Heimskringla - 24.05.1933, Side 4

Heimskringla - 24.05.1933, Side 4
4. SIÐA. HEIMSKRINCLA WINNIPEG, 24. MAÍ 1933 Widmskringla ^ (StofnuO 1SS6) Kemur út á hverjum miðvikudegi. Elgendur: THE VIKING PRESS LTD. »53 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg Talsími: 86 537 VerS blaðslns er $3.00 árgangurinn borglst fyrlríram. Allar borganir sendist: THE VIKING PRESS LTD. Ráðsmaður TH. PETURSSON 653 Sargent Ave., Winnipeg Manager THE VIKING PRESS LTD. 853 Sargent Ave., Winnipeg Ritstjóri STEFÁN EINARSSON Vtanáskrift til ritstjórans: EDITOR HEIMSKRINGLA 853 Sargent Ave., Winnipeg. “Heimskringla” is published by and printed by The Viking Press Ltd. 853-655 Sargent Avenue, Winnipeg, Man. Telephone: 86 537 WINNIPEG, 24. MAÍ 1933 ÆSKULÝÐURINN OG TÍMARNIR Þegar minst er á kreppuna og yfir- standandi tíma, er vanalega bent á af- leiðingar hennar á hveitimarkaðinn og verðleysi á eggjum og svínum. En á af- leiðingar hennar og áhrif á manndóm og framtíð æskulýðsins er sjaldnast minst, enda er það eflaust í fullu samræmi við menningarstefnu heimsins, að meta hinn uppvaxandi lýð minna, en kjúklinga og svínshvolpa. Innan tveggja eða þriggja vikna, lýk- ur skólagöngu þúsunda ungra manna í miðskólum þessarar horgar, sem annara borga austur og vestur um alt þetta land. Fyrir flestum þeirra er skólaverunni lok- ið með því. Aðeins fyrir fárum ríkis- manna sonum verður þetta ánægjuleg hvíld undir áframhaldandi nám á komandi vetri. En til fjöldans nær það ekki. Bæði er að vinnulaun almennings hafa lækkað, og meir að segja horfið með öllu, sem þúsund dæmi sanna, og svo hafa menta- málastjórirnar sumar, t.d. í þessu fylki, sýnt svo mikla umhyggjusemi fyrir ment- un æskulýðsins, að hafa hækkað skóla- gjaldið og með því, að því leyti sem hún fékk viðráðið meinað sonum og 'dætrum fátæks almennings áframhaldandi skóla- náms. Hvað bíður svo þessara æskumanna? Um atvinnu fyrir þá er ekki að ræða. Vér skulum að þessu sinni ekkert segja um það, hvað sé upphaf og endi siðmenn- ingar vorrar. En viljandi eða óviljandi hefir straumur hennar borið æskulýðinn upp á það sker, að hann á ekki annars úrkosta, nema guð sjái betur fyrir eða einhver yfirnáttúrleg öfl, en að lenda á flækingi og verða að landshorna- og flökku lýð. Þessi eru nú þegar dæmin annarstaðar, ef ekki hér, að koma í ljós. í marz hefti tímarits eins (The New Republic) í Bandaríkjunum, er grein, er bendir á það, að um 300,000 ungmenni séu á veltingi aftur og fram um landið í atvinnuleit. Flest eru þau innan 20 ára aldurs. Fara þau ýmist fótgangandi, eða stela fari með vöruflutningalestum úr ein- um bæ eða stað í annan, ráfa heim á sveitabýli við og við til þess að fá slökt í sér hungrið, og til þess að vita, hvort engin föng séu þar atvinnu. Lýsing á lífi þessara ungu landshomamanná er gefin í dagbók eins þeirra ,er nokkrir kaflar eru birtir úr í greininni. Eru hér þýddir nokkrir þeirra, því þeir eru eins eftir- tektaverður fyrir oss, sem aðra og múnu ekki fremur eiga við eitt land en önnur. Salibury, N. C. Við Nonni, svo hét félagi minn, skund- uðum snemma morguns út til að freista lukkunnar um að fá eitthvað að borða. Við höfðum ayra í vasanum fyrir ódýra máltíð. Okkur kom hjáipræðisherinn fyrst í hug og fórum þangað. Skuggalegt og óþrifalega var þar umhorfs og karþól- blöndulykt lagði á móti okkur í dyrunum. Fjórir hrumir karlar úteygðir og með úfið hár og skegg, sátu þar við stórt tnprð og sötruðu kaffi; það var eins og skólp á lit og gat naumast verið kröftugt hressing- arlyf. Þeir átu þurt myglað brauð með iþví, þó smjör væri á borðinu. Þeim hefir líklegast nægt að soga að sér sýrulyktina af því; við fundum hana vel, sem vorum þó lengra burtu. Við fórum þaðan út án þess að borða nokkuð, komum við í nokkrum næstu húsum og fengum ágæta máltíð í einu þeirra. Nonna var margt til lista lagt. Hann hafði verið að nema fíólín-spil í 7 ár; auk þess var hann málari. En hann var, sem þúsundir annara hljómleik'amanna at- vinnulaus. Upp úr sölu mynda sinna hafði hann heldur ekkert. Og nú var hann umrenningur, sem málaði myndir á göt- unum fyrir 25 cents hverja. Eg rakst á hann í þessuum hæ. Varð það að samn- ingi með okkur, að eg skildi sitja fyrir, meðan hann málaði, til þess að vekja eftirtekt múgsins á götunni. Winston-Salem, N. C. Það er ekki beinlínis viðfeldið, að ganga fyrir hvers mann dyr og segja: .“Eg er útfarinn málari og skal gera mynd af yður fyrir 25 cents!” Það lætur enginn svo lítið sem að svara því, en lokar hurd- inni hið fljótasta. Einu sinni er við vorum að vafrast um hjá pósthúsinu, kemur maður til okkar og spyr, hvort okkur fýsi að komast yfir peninga með skjótu móti. Það fór nú ekki mjög fjarri því! Hann sagði okkur svo sögu, sem auðvitað var eintómur til- búningur, um að vagn hlaðinn áfengi, hefði bilað, og hann þyrfti á hjálp okkar að halda að hlaða því aftur upp á vagn- inn og spurði auðvitað hvort við værum vant við komnir. Hann kvað greidda verða fyrir það $200 og í það færi ekki nema tvær klukkustundir. Okkur þótti maðurinn tortryggilegur og sagan lýgi- leg og höfnuðum boðinu. Síðar um kvöld- ið sáum við hann vera að tala við lög- reglumann og komumst að því, að hann var spæjari, og var að komast að því hvemig á okkur stæði. Við fórum úr bænum eins fljótt og okkur vart unt. Durham, N. C. Hér yfirgaf félagi minn mig. Hann fór til New York borgar. Hann kvaddi mig með þessum orðum: “Eg er orðin þreytt- ur á að hungra, og skjálfa í heystökkum um nætur. í New York er altaf hægt að skrafa skilding út úr mönnum og fá góða máltíð hjá McFat^den’s Penny Ar- cade. (Greiðsölu hús, þar sem hver rétt- ur kostar eitt “penny”, eða 2 cents eða talsverð máltíð aðeins 6 cents.) Næst kyntist eg tveimur drengjum. Var annar vel klæddur og ekki sagður fróm- ur um hendur. Hann stal sfldardós, og annari af aprikósum, en ekki tókst það þó fyr en eftir að hafa reynt nokkuð fyrir sér í búðum. Með hleif af brauði sem við gátum keypt var þetta talsverð máltíð, enda leið okkur vel, og lögðum okkur til svefns í einum lystigarinum, eftir að hafa gert okkur gott af þessu. Creenville, N. C. Kom hingað með vöruflutningslest um nótt. Eg svaf í tóbaksvöruhúsi með tveimur öðrum ungum flökkurum. Dag- inn eftir hélt eg suður á bóginn, gekk altaf, nema þegar einhverjir voru svo góðviljaðir að segja mér að setjast í vöru- bíl sinn, þó ekki væri nema spölkorn í einu. Þegar leið að miðdagsverði, gekk eg heim að bóndabýli, og bauðst til að gera ein- hverja vinnu fyrir að fá að eta, vann eg þar með fjölskyldu bónda í tvær klukku- stundir við að afhýða baunir. Þá nótt reif eg glugga úr kirkju, smaug inn og svaf þar. Eg dró tvo bekki saman, vafði mig í teppi mínu og lagðist til svefns. Það varð kaldara og kaldara eftir því sem á leið nóttina. Og klukkan 4, vaknaði eg við stormhvininn og hristing- inn í gluggunum. Eg fór á fætur og kuldahrollurinn fór um mig allan. Það sem eftir var nætur ráfaði eg um veginn. Þtegar sólin kom upp, vafði eg teppið utan um mig og lagðist niður á grundina og sofnaði. Morehead City, N. C. Eg hefi fundið paradís flakkaranna, þorp, sem ekkert þekkir til þeirra. Eg hefi átt gott í þrjá daga og þrjár nætur, etið og sofið nægju mína, talað við fiski- mennina, gengið um ströndina og horft á skipin og máfana stundum saman mér til gamans. Eg ligg og teiga sólskinið. En sú ró og hvíld eftir að hafa svo mánuð um skiftir elt grátt við hungur og harð- rétti, við spæjara og sætt hrópyrðum. Hér er friður. Þessir berfættu fiskimenn eru gæðin sjálf. Og þegar þeir eru bún- ir að gera að fiskinum, setjast þeir upp á borðstokkinn á bátnum í fjörunni og hlusta eins og í kirkju væru á sögur mín- ar og æfintýri úr sveit og bæ. Charleston, S. C. Hefi flækst um landið í fleiri daga, lifi eins og vanalega, lítandi eftir einhverju að éta, stað að sofa í, og ef mögulegt væri vinnu. í Charleston bæ er fult af heimilislaus- um drengjum norðan og vestan að, sem þangað hafa auðvitað komið í von um eitthvað betra. Fólk sem í hinum stóru húsum býr, sem snúa út að höfninni, er hjálpfúst, náirðu tali af því. En það er líkara fífli, en algáðum manni, að hrópa inn um glugga ofarlega á byggingu til matreiðslusveinsins svarta á þessa leið: “Hvað segirðu um að láta okkur hafa eitthvað að éta.” En sértu heyrður, færðu góða máltíð. Eg svaf tvær nætur á heimili Red Star Mission, greiddi eg fyrir rúmið og matinn með þxí, að hlýða á bænir þar, sem fólgn- ar voru í því, að drengur einn, sem verið hafði óviðjanfanlegur misindis snáði, sem kvaldi alt dautt og lifandi þegar hann komst höndum undir, og var auk þess þjófóttur og lýgin, sagði á hverju kvöldi frá fyrri æfi sinni, og fékk frítt fæði og húsnæði þarna fyrir að segja frá breytingu hugarfars síns, eftir að hann tók missjónar-trúna, og sem greinilega bar vott um yfirburði hennar yfir stefnu mannsins sem lifir eins og skepna. Á ferS. Eg hljóp upp í vöruflutningslest á brun- andi ferð í Macon. Drengir voru dreifðir til og frá um lestina, og einir 15 eða 20 í vagninum, sem eg lenti í. Sumir láu sofandi á rykugum pappa flyksum á gólf- inu; hinir sögðu hver öðrum sögur af spæjara-föntum, að góðu fólki og góðum stöðum, og af því hvar auðveldast væri að skjótast upp í lestirnar í hinum eða þessum stórbænum. Einn drengjanna, um tvítugs aldur, var nýlega kominn úr keðj- unni (chain gang) og sýndi okkur sára- hring á kálfanum á sér eftir keðjuna, sem á hann, sem aðra var iögð. Macon, Ga. Þegar við komum til Macon, þustum við út og tvístruðum okkur um götumar, aldrei fleiri en 5 í hóp. Við förum inn í hvert greiðasölu húsið af öðru og oft hver hópurinn eftir annan í sama staðinn. En þar var víðast fult fyrir af drengjum, á okkar reki, og af sömu ástæðunum og við. Einn í hópi okkar sagði: “Ef eg hefði eina af þessum skammbyssum, sem þarna eru í glerkassanum gæti eg náð mér í það, sem eg þarfnast.” Við ræddum um hvernig mætti brjóta glerið að nóttu, án þess, að heyrðist, með því að vefja treyjunum okkar utan um það, En það var þó ekkert nema meiningarlaust hjal fyrir okkur. Eg og nokkrir fleiri sváfum í húsi Hjálpræðishersins um nóttina. Þar var krökt af drengjum; höfðu sumir töskur með sér, en margir ekkert nema það, sem þeir stóðu' í. Einn drengur var þar svo tötralegur og skitinn, horaður og að- framkominn, að við flækingarnir kom- ust við að því og reittum af okkur það sem við gátum til að gefa honum. Á ferð Á lestinni til Atlanta klifraði eg upp á olíugeyminn. Það var að nóttu og veður kalt. Stóð eg uppi um stund, hélt mér dauðahladi í jrángrind og starði á reykjastrokana upp úr katlinum, sem í hvert skifti sem kyndarinn. skaraði í eld- inn, skiftu lit og urðu fagurrauðir. En næðinginn þreyttist eg að horfast í augu við. Eg batt því böggul minn við grind- ina og lagðist niður, en krækti handleggj- unum utan um járnstöplana til að halda mér. Fótunum sló eg í blikkið til þess að vera viss um að sofna ekki. En svo fór þó, að eg sofnaði. Og þegar eg vaknaði við eitthvert voðalegt skark, eins og him- ininn væri ofan að keyra, varð eg þess var, að eg hafði sigið út af “hvalbaknum” og átti ekki spönn eftir að verða brytj- aður sundur undir hjólum lestarinnar. Varð mér svo hverft við, að mig syfjaði ekki meira þá nóttina. Fjörutiu mflur frá Atlanta nam lestin staðar og birgði sig upp með vatni. Fann þá spæjari lestarinnar mig og sagði mér, að lengra færi eg ekki með lestinni, eg yrði hvort sem væri settur í tugthúsið, er til Atlanta kæmi. Þegar eg lallaði í burtu, leit hann á böggul minn og sagði: “Þú hefir þó ekki stolið neinu á lestinni?” “Nei,” svaraði eg, “lít eg þjófslega út?” “Já,” hann. “Þú berð með þér öll ill einkenni þjófsins.” Á ferS Þegar við vorum að leggja af stað frá Atlanta, vorum við alt í einu umkringdir af fimm spæjurum, og miðað á okkur skammbyssum og rifflum. Við höfðum 18 eða 20 verið að slæpast þarna og skygn- ast eftir tækifæri, að komast burtu. rannsökuðu fæturnar á okkur, til þess að vita hvort j keðjan hefði ekki á neinn okk- ar komið og hótuðu okkur illu. Eg . sá einn af spæjurunum j ganga ögn burtu og taka skotin úr skammbyssu sinni. Kom hann svo með hana til baka, lagði hana, sem í ógáti, hjá ein- um okkar. Átti með því að i;eyna hvort við værum ekki manndráparar. Og það hefðum við eflaust verið álitnir, ef við hefðum snert byssuna, og sá sem það gerði, verið skotinn fyrir augunum á okkur til við- vörunnar og siðbetrunar. En við vorum kaldari fyrir því en svo, er á daga okkar dreif, að I við reyndum slíkt. Vorum við því næst reknir eins og fénaður! út á þjóðveginn og hundum sig- að á okkur og sagt, að ef nokk- ur okkar kæmi aftur til Atlanta, þá fengi sá hinn sami keðjuna á skánkann í sex mánuði. Á ferS Á einni vöruflutningalest, sá eg einu sinni þrjár stúlkur, í karlmannsfötum, einnan um vanalegan hóp af flökkustrák- um. Voru tvær af þeim svert- ingja stúlkur, en ein var hvít. Hafði sú hvíta leyft einum af þessum ungu flækingum, að taka með handleggnum utan um sig. Eg heyrði nokkrar sögur af stúlku-flækingum, en aldrei voru þær fleiri en tvær og þrjár í hópi 20 stráka. Chattanooga, Tenn. Loksins komst eg til Tennes- æe, uppgefinn, áhugalaus og vonlítill. Þar ákvað eg samt að fara til Mexiko eða til Califom- íu. Til hvers staðarins sem er, skiftir engu til mín, ef aðeins tækifærið býðst. SMÆLKI Það sannast á Hitler í sam- bandi við afvopnunar tillögur Roosevelts forseta og undir- tektir hans í því máli, að eitt- hvað gott búi í öllum mönnum! * * * John Ruskin sagði, að það væri engin sá hlutur til í heim- inum, sem ekki væri hægt að gera ögn ver og selja ögn ódýr- ara en gert væri. Þeir sem á- valt horfðu í verðið, væm bráð iþeirra manna, sem verk sín gerðu illa. * * * Ef fjandinn getur altaf fundið nóg fyrir iðjulausar hendur að gera, því gerir hann það ekki? ORKUGJAFAR OG ORKUVAKAR Eftir Steingrím Matthíasson í stórbæjum á Indlandi verður aðkomumönnum starsýnt á ljós- leitu bjúghyrndu, stóru uxana, sem beitt er fyrir kerrurnar. Þeir drattast áfram ofboð ró- lega, eins og ekkert liggi á, en uppi á kerrunni situr vagnstjór- inn, grettinn karl, kaffibrimn á litinn, íklæddur þunnri mittis- skýlu, og hallar sér út af með mestu værð, bakaður af sól- unni. Uxinn virðist ráða ferð- . . ) mm, og alt gengur silalega, en með réttum hætti, nema stöku sinnum, þá stanzar boli og vill hvíla sig. Þá rumskar ekillinn skyndilega og hrekkur við, seil- ist fram með hendánni, nær í halastertinn á uxanum og bitur í, rétt eins og væri hann að bíta sér tölu af munntóbaki. Við þetta herðir uxinn á sér og held- ur leiðar sinar. Bitið hrífur líkt og svipuhögg, og þarf þá ekkert keyri. Uxinn dregur kerruna með kurt og pí. Hann er orkugjafi, en karlinn, sem bítur í halann, er orkuvaki. í “Eimreiðinni’” (1919) stóð fróðleg grein eftir Ólaf Ólafs- son um orkugjafa aldanna, er 1 fullan aldanjurdung hafa Dodd’* nýrna pillur verið hin viðurkenndu meðul við bakverk, gigt og blöðm sjúkdómum, og hinum mörgu kvilla, er stafa frá veikluðum nýrum. -- t>ær eru til sölu í öllum lyfjabúð- um á 50c askjan eða 6 öskjur fyrir $2.50. Panta má þær beint frá Dodds Medicine Company, Ltd.. Tor- onto, Ont., og senda andvirðið þang- að. ræddi um framfarir mannkyns- ins frá morgni fornaldar, og um kol, olíu, rafmagn og radium, sem helstu orkugjafa fortíðar og framtíðar. Hér verður aðallega talað um hina lifandi orkugjafa, menn og skepnur, og nokkuð minst á orkuvaka hins lifandi holds og lífsfjörs. I órafirndinni var maðurinn einsamall (þar með þó ekki meint konulaus, því það hefir hann tæplega verið nema rétt í bili, og þá af einhverfjnm klaufaskap eða óhappi). Hér er átt við, að maðurinn, með fjölskyldu sinni, var einn síns liðs í lífsbaráttunni og átti enga vini meðal dýranna. Þegar nú þar við bættist, að ekki voru til og enginn þekti eldspýtur, þá má nærri geta að vistin var ill á jarðríki. Jafnvel í heitu löndunum var nóttin köld og hráslagaleg, en út yfir tók þegar kom til kaldari Ianda, og þar voru ekki ávextir á trjánum, heidur þurfti að veiða sér til matar, hvíldarlítið, með eilífum slagsmálum. veiðimannslífið með allri úti vistinni, á eilífu flakki úr ein- um stað í annan, í stöðugum eltingaleik við dýr, gerði mann- inn vöðvastæltan og sterkan, en um leið afar-grimman, svo að öll dýr urðu villidýr og fældust hann eins og fjandann sjálfan. Flestir mundu sammála um, að fundur eldsins hafi verið fyrsta og mesta framförin í mannheimi; en næsta stóra framfarasporið má telja það, þegar manninum (eða líklega heldur konunni) tókst að hæna að sér fyrstu dýrin og gera þau að alidýrum og auðsveipum þjónum. Fyrir eldsins tiistilli var heim- ilið til. Þar var hæli fyrir grimmum dýrum, og við yl elds- ins varð næði til að hvíla sig og hugsa og skiftast á skoðun- nm. Þá fór veiðigrimdin að mýkjast og skapið að batna, enda fór konan að komast upp á að gæða húsbóndanum með góðri steik og öðrum lostætari mat en eintómu hráætinu áður. Sumir halda, að mjög hafi það gert manninn friðsamlegri °g skapbetri, er hann komst upp á að dorga sér fisk (úr ám og vötnum). Hvort kalda fisk- blóðið hafieinnig komið til greina, og næringarefni úr fisk- holdinu ,sem talin eru heilla- vænleg til vaxtar þrifa heilan- um, um það má deila, en fisk- veiðarnar voru vissulega hollari skepferlinu og þróun allrar hugs unar en æstur og blóðugur bardaginn við dýrin. Sá bar- dagi hafði hins vegar innrætt mannÍHum óskina þá “að kom- ast sem lengst” — og verða sterkari og sterkari. Excelsior! hærra og hærra! Maðurinn hafði lengi öfundað sterku og fótfráu dýrin af afli þeirra og fráleik. Nú var næði fengið til að íhuga lífsins gang og reyna að finna nýjar leiðir til að bjarga sér betur, eins og t. d. með því að hæna að sér dýrin,

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.