Heimskringla - 13.07.1932, Page 1
AMAZING NEWS
DRESSES
95c
PHONE )■ , . .
o-t oej- Any kind
ZDO I Beautifully
Dry Cleaned
Pepíh's
MEN! YOUR CHANCE
Begular||SUITS^-
* * Ory Clean<^d 7 C C
* * aid Smartly i U
Service 11 Pressed
PHONE 37 236
Perths
XLiVI. ÁRGANGUR.
WINNIPEG MIÐVTKUDAGINN 13. JÚLÍ 1932.
NUMER 42
OTTAWAFUNDURINN.
Samveldisfundurinn í Ottawa|
hefst 21. júlí n. k. Við setningu I
hans verður lesið af landstjóra
heillaóskaskeyti frá konungin-
um. Landstjóri Canada, Bess-
horough lávarður, setur einnig
fundinn.
Þessi fyrirhugaði fundur hef-
ir vakið svo mikla eftirtekt í
Canada og á Englandi, og ef-
laust innan alls brezka veldis-
ins, að segja má, að um fátt
hafi meira verið hugsað og rit-
að nokkrar undanfarnar vikur.
Fréttaritari einn frá Canada
á Englandi segir nýlega:
“Ottawa er á hvers manns
vörum á Bretlandi. Enda eru nú
fulltrúarnir héðan að leggja af
stað til Canada.
Aldrei hefir meira um sam-
veldismálin verið hugsað en nú.
Og Canada hefir áreiðanlega
aldrei verið betur auglýst en í
sambandi við þenna fund. .
Hvert blað og tímarit ver
nú nokkru af bezta plássi sínu
fyrir greinar um Ottawafund-
inn, um skoðanir Canadamanna,
um viðskiftamagn Canada, um
hina miklu náttúruauðlegð ný-
lendanna, um hvernig Canada
sé að búa sig undir að taka á
móti gestunum, eða um fegurð
höfuðborgar Canada.
Hvernig skyldi Ottawafund-
urinn fara? Þessi spuming
hljómar í eyrum manns úti og
inni.
Flestir gera sér miklar vonir
um farsælan árangur af fund-
inum. Einstöku raddir heyrast
þó um það, að fundurinn sé
líklegur til að verða Englandi
erfiður. Forsætisráðherra Can-
ada sé af jámvilja gerður. Það
hafi sýnt sig á síðasta sam-
veldisfundinum á Englandi. —
Þegar hann hafi ekki komið
sínu fram hafi hann kallað til
þessa Ottawafundar. Áhrif Ben-
netts verði þar ekki minni en
á Englandi, o. s. frv.”
* * *
Þetta, sem andstæðingar
fundarins segja, virðist gefa
eitthvað til kynna í þá átt, að
Canada þurfi ekki að vera hug-
sjúkt út af því, að eftir hag
þess verði ekki litið á fundin-
um. Yfirleitt munu menn hér j
heldur ekki hafa verið það. Það j
var forsætisráðherra Canada, j
sem hugmyndinni hreyfði fyrst
um nánari samvinnu þjóðanna
innan brezka veldisins. Það er j
hann, sem leggur hana nú fyrir
samveldisfundinn. Það er hann,
sem alvarlegri gaum hefir gef-
ið málinu frá byrjun, heldur
en líklegast nokkur einn mað-
ur annar. Og það verður hann,
sem veg og vanda hefir, meiri
en nokkur einn maður annar,
af því, hvernig alt fer. Alt er
honum þetta fyllilega ljóst. —
Þetta veit og almenningur. Og
hví gæti hann ekki treyst for-
sætisráðherra Canada öðrum
fremur fyrir heppilegri úrlausn
málanna á Ottawafundinum?
Á þetta er minst hér vegna
þess, að öflug tilraun var um
hríð gerð af pólitískum and-
stæðingum Bennetts, að vekja
óhug og vantraust á þessum
fundi og málum þeim, sem þar
liggja fyrir til úrlausnar. En
þegar nú er komið svo, að far-
ið er að viðurkenna fund þenna
sem eina hina víðtækustu til-
raun til að ráða fram úr J)jóð-
félagsvandræðum innan brezka
veldisins að minsta kosti, þá
sljákkar ögn hávaðinn í and-
stæðingunum, og óskir þeirra
eru nú ekki upphátt bomar
fram um það, að fundurinn
verði forsætisráðherra Canada
til falls og minkunnar, þó vita
megi, að það búi efst í huga
þeirra.
* * *
Nýverið bárust fréttir um
það, að stjórnin í Ottawa hefði
búið út skrá yfir vörur, sem
hún ætlar að leyfa tollfrítt inn-
flutning á frá Englandi. Eru
um 8000 tegundir af vörum á
skrá þessari. Hverjar vörur þess
ar eru, hefir ekki verið birt, en
ólíklegt, er að Bretland hafi
ekiik neijm (hagnað af sölu
þeirra hingað. Á að gizka eru
vörurnar ullar- og bómullar-
vara, járavara og lyfabúðavör-
ur. 1 stað þeirra er auðvitað
farið fram á, að Bretland kaupi
héðan bændavörur.
Það hefir oft verið bent á
tregðuna á að selja bændavör-
ur Canada. í peningum talið
nemur hún minnu en áður. En
í mælum eða pundum talið, er
munurinn minni, en margur
ætlar, á útfluttri bændavöru en
áður. Það er lágverðið á henni,
sem aðallega geri strikið £
reikninginn. En með vissri sölu
á svo og svo miklu af bænda-
vörunni, er ekki ólíklegt, að
verð hennar hækki og verði
jafnhærra er fram líða stund-
ir.
Ottawa-fundurinn snertir ein-
mitt það málið, sem hér er öll-
um brennandi áhugamál, að bót
verði á ráðin — vissari og betri
markað bændavörunnar. Alt
hveiti Canada getur Bretland
að vísu ekki keypt, en einn
þriðja þess, til helmings, eftir
uppskerumagninu, getur það
keypt, og er það atriði, sem ekki
er smávægilegt.
En nautpening allan héðan,
svínakjöt, smjör og egg, ætti
það að geta keypt. Með trygg-
ingu markaðar fyrir þessar vör-
ur, er stórt spor stígið í hagn-
aðaráttina.
En meira um alt þetta fá
menn að heyra síðar, eða að
Ottawafundinum loknum.
ÍSLENDINGADAGURINN
A HNAUSUM.
íslendingadagur verður hald-
inn að Hnausum mánudaginn 1.
ágúst, í skemtigarðinum lðavöll-
um, og má búast við eins góðum
viðtökum eða betri, en undan-
farið.
Þetta ársmót íslendinga í Nýja
íslandi er orðið svo alment við-
urkent, og vel þokkað, að ná-
lega allir, bæði ungir og gaml-
ir í bygðunum, kappkosta að
komast þangað.
Ein nýung fyrir næring and-
ans verður að hlusta á Guð-
mund dómara Grímsson, sem
íslendingar þekkja af orðspoiá,
en sem fæstir hér hafa séð. —
Flytur hann minni ættjarðar
sinnar.
Aðrir ágætir ræðumenn og
skáld eru á hinni margbreyttu
skemtiskrá.
Þar verður ennfremur flokk-
ur stúlkna í íslenzkum bún-
ingum, og drengjaflokkur frá
Riverton (Boy Scouts) sýnir
ýmsar æfingar.
Vér bjóðum alla Islendinga
velkomna og vonumst til að
geta gefið þeim eftirminnileg-
an dag.
Skemtiskrá auglýst síðar.
f nafni nefndarinnar,
i
G. O. Einarsson.
ritari.
ÝMSAR FRÉTTIR.
J. T. Curtis, sá er bezt þótt-
ist ganga fram í því, að leita
uppi náunganá, er ræntu barni
Lindbergh-hjónanna, hefir ver-
ið dæmdur í 1 árs fangelsisvist
og $1000 sekt. Dómsástæð-
urnar eru taldar þær, að Curtis
hafi aftrað því að ræningjun-
um var náð.
* * *
Ein miljón og tvö hundruð
þúsund dalir voru teknir inn
fyrir veðmál á tveim vikum, er
veðreiðarnar stóðu yfir. í Polo
Park í Winnipeg og Whittier
Park í St. Boniface. Skatttekj-
ur fylkisstjórnarinnar námu
$57,400.
* * *
Tekjuhalla, er nemur 7 bilj-
ónum fránka, býst fjármála-
ráðherra Frakklands við að fjár-
málareikningarnir sýni, er þeir
verði lagðir fyrir þingið.
* * *
Fultlrúi konungsins á írlandi,
James McNeil, hefir beðið um
lausn frá embætti sínu. Stöð-
ugar móðganir af hálfu ráð-
herra de Valera stjórnarinnar,
eru sagðar ástæðan fyrir lausn-
arbeiðninni.
* * *
Á árinu 1931 hafa 1302 menn
dáið af bifreiðaslysum í Can-
ada, samkvæmt skýrslum Ot-
tawa stjórnarinnar. Af þessum
dauðsföllum urðu 566 í Ontario,
355 í Quebec, 60 í Manitoba,
50 í Saskatchewan, 67 í Alberta,
110 í British Columbia, 49 í
Nova Scotia, 40 í New Bruns-
wick og 2 á Prince Edward Is-
land. Talan er lítið eitt liærri
en árið fyrir, en fullhátt meðal-
tal eigi að síður.
* * *
Eftir tveggja daga eltingaleik
við mennina, sem skutu L. V.
Ralls lögreglumann í Saskatche
wan, og sem sagt var frá i
síðasta blaði, hafa þeir nú all-
ir (þrír) náðst. Tveir náðust á
lífi og eru bræður, Bill og Mike
Kuruluk. Sá þriðji, Bill Miller,
skaut sjálfan sig, áður en hann
var handtekinn. Tveir af þess-
um mönnum, “Bill”-arnir hafa
áður verið í Prince Albert fang-
elsinu, annar 5 ár en hinn 3,
fyrir þjófnað. Þeir voru ekki
fyrir löngu komnir út.
* * #
Séra H. F. Davidson, rektor
í Stiffkey-þorpinu á Enlandi,
60 ára gamall, hefir verið fund-
inn sekur af kirkjuráði ensku
kirkjunnar um ósæmilegt fram-
ferði. Starf prestsins var að
líta eftir hrösuðum stúlkum,
sem kirkjan var að reyna að
hjálpa, en honum fórst það alt
annað en sæmilega.
* * *
Tveir uppfyndingamenn, ann-
ar þýzkur, en hinn brezkur,
hafa framleitt skotfæri, sem
geta valdið miklu meira tjóni
en skotfæri þau, sem til þessa
hafa verið notuð í hernaði. —
Þýzki uppfyndingamaðurinn hef
ir fundið upp kúlur til þess að
skjóta með úr rifflum, sem eru
svo öflugar, að þær tvístra
þykkum plötum úr bezta stáli
úr mikilli fjarlægð. Uppfynd-
ingamaðurinn, Gerlich nokkur
í Kiel, hefir fundið upp sérstak-
lega útbúinn riffil, til þess aö
skjóta kúlum þessum úr.
Brezki uppfyndingamaðurinn
hefir fundið upp fallbyssukúl-
ur, sem geta tvístrað stálplöt-
um, sem eru fet á þykt, úr 9
mílna fjarlægð. Sérfræðingar
telja, að vegna uppfyndingar
hans, verði sennilega herskipa-
smíði í framtíðinni miklum
breytingum undirorpin. Herskip
framtíðarinnar verði mörgum
sinnum rambygðari en nú, en
ekki nærri eins hraðskreið.
* * *
í frétt frá Berlín er þess get-
ið, að bókasafn Rússakeisar-
ans sáluga, verði bráðlega selt
á uppboði. Frá Madrid berst
einnig frétt um það, að kon-
ungshöllinni á Spáni, sé verið
að breyta í hús til að geyma í
listasöfn. Það er ekki hægt að
segja, að allar breytingar í
heiminum séu til hins verra.
* * *
Til Vancouver er von á 21
fulltrúa til Ottawafundarins, frá
Ástralíu og New Zealand, á
morgun. Þessir andfætingar
vorir leggja um hæl af stað
með sérstakri járnbrautarlest til
Ottawa.
* * *
Skatt-tekjur Manitobastjóm-
arinnar af sölu á gasolíu, eru
ekki hærri yfir tvo fyrstu mán-
uðina af fjárhagsárinu, en þær
voru á sama tíma síðastliðið
ár, þrátt fyrir 2 centa skatt-
hækkunina á gasolíu, sem gerð
var á síöasta þingi. Þetta sýnir
hvað ósanngjarnlega háir skatt-
ar hafa í för með sér.
* * *
Patricia Maguire, 27 ár stúlka
í Chicago fékk svefnveikina 15.
febrúar síðastliðinn vetur, og
hefir ekki vaknað síðan. Hún
hefir verið meðvitundarlaus ali-
an þenna tíma, sem nú eru
orðnir 5 mánuðir. Læknar hafa
reynt með öllum ráðum að
vekja hana, en eru nú orðnir
vonlausir um að hún vakni.
* * *
Nýlega voru samþykt lög í
brezka þinginu, um að leggja
niður barnahýðingar. Lávarða-
deildin er ófús á að samþykkja
þessi lög. Segja lávarðarnir
flestir, að þeir hafi verið hýdd-
ir, þegar þeir voru börn, og að
það hafi gert þeim'gott.
VIÐURKENNING.
Herra ritstjóri!
Eg veit ekki hvort þér er það
kunnugt, að eg hefi á yfirstand
andi ári haft töluverð bréfskifti
við landa hingað og þangað
hér í Vesturheimi, beggja meg-
in landamæranna, fyrir þjóð-
ræknisfélagið, með góðum á-
rangri. Eg get ekki nógsamlega
þakkað næstum undantekning-
arlaust, þan nhlýhug, sem eg
hefi orðið var við í þeim bréf-
um, sem eg hefi fengið, til fé-
lagsskapar okkar, sérstaklega
sunnan landamæranna.
Rétt sem sýnishorn set eg
hér orðrétt kafla úr einu bréfi
af handahófi. Það hljóðar svo:
“Eg er Þjóðrækniqfélagiinu
þakklát fyrir margt, sem það
hefir gert — sér í lagi fyrii
hvað það gengur fyrir, að kenna
unglingum að lesa og skilja ís-
lenzkt mál. Sýnist mér útlit
fyrir að þess sé ekki langt að
bíða, að Þjóðræknisfélagið verði
aðal “sverð og skjöldur” ís-
lenzkrar tungu og bókmenta hér
vestan hafs. Óska eg og vona
að þið aukið starf ykkar í þá
átt, og að það starf blessist.”
Eins og heyrist á þessum
bráfkafla er það kona sem
skrifar. Hún ber það með sér
að vera mentuð og vel að sér
( íslenzku, enda er hún kona
eins af beztu lslendingunum
sunnan landamæranna. Þessi
frú hefir svona mörg orð um
álit sitt á félaginu og gerðum
þess, en eg hefi frá mönnum
tugataíli bréf, sem láta í ljósi
sama álit, þó með færri orðum
sé skýrt frá því.
Og nú finst mér að við þjóð-
ræknismenn verðum að gera
alt, sem í okkar valdi stendur
með að kenna íslenzka tungu
og hlúa að bókmenta áhuga, svo
að við ekki svíkjum það álit,
sem fólk út um álfuna hefir á
okkur. Og það sýnist að það
ætti að vera sómaspursmál fyr-
ir hvem íslending — hvort sem
hann er í Þjóðræknisfélaginu
eða ekki — að stuðla að því að
þetta kenslustarf blessist.
Svo enda eg þessar línur og
bið Heimskringlu, að bera öll-
um, sem hafa skrifað mér, kær.
ar þakkir fyrir góðar og alúð-
legar undirtektir við málefni
Þjóðræknisfélagsins.
Wpeg 11. júlí 1932.
Guðj. S. FriSriksson.
ÍSLEN DINGADAGURINN
í blöðunum síðast liðna viku
var ekki getið um það, á hvaða
tíma að morgninum fólkið þarf
að vera komið á biðstöðvarnar,
meðfram Ellice og Sargent
strætum. Nú er búið að ákveða
það, að kl. 7.15 verður Bus kom
ið að Sherbrook eftir Ellice, og
verður svo aðeins nokkrar mín-
útur þar til það stanzar á
næstu stöð og svo áfram, því
að hringferðin tekur aðeins 20
mínútur. Einnig fer bus vestur
William Ave, hjá Isabel St. kl.
7.15.
Þetta er fólk beðið að athuga
svo það verði komið í tíma á
hinar mismunandi stöðvar.
Gert hefir verið ráð fyrir að
fólk geti haft meðferðis matar-
körfur, og smáböggla, ef það
vantar.
Frú Sigríður Olson, kona dr.
B. H. Olsons, hin góðkunna
söngkona hér í borg, hefir lof-
ast til að koma fram sem Fjali-
konan á deginum. — Nokkur
breyting verður á þeirri athöfn
frá því, sem verið hefir undan-
farin ár, að því leyti, að nú
mælir Fjallkonan fram ljóð til
gesta sinna, og syngur þau svo
á eftir ásamt nokkrum fleirum
íslenzkum lögum, sem öllum
slendingum eru kunn og kær,
verður hún aðstoðuð af hljóð-
færasveit héðan úr Winnipeg.
Skrúðganga verður hafin á
Gimli út í lystigarð bæjarins,
iá er prógrammið hefst kl. 2
e. h., með eitt af hinum stærstu
bus-um Winnipeg Electric fé-
lagsins skrautbúnu, hlaðið söng
fólki, í broddi fylkingar. Það
verður reynt að gera það til-
komumikla athöfn.
Bygður verður að þessu sinni
sérstakur pallur í lystigarðin-
um fyrir Fjallkonuna og lið
hennar. Verður sá pallur skreytt
ur með hinum ljómandi fögru
tjöldum, er listamálarinn Fi-ið-
rik Sveinsson hefir málað af
Almannagjá á íslandi. Gefst
þar hinum yngri íslendingum,
sem aldrei hafa til íslands kom-
ið, að sjá hina fögru og marg-
umtöluðu Almannagjá, þar sem
þúsund ára minningarhátíð Al-
þingis var haldin árið 1930.
Fólk hér í bæ, sem ætlar til
Gimli með bus-unum þann 1.
ágúst, er beðið að kaupa far-
seðla sína sem fyrst, svo nefnd-
in geti vitað hvað margt fer.
Auk þeirra, sem áður hefir
verið auglýst að hefðu farseðla
til sölu, hefir Mr. Ásbjörn Egg-
ertsson, að 614 Toronto St.,
útsölu á þeim.
G. P. Magnússon.
ritari.
Scholarships til sölu
með afslætti, gilda við Success
og Dominion Busniness Col-
leges, á skrifstofu Heims-
kringlu..
KÚLUMYNDAÐ SÓLKERFI.
— í stjörnumerkinu Herkules
mátti í aprílmánuði eygja lítinn
Ijósdepil og ógreinilegan, milli
stjarnanna Zeta og Eta. Það
er hinn nafnkunni stjarnahópur
M 13 (sem svo er nefndur
vegna þess að hann er nr. 13 í
stjörnuskrá Messiers). Ef horft
er á þenna ljósdepil í kíki, er
hann ógleymanlega fagur. Þar
eru þúsundir stjaraa hver við
aðra í hnapp, gular, rauðar og
hvítar og í miðju eru þær svo
þéttar, að þær verða ekki
greindar sundur.
Hér er um heilt sólkerfi að
ræða og er það gríðarstórt. í
því eru sem sagt þúsundir
sólna og margar þeirra hundrað
sinnum stærri heldur en vor
eigin sól. Þetta kalla menn
kúlumynduð sólkerfi, því að
vegna fjarlægðarinnar, líta þau
út eins og stjörnuhnappur,
héðan frá jörðu. Þessir stjörnu-
hópar eru margir og þekkja
menn um 80 þeirra. Það er
amerískur stjörnufræðingur,
Harlow Shapley, sem manna
best hefir rannsakað þá. Hefir
hann varið mörgum árum til
þess, hefir reiknað út hve langt
þeir eru frá jörðu, hvað þeir
eru stórir og hver er afstaða
þeirra til vetrarbrautarinnar.
Með því að taka myndir af sól-
kerfum þessum og rannsaka
þær, telst mönnum svo til, að •
í hverju þeirra muni vera um
50,000 sólir, sem allar snúast
um einn miðdepil. En sjálfsagt
eru þær miklu fleiri, því að þaö
eru að eins stærstu sólirnar,
sem Jtoma fram á ljósmyndun-
um. Og þær eru svo stórar,
að væri vor eigin sól komin i
hóp þeirra, mundi hún ekki
sjást á ljósmynd, vegna þess
hvað hún er lítil, enda þótt
notaður væri sá sterkasti
stjörnukíkir, sem til er í heimi,
og myndatökutíminn sé margar
klukkustundir. En þetta stafar
aftur af því hve vegalengdin er
geisimikil. Næsti stjörnuhnapp-
urinn er 21,000 ljósár frá jörðu
vorri, M. 13 er 36,000 ljósár
héðan og sá fjarsti er svo langt
í burtu, að ljósið þaðan er
230,000 ár að komast til jarðar.
Ljósár er talin sú vegalengd,
sem ljósiö fer á heilu ári, en
það fer með 300,000 kílómetra
hraða á sekúndu. Á þennan
hátt eru allar fjariægfWr í
himingeimnum reiknaðar. Til
samanburðar má geta þess, að
fjarlægðin frá jörðu til sólar
er 8 ljósmínútur. Frá sólu til
Neptúns er fjarlægðin 4 ljós-
tímar. Frá sólu til næstu stjörnu
(Alfa í Kentaur-merkinu) er
fjarlægðin 4 ljósár. Á sama hátt
hafa menn reiknað út víðáttu
hinna kúlumynduðu sólkerfa og
komist að raun um, að milli
ytstu stjarnanna í þeim sé um
100 ljósár.
Lesb. Mibl.
HVAR FÓL EGILL SILFUR
AÐALSTEINS KONUNGS?
Þau munu hafa komið mest
manngjöld fyrir íslending, er
Aðalsteinn Englakonungur galt
föður og frændum Þórólfs
Skallagrímssonar, kistur tvær
fullar af silfri. Til marks um
það, hvað kistur þessar hafa
stórar verið, segir sagan að
tveir menn hafi borið hvora inn
í höll Aðalsteins, þá er hann
afhenti Agli féð.
Eins og kunnugt er, kom fé
þetta engum að notum. Egill
kastaði sinni eign á það, og
galt hvorki föður sínum né
Frh. á 5 bls.