Heimskringla - 04.03.1936, Blaðsíða 8
6. SIÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 4. MARZ, 1936
FJÆR OG NÆR
Útvarpsguðsþjónusta
fer fram á íslenzku í Stam-
tbandskirkjunni í Winnipeg
næstkomandi sunnudag 8. marz
kl. 7. e. b. yfir kerfi CKY stöðv-
arinnar. Séra Rögnv. Péturs-
son messar.
Séra Plhilip M. Pétursson
messar á ensku kl. 11. f. h.
y * *
Séra Guðm. Árnason messar
á Lundar, Man., sunnudaginn
8. marz á venjulegum tíma.
* * *
M.essur í Sambandskirkjum
Nýjia fslands yfir Marzmánuð
Árborg sunnud. 8 marz kl. 2.
e. h.
Árnes sunnud. 15. marz kl. 2.
e. h.
Gimli sunnud. 22. marz kl. 2.
e. h.
Riverton sunnud. 29. marz. kl.
2. e. h.
¥ * ¥
Mill&niial Hockey Competition
The annual hockey competi-
tion for the Millenial Trophy,
donated by the Icelandic Na-
tional League will be played at
Selkirk, Man., Wednesday and
Thursday, March 11 and 12. —
Teams from Gimli, Selkirk and
Winnipeg will participate, and
the games start puntually at
7.30 p.m. at the Selkirk Hockey
Rink. Gimli is the present
holder of the Trophy.
Come to Selkirk and support
your team.
Trustees of the Millenial
Trophy
* * *
Mrs. S. S. Anderson frá
Piney, Man., var í bænum g. 1.
viku og sat Þjóðræknisþingið.
* * *
Séra Guðm. Árnason frá Lun-
dar, Sveinn Thorvaldson, M.B.
E., frá Riverton og séra Eyjólf-
ur J. Melan voru í bænum s. 1.
mánudag á stjórnarnefndar-
fundi Sameinaða kirkjufélags-
ins.
* * *
ÞJÓÐRÆKNISÞINGIÐ
í síðasta blaði var minst á
Þjóðræknisþingið og starf þess
tvo fyrstu dagana. Síðasta
daginn (á miðvikudag) fór eins
og venja er fram stjórnamefnd-
ar kosning. Hlutu þessir kosn-
ingu: Porseti, dr. Rögnvaldur
Pétursson, vara-forseti, dr.
Riohard Beck, ritari, Grísli Jóns-
son prentsmiðjustjóri, vara-rit-
ari séra Björn Theo. Siguirðs-
son, gjaldkeri Árni Eggertsson
fasteignasali, vara-gjaldkeri W.
J. Jóhannsson, fjármálaritari
Guðmann Leví, vara-fjármála-
ritari Sigurður W. Melsted,
skjalavörður séra Phiip M. Pét-
ursson.
Að kvöldinu hélt séra Björn
Theo. Sigurðssson fyrirlestur.
Var hann vel rómaður, enda á-
gætlega saminn og fluttur.
Kristján Júlíus Jónsson, skáld
á Mountain var gerður að heið-
ursfélaga í Þjóðræknisfélaginu
á þessu þingi.
* - ¥ *
Séra Jakob Jónsson, frú og
Benjamín Einarsson frá Wyn-
yard, sem verið hafa í bænum
síðan fyrir Þjóðræknisþing,
lögðu af stað vestur s. 1. þriðju-
Jón Janusson frá Foam Lake,
sem um viku tírha dvaldi í bæn-
um og sat Þjóðræknisþingið,
hélt af stsíð vestur s. 1. föstu-
dag.
* * *
Jón Ragnar Johnson frá Wa-
pah, Man., var staddur í bæn-
um s. 1. viku.
MISS WILLA ANDERSON
Professiornal Hairdresser
Lœtur hér met5 viíSskiftavini
sína vita at5 hún hefir nú rát5it5
sig vit5
Nu Fashion Beauty Salon
32SJ4 PORTAGE AVE.
og starfar þar framvegis. Být5ur
hún alla fyrverandi vit5skifta-
vini sína velkomna þangat5. Um
afgreit5slu tíma símit5 27 227.
dag.
* * *
Fyrirlestur, heisufræðilegs
efnis, útskýrður með myndum,
verður haldinn í efri sal Good-
templarahússins mánudags og
þriðjudagskvöld í næstu viku.
Þessi fyrirlestur fjallar sérstak-
lega um áhrif áfengis á líkama
mannsins. Auk þess verður
skemt með söng og hljóðfæra-
slætti. Á mánudagskvöldið
syngur Mrs. R. Gíslason en
þriðjudagskvöldið Mrs. Grace
Jqhnson. Þetta ætti að verða
bæði fræðandi og skemtandi
kvöldstund. Inngangur ókeyp-
is og engin samskot tekin. —
Allir velkomnir.
Elzta Evrópiska Uppgötvanin Við Maga
sjúkdómum og gigt viðurkend með síðustu
og beztu lækna tilraunum.
Síðan 1799 hafa þúsundir manna náð eðlilegri heilsn
eftir að hafa þjáðst af allskonar magasjúkdómum svo
árum skifti, svo sem teppu, meltingarleysi, vindi, maga-
súr, sem eru upphaf að slíkum kvillum sem iblóðþrýst-
ingi, gigt, höfuðverkjaflogum, útbrotum í andliti og á
líkamanum, bakverk, lifrar-, nýrna- og blöðrumein-
semdum, roagnleysi, svefnleysi og lystarleysi. Sjúkling-
ar þessir hafa ekki notað skaðvæn efni og lyf af nokk-
urri tegund, brugguð og búin til af mannlegri fávizku,
heldur notað heilsulyf sem búin eru til af Náttúrunni.
Þessar undraverðu jurtir spretta á hæztu fjallatindum
þar sem þær draga til sín öll bætiefni og heilsugjafa frá
sólunr«i til líknar þjáðum LÝÐI.
Lyf þetta er búið til úr blöðum, blómum, berjum og
il fræi 19 jurta blandað með vísindalegum hlutföllum og
m nefnist LION CROSS HERB TEA.
LION CROSS HERB TEA er ljúffengt á bragð,
p hefir undursamlegar verkanir á líffærin og er hættu-
m laust jafnvel. bömum. Það er búið til sem hvert annað
te og drukkið eitt glas, heitt eða kalt, á dag.
Lækning upp á einn dollar, gerir FURÐUVERK;
p þér finnið yður eins og nýjan mann. Ef þér þekkið ekki
p hinar bætandi verkanir þessa náttúru lyfs LION CROSS
p HERB TEA þá reynið það tafalaust og sannfærist. Ef
p þér eruð ekki ánægðir er peningunum skilað aftur. Fæst
p einnig í plötum.
Reynið það og sannfærist, undir þessari endur-
p greiðslu ábyrgð.
p Viku lækning $1.00 ------- Sex vikna lækning $5.00
Til þess að forðast mistök á að fá hið ekta LION
CROSS HERB TEA, notið eftirfylgjandi pöntunar seðil.
Lio-Pharmacy Dept. 9868
1118 Second Ave.
N. Y. City, N. Y.
Gentlemen:
Enclosed find $.....,...... for wbich please send me
.............treatments of the famous LION CROSS
HERB TEA.
Name ............................
Address .............-...........
City..................,... State.,
Séra Jakob Jónsson las upp
í Samíbandskirkjunni s. 1. laug-
ardagskvöld fjóra kapítula úr
langri óprentaðri sögu er hann
hefir samið. Aðsókn var góð
og áheyrendur nutu góðrar
skemtunar. Sagan er, af því að
dæma sem þama var lesið af
henni, fjörlega skrifuð og sumir
kaflar hennar með ágætum. —
Að hlýða á upplestur séra
Jakobs, var nú sem fyr ó-
blandin skemtun.
* * ¥
Leiðrétting við æfiminning
í æfiminningu Jónínu sál.
Björnsdóttur, konu Guðm. Jóns-
sonar frá Húsey, sem birtist í
Heimskringlu 5. febr. síðastl.
eru tvær villur, sem komist
hafa inn í hana af vangá þess
sem hana ritaði.
1 móðurætt Jónínu hafa fall-
ið úr þrír liðir. Móður faðir
hennar var Bjöm bóndi á
Þrándarstöðum, sonur Jóns í
Snjóholti Bjömssonar, bónda í
Fögruhlíð, Ögmundssonar,
bónda á Surtsstöðum, Ög-
mundssonar Sigfússonar, prests
í Hofteigi Tómássonar.
Þá hefir láðst að geta Ingi-
bjargar systur Jónínu, sem var
í. Winnipeg, yfirsetukona, og
mörgum kunnug. Ennfremur
er sagt, að systir hennar Kat-
rín sé enn á lífi, en hún er
dáin.
Þessar leiðréttingar eru hlut-
aðeigendur beðnir að taka til
greina. G. Á.
¥ ¥ ¥
Social Credit
íslenzkur ríkisráðsfundur >
á Amalienborg
K.höfn. 1. feb.
Fyrri hluta dag í dag hélt
konungur ríkisráðsfund á Am-
alienborg, ásamt Hermanni Jón-
assyni forsætisráðherra. Undir-
skrifaði koungur lög frá síðasta
Aþingi, og voru síðan rædd mál,
er ísland varða.
í kvöld eru þeir í iboði hjá
konungi, Hermann Jónasson
forsætisráðherra og Jón Svein-
björnsson konungsritari.
¥ ¥ ¥
Jón Sveinbjörnsson
konungsritari sextugur
Berlingske Tidende flytur í
dag grein um Jón Sveinbjörns-
son konungsritara í tilefni af
því, að (hann verður sextugur
á morgun, og er þar lokið lofs-
orði á starf hans til þess, að
bæta sambúð Íslands og Dan-
merkur.—Alþbl. 2. feb.
* * *
Bókmentaviðburðir
K.höfn 6. feb.
Salka-Valka, skáldsaga Hall-
dórs Kiljan Laxness, kom út í
London í gær, í risastóru upp-
lagi, með því að enska blaðið
Evening Standard hafði kjörið
ibókina sem aðalbók febrúar-
mánaðar.
Salka-Valka kemur einnig út
á þessu ári í Ameríku, Þýzka-
landi og Svíþjóð, og samningar
eru á döfinni um hollenzka .og
tékkneska útgáfu.—Nýja Dagbl.
SALA ÍSLENZKRA
HESTA ERLENDIS
Fyrirlestur um þetta efni
verður haldinn í neðri sal Good-
templarahússins þriðjudags-
kveldið kemur 10. marz kl. 8.
Að erindinu loknu svarar ræðu-
maður spurningum frá ábeyr-
endum ef bomar verða fram.
Ennfremur verða umræður
leyfðar. — Samskot.
Forstöðunefnd.
¥ ¥ ¥
A. B. Ingimundson, tannlækn-
ir verður staddur í Riverton
Drug Store þriðjudaginn 10.
marz n. k.
¥ ¥ *
Mrs. Jakobína Helgason í
Riverton, Man., dó 24. feb. Hún
var 79 ára. Hún verður jarð-
sunginn í dag í Selkirk af séra
B. Theo. Sigurðssyni. Þrjú
börn hennar eru á lífi. Mrs. V.
Eyjólfssson Riverton og tveir
synir Joe og Harry.
* * *
Séra H. Sigmar messar næst-
komandi sunnudag (8. marz)
að Mountain, kl. 2. e. h. og
sunnudaginn 15. marz að Garð-
ar kl. 2. e. h.
¥ ¥ ¥
Samkvæmt skýrslum Brack-
en-stjóraarinnar, nam vinnu-
launaskatturinn í Manitoba á
síðast liðnu ári $1,674,800.
¥ ¥ ¥
Síðast liðinn mánudag barst
frétt frá Ottawa um, að stjóra-
arflokkurinn væri mjög skiftur
f skoðunum um það, að
greiða hveitibændum þessar sex
miljónir dollara, fyrir afganginn
af hveiti þeirra frá árinu 1930,
en sem nú mun vera selt. —
Áður hafði fregn borist út um
að stjórnin ætlaði að greiða
ibændum þetta. Nú þykir nokk-
ur vafi á, að það verði alt greitt.
¥ ¥ *
Frá fréttaritara N. Dagbl.
K.höfn í jan.
Ekki alls sfyrir löngu var til-
kynt, að gjaldeyrisnefndin
danska hefði veitt innflutnings-
leyfi fyrir 4000 hestum frá Líta-
víu. Á að flytja hingað til lands
þrjú hunidruð hesta í hverri
viku, þar til fylt hefir verið hin
ákveðna tala. Fyrsta sending-
in er nýkomin hingað til borg-
arinnar.
Með því að Danir fluttu inn í
fyrra 5300 hesta frá Lítávíu,
vaknar sú spurning, hvort
minkun þessa innflutnings geti
leitttil auking innflutnings á
hestum frá íslandi. í tilefni af
því hefi eg spurst fyrir um
þetta hjá Landbúnaðarráðinu
danska og fengið þau svör, að
eki myndi það vera neinum örð-
ugleikum bundið, að veitt yrði
gjaldeyrisleyfi fyrir kaup á ís-
lenzkum hestum, því að áhugi
væri fyrir því að auka verzlun-
arviðskiftin við ísland.
— En það er vafasamt, er
svarað hjá Landbúnaðarráðinu,
— hvort þörf sé á auknum
hestum til Danmerkur. Það er
að vísu staðreynd, að margir
smábændur á Norður-Jótlandi
vilja helzt ísenzka hest, en í
öðrum héruðum landsins telja
smálbændur íslenzku hestana
ekki nægilega stóra eða sterka
fyrir hinar þungu landbúnaðar-
vélar og þungaflutninga yfir-
leitt. Víða á Jótlandi er farið
að nota hina norsku “Nord-
bagger” og margt bendir til þess
að það fari í vöxt. Þeir kosta
að vísu töluvert meira en ís-
enzku hestarnir, en eru stærri
og sterkari og henta vel stað-
háttum á Suður-Jótlandi.
George Bemard Shaw ráð-
leggur Bandaríkjaþjóðinni að
kasta stjómarskránni í sjóinn.
Hvers sjórinn á að gjalda hjá
Shaw, væri fróðlegt að vita.
ÍSLANDS-FRÉTTIR
690 manns skráðir
atvinnulausir
Undanfarna þrjá daga hefir
staðið yfir skrásetning atvinnu-
leysingja hér í Reykjavík.
AIIs létu skrá sig 690 manns,
þar af voru 14 konur.
í fyrra voru skráðir á sama
tíma 697 atvinnuleysingjar, og
þar af voru 5 konur.
—Alþbl. 6. feb.
Þótt enn hafi ekki verið neitt
leyfi til að flytja inn eins marga
hesta frá Litavíu og í fyrra, er
ekki talið útilokað að leyfður
verði aukinn innflutningur svo
að hann verði eins mikill og síð-
astliðið ár. Það er komið undir
því, hvernig verzlunarviðskifti
þessara landa verða. Og lita-
vísku hestarnir eru h'ka stærri
og þróttmeiri en íslenzku hest-
arnir, en jafnast þó ekki á við
hina norsku.
Þess er getið, hjá Landbúnað-
arráðinu, að þeir viti ,ekki,
hvort á þessu ári hafi verið sótt
um leyfi til að flytja inn ís-
enzka hesta. En eins og nú
horfi við, sé ekki útlit fyrir, að
innflutningur þeirra aukist frá
því í fyrra.
Að síðustu segir starfsmaður
Landbúnaðarráðsins, að það sé
skoðun margra Dana, að ts-
lendingar sendi ekki beztu hesta
sína til útlanda, heldur noti þá
sjálfir. Ef íslendingar sendu
aðeins valda hesta á markað-
inn, myndu sölumöguleikarnir
eflaust glæðast.
Norðmaður ræður löndum
sínum til að kaupa
íslenzka hesta.
Samkvæmt grein, er nýlega
birtist í málgagni norsku ríkis-
stjórnarinnar, “Arbeiðsbladet”,
hafa Norðmenn aðra og betri
skoðun um íslenzku hestana en
Danir. Er greinin áskorun til
norskra smábænda um að út-
vega sér íslenzka hesta, því að
þeir séu bæði þurftarlitlir, ó-
venju þolgóðir og ágætir til
flutninga í hinu erfiða fjalllendi
Noregs.
Greinarhöfundur telur að
engir hestar eigi betur við gtað-
hætti víðsvegar um Noreg en
íslenzku hestarair. Og hann
bætir því við, að það sé rangt,
að íslenzku hestarnir séu þrótt-
minni en hinir stóru norsku
hestar. Hann getur þess,Nmáli
sínu til sönnunar, að íslenzkur
hestur, sem hanii eigi, sé betri
til dráttar en norsku hestamir
hans. Og norsku hestarnir beri
ótakmarkaða virðingu fyrir
hinum íslenzka grip, sem ber
þá alla eins og harðan fisk!
Endar greinin á því, að ís-
lenzkir hestar muni eflaust
ryðja sér til rúms í Noregi.
—Nýja Dagbl. B. S.
HITT OG ÞETTA
20 þúsund danskir ibændur
hafa nýlega auglýst árangurs-
laust eftir vinnufólki. Svo til-
finnanleg er fólkseklan í sveit-
unum þar.
¥ ¥ *
Heztzberg rektor í Oslo er
vinsæll maður með afbrigðum
meðal norska skólafólksins. —
Hann heldur því fram að nem-
endur hafi jafnaðarlega of mik-
ið að lesa heima hjá sér, og sé
þannig bægt frá útiveru og í-
þróttum.
¥ ¥ ¥
— 1 Bandaníkjunum brotna
mjólkurflöskur fyrir miljón doll-
ara á mánuði.
¥ ¥ *
Tjekkoslovakar hafa komið
upp lögregluliði í lofti, sem hef-
ir yfir 5 flugvélum að ráða.
Lögregla þessi á að hafa eft-
irlit með flugvélum sem fljúga
í leyfisleysi yfir landið.
¥ ¥ ¥
í dönsku blaði var nýlega
svohljóðandi fyrirsögn á grein
um flótta Lindberghs: “Ógnirn-
ar gagnvart Lindbergh verða
alvarlegri. Nú er tengdamóðir
hans farin á eftir honum”.
KAUPIÐ HEIMSKRINGLU
LESIÐ HEIMSKRINGLU
BORGIÐ HEIMSKRINGLU
MESSTJR og FUNDIR
i kirkju Sambandssa/naðar
Messur: — á hverjum sunnudegi
Kl. 11 f. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
Safnaðarnefndin: Punólr 1. íðstu-
deg hvers mánaðar.
Hjálparnefndin: — Fundlr fyrata
mánudagskveld 1 hverjum
mánuði.
Kvenfélagið: Fundir annan þrlðju-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldinu.
Söngæfingar: Islenzki söng-
flokkurinn á hverju fimtu-
dagskvöldi.
Enski söngflokkurinn á
hverju föstudagskvöldi.
Sunnudagaskólinn: — A hverjum
sunnudegi, kl. 12.15 e. h.
— 10
Office Phone 93 101
Res. Phone 86 828
HAROLD EGGERTSON
Insurance Counselor
NEW YORK LIFE INSURANCE
Company
Room 218 Curry Bldg.
233 Portage Ave., Winnipeg
a------------ ■ — M
Annast um aðgerðir á
Radios, set upp aerials,
einnig sel ný og gömul
Riadio.
TH. VIGFÚSSON
Sími 39 359 559 Furby St.
J. WALTER JOHANNSON
Umboðsmaður
New York Life Insurance
Company
í dvergaríkinu Andorra hefir
verið uppi fótur og fit. íbúar þar
eru 6000. Þar fóru fram kosn-
ingar nýlega. Stjórnmálaflokkar
eru þar 18.
Sagt er að þeir hafi ekki
greiniega stefnuskrá hver fyrir
sig, nema hver einstakur þeirra
er eindreginn á því, að hinir 17
séu öldungiss ófærir.
Eitt aðaldeiluefnið var við
þessar kosningar tollur á eld-
spýtum og skósvertu.
Lengsta skíðastökk á íslandi
Siglufirði 5 feb.
Skíðaferðir eru nú mikið iðk-
aðar í Siglufirði.
í gær fór fram skíðastökk og
náðu þessir menn beztum á-
rangri:
Jón Þorsteinsson, 14 ára, 40
metra, Sigurgeir Þóraraisson
40 metra og Alfred Jónsson
37 metra.
Áður hafði Björn Ólafsson 18
ára, stokkið 36 metra, en hann
hefir nú orðið fyrir því slysi að
fótbrotna við skíðastökk. Var
því um kent, að snjór í brekk-
unni fyrir neðan flugið hafi
verið stamari, en áður hafði
verið. — Ýmsisr hafa stokkið
styttri stökk en hér voru greind.
Stökk Jóns Þorsteinssonar er
mesta skíðastökk, sem kunnugt
er um hér á landi.
Garðfræ til Sáningar
Snemma að vorinu
Það er ékki hóti of snemt að sá fræi í gróðrarbeð
til plöntunar úti í garðinum strax og vorar. Lítið á
þetta úrval:
Matgarðafræ
CABBAGE—Golden Acre Early
CAULIFLOWER—Early
Snowball.
CELERY—Golden Self-
Blanching.
LEEK—Large Flag.
ONION—Ailsa Craig.
TOMATO—Early Sunrise.
EGG PLANT—Black Beauty.
Hver
Pakki
Jurtafrædeildin, þriðja gólfi, miðbúðar.
^T. EATON C2-™
Blómsturfræ
ANTIRRHINUM—Mixed.
ASTER—Mixed.
CARNATION.
LOBELIA—Dwarf Blue.
PANSY—Mixed Colors.
PORTULACA.
PETUNIA—Rose of Heaven.
PETUNIA—Mixed
STOCKS—Ten Weeks.
And many other popular
varieties.