Heimskringla - 26.02.1936, Síða 3

Heimskringla - 26.02.1936, Síða 3
WINNIPEG, 26. FEBR. 1936 HEIMSKRINGLA 3. SÍÐA Nokkrar þýðingar Eftir Gunnbjörn Stefánsson \ FRIÐARGARÐURINN Kveðið við opnun friðargarðsins á landamærum Bandaríkjanna og Car.ada sumiarið 1932. Eftir F. McLaren Sem húmskygð árin hverfa með hraðans leiftur gný, er þrumuðu yfir þjóðum, hin þrungnu hildarský. Um fold við friðar elfur, við fjöll og borga mergð. Ei jörð af skotdyn skelfur né skeiðlaus blika sverð. Lít hátt á himinn blámann er hverfur skýja lag. í brosi sumarsólar vér sjáum nýjan dag. Er friðiur lönd upp Ijómar frá leiftrum sólarhvels og fjötrast heift og hatur í ihöndum vina þels. Drag merkið hátt að húni, veit hugsjón hverri Uð. Að eflist þroski þjóða við þúsund ára frið. Lát rétt og lýðstjórn lýsa upp lög hins nýja dags. Svo hugur handsöl veiti frá hjarta bræðalags. VITRINGARNIR FRÁ AUSTURLÖNDUM Eftir Dr. Duncan Campbell Scott (Til Betlehem um langa leið þeim lýsti stjarnan björt og heið á silki skikkjur skein. En Jesús leit með undmm á og örmum sinnar móður frá sá glitra á gull og stein. Reykelsisfórnir fyrstur bar fram fyrir Jesús Beltasar, dökkur á brá og brún. En Kristur hræddist þann mikla mann að móðurbrjóstum sneri hann, því kærust honum var hún. Caspar að sýnum vænsfcur var, verðmikið ker í höndum bar, hörundsrauður og hýr. Góðmannlegt fas yfir göfgi bjó og glæsimensku. En Jesús þó frá honum höfði snýr. Melchior þriðji af þessum var, þótta og hörkusvip hann bar. Fóm hans var glóbjart gull. En Jesús þó engann fögnuð fann framkoma þeirra skelfdi hann herská og hrokafull. Þó færðu þeir honum fríðann auð, var fórn þeirra trúar og ástar snauð, sem konungi lýðs og lands. Frá móðurbrjóstum bauð hann þeim að boð Guðs til manna um allan heim er kærleikur kristins manns. stærstu kvikmyndafélögin þar “Essany” og “Vitagraph”. — Chaplin byrjaði hjá “Essany” og lék þar í smámyndum, sem þegar eru fyrir löngu orðnar kunnar, en ári áður en eg kom hafði Chaplin flutt sig til Holly- wood ásamt fleiri leikurum. Eg fékk svo loks tækifæri. Eg fékk hlutverk í kvikmynd, sem átti að sýna atvinnurekstur og tók það félag eingöngu auglýs- ingamyndir, en síðar fékk eg nokkur hlutverk hjá “Essany”- félaginu. En einmitt um þessar mundir voru allir að fara til •Hollywood. Þar var að rísa upp miðstöð fyrir kvikmynda- framleiðslu Ameríkumanna enda voru öll skilyrði þar miklu ibetri, sífelt sumar og sói og sólskin. Og um sama leyti og eg fékk þessi smáhlutverk mín í Chicago var skrifstofum og kvikmyndatökuhúsunum þar lokað og allir fluttu sig til Hollywood. Um sama leyti fórn Ameríku- menn í stríðið og setti það ein- hvern þunglyndis- og alvörusvip á alla þjóðina. Við það fór og atvinnan versnandi og eg lagði á flótta til Winnipeg, eftir tæp- lega ársdvöl í Chicago. 1 Wirmipeg og út um íslend- ingabygðirnar hélt eg margar skemtanir meðal landa minna, sem tóku mér prýðisvel. Frú Stefanía Guðmundsdóttir kom ásamt bömum sínum um þetta leyti vestur og tók eg á móti þeim ásamt nokkrum öðrum á- hugamönnum um leiklist og svo lékum við saman í íslendinga - bygðunum. Eins og auðkýfingur í Hollywood Eg lá veikur um skeið í Win- nipeg, en svo lagði eg affcur leið mína til New York og fékk þar atvinnu sem skrautmálari. Eg safnaði mér dollurum, eins og eg framast gat, því að kvik- myndunum var eg enn ekki bú- inn að segja upp fyrir fult og alt. Og þegar eg hafði safnað með stakasta sparnaði 1500 dollurum, ákvað eg að fara til . Californíu, til Hollywood og freista gæfunnar enn einu sinni Eg vissi, að það var alt undir því komið, að koma þangað eins og prins, vera skafin og strok- inn frá hvirfli til ilja og að nauðsynlegt var fyrir mig að punta upp á verk skaparans eins og eg gæti. Eg keypti mér því marga alklæðnaði og geysi- stórar ferðatöskur og ferðaðist svo eins og auðmaður. Innrit- aði mig svo inn á eitt fínasta hótelið í Hollywood, “Hótel Hol- lywood”, og hafði fallegt skegg, staf, nýtízku hatt og alt til- heyrandi. Og nú fanst mér að eg væri ekki síður undir það búinn, að taka þátt í samkepninni, en sjálfur Douglas Fairbanks eða Chaplin, sem þá voru einna mest umtalaðir. Daginn eftir, er eg kom til Hollywood innrit- aði eg mig hjá kvikmyndaskrif- stofunum og var nú næstum orðinn ein af stjörnunum. Mér hafði verið ráðlagt að fara ekki í hópmyndir, svo að eg týndist ekki og var eg því alt af á hnotskóg eftir smáhlut- verkum sem gæfu tækifæri til að hægt væri að taka eftir mér. Svo bauðst mér hlutverk hjá leikstjóranum L. Trimble. Hafði eg verið kyntur honum í New York af Vilhjálmi Stefánssyni. Kvikmyndin sem eg lék í að þessu sinni hét: “My Old Dutch” og var eg við þetta á fullum launum í einn mánuð, fékk 7 dollara á dag. Hlutverkið sem eg hafði var töluvert áberandi, en því miður fór svo með þessa kvikmynd, sem kostaði 100 þúsund dollara, að hún varð alveg ónothæf. — 'Hún var tekin á alt of löngum tíma og eyðilagðist við klipp- inguna — og reið þetta vini mínum Trimble að fullu. Hann misti atvinnuna og hefir ekki síðan komið við sögu. Eg gekk nú á milli kvik- myndafélaganna og fékk nokk- uð mörg hlutverk. Þar á meðal lék eg í hinni frægu kvikmynd “Beau Geste”, sem var sýnd hér. En aðalhlutverkin léku Ronald Colman og Mary Astor. Meðan eg vann við þessa mynd fékk eg 12 dollara á dag. Var myndin tekin á sandauðn við Mexico. Síðan lék eg í “The Blaqk Pirate” með Douglas Fairbanks, “Camelíu-frúnni” með Normu Talmadge og fjölda af smámyndum. Einu sinni lék eg leynilögreglumann í kvik- mynd, sem hét “Umhverfis jörð- ina á áttatíu dögum”. Eg kyntist flestum þektum stjörnum kvikmyndanna á þess- um árum og einum íslenzkum leikara, kúrekanum Bill Cody, sem er hálfbróðir Emile Walt- ers. Hann reyndi að koma upp sínu eigin kvikmyndafélagi, en mistókst. I Eg kyntist syni Leo Tolsto.v og var hann þá að undirbúa að DAY SCHOOL for a thorough business training— NIGHT SCHOOL for added business qualifications— Tbe Dominion Business College, Westem Canada’s Largest and Most Modem Commerclal School, offers complete, thorough training in Secretaryship Stenography Clerical Efficiency Merchandising Accountancy Bookkeeping Comptometry— —and many o’her profitable lines of work We offer you inaividual instmction and the most modem equipment for busrness study, and AN EFFECTIVE EMPLOYMENT SERVICE for the placement of graduates in business DOMINION BUSINES S COLLEGE On The Mall and at Elmwood, St. Jiames, St. John’s taka kvikmynd af einni sögu föður síns. Bauð hann mér heim til sín eitt sinn og réði mig sem einn leikenda sinn, en eg varð ekki fyrir litlum vonbrigðum, er maður nokkur, sem hann hafði fengið til að leggja dóm á leikendurna gaf þá yfirlýs- ingu, eftir að hafa mælt mig og skoðað í krók og kring, að eg væri of lítill. Eg hafði at- vinnu en gat aðeins fleytt mér. Eg fann að það kostaði þúsund- ir dollara að brjótast áfram, því að alt verður maður að borga. Mútur til ráðamanna kvikmynd- anna og blaðamanna, sem hajfa vald á að hefja menn til skýj- anna eða eyðileggja mann, eru ekki lítill útgjaldaliður hjá kvik- myndaleikurum og eg var sleg- inn út í þeirri samkepni. En þrátt fyrir þetta var eg þó enn vongóður ef eg fengi nægan tíma. Og talmyrvdirmar bundu enda á veru mína í Hollywood Alt í einu kom einhver aftur- kippur í kvikmyndaframleiðsl- una. Leikurum var sagt upp í hundraða tali, enginn vissi hverju þetta sætti. Svo var alt í einu auglýst að fara ætti fram reynslusýning á talmynd og um leið sprakk bomban. Talmynd- irnar voru komnar og þar með var lokið atvinnunni fyrir mörg- um, alt slitnaði úr tenglsum og eg yfirgaf Hollywood. Eg fór nú til San Fransisco og Seattle og hélt skemtikvöld á báðum stöðum. Eg fór svo aftur til New York og byrjaði á minni fyrri iðju, en svo kom kreppan og hrunið 1928 og atvinnuleysið skall yfir og eyðilagði alla möguleika fjn*- ir miljónum manna. Eg var einn af þessum miljóna her. Mér tókst þó að afla mér fyrir fari og fór svo heim til míns þurra lands með einu lystiskipinu 1930, beina leið frá New York. Heima er eg ekki útlendingur. Hér get eg andað að mér ís- lenzku lofti. Eg hefi ferðast víða og það er ekki loku fyrir það skotið að eg eigi eftir að fara út og þá til frændþjóða okkar. Er þetta ekki nóg?” Þetta er töluvert — þú ert svo ungur og glaður og það er fyrir öllu. — Ef þú værir það ekki, þá þætti okkur íslending- um heldur ekki svona vænt um þig.—Alþbl. Hann heldur öllum skilningar- vitum óskertum og fætumir jafn hraustir og ásjálegir og á þrevetrum fola. Hann er ágætlega bygður. brjóstkassinn breiður og djúpur, lendar traustar og afturlimir vel settir; fyrirmyndar drátt- arhestur sinnar stærðar. Má fullyrða að mjög fáir hestar eru jafnvel bygðir nú á dögum”. Þetta er óvenjulega hár ald- ur á hesti, en mun ekki dæma- laus. Er þetta gott dæmi um þoi íslenzkra hesta og hversu vel þeir geta enzt, ef verulega vel er með þá farið, en góða daga hefir íslenzki Gráni vafa- laust átt hjá Gardiners-fjöl- skyldunni.—N. Dagbi. Þér sem notið— TIMBUR KAUPIÐ AF THE Empire Sash & Door CO., LTD. Birg-ðir: Henry Ave. East Sími 95 551—95 552 Skrifstofa: Henry og Argyle VERÐ - GÆÐI - ÁNÆGJA Lesið Heimskringlu Kaupið Heimskringlu Borgið Heimskringlu EL2TI HESTUR í HEIMI? Skozka blaðið “Sunday Mail”, flytur 22. des. í vetur grein, með fyrirsögninni: “Elzti hestur á Skotlandi”. Er hún m. a. fram komin í tilefni af því, að áður hafði hestur einn, Gráni frá Carmunnock, verið talinn elztur hesta á Skotlandi, og talinn 34 ára gamall. En nú er kominn til sögunnar annar Gráni, miklu eldri og er sá ís- lenzkur að ætt og uppruna. — Segir blaðið svo frá: “í Maybole er íslenzkur hesta öldungur, sem að þvf er ‘‘Sun- day Mail” hefir frétt, er níu ár- um eldri en Carmunnock-Gráni, sem áður var talinn elztur hest- ur hér á landi. En Maybole- Gráni er 43 ára gamall. Hann er nú eign Mrs. John Gardiner, á West Enooh bú- garði, í Maybole, en var þangað til fyrir 12 árum síðan eign John Gardiner, járnsmiðs í Ab- bey Mill, í Maybole. Hefir hesturinn verið í eign sömu fjölskyldu í 41 ár, því að hann var keyptur 2 ára gamall. Hann var notaður við akur- yrkju og gekk vikulega fyrir léttivagni til Maybole og Ayr markaða, 17^ kílómeter. Þang- að til fyrir 13 árum síðan könn- uðust allir við hann, á þeim slóðum. “Donald” (svo hefir hestur- inn verið nefndur) er matlyst- ugur vel og hefir verið stál- hraustur, að undanteknu kveisu kasti, sem hann fékk nýlega. HREIN HVÍT Vindlinga BLÖÐ VOGUE TVOFALT SJÁLFGERT stórt bókarhefti Árnes................................Sumarliði J. Kárdal Amaranth................................j. b. Halldórsson Árborg..........................................G. O. Einarsson Baldur............................... Sigtr. Sigvaldason Beckville.......................................Björn Þórðarson Belmont............................................q. J. Oleson Bredenbury..............................H. O. Loptsson Brown.......................................Thorst. J. Gíslason Calgary...............................Grímur S. Grímsaon Churchbridge.............................................Magnús Hinriksson Cypress River..............................................Páll Anderson Hafoe.................................. S. S. Anderson ®íros.....................................S. S. Anderson Enksdale.........................................ólafur Hallsson Foam Lake..........................................John Janusson Gimli.............................................K. Kjernested G^ysi1,..............................................Tím. Böðvarsson Glenboro...........................................q. J. Oleson Hayland........................................sig. B. Helgason Hecla............................. Jóhann K. Johnson Hnausa..................................Gestur S. Vídal Hove.............................................Andrés Skagfeld Húsavík............................................John Kernested Innisfail..............................Hannes J. Húnfjörð Kandahar.........................................s. S. Anderson Keewatin..........................................Sigm. Björnsson Kristnes..........................................Rósm. Árnason Langruth...............................................b. Eyjólfsson Leslie................................Th. Guðmundsson Lundar.....................................Sig. Jónsson Markerville..................................Hannes J. Húnfjörö Mozart................................. S. S. Anderson Oak Point...............................Andrés Skagfeld Oakview................................................Sigurður Sigfússon Otto..............................................Björn Hördal Piney......................................S. S. Anderson Poplar Park........................................Sig. Sigurðsson Red Deer....................4........Hannes J. Húnfjörð Reykjavík...........................................Árni Pálsson Riverton..........................................Björn Hjörleifsson Selkirk.........................................G. M. Jóhansson Steep Rock.........................................Fred Snædal Stony Hill..........................................Björn Hördal Swan River..............................Halldór Egilsson Tantallon...............................Guðm. Ólafsson Thornhill.............................Thorst. J. Gíslason Víðir...............................................Aug. Einarsson Vancouver.............................Mrs. Anna Harvey Winnipegosis..............................Ingi Anderson Winnipeg Beach.....................................John Kernested Wynyard...................................S. S. Anderson í BANDARÍKJUNUM: Akra....................................Jón K. Einarsson Bantry...................................E. J. Breiðfjörð Bellingham, Wash.......................John W. Johnson Blaine, Wash....................Séra Halldór E. Johnson Cavalier................................Jón K. Einarsson Chicago: Geo. F. Long, 2428 Hamlin Ave., Logan Square Sta. Edinburg.....................................Jacob Hall Garðar.................................S. M. Breiðfjörð Grafton................................Mrs. E. Eastman Hallson.................................Jón K. Einarsson Hensel...................................J. K. Einarsson Ivanhoe.............................Miss C. V. Dalmann Los Angeles, Calif....Thorg. Ásmundsson, 4415 Esmeralda St. Milton................................... F. G. Vatnsdal Minneota............................Miss C. V. Dalmann Mountain...............................Th. Thorfinnsson National City, Calif......John S. Laxdal, 736 E 24th St. Point Roberts...........................Ingvar Goodman Seattle, Wash..........J. J. Middal, 6723—21st Ave. N. W Svold..................................Jón K. Einarsson Upham....................................E. J. BreiðfjörO The Viking Press, Limited Winnipeg Manitoba

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.