Heimskringla - 12.08.1936, Side 7
WINNIPEGr, 12. ÁGÚST, 1936
HEIMSKRINCLA
7. SlÐA
DR. PÁLSSON
og hans
f‘LÝSING ÍSLANDS”
“Lastaranum líkar ei neitt,
Lætur hann ganga róginn;
Finni hann laufblað fölnað eitt,
Þá fordæmir hann skóginn.”
Stgr. Thorsteinsson.
J>að mun varla ofmælt, að
grein hr. S. T. Atholstan i síð-
asta Lögbergi sé af vanefnum
smíðuð. Hann reynir að halda
uppi vörn fyrir dr. Pálsson en
veit ekki hvað fyrirlestur lækn-
isins hafði að flytja né í hvaða
anda frásögnin var- Hann virð-
ist þess fullviss að dr. Pálsson
hafi lýst landi og þjóð frá tveim
hliðum, er auðvitað stafar af
því að hr. Athelstan veit ekki
betur. Hann, af ókunnugleik,
jafnar saman frásögn dr. Páls-
son og séra Alberts Kristjáns-
sonar, s^m vitanlega. nær ekiti
nokkurri átt. Að dæma af skrif-
um hr. Athelstans sjálfs þá á
hann ekki heldur samleið með
lækninum og mun hann sann-
færast um það sjálfur ef hana
fengi færi að kynna sér erindi
það er dr. Pálsson flutti um
Islandsferð í kirkju Sambands-
safnaðar í Winnipeg síðastliðinn
vetur.
Af lítilli sanngirni virðast og
ummæli hr. Athelstan, um grein
hr. Magnúsar Petersonar, vera
rituð. Það er mikið skemra
síðan eg fór frá íslandi en hr.
Peterson og er eg þó honum al-
veg samdóma. Vil eg votta hr.
Peterson þakklæti mitt fyrir
grein hans og athugasemdir við
ræðu dr. Pálssonar. Það mun
öllum augljóst að hr- Athelstau
hefir algerlega misskilið hvað
um er rætt og þarf því eigi að
eyða fleiri orðum um það.
Þar sem eg er fæddur og upp-
alinn á íslandi eru siðir, hættir
og saga íslenzku þjóðarinnar
í nútíð og fortíð mér mikið
kunnugri en dr. Pálsson, kom
mér frásögn hans kynduglega
fyrir sjónir. Nær alt það fólk
er eg þekti á íslandi er ennþá
á lífi og mun að litlu hafa skift
um hætti þessi árin. Sú ófagra
mynd, er læknirinn dró af fólk-
inu, siðum þess og háttum, get-
ur sá einn smíðað er alt færir
til verri vegar. Og það var
aðal ókostur við þjóð og land-
lýsing dr. Pálssonar, að öll frá-
sögnin bar þess glögg merki,
að hann gerði mikið úr því er
miður fór en lét lítt getið mann-
og landkosta heima. En slíkan
leik má gera fleirum en Aust-
ur - íslendingum; ósanngjarnir
og illgjarnir menn geta á slíkan
'nátt svívirt hvaða land og þjóð
er vera vill.
Það mjunu enn á lífi í þessu
landi þúsundir íslendinga fædd-
ir á Íslandi. Ótal bönd binda
oss enn við heimaþjóðina. Is-
land er ættjörð vor; í þúsund
ár ól hún forfeður vora og
mæður, við erum blóð af henn-
ar blóði, hold af hennar holdi;
hver er lastar heimaþjóðina,
hann lastar oss einnig. Enda
munu margir Vestur-íslending-
ar taka undir með skáldinu, er
kvað—
‘‘Vér heitum þann níðing,
er hæðir þín tár.” ,
og| kunna litla þökk þeim er
eigi bera drengskap til að láta
heimaþjóðina njóta sannmælis.
Hver sá, er að því stuðlar að
ala á úlfúð milli þjóðarbrot-
anna, vinnur ílt verk og óþarft.
Og því er betur, að margir
landar, beggja megin hafsins,
vilja í öllu auka samúð, virð-
ingu og bræðralag íslendinga
um allan heim og þann flokk
fylla allir mætir menn og kon-
ur. Ef slíkt á að takast þarf
til þess umburðarlyndi og sam-
úð, sem og er nauðsynlegt til
alls félagsskapar.
Það er alkunna að “líkur
sækir líkan heim.”
Sjálfur þekki eg fjölda eldri og
yngri Vestur-íslendinga, gott,
siðsamt og kurteist velviljað
fólk er hefir heimsótt Ísland og
borið landi og þjóð söguna á-
gætlega. Stingur það mjög í
stúf við sögusögn dr. Pálsson-
ar. Það eru til ónrenni, letjing-
ar og ruddar á íslandi, sem í
öðrum löndum, en flestir, er
heim hafa komið, aðrir en dr.
Pálsson, virðast hafa haft lag
Svo þú hafir betra
Sumarleyfi
K1EWEL9S
CWYixtc SeaSs
og svala þá reyndu hinn glitr-
andi ískalda Kiewel bjór. Hann
leysir úr spurningunni!
Hin kælandi áhrif eru ógleymanleg
SÍMIÐ
96361
Eftir Skjótri
Afgreiðslu
This advortisempnt iis not inserted by the Government Liquor Control Comm. Tha
Comm. is not responsible íor statements made as to quality of products advertised
Have the Business
POINT OF VIEW
t
Dominion Business College students have the advantag ;
of individual guidance in the all-important factors of
business personality, conduct, and approach.
No matter how thoroughly you know the details of
office work, you must be able to sell your services,
and this is now just as much a part of Dominion
training as Shorthand, Typewriting, Bookkeeping, or
any of the other courses in which Dominion leader-
ship has been recognized for over twenty-five years.
Business is better! Employment is increasing!
Prepare for it.
DOMINION
BUSINESS COLLEGE
On The Mall
and at Elmwood, St. James, St. John’s
á að sneiða hjá þeim og kunna
því lítt frá þeim að segja.
Um fjandskap gagnvart Am-
eríku, er dr. Pálsson kvað svo
algengan, kann eg ekkert af
að segja því eg veit ekki til að
það sé algengt heima þó að
margir væru á móti vestur-
flutningi fólks, sem eðlilegt var
hjá svo fámennri og fátækri
þjóð. Hitt var algengt, að Am-
eríka væri álitið land frelsisins
og tækifæranna, og mannjafn-
aðar og réttlætis. Ótal aðrir
en eg lásu um og unnu minn-
ingu Benjamin Franklins, Ueo.
Washingtons, Lincolns og slíkra
manna. Þessa munu menn
verða varir þann dag í dag ef
það er rætt við fólk af sann-
girni og hógværð. Þó að dr.
Pálsson viti þetta ekki þá
sannar það aðeins hve grunt j
hann hefir rist.
Til að meta og skilja hvaða
þjóð sem er, er nauðsyn að vita
og skilja sögu hennar og af-
stöðu. íslenzka þjóðin hefir
þolað á liðnum öldum—
“ís og hungur, eld og kulda,
áþján nauðir, svarta dauða—”
og sanngjarnt mat nútímaþjóð-
1 arinnar tekur þetta með í reikn-
inginn. Frú Lindbergh komst
að orði um íslenzku þjóðina á
þá leið að á íslandi “byggju
| risar er hefðu numið náttúru-
j öflin í þjónustu sína.” Og hver j
j sá, er með skilningi les sögu j
I íslands, mun aldrei efast um j
1 glæsilega framtíð þjóðarinnar
og líta hana líkum augum og
frú Lindbergh.
Það situr illa á oss Vestur-
íslendingum að lasta íslenzku
þjóðina, háttu hennar og starf.
Við höfum ekki nema fáir með
striti né viti lagt vorn skerf til
framfærslu lands né þjóðar.
j Við runnum úr leik og skildum j
I þeim eftir byrðarnar. Þó þeir
bindi bagga sína öðrum hnút-
um en við þá kemur það oss
alls ekkert við. Við höfum fyr- |
irgert öllu tilkalli til umhlutun- j
ar um íslenzk mál. Heima sáu i
menn ættingja og vini í þús-
undatali yfirgefa ættjörðina, og
það var ekki sársaukalaust.
Þeir er heima sátu héldu áfram
starfinu og það star£ hefir
blessast svo að nútíma saga ís-
lands er sönn gullöld, bezta og
glæsilegasta tímabil er þjóðin
hefir lifað. íslendingar hafa
fullan rétt að vera stoltir af
árangri' vinnu sinnar, hvaða
augum sem miljónaþjóðimar
kunna að líta viðleitni þeirra.
'Það er vonandi að sem flest-
jir landar hér vestra ferðist
heim að líta þá jörð augum “er j
j feðra hlúir beinum.” En þá er
og nauðsyn að þeir komi til að
skilja landið og þjóðina, en
eigi til að draga dár að því er
fyrir augun ber né troða ill- j
sakir við einn eða neinn.
Lengsta mannsæfi er aðeins fá-
ein ár, æfi þjóðanna ára-þús-
undir. Um ókomnar aldir mun
heimaþjóðin minnast barna
sinna er fóru vestur um haf og
hurfu sjónum meðal miljón-
anna í Vesturheimi Þar mun
um ókominn tíma geymast
nöfn okkar beztu manna þó þau
iíði úr minni stóru og sterku
þjóðarinnar er þetta land bygg-
ir um aldir alda. En á meðan
það er ekki of seint skulum við
af alhug reyna að njóta yls og
bræðralags við bræður vora og
systur á ættjörð vorri heima.
Vestur-íslendingar munu láta
sem vind um eyru þjóta róg-
burð og hallmæli ofstopamann-
anna, en biðja með skáldinu er
bafði bjartsýni og manngæzku
til að kveða á einni mestu
raunaöld íslenzku þjóðarinnar;
“ísland ögrum skorið,
eg vil nefna þig,
sem á brjóstum borið
og blessað hefir mig.
Pyrir skikkun skaparans
vertu blessuð, blessi þig
blessað nafnið hans.”
Árborg, 24. júlí 1936.
R. H. Ragnar.
Framför
Kemur aðallega til af því
að nákvæmri rannsókn hef-
ir jafnt og stöðugt verið
haldið uppi í ölgerða hús-
inu í meira en hálfa öld.
Og þér njótið í fullum
mæli þessarar 1 ö n g u
reynslu vorrar við að
brugga h i n n efnisbezta
bjór.
Kælið Yður
Þessi óþægilegi “kverka-
þurkur” hverfur eins og
fyrir töfrum jafnskjótt og
þér pantið
Shea9s
Select Beer - India Pale Ale
Stock Ale
Símið 96361 Símið
Eftir Skjótri Afgreiðslu
This advertisement is not inserted by
Government Liquor Control Oommission
The Commission is not responsible for
statements made as to quality of pro-
ducts advertised.
AÐ GEFNU TILÉFNI
Á framsíðu Lögbergs frá 30.
júlí er greinarkorn, er getur
þess, að séra K. K. Ólafsson
hafi lagt á stað heimleiðis í
býtið á kosningadagsmargun-
inn, “eftir að hafa ferðast nátt-
fari og dagfari um íslendinga-
bygðirnar við Winnipeg og
Manitobavatn, og lagt sína síð-
ustu blessun yfir þær Salome
og Ástu og Social Credit kuklið
í Manitoba.”
Þegar eg las þessa grein, og
hugsaði um það, sem felst milli
línanna, spurði eg sjálfan mig:
Ætli það væri nú ekki betra
fyrir okkur öll og blöðin okkar
líka, ef prestamir okkar eyddu
meiri tíma í að flytja frelsar-
ann yfir á milli línanna í stjóra-
málaspjöllunum, en eyddu
minni tíma í að binda hann í
bókstafinn í Guðspjöilunum.
svo liann ekki komist lengra?
Lesari góð'ur, hvers spurðir þú
sjálfan þig, er iþú hafðir lesið
þessa grein?
í Bandaríkjunum er nú fjöldi
presta að byggja heimili fyrir
frelsarann á velli stjórnmál-
anna; mér finst sjálfsagt, áð
Canada komi á eftir og hvað
það er þá vel viðeigandi, að
bandaríkjaprestur beri fánann
í þeirri fylkingu.
John S. Laxdal.
ÍÞRÓTTA-SIGURVEGARAR
á Islendingadeginum á Gimii
3. ágúst 1936
100 Vard Dash—
Ist— E. Stefanson, Lundar
2nd <3. S’lefanson, Lundar
3rd —H. Holm, Gimli
Running Broad Jump—
Ist H. Holm, Gimli
2nd Steini Eyjolfson, Geysir
3rd S. Sigfusson, Lundar
220 Yard Raee—
lst—H. Holm, Gimli
2nd—G. Stefanson, Lundar
3rd—E. Stefanson, Lundar
Running High Jump—
lst—S. Eyjolfson, Geysir
2nd—O. Olson, Gimli
3rd—S. Sigfusson, Lundar
440 Yard Race—
lst—Paul Nelson, Winnipeg
2nd—L. B. Stefansson, Winnipeg
3rd—H. Holm, Gimli
Hop, Step and Jiunp—
lst—S. Sigfusson Lundar
2nd—L. Breckman, Lundar
3rd—H. Holm, Gimii
Pole Vault—
lst—S. Eyjolfson, Geysir
2nd—J. Howardson, Gimli
3rd—S. Sigfusson, Lundar
Dr. M. B. Halldorson
401 Boyd Bldg.
Skrifstofusimi: 23 674
Stundar sérstaklega lungnasjúk-
dóma.
Er að finni á skriístofu kl. 10—1:
f. h. og 2—6 e. h.
Heimili: 46 Alloway Ave.
Talsimi: 33 158
Dr. J. Stefansson
216 MEDICAL ARTS BLDG.
Horni Kennedy og Graham
Stundar eingöngu augna-eyrna-
nef- og kverka-sjúkdóma
Er að hitta frá kl. 2.30—5.30 e. h.
Talsimi: 26 688
Heimili: 638 McMillan Ave. 42 691
Jacob F. Bjarnason
—TRANSFER—
Baggage and Furniture Moving
591 SHERBURN ST.
Phone 35 909
Annast allskonar flutninga fram
og aftur um bæinn.
Dr. K. J. AUSTMANN
Wynyard —:— Sask.
MARGARET DALMAN
TEACHER OF PIANO
854 BANNING ST.
Phone: 26 420
Dr. O. BJORNSSON
764 Victor St.
OFFICE & RESIDENCE
Phone 27 586
J. WALTER JOHANNSON
Umboðsmaður
New York Life Insurance
Company
Annast um aðgerðir á
Radios, set upp aerials,
einnig sel ný og görriul
Riadio.
TH. VIGFÚSSON
Sími 39 359 559 Furby St.
G. S. THORVALDSON
B.A., LL.B.
Lögfrœðingur
702 Confederation Life Bldg.
Talsími 97 024
W. J. LINDAL, K.C.
BJÖRN STEFÁNSSON
tSLENZKIR LOGFRÆÐINGAR
á öðru gólfi
325 Main Street
Talsimi: 97 621
Hafa einnig skrlíatofur að
Lundar og Gimli og eru þar
að hitta, fyrsta miðvlkuda* 1
hverjum mánuði.
M. HJALTASON, M.D.
ALMENNAR LÆKNINQAR
Sérgrein: Taugasjúkdómar
Lætur úti meðöl í viðlögum
ViBtalstímar kl. 2—4 e. h.
7—8 ati kveldlnu
Sími 80 857 665 Vtctor St.
Standing Broad Jump—
lst—S. Sigfusson, Lundar
2nd—E. Stefanson, Lundar
3rd—L. Johnson, Lundar
880 Yard Race—
lst—Paul Nelson, Winnipeg
2nd—L. B. Stefansson, Winnipeg
3rd—E. Valgardson, Gimli
fslenzk Glíma—
lst—öskar Thorgeirson
(Gold Medal and Hannesson Belt)
2nd—S. Eyjolfson
3rd—F. F. Jónsson
Lundar Athletic Association won
the Oddson Shield.
S. Sigfusson, Lundar, won the S.
Hanson Cup.
(Note—In the above list the prizes
' for lst, 2nd and 3rd were, respec-
tivly, Gold, Silver and Bronze
Medals).
Það má eflaust einhverra að-
gerða vænta í húsabyggingar-
máli Winnipegborgar, þó sum-
um finnist það nú orðið um
seinan á þessu ári. “National
Employment Commission” álít-
ur húsabyggingar nauðsynlegar
til að bæta úr atvinnuleysinu;
og bæjarráðið í Winnipeg er að
herða á sveitaráðsfélagi Can-
ada (Union of Canadian Mun-
icipalities) að sverfa á Sam-
bandsstjórnina að leggja fram
féð!
A. S. BARDAL
selur likkistur og annasit um útfar-
ir. Allur útbúnaður sá besti. —
Ennfremur selur hann allskon&r
minnlsvarða og legsteina.
843 SHERBROOKE ST.
Phone: 86 607 WINNIPEQ
Dr. S. J. Johannes ion
218 Sherbum Street
Tulsiml 30 877
Viðtalstími kl. 3—5 e. h.
Rovatzos Floral Shop
206 Notre Dame Ave. Phone 94 954
Fresh Cut Flowers Daily
Plants in Season
We specialize in Wedding &
Concert Bouquets & Funeral
Designa
Icelandlc spoken
THL WATCH SHOP
Thorlakson Baldwin
Diamonds and Wedding
Rings
Agents fór Bulova Watches
Marriage Licenses Issued
699 Sargent Ave.
Dr. A. V. JOHNSON
ISLENZKU R TANNLÆKNIR
212 Curry Bldg., Winnipeg
Gegnt pósthúslnu
Simi: 96 210 Heimills: 33 321
J. J. Swanson & Co. Ltd.
REALTORS
Rental, Insurance and Financial
Agents
Slmi: 94 221
800 PARIS BLDG.—Wlnnlpeg
RAGNAR H. RAGNAR
Pianisti oo kennari
Kenslustofa: 683 Beverley St.
Phone 26 555
Office Phonk Res. Phone
87 293 72 409
Dr. L. A. Sigurdson
109 MEDICAL ARTS BUILDING
Office Hours:
12 * 1
4 P.M. - 6 P.M.
AND BT APPOINTlfENT
KAUPIÐ HEIMSKRINGLU
LESIÐ HEIMSKRINGLU
BORGIÐ HEIMSKRINGLU
Gunnar Erlendsson
Pianokennari
Kenslustofa: 594 Alverstone St.
Sími 38 181