Heimskringla - 04.03.1936, Blaðsíða 2

Heimskringla - 04.03.1936, Blaðsíða 2
2. SÍÐA HEIMSKRINCLA WINNIPEG, 4. MARZ, 1936 FÁLKARNIR Ræöu flutt á samkomu íþrótta- félagsins “Fálkinn” í G. T. húsinu 24. feb. 1936. af Philip Péturssyni Herra forseti, liáttvirtu tilheyrendur. Fyrir fáum dögum síðan fréttum vér ósigur Canada hockey-flokksins, sem sendur var til þess að keppa við annara þjóða hockey flokka á Olym- pisku leikunum á Pýzkalandi. Þetta er í fyrsta sinn, sem Can- adamenn hafa hlotið ósigur í hockey samkepninni síðan hún átti upptök sín árið 1920. En þá var það eins og flestir muna, alíslenzkur ihockey flokkur, Fálkamir, sem fór til Antwerp- en í Belgíu og vann sér og öll- um íslendingum frægð og frama með því að sigrast á öllum beztu ‘hockey’-flokkum heims- þjóðanna. Sýndu íslendingarnír með þessu að þeir voru gæddir hetjulund og karlmensku, fimi og f'ræknleik á mjög eftirtekta- verðan hátt og meiri en aðrar þjóðir. er VEL FERÐBÚIÐ Áður en skipið leggur til hafs það útbúið með öllum tækjum. Með reglubundnum sparisjóðs innlegg- um, er ávaxtaðir eru með rentum og renturentum, er hægt að undir- búa pilta og stúlkur fyrir æfi sjó- ferð þeirra. T H E ROYAL BANK O F CANADA Aldrei hefir jafn fámennur hópur og þessi vakið eins mikla eftirtekt á íslendingum yfirleitt, og sérstaklega þeim íslending- um, sem eiga hér heima. Aldrei hafa íslendingar hér eða á ætt- jörðinni auglýst þjóð sína betur eða víðtækara en þessi hockey flokkur gerði árið 1920. Það getur jafnvel verið nokkurt vafamál hvort að þúsund ára al- þingishátíðin á íslandi hafi vak- ið nokkuð meiri athygli víðsveg- ar um heim á Islendingum en Fálka hockey-flokkurinn gerði á örstuttum tíma, þegar hann ekki aðeins vann heims-hockey samkepnina, heldur og sýndi heiminum hvernig ætti að leika hockey af list. Félag þetta, sem vann sér svo mikla frægð og sem enn er minst, þegar um hockey er að ræða, átti upptök sín hér á meðal vor í Winnipeg. Það kemur ekki oft fyrir að vér fá- um að standa í svo nánu sam- bandi við félag eða stofnun, sem hefir unnið sér heimsfrægð. Því finst mér það vera heiður fyrir mig að fá að tala hérna í kvöld, nfinnast þessa flokks og upp- runa hans, og að lýsa í fáum orðum því, sem nú er verið að gera í Winnipeg í þeim tilgangi að halda uppi þeirri stofnun, eða því félagi, sem stóð sig svo vel' fyrir nokkrum árum síðan, og að veita öðrum tækifæri til að halda nafni íslendinga á lofti eins á sviði íþróttanna og í öðru.1 En þó að mér þyki heiður og sæmd í því að tala hérna í kvöld og gefa stutt ‘ ágrip af sögu þessa flokks, eða þessa félags, þá er eg ekki nærri eins fróður um efnið eins og ætti að vera. En það sem eg flyt hérna í kvöld, er að mestu leyti tekið úr sögu félagsins sem annar maður ihefir samiö. Eitthvað af sög- unni hefir birst á prenti, en meginhluti hennar ekki; því er almenningur ekki eins kunnug- ur sögu þessa ágæta félags, eins og æskilegt er að hann væri. Vonandi er að saga þessi birtist áður en Jangt líður og að félagið fái nægilegan styrk til þess, að það geti haldið áfram sínu ágæta verki og ef til vill sent annan flokk, áður en langt líður á olympisku leikina.' Höfundur sögunnar er eg hér segi er Mr. Fred Thordarson Ibankastjóri Við þetta tækifæri get eg ekki gefið nema stutt ágrip af henni en eg vil þakka honum fyrir hana — fyrir upplýsingar þær sem frásögn hans veitti mér um þetta félag — og fyrir að hafa veitt mér efni í erindi þetta, sem eg var beðinn að flytja. Án hennar hefði eg illa verið búinn til þess að flytja erindi um þetta efni. Saga þessi tekur oss langt aftur í tímann — næstum því 40 ár — og hún vekur ef til vill hjá eldra fólkinu margar end- urminningar utn fyrri daga þeirra hér í Winnipeg. Mörg nöfn eru nefnd, sem þeir kann- ast við, og eru ef til vill ein- hverjir þeirra sem nefndir eru í sögunni staddir hér í kvöld. Hún á upptök sín um eða rétt fyrir árið 1897. Þá var Winni- peg bær ekkert líkt því sem hann er orðinn nú, — og þá voru íslendingar, að heita má, fyrir stuttu farnir að stofna fé- lög og ýmisleg samtök þau er bæði tengdu þá saman og skildu í sundur þegar tímar liðu. Þá bjuggu sumir íselndingar þar, sem kallað var í norðurbænum, en sumir í suðurbænum. Og oft lenti í ilt á milli þeirra norður og suður bæjarbúa. j Á þeim tíma var gamla fé- lagshúsið á Jemima Street. — Yngri norðurbæjarbúar komu þar saman til þess að æfa í- þróttir; og þar var stofnað “Hið ; íslenzka íþróttafélag”, eða eins ' og það var kallað, “Icelandic 1 Athletic Club.” Aðalþáttinn í 1 stofnun þessa félags, átti Ólaf- ur heitinn Eggertsson. Aðrir sem einnig tóku þátt í stofnun þess voru Frank Frederickson, en ekki sá Frank, sem var for- ingi Pálkanna árið 1920; Harry Sivertsson, sonur Sigurðar hómópata, og Swansons bræð- urnir Jack og “Swanny” eins og hann var kallaður. Þessir síð- astnefndu komu einnig á fót | hockey-flokk sem tók nafn fé- iagsins. En ekki leið á löngu fyr en tilraun var gerð til að stofna hockey-flokk í suður bænum. Ekki vildu suðurbæjarbúar vera neinn eftir'bátur hinna. Fundur var því haldinn á heimili Olivers Olson á Marylond Street, og þar var stofnað “Viking hockey fé- lagið”. Og þannig byrjaði hockey kepnin á milli norður og suður bæjarbúa, sem haldið var uppi í mörg ár. En ekki var altaf nóg, á þeim árum, að keppa aðeins á íþróttavellinum. Stundum lenti mönnum saman utan hans og er svo sagt frá, að stundum hafi menn snýtt rauðu í þeim bardögum þeirra á milli. Eitthvað hefir þeim þótt það skemtilegra sumum og á- nægjulegra, að geta gengið upp að óvini sínum og gefið honum einn góðan, og verið svo búinn með það, en að þurfa að vera að eilífum blaðaskrifum til að sannfæra menn. Á meðal þeirra sem voru í þessum fyrstu [hockey flokkum, voru Harry Sivertsson, Percy eða “Ben” Ólafsson, “Swanny” Swanson, Fúsi Byron, Magnús Peterson, sem var skrifari bæj- arins í 35 ár, Jack Snidal, Jack Swanson, Fred Olson, Paul Joihnston, Henry Thompson. Magnús eða “Mike” Johnson, “Big Sam” Johnson, Oliver Ol- sen, Árni Anderson og Gunnar Anderson og fleiri. Þeir léku á Brydon og Mcln- tyre skautasvellunum og Á>ft lenti í ófriði þar, bæði á milli þátttakendanna og eins á milli áhorfendanna. — Æsingarnar voru miklar, hart var leikið á ísnum og hátt var hrópað af þeim, sem á horfðu. En oftast þegar búið var að leika, fóru allir þátttakendur, í mesta bróð- erni og vinskap til Emmas og Panaros matarsöluhússins á Main Street, og borgaði sá fyrir matinn, sem veðjað hafði á leik- inn og unnið. I lok vetrarins var haldin sameiginleg veizla, oftast á Criterion hótel, — óg segir sagan frá að oft hafi verið glatt á hjalla í þeim veizlum! Þessi samkepni á milli þess- ara tveggja flokka hélt áfram stöðugt þangað til á árinu 1902. Þá kom deyfð á íþróttafélags- menn um tíma. En seinna var þessi samkepni hafin á ný og haldið áfram þangað til 1909. En þá sameinuðust flokkarnir, og kölluðu sig nýju nafni, sem seinna varð heimsfrægt. Þann- ig var fyrsta Fálka félagið stofnað, — og seinna sýndi þessi flokkur hvað íslendingar geta gert þegar þeir eru sam- taka. Það sem þessi flokkur hefði aldrei gert sundurliðaður, það gerði hann, þegar menn tóku höndum saman og unnu að velferð og framför heildar- innar, og gleymdu því sem þeim hefði áður borið á milli. í þessu fyrsta Fálka félagi — eða meðal þeirra, sem í því voru, eru nöfn þessara manna, George Jóhannesson, Connie Bejnson, Btevjef DaJanan, Bill Halldórsson, Óli Eiríksson, Allan Jóhannesson, Steve Finnsson og Fred Thordarson. Fyrsta árið sem félagið var stofnað, kepti það á hockey vellinum við Brandon og Ken- ora flokkana og við tvo Win- nipeg flokka, sem nefndir voru Monarchs og Winnipegs. Að vetrinum loknum vóru þeir og Monarch flokkurinn jafnir, en eldrei veittist tækifæri til að vita hver þeirra væri betri. Næstu árin á eftir var smám saman að bætast í hópini?. þang- aö til að á stríðsárunum voru SEYTJÁNDA ÁRSÞING ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGSINS Seytjánda ársþing Þjóðræknisfélags Is- lendinga í Vesturheimi var sett af for- seta þess J. J. Bíldfell mánudaginn 24. febrúar kl. 10 f. h. í samkomusal ís- lenzkra. Góðtemplara í Winnipeg. Forseti hóf þingið með því að lesa þingboð. Bað hann þá þingheim að syngja sálminn nr. 192, "Þitt orð er, guð, vort erfðafé.” — Flutti þá séra Jakob Jónssson bæn. — Lýsti forseti þá þingið sett og flutti sína skýrslu sem hér fylgir: Heiðruðu tilheyrendur: Arið liðna hefir verið óvanalega við- burðaríkt ár — ekki er þó svo að skilja, að það hafi verið frábærlega örlagaríkt hvað félagskap vom hinn sérstaka — Þjóðræknisfélag Islendinga í Vestur- heimi snertir. En það hefir verið það, þegar um heildar yfirlit mannfélagsins er að ræða. Eg efast um, að nokkurc ár sem við höfum sögur af, hafi dregið fram á sjónarsviðið jafn skýrt, og þetti síðasta, andstæður manna og erfiðieika vonir manna og vonbrigði, andlegt og verklegt viðhorf einstaklinga og þjóða, í stuttu máli, ástandið I heiminum eins og það er i raun og sannleika, vandræð- in sem menn eru komnir í og framitíðar erfiðleikana, eins og þetta síðasta ár hefir gert. Hver er svo þessi mynd? Þér þekkið hana allir — að minsta kosti part af henni. Einn þátturinn í henni er ótti, ægilegur ótti fyrir yfir- gang og illhug. Enginn mannflokkurinn treystir öðrum, og engin þjóð annari. Austurríkismenn óttagt, að Þjóðverjar gleypi sig. Pólverjar að Frakkar yfir- gefi sig. Frakkar að Englendingar sleppi vemdarhendi sinni af sér — óvinimir eru alstaðar imyndaðir, eða verulegir og svo hervæðast aliar þjóðir — Englendingar (til þess að vera við öllu búnir, Frakkar út af ótta fyrir þvi, að einhverjir ráðist á sig. Þjóðverjar til þess að jafna sínar eigin sakir. — Já til hvers? Rússar til þess að taka á móti Japanítum á landa- mæmm norður Mongólíu nú sem stendur. Japanítar til þesss að bjóða heiminum byrgin þegar fram i sækir. Bandaríkja- menn til þessi að verða ekki aftur úr í þesssari brjálæðis vígbúnaðar samkepni og ttalir til þess að bæla undir sig og eyðileggja saklausa smáþjóð, nálega víg- búnaðarlausa, suður i Afríku. Og við þetta bætist innbyrðis óeining og ótti þjóðanna, atvinnuleysi verkalýðsins, póli- tískar andstæður stjómmálaflokkanna og hinir sí-þverrandi verzlunar möguleikar þjóðanna. Þetta eru heldur ekki allir erfiðleikam- ir, og hættumar sem vofa yfir. Mann- fjöldinn og landþrengslin ógna líka til- vem mröguleikum margra þeirra. Á Italíu, sem er ekki auðugt land, verða 360 manns, að draga fram lífið á hverri fermílu. I Japan verða 1380 manns að gera hið sama, og menn geta getið nærri hversu glæsilegt slíkt er til frambúðar. Fyrir stríðið var útflutn- ingur fólks til annara landa mikill frá þessum þjóðum, sérstaklega frá Italíu, 620,000 manns á ári. Nú er sá útflutn- ingur orðinn hverfandi, fyrir innflutninga skorður annara landa. Inntektir ítölsku þjóðarinnar frá þessu útflutta fólki — peningar, sem það sendi heim, námu $112,000,000 á ári. Nú er það fallið um meir en helming. Inntektir þjóðar þeirr- ar frá ferðafólki fyrir stríðið nam $110,- 000,000. Nú er sú tekjugrein fallin ofan í $50,000,000 á ári. Þriðji inntekta liður þeirrar þjóðar var frá verksmiðjuiðnaði sem hún seldi til annara þjóða. Nú hafa tollmúrar og verðfall á gjaldeyrir henn- ar felt þann inntekta lið ofan í 44% af því sem hann áður var. En hin árlega viðkoma, eða mannfjölgun þjóðarinnar er 400,000 á ári. Hvað á þetta fólk! að gera. Hvar eru útgöngu dymar? Hver eru úrræðin? Þegar maður lítur til Japan er á- standið og útlitið ekki glæsilegra. Þeirri þjóð er bönnuð landvist nálega I öllum löndum nema sumstaðar í suður Ame- ríku sem þeim þykir of langt i burtu til að geta haldið sambandi sínu við heima- þjóðina. Tollmúrar bygðir umkringja öll lönd gegn vörum þeirra, sem og annara. I heimalandi þeirra sem er frekar rýrt til uppskeru og ófrjótt, verða 1380 manns að hírast á hverri fermílu. Eru það nokkur imdur þó Japanítar hafi sprengt af sér gjarðimar og farið her- skyldi inn í Manchuriu, Norður-Kína og , nú siðast inn í Mongóliu. Japanítar em einkennileg þjóð. Þeir em eina þjóðin í heimi sem auka og margfalda verzlim sína þrátt fyrir tollmúrana. Þeir lyfta sér yfir þá og fara til Manchester á Englandi og selja þar vömr sínar ódýr- ari en Englendingar geta framleitt sams- lags vöm. Þeir selja baðmullar vömr á Indlandi, og í Ástralíu fyrir lægra verð en það kostar Englendinga, að kaupa efnið i samlags vöm. Þeir selja léreft og rayon vömr í Toronto í Canada fyrir lægra verð en verksmiðjueigendur í Que- bec segjast geta framleitt slíka vöm fyrir og þeir senda búðarskip sín — skip sem eru búin em út eins og glæsilegustu sölubúðir um öll höf og inn á hverja höfn, sem þeir fá að koma, með þennan ódýra vaming. Þeir verða að gera alt þetta, eða deyja drottni sínum, en til þess era japanítar ekki búnir. Menn segja að verkalýðurinn i Japan sé þrælar og aumleg vinnudýr á lægsta. stígi til- verunnar og iðnhöldamir miskunarlausir böðlar. Ef til vill hafa þeir menn er svo hugsa og tala eitthvað fyrir sér. En Japanítar sjálfir líta ekki svo á. Þeirra lífssskoð- un er mjög ólík lífssskoðun Vesturlanda manna. Hjá þeim er það aldrei aðal atriði að fá hátt kaup fyrir vinnu sína, heldur hitt, að vinna þjóð sinni — þjóð- ar metnaður og þjóðarsómi, er þeirra eina og aðal hugsun, og svo vinna, þeir að honum sem einn maður. Japanítar eru þjóðræknir menn og afkomai þeirra, nú síðustu árin, er ómótmælanlegur vott- ur þesss, hve máttugt afl að þjóðræknin er, þegar að rækt er lögð við hana, og Japanítar kunna að fara með hana og nú, þegar andstæður kljúfa flestar eða allar þjóðir heims og lama þrek þeirra til hvers sem gera skal, þá eru þeir allir eitt, í þvi, að vemda sína þjóð, frá eyðilegging og glötun. En því er eg að minnast á þetta hér? Kemur þettá oss þjóðræknum Islendingum í Ameríku nokk- uð við ? Það kemur hverju einasta manns- bami í álfu þessari við og það alvarlega. Þesssar tvær þjóðir sem eg hefi nú minst á, em ekki þær einu, sem em króaðar inni. Þær em ekki þær einu sem em i verzlunarlegum vanda staddar. Það eru nálega allar þjóðir heims og þær eru all- ar að leita að útgöngudyrum. Bretland hið mikla, verður að framfleyta 800 manns á hverri fermílu. Sviþjóð og Dan- mörk em í stórvandræðum með að koma fólki sínu fyrir. En svo em önnur lönd, svo sem Canada. Þar em þrír um hverja fermílu. I Bandaríkjunum 37 og í Ástralíu 2. Við getum getið nærri hversu afar geigvænlegt þetta ástand er, og þess, hverjar afleiðingamar óhjákvæmi- lega verða, ef mennimir ekki vakna og sjá að sér. Vor eigin þjóð — íslenzka þjóðin, hefir ekki farið varhluta af umróti því, sem hefir verið og er, hja öllum öðmm þjóðum, sem ekki er heldur að búast við. Andstæðumar sem skift hafa þjóðum annara landa, hafa klofið hana. Flokkamir, eg veit ekki hvað margir, berast á banaspjótum nú einmitt þegar að henni reið sem mest á friði og eindrægni, þvi þótt að fjölmennar þjóðir fái staðist innbirðis ófrið og ósamlyndi, lengri, eða skemri tíma, þá er það ó- hugsandi, að eins fámenn þjóð og Islend- ingar em, fái staðist það til lengdar, og haldið sjálfstæði sinu — þeir hafa við nógu raman reip að draga, þó að þeir væru allir eitt, sem þeir líka verða að læra, ef vel á að fara. Islendingar hafa ekki farið varhluta af verzlunar kreppu þeirri sem öllum þjóðum háir nú, og er það því tilfinnan- legra fyrir þá, þar sem vörutegundir þær, sem þeir hafa til að selja á alheims markaðinn eru svo fáar — ekki nema fiskur og sjávar afurðir, svo teljandi sé. Ef salan á þeim bregst, ef markaðinum fyrir þær vömr þeirra er lokað, þá er líka framtíðar og lifsvon þjóðarinnar þrotin. Hér er því um hið alvarlegasta vajidamál að ræða og ef sambönd og kunnugleiki Vestur-Islendinga hér í álfu í fimtíu ár, má sín nokkurs, þá sannar- lega ættu þeir ekki að liggja á liði sinu nú, með það að styðja að þvi á allan hátt að opna fyrír bræður sína heima, eða með þeim, markað fyrir sem mest af vörum þeirra í þessari heimsálfu. Yður er öllum kunnugt um, að í síð- asta mánuði andaðist Georg V. konungur á Bretlandi, sjálfsagt sá mest virti og vinsælasti þjóðhöfðingi sem uppi hefir verið í langa tíð og vér minnumst hans með lotningu og þakklæti. Fráfall þess ástsæla þjóðhöfðingja gefur ástæðu til umhugsunar um margt í fari hans, lífi og lífsstefnu, t. d. hvemig stóð á þeim ástsældum sem hann ávann sér, og það einmitt nú þegar konungs og veldisstólar annara þjóða léku á reiði skjálfi og féllu, þá styrkir hann svo veldi sitt, að engum fyrirrennurum hans hefir tekist það bet- ur? Hann hafði ekki aðeins náð hylli sinna þegna undantekningarlaust, heldur lúta allar þjóðir höfði við líkbörur hans. Hver var sá undramáttur, er þessu réði9 Það var ekki konungs valdið eitt, því nú á dögum, er það ekki vegurinn til vin- sælda. Nei, undirrótin og aflið að valdi þess göfugu þjóðhöfðingja, var það að hann reyndist trúr, því fegursta sem þjóð hans átti í þjóðararfi sinum, og auðnaðist að vera merkisberi þess, öll sin ríkis ár. Stjómamefnd Þjóðræknisfélagsins hefir haldið fjórtán fundi á árinu og haft með höndum eftirfylgjandi mál. Landnámsminnisvarða mál Eins og menn mun máske reka minni til, þá var í sambandi við fimtíu ára bygðarafmæli Nýja-lslands 1925, hafið máls á þvi, að vel viðeigandi væri, og jafnvel sjálfsagt að landnáms þeirrar bygðar væri minst á einhvem viðeigandi og varanlegan hátt, helst með því, að landnámsfólkinu væri reisturminnisvarði á Gimli eins fljótt og imt væri að koma því verki í framkvæmd, Nokkrir menn í Nýja-Islandi gerðust þá forgöngumenn þess máls. Ræddu það opinberlega, og kom þeim saman um, að heppilegasta fyrirkomulag þess varða, væri eftirlíking af íslenzkri vörðu eða eitthvað það, sem í senn gæti mint á uppmna þeirra og landnáms erfiðleika. Nokkm fé var þá safnað til þess fyrirtækis eitthvað um $90.00. A öndverðu síðast liðnu sumri kom einn af forgöngumönnum þess mál- efnis, á fund stjómamefndar Þjóðrækn- isfélagsins, og fór fram á það við hana, að hún tæki málið að sér, og beitti sér fyirr framkvæmdum í því, og að æski- legast væri að minnisvarðinn gæti verið kominn upp á sextugasta landnáms af- mæli Nýja Islands, en það var 21. okt. s. 1. Stjómarnefnd Þjóðræknisfélagsins sá sér ekki fært að skorast undan, að taka við málinu, því hér var um verulegt þjóðræknismál að ræða, og nefndinni fanst það skylda Þjóðræknisfélagsins að leggja því alt það lið sem það gat. Þess- vegna tók hún málið að sér. Það er ekki mikil þörf á fyrir mig að rekja sögu þess máls mikið lengur, því skýrsla frá nefnd þeirri, er fyrir málinu stóð verður lögð fram hér á þinginu. En þó er mér ljúft að geta þess, að áður en fyrir- komulag varðans var ákveðið leituðum við til þeirra atkvæðamanna vor á með- al sem við gátum náð til og kom okkur öllum saman um, að láta þetta minnis- merki tákna tvent — uppruna landnáms- fólksins og grettistök þau er það varð að lyfta á fyrstu landnámsámm sínum. Þetta tvent höfum við leitast við að láta varðan tákna. Hvernig að það hefir tek- ist leggjum við undir dóm sanngjamra og óvilhallra manna. Eg get ekki skilið svo við þettá mál, að votta ekki almenning Islendinga þökk fyrir hinar ágætu imdirtektir er mál þetta fékk þegar leitað var til hans með fjárhagslegan stuðning og þó verkinu sé ekki að fullu lokið enn, þar sem eftir er að byggja upp grunninn í kringum varð- ann, og að öðm leyti ganga frá honum í vor þegar veður leyfir þá ber eg svo mikið traust til fólks yfirleitt, að það láti ekki það óhjákvæmilega verk undir höfuð leggjast sökum fjárskorts. Einnig ber að þakka byggingarmeistara Þor- steini Borgfjörð sem um bygging varð- ans sá, fyrir atorku hans og óeigingjamt starf i þarfir þess máls, því hann gerði alt það verk endurgjaldslaust. Að síð- ustu minnist eg með þökk þátttöku bæj- arstjómarinnaij á Gimli og fólksins þar. Bæjarstjómin gaf völlinn sem varðinn stendur á 132x132 fet og veitti minniss- varðanefndinni alla þá aðstoð sem henni var unt og enn fremur hefir hún lofast til að halda vellinum i kring um minn- isvarðann við á komandi tíð endurgjalds- laust. Minnisvarðinn var afhjúpaður 21. október síðast liðinn. Annar minnisvarði, sem snertir íslenzk- an almenning vor á meðal var reistur á leiði skáldsins St. G. Stefánssonar á ár- inu. Er það varði á cements gmnni. Fyrir þeim framkvæmdum gekst aðal- lega, hinn góðkunni landi vor ófeigur Sigurðsson að Markerville og á hann þakkir skilið fyrir framtakssemi sina. Frh.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.