Heimskringla - 20.07.1932, Síða 1
AMAZINC NEWS
PHONE
37 266
DRESSES
Any kind |~
Beautifully M’jl’
Dry Cleaned
PortKs
MEN! YOUR CHANCE
su ITS-, „
Dry Cleaned T t C
* *
* *
Service
and Smartly
Pressed
PHONE 37 20«
Poptlís
XLVI. ÁRGANGUR.
WINNIPEG MIÐVTKUDAGINN • 20. JÚLÍ 1932
NÚMER 43
ST. LAWRENCE SAMNINGUR-
INN UNDIRSKRIFAÐUR.
rekstri brautarinnar er ekki
nokkur maður sagður en hann.
Samningar hafa nú loksins
verið undirritaðir af Canada og
Bandaríkjunum, um það að
gera St. Lawrence ána skip-
genga, aðallega á 116 mílna
svæðinu á landamærum On-
tario og New York ríkis. Áin
rennur þar um hæðir, og er
sagt að hallinn nemi alt að því
85 fetum. En svo snertir samn-
ingurinn alla leiðina frá Ont-
ariovatni til Montreal.
Canada hefir áður eytt of
fjár í St. Lawrence fljótið, Can-
ada megin. En þessi nýi kostn-
aður er sagt að verða muni
40 miljónir dala. En allur kostn
aður Bandaríkjanna við þetta
er sagður nema 240 miljónum
dala.
Að gera ána skipgenga alla
þessa leið, er svo mikið fyrir-
tæki, að talið er að því verði
ekki lokið á skemri tíma en 8
áxum.
HVAR ER HÆGT
AÐ SELJA HVEITIÐ?
Hveitiuppskera í Canada er
nú metin að verði um 450 milj-
ónir mælar í haust. Það er ein
mesta ársuppskera í sögu lands-
ins. Og yfir 100 miljónir mæl-
ar eru enn óseldir af fyrri ára
uppskeru. Það verður því að
líkindum ekki neinn leikur, að
finna markað fyrir alla þessa
framleiðslu.
Við þau vandræði bætist og,
að víða er nú góð uppskera. Og
allar þjóðir leggja nú rækt við
sína heimaframleiðslu. Sam-
bandsstjórnin hefir verið og er
út og suður að leita að mark-
aði. En hvað henni verður á-
gengt, með ástandið eins og það
i er, er eftir að vita.
JOSEPH ÓLAFSSON
VINNUR $100 VERÐLAUN
ÓEIRÐIR f ELMWOOD.
Hjá F. J. Wellwood félgainu,
er býr til kassa, úti í Elmwood
(í Winnipeg), var heldur óeirða
samt s.l. viku. Félagið hafði á-
kveðið að lækka vinnulaun eitt-
hvað, en verkamenn gerðu þá
verkfall. En nú var enginn hlut-
ur auðveldari en að fá menn
í skarðið. En þegar svo var kom
ið, komu verkfallsmenn heldur
en ekki á vettvang. Söfnuðust
hundruðir manna umhverfis
byggingu félagsins, og hófst þar
grjótkast og barsmíði, og jafn-
vel skothríð. Byssur voru að
vísu lítið notaðar, en einn lög-
reglumaður særðist þó af kúlu
í annan fótinn. Annar lögreglu-
maður var handleggsibrotinn,
varð fyrir barefli eins verkfalls
manna.
"Að lokum var lögregluliðið
orðið svo fjölment að það gat
tvístrað hópnum. Nokkrir særð-
ust og af verkfallsmönnum. —
Fjórir voru handteknir, er hald-
ið er að forsprakkar hafi verið.
Þessar óeirðir voru endur-
teknar í tvo daga eftir þetta,
en í miklu vægari stíl. Samt
meiddust nokkrir báða dagana
og nokkrir fleiri voru hneptir
í varðhald.
Samningstilraunir sem gerð-
ar voru, hepnuðust ekki. En
uppþot hefir tekið fyrir.
Blaðið Leader-Post frá Re-
gina skýrir frá því, að þar hafi
farið fram samkepni um að
gera eftirmynd af vögnum, eða
eins og það er orðað á ensku:
“The Leader-Post Fisher Body
Craftsman’s Guild Model Coach
Competition’’, og að íslenzkur
piltur, Joseph Ólafsson frá Les-
lie, Sask., hafi unnið fyrstu
verðlaun, $100 í gulli og ferð
til Detroit, þar sem samkepni
fer fram um þetta, fyrir öll
Bandaríkin og Canada. Eftir-
líking Ólafssons kemur þar til
greina, og verði hann þar einn
af fjórum helztu sigurvinnend-
um, hlýtur hann 4 ára há-
skólanámsskeið ofan í kaupið.
EINKALEYFI SELT.
Trans American Air Lines,
sem er flugfélagið, er einka-
leyfið fékk á Islandi til flug-
ferða, hefir selt Pan-American
1 Airways í New York einkaleyfi
sitt, til að takast flugferðir á
j hendur norðurleiðina yfir At-
lantshaf, eða um Grænland og
| Island. Pan.'-American félagið
kvað hafa í hyggju að byrja
| strax á að gera veðurathuganir
i og annan undirbúning undir
j flugferðirnar. Um verð einka-
1 leyfisins er ekki getið.
HRÆÐILEGT MORÐ.
SIR HENRY THORNTON
SEGIR AF SÉR.
Sir Henry Thornton, stjórn-
andi þjóðbrautakerfis Canada,
sagði stöðu sinni lausri í gær.
Aðal ástæða hans fyrir þessu
er talin sú, að honum hafi ekki
geðjast að því, að nefnd var
skipuð á síðasta þingi til þess
að rannsaka, hvort ekki væri
hægt að draga úr reksturskostn
aði kerfisins. Og nefnd þessi,
sem um hríð hefir starfað, hef-
ir haft sitt af hverju að segja
um stjórn brautarinnar.
Sir Henry Thornton tók við
stjórn C. N. R. árið 1922. Er
sagt að hann ákveði að fara
úr þjónustunni um næstu mán-
aðamót (júlí og ágúst).
I bráðina tekur S. J. Hunger-
ford við stjórn félagsins. Hann
var aðstoðarstjórnandi og næst
ur Sir Henry Thornton að völd-
um. Hann hefir mikla og góða
reynslu í starfi sínu, og var í
þjónustu C. N. R. þegar Sir
Henry tók við. Mr. Hungerford
var og, áður en kerfið var tek-
ið yfir af sambandsstjórninni,
vara-formaður þess. Kunnugri
Síðast liðinn fimtudag var
maöur að nafni Lawrenne Lees
— umsjónarmaður þjóðgarðs-
ins norðvestur í Riding Moun-
tain í Manitoba — skotinn til
dauðs í húsi sínu. Mrs. Lees
varð einnig fyrir skoti, en lifir
ennþá; en vafasamt þykir aö
í hún sé úr hættu.
Hjónin sátu í húsi sínu og
voru að fá sér te klukkan 10
að kvöldinu, áður en þau færu
að hátta. Er þá skotið inn um
gluggann og kom kúlan í bak-
ið á Mr. Lees, og dó hann sam-
stundis af því. Mrs. Lees hleyp-
ur að símanum og nær í lög-
regluna í Rossburn, sem ekki
var nema 7 mílur í burtu, og
var hún innan nokkurra mín-
útna komin í húsið. En meöan
Mrs. Lees var að síma, var hún
skotin í hálsinn og hné með-
vitundarlaus niður. Var hún
kjálkabrotin og hræðilega út-
leikin á hálsinum eftir skotið.
Hiin vaknaði aðeins eftir að
lögreglan kom, og sagði að tveir
menn útlendingslegir hefðu
gert þetta. Mrs. Lees hfir síð-
, an verið á sjúkrahúsi, og er
| haldið að hún muni lifa.
Mennimir, sem verk þetta
frömdu, hafa ekki fundist,
hvemig sem að þeim hetfir
verið leitað.
Ástæður fyrir verkinu geta
menn ekki hugsað sér aðrar en
þær, að Mr. Lees tók allhart á
því, ef menn frömdu skemdir
nokkrar á þjóðgarðinum.
ÝMSAR FRÉTTIR.
Fulltrúar frá Bretlandi, Ind-
landi, Suður-Afríku, Rhodesia
og Norður-írlandi, komu til
Ottawa í gær til þess að vera á
samveldisfundinum, sem hefst
þar á morgun (fimtudag).
* * *
Forsætisráðherra Bracken var
endurkosinn í þriðja sinn s. 1.
fimtudag í kjördæmi sínu, The
Pas. Endanleg úrslit eru ekki
komin, þegar þetta er ritað, en
á 18 kjörstöðum af 26, hafði
forsætisráðherra 1713 atkvæði,
McDonald, verkamannafulltrúi,
1049, og Maulson, óháður, 166.
* * *
Royal og Montreal bankarn-
ir hafa lækkað hluthafavexti
sína úr 12 prósent niður í 10
prósent. Þetta er frétt, þó hún
sé ekki lengri.
* ♦ *
Kínverjar og Japanir halda
enn áfram að hníflast í Man-
sjúríu. Kínverjar byrjuðu þar
með því, að þeir tóku japansk-
an herforingja, er þeir segja að
hafi verið að smygla ópíum,
og hafa þeir haldið honum á
laun, að því er Japanir segja.
Til þess að ná honum aftur,
sendu þeir að eins 21 járnbraut-
arvagna, hlaðna hermönnum, og
eru nú með þeim liðsafla að
taka þann eina hluta, sem þeir
höfðu ekki áður tekið af Kín-
verjum í Mansjúríu. Kínverj-
arnir, sem liðsforingann tóku,
er sagt að hafi gert það án
nokkurrar skipunar frá kín-
versku stjórninni. En þó er ekki
ólíklegt talið, vegna þess hve
Japanir láta þarna óðslega, að
stjórnin í Kína grípi til vopna.
¥ * *
Friðargarðurinn í Turtle
Mountain var opnaður með
mikilli viðhöfn s. 1. fimtudag.
I ræðunum, sem þar voru flutt-
ar var minst 100 ára friðarins
milli Bandaríkjanna og Canada
á mjög viðeigandi hátt. Á Frið-
argarðinn var og minst, sem
vita, er öðrum þjóðum heims-
ins ætti að lýsa inn á leiö
friðar og farsældar.
¥ * *
Eldur kom upp í skemtigarði
við baðstöðina á Coney Island
í New York s. 1. fimtudag, og
olli skaða, sem nam $3,000,000,
áður en hann varð slöktur.
Eldurinn breiddist svo ótrúlega
fljótt út, að 50 sumarhús urðu
honum að bráð, sex baðhús, 200
bifreiðar, er þar stóðu, og gang
stéttir og skálar, og alt sem
meðfram þeim var, áður en við
nokkuð varð ráðið. Fólkið flýði
úr baðinu nakið, og 200 manns
sködduðust meira og minna af
eldinum, en enginn hættuiega.
Eldurinn kviknaði í rusli rétt
hjá hljómlistarskála.
¥ ¥ ¥
Forsætisráðherra Englands,
Ramsay MacDonald, og forseti
Suður-írlands, Eammon de Val-
era, áttu fund með sér í Eng-
landi í gærkvöldi, um tollmál
og viðskiftahorfur landanna. Er
haldið að þeir muni finna ein-
hvern milliveg í þeim málum.
De Valera virtist að minsta
kosti fús til að tala um pessi
mál við Mr. MacDonald, og vita
hvort ekki væri hægt að miðla
eitthvað málum. Hvað mikils-
verð viðskifti Suður-írlands eru'
við Bretland, sést bezt, er þess
er gætt, að af öllum útfluttum
vörum þaðan, og þær nema 45
miljónum sterlingspunda alls,
kaupa Bretra vörur, er nema
44 miljónum sterlingspunda. —
írland má illa við að tapa þess-
um viðskiftum fyrir ekkert.
¥ ¥ ¥
Þeir sem fyrsta veð höfðu i
eignum Grand Trunk-brautar-
innar, sem tekin var yfir af
stjórn Canada, hafa með W. H.
Boardman í broddi fylkingar
stefnt Grand Trunk-félaginu og
biðja það um 37 miljón sterlings
pund í þóknun fyrir veð sitt í
brautinni. Hluthafarnir eru ali-
ir á Englandi. Og Grank Trunk
félagið segja þeir að sé ennþá
til vegna þess að það eigi eign-
ir á Englandi. Canada stjórnina
segja þeir ekki hafa haft heim-
ild til að slá eign sinni á kerfið
eða að taka það yfir.
¥ * *
Mrs. E. L. Johnson, Árborg
Man., hefir verið skipuð í menta
málaeftirlitsnefnd Manitobafylk-
is af Bracken stjórninni.
¥ ¥ ¥
¥ ¥ ¥ fii'
Gullpennann, sem sérstak-
lega var keyptur til þess að
skrifa með undir St. Lawrence
samninginn mikla, milli Canada
og Bandaríkjanna, lagði ríkis-
ráðherra Henry L. Stimson, til
að gefin nværi barni Herridge-
hjónanna. Eins og kunnugt er
er faðirinn W. D. Herridge,
sendiherra Canada í Bandaríkj-
unum. Penninn verður sendur
til Ottawa og geymdur þar.
¥ ¥ ¥
Hon. E. A. McPherson, fjár-
málaráðherra Manitobafylkis er
talin kosning vís í Ruperts
Land kjördæminu. Hann hefir
alls 310 atkvæði, en Evans-At-
kinson 112, og Beresford, fyr-
verandi þingmaður kjördæm-
Atkvæðin eru alls rúm 800, svo
fjármálaráðherrann er sama
sem kosinn.
ISLENDINGADAGURINN
Það eru nú ekki fullar tvær
vikur, þar til tslendingadagur
Winnipegmanna rennur upp,
bjartur og fagur, í Gimli Park.
I blöðunum undanfarnar vikur
hefir verið minst á sumt af því,
sem nefndin hefir gert til und-
irbúnings fyrir daginn. En ein-
lægt fjölgar framkvæmdunum.
Nýlega hafa nefndinni borist
fregnir frá hinum góðkunna
söngstjóra, Mr. Brynjólfi Þor-
lákssyni, sem verið hefir á Gimli
undanfarnar vikur, að kenna og
æfa söng, — um að hundrað
börn séu að æfa söng fyrir há-
tíðina, og þar að auki syngi
blandaður kór, er saman standi
af 60 fullorðnum. Má fólk því
eiga von á þeirri beztu söng-
skemtun, sem nokkru sinni hef-
ir verið á íslendingadegi.
Þess var getið hér í blaðinu
siðastliðna viku, að Fjallkonan
syngi ávarp sitt til gestanna.
Nú hefir Mr. Pálmi Pálmason,
hinn snjalli fiðluleikari hér í
borg, og flokkur hans, verið
fenginn, til þess að aðstoða
Fjallkonuna við sönginn.
Nefndinni hefir verið tilkynt
að C. P. R. rennl lestum alla
leið til Giml þann 1. ágúst. —
Leggur sú fyrsta þeirra af stað
frá Winnipeg k. 9 árdegis, en
næsta lest kl. 1 e. h., og sú
þriðja kl. 1.45 e. h.. Leggja lest-
ir þessar af stað frá Gimli kl.
7 að kvöldinu. Fargjald báðar
leiðir fyrir fullorðna verðuf
$1.25 en fyrir börn 65c. Þessa
er getið hér sökum þess, að ef
einhverjir kysu heldur að ferð-
ast með járnbrautarlest en bus-
unum.
íþróttir verða allskonar að
deginum, og verðlaun veitt sig-
urvegurum öllum.
Að kvöldinu verður dans í
hinum stóra og vandaða lysti-
skála garðsins. Hefir skáli þessi
verið stækkaður og endurbætt-
ur að mun þetta ár. Gólfin gefa
ekkert eftir þeim, sem tíðkast
í beztu dansskálum Winnipeg-
borgar. Þar verða leikin bæði
hin eldri og nýju danslög af
æfðum spilurum.
I næsta blaði birtist aðal
auglýsing dagsins. Veitið henni
eftirtekt, og munuð þér sann-
færast um að þann 1. ágúst
í Gimli Park verður um sann-
an íslendingadag að ræða og
góða skemtun.
Blaðið Tríbune hefir lofast
til að lán ihaljóðbera, svo að
ræður og annað heyrast jafn
vel hvar sem er í garðinum.
G. P. Magnússon,
ritari.
GENGIÐ Á VATNAJÖKUL.
Baldur Johnsen stúd. med.,
Kálfafellsstað, og Þorsteinn
Guðmundsson bóndi á Reyni-
völlum í Suðursveit, gengu á
Vatnajökul um síðustu helgi.
Fór þeir upp úr Suðursveit, nokk
uð fyrir astan Breiðmerkurjök-
ul. Komust þeir upp á hájökul-
inn og höfðu gott útsýni til
Kverkfjalla norður af jöklinum.
Vísir.
ÓLYMPSKU LEIKARNIR
í LOS ANGELES.
Eins og flestir vita, er fylgj-
ast nokkuð með daglegum ver-
aldarfréttum, eiga Olympsku
leikamir að byrja hér þann 30.
þ. m., og standa til 14. ágúst.
Allur undirbúningur viðvíkjandi
sýningu leikanna er nú að
mestu leyti búinn, og flestir
þátttakendur komnir.
Frakkland sendir hingað 28.
manns, er ætla að taka þátt i
íþróttum.
18 manns frá Japan eru
komnir hér fyrir nokkru síð-
an, og blöðin hér staðhæfa að
Japanir muni verða skæðir
keppinautar, með að ná hæst-
um, og ef til vill óþektum mörk-
um, í ýmsu því, sem fram á að
fara. Að minsta kosti að vinna
allar veðreiðarnar, og með því
móti teljast beztu hestamenn
heimsins.
Aftur á móti muni Finnar ná
hæstu mörkum í hlaupaíþrótt-
inni, og Germanir muni vinna
öll hástökk. En þetta eru samt
aðeins ágizkanir, eins langt og
komið er, eða að svo sfcöddu.
Undirbúningur er allur vand-
aður og skrautmikill. — Mörg
svæði borgarinnar, Los Angel-
es, njóta þar góðs af einnig,
með því að flögg eru sett upp
víðsvegar um borgina, og ýms
fleiri merki, er minna eiga á
íþróttamótið. Ekkert hefir enn
sést að getið hafi verið um
ísland, hvort það taki nokkurn
þátt í ólympsku leikjunum aö
þessu sinni.
Þetta og margt fleira á eftir
að vitnast síðar, því mikið verð
ur að líkindum skrifað um leika
þessa, því framþróun er stöð-
ugt að koma í ljós viðvíkjandi
þessu stærsta og frægasta í-
þróttamóti heimsins.
Erl. Johnson.
AIMEE McPHERSON
Amee McPherson, að öðru
nafni Mrs. Dave Hutton hefir
valdið dagblöðunum hér mikils
umtals nú upp á síðkastið, ekki
síður en fyr á tímum.
Eins og flesta mun ráma í,
giftist hún fyrir tæpu ári síð-
an þessum stóra og mikla ten-
órsöngvara sínum. Síðan ferð-
uðust þau í kringum hnöttinn.
Tóku sér þá bæði ofurlítið sund
f Svartahafinu, og fyltu penna
sína með kolsvörtum sjó. Átu
hunang í Japan og Kína og Fil-
ippusareyjunum, með tyrknesk-
um bláskeljum. Á kvöldin í
Japan gistu þau í laufskálum,
þar sem Austurlanda tungls-
ljósið geislaði um þau bæði 1
allri sinni vfðþektu dýrð.
Alt gekk eftir óskum, og að
þessu öllu afstöðnu komu þau
aftur heim til Los Angeles, og
þar var þeim fagnað af fleiri
hundruð Los Angeles Temple-
meðlimum.
Eftir lítinn tíma veiktist Mrs.
Hutton, og læknar gátu ekki
komist að neinni fastri niður-
stöðu um, hvað að henni gengi.
Og enn er Amee veik.
Fyrir nokkrum mánuðum var
höfðað mál á móti þessum
manni hennar, af ungri hjúkr-
unarkonu hér í Los Angeles.
Og mál það er búið að standa
yfir hér f margar vikur, og
dómsúrskurðurinn í því máli
endaði með því, að Mr. Dave
Hutton var dæmdur til að
borga 5000 dali fyrir trygðrof.
Nú er sagt frá öðru máli, er
höfðað var móti Amee sjálfri,
og er hún þar krafin um að
borga tvö hundruð og fjörutíu
þúsund dollara í skaðabætur
fyrir samninga og vitnnu á
hreyfimyndavél, er hún sjálf
ætlaði að hafa umráð yfir.
Margan undrar það nú, að
Mrs. Hutton skuli þurfa að
vitja læknis, þar sem hún sjálf
hefir svo oft haldið því fram,
að vera lasnir.
að engir nema vantrúaðir þyrftu
Skyldi það virkilega vera, að
hún sjálf sé nú orðin ein í tölu
hinna vantrúuðu?
Erl. Johnson.
14 ÁRA BLAÐAMAÐUR.
Fyrsta samtalið við Herriot þá
er hann var orðinn forsætis-
ráðherra.
Ritstjóri stórblaðsins “Petite
Lycéen’’, var sá fyrsti, sem
náði tali af Herriot, þegar hann
var orðinn forsætisráðherra. —
Hann heitir Pierre Bourggon,
og er aðeins 14 ára gamall. —
Þetta skeði kl. 6 á laugardags-
kvöld, er Herriot kom til Quai
d’Orsay til þess að taka við af
Tardieu. Þar tóku blaðamenn
margar myndir af honum, en
alt í einu engur lítill snáðl
fram og skorar á Herriot að
veita sér viðtal.
Ráðherra rak upp stór augu
og mælti:
“Ha, eruð þér blaðamaður?”
“Já, eg er aðalritstjóri blaðs-
ins “Petit Lycéen’’, svaraði
strákur hiklaust.
Þetta gat Herriot ekki stað-
ist. Hann bað drenginn að ljá
sér minnisbók sína, og svo
reit hann eftirfarandi klausu
í hana:
“Kæri herra ritstjóri: — Sem
— ja, segjum samverkamaður
við blað yðar, verð eg því mið-
ur að játa það, að eg hefi
gleyfnt svo að segja öllu, sem
gerðist í æsku minni. Eg man
þó éftir þorpsskólanum, þar
sem eg lærði að lesa og skrifa.
Eg get ennþá lesið með gler-
augum, en síðan eg fór að fást
við stjórnmál, hefi eg gleymt að
skrifa.
Yðar einlægur o. s. frv.”
Lesb. Mbl.