Heimskringla - 04.03.1936, Page 1
L. ÁRGANGUTt
WINNIPEG, MIÐVEKUDAGINN, 4. IVIARZ, 1936
NÚMER 23.
Annar stórsigur ítala í Blálandi
10,000 Blálendingiar falla
Síðastliðinn mánudag gerði
her ítala á norðurvígstöðvun-
um í Blálandi á ný feikna árás
á andstæðingana með þeim á-
rangri, að her þeirra komst alla
leið til Amba Alaji fyrir sunn-
an Tembian hérað, sem Blá-
lendingum hefir nú verið sópað
burt úr, og drápu í hrönnum
niður Amba Alaji her Blálend-
inga, sem heita mátti eina eða
að minsta kosti sterkasta vörn-
in á norðurvígstöðvunum. Leið-
in virðist því- ítölum nú sama
sem opin inn að hjarta Blá-
lands, Addiss Ababa.
Af Blálendingum féllu 10,000
menn. ,
Borgina Addi Ahbi verja enn
um 5000 Blálendingar. Sú borg
er 25 mílur vestur af Makale.
En þeir eru þar í skjaldborg
óvina-hersins og þeirra bíður
annað hvort að ganga ítölum á
vald, eða verða allir strádrepnir.
Sprengjunum rignir sem hagl-
byl yfir þá.
Addi Abbi þorpið í Tembian-
héraðinu ver Ras Seyoum; það
er fæðingarstaður hans og er
ætlað, að hann fari þaðan ekki
lifandi.
Her Kassins í þessu Tembian
héraði var upphaflega um
40,000 manns. Hann má nú
iheita úr sögunni.
Á suðurvígstöðvunum er sagt,
að um sex þússund svartir her-
menn frá Eritrea úr liði Itala
hafi gert uppriest, drepið um 80
hvíta liðsmenn Mussolini og flú-
ið í lið Blálendinga. Er þeim
eflauist beitt fyrir af ítölum að
herja á þjóðbræður sína.
Það kemur heldur flatt upp
Kíng-stjómina og lágtolla
postula að sjá í nýjum vöru-
skrám þeirra er akuryrkju-á-
höld selja í Canada, verð á á-
höldum hækkað til muna eða
alt að því \ 331%. Auðvitað
nemur verðhækkunin ekki svo
miklu að jafnaði, eða að því er
ætlað er ekki nema 10%, en það
er eigi að síður áþreifanleg
verðhækkun á hverjum hlut,
>rátt fyrir tolllæk,kunina úr
25% eða meiru niður í 121%.
í fréttunum í gær, er frá því
sagt,, að Haile Sellassie keisari
hafi sent þjóðabandalaginu til-
kynningu um að hann væri fús
til að sættast og binda enda á
stríðið. Fylgir fréttinni, að hann
hafi mælst til þess við Anthony
Eden, að Edward VIII yrði milli-
göngumaður sátta-málanna.
; til styrktar búnaði landsins.
En eins og þetta er leyndar- Er sagt að þingmenn hafi
dómsfult, þá er það þó hitt' rekið upp stór augu er þeir
furðulegra, að vöruverð hefir heyrðu þessa skatta-áætlun og
stundum lækkað, er tollar hafa að republikar að minsta kosti
verið hækkaðir. Það átti sér hefjist handa og berjist á móti
stað um þessa sömu vöru, er henni, er talið eins víst og að
Bennett-stjórnin hækkaði tolla 2 og 2 eru 4.
síðast.
Þó ekki sé til neins að segja
pólitískum fábjánum neitt um
jetta, skal þess samt getið öðr-
Frá Sambandsþinginu
Síðast liðna viku hnigu um-
ræður á sambandsþinginu einna
mest að viðskiftasamningunum
nýju við Bandaríkin. Hélt Rt.
Hon. R. B. Bennett langa og
ítarlega ræðu um þá. Fann
hann samningunum það til for-
áttu, að King hefði sætt sig við
minna en hálft í þeim. Samn-
ingarnir vseru hinir sömu og
liann hefði átt í höggi við
Bandaríkjastjórn um og hefði
getað samþykt fyrir kosningar,
,ef hann hefði ekki litið meira
á hag landsins, en embættið.
Á alt efni ræðu Bennetts, er
hér ekki kostur að minnast. En
aðal atriðið í henni var það, að
eins og sakir hefðu staðið, áður
en þesssir síðustu samningar
voru gerðir, hefði Canada
veitt Bandaríkjunum 100%
hlunnindi viðskiftalega, en
Bandaríkin þeim aðeins 50%.
Frá þeim grundvelli kvað Ben-
nett ekki vera hægt að víkja án
þesss að landið biði óhag af
því. En nú væri í hinum nýju
samningum farið langt niður
fyrir þetta og Canada nyti að-
eins 30—35% hlunninda á móti
100% hlunnindum, sem það
veitti Bandaríkjunum. Auk þess
væri tiltekin upphæð á öllu sem
héðan mætti selja, sem gerði ílt
verra. Ennfremur væri leyft að
flytja vörur til þessa lands frá
öðrum löndum um Bandaríkin,
sem Canada tapaði miklu við.
Ef King hefði haldið sig að því,
að leyfa ekki nema helmingi
meiri innflutning frá Banda-
ríkjunum en útflutningurinn
nam, hefðu samningarnir mátt
heita þolanlegir. En þar sem
um tvo þriðju væri að ræða í
þeim, gæti hann ekki séð, að
landið mætti við því. Vörukaup
héðan á hvem mann í Banda-
iríkjunum næmu $2.20, en vöru-
kaup Canada þaðan næmu
$28.86 á hvern mann. Þar sem
Canada hefði sjálft neytt 82.9%
af öllum búnaðarvörum, sem
hér voru framleiddar árið 1934
og meira af allri verksmiðju
vöru, væri óþarft að borga
svona mikið fyrir brúsan eins
og King hefði gert. Um 336
vörutegundir væru tollfríar frá
Bandaríkjunum, en aðeins 214
frá Canada á tollskrá Banda-
ríkjanna.
Samkvæmt þessu eru það
17.1% af framleiðslu CanaJda
sem útlendan markað þarf fyr-
ir. Er það ekki merkilegt, hvað
stjómir leggja mikla áherzlu á
svona lítinn hluta framleiðslunn
ar, en skeyta ekkert um að þeir
sem heima em geti keypt jafn
vel það nauðsynlegasta, sem
þeir þarfnast. Það er eins og
markaður^ fyrir 82.9% fram-
leiðslu landsins sé einskis virði.
Joseph Thorson, K.C., hélt.
ræðu á þinginu s. 1. föstudag. —
Kvaðst hann vilja auka viðskifti
við Rússland, Þýzkaland og ís-
land — og gerir það sjálfsagt.
Á þinginu þykir þess hafa
orðið vart, að búið muni vera
með það fyrir stjórninni að
hef ja rannsókn í hveitisölumál-
inu.
Victor Quelöh (Social Credit
sinni frá Acadia) gerði tillögu
um það s. 1. mánudag, að sam-
bandsstjórnin setti eitthvert lág-
marksverð á hveiti. Kvað hann
framleiðslukostnað þess vera
68c, eftir því sem tilraunabú
stjórnarinnar héldi fram. Að
hveitiverð félli niður fyrir það
væri hættulegt. Hann kvað
stjómir flestra landa leggja
stórfé fram til verndar frum-
iðnaði sínum; Canadastjórn
gæti farið að þeirra dæmi.
Mr. Gardiner, akuryrkjumála-
ráðherra, sagði svo margar tor-
færur á þeirri leið, að ábyrgjast
hveitiverð, að því mætti eins
vel eyða.
King forsætisráðherra hreyfði
því í þinginu að Luigi Petruoci
konsúll ítala í Canada hefði
farið svo hörðum orðum um
Þjóðabandalagið og deild þess í
Canada út af framkomu þeirra
í bensínbannmálinu, að hann
gæti ekki látið það afskifta
laust. Konsúllinn flutti ræðu
sína í Montreal nýlega um
þetta. Gaf forsætisráðiherra
honum þá áminmngu, að hann
yrði rekin heim til sín, ef hann
gerði sig aftur sekan um þetta
LÍTIÐ MUNAR VESÆLAN
Eitt sparnaðarstryk Bracken
stjórnarinnar á komandi ári er
það, að höggva tvo dali af árs
launum tveggja vikadrengja
þinginu. Laun þeirra voru $92
á ári, en eru nú $90. Kaup
þingmanna verður hið sama o
áður, og nemur alls $92,070
Ef stjórnin hefði lækkað það
TOLLAR OG VÖRUVERÐ
víðsvegar um land með mönn-
um og sterkar gætur þarf á öllu
að hafa.
UTVARP UM ISLENDINGA
ROOSEVELT SKATTAR
STÓRIÐNAÐINN
WaShington, 4. marz. •—
Roosevelt tilkynti í Bandaríkja-
þinginu í gær, að hann hugsaði
sér að leggja 620 miljón dollara
skatt á stóriðnaðinn í Banda-
ríkjunum á komandi ári, til þess
að hafa inn fé til að greiða
launa uppbót hermannanna og
FREGNSAFN
Sunnudagana 8 og 15 marz
Síðan um nýár hefir The
vlanitoba Association for Adult
■Sducation gengist fyrir því að
vynna hina ýmsu þjóðflokka
tessa lands, með því að útvarpa
vöng og samtali lútandi að
fræðslu um þá. Næsta sunnu-
dag (8. marz) er nú röðin kom-
in að íslendingum. Fer þá eftir
farandi útvarp fram, sem hefst
kl. 1.30 e. h.
Söngur og hljóðfærasláttur
undir stjóm Paul Bardal. Verða
sungnir al-íslenzkir söngvar. —
Þessi söngskemtun stendur yfir
um fjórðung kukkustundar. Þá
fara fram viðræður um íslend-
inga. Prófesssar R. F. MacFar-
lane, sögukennari við Manitoba
háskóla leggur fram spuming-
ar, en Dr. Rögnvaldur Péturs-
son svarar. Efni þessa sam-
tals á sunnudaginn kemur er:
Söguleg afstaða fslendinga
hækki, þó tollar séu lækkaðir
Ástæðan fyrir því er sú, að
vöru-verðinu er ekki ráðið í
la.ndinu, sem tollana lækkar.
Viðskiftin leika stundum
mnnig á stjórnir, að þær gefa
auðfélögum annara landa toll-
tekjur sínar, sem þær ætluðu í
hjartans einlægni að gefa al-
menningi og vita ekki annað en
að almenningur sé að auðgast
af.
Viðskiftin kunna ráð við
flestu fikti gtjórna. Það er eng-
in hætta á öðru.:
og uppruni þeirra?
ætt
Hvenær
Edward VIII ávarpaði þegna
um til umhugsunar, að áhalda-' sína s. 1. sunnudag með ræðu,
verksmiðjur í Bandaríkjunum | er útvarpað var um alt Breta- SpurnTngarnar eru þessar:°_______
ráða verði á búnaðajráhöldum í veldi. Þakkaði hann fyrir sína jjverjir eru íslendingar
Canada; og þegar tollar lækka hönd og móður sinnar Maríu
jar sem dálítil sala er fyrir vör- drotningar hluttekninguna við
una, hækka verksmiðjumar lát George V.
verð sitt. Það er nú allur gald •! Hann sagðist, sem Prinsinn af
urinn í þessu. |Wales, hafa heimsótt þegna sína
Vér höfum þesssa daga áttjút um alt Bretaveldi og æskti
tal viö hugsandi menn um að vera það áfram í hugum
jetta, sem segjast oft hafa orð- þeirra, þó hann væri nú tekinn
ið þessa varir, að vöruverð við ríkisstjórn. Að vinna að því
að efla samvinnu þegnanna, rík-
inu til velferðar, kvaðst hann
vita að væri ósk allra brezkra
borgara sem sín.
hófust vesturferðir þeirra? —
Hversvegna fluttu þeir til Mani-
toba? Undir hvaða skilyrðum
komu þeir hingað? Hvar sett-
ust þeir að?
Sunnudaginn 15 marz er um-
ræðuefnið: “íslendingar sem
canadiskir borgarar.” Spuming-
arnar verða þessar: Hvaða at-
vinnu stunda þeir í bæjum og
sveitum? Hvaða kröfur gera
þeir um lífsþægindi? Hver eru
trúarbrögð þeirra, og hvaða á-
hrif hafa þau á viðhorf þeirra í
þjóðfélaginu? Hvað hafa þeir
lagt til menningar þessa lands á
sviði lista og bókmenta? Hvaða
þátt hafa þeir tekið í stjórnmál-
um þessa lands? Blandast þeir
öðrum þjóðum í landinu?
Hljómleikar og söngur fer
fram þennan sunnudag sem
hinn fyrri. Og útvarpið hefst
einnig kl. 1.30 e. h. frá CKY
stöðinni.
Væntanlega hafa íslendingar
skemtun af útvarpi þessu og
er því athygli þeirra að því
dregin.
Morðin í Japan
Tokyo, 29. feb. — Morðin sem
áttu sér stað í dögun síðast lið-
inn 'miðvikudag í “landi sólar-
uppkomunnar”, og sem minst
var á í síðasta blaði, eru sízt
minni en úr var gert. Einir
fjórir ráðgjafar og margir hátt-
settir stjórnar-þjónar, um 80
manns alls, var drepið af upp-
reistarmönnum. t þiem hópi
var þó ekki forsætisráðherra
Okada, eins og áður var skýrt
frá. Hann kom heill á húfi í
leitirnar eftir tvo eða þrjá daga
Sá er myrtur var og ætlað var,
að væri forsætisráðherrann, var
tengdabróðir hans, Col. Denzo
Matsuo, og einkaritari forsætis-
ráðherrans.
Okada sagði stöðu sinni
lausri, en skipar hana þó þar til
Araki hershöfðingi tekur við
völdum. Hefir keisarinn falið
Araki að mynda nýja stjóm.
Uppreistin hefir nú verið bæld
niður. Tóku þátt í henni um
1000 ungir hermenn. Hafa nú
18 af foringjunum ráðið sér
bana. Hvaða dóm hinir eftir-
lifandi fá, getur ekki um.
Hermálaráðgjafi Yoshiyuki
Kawashima kvað hryðjuverkin
s. 1. miðvikudag “iblett á virð-
ingu hersins” og kvað herinn
bera ábyrgðina. Eigi að síður
er þar eftirlitsleysi um að
kenna, en ekki ásetningi af yfir-
mönnum hersins. Uppreistin
var ekki framin að ráði hersins
í heild sinni.
Þó uppreistin sé nú bæld nið-
um 2%, hefði hún sparað
$1,841.41 í stað aðeins $4 meðlur, er sagt langt frá, að fullur
kauplækkun drengjanna. I friður ríki. Viðsjár kváðu vera
Sambandsstjórnin hefir gert
samninga við járnbrautafélög-
in um að útvega vinnu fyrir
10,000 menn, sem nú eru í at-
vinnubúunum. Vinnan verður
fólgin í viðgerð á sporbrautum
út um landið. Leggur stjórnin
fram 11 miljón dollara til þessa
og félögin annað eins. í at-
vinnubúum ógiftra eru eins
margir eftir, en þeim hugsar
stjórnin sér að útvega vinnu
hjá bændum síðar. Atvinnu-
búunum á að vera lokað 1. júlí.
Stjórnin gerir ráðf yrir að
greiða þeim $15. í kaup á mán-
uði og fæði meðan þeir eru á
atvinnubúunum; ekki veröur
þeim þó afhentur nema helm-
ingur launanna meðan þeir eru
þar, og afgangurinn, sem þeír
eiga inni, er þeir fá atvinnu
annar staðar. Hvaða kaup jám-
brautafélögin greiða er *>ekki
kunnugt um, enda mun það fara
eftir því hveraig verkamenn
þeir reynast.
¥ * *
Samkvæmt skýrslum, sem
lagðar voru nýlega fyrir sam-
ibandssþingið, voru um síðustu
áramót 1,206,429 manns á
framfærslustyrk í Canada. —
Nærri 20,000 einhleypir menn
voru í atvinnubúunum.
* * *
Áætlaður reikningur yfir út-
gjöld fylkisstjórnarinnar í Mani-
töba, var lagður fram í þinginu
í gær. Alls nema útgjöldin á
komandi ári $14,097,549.04. —
Hon. E. A. McPherson, fjár-
málaráðherra, hefir ekki enn
flutt fjármálaræðuna, svo um-
ræður hafa engar orðið um
fjárhag fýlkisins á þinginu.
* * •
Á fylkisþingi Manitoba var
frumvarp til fyrstu umræðu s. 1.
mánudag um það, að stjórainni
væri heimilað að veita fé eftir
þörfum sem styrk til atvinnu-
laussra, án þesss að fjárhæðin
sé netfnd, eins og ákveðið er í
lögum frá 1933. Sanford Evans,
leiðtogi conseirvatíva, var á
móti því, að fjárhæðin væri
ekki tiltekin og gerði breytingax
tillögu um það. Var hún feld
með 31 atkvæði gegn 8. Verka-
menn greiddu stjóminni at-
kvæði. Mr. Evans kvaðst ekki
trúa því, að stjómin hefði ekki
eftir fimm ára reynslu neina
hugmynd um kostnaðinn af at-
vinnuleysinu og áleit henni eins
fært að nefna þá upphæð eins
og veitingu til hvers annars sem
væri. Hann kvað stjórnina ekki
hafa meiri siðferðislegan rétt
til að biðja þingfulltrúana um
að undirskrifa ávísanir áður en
fjárhæðin væri skrifuð á þær,
en einstaklinga.
VIÐBURÐIR ÁRSINS í BLAINE
Veðráttan
“Hvemig Mzt þér á veðrið
lagsmaður” spyrjum við einatt
á gatnamótum enda erum við
náttúrunni háð. Yfirleitt má
segja að veðurfarið hér á
ströndinni, en þó sérstaklega í
þessu nágrenni hafi verið frek-
ar óhagstætt síðast liðið ár.
Rétt eftir miðjan Janúar gekk
í frosthörkur með stórviðri er
varaði í nokkra daga. Menn
eru hér slíku óvanir enda ílla
undir það búnir hvað húsa-
kynni, klæðnað og fleira snert-
ir. Snjókoma var þá líka tals-
verð er tók upp með asahláku
og rigningu svo flóð urðu fram
með ánum er gerðu mikin
skaða. Sumstaðar féllu þök
húsanna undan hinum mikla
krapaþunga en síma og ljósa-
línur slitnuðu. Sátum við hér
í myrkrinu að kalla mátti um
hartnær tveggja vikna skeið. —
Urðu þá efnuðustu mennimir
hvað harðast úti því þeir hita
hús sín með rafmagni og elda
mat sinn með nýbóðins sniði.
Var þá aumkunarlegt að horfa
upp á þessa stæltu burgeisa
(rugged individualists) er þeir
reikuðu um strætin ráðalausir
og báðu guð að senda sér hjálp
í hörmungunum. Önnur bygð
arlög urðu samt ennþá ver sett
því nær fjöllunum gerði hrím-
þoku svo þunga að staurar
brotnuðu en leiðslu símar lögð-
ust niður. Úr þessum ósköpum
rættist þó er kunnáttu menn
komust á vettvanginn og löguðu
skemdimar. Síðan hafa heimsk-
ir menn og hrokafullir verið að
telja sér og öðrum trú um að
reyndar komist þeir af án allrar
samvinnu í vorri veröld. Með
Febrúar brá til batnaðar og
eftir það var veturinn með af-
brigðum góður. Vorið reyndist
kalt svo gróður kom seint og
grasspretta varð fremur rýr, og
hagar lélegir. Haustið var mllt
og blítt og vetur góður fram
að nýári.
t
Atvinna og afkoma |
Lítið hefir ræst úr með at-
vinnu. Fjöldi manna er ennþá
upp á ríkið komið með lífibrauð
sitt (mun eg frekar að því víkja
ef mér endist tími til að rita
nokkrar sundurlausar athuga-
semdir um hagi þjóðar vorrar í
sérstakri ritgerð). Frá ársbyrj-
un til þess að stjómarvinna byrj
aði í haust var fólkið fóðrað á
beinum matgjöfum. Nam það
framlag sem næst 15 til 20
centum á dag fyrir hvern ein-
stakling svo fáir munu hafa
safnað holdum í vistinni. í
október og nóvember í haust
var byrjað á stjómar vinnunni
hér um slóðir. Er vinnunni yfir-
leitt varið til þess að byggja
brautir, laga grafreiti, fegra
skemti-garða, verjast flóðhætt-
um, gera flughafnir og fleira og
fleira. Hér á ströndinni fá al-
mennir verkamenn $48 um mán
uðinn og vinna sex klukku-
stundir á dag í 20 daga. Er það
að vísu sultarbrauð einkum fyr-
ir þá er hafa stórar fjölskyldur
fram að færa en samt vitund
skárra en beinar matgjafir. En
hjákátlegt er að Ihorfa á þessi
vinnubrögð. Engar vélar má
nota svo menn grafa í sundur
hólana með skóflum og aka
þeirn niður í lægðirnar með
hjólbörum og þetta á sér stað í
henni Ameríku þar sem vélar og
tæknikunnáttan hefir náð mest-
um þroska. Ef nokkuð er hæft
í darvinskunni býst eg enda við
að guðsmyndin breytist bráðum
hérna á jörðinni og mannskepn-
an fái skott eins og helvískir
apakettir eftir eitt hundrað ald-
ir af “devolution”. En það
mun hentast að halda sér við
nútíðina. í atvinnumálum hef-
ir það gerst hér í Blaine að tvö
þakspóna verkstæði hafa verið
bygð. Er annað einstaklings
eign en hitt er samvinnu fyrir-
tæki. Styrkir stjómin það með
fjárframlögum er bæði veitast
sem beinn styrkur og lán. Um
fimtíu manns hafa nú verið
teknir inn í þennan félagsskap
og vona menn að fyrirtækið
hepnist og mætti slíkt bæta
Frh. á 7. bls.