Heimskringla - 12.08.1936, Side 8
8. StÐA
HEIMSKRINGLA
WINNiIPEG, 12. ÁIGÚIST, 1936
FJÆR OG NÆR
Séra Jakob Jónsson messar
sunnudaginn, 16 ág. sem hér
segir:
Leslie kl, 2. e.h.
Wynyard kl. 7.30 að kvöldí,
Séra Eyjólfur J. Melan mess-
ar í Sambandskirkjunni í River-
ton 16. ágúst kl. 2 e. h.
Dr. Thorbergur Thorvaldson
háskólakennari frá Saskatoon
kom til bæjarins s. 1. fimtudag.
Hann kom norðan frá Riverton
og er á leið heim til sín. Aust-
ur kom hann til að flytja ræðu
á íslendingadeginum á Hnaus-
um; var Ný-íslendingum ekki
einungis ánægja að hlýða á
ræðu hans, heldur einnig að
komu þessa gamla sveitunga
þeirra, er þeir höfðu ekki fund-
ið að máli um langt skeið.
Jón Sigfússon, fyrrum kaup-
maður, lézt síðastl. miðviku-
dag að heimili sínu 1124 Dom-
inion St., Winnipeg. Líkið var
flutt til Lundar og fór jarðar-
förin fram s. 1. sunnudag. Séra
G. Árnason og séra Jclh. Frið-
riksson töluðu yfir moldu hans.
Jón var 74 ára, fæddur 1862 á
Nesi í Norðfirði. Vestur um
haf kom hann 1881 og nam
fyrstur Islendinga land í Álfta-
vatns-bygðinni árið 1887. Bjó
hann lengi stórbúi á Clark-
leigh og í grend við Lundar
Hans verður minst síðar.
IGuðjón Einarsson frá Árborg.
Man., var staddur í bænum tvo
daga fyrir helgina. Hann var
að fá sér ýmislegt til þresking-
ar-áhalda, er hann og Jón
Hornfjörð eiga og starfrækja í
Framnes- og Víðir-bygð á
hverju hausti. Uppskeru horf-
ur eru sæmilegar í þessum
bygðum þrátt fyrir þurkana.
Teitur Sigurðsson, er um
langt skeið átti heima hér í
bæ og síðar við Sturgis, Sask..
andaðist í Selkirk þriðjudaginn
4. ágúst. Hann var fæddur 18.
febr. 1854 á Litla Nesi í Múla-
sveit á Barðaströnd. Hann var
því rúmra 82 ára er hann lézt.
Hann var jarðsunginn af séra
Theodore Sigurðssyni á föstu-
daginn var.
Dóttir Teits heitins Sigurðs-
sonar, Mrs. Helga Hughes frá
Saskatoon, Sask., var stödd hér
í bæ um helgina. Hún kom
austur Ihingað fyrir nokkru síð-
an til þess að stunda föður
sinn yfir banaleguna. Hún hélt
heimleiðis í gær.
Daníel Halldórsson frá Hnaus
um kom til bæjarins s. 1. fimtu-
dag. Hann kom til að fá sér
gleraugu. Mr. Halldórsson er
nýkominn úr fiskiveri norðau
af Winnipegvatni. Veiði kvað
hann aigerlega hafa brugðist á
vertíðinni. Fiskurinn hefir til
þurðar gengið í vatninu, síðan
Brackenstjórnin tók við eftir-
litinu, vegna ,þess hvað klökin
hafa skammarlega verið van-
rækt.
Móður
eftir Jane
Mörg tilmæli
Dee
hafa oss
borist um leiðbeiningar um
móðinn, til aðstoðar fyrir
þær konur semv hvorki
hafa tíma eða tækifæri til
þess að fylgjast sjálfar með
hinum yfirstandandi breyt-
ingum sem hann tekur.
Vegna þess hefir Eaton’s
sett á stofn deild til leið-
beiningar um tízku klæðn
að, fyrir þær utanbæjar
konur, sem áhuga hafa
fyrir nýjustu tízku, og
langa til að vera vel til
fara.
Langar yður til að vita um
| nýjustu lita samböndin er
notuð verða í haust — um
fínustu dúkaefnin fyrir síð-
| degis og kveldkjóla, —, um
hinn rétta sokkalit, er fer
með hinum mismunandi
lita samböndum — nýjustu
t í z k u í iskrautgripum,
skóm, vetlingum, höttum,
handtöskum, o- fl.? Hikið
ekki við að skrifa mér og
eg ,skal með ánægju reyna
að aðstoða yður og hjálpa
til að leysa úr þessum
spurningum.
En munið að þetta snert-
ir aðeins tízku-málin en :r
ekki verzlun viðkomandi.
Eg starfa aðeins sem ráðu-
nautur viðvíkjandi tízku
dagsins og reyni í því sam-
bandi að gefa hinar rétt-
ustu leiðbeiningar sem unt.
er, gagnvart fyrirspurnum
| yðar. Ef það er eitthvað
sem þér óskið eftir að
kaupa og ekki er að finna
í vöruskránni, þá gjörið
svo vel og sendið þær pant-
anir til The Shopper.
EATONS
Þorleifur Anderson frá Mc-
Nutt, Sask., kom til bæjarins
síðastl. fimtudagsmorgun. Hann
var í viðskiftaerindum og tafði
fram á föstudagskvöld. Hveiti-
uppskeru sagði hann í meðal-
lagi í sinni bygð, þó fyrir nokkr-
um skemdum hefði orðið bæði
af hagli og þurkk Hafra og
bygg kvað hann samt með rýr-
asta móti. Hann kvað löndum
yfirleitt líða vel að því er hon-
um væri kunnugt um. Og nú
ættu allir annríkt við heyskap
og uppskeru.
Landnemavarðan
á Gimli í Nýja íslandi
Varðan—Varðan—byrgð úr storku og steini,
iStendur. víst á meðan land ei sekkur.
Frá landnemanna gjörðum vel hún greini,
Til grundvallar hún er, sem merkur hlekkur.
Og okkur löndum öllum næsta þekkur.
Og hún er stoð af starfi traustra niðja
Er stendur hljóð og föst í tírnans hafi,
Og enginn henni böls mun reyna að biðja.
Og bygðin á þann legsTein nöfnin grafi,
Og á því heldur leikur varla vafi.
Grjótið þarna hann Borgfjörð hefir barið,
Bygðin hefir lyft þar Grettis-taki.
Og eg hefi’ það við sól og höfuð svarið:
Að sæmd og göfgi yfir henni vaki.
Og það eg dreg að minna bræðra baki.
Á velli þeim, sem varðan prúða stendur:
Þar vökvi á Gimli blómin frónskar dætur.
Og við, sem ennþá höfum sterkar hendur:
Þar höggvi og rífi feysknar bjarkarætur,
Og á því verki vormenn hafi gætur.
Jón Kemested.
Mánudaginn 10. þ. m. voru
þau Thorkell Stefán Thorkel-
son frá Nes, Man., og Grace Iris
Dorothy Halldorson frá Hecla,
Man., gefin saman í hjónaband
af séra Rúnólfi Marteinssyni, að
493 Lipton St. Heimili þeirra
verður að Nes, Man.
FRÁ ÍSLANDI
'Séra Eyjólfur J. Melan frá
Riverton kom til bæjarins s. 1.
mánudag.
Hr. Valdimar Björnsson, út-
varpsstjóri frá Minneapolis,
Bjöm Björnsson, ritstj. Min-
neota Mascot, ungfrú H e 1 g a
Björnsson bókavörður, og móðir
þeirra, Mrs. G. Bjömsson frá
Minneapolis, héldu heimleiðis á
þriðjudags morguninn, e f t i r
viku dvöl hér í bæ meðal ætting-
ja og vina.
Séra K. K. Ólafsson kóm til
bæjarins í gærmorgun vestan
frá hafi. Hann dvelur hér tvo
eða þrjá daga.
Iðnaðar- og búnaðarsýning
stóð yfir síðastliðna viku í Win-
nipeg. Er sagt að hún hafi
verið allvel sótt og þótt tölu-
vert tilkomumikil.
Mr. og Mrs. Dr. S. E. Bjö.ms-
son frá Árborg, Man., voru
stödd í bænum yfir helgina.
Dr. A. B. Ingimundsson verð-
ur staiddur í Riverton Drug
iStore þriðjudaginn 18 ág.
Mr. og M r s. Gunnlaugur
Jóhannsson komu um siðustu
helgi heim úr ferð sinni vestur
á Kyrrahafs—strönd.
heim
hafði
gær-
LeiSrétting
Misritast hefir í erindinu fyrir
“Minni Canada” goðaheitð
Njörður,—áaðvera Heimdallur.
Mr. og Mrs. Guðm. Stefáns-
son, 698 Simcoe St., Winnipeg,
fóru út til Lundar um síðustu
helgi til að vera við jarðarför
Jóns Silgfússonar, er þar )fór
fram síðastl. sunnudag. Jarðar-
förin var ein meðal hinna fjöl-
mennari í bygðinni, enda áttu
bygðarbúar á bak að sjá einum
mætasta sambygðarmanni sín-
um.
Laugardaginn 8. ágúst voru
þau Adolf Freeman frá Siglunes,
Man., og Elizabeth Margaret
Sveistrup frá Vogar, Man., gef-
in saman í hjónaband af séra
Rúnólfi Marteinssyni, að ,'493
Lipton St. Heimili þeirra verð-
ur að Siglunes.
Ragnar H. Ragnar, pianóken-
nari, kom vestan úr Vatna
bygðum í gær. Hann fór þangað
með séra Egil Fáfnis fra Glen-
boro. Hann kvað uppskeruhor-
fur góðar þar sem hann fór um-
Islendinga—bygðirnar.
Þriðjudaginn 4. ágúst voru
þau Fernando Joseph Anthony
Fortier og Ingibjörg Jónasson,
bæði til heimilis í Winnipeg,
gefin saman í hjónaband af séra
Rúnólfi Marteinssyni, að 493
Lipton St. Heimili þeirra verð-
ur í Winnipeg.
Mr. og Mrs. Hjálmar Björns-
son frá Minneapolis, er dvalið
hafa hér í kynnisferð síðan efth
íslendingadag héldu heimleiðis
á laugardaginn var.
Mr. og Mrs. Fred Thordar-
son bankastjóri og Mr. og Mrs.
J. C. Pridham og dóttir þeirra
Ardoth, komu fyrir skömmu til
baka úr þriggja vikna bílferð
vestur á Kyrrahafsströnd. Þau
heimsóttu Seattle og Vancouv-
er. Leiðin lá um Glacier Nat-
ional Park, Montana, eftir Log-
an Pass þjóðveginum. Er þar
eitt hið undrasamlegasta út-
sýni og vegurinn um fjöll-
in skemtilegur. Á ströndinni
var dvalið 9 daga við óviðjjafn-
legar móttökur. Til baka H
leiðin um Winatchee og Spok-
ane til British Columbia, um
Cranbrook, Kootenay National
Park og til Lake Louise. Þaðan
var farið til Banff og dálítið
staðið þar við; og síðan til Cal-
gary. Næsta dag var haldið til
Edmonton og' daginn eftir til
Prince Albert, en þar var dval-
ið um kyrt yfir helgi og Prince
Albert National Park skoðað,
sem er undra fagur garður. Frá
Prince Albert var farið til Swan
River og dvalið í tvo daga í
fögnuði og unaði hjá vinum og
kunningjum, sem í Prince Al-
bert, Seattle og Vancouver. Á
leiðinni til Winnipeg, var nokkr-
ar klukkustundir staðið við í
Clear Lake í Manitoba. Margir
fagrir staðir höfðu verið iheim-
sóttir á leiðinni, en sá var dóm-
ur ferðafólksins, að enginn
hefði borið af Riding Mountain
National Park þessa fylkis; hef-
ir þar verið feiknin öll unnin
til að prýða og fegra síðari ár-
in. Veður var hið ákjósanleg-
asta allan tímann. Og það á-
samt ástúðlegum móttökum
skyldmenna og vinafundum,
gera ferð þessa ógleymanlega
þeim, sem hana tókust á hend-
ur.
Dr. Helgi Tómasson hélt fyrir-
lestur á aðialfundi geðve-ikis-
lækna á Englandi
Dr. Helgi Tómasson fór utan
með Gullfossi um daginn til
þess að sitja aðalfund geðveik-
islækna í Englandi. Hafði félag
þessara lækna boðið honum á
fundinn til þess að hann flytti
þar fyrirlestur um rannsóknir
hans á geðveikislækningum og
reynslu hans í því efni.
Dr. Helgi kom aftur
með Gullfossi í júlí og
blaðið tal af honum í
kveldi.
Aðalfundur geðveikralækn-
anna, segir dr. Helgi, var hald-
inn í Folkstone í Suður-Eng-
landi dagana 1.—4. júlí. Þar
voru um 150 læknar saman
i
komnir.
Mér var tekið þar tveim hönd-
um. Og fyrirlestur minn vakti
athygli læknanna.
Um hvað fjallaði fyrirlestur-
inn?
Það yrði of langt mál og
flókið að fara mikið út í þá
S'álma. En aðalatriðið í stuttu
máli er þetta, að blóðsölt sumra
geðveikra manna breytast. En
með |því að hafa áhrif á sam-
setningu blóðsins, svo það
breytist aftur í heilbrigt horf
virðist sem hægt sé að flýta fyr-
ir bata þessara sjúklinga.
Er langt síðan þér byrjuðu
rannsóknir þessar?
Doktorsritgerð mín er samin
um þetta efni. En síðan hefi e
haldið rannsóknunum áfram,
eftir því, sem eg hefi haft tök
á. Hefi eg skrifað um þessar
framhaldsrannsóknir mínar
læknarit. En vegna þessara
ritgerða fékk eg tilmæli um að
koma á læknafund þennan.
Og rannsóknir yðar halda á-
fram?
Já, vissulega. Eg fékk líka
í þessari ferð 11 þús. kr. styrk
frá Rockefellersstofnuninni til
þess að kaupa rannsóknaráhöld,
er munu gera mér rannsóknir
mínar auðveldari en áður.
Jafnframt fékk eg tilboð um
það frá Rockefellersstofnuninni
að hún kostaði sérnám eins eða
hveggja lækna til j>ess að þeir
gætu síðar aðstoðað mig við
rannsókniriþessar,—Mbl. 12. júl.
ÖRLAGAÞRÁÐURINN
(Frumsamin saga)
Eftir Friðrik Guðmundsson
Framh.
Gamli Jón var þegar búinn að
klæða sig og sagðist fara að
finna þá og sjá ef eitthvað væTi
hægt að hjálpa þeim. Meðan
hann tók sér bita, ítrekaði Halla
það hvað eftir annað, að hann
skildi fara varlega, því líklegt
væri að lengi eftir á væru stein-
ar að losna og hrapa.
Eftir stundarkom var Jón
kominn að Brekku og sá þá
að Þorsteinn og vinnumenn
hans tveir, voru byrjaðir að
grafa ofaní skriðuna efst á tún-
inu, og gekk hann því rakleiðis
þangað. Það sá hann þegar að
Þorst. var fullur af úlfúð, og
gerði hann ráð fyrir að honum
þætti skaðinn sár. En Þorsteinn
leit valdalegur til hans, og sagð-
ist halda að það væri ekki hans
meðfæri, að vinna á þessari
skriðu, hann hafði hugsað að
Einar mundi að minsta kosti
koma með honum-
Hefir þú ekki fyrirboðið hon-
um að koma að Brekku, sagði
þá Jón. Eg er hinsvegar ekki
farin að heimta neitt kaup, og
ætla sjálfur að ráða því hvað
mikið eg legg á mig.
Með því sem það sá ofan á
mykjuhaug sem hafði verið
hlaðinn upp fram af fjósdyr-
unum, þá gat Jón gert sér nokk-
urnveginn skýra hugmynd um
hvar fjósið hafði staðið, og þá
líka betur skilið hvferhig afl
skriðunnar hafði runnið á það,
og fyrir þessa yfirvegun, var
það alt annar staður á skrið-
unni til að leita á. Sjálfur átti
hann rekuna sem hann hugðist
að grafa upp með-
Þorsteinn sem var spölkorn
frá, þar sem Jón hóf sína leit,
rausaði mikið um það, að sér
væri ekkert gagn unnið með
slíku flónsæði, en Jón lét sig
það engu skifta. Hann hafði
hinsvegar ekki lengi grafið,
þegar hann kom ofan á eina
kúna, og var hún dauð. Hann
var hinsvegar búinn að grafa
sig niður upp að höndum út til
hliðar á aðra síðu, þegax hann
rakst á kýrfót, og var strax
auðséð að hún gat ekki verið
lifandi.
Þorsteinn og vinnumenn hans
voru allir hættir að grafa, og
stóðu undrandi yfir gryfju Jóns,
eins og sannfærðir um að þýð-
ingarlaust væri að leita annar-
staðar, jafnvel hræddir um, aö
hér væru einhver brögð í tafli.
Lá þá og næst að hugsa sér að
skriðan hefði máske losnað af
mannavöldum.
Þorsteinn mintist stöðu sinn-
ar í mannfélaginu, og spurði þá
valdalegur, hver hefði vísaö
honum á að leita hér á ólíkleg-
asta stað?
iSkilningur minn, svaraði Jón,
eða getur ekki hreppstjórinn
skilið það, að svona þung
skriða, muni ýta frá sér áfram,
áður en hún legst ofaná? Og
af því hann hafði til að vera
stríðinjn, þó bætti hann við,
hvert hann í raun og veru héldi
að torfveggir kæmu fagnandi á
móti skriðunni, eins og hans til-
raunastöð benti á. En þá kall-
aði Siggi upp að þarna kæmi
heilmikið af lausu grjóti hrynj-
andi niður fjallið. Óðar hlupu
þeir allir af stað út af skriðunni.
Nú reið á að vera snarráður, þó
steinarnir færu ekki eins og
byssuskot. Hann sá að það var
óvit, að standa niðri í gryfjunni,
og flýtti sér því sem mest hann
mátti upp á gryfjubakkann, en
þar var hann staddur á fjórum
fótum, þegar lítill steinn hitti
hann á síðuna hægramegin, —
hann fann undur sárt til, og
hneig afllaus niður.
Piltarnir sáu hvað fram fór,
og voru strax komnir til hans,
og vildu bera hann út á grasið,
en hann gat með hvíldum talað,
og bað þá að láta sig kyrran
fyrst um sinn, hann átti svo
bágt með að ná andanum. eftir
litla stund gat hann sjálfur
gengið út af skriðunni, og með
því að þeir studdu hann- Allir
þyngri steinarnir höfðu sokkið
í skriðuna, nokkru ofar, en þeir
léttari flotið fram á skriðu-
sporðinn, og þó orðnir kastlitlir
til allrar lukku. Jón lá upphvít-
ur í grasinu, en Þorsteinn sendi
Sigga þegar af stað eftir lækn-
inum. Konurnar voru komnar
til Jóns, með hjúkrandi nær-
gætnar hendur, og það annað er
hann gat af þeim þegið. Hann
bað þær að láta Sigga tala við
sig áður en hann færi. En það
vildi hann af Sigga að hann
segði Einari fyrst frá óhappi
þessu, en hann væri við slátt í
stóra hvamminum og því lítill
krókur að finna hann. Eftir
klukkustundar hvíld, vildi Jón
fara að halda heim. Hann
sagðist lekki þola að sitja á
hestbaki ,og yrði hann því að
ganga í hægðum sínum, og með
hvíldum. Konurnar vildu að
hann væri kyjr hjá þeim, þang-
að til læknirinn væri búinn að
skoða hann, en við það vár ekki
komandi.
iSiggi fann Einar, iog sagði
honum sem komið var, en Ein-
ar fékk honum orfið sitt, og bað
hann að duga sér vel við slátt-
inn, meðan hann næði læknin-
um. Þeir Einar og Jón læknir,,
höfðu þegar í félagi kostað og
látið búa til, sterkann kaðal-
stiga á bergið í klaufarbotnin-
um, undir Gerðisöxlinni. Stig-
inn var hringaður upp á berg-
brúnina, í hvert skifti eftir að
hann var notaður, og þá krækt-
ur af tveimur öflugum íjám-
krókum, sem ’festu |hann við
bjargið, síðan var hann geymd-
ur innan við lás, í litlu grjót-
byrgi, með vatnsheldu þaki, sem
Einar bygði til þess að verja
hann fyrir láhrifum votviðra og
fúa, og til þess að engum skildi
í leyfisleysi standa hætta. af
honum, og skildi Einar ávalt
geyma lykilinn. I þetta skifti
fór því Einar yfir fjallið, og var
eftir lítinn tíma kominn aftur
með læknirinn, en það stóðst
á, að Jón var þá kominn heim
undir, svo þeir Einar og læknir-
inn gengu á móti honum og
studdu hann eftir það heimleið-
is. Við rannsókn læknisins,
kom það í Ijós að brotin voru
nokkur rif í hægri síðu Jóns,
eins og steinninn hafði náð út
yfir, en það áleit læknirinn, að
hann væri ekki ihættulega
meiddur innvortis, aðeins að
hann leyfði sér langa og góða
hvíld.
Það lág vel á Sigga þegar
hann kom heim að Brekku um
kvöldið. Þorsteinn hélt að
hann hefði verið að sækja lækn-
irinn og fylgja honum aftur
heim, þó lét hann í ljósi undrun
sína yfir því, að það sæi ekkert
á hestunum, eins og þeir hefðu
baðað sig í sólskininu allan
daginn, en hann átti von á að
þeir væru allir storknir af svita.
Siggi þorði ekkert að segja
honum, en þá kom Ingibjörg út
á hlaðið, og spurði strax, hvern-
ig Jóni liði, en Siggi sagði að
það væru brotin mörg rif í síð-
unni hans, og hann yrði að
liggja í marga daga rúmfastur-
Hann sagði að læknirinn yrði á
Gerði í nótt, til þess á morgun
að rannsaka á ný, hvert Jón
væri nokkuð hættulega kostað-
ur innvortis.
Hvað hefirðu þá verið að gera,
því komstu þá ekki fyr heim,
sagði Þorsteinn.
Hann hefir ekkert vitað um
það fyr en hann lagði af stað
heim, hvað læknirinn ættlaði
fyrir sér, sagði þá Ingibjörg.
Það mátti auðveldlega sjá hann
varð þessari nærgætni Ingi-
bjargar feginn, því óvart hafði
hann flækt sig í fréttanetinu.—
Þorsteinn leiddi hestana f hag-
ann, og notaði Siggi þá tímann
til að segja Ingibjörgu allar
fréttirnar sem hann bjó yfir,
því hann vissi að hún gerði goct
úr öllu, og ráðlegði sér alt heilt,
vissi líka að þær voru svo mikl-
ar vinkonur Hallbera og Ingi-
björg, að alt var sameiginlegt
með þeim. Hann sagðist hafa
séð að þau væru trúlofuð Jón
læknir og ína á Gerði. Þau færu
ekkert dult með það, þau hefðu
leiðst upp í Gerðið, verið þar
lengi, og leiðst aftur heim. Þeir
Jón læknir og Einar í Gerði,
voru í samlögum búnir að se.tja
stiga á klaufarbjargið, sem eng-
inn fær að nota nema með
þeirra leyfi, og í dag sótti Einar
læknirinn yfir fjallið, og var
ekki nema litla stund að ná
honum.
Framh.