Heimskringla - 04.03.1936, Page 3
WINNIPEG, 4. MAJtZ, 1936
HEIMSKRINGLA
3. SÍÐA
flest alllr þeir, sem iseinna
unnu sér og íslendingum yfir-
leitt hinn mikla heiður á ólym-
pisku leikunum, komnir í flokk-
inn. Gengu þeir þá allir í tvö
hundruð tuttugustu og þriðju
herdeildina og fóru með deild-
inni til Frakklands. En þá
lagðist hockey samkepnin niður
að miklu leyti. Þegar þeir
komu heim aftur mynduðu þeir
á ný Fálka félagið og hættust
þá aðrir við. Veturinn 1919-20
byrjuðu þeir með því að keppa
við Selkirk og Brandon. Það
sem þá gerðist, er gömul saga.
Þeir unnu einn sigur á fætur
öðrum. Þeir sigruðust á öllum
flokkum í Winnipeg. Næst fóru
þeir til Fort William og unnu
þar fyrirlhafnarlaust. Þeim gekk
eins vel í Toronto og þeir unnu
einnig þar. Þeir hlutu Allan
ibikarinn, sem fer til forvígis-
manna Canada í hockey sam-
kepni, og þá næst lögðu þeir af
stað til Belgíu á Ólympisku leik-
ina. Þar keptu þeir við beztu
hockey flokkana frá helztu
þjóðum heimsins og voru aldrei
í neinni hættu. Enda mun sú
frammistaða aldrei gleymast,
eins lengi og hockey er leikið.
Þegar flokkurinn kom heira
aftur, var allstaðar tekið á móti
honum, sem hópi stórhöfðingja.
Veizlur voru haldnar honum til
heiðurs, og Winnipeg bæjarráð-
ið gaf hverjum manni sem í
fokknum var, gullúr til minn-
ingar um þennan stórkostlega
sigur.
ROYAL
YEAST
CAKES
Notið Royal Yeast kökur og
Royal soppu-forskriftir fyrir
þessar bragðljúfu bakningar.
Þessar frægu þurru gerkökur
tryggja það að brauðdeigið hef-
ast. Efnisgæði þeirra er ein
ástæðan . . . önnur, hversu um
þær er búið. Hver Royal Yeast
Kaka er vafin upp sérstaklega.
Umbúðin loftheld — svo þær
haldast ferskar. Ekkert þur-ger
er þannig umlbúið. Hefir haldið
metum í meir en 50 ár — Roya.1
Yeast kökur kjósa 7 húsmæður
í Canada af hverjum 8, er
þurra-ger nota. — Pantið yður
pakka.
Kaupið
vörur
búnar
til
í
Canada
Saga þessi líkist að nokkru
leyti hetjusögum fornaldarinn-
ar, eða sögunum um þá, sem j
fyrrum fóru í víking og komu
heim aftur, eftir að hafa unnið
sér frægð og frama á erlendum
ströndum. Það gerðu þessir
víkingar á tuttugustu öld. Þeir
fóru í viking og hver einasti af
þeim kom heim aftur úr ferð-
inni með kórónu sigurvegarans
á höfði sér.
Þeir, sem þennan sigur unuu,
voru, fyrst og fremst foringi
þeirra, Frank Fredricksson. —
Næst honum voru, Wally Byron,
Konni Jóhannesson, Bobby Ben-
son, Mike Goodman og Slim
Halldórsson. — Aðstoðarmern
þeirra eða “substitutes” voru,
Ohris Friðfinnsson, Harvey Ben-
son, Ed. Stepihenson, Connie
Niel, Huck Woodman og “Babe”
Elliott.
Sumum mun finnast, að sag-
an ætti með þessu, að enda En
sextán ár eru liðin síðan að
þessi sigur var unninn, og
margt hefir gerst siðan.
Flestir þeirra sem unnu sam-
kepnina í íólympsku leikunum,
fóru næsta vetur á eftir, að
leika það, sem vér köllum “pró-
fessional” hockey; og þó að fé-
lagið tapaði stórkostega við það,
þá stóð það samt ekki illa að
vígi. Þá tóku yngri drengirnir
við, eða junior hockey flokkur-
inn — og veturinn 1921 og 2,
vann yngri flokkurinn Canada
hockey-samkepnina. Og óinu
sinni enn var tekið á móti Fálk-
unum með opnum örmum hér í
bæ, og þeim sýndur heiður af
bæjarstjórninni. Þeim var hald-
in veizla, og gefið gullúr til
minningar um sigurinn.
Næsta vetur á eftir vann eldri
Fálka flokkurinn Manitoba-
samkepnina, en árið 1924 lögðu
þeir samnkepnina niður um
hríð. Árið 1932 var byrjað aft-
ur, og þá tóku fjórir Fálka
hockey-flokkar þátt í samkepn-
inni, Juvenile, Junior, Intermed-
iate og Senior. Frá þeim tíma
hafa þeir staðið all vel log
unnið “Manitoba Juvenile”
semkepnina einu sinni, “Mani-
toba Intermediate” samkepnina
einu sinni, og í fyrra vann Sen-
ior flokkurinn fylkissamkepn-
ina.
AÆ þessu sjáum vér að Fálka-
félagið, sem var stofnað árið
1909, og sem átti upptök sín um
eða fyrir árið 1897 hér í Winni-
peg, er ekki alveg búið að vera.
En þar sem aðal íþróttin var
einu sinni hockey, þá hefir fé-
lagið byrjað á síðustu árum, að
æfa bæði drengi og stúlkur í
ýmsum öðrum íþróttum, (og
fáum vér að sjá sýnishom af
því sem félagið er að gera, dá-
lítið seinna í kvöld).
Það eru margir í félaginu nú,
sem styðja það einlæglega og
samvizkusamlega. Þeirra einu
laun eru þau, að félagið dafni
vel og þriskist. Þeir vilja að
ungu drengirnir og stúlkurnar
fái hvert tækifæri að æfa sig
í heilsusamlegum líkamsæfing-
um og íþróttum, þeir hafa ekki
legið á liöi sínu heldur gert alt
sem þeir hafa getað undir
kringumstæðunum.
Ein mesta framförin á síðasta
vetri var sú, að gera skauta-
svellið við Sargent Avenue, á
milli Home og Simooe stræta.
Þar fá allir meðlimir félagsins
tækifæri að skemta sér á skaut-
um og að æfa sig, ef þá langar
til í hockey íþróttinni. Ekki
hefir félaginu gengið alveg eins
vel með að fá hæfilegt hús, fyrir
líkamsæfingar en vonandi er að
það rætist úr þeim vandræðum
áður en langt líður.
Fálka félagið, eins og það
hefir verið, og eins og það nú
er, er okkur íslendingum til
mikils heiðurs. Það hefir gert
mikið til að vekja atliygli
manna á íslendingum, á sóma-
samlegan og heiðarlegan hátt.
Það vinnur að því að efla hreysti
ungu drengjanna og stúlknanna
sem viðurkent er að vera mikil-
vægt uppeldisatriði.
Það á það skilið af íslending-
um að þeir veiti því styrk og
aðstoð. Vonandi er að því verði
sú aðstoð veitt, svo það geti
haldið áfram sinni ágætu starf-
semi í mörg ókomin ár.
Svo þakka eg yður fyrir góða
álheyrn.
M.ÁRUS DOLL
d. 29. marz 1935.
(Æfiminning)
Hann vair fæddur í Hróksholti
í Eyjahreppi í Hnappadalssýslu
5. jan. 1869. Foreldrar: Jónas
Eyvindsson og Kristín Jónsdótt-
ir. Þeim ihjónum varð 9 barna
auðið. Af þeim lifa nú aðeins
2 bræður, Eyvindur í Riverton
og Júlíus á íslandi. Jónas faðir
Márusar eignaðist 2 sonu með
seinni konu. Lifir annar þeirra
Kristinn Doll á Mikley.
Márus Doll kom frá íslandi
1886; settist að í Mikley og bjó
þar til æfiloka. Hann kvæntist
Ingi)bjölrgu Brynjólfsdóttur 3.
sept. 1897. Márus og Ingibjörg
eignuðust 13 iböm, tvö dóu í
æsku. Eitt þeirra Jlónas (Cas-
per, ágætt mannsefni, dó 1918
tæplega tvítugur. Hin öU — að
einu undanteknu eiga heimili á
Mikley.
Nöfn þeirra eru sem fylgir:
Guðrún gift B. W. Benson.
Kristbjörg gift Sigurgeir Sigur-
geirssyni. ÍBrynjólfur þvæntur
Máble Rögnvaldson frá Winni-
pegosis. Borgil kvæntur Mal-
venu Pruden, konu af frakk-
neskum ættum, búsett í Sel-
kirk. iSigríður gift Skúla Sig-
urgeirssyni. Katrín gift Aðal-
steini Jónassyni. Rosie gift V.
Thompson af dönskum ættum.
Gunnar kvæntur Sigurrós Á-
mundson ættaðri af Mikley. —
Kristín og Benedikta ógiftar að
læra hjúkrunarfræði á almenna
spítalanum í Selkirk. Márus
Doll bjó á Lundi í Mikley allan
sinn búskap. Hann stundaði
landbúnað og fiskiveiðar jöfn-
umhöndum. Vann hann af
kappi og hlífði sér .hvergi, enda
er það meira en meðalmanns
verk, að ala upp 11 mannvæn-
leg börn — og hafa á ekkert aö
treysta, nema tvær hendur og
hagsýni samhentrar konu. —
En þrátt fyrir svo erfiða að-
stöðu, var starf hans víðtækara
og náði út fyrir heimilis annir.
Hann var forseti Mikleyjar safn-
aðar um mörg ár, og sveitar-
ráðsmaður um langt skeið. —
Márus yar ágætlega orðfær
maður og einn af aðalræðu-
mönnum Mikleyjar mili 30—40
ár. Hann var prýðilega skáld-
mæltur en fór dulara með, en
ástæða var til, þó orti hahn
töluvert en hélt því lítt saman.
Hann skrifaði fréttapistla héðan
í íslenzku iblöðin, urðu þeir til
að kynna Mikley og styðja veg
hennar.
Af þessu er auðsætt að skarð
er fyrir skildi í þessari Ibygð, við
fráfall hans. Mikley hefir mist
einn sinn allra bezta mann. —
Satt er það að vísu, að maður
kemur í manns stað. Márus
Doll var svo kynsæll maður, að
ástæða er til að ætla, að ein-
hver niðja hans, sem ber sama
nafn, verði merkur starfsmaður
á þessari eyju eftir nokkur ár.
En þó að svo verði, — er það
víst að eldra fólkið, sem sakn-
ar ihans, fær aldrei skaðan bætt-
an. Það sér aldrei framar
Márus Doli íslenzkan í anda og
fasi með fjallaloft og ljóð á
tungu.
Márus Doll var vörpulegur
maður að vallarsýn, meir en í
meðallagi hár og þrekinn. —
Hann var vel á sig kominn og
karlmannlegur. Skjótur til úr-
ræða. Harðfengur og fylginn
sér. Þegar hann gekk að verki,
gengu öll störf fljótt og greið-
lega úr höndum hans. Öllum
varl júft að ganga að verki með
honum, því að hann var glaður
starfsmaður og ókvíðinn. Jafn-
an tók hann sólarhæð andlegra
mála, ásamt erfiðu starfi. —
Manni með hans hæfileikum
nægði ekki efnið eitt. — And-
inn varð að njóta síns réttar, þá
leið tíminn fljótar og skyldi eftir
spor á sandi hins streytandi
verkbundna manns.
Verk hans voru vandlega
unnin og gæfusamleg. Heyil
hefi eg að hann hafi bjargað
tveim mannslífum frá dauða,
með miklu snarræði. Er það
trú mín, að sá, sem ber giftu
til þess, muni fá handtök gera
ógæfu megin um æfina. Á létt-
asta skeiði æfinnar var Márus
Doll fær maður á seglbát í fleiri
sumur norður á Winnipegvatni.
Enn þann dag í dag lifa þær
sagnir síðan, að þó að hann
bryti stýri eða annað jafn alvar-
legt kæmi fyrir út á regin vatni
í ófæru veðri, — kæmi hann
mensku hygg eg norræna ætt
rísa hæst og Márus var niðji
hennar.
“Deyjandi munnur orti óð
þá oddur spjóts í hjarta stóð.”
Þetta eru einkunnar orð nor-
rænnar skapgerðar. — Hærra
getur mannleg tign tæplega ris-
ið.
Eftir missi konit sinnar gekk
Márus bömum sínum bæði í
föður og móður stað. Að hann
hafi verið því starfi vaxinn er
augljóst af því, að þau unnu
honum bæði sem föður og móð-
ur. — Missirinn varð þeim því
óumræðilega sár. — “Tíminn
græðir góða mín” sagði Márus
heitinn við eina dóttur sína,
þegar húri misti sín ibörn. —
Það er sú eina líkn, sem lögð
er með þraut, að tíminn græðir
— þó að seinn sé. Márus var
jarðsettur 6. apríl 1935 í graf-
reit Mikleyjar að viðstöddu f jöl-
menni. Séra Jóhann Bjarna-
son jarðsöng.
Börn Márusar Dolls kveðja
hann með þessum ljóðh'num:
Fús gafstu á vegi fömum.
Faðir! — af tíu bömum
meðtak þökk allrar æfi,
sem ástúð þinni hæfi.
Sorgin við gluggann situr
samúðarlaus — en vitur.
Allflestir hana erfa.
Ástvinir fara — og hverfa.
Þó gæfu gefin árin
og grói hjarta sárin,
—ást þín var öllu stærri
áhrifameiri og hærri.
J. S. frá Kaldbak.
11. feb. 1936.
Keyptu vín fyrir kol
í Stanton Cleveland, Ohio,
voru tveir menn teknir fastir,
fyrir að stela 400 pundum af
kolum. Þeir viðurkendu sök
sína en kváðust ekki hafa getað
haldið sér heitum með öðru
móti. Dómarinn kendi hálfveg-
is í ibrjósti um mennina og
spurði því: “Hvar brenduð þið
öllum þessum ikolum?” “Satt
að segja yðar hátign, þá brend-
um við ekki kolunum,” sögðu
þeir. “Okkur langaði til að
verma okkur sejm fljótast og
“skiftum” því á kolunum og
wihiskey,, sem við drukkum.”
30 daga inni og 20 dala sekt,”
hrópaði idómarinn. — “Næsti
mál!”
heill í land með menn og skip.
í marzmánuði s. 1. ár fékk
Márus slag. Var honum ekki
hugað líf. Þó rétti hann sig svo
við, að hann var fær um — fyr-
ir bænastað barna sinna >— að
takast ferð á hendur til Winni-
peg að leita sér lækninga. —
Sjálfur vissi hann að hana
mundi deyja. Þegar eg frétti
um ferð hans, mintist eg ofan-
greindra sagna um hann norðui
á vatni, og taldi mér trú um,
að enn mundi hann koma lif-
andi aftur, þó að útlitið væri í-
skyggilegt. En það brást. Sann-
aðist þar hið fornkveðna: —
‘Bregður hverjum á banadægri.’
Nú var svo komið að hann hafði
ekki nema um einn kost að
velja, — sama kostinn og Þor-
kell máni forðum, sem þetta var
kveðið um:
“Stundin er komin æfi ár,
enduð og sérhver jarðar mæða.
Megnar nú enginn mín að
græða,
niaður, hin dauða sollnu sár.”
Hefði Márus Doll haft fult
ráð síðustu stundina, og ®ól
skinið á skýlausum himni,
mundi hann hafa látið bera sig
út í sólskinið eins og Þorkell
máni — og falið þeim sál sína,
sem sólina hefir skapað.
Með þessum tveim íslending-
um var andlegur skyldleiki,, þó
að annar væri uppi fyrir þúsund
árum, en hinn á tuttugustu öld-
inni. Báðir voru gáfuð ljóss og
náttúru börn. Þó var Márus
ekki trúmaður á almenna rétt-
trúnaðar vísu. Hugsjón hans
þurfti víðara vængja rúm. Eg
þekti manninn svo vel, að eg
þori óskelfdur að tileinka hon-
um baugabrot úr kveðju sem
flutt var við kistu annars ís-
lendings:
‘‘Að trúa fáu, en skoða með
skarpri hugar sýn
og skilnings höndum þreyfa var
einkalöngun þín.”
Márus Doll hafði þann sjald-
gæfa hæfileika að knýja á hurð-
ir gleðinnar þó að hjarta hans
titraði af harmi. Hann misti
konu og uppkominn son “flúar”
veturinn 1918. Aðeins 5 dagar
liðu á milli dauða þeirra. Hann
stóð einn eftir með 10 börn,
flest á æskuskeiði. Þá gránaði
hár hans, og hann eltist um 10
ár á einni nótt. — En þó hafði
hann gleðisvöi) á reiðum hönd-
um, ef þig bar að garði hans.
Á þessu stigi andlegrar aðal-
INNKÖLLUNARMENN HEIMSKRIN6LU
Árnes..........
Amaranth.......
Árborg.........
Baldur.........
Beckville......
Belmont........
Bredenbury.....
Brown..........
Calgary........
Churchbridge...
Cypress River..
Dafoe..........
Elfros.........
Eriksdale......
Foam Lake......
Gimli..........
Geysir.........
Glenboro.......
Hayland........
Hecla..........
Hnausa.........
Hove...........
Húsavík........
Innisfail......
Kandahar.......
Keewatin.......
Kristnes.......
Langruth.......
Leslie.........
Lundar.........
Markerville....
Mozart.........
Oak Point......
Oakview........
Otto...........
Piney..........
Poplar Park....
Red Deer.......
Reykjavík......
Riverton.......
Selkirk........
Steep Rock.....
Stony Hill.....
Swan River.....
Tantallon......
Thornhill......
Víðir..........
Vancouver......
Winnipegosis...
Winnipeg Beach,
Wynyard........
I CANADA:
...Sumarliði J. Kárdal
....J. B. Halldórsson
....G. O. Einarsson
....Sigtr. Sigvaldason
....Björn Þórðarson
.......G. J. Oleson
....H. O. Loptsson
..Thorst. J. Gíslason
Grímur S. Grímsson
..Magnús Hinriksson
......Páll Anderson
....S. S. Anderson
....S. S. Anderson
....ólafur Hallsson
......John Janusson
......K. Kjernested
....Tím. Böðvarsson
.......G. J. Oleson
.....Sig. B. Helgason
.Jóhann K. Johnson
....Gestur S. Vídal
....Andrés Skagfeld
....John Kernested
•Hannes J. HúnfjörO
....S. S. Anderson
....Sigm. Björnsson
....Rósm. Árnason
......B. Eyjólfsson
....Th. Guðmundsson
.......Sig. Jónsson
•Hannes J. HúnfjörO
....S. S. Anderson
....Andrés Skagfeld
..Sigurður Sigfússon
.......Björn Hördal
......S. S. Anderson
....Sig. Sigurðsaon
..Hannes J. HúnfjörB
.......Árni Pilsson
....Björn Hjörleifsson
....G. M. Jóhansaon
.......Fred Snædal
.......Bjöm Hördal
....Halldór Egilsson
....Guðm. Ólafsson
....Thorst. J. Gíslason
....Aug. Einarsson
....Mrs. Anna Harvey
......Ingi Anderson
....John Kernested
......S. S. Anderson
T BANDARÍKJUNUM:
Akra......................................Jón K. Einarsson
Bantry....................................E. J. Breiðfjörð
Beliingham, Wash........................John W. Johnson
Blaine, Wash................*....Séra Halldór E. Johnson
Cavalier.................................Jón K. Einarsson
Chicago: Geo. F. Long, 2428 Hamlin Ave., Logan Square Sta.
Edinburg.......................................Jacob Hall
Garðar...................................S. M. Breiðfjörð
Grafton..................................Mrs. E. Eastman
Hallson..................................Jón K. Einarsson
Hensel....................................J. K. Einarsson
Ivanhoe...............................Miss C. V. Dalmann
Los Angeles, Calif....Thorg. Ásmundsson, 4415 Esmeralda St.
Milton.....................................F. G. Vatnsdal
Minneota..............................Miss C. V. Dalmann
Mountain.................................Th. Thorfinnsson
National City, Calif.......John S. Laxdal, 736 E 24th St.
Point Roberts.............................Ingvar Goodman
Seattle, Wash...........J. J. Middal, 6723—21st Ave. N. W.
Svold....................................Jón K. Einarsson
Upham.....................................E. J. BreiðfjörO
The Viking Press, Limited
Winnipeg Manitoba