Heimskringla - 20.07.1932, Síða 4

Heimskringla - 20.07.1932, Síða 4
4 BLAÐSÍÐA HEIMSKRINCLA Hehnskringla (StofnuB 1SS6) Eemur út á hverjum miSvikudegi. Elgendur: THE VIKING PRESS LTD. SS3 og S5S Sargent Avenue, Winnipeg Talsimi: 86 537 Verff blaSsins er $3.00 árgangurinn borglst fyrirfram. Allar borganir sendist: THE VIKING PRESS LTD. RáOsmaOur TH. PETURSSON «53 Sargent Ave., Winnipeg Manager THE VIKING PRESS LTD. «53 Sargent Ave., Winnipeg Ritstjóri STEFÁN EINARSSON Utanáskrift til ritstjórans: EDITOR HEIMSKRINGLA »53 Sargent Ave., Winnipeg. "Heimskringla” is published by and printed by The Viking Press Ltd. SS3-S55 Sargent Avenue, Winnipeg, Man. Telepbone: 86 537 WINNIPEG 20. JÚLÍ 1932 ÍSLENDINGADAGUR WINNIPEG- MANNA. Þjóðhátíðardag sinn halda Winnipeg- Islendingar á Gimli í ár, en ekki í Winni- peg, sem siður hefir þó verið síðan löngu fyrir vort minni. Fyrir þeirri breytingu hefir áður verið gerð grein, og skal þar við sitja, nema hvað við skal kannast, að vér vorum á móti því, að hátíðin yrði höfð svo langt í burtu, vegna þess, með- al annars, að það mundi gera svo mörg- um erfitt fyrir að sækja hana. En auð- vitað var hægt á það að benda, að lag- legur hefði hópurinn verið, sem með Heimfararnefndinni fór alla leið til Þing- talla um árið, sem staðfesti, að vega- lengdin til Gimli mundi ekki í augum vaxa þjóðræknum íslendingum, og þang- að yrði fargjaldið ekki nema helmingur þess, sem C. P. R. vanalega heimtaði, svo ferðin þangað yrði í öllu falli nokk- uð kostnaðarminni, en til Þingvalla. — Forseti dagsins, dr. Ágúst Blöndal, sió oss einnig alveg af lagi með því, að færa oss þær fréttir, að svo væri til ætlast, að íslendingadagurinn á Gimli í ár, ætti að vera alt að því eins góður og hátíðin var heima. Af því að forsetinn er allra manna orðvarastur, hættum vér alveg, er vér heyrðum þetta, öllu andófi, en biðum samt öruggir almennings úrskurðar. En rfú vita allir að með hann fór eins og fylkiskosningarnar, að hann varð mönn- um stórkostlegt undrunarefni. Eftir það alt, var ekki um neitt að fást, og sjálfsagt að sætta sig við orðinn hlut. Samt get- ur manni ekki annað en virzt eitthvaö fjandi skrítið við það, hvemig almenn- ingur greiðir atkvæði í þessu fylki á yf- irstandandi ári. En þrátt fyrir alt, er eitt þakkavert í þessu máli. Og það er , að ekki voru, eins og í heimferðarmálinu vaktar upp tvær nefndir, önnur til þess að hafa Wmnpegj-íslendingadaginn í Winnfipeg, en hin til þess að hafa hann á Gimli, og Lögberg og Heimskringla fenginn til að mæla með sínum staðnum hvort. Það hefði að vísu orðið talsvert gaman að því, en grátt hefði það gaman orðið. Þjóðræknisstarfsviðleitni Vestur -íslend- inga hefði aðeins með því verið slegin einni undinni fleiri, fyrir þessa náðargáfu íslendinga, að kunna að rífast eins og hamstola væru um það, Sem oft skiftir sem allra minstu máli. Aðal spursmálið er nú, að sem flestir íslendingar í þessum bæ stuðli að þvr, með nærveru sinni á hátíðinni á Gimli, að þjóðemis-áhrif hennar verði sem víð- tækust. Daginn geta þeir gert eins skemtilegan og tilkomumikinn eða eins lít.lfjörlegan og leiðinlegan og þeir vilja. Ferðalagið norður er ekki tilfinnanlega dýrt, þar sem það er ekki nema 75 cents fram og til baka, fyrir þá sem ekki hafa s>nar eigin bifreiðar, en getur þó verið skemtilegt. Og yfirleitt er tilbreyting í því fyrir Winnipeg fólk, að fara út úr bænum að sumrinu, tilbreyting sem gerir því gott. Um staðinn á Gimil, sem há- tíðin fer fram á, er og heldur ekki nema alt hið bezta að segja. Þar er vatnið, þar eru leikvellir, þar er einn stærsti dans- skáli fylkisins, þar er ljómandi skemti- garður, regluleg Eden. íslendngadags- nefndin hefir unnið af alúð og einlægni, á hverju sem hefir gengið að því að út- búa skemtiskrá hátíðarinnar. Svo í raun og veru skortir ekkert til að Winni- peg íslendingar geti haft þarna ánægju- legustu stund og minst ættjarðar og þjóð- emis sín# eins og vera ber — ef viljan ekki brestur til þess. En um það getur hver kent sjálfum sér en ekki öðrum. Á Iðavöllum við Hnausa verður Is- lendingadagshátíð þennan sama dag, 1. ágúst. Þar hefir bezt verið sóttur Is- lendingadagur vestan hafs um nokkur ár. Einnig þar eiga menn von á ágætri skemtun. Ef svo hefði nú staðið á að þessar íslenzku hátíðir hefði ekki borið báður upp á sama dag, hefði gaman verið að sækja þær báðar. En úr því að svo vildi nú ekki upp í skipið, vildum vér minna íslendinga hvar sem eru í þessu fylli á hvorutveggja þjóðarhátíðar- dagana, ef það mætti verða til þess, að vekja þá til meðvitundar um að sækja þá, á hvoruni staðnum sem er, eftir því sem bezt hentar. Winnipeg-íslendingar, sem hátíðina hugsuðu sér að sækja til Gimli, gerðu vel í því, að fara að gefa sig fram við íslendingadagsnefndina, eða þá menn ur henni, sem fólksflutninginn annast, til þess að fá endanlegar upplýsingar hjá þeim um ferðina. Nöfn þeirra manna hafa áður verið birt og eru einnig birt á öðrum stað í þessu blaði. Látum það sannast á oss þannan dag, að allir viljum vér íslendingar vera! Það er skemtilegt að hafa það á með- vitundinni, að maður sé að segja sann- leikann. En sigur málefnisins er alveg eins óviss fyrir því/ SKOLLALEIKUR Það er ljótt að þurfa frá því að segja, að það sem fram fór á Lausanne-fundin- um nýlega, hafi verið tómur skollaleikur hálfu Evrópu þjóðanna. En nú er þó ekki annað sýnna, en að svo hafi verið. Að afstöðnum þessum fundi, ómaði heimurnin af sætum svanasöng um það hvað mikilfenglegt spor hefði þar verið stigið til þess að létta böl hemsins. Skaða- bóta skuldirnar áttu að hafa verið lækk- aðar um 99 dali af hverjum hundrað. Og hagræðinu fengu menn ekki lýst, sem leiddi af lausninni frá því skuldaoki. En hvað er það í raun og veru sem Evrópu þjóðirnar komu sér þarna saman um? Eftir nánari fréttum að dæma, liefir þeim komið saman um það, að Þýzkaland gæti ekki greitt þeim þessar skuldir lengur, vegna þess að það fengi hvergi lán til þess. Og hvað er þá til bragðs tekið? í stuttu máli það, að reyna að koma skaðabótp-skuldunum á Bandaríkin. Evrópu þjóðimar lofast með öðrum orðum til að gefa þær eftir, ineð því fast bUndna skilyrði, að Banda- ríkin gefi annað eins eftir af stríðslán- um sínum. Þetta var nú allur mannkærleikurinn sem Evrópu þjóðirnar létu heimsblöðin vera að guma með um sig eftir fundinn. Þær gefa ekki eyrir eftir af stríðslánum sínum. En að Bandaríkin geri það, til þess að þær þurfi ekki að tapa svo miklu, sem hinum svívirðilegu skaðabótaskuld- um, sem þær reiknuðu sér eftir Versala- samningunum, það fanst þeim sjálfsagt. Hatur og undirferli Evrópuþjóðanna hefir stundum verið málað svart. En með þessari Lausanne-fundarsamþykt sinni, hafa þær sjálfar málað það ennþá svartara, en áður. Skaðabótaskuldirnar koma Bandaríkj- unum ekkert við. Það voru Evrópu- þjóðirnar sem lögðu þær á Þýzkaland og sambandslönd þess í stríðinu, eftir eð þau höfðu verið rúin öllu föstu og lausu, er þá voru föng á. Skaðabóta- skuldirnar, að öllu teknu af þessum þjóð- um, voru það svívirðilegasta við Versal- samningana. Það var engum blöðum um það að fletta, að Þýzkaland gat ekki greitt þær. Og þegar svo, að þær eru búnar að gera Þýzkaland gjaldþrota, að því leyti, að það getur nú hvergi feng- ið lán til þess að greiða þær, þá á aö biðja Bandaríkin að gera svo vel. Banda- ríkin sáu við skolalleiknum og bitu ekki á fláræðisönguiinn. Það er alt og sumt. Árangurnn, að því er snertir bætur á heimsbölinu, af Lausanne-fundinum, er því enginn. Ástandið er hið sama og áður; það er að minsta kosti ekki bjart- ara yfir en fyr. Reynsla mín er, segir Ibsen, að fólk- sé fúsast til að byggja það bezt, sem það skilur langminst í. Flestir, sem gera sér upp, eða látast vera að leika fábjána, eru alls ekki að leika neitt eða gera sér neitt upp. NACKTKULTUR. í fréttagreinum þessa blaðs hefir stund um verið minst á Rússana í Vestur-Can- ada, sem svo hrifnir eru af því að ganga naktir, að orðið hefir að setja þá í fang- elsi í hundraða tali. Það eru ekki þessi undra náttúrubörn í vorum augum, sem orðin, er yfir þessari grein standa, eiga við. í Þýzkalandi og fleiri löndum Ev- rópu, og jafnvel á Englandi, sem fast- heldnast er á gamla siði, hafa risið upp félög og klúbbar, sem sett hafa það á stefnuskrá sína, að brýna fyrir mönnum ágæti þess að ganga nakinn. Einstakling- arnir í þessum félögum ganga ekki ein- ungis naktir, þegar þeir eru einir sér, heldur vinna þeir að því að gefa út bæk- ur til að fræða menn um hvað mikið siíkt bæti heilsuna, og hvað klæðnaður yfirleitt sé þvingandi, og svifti manninn bæði miklu frjálsræði og eiginlegum þroska. Þetta er það sem í þýzku orð- unum felst, sem eru fyrirsögn þessarar greinar. Orðið “nackt’’ þýðir nakinn, og “kultur’’ vita allir hvað er. Það sem eftirtekt nokkra hefir vakið á þessu nú, er nýútkomin bók, er nefnd er “On Going Naked’’ (Að ganga nakinn), og er skrifuð af bandarískri stúlku, er Jan Gay heitir. Einhverra hluta vegna fór hún í laumi að iðka það, að ganga nakin, fyrst í húsinu hjá sér, og síðan um nætur í skemtigörðum. Segir hún það unaðslega hressandi, að finna vinda lofts leika um nakinn skrokkinn, og séu nokkrir ultra-fjólubláir geislar á ferðinm, eða regnskúr, spilli það ekki neitt. Um þetta skrifar hún sem hún væri að skrifa spennandi skáldsögu. Hún ferðaðist til Evrópu, og þá varð hún þess fyrst vör, að til voru klúbbar og félög, sem iðkuðu þetta. Hún heim- sótti þá i Þýzkalandi, Rússlandi, Spáni og Svíþjóð. Allsnakið kvað hún fólk ekki ganga í þeim, eða slíkt væri und- antekning, ef það ætti sér stað. í Sví- þjóð sagðist hún þó hafa komist að því, að fólk hefði verið á almennum bað- stöðum klæðlaust með öllu, og án þess að hugsa eða vera sér nokkuð meðvit- andi um það. Kvað hún það alda gamlan sið þar, sem ekkert þætti athugavert við. Að öðru leyti kvað hún háttsemi þessa í klæðnaði eða klæðleysi, hvergi vera op- inbera ennþá. í sumum löndum væri einnig alt of kalt til þess. Aftur kvað hún, þar sem veðrátta leyfði það, eins líklegt, að það yrði tízka, með tíð og tíma, að ganga nakinn. í Canada er það að verða að vandræða- máli, hvað gera skuli við Rússana, sem naktir ganga. Gæti ekki bók þessi verið þeim leiðbeining, sem fram úr því verða að ráða? Líklegast eru þó lög lög, og það hefði lítið að segja, þótt Adam og Eva væru ekki úr Paradís rekin meðan þau voru nakin, eða fyr en þau tóku upp á þeim sið að klæða sig! “SIGURSÖNGVAR”. “Sigursöngvar’’ er nafn á sálmakveri, sem G. P. Johnson trúboði hefir nýlega gefið út. í kverinu eru alls 102 sálmar. Rúmlega 70 af þeim eru þýddir úr ensku eða norsku, undir sínu upprunalega lagi. Hefir útgefandlnn kostað til þýðing- anna. Um 30 af sálmunum eru úr ís- lenzku kirkjusálmabókinni og Hjálpræðis- hers söngvunum. Þó ætla megi að val sálmanna hafi verið miðað við starf útgefandans, verð- ur ekki annað séð en að þeir eigi við alla kristilega starfsemi, hvort sem um hönd er höfð í kirkjum eð heimahúsum, af yngri eða eldri. íslenzku sálmarnir eru þeir, sem tíðast eru sungnir, og al- kunnastir eru. í kveri þessu er því talsvert af sálm- um, sem íslendingar hér hafa ekki séð á íslenzku fyrri, en hafa að líkindum sungið áður á ensku, og ef til vill ein- stöku menn á norsku. Ensku sálmana væri ekki ólíklegt að marga hér langaði til að líta í íslenzkri þýðingu. Og það geta menn veitt sér, með því að eignast sálmakverið, sem er ofur auðvelt, þar sem það kostar aðeins 50 cent í kápu, eða 75 cent í bandi. Það fer engin ver fyrir það, þó hann kaupi þetta snotra sálmakver og hagnýti sér það. ÞRÍR SJÓNLEIKAR f WASHINGTON. — Strandafréttir. — II. Point Roberts. Point Roberts, þ. e. Hró- bjartstangi, er einkennileg og eftirtektarverð bygð. Hyggjum vér að Vestur-íslendingar yfir höfuð viti tiltölulega eins lít- ið um Point Roberts, eins og Austur-íslendingar yfir höfuð vita um Vestur-íslendinga. -— Tanginn er eins og sjá má af landabréfinu, afskorinn frá meginlandi Bandaríkjanna, en áfastur við Canada, því að fjörður nokkur, Landamæra- fjörður svonefndur, teygir sig framhjá Blaine og norður í Canada. Við það myndast og afskerst tanginn — sem er ís- forn jarðmyndun, fremur en eldfom, því að hann er stór og bungubreið jökulalda, með aflíðandi halla til beggja hliða. Er hann sæbrotinn fyrir suðri og bakkar þar því geysiháir. Baðfjörur eru þar fyrir austri og suðri, því að þótt sær sé þar í svalara lagi, þá er hann ó- venju hreinn og tær, og sand- flákarniir ffngervSr og þéttjir undir fæti. Jarðvegur er nógur og gnótt skóga, þótt þegar sé höggvinn stórskógurijnn, víð- sýnið mikið og fagurt, til fjar- lægra háfjalla og jökla, svo og fram á víðáttumikinn fjörð- inn, eða flóann, umkringdan hálendum eyjaklasa, er blánar við sjónhring. Skamt undan landi liggja auðug fiskimið. Fyrir nær 40 árum síðan var tanginn óbygður og alskóga. Fluttust þangað þá nokkrir at- orkusamir íslendingar, einkum, að eg hygg, frá Victoria, B. C. Eru staðhættir á tanganum svo íslenzkir sem verða má, þ. e. a. s. vestur á Kyrrahafsströnd. Nú um all-langt skeið hefir hann verið regluleg Islendinga- bygð, íslenzkasta bygðin á ströndinni, eina bygðin þar sem íslendiingar eru í ákveðnum ráðandi meirihluta — þótt ekki séu fleiri en 35 til 40 fjölskyld- ur. Hefir mörgum þeirra bún- ast þar ágætlega. Hafa þeir lif- að þar friðsömu iðjulífi, og un- að giaðir við sitt. Jafnvel unga kynslóðin virðist una sér þar vel, og halda uppi hætti feðra sinna um iðjusemi og atorku. Nú eru efnamenn, einkum frá Vancouver, B. C., teknir að kaupa sér lóðir og jarðir á tang- anum, til sumarbústaða og bað- setra, og er líklegt, að innan fárra ára alþekist tanginn slík- um. Ætti það að verða landeig- endum veruleg gróðalind. En hverfa mun þá íslenzkan, og íslendingabygðum fækka um eina. Kynni svo að fara hvort sem væri, og hver hefir þá nokkuð við það að athuga? En ennþá ráða landar lögum og lofum á Hróbjartstanga. — Frónsk tunga gjallar þar enn um skóga og sker. Þar er ís- lenzk kirkja — ein kirkja aö- eins, og bygðarbragurinn því vingjarnlegur og friðsamur; allir sáttir, enginn flokkadrátt- ur og, lauslega áætlað, engin vantrú. Kirkjuna hefir nýlega málað og litskreytt listakonan “Ásta málari’’ (Mrs. Jóhann J. Normann), svo að eigi munu aðrar íslenzkar kirkjur, og stærri, fá þar við jafnast. Bygðin á Point Roberts er of fámenn til þess, að þar geti tilþrifamikið félagslíf átt sér stað. Hins vegar er hún of ís- lenzk til þess að geta verið með öliiu menningarlega aðgerða- laus. Söfnuðurinn, sem starfar undir merkjum hins Evangel- íska lúterska kirkjufélags, — var stofnaður fyrir mörgum ár- um síðan. Hefir hann séð Tangabúum fyrir andlegu heim ili og prestþjónustu. Margir eru þó utan safnaðar. En það er fyrir mörgum bara af gáleysi, eins og mætti sanna með því WINNIPEG 20. JÚLÍ 1932 I fullan aldarfjórðung hafa Dodd’s nýrna pillur verið hin viðurkenndu meðul við bakverk, gigt og blöðru sjúkdómum, og hinum mörgu kvilla, er stafa frá veikluðum nýrum. — Þær eru til sölu i öllum lyfjabúð- um á 50c askjan eða 6 öskjur fyrir $2.50. Panta má þær beint trts Dodds Medicine Company, Ltd., Tor- onto, Ont., og senda andvirðið þang- að. að stofna þar frjálshyggjusöfn- uð. Mundi mönnum þá renna blóðið til skyldunnar við trú feðranna. Á Point Roberts eru ein- kennilega góðir söngkraftar. Karlakór og “Quartette’’ Tanga. búa eru víða og vel kyntir, og er eftir þeim sózt á samkom- um, bæði íslendinga og annara. Einn af yngri mönnum bygðar- innar Juel Samuelson, er for- ingi þeirra. Juel er æfður söngv ari og söngfróður, og nýtur bygðin þess. Kemur þá loks að merg þessa máls. Á Point Roberts er líka leikfélag. Það er ekki mann- margt, en formaður þess og leiðbeinandi er Bjarni Lyng- holt, og er hann þrautæfður leikari. Þótt eldri maður sé, þá minnir hann mig í leik sínum á Árna Sigurðsson, og segist það báðum til hróss. í fyrravetur léku Tangamenn stykkið “Tólfin öll’’ (af “nú kastar tólfunum’’), sem er þýðing (gerð af Bjama) á danska leiknum “Hundrede og Eet er Ude’’; höf. ókunnur. Er það skemtilegur skrípaleikur (farce), og var vel leikinn, að vorum dómi. Þá uppgötvuðum vér Bjarna! Lék hann og Mrs. J. J. Norman aðalhlutverkin (Klatrup uppgjafa liðsforingja og Jómfrú Mikkelsen. Aðrir leikendur: Mrs. T. Reykdal (Mína, þjónustustúlka) Jón So- lomon (Pedersen, málara- sveinn) og Jónas Thorsteinson Holm, málarasveinn. Áhorf- endur skemtu sér hið bezta. * * * Miðvikudaginn 16. marz s. i. komu Point Roberts menn með söngleikinn “Varalskeifan’’ til Blaine. Heitir leikritið á dönsku “Ægtemandens Representant’’, eftir Erik Bögh. Þýðinguna gerðu þeir í félagi, Carl A. Ja- kobsen, C. F. Schiöth og Bjarni Lyngholt, veturinn 1897, á Eski firði. Var verkum í þetta sinn þannig skift: Thorell, stóreignamaður, Jón- as Thorsteinson. Soffía, kona hans, Mrs. Steini Thorsteinson. Hage, héraðsfógeti, frændi frú Thorell, Jón Solomon. Edward Frank, stúdent, Bjami Lyngholt. María Falk, þjónustustúlka hjá Thorell, Mrs. Th. Guð- mundsson. Claus Petersen, þjónn s. st., Laugi Thorsteinson. Hulfer, þýzkur umferða-tann- læknir, Steini Thorsteinson. Margir lslendingar munu kannast við leik þenna, bæði austan hafs og vestan. Gerist hann að sumarlagi í danskri ^veit. Efni hans er þetta helzt: Nokkur ár em liðin síðan stúdent nokkur, Edward Frank að nafni, maður í meira lagi lífsglaður, leggur af stað í æf- intýraferð út í heiminn. Unn- usta hans, María Falk, bíður hans, “í full sjö árin’’, af mik- illi trygð. Er hún, þegar leik- urinn hefst, þjónustumær hjá Thorell stórbónda. Thorell er miðaldra maður, en kona hans,

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.