikinn
J)átt í að hann náði tilnefningu
við síðustu forseta-kosningar.
Franklin D. Roosevelt er mjög
mikilhæfur maður. Hann hefir
og reynst ágætur ríkisstjóri og
nýtur alþýðuhylli fyrir afstöðu
sína í ýmsum þjóðfélagsmálum.
Hann er fatlaður nokkuð h'kam-
lega og gengur við staf í hvorri
hendi. Er það afleiðing af mátt
leysis veiki, er hann greip á
barnsaldri og hann hefir aldrei
orðið jafngóður af síðan.
En að hann sæki andlega
hæfileika til ættar sinnar, er
ekki að efa. Annars mundi
þjóðin ekki hafa skipað hann i
hærri ábyrgðarstöður þjóðfélags
ins, eins og hún hefir gert, og
nú síðast til að sækja um for-
setastöðuna.
ROTHERMERE LÁVARÐUR
OG OTTAWA FUNDURINN
1 Winnipeg voru staddir í
byrjun vikunnar nokkrir blaða-
menn frá Englandi. Eru þeir
á ferð um Canada. Foringi
þeirra er Rothermere lávarður,
blaðajöfurinn enski. Hann er
stjórnandi Associated News-
papers Ltd., The Northcliffe
Newspepers Ltd., The Daily
Mail og Sunday Pictorial á Eng-
landi. Til skoðana hans er mik-
ið tillit tekið. En hér skal þó
ekki farið út í það, en aðeins
minst á ummæli hans um sam-
veldisfundinn fyrirhugaða í Ott-
awa.
“Ottawafundurinn er hinn
mikilsverðasti”, segir Rother-
mere lávarður. “Hann er það
ekki einungis fyrir Brezka veld-
ið í heild sinni, heldur einnig
fyrir sérstaka hluta þess. Hann
er þýðingarmikill fyrir íbúa
þessa bæjar (Winnipeg) sem
aðra. Og það hvílir skylda á
blöðunum og almenningi, að
gera sitt til þess, að fundurinn
hepnist.
Ef fundurinn hepnast, mun
ástandið brátt batna í löndum
þeim, sem hlut eiga að máli. Og
það hefir einnig nokkur áhrif á
ástandið í heimnum í heild
sinni. Hepnist fundurinn ekki,
mun kreppan viðstöðulaust
harðna og áhrifin af því verða
ægileg fyrir Canada, sem aðra
hluta samveldisins.”
Um það, sem fyrir þessum
fundi lægi fór Rothermere þess
um orðum: “Það sem leggja
verður grundvöll að er í stuttu
máli það, að Bretland kaupi af
Canada húsavið, dósamatvöru
og bændavörur. í stað þess
ætti Canada að kaupa kol toll-
frítt frá Bretlandi og það af
stálvöru framleiðslu, sem can-
adiskur iðnaður af sama tæi
fullnægir ekki. Um þessi við-
skifti ættu að vera gerðir
samningar til sjö ára.”
Árangurinn af þessu, segir
Rothermere að verði sá, að
Canada verði brátt fremsta
land í heimi í niðursuðu-iðn
rekstri (canning). Viðar-tekj-
an komi British-Columbia,
strandafylkjunum eystri og
Quebec á fætuma. Og vestur
fylkin og Winnipeg njóti hagn-
aðar af greiðari og hagkvæm-
ari sölu á bænda vörunni. Fyrir
Bretland er aukinn markaður
fyrir kol og stálvöru eitt hið
þýðingarmesta til að bæta úr
atvinnuleysinu.
Takist ekki samningar á
fundinum um þetta, bíður bara
meira atvinnuleysi Englands og
minni sala fyrir frumiðnað Can-
ada. Því mundi fylgja enn meiri
kreppa og hveraig fylkin fá reist
rönd við henni vildum vér ekki
þurfa að svara.”
Gengi canadiskra peninga og
peninga allra samveldisþjóðanna
hélt lávarðurinn heppilegt, að
væri hið sama og sterlings-
pundsins. Með því gæti Can-
ada tekið öll sín lán í Bretlandi
í stað Bandaríkjanna. Og
reynslan hefir orðið sú á Bret-
landi, að vara hefði ekki hækk-
að í verði eins og þeir óttuðust
þó að afleiðingin yrði af afnámi
gullinnlausnarinnar.
Þetta hefir nú Rothermere
lávarður að segja um Ottawa
fundinn og þýðingu hans. Það
lítið sem liberal blöð þessa lands
hafa um þennan væntanlega
fund sagt, hefir lotið að því að
gera lítið úr tilgangi hans.
MERKISMAÐUR LÁTINN.
Þórarinn Stefánsson, bóndi i
Framnesbygð, lézt 29. júní s.l.
á heimili sínu.
Hann kom til Vesturheims
árið 1893. Bjó hann fyrst í hinni
svonefndu ísafoldarbygð i Nýja
íslandi, en flutti búferlum vest-
ur til Framnesbygðar árið 1901,
þar sem hann hefir búið síðan.
Hann var á 80. aldursári. Ætt-
aður var hann úr Austur-Skafta
fellssýslu og alinn upp að mestu
í Árnanesi í Nesjum. Kona hans
Steinunn Jónsdóttir, Stefáns-
son, er enn á lífi. Þau hjón
áttu sex börn, sem öll eru á lífi
og upp komin. Þau eru Páll og
Stefán, sem hjá foreldrum sín-
um hafa verið; Guðjón, bóndi
í Víðirbygð; Vilborg, gift Th.
Einarssyni í Winnipeg; Anna
hjúkrunarkona og Guðrún, báð-
ar í Winnipeg.
Þórarinn var, eins og séra
Jóhann komst að orði um hann
í útfararræðu sinni, sannur
maður í orðsins fylstu merk-
ingu. Hann var ljúfmenni og
hjálpfús með afbrigðum, enda
unnað af öllum, sem honum
kyntust. Hann var með stærri
mönnum á vöxt og karlmenni í
hverri raun. Greindur var hann
og hafði ávalt á reiðum höndum
kýmnissögur, til þess að koma
þeim, er hann talaði við, í gott
skap.
Jarðarförin fór fram 4. júlí,
að viðstöddu fjölmenni víðsveg-
ar að úr Nýja íslandi og frá
Winnipeg. Hann var jarðsung-
inn af séra Sigurði Ólafssyni.
Flutti og séra Jóhann Bjarna-
son ræðu við útförina, er hinum
látna var vel kunnugur.
LAUNALÆKKUNAR KRAFIST
Á sambandsþinginu í vetur
var nefnd skipuð til þess að
rannsaka, hvort ekki væri hægt
að minka útgjöld C. N. R. kerf-
isins. Ein afleiðingin af þeirri
rannsókn er sú, að nefndin
leggur til að lækkuð séu laun
nokkuira yfirmanna, sem við
þjóðbrautakerfið starfa. Um
96 manns hafa yfir $10,000 árs-
Iaun hver. Og 37 manns hafa
yfir $15,000 laun. Þetta áh'tur
nefndin of hátt kaup, og legg-
ur til að það sé fært niður. —
Fyrir ári síðan var kaup lækk-
að um 10 af hundraði á öllum
þjónum félagsins, sem meira
kaup höfðu en $4,000 á ári.
Snerti sú kauplækkun 828
manns, og félaginu sparaði það
$546,652 á ári. Er það ekki
lítið fé. Annars virðist þarna
góð ástæða til þess að spara,
því þetta rokna kaup til svo
margra er viðurlitmikið fyrir
félagið að borga, á svona árum
að minsta kosti, og reyndar á-
valL^
Sambandsstjórnin mun hafa
lagt tillögur nefndarinnar fyrir
stjórnarráð C. N. R. kerfisins.
En í þeim var farið fram á,
að laun þeirra, er yfir $15,000
hefðu, væru lækkuð um $500,
og svo á öðrum hlutfallslega
við það niður að $4,000 kaupi.
Hvað ráðið gerir, er ekki kunn-
ugt, þegar þetta er ritað.
ÝMSAR FRÉTTIR.
Kafteinn N. Evan-Atkinson er
nú fullyrt að sæki um kosningu
í Rupertsland kjördæmi, gegn
Hon. E. A. McPherson, fjár-
málaráðgjafa Brackenstjórnar-
innar. Hann sækir algenlega ó-
háður öllum flokkum. Segir
Mr. Evans-Atkinson, að hann
hafi sér að baki fylgi meira en
helming kjósenda í kjördæminu.
Þeim hafi þótt sér nóg boðið,
er þeim var sent þingmannsefni,
er þeir þekkja ekki og hafa fátt
eitt heyrt um annað en það, að
hafa tapað þingmensku í heima-
kjördæmi sínu, Portage La
Prairie. Hagsmunum Ruperts
Land kjördæmis og lifnaðarhátt
um manna og atvinnuvegum, sé
hann gersamlega ókunnugur.
Hann hafi auk þess sem sjálí-
boði tekið við fjármálaráðgjafa-
stöðunni, en nú virðist stjórnin
í ráðaleysi með að fá hann
nokkursstaðar kosinn. Hafði
lengi ætlað honum sæti í St.
George, en litist nú ekki á það.
Mr. Evans-Atkinson hefir
heimilisréttarland í Ruperts
Land kjördæmi og hefir stundað
þar um langt skeið málmnám.
Hann hefir veitt mönnum í
hundraða tali atvinnu og átt
mikinn þátt í að fé til náma-
vinslu hefir verið lagt í þá starf-
semi af einstökum mönnum.
Kosningin fer fram 14 júlí.
* * *
Hon. W. A. Gordon, verka-
málaráðherra sambandsstjórn-
arinnar, hefir nýlega birt skýr-
slu yfir notkun þess fjár, er
veitt hefir verið af stjórnum
landsins sem framfærslu eyrir
handa bágstöddum. Skýrslan
ber með sér, að 47 cent af
hverjum dollar hafa verið greidd
í kaup þeim, sem um útbýting-
una hafa séð, en til beinnar
framfærslu aðeins 53 cents.
Meðferð fjársins í höndum fylk-
isstjórnanna hefir verið sú, að
helmingur þess hefir mátt heita
að koma að tilætluðum notum.
* * *
William Kempton heltir mað-
ur í Winnipeg. Hann er þektur
fyrir það að vera talsverður
hnefaleikari á sýningarsviðinu.
S. 1. miðvikudag.varð honum í
meira lagi laus hendin á heimili
sínu. Barði hann bæði konu
sína og dóttr illa. Reis mái út
af því. Fyrir réttinum var hanu
spurður að hversvegna hanu
skildi ekki heldur við konu sfna,
en að standa í hnefaleik við
hana. Svaraði Kempton því að
han nhefði samvizku; hann ætti
tvö börn, sem hann yrði að sjá
fyrir. Graham dómari hélt að
samviskan ónáðaði hnefaleikar-
ann ekki neitt tiltakanlega og
dæmdi hann til þriggja mánaða
fangelsisvistar.
* ♦ *
Síðastliðinn mánudag sam-
þykti þingið á Bretlandi, með
223 atkvæðum gegn 31, að leyfa
tollnefnd stjórnarinnar að leggja
alt að því 100 prósent toll á
vörur frá írlandi. Er hugmynd
Bretastjórnar, að ná inn með
þessum tolli því, sem svarar til
jarðaskattsins, sem de Valera
stjórnin neitar að borga.
* * *
Winnipeg—Kenora þjóðveg-
urinn var opnaður til umferð-
ar á þjóðhátíðardag Canada 1.
júlí. Framkvæmdu tveir ráð-
gjafar athöfnina, annar frá
Ontario, en hinn frá Manitoba.
Vegurinn liggur um bæði þessi
fylki. Hann er eitt af þeim
störfum, sem unnin hafa verið
til atvinnubóta, þó hans væri
fyllilega þörf fyrri.
* * *
Rothermere lávarður trúir
ekki gyllingarsögunum, sem í
mörgum blöðum eru nú sagðar
af ástandinu í Rússlandi. Hann
segir að enskir sérfræðingar
hafi rannsakað það og sagt á-
standið þar ægilegt. Fréttarit-
arar hans eigin blaða staðfesta
frásögn sérfræðinganna.
* ♦ *
Slysfarir urðu miklar í Banda
ríkjunum þjóðhátíðardaginn s.
1. mánudag, 4. júlí. Um 240
manns er sagt að hafi dáið.
Langflest voru blfre|iðaslysm,
en þar næst druknanir.
* * *
Undirforingi í lögregluliði
Norðvesturlandsins, R. L. Ralls
að nafni, var skotinn til dauðs
á þjóðveginum eina mílu aust-
ur af Foam Lake, Sask., í gær.
Hann ætlaði að stöðva bifreið,
er bófar voru að flýja í, sem
framið höfðu innbrotsþjófnað
i búðum í bænum Theodore,
um 15 rnílur frá Foam Lake.
Sögðu nágrannar að 6 skot að
minsta kosti hefðu verið skot-
in í viðureigninni, sem endaði
með því að bófarnr komust
undan, en lögreglumaðurinn
var skotinn til bana. Síðan hef-
ir bifreiðin, sem bófarnir voru
í, og sem auðvitað var stolin,
fundist, en leitin eftir þeim
sjálfum stendur enn sem hæst.
ÍSLENDINGADAGURINN.
Nú hefir nefndin lokið samn
ingum við flutningafélagið um
fargjald frá Winnipeg til Gimli
á Islendingadaginn þann 1. á-
gúst í sumar, og verður það 75c
fyrir fullorðna fram og til baka,
en 25c fyrir böra yngri en 12
ára. Inn í garðinn kostar aðeins
25c fyrir fullorðna og 10c fyrir
börn yngri en 12 ára.
Samið hefir verið um að
“bus”-in fari vestur Ellice Ave.
og stanzi við Sherbrook, Tor-
onto og Dominion stræti. Fari
vestur á Valour Road, og þar
norður á Sargent, og svo aust-
ur Sargent og stanzi við Dom-
inion, Banning, Arlington og
Toronto stræti, og stanzi við
Goodtemplarahúsið á horni Mc
Gee og Sargent. Eitt “bus”
fer vestur William Ave., stanzar
við Isabel stræti og Sherbrook,
suður Sherbrook og stanzar við
Notre Dame Ave., og heldur
svo suður að Goodtemplarahús-
inu, en þaðan verður Iagt af
stað kl. 8 að morgninum. Að
kvöldinu verður fólki skilað
aftur á þessa staði, eftir því
sem hvern vantar. Fyrsta
“bus” getur lagt af stað frá
Gimli þegar fólk vantar, en það
síðasta fer af stað kringum kl.
12 á miðnætti.
Farseðlar eru til sölu nú þeg-
ar á eftirfylgjandi stöðum:
í verzlun hr. Gunnlaugs Jó-
hannssonar, Sargent Ave.; hjá
B. E. Johnson, 888 Sargent
Ave., Steindóri Jakobssyni, á
horni Sargent og Victor, í bóka-
verzlun O. S. Thorgeirssonar,
674 Sargent Ave., og hjá rit-
ara nefndarinnar, 596 Sargent
Ave.
Farseðlar verða einungis
seldir þeim, er kaupa inngang
garðinn um leið.
Óskandi er að fólk kaupi far-
seðla sem fyrst, svo nefndin fái
hugmynd um, hve mörgum hún
?arf að ætla fararpláss.
G. P. Magnússon
ritari.
STAKA.
Magnús E. Eyfjörð kom hing-
að til Mikleyjar og dvelur hér
um stund. Hann er 83 ára gam-
all. Þegar bolahundarnir voru
sem mestir og ætluðu alt að
drepa, fór gárungi nokkur að
stríða Magnúsi.
Þá kvað hann þessa vísu:
Ef þú ferð að angra mig
aldinn, gæfusnauðan,
bolahundar bíti þig
bæði lífs og dauðann.
Svona vísa má ekki glatast.
Nú eru allir þeir menn á för-
um, sem kveða í þessum tón
hér vestan hafs.
Manni verður undarlega þungt
fyrir hjarta að horfa á eftir
þeim hverfa út í myrkrið. Þá
vaknar sú spuraing: Hvað kem-
ur í staðinn? Og enn er spurt:
Er ekki þessi gáfa það mesta
og bezta, sem komið hefir yfir
hafið frá íslandi til Vestur-
heims?
Eg hygg að það sé hún, sem
flutti öndvegissúlur gæfu ts-
lendinga vestur hingað. Segi
þeir henni afhendis sér, sem nú
virðist vera orðinn móður, tapa
þeir sjálfum sér. íslendingur-
inn og skáldgáfan eru tvær
eindir, sem verða að halda sam-
an, annars deyja bæði — það
er lögmál.
J. S. frá Kaldbak.
ÖRN RÆNIR BARNI,
en kemur því ekki upp í hreiður
sitt.
Sunnudaginn 5. júní kom fyr-
ir sá atburður í Naumudal í
Noregi, að örn rændi 4 ára
gömlu stúlkubami. Þar var
haldin skírnarveizla á bæ, og
meðal gestanna voru foreldrar
litlu stúlkunnar og höfðu þau
lofað henni með sér. Seinni-
hluta dags var telpan ein ú+i
að leika sér, en þegar farið var
að skygnast að henni, fanst
hún hvergi. Var nú lengi leitað
en loksins hugkvæmdist ein-
hverjum, að örn, sem á hreiður
þar uppi í fjallinu, mundi hafa
rænt barninu. Var nú lagt af
stað upp í fjallið, og hátt uppi
því fanst barnið meðvitundar-
laust, óskaddað að öðru leyti
en því, að það hafði nokkrar
skrámur á höfðinu. Barnið
sagði frá því að stór fugl hefði
komið og tekið sig og flogið
með sig þangað. — Menn ætla
að örain hafi ekki haft nóga
krafta til þess að fljúga með
barnið alla leið upp í hreiðrið;
hafi hún því ekki getað hækk-
að flugið nóg og er hún tók
niðri hafi hún skilið barnið eft-
ir. Þetta var heldur ekki svo
lítil byrði fyrir össu, því að
barnið vegur 18 kíló (36 pd.)
Munnmælasagnir ganga um
það hér á landi, og geta vel
verið sannar, að arair hafi
haft það til að ræna bömum.
Mbl..
)HANNA ANDREA LClÐVÍKS-
DÓTTIR.
Til moldar verður borin í dag
Keflavík merkiskonan Jó-
hanná Andrea Lúðvfksdótiix,
kona Þorgríms læknis Þórar-
inssonar í Keflavík.
Hún var fædd í Hafnarfirði
5. dag júnímánaðar 1854, kom-
in af merkum og mjög góðum
ættum. Faðir hennar var Lúð-
vík Knudsen þá kaupmaður í
Hafnarfirði og síðan í Reykja-
vík, einn af hinum góðkunnu
Knudsens systkinum, sem kom-
inn er frá mikill og góður af-
springur í ættir Guðjohnsens,
Sveinbjörassens og Þórðar Guð
mundssonar kammerráðs á
Litla-Hrauni. Móðir hennar var
fyrri kona L. Knudsens, einnig
komin af merkum ættum, að
nafni Anna, dóttir Steindórs
Waage, er var stjúpsonur
Bjarna Sivertsens riddara.
Frú Jóhanna ólst í bernsku
upp hjá foreldrum sínum, en
árið 1873 giftist séra Birni
Stefánssyni á Sandfelli í Ör-
æfum. Eignuðust þau tvö börn,
sem annað lifir, Stefán Björns-
son, sem verið hefir við verzl-
un í Reykjavík, en er nú í Kefla
vík .En hjónaband þeirra varð
stutt, því að séra Björn and-
aðist 13. nóv. 1877. t öðru sinni
giftist hún 17. október 1884,
Þorgrími lækni Þórðarsyni, og
sigldu þau daginn eftir til Kaup-
mannahafnar. Ári síðar varð
hann læknir á Akranesi í eitt
ár, en þar á eftir héraðslæknir
í Horaafirði í 19 ár, frá 1886—
1905. Þá varð Þorgrímur hér-
aðslæknir í Keflavík og hefir
verið þar síðan, en sagði af
sér embætti árið 1929. Hefir
hjónaband þeirra staðið í nær-
felt 48 ár og verið á allan hátt
hið farsælasta og ástúðlegasta,
svo að leitun er á slíku. Þau
hafa eignast 6 börn, 5 syni
og eina dóttur, sem öll eru á
lífi: Björn verzlunarmaður, Þórð
ur kand. filos., báðir í Reykja-
vík, Lúðvík kennari á Jökuldal
eystra, Ragnar enn í föður-
garði, Einar í Vesturheimi, og
Anna, ekkja Jóns heitins lækn-
is Bjarnasonar í Borgarfjarðar-
héraði. En auk þess hafa alist
upp hjá þeim hjónum mörg
önnur börn og unglingar bæði
skyld og vandalaus, og unnu
þau henni öll sem móður, enda
reyndist hún þeim svo í bezta
lagi.
Frú Jóhanna var mjög fríð
kona sýnum og hin mesta á-
gætiskona í hvívetna. Mbl.
ÚTFLUTNINGURINN.
Samkvæmt skýrslu Gengis-
nefndar nam útflutningurinn í
maímánuði 2,039,970 kr. Út-
flutningurinn frá 1. jan. til
maíloka nam 16,029,600 kr, eu
15,438,940 á sama tíma í fyrra.