Heimskringla - 25.09.1935, Qupperneq 1
XLIX. ARGANGUR
NÚMER 52.
Striðsmál Afríku
1 síðasta blaði lauk fréttum
af stríðsmálum Afríku með því,
að 5 manna nefnd hefði verið
skipuð af Þjóðabandalaginu til
að gera uppkast að friðarskil-
málum. Þegar Mussolini fór að
athuga uppkastið, sér hann að
hlutur hans var heldur smár og
landbitinn sem honum var á-
skilinn, var lítt bygð eyðimörk.
Enda var hann ekki lengi að
hafna því boði-
Hann kvað nú hafa gert ann-
að uppkast og fer í því mikið
til fram á yfirráð í Blálandi.
Her mega Blálendingar ekki
hafa. ítalía á að hafa þar um-
ráð hermála. Landið vestur af
Addis Ababa áskilur hann isér
eða að lagt sé við Eritrea og
íSomaliland ítala. Flutninga að
isjó mega Bláendingar ekki hafa
nema um lönd ítalíu. Nú fara
þeir flutningar um lönd Frakka.
Þarf etoki orðum að því að
eyða, að hvorki Þjóðabanda-
lagið né Haile Selassie keisari
gengur ekki að þessu.
Þá krafðist Mussolini, að
Bretar hypuðu sig burt úr Mið-
jarðarhaf'inu með flota sinn. En
Bretinn heldur nú að ekki verði
af því.
Sátta tilraunir halda áfram,
en alt þykir bera vott um, að
þær verði árangurslausar.
Tvö hundruð þúsund manna
bætti ítalía við her sinn s. 1.
laugardag. Er her hennar þá
orðin ein miljón manna. Um
300,000 hermenn munu nú vera
komnir alls til Afríku.
Victor Emmanuel, ítalíu kon-
ungur er sagt að hafi skrifað
George Bretakonungi bréf og
beðið hann að reyna að ikoma á
friði. Kvað ítalíu konungur
minnast á samkomulag og bróð-
urhug þessara þjóða í síðasta
stríði.
BENNETT-STJÓRNIN
BÆNDASTJÓRN
í ræðu sem Robert Weir,
akuryrkjumálaráðherra Sam-
bandsstjórnar flutti s. 1. fimtu-
da,g í útvarp Canada, lýsti hann
mjög greinilega því, er Bennett-
stjórnin hefði gert fyrir bænd-
ur landsins. En þar kemur
margt til greina, svo sem bætt
framleiðsla, afurðasölulögin,
martoaður á Bretlandi fyrir bú-
pening, greisðla á veðskuldum
með stjórnarlánum, uppbót á
hveitiverði og ákvæðisverð á
hveiti o. s. frv. Þegar ráð-
herrann hafði lýst öllu þessu,
benti hann á að eins langt og
hann vissi, hefði engin 'Stjórn
fyr eða síðar í þessu landi veitt
sérmálum bænda eins mikla
athygli og aðstoð, og engin
stjórn unnið fremur til þess en
Bennettstjórnin, að heita bænda
stjórn.
HITLER EKKI AÐGERÐALAUS
London, 21. sept. — Af því að ;
stórríki Evrópu eru önnúm kaf- j
in í stríðsmáluir/ Afríku, hefir
Hitler notað tækifærið og haft
allskoar yfirgang og smán í
iframmi við Lithúaníu. Er ekki
sagt neinum blöðum um það að
fletta, að hann ætli sér að
leggja Memel aftur undir Þýzka,
land-
Horfa Evrópuþjóðimar hissa
á aðfarir hans og ætla að þær
spái engu góðu.
Nazi-hermenn vaða aftur og
fram um Memel og eru svo ó-
friðsamir, að þar hefir stundum
til vandræða horft.
Memel er nú undir stjórn
Lithúaníu og enda þótt þar sé
kosning fyrir dyrum, er ekki
sagt, að þær geti haft nein á-
hrif á þau yfirráð, því Lithúanía
hefir í hvívetna gert að vilja
Þjóðabandalagsins.
Nýlega kom upp úr toafinu, að
Þjóðverjar hafa hleypt af stokk-
unum einu mesta neðursjávar
skipi, sem smíðað hefir verið.
Er sagt að þeir hafi nú alt í
hendi sér á Austursjónum. —
iSkipið smíðuðu þeir á laun og
í trássi við Yersalasamningana.
Fréttinni fylgir að megn óá-
nægja ríki í Þýzkalandi og Hitl-
er verði eins og Mussolini að
beina huga þjóðar sinnar út á
við eða að einhverju öðru en
ástandinu heima fyrir.
NÚ SELST HVEITIÐ
Fyrir tveimur eða þrem mán-
uðum hamaðiist blaðið (Flree
Press svo á móti John MoFar-
land og sambandsstjóminni fyr-
ir aðgerðirnar í hveitisölumáli
landsins, að við fátt verður jafn-
að. Landið átti að vera að
hrúga upp óseldum forða, sem
steypa átti því í glötun. Vildi
það helzt, að Bennett segði af
sér völdum vegna þessa. Orðum
John McFarlands um að hveiti-
forða heimsins væri nú svo
háttað, að Canada þyrfti ekkert
að óttast, og mundi síðar fá
hærra verð fyrir hveitið, var
ekki anzað af liberölum. Jæja.
Nú er það á daginn komið hvor-
ir vissu meira um hveitisöluna,
John McFarland eða ritstjóri
Free Press. Og nú er Canada
ef'tir fréttum að dæma frá Eng-
landi orðið eitt um markaðinn.
Verð hveitis er og að hækka,
sem kunnugt er. Harma liber-
alar það mjög, bæði af því að.
það sýnir að stefna Bennetts í
hveitimálinu var rétt og sfvo
vegna hins, að þessi gróði sem>
af verðmuninum stafar, fer ekki |
í vasa kornkaupmannanna,
heldur bænda. Að liberal þing-
mannsefni skuli geta látið
bændur sjá sig og beðið þá um
fylgi, eftir að hafa barist á m'óti
þeim í hveitisölumálinu, sýnir
aðeins það hvað óbilgirnin get-
ur gengið langt.
Joe Louis sigrar
í hnefaleiknum sem fór fram
í Yankee Stadium í New York
í gærkvöldi milli Max Baer,
fyrrum iheimskappa og Joe
Louis, 21 árs svertingja-stráks,
fóru leikar svo, að Joe Louis
gerði út af við Baer í fjórðu
atrennu. Hann dasaði Baer
strax í annari lotu. Og í þeirri
fjórðu var hann af fótunum.
Þessi svertingja-strákur byrj-
aði að æfa hnefa leik fyrir 2*4
ári. Enginn sem hann hefir
reynt við, hefir staðið mikið
lengur uppi en 4 til 5 lotur (eða
rounds).
Á Louis nú eftir að reyna við
Braddock heimskappa. Er ekki
ólíklegt að Braddock hugsi
nú margt, enda er frægð hans
hætt fyrir þessu stráks-bar-
smíðaljóni.
Louis lemur imeð báðum
höndum1 jafnt og segja þeir er á
leik hans og Baer horf'ðu, að
þeir hafi hvorki fyr né síðar séð
eins ótt og itítt vegið í hnefa-
leik og Louis hafi gert-
Um sjötíu manns voru teknir
í vinnui í Transcona smiðjunum
s. 1. mánudag. Er búist við að
fleirum verði bætt við hópinn
sem þar vinnur 1. október.
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 25. SEPT. 1935
Fundur á Lundar
G. S. Thorvaldson lögfræð-
ingur, þingmannsefni conserva-
tíva í Selkirk-kjördæmi, heldur
fund á Lundar n- k. laugardag.
Eru íslendingar mintir á að
fjölmenna á fundinn og kynnast
einum efnilegasta manninum,
sem við eigum í hópi yngri
Vestur-íslendinga og sem vér
megum vænta mikils af á sín-
um tíma. Það hef'ir stundum
hrært sér hjá oss kend um það,
að þeim löndum vorum bæri oss
að veita athygli, er góðar vonir
gæfu um að verða sér og þjóð-
flokki vorum til frama og að vér
ættum ekki að liggja á því liði,
sem við fáum veitt til þess að
svo megi verða. Eitt • slíkt
tækifæri gefst Íslendingum nú.
Mr. Thorvaldson er einn af okk-
ar bezt gefnu yngri mönnum og
á þann hæfileika ekki langt að
sækja, sem kunnugt er. Menta-
brautina og um völundarhús
þau er lögfræði heitir, hefir
hann gengið á svo skömmum
itíma, að hann mun eipn með
yngri m’önnum útskrifast hafa.
Og þegar á vettvang starfsins
kom, var nú ekki bjart, um að
litast, þar sem samkepnin var
í því essi, að stéttarbræður
hans voru að leggja árar í bát,
hver af öðrum. En landinn
ungi setti það ekki fyrir sig og
með kappi og góðri forsjá,
bygði hann starf sitt upp á ó-
trúlega stuttum tíma. Þar kom
fram atorkusemi, sem því mið-
ur kemur ekki ávalt fram hjá
yngri íslendingum.
í þjóðmálum efumst vér ekki
um að þessir hæfileikar koml að
góðu gagni. Og Íslendingar
gera sjálfum sér, landi og þjóð
ekkert ilt með því, að samein-
ast um þennan unga mann, og
stuðla að kosningu hans. Sem
þingmaður, erum vér vissir um,
að hann muni reynast nýtur og
framsækinn, kjördæmi sínu
þarfur og Islendingum til sóma.
BENNETT í MANITOBA
Forsætisráðherra Canada Rt.
Hon. R. B. Bennett kemur til
Manitoba næstkomandi föstu-
dag. Heldur hann tvær ræður
hér í Winnipeg, en aðalræðuna
að þessu sinni í þessu fylki
flytur hann í Brandon á föstu-
dagskvöldið, Verður henni út-
varpað.
Annari ræðunni í Winnipeg
verður og útvarpað kl. 7—7.30
á laugardagskvöldið.
Forsætisráðherrann kemur
vestan úr landi. Hefir hann
flutt tvær og þrjár ræður í
hverju vestur fylkjanna. Hefir
máli hans verið hvarvetna vel
tekið og ræðum hans verið veitt
meiri athygli, en nokkurra ann-
ara flokksforingja. Það er auð-
vitað aldrei hægt að segja,
hvernig kosningum lýkur, en ef
viðtökum þeim að dæma, er
hann hefir átt að fagna og
undirtetotum manna og sam-
ræðum unt mál það, er hann
hefir verið að flytja, mætti ætla
að honum eða stjórn hans væri
endurkosning vís. — Fylgi
hans virðist hvarvetna hafa ver-
ið mikið og eflst og magnast
við komu hans.
Mr. Thorson segir í síðasta
Lögbergi, að Bennett-stjórnin
hafi ekkert gert. Vér höfum
verið að hugsa um síðan ver
lásum þetta, hvaða leið Mr.
Thorson hafi getað farið úr
bænum út í kjördæmi sitt, Sn
þess að verða var við það sem
Bennett hefir gert hér.
FÆR 2'/2 MILJÓN
Wm. Aberhart, forsætisráð-
herra Alberta fylkis kom itil
Winnipeg s. I. miðvikudag aust-
an frá Ottawa. Var ferðinni
heitið þangað til að biðja Sam-
bandsstjórniiía um 18 miljón
dollara lán. Veitti Bennett hon-
um 21/2 miljón til bráðabirgða,
eða þar til eftir kosningar. —
Taldi Mr. Bennett ekki sann-
gjárnt af sér að veita meira í
svip þar sem kosningar væru
fyrir djTum og óráðið hvaða
stjórn færi með völd að þeim
loknum. Lét Mr. Aberhart hið
bezta af viðtökum sambands-
stjórnarinnar og kvaðst vongóð-
ur um samvinnu annara fylkja
landsins í starfi sínu.
VARASAMT FUNDARHÚS
Þar sem heitir St. Joseph d’
Alma sem er lítill bær í Que-
bec, höfðu liberalar fund á
laugardags kveldið, en sá fund-
ur var haldinn í ráðhúsi bæj-
arins. 1 byrjun fundarins vildi
svo til, að toalkskán á lofti þing-
hússins féll niður á hópinn,
þriggja feta breið og 40 feta
löng- — Fjórtán manneskjur
meiddust, þar á meðal Hon.
Ernest Lapointe, fyrrum dóms-
málaráðherra; f ótleggur hans
varð undir skriðu þessari svo að
hann féll og lá í roti í tíu mín-
útur, raknaði hann þá við, hóf
von bráðar fundarhald á ný og
talaði í heilan klukkutíma. Einn
fundarmanna hét Martel, yfir
honum stumruðu klerkar og
smurðu hann síðustu smurn-
ingu en síðan tóku læknar við
honum og segja litla von með
hann.
PRÓFASTURINN AF
CANTERBURY OG
SOCIAL CREDIT
Hvorki meiri nú minni maður
en prófasturinn af Canterbury,
Very Rev. Dr. Hewlett Johnson,
M.A., B.Sc., D.D., einn af æðstu
prestum Ensku kirkjunnar á
Englandi, er staddur í Canada
í þeim erindum að stofna Social
Credit félag. Prófasturinn kom
til Winnipeg s. 1. mánudag. —
Hann hefir haft fundi í Austur-
Canada og er á leið vestur að
hafi.
Orðin sem höfð voru eftir
honum við komuna hingað um
Social Credit stefnuna eru þau,
að hann kvaðst trúa því, að hún
ætti eftir að komast á um allan
heinf og útrýma fátæktinhi.
Hann spáði því, að New Zea-
land yrði næst til að taka upp
Social Credit stefnuna. Og svo
hvert landig af öðru.
RÆÐUGARPUR
iSumarliði Swanson heitir ís-
lendingur í Long Beach í Cali-
forníuríki, sem það álit liefir á
sér sem góður ræðumaður, að
hann hefir verið valinn til að
tatoa þátt í ræðusamkepni, sem
fasteigna félög í bænum Long
Beach efna til 2—^5 október n.
k. Sá er viturlegast getur sýnt
fram á kosti og framtíðarmögu-
leika bæjarins, ber sigur úr být-
um- Að eitt félagið hefir valið
þennan íslending til þess fyrir
sína hönd, sýnir að eftir gáfum
hans hefir verið tekið.
Mr. Swanson hefir flutt erindi
um Ísland og íslenzka þjóð, sem
athygli hafa vakið.
Hann kom 20 ára gamall að
heiman og kunni þá ekki orð í
ensku. Hann er giftur dóttur
Mrs. G. J. Goodman sem býr í
þessum' bæ (Winnipeg).
BENNETT f VANCOUVER
Þegar Hepburn forsætisráð-
herra Ontariofylkis var nýlega
í Vancouver í kosninga-erind-
um, tóku verkfallsmenn úr at-
vinnubúum stjórnarinnar x sig
saman og gerðu hávaða og ó-
spektir á fundi hans í borginni,
svo hann varð að hætta við að
flytja ræðu sína. Þessi sami
flokkur var á fundi forsætis-
ráðherra R. B. Bennett þar s. 1.
mánudag og var ákveðin í að
láta hann fara sömu útreiðina.
En Bennett kipti sér ekki upp
við það, heldur benti bæði ó-
róaseggjunum og yfirvöldunum
á, að það væri fylki þeirra ekk-
ert til fremdar að hafa í frammi
skrílsæði á fundum og sam-
komum, sem í öðrum fylkjum'
ætti sér ekki stað. Hann kvað
það heldur ekki sanngjarnt
gagnvart heiðvirðum borgur-
um, að það liðist. Lægðu þá ó-
spektirnar og flutti forsætis-
ráðherra langa ræðu í næði
eftir það fyrir 12000 áheyrend-
um.
BLÖÐIN EFLA VIÐSKIFTI
BLÁLANDS
Fregnritar stórblaða úr öllum
löndum heims, eru á hnotskóg
u mstríðsfréttir í Blálandi. Síð-
an í byrjun þessa mánaðar
(sept.), nema símaútgjöldin
$150,000 .fyrir fregnsendingar,
en það er sagt 10 sinnum meira
en árstekjur radio stöðvarinnar
árið 1934- Tekjunum er sagt
að verði varið til vopna-kaupa.
STÚLKA TÝND SEX DAGA
FINST LIFANDI
Þar sem heitir Goodsvil, sem
er mannabygð í Saskatchewan,
40 mílur frá þeirri stöð sem
nefnist Loon Lake (Lómatón)
vildi svo til að á mánudaginn í
fyrri viku rölti lítil telpa heiman
frá sér, til að mæta börnum
sem komu úr skóla. Telpan
heitir Anfelia Bender, þriggja
vetra gömul og misseri betur.
En þann dag komu bömin ekki
vanalega leið frá skólanum,
barnið fór lengra en það hafði
áður gert og viltist. Er ekki að
orðlengja það, að eftir sex dæg-
ur fann kynblendingur barnið
og kom því heim; það var mátt-
farið en ekki rænulaust, hafði
tínt upp í sig ber á daginn. Um
150 manns höfðu leitað þess
dauðaleít með fyrirsögn manns
úr lögregluliði Norðvesturlands-
ins.
JÁRNBRAUTARLEST
REKST Á VÖRUBÍL
Hin hraðskreiðasta lest í þess
ari heimsálfu nefnist Century of
Progress og brunar frá Chicago
austur að hafi. Á einni ferð-
inni, á mánudaginn, var einn
yfirmaður brautarinnar með
lestinni, í togreiðinni, og þá
vildi svo til að hún rakst á
vörubíl; honum stýrði bónda-
kona en í vagninum voru 14
veðreiðahestar og sex menn til
að gæta þeirra. Konan dó og
allir hestarnir en þeir sem
gættu þeirra sluppu lítt meidd-
ir; sá sem stýrði togreiðinni
misti lífið og kyndarinn og
sömuleiðis yfirmaðurinn, nokkr-
ir vagnar hrukku út af en far-
þega sakaði lítt eða ekki, því
að vagnarnir ultu ekki um.
Rt. Hon. W. L. MaoKenzie
King flytur ræðu í Winnipeg
Auditorium 2- október.
TIL
SIGURBJARNARJOHNSON
OG KONU HANS
Við fimtíu og fimrn ára brúS-
kaupsafmæli, 20. okt. 1932
Meir en hálfa heimsins öld
hafið þið saman búið.
Oft voru lífsins atlot köld,
Oft var bakið lúið. —
Margt var bjart og blessað ár,
Brosti sól í heiði.
Mörg var hrygð og margt var
sár,
Mörg voru tár — á leiði.
Þið hafið böm og bræður mist,
Borið sorgir manna-
Brátt þið finnið bömin, —
Krist
Bróður kynslóðanna.
Ung þið kvödduð feðra frón,
Fylktuð vestra liði. —
Ýms er horfin yndissjón,
En innra bjart af friði.
Ykkur marga gæfu gaf
Guð, er sízt má efa.
Góðra vona heim um haf
Herrann byr mun gefa.
Fyrir trygð—með fegins tár—
Flyt eg þakkir manna.
En hvað eru fimm og fimtíu ár
Af fögnuði eilífðanna?
Nú er æfi komið kvöld,
Kyrlátt heirtí er snúið. —
Senn hjá Guði öld af öld
Elskist þið og — trúið.
Jónas A. Sigurðsson
* Kvæði þetta hefir ekki
áður verið prentað, en vinkona
Mrs. S. Johnson rakst á það í
fórurn hennar nýlega og fékk
leyfi til að senda Htor. það til
birtingar. Sigurbjöm er dáin
fyrir nokkru.
í West-Calgary-kjördæmi var
þingmannsefni tilnefnt af hálfu
Social Credit floktosins s. 1.
mánudag. Heitir sá Robert
Reid og er kennari og bóndi.
Hann sækir á móti forsætisráð-
herra R. B. Bennett.
NÝR MINNISVARÐI
UM H. C. ANDERSEN
Undanfarið hefir verið mikið
um það talað í Kaupmanna-
hafnarblöðunum, að nuðsynlegt
væri að reisa æfintýraskáldinu
H. C. Andersen minnisvarða. —
Sá minnisvarði, sem skáldinu
var á sínum tínfa reistur, þykir
liggja of afsíðis (í Kongens
IHave). Nú er málið komið svo
langt, að boðið verður til sam-
keppni um tilhögun á hinum
nýja minnisvarða í haust. Hafa
margar uppástungur komið
fram í blöðunum, og vilja sum-
ir láta byggja hús til minningar
um hann. Nefnd verður stofn-
uð til þess að afla peninga með
samskotum um alt land, og
hefir Stauning forsætisráðherra
lofað að vera form'aður hennar.
Gustav Adolf Svíaprinz yfirfor-
ingi skáta í stað Baden Powells?
Oslo, í ág.
Alheimsmót skáta stendur nú
yfir í Stokkhólmi-
Meðal skáta er talið alllíklegt,
að Gustav Adolf prins verði kos-
inn yfirforingi allra skáta, í stað
Baden-Powells.
Æfisaga Lenins
Trotzky, sem nú dvelur í
Noregi, vinnur nú að því með
ritara sínum að semja æfisögu
Lenins. Bókin verður 600 blað-
síður í stóru broti.