Heimskringla - 24.02.1937, Blaðsíða 1

Heimskringla - 24.02.1937, Blaðsíða 1
LI. ÁRIGANGUR WINNIPBG, MIÐVIKUDAGINN.24. FEBRÚAR 1937 NÚMER 21. ÁRSÞING ÞJOÐRÆKNISFÉLAGSINS MÖRGUM SINNUM FJÖLMENNARA EN NOKKRU SINNI FYR Ársþing Þjóðræknisfélagsins hófst s. 1. mánudag og stendur enn yfir. Það skulu því stuttar fréttir af því hér sagðar, en góð- ar. Fjölmenni var við þingsetn- inguna að morgni mánudags. þrátt fyrir frostbyl og því sem næst ófært veður. Það var myndarlegur íslenzkur bylur. En engum var það farartálmi, er við þingsetninguna hafði hugsað sér að vera. Þing-gestir voru ekki aðeins úr þessum bæ við- staddir, heldur víðsvegar að: frá Gimli, Rivelton, Árborg, Lund- ar, Selkirk, Leslie, Wynyard, Brown, Garðar, Mountain Grand Forks, Minneapolis, Glen- boro og eg veit ekki hvað mörg- um fleiri bæjum og bygðum. Ávarp forseta, dr. Rögnvaldar Péturssonar var flutt um leið og þingið var sett og er það birt á ritstjórnarsíðu þessa númers af Hkr. Að kvöldi fyrsta þingdagsins, var samkoma, er unga fólkið stjórnaði eða sá að mestu leyti um. Voru þar fluttar tvær ræð- ur; flutti ungfrú Margrét A. Björnsson aðra þeirra, en Hjalti B. Thorfinnsson hina. Það var að sjá, sem íslendingar hefðu búist þarna við skemtun, því Góðtemplarahúsið, sem nú hafði sæti fyrir 700 manns, var svo fult, að nokkrir urðu frá að hverfa. Og þess væri ranglátt að geta ekki, að áheyrendur urðu ekki fyrir vonbrigðum. Á ræð- urnar, sem annað er fór fram, var mikil skemtun að hlýða. En samt er eins viðburðar þetta kvöld, sem auk ræðanna er vert að geta. Og hann er sá, að unga fólkið sló á fundi í samkomulok, og reið Edvin Olson á vaðið með að hreyfa því máli, að unga fólk- ið yrði að fara sinna starfi Þjóð- ræknisfélagsins. Þjóðræknisfé- lagið kvað hann hafa lagt svo góðan grundvöll að starfi, sem sjálfsagt væri að afkomendur ís- lendinga hér héldu áfram. Og þeirri þátttöku mætti ekki leng- ur fresta. Hinir eldri væru að hverfa af sjónarsviðinu og hinir yngri yrðu að fara að taka upp merkið, með þeim. Fékk mál þetta hinn bezta byr og þar kom að lokum, að nefnd var skipuð í málið, til að leggja fram tillög- ur helzt á þessu þingi um á hvern hátt Seskan æskti sam- vinnu við Þjóðræknisfélagið. í nefndina voru þessir kosnir: B. Edvin Olson, B.Sc., Dr. Lárus Sigurðsson, ungfrú Margrét A. Björnsson, M.A., Tryggvi Ole- son, M.A., og Walter J. Jóhanns-. son. Hér virðist um þann vorboða að ræða í starfi Þjóðræknisfé- lagsins, er allir sannir fslending- ar og þjóðræknisvinir munu fagna og vænta mikils góðs af. f . þennan hálfan annan dag sem þingið hefir staðið yfir hef- ir það verið vel sótt og áhugi virðist áþreifanlegri en nokkru sinni fyr hjá fjöldanum fyrir þ jóðræknismálum. Við ofanskráða frétt, er nú því að bæta, að íslendingamót Fróns, var haldið að kvöldi ann- ars þingdagsins; er það mjög skýlaust hið lang-fjölmennasta Frónsmót, sem hér hefir nokkru sinni verið haldið. Hátt á sjö- unda hundrað manna var þar viðstatt. — Samkoman hófst með því, að karlakór og fólk- ið söng “0, Canada”, en því- næst hélt forseti deildarinnar, Ragnar H. Ragnar örvandi þjóð- ræknis tölu. Hópur barna, sem hann hafði æft, söng þarnæst nokkur ís- lenzk kvæði, í sumum söng ung- ur sveinn fyrir, rösklega og roskinmannlega, en hópurinn söng svo fjörlega, að allir dáðust að. Eftir það var upphleyptri mynd af íslandi skotið upp á borð, — þá mynd hafði Soffanías Thorkelsson fengið frá vinum sínum á íslandi, dvergasmíði 20 fjórðungar á þyngd. Svo steig dr. R. Pétursson upp á borðið, og þó hann sé ekki léttur, þá sakaði ekki. Dr. Rögnvaldur fór með bygðum kringum land og sýndi okkur ýmsa staði og sagði af mönnum að fornu og nýju, byrjaði í Reykjavík, kom við á Kollafirði þar sem skip eru geymd, á Hvalfirði, þar sem séra Hallgrímur gerði Saurbæ fræg- an, í Borgaffirði, þar sem til forna bjuggu frægir fjárafla- menn og óskaði að slíkir gæfust nú á dögum til fjárheimtu fyrir Þjóðræknisfélagið (þess núver- andi féhirðir, Árni Eggertson segist vera kominn í beinan karl- legg af Skallagrími). Þaðan brá doktorinn-sér á Snæfellsnes, fór hjá Stað á ölduhrygg og nam staðar á Stapa, þar sem Stein- grímur fæddist, son Bjarna hins gamla, sá sem sagði sögurnar af Þúsund nóttum og einni á ís- lenzku, með svo sterkum og i þekkum keim síns heimalands, að svo mætti virðast sem gerst hefðu á íslandi. Þaðan um Stykkishólm og Hvammsfjörð með hæl og tá eins og stóreflis stígvél, að Hóli í Saurbæ, að kynna okkur bóndann sem þar bjó einu sinni og þetta kvað: Skipið er nýtt en skerið er hró skal því undan láta. Þá var sá frægi brúðgumi á siglingu á Breiðafirði, en þar eru eyjarnar eins margar og stjÖrn- unar í vetrarbrautinni, stórum gagnsmeiri samt, eftir því sem hérverandi gömlum Breiðfirð- ingum segist frá; í einni þeirra lifði skagfirzkur bóndi sín elliár og ritaði sögur af mönnum og héruðum, þá voru drjúgum fræðimenn í Flatey og héldu út tímaritinu Gesti Vestfirðing. — Síðan var svifið fyrir Látra- bjarg, Patreksfjörð, inn eftir Arnarfirði og staðið við á Rafns- eyri. Þar fæddist Jón forseti Sigurðsson. Inn á Skutulsfjörð eru snúningarnir svo margir, að ferðamenn verða venjulega átta- viltir, finst kaupstaðurinn vera fyrir norðan skipalægið, en hann er sunnan megin við hana. En í norður þaðan er Aðalvík, gam- alt galdramanna setur, þaðan er skamt til Drangajökuls, norðan undir honum eru Drangar á Ströndum, þar sem líklegt þykir að Leifur Eiríksson hafi komið í heiminn. Af Ströndum reri Skaga Pálmi einn á báti, yfir Húnaflóa og enginn annar fyr né síðar svo menn viti. Sá sjógarp- ur fór til þessa lands'og drukn- aði í Rauðárósum á leið til Nýja íslands. Nú var litið á Hrúta- fjörð og Miðfjörð, Hóp í Húna- þingi, farið í loftinu yfir Blöndu, að Höfnum á Skaga, stiklað yfir Skagafjörð á Drangey og Þórð- arhöfða, komið við í Dalvík, á Akureyri, í Laufási og í Húsavík ‘hjarta Þingeyjarsýslu”. — Við sáum inn á Axarfjörð opinn og Þistilfjörð og Vopnafjörð, en tíminn var svo naumur, að ekki mátti tefja, komum hvergi við á Austfjörðum, sáum yfir sandana sunnanlands til Vestmanneyja og þaðan til Landeyja, upp til jökla og reginfjalla og þá vaf þessari skemtilegu íslandsferð lokið. Einar P. Jónsson flutti frum- ort kvæði snjöllum rómi. Mrs. Olson söng einsöngva en Miss Snjólaug Sigurðsson spilaði und- ir. Gunnar B. Björnsson las langt erindi og snjalt. Honum þótti sá vani mikill, að lofa hið umliðna og halda framliðinna afrek svo stór, að alt væri lítið í samanburði við þau, sem gert væri nú á dögum og að lokum furðaði hann hvort óveruskap- urinn kæmist svo langt, að nú- lifandi menn gæfu frá sér alla viðburði til að sjá fyrir sér sjálf- ir, alt framtak og fælu ráð sitt einvalda höfðingjum. Hann hélt á loft fögrum dæmum Emersons og fslendinga, að láta aldrei hug- fallast, hinir síðarnefndu hefðu það eðlisfar að seiglast og sækja á brattann, jafnvel þó náttúran gengi hamförum, hvað þá þó vanda setti að þeim af manna völdum, og fór um það mörgum fögrum orðum. Lúðvík Kristjánsson fór með spaugilegan brag um brosleg og fáheyrð fyrirbrigði viðkomandi þeirri nýlega afstöðnu eldsupp- komu í Gúttó, sem taldist stafa af augnaköstum, en með því að aldrei brynnu vínskálamir, þá væri einsætt fyrir bræðurnar og systurnar, að væta sig til að taka fyrir eldsvoða eftirleiðis. öllum þessum var klappað lof í lófa. Nú er vantalin sú skemt- un, sem meir bar á í þetta sinn en á fyrirfarandi mótum, en það var söngurinn. Deildarinnar for- maður hafði æft söngflokk barna og kent þeim íslenzka söngva svo vel að allir undruðust, ennfrem- ur fengið flesta hina beztu söng- menn sem völ var á til að syngja nokkrum sinnum, og það þótti á- gæt skemtun. Söngnum stjórn- aði hann sjálfur. Dátt var í efri sal Gúttó þetta kveld, ekki sízt eftir að dansinn byrjaði, en í kjallara þess endur- reista stórhýsis var það krafta- verk gert, að gefa þeim saman- safnaða mannf jölda mat og kaffi — meir en einn skamt öllum sem vildu, þar á ofan — með því launaði kvenfólkið vissulega sögu Gunnars Björnssonar, að enn væru þrekvirki unnin ekki síður en í gamla daga. Að Iokinni þessari ágætu skemtiskrá Fróns, þakkaði for- seti, R. H. Ragnar áheyrendum fyrir komuna. En einum manni, sem segja má þó óhikað um, að sé mikið að þakka hve skemtileg samkoman var og sem á sig lagði meira starf í sambaúdi við hana en nokkur annar, honum var ekki fyrir neitt þakkað. En það var forseti samkomunnar. — Hann æfði tvo söngkóra til að koma þarna fram auk alls annars starfs við undirbúninginn. Og hann var hrókur alls fagnaðar alla samkomuna út. Honum bera beztu þakkir allra, er þarna nutu hinnar eftirminnilegustu skemtunar. SIR R. P. ROBLIN, DÁINN Á þriðjudagskvöldið, 16. febr. lézt að Hot Springs í Arkansas, Sir Rodmond Palen Roblin, K.C.M.G., fyrrum forsætisráð- herra Manitobafylkis. Sir Rodmond var 84 ára. Hann var fæddur í Prince Edward county í Ontario, en flutti til Manitoba 1880. í Manitoba-fylki var hann forsætisráðherra í 15 ár eða frá 1900 til ársins 1915. í þétta skifti gefst ekki tækifæri að skrifa um Sir Rodmond eins og vert er, því hann er einn sá mesti maður og bezti stjórnari, sem þetta fylki hefir átt, svo það verður að bíða næsta blaðs. Síð- an að hann lagði stjórnmálin á hilluna, hefir hann stjórnað Con- solidated Motors félaginu í þess- um bæ, en fór síðari árin til Bandaríkjanna yfir vetrarmán- uðina. Hann hafði lengi kent hjartabilunar og mun sú veiki að síðustu hafa leitt til bana. Thorson mótmælir f járveitingu King- stjórnarinnar til hermála Herstefna Kingsstjórnarinnar mælist alt annað en vel fyrir. Á því e’r nú lítill vafi. Þingmönn- um stjórnarinnar sem öðrum, hafa borist allmörg bréf úr kjör- dæmum sínum, er hreint og beint mótmæla, að fé það sem gert er ráð fyrir til hervarna, sé veitt. Á Sambandsþinginu hafa komið mótmæli fram frá stjómarand- stæðingum. En þau mega sín svo lítils, vegna þess hve stjórn- arflokkurinn er fjölmennur; en að hann mómælti því, sem stjórnin vill vera láta, er svo fá- títt, að það mun lengi mega leita í annálann til þess að finna þess nokkur dæmi. En út frá þessu hefir nú samt sem áður brugðið, samkvæmt sí^ustu fréttum frá Ottawa. — Eins og kunnugt er, á einn ís- lendingur sæti á Sambandsþing- inu. Er það Joseph Thorson. — Hann er liberal, og hefir í þing- salnum verið skipaður sess ör- skamt frá sjálfum hermálaráð- gjafanum, Hon. Ian McKenzie. Síðast liðna viku kyaddi Mr. Thorson sér hljóðs og flutti eina kröftugustu ræðuna, sem enn hefir verið flutt á móti'herstefnu Kings. Hann kvaðst ekki van- treysta stjórninni í öðrum mál- um, en í þessu hervarnarmáli, yrði hann að gera grein fyrir skoðun sinni og hún ætlaðist hann til að skoðuð yrði “viðvör- unar andmæli”. Það sem Mr. Thorson fyrst mintist á var, að hann óttaðist, að stefna stjórnarinnar leiddi til stríðs, án þess að það væri til- gangur hennar. Þessa stundina virðist meðvitund þjóðarinnar vakin um nauðsyn hervaj-na; innan eins eða tveggja ára, gæti þjóðarvitundin verið vöknuð til þarfarinnar á stríði. Áður en þjóðin samþykti þá stefnu, sem til stríðs gæti leitt, áleit Mr. Thorson nauðsynlegt, að þingið gerði sér grein fyrir hvað síðasta stríð hefði kostað. En fram að síðast liðnu ári, hefði sá kostnaður beinlínis numið, svo sem í herútbúnaði, vöxtum á lánum, eftirlaunum og jarða- kaupum til hermanna o. s. frv. $4,357,000,000 (nærri hálfri fimtu biljón dollara). Þetta var hinn beini kostnaður stríðsins. f honum eru ekki talin líf 60,000 ungra manna, eða þjáningar her- manna og harmur skyldmenna þeirra. Og fyrir síðasta stríð er ekki enn fullgoldið, samkvæmt um- mælum Mr. Thorsons, þrátt fyrir það þó Canada hafi nú í 22 ár, greitt um $200,000,000 (tvö hundruð miljónir) á ári, upp í þá skuld. Á þessu yfirstandandi ári, eru $155,000,000 lagðir til síðu af tekjum stjórnarinnar til greiðslu stríðsskuldarinnar. Ef þessari fjárhæð væri hægt að verja til þeirra málefna, sem að því lúta, að bséta hag atvinnu- lausra og veita þeim tækifæri til sjálfsbjargar, ekki sízt ungum mönnum, stæðum við betur að vígi en við nú gerum. “Hver var þörfin á þessari auknu hervörn?” spurði Mr. Thorson. Hann gat ekki trúað eða tekið alvarlega þá ástæðu. að hún væri til þess, að bæla nið- ur innanlands óróa. Ef á óeirðum bæri, væri leiðin til að koma í veg fyrir þær, að uppræta ástæðuna fyrir þeim, en ekki að bæla þær niður með valdi. “Er hugmyndin að vernda verzlunarleiðir vorar?” spurði ræðumaður. “Má eg minna^ing- ið á það, að Canada á viðskifti, við 99 þjóðir. Gerir stjórnin ráð fyrir að vernda allar þessar leið- ir, eða nokkrar af þeim. ,Og ef svo er, hverjar?” “Eg neita því ekki,” hélt þing- maðurinn áfram, “að hagur Can- ada er mikið kominn undir utan- ríkisviðskiftunum. En að efla svo sjóherinn, að hægt væri að vernda sjóleið allra skipa vorra, kostaði meira, en nemur hagnað - inum af viðskiftunum”. Hann skýrði frá, að 53% af útfluttum vörum frá Canada, færu til landa utan Bretaveldis. Canada ræki verzlun við allan heiminn; viðskiftin væru alþjóð- leg. Ef herútbúnaðurinn er gerður til þess að verjast árásum ein- hverrar þjóðar, væri fóðlegt að vita hver sú þjóð væri. “Eru það Japanir eða Þjóðverjar?” spurði Mr. Thorson. Ef stjórnin hefði í huga að víggirða Kyrrahafs- ströndina eða St. Lawrence, ætti þjóðin heimtingu á að fá að vita um þá ráðagerð. “Canada”, sagði Mr. Thorson, “ætti að færa sér í nyt legu landsins á hnettinum. Árás á Candada væri óhugsandi án þess að Bandaríkin kæmu til sögunn- ar”. Mr. Thorson kvað árás aðeins mögulega úr einni átt, frá Bandaríkjunum. Og viðnám Canada entist ekki stundu leng- ur, ef um slíkt væri að ræða. En sem betur færi, þyrfti ekki nein ráð fyirr því að gera. En fyrir það væri heldur engin þörf á sjálfsvörn hér. En Mr. Thorson var hræddur um, að. hér væri um eitthvað meira en sjálfsvörn að ræða, með hinni nýju herstefnu. Hann von- a^i að ótti sinn væri ástæðulaus. En hann skoðaði það skyldu sína, að fara ekki í felur með það, sem honum byggi í brjósti um það. “Erum við á nokkurn hátt skuldbundnir öðrum þjóðum til að hervæðast? Ef saga Þjóða- bandalagsnis hefði verið önnur síðari árin, en rauij er á, hefði eg líklega ekki spurt þessarar spurningar. En allar stærri þjóðirnar hafa brugðist Þjóða- bandalaginu”, sagði Mr. Thor- son. “Eg hefði ekki verið svona í horn að taka, út af þessu frum- varpi, ef það hefði verið hluti af ■alheims samtökum til verndar friði. En því er nú ekki að heilsa. Canada yeit ósköp vel, eða ætti að vita, að það er ekki hennar meðfæri, að taka að sér alheims lögreglueftirlit. “Stórþjóðirnar hafa brugðist smáþjóðunum. Þær hafa því litla ástæðu og í sjálfu sér eng- an rétt til að búast við aðstoð frá þeim.” Sinn er siður í hverju landi Árið 1839 heimsótti sendiherra Tyrkja í London verksmiðju- hverfin í Englandi og heimsótti annars silkiverksmiðju ó. S. THORGEIRSSON * DÁINN ólafur S. Thorgeirsson, bók- sali og prentsmiðjustjóri í Win- nipeg, dó s. 1. föstudag (19. feb.) að heimili sínu, 678 Sherbrook stræti. Hann var 72 ára, fæddur á Akureyri á íslandi, en flutti til Canada 1887. Hann settist að í Winnipeg og bjó þar nálega öll árin hér vestra. Við ólaf munu flestir Vestur- fslendingar kannast. Hann var þegar á fyrstu árum hér mikið við félagslíf þeirra riðinn. Hann tók frá byrjun mikinn þátt í bindindisstörfum hér og var fyrsti Æðstitemplar stúkunnav Heklu í Winnipeg er stofnuð var 1890, og var félagi stúkunnar, er hann dó. En þó mikið kveði þar að starfi hans, var það ekki eina félagsmálið, er hann veitti fylgi. Hann tók að öðru leyti mikinn þátt í mörgum, ef ekki flestum íslenzkum félagsmálum. Árið 1894 byrjaði hann á út- gáfu Almanaks, sem hann hefir gefið út síðan. Er það hið merki- legasta rit og mun verða ein bezta heimildin um landnám Vestur-fslendinga. — Þó miklu sé við þá sögu enn að bæta til þess að hún verði heildar- söguágrip landnámsins, er von- andi, 'að við það starf verði ekki hætt, meðan nokkur kostur er að halda því áfram. Fyrir bæði út- gáfu Almanaksins og annara rita, varð ólafur víðþektur meðal Vestur-íslendinga. Vísikonsúll Dana var ólafur hér frá 1916 til 1926. Var hann fyrir frammistöðu sína í því starfi sæmdur riddaraorðunni af Dannebrog af Danakonungi. Hinn látni lætur eftir sig konu og 5 börn; eru börnin Mrs. R. Swanson, Mrs. John Davidson og Aida ógift, og tveir synir Geir og ólafur; þau búa öll í Winni- peg. En systkyni átti ólafur fjögur: Jósep og Jóhann í Win- nipeg, Axel í Kandahar, Sask., og Mrs. O. J. ólafsson í Winni- peg. Jarðarförin fór fram frá Fyrstu lút. kirkju í Winnipeg s. 1. mánudag, séra B. B. Jónsson jarðsöng. Jarðarförin var mjög fjölmenn. Roods í Manchester. Hr. Rood var sjálfur viðstaddur og sýndi hinum tigna gesti verksmiðjuna. Loks komu þeir inn í sal, þar sem ?rjú hundruð börn voru að vinna. (Á þeim árum voru börn látin vinna í verksmiðjunum.) Tyrk- inn horfði á börnin stundarkorn, greip síðan undir hendina á hr. Rood, dró hann afsíðis og sagði: Þetta er lagleg fjölskylda, hr. Rood. En segið mér í trúnaði, hvað eigið þér eiginlega margar konur ? meðal

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.