Heimskringla - 24.02.1937, Page 3

Heimskringla - 24.02.1937, Page 3
WINNIPEG 24. FEBRÚAR 1937 HEIMSKRINGLA 3. SÍÐA bolsévíki, hrópa þeir. Þetta er annars hið ömurlegasta einkenni á þeim þjóðháttum er við nefn- um menningu, að það er helst ekkert samræmi í skoðunum manna. Lífið er endalaus leik- araskapur en engin alvara. Við ræðum um réttlæti en rækjum það miður; við dáumst að kær- leikanum en iðkum hann ekki; við heiðrum sannleikann en sækjumst þó ekki eftir honum. Þetta eru hörð orð og líkjast sleggjudómi en eru, því miður, það ekki. Af innrætinu orsak- ast gerðirnar og af því flýtur veröld vor í blóði og tárum. Upp- úr úthafi gnæfir “vor marggilta menningarhöll” þar sem daðrar- ar drekka sig inn í ölæðis óminni og dansandi skækjur hljóta demanta í heiðursverðlaun. — Þetta eru öfgar muntu segja — og eg lái þér það ekki. En hver er hæðst launaður í Bandaríkj- unum? Eru það ekki leikkon- urnar í Hollywood, sem dilla sér Þótt hann væri búinn að vera þrjátíu ár hér í landi, dvaldi hug- ur hans oft heima á íslandi, og kærustu umræðuefni hans munu hafa verið fréttir, sem hann fékk þaðan. Fylgdist hann mjög vel með öllu því, sem gerðist þar í opinberum málum, og lagði sitt mat á það, sanngjarnlega en þó hiklaust og af góðri dómgreind. Var það með hann eins og svo marga aðra greinda fslendinga, sem hingað hafa komið fullorðn- ir menn, að það fyrntist ekki yfir endurminningarnar frá fyrri ár- um. Hann var góður íslending- ur og búinn mörgum þeim beztu kostum íslenzkrar alþýðu, sem hafa aflað fslendingum góðs orð- stírs hér í landi, en sem naum- ast eru eins áberandi meðal þeirra, sem hér eru upp aldir. Eggert sál. var jarðsettur í grafreitnum á Eriksdale þann 11. þ. m. Fylgdu honum til graf- ar þeir af vinum hans, sem gátu verið viðstaddir. Margir gátu svo “dæilega” á amerískum leik- ekki verið viðstaddir sökum f jar- sviðum? Enda mega þær við því að fá sér spánýja eiginmenn annað hvert ár. Ein þeirra kvað hafa yfir f jögur hundruð þúsund dollara á ári. Mér dettur sízt í hug að ástandið sé vitund betra í gömlu menningarlöndunum. — Yfir í Evrópu selja þeir sinn kon- ungdóm fyrir — nei nú segi eg ekki meira, en þeir sem girnast frekari upplýsingu geta fengið hana hjá honum Salómon sál Davíðssyni. Framh. lægðar og veikinda. Nokkrir enskumælandi vinir fjölskyld- unnar voru viðstaddir. Sá sem þessar línur ritar, flutti kveðju- orð bæði á íslenzku og ensku. Með Eggert er til moldar geng- inn mætur og merkur maður, góður íslendnigur og góður drengur í hvítvetna. G. Á. fékk til umráða klaustrið Pont- igny í nánd við París og breytti því í námsheimili, þar sem menn, frá fjarlægum löndum fá tæki- færi til að “hlusta hver á ann- an”, eins og hann sjálfur kemst að orði. Þangað hafa komið listamenn, kennimenn, hagfræðingar, náms- fólk o. m. fl. Námið er marg- þætt og sjálfvalið. Og þar er fjöldi bóka á ýmsum málum. Það er sérstaklega tekið fram, að fræðslan sé bæði miðuð við kröf- ur þeirra, sem hafa “praktisk” áhugamál og hinna, sem fást við andleg (intellektuell”) störf. Námskeiðið, sem hefst 1. apríl næstkomandi, er að því leyti frá- brugðið þeim fyrri, að Norður- landabúum er sérstaklega boðin þátttaka og verður séð fyrir túlkun á norræn mál. Franska verður kend, en þó er nauðsyn- legt að kunna nokkuð í málinu áður. G'estunum verður gefinn kost- ur á að kynna sér franskt at- vinnulíf, franska heimspeki og þjóðfélagskenningar nítjándu aldarinnar. Auk þess verða fyr- irlestrar og umræður um mál- efni dagsins m. a. allsherjarverk- föllin í Frakklandi í sumar, sem leið, o. fl. Námskeiðið stendur yfir í 3 síðastliðnu ári og er öll sú fram- leiðsla þegar seld. f vinnulaun hefir verksmiðjan greitt um 30 þús. kr. Góð rækjuveiði er nú í fsa- fjarðardjúpi og stunda hana 8 —9 smábátar. Mun framleiðsla verksmiðjunnar sennilega stór- aukast á þessu ári, enda leyfir eftirspurnin það vel. —N. Dbl. 20. jan. * * * Tveir njósnarar dæmdir í Hæstarétti Hæstiréttur kvað í gærmogun upp dóm í máli valdstjórnarinn- ar gegn Geir H. Zoega kaup- manni í Hafnarfirði og Stefáni Már Benediktssyni, en báðir þessir menn höfðu í héraði verið dæmdir fyrir njósnir fyrir er- lenda togara. Hæstiréttur telur, að með dul- málslykil að skeytaskiftum Zoega við 9 enska togara hafi fullsannast, að hann hafi rekið fyrir þá “mjög yfirgripsmikla upplýsingastarfsemi um ferðir og dvalastaði varðskipanna hér við land”. Einnig hefir grunur leikið á að Zoega hafi annast samskonar starfsemi fyrir 10 aðra togara, en það hefir ekki fullsannast. Með skírskotun til þessa er Geir H. Zoega dæmdur til að greiða 10,000 kr. sekt í landhelg- mánuði. Samanlagður dvalar- 'issjóð, en sæti ella 165 daga fang- ÆFIMINNING Eggert Sigurgeirsson KRISTJÁN NÍELS JÚLÍUS SKÁLD 1860—1936 Þann fimta þessa mánaðar andaðist á spítalanum í Eriks- dale, Man., Eggert Sigurgeirs- son frá Siglunes, P.O., Man., eft- ir langa sjúkdómslegu. Eggert sál. var fæddur á Bræðraá í Sléttuhlíð í Skaga- fjarðarsýslu á íslandi áttunda febrúar 1871. Foreldrar hans voru: Sigurgeir Stefánsson og Guðlaug Hjálmsdóttir. Faðir hans dó, þegar hann var mjög ungur, og var hann tekinn sem ungbarn í fóstur af séra Davíð Guðmundssyni og konu hans, Sigríði ólafsdóttur Briem, þá á Felli, síðar prófastur á Hofi. — Gengu þau honum í foreldra stað og ólst hann upp hjá þeim til fullorðins aldurs. Þann þrett- ánda október árið 1891 giftist hann eftirlifandi konu sinni, Svanhildi Sigurbjörnsdóttur. — Eignuðust þau sjö börn og eru sex af þeim á lífi, en ein dóttir dó ung. Þau sem lifa eru þessi: — Björn kaupmaður að Vogar, Man.; Jóhann Magnús; Sigríður Guðlaug (Mrs. Peterson), fyrr- um kenslukona; Guðbjörg, kenslukona; Davíð og Jörundur Björn. Bróðir Eggerts, Þor- steinn að nafni, létz fyrir tveim- ur árum í Reykjavík. Hann var faðir Garðars prests í Hafnar- firði. Meðan Eggert var á íslandi stundaði hann sjómensku; lengi á Akureyri. Var hann með allra duglegust og hepnustu formönn- um þar um slóðir. Árið 1906 fluttist hann vestur með fjölskyldu sína. Settist hann þá að í Siglunesbygðinni við Manitobavatn og hefir ávalt búið þar síðan. Var heimili þeirra hjóna eitt hið mesta myndar- og getsrisnisheimili í þeirri bygð I. Af hverju söngst þú svona vel, Að sönginn allir vildu heyra? Krákur settu upp kvæða-stél— Krúnkuðu: “Syngdu meira”. II. Sorgum hlaðinn! Höfug tár Hafa fallið þér um brár. Glettni þinni gazt þú með Glapið flestra skilnings beð: Séð hefi eg mín efri ár öll þín bros í gegnum tár. • Einstæðingur eins og þú Áttir svona góða trú: Vildir gjarnan gleðja þann Gæfusnauða ferðamann, Sem að átti auða sál: Ekkert rím — og lélegt mál. Fyrir þetta fórst þú vel Framhjá genginn ertu: Hel Aldrei festir á þér hönd, Eða setur þig í bönd, Meðan einhver eins og þú Iðkar þessa gæða trú. Ekkert segja þér eg þarf —Þinna sorga, gleðiarf— Hefir þú í framtíð fært Fleira verður þar um lært— Eftirmæli er nú flutt Eftir þinni tilsögn stutt. Jak. .T. Norman -11-12.’36. kostnaður er 3000 frankar. Ferð verður farin til Normandie og í París verður fjögra daga dvöl. Géfst þá tækifæri til að sjá heimssýninguna, sem þar verður sumar. Einum degi verður varið til að skoða höfnina í Le Havre. Frá París er tveggja stunda ferð með járnbrautarlest til Pontigny. Klaustrið sjálft, sem er um 700 ára gamalt, er rúmgóð og reisuleg bygging. Og um- hverfið er hljóðlátt og fagurt. Eg hefi aðeins haft stutta dvöl í Pontigny, en eg hygg, að fáum verði vonbrigði að koma þangað. Stockholm í jan. 1937. Oddný Guðmundsdóttir ISLANDS-FRÉTTIR ALÞJÓÐLEGT MENTASETUR Það, sem gerist á alþjóðlegu sjónarsviði, vekur venjulega nokkra eftirtekt, en þar eins og annarsstaðar er það staðreyndin, að ekki er æfinlega hrópað hæst um það, sem skiftir mestu máli. Til dæmis lítur út fyrir að áríð- andi sé að allur heimurinn viti hver tekur metið í spjótkasti og hver stekkur hæst og hver næst . hæst á Olympíuleikunum. Hitt jer annað mál, hvort nokkur lif- Eggert var prýðilega vel gef- j an(h maður hefir gagn eða gleði .inn maður; fagnaðarmaður, vin- a^ Þessum undarlegu afrekum sæll og vel látinn af öllum, sem kyntust honum. Hann var ágæt- ur heimilisfaðir og góður ná- granni. Hann var með allra yfir- lætislausustu mönnum. En hver sem átti tal við hai^n, komst brátt að raun um, að hann var bæði vel viti borinn og fylgdist vel með flestum meiriháttar við- burðum. f skoðunum var hann mjög frjálslyndur og sanngjarn í garð allra, en mun þó hafa ver- ið fastur fyrir, ef á var leitað. kappanna. Fyrir nokkrum dögum var mér send áætlun um alþjóðlegt náms- skeið, sem lætur lítið yfir sér, á- samt tilmælum um að minnast á það í einhverju íslgnzku blaði. Það er mentasetrið L’abbaye de Pontigny, sem enn á ný opnar sín breiðu hlið og býður velkom- inn hvern sem vera skal, án til lits til þjóðflokka og stétta. Nú er liðinn aldarfjórðungur síðan prófessor Paul Desjardins Dr. Skúli Guðjónsson yfirlæknir fél<k í haust gull- medalíu frá háskólanum í Oslo fyrir rannsóknir sínar á iðju- sjúkdómum og þá sérstaklega Lilikose eða steinryki því er postulínsgerðarmenn fá í lungun. Dr. Skúli flytur þ. 21. jan. gull- medalíufyrirlestur um Lilikose og þjóðfélagslega þýðingu þess í hátíðasal háskólans í Oslo. 22. jan. flytur hann sérstakan fyrir- lestur um Lilikose fyrir vísinda- menn í Ulleval sjúkrahúsi í Oslo. —16. jan. Vísir. * * m Slys í Mjólkurstöðinni Það slys vildi til laust fyrir kl. 6 í gærmorgun í mjólkurstöð- inni við Hringbraut, að kæli- dúnkar í kæliklefa stöðvarinnar féllu n’iður á tvo menn, sem voru að taka kassa með mjólkurflösk- um út úr klefanum, þar sem þeir höfðu verið geymdir yfir nótt- ina. Mennirnir meiddust báðir alvarlega og voru samstundis fluttir á Landspítalann. Annar þeirra, Torfi Þorbjarnarson bíl- stjóri, fótbrotnaði, en hinn mað- urinn, Sveinn Jónsson, marðist á brjósti auk þess, sem eitt eða fleiri rif brotnuðu. Slysið er talið hafa orsakast vegna þess, hve kælidúnkai'rfr voru illa festir, en þeim var komið fyrir uppi undir lofti klef- ans um þrjá metra frá gólfi. 21. jan. Mbl. * * * Rækjur soðnar niður í 100 þús. dósir á ísafirði Reynslan af hinu fyrsta starfsári Rækjaverksmiðjunnar á ísafirði hefir sýnt að þar er um álitlega atvinnugrein til frambúðar að ræða. Þrátt fyrir ýmsa byrjunarörðugleika hefir sama og enginn halli orðið á rekstrinum. Alls hefir verksmiðjan soðið niður rækjur í 100 þús. dósir á elsi. Stefán Már Benediktsson, starfsmaður Zoega, starfaði stuttan tíma að njósnarastarfs- seminni að boði húsbónda síns og í fjarveru hans. Honum er gert að greiða 1500 kr. sekt í land- helgissjóð. Hinir sakfeldu menn skulu greiða allan málkostnað í héraði og fyrir hæstarétti, Zoega 9/10, en Stefán 1/10. Dómsniðurstöður hæstaréttar eru mjög á sama veg í undirrétti, nema sekt Stefáns Márs er nokk- uð lækkuð.—N. Dbl. 19. jan. * * * Nýr íslenzkur doktor frá Lundúnaháskóla Þórður Þorbjarnarson fiski- fræðingur varði doktorsritgerð við Lundúnaháskóla síðastliðin laugardag. Ritgerðin er um fjörefni og fjörefnarannsóknir, og hefir Þórður unnið að henni s.l. 2. ár. Þórður hefir dvalið við nám í Ameríku. Fór hann vestur 1929 og lagði stund á fiskifræði við hsákólann í Halifax. Sumarið 1934 kom hann hingað heim til fslands og fór fyrripart vetrar til Englands og dvaldi við fram- haldsnám við Londonarháskóla. Sumarið eftir kom hann heim aftur. í fyrra vetur fór hann aftur til Englands og dvaldi þar allan veturinn. í nóv. í haust fór hann svo enn til London. Er hann væntanleg- ur heim með Lyru 25. þ. m. —Alþbl. 19. jan. * * * Um 200 tonn af frystum fiski til Ameríku Um 120 manns, konur og karl- ar vinna nú á vegum Fiskimála- nefndar að flokkun fiskjar, frystingu og pökkun í Sænska frystihúsinu og íshúsinu fsbjörn- inn. Er fiskurinn ætlaður til út flutnings á Ameríkumarkað og verður fluttur með Eimskip um England til Ameríku. f dag mun verða búið að ganga frá um 60 tonnum. af þéssum fiski, og hefir hann verið keypt- ur af bátum hér og í sjóþorpum hér í nágrenninu fyrir 9 aura kg. Alþýðublaðið hafði í morgun tal af Héðni Valdimarssyni for manni Fiskimálanefndar, og sagði hann meðal annars: “Fiskurinn er frystur eftir tveimur aðferðum, aðferð Fiski- málanefndar og aðferð Sænska frystihússins. Nefndin ákvað fyrir löngu, að gera þessa tilraun og býst eg við, að send verði alls á Ameríkumarkað héðan um 150—200 tonn af þessum fiski. Er áætlað, að Brúarfoss taki farm héðan í lok þessa mánaðar. Fiskurinn er útbúinn á svipað- an hátt og í fyrra, nema að nú verður hann pakkaður í réttan pappír.” Hvernig eru sölumöguleikarn- ir? “Það er vitað, að markaður er ekki að jafnaði góður í Ame- ríku fyrir þennan fisk nema í einn mánuð, og fiskurinn kom of seint í fyrra. Nú er ætlað, að fiskurinn komi meðan markaður er beztur. Þó er ekki hægt að fullyrða neitt um útkomuna. — Sem stendur munu óvenjulega miklar birgðir af frystum fiski; en þær mínka og vertíðin hefst ekki fyr en í marz. Verðið er ekki hátt sem stend- ur, hvað sem verða kann í febrú- ar. En það er ólíklegt, að hagn- aður verði af sendingunni. Er þó auðvitað alveg sjálfsagt að gera tilraunina á þeim tíma, sem markaðurinn er beztur. —Alþbl. 19. jan. * * * 100 ára gömul heiðurskona jörðuð að Strandarkirkju 28. nóv. s. 1. var jörðuð að Strönd í Selvogi ekkjan Málfríð- ur Jónsdóttir, f. 28. júlí 1836. Var til heimilis seinustu árin hjá syni sínum, Guðmundi Jónssyni bónda í Nesi í Selvogi, og naut þar í elíinni sqrstakrar um- hyggju og alúðar sonar síns og barnabarha. Mann sinn, Jón G'uðmundsson, hafði hún mist 1902. Blind hafði hún verið síð- ustu 20 árin og heyrnarsljó sein- ustu árin, en hélt óskertum sál- argáfum fram í dauðan. Hafði hún lifað 6 biskupa og 6 kon unga. Fædd var hún á Odda á Mýr- um í Austur-Skaftafellssyslu, en fluttist ung að Hófi í öræfum og var þar fermd af séra Magnúsi Norðdahl, föður Guðmundar i Elliðakoti, “þeim ágætismanni” var viðkvæði hennar. —Mbl. 21. jan. * * * Bankamálið Jón Halldórsson aðalgjaldkeri hefir verið úrskurðaður í gæslu- varðhald. Enskur leynilögregluþjónn starfar að rannsókn peninga- hvarfannaí landsbankanum. Eft- irfarandi greinargerð út af rannsóknum í bankamálinu hefir olaðinu borist frá lögreglu- stjóra: Þann 28. jan. 1936 kom það jós að 2000 kr. vantaði í pen Þér sem notið— TIMBUR KAUPIÐ AF THE Empire Sash & Door CO., LTD. Birgðlr: Henry Ave. Ea»t Sími 95 551—95 552 Skrifstofa: Henry og Argyie VERÐ - GÆÐI - ÁNÆGJA Enskur lögreglumaður, Mr. Veal, kom hingað fyrir nokkur- um vikum síðan og hefir starfað að rannsókn á peningahvörfum þeim, sem áttu sér stað í Lands- bankanum á s. 1. ári. Þegar lög- reglumaðurinn kom bað banka- stjórinn blöðin þess, að ekki yrði í bráðina minst á rannsóknina og hefir ekkert blaðanna gert hana að umtalsefni. Mr. Veal er starfsmaður aankadeildarfirma. Hann hefir víða farið, m. a. var hann nýlega Danzig við rannsókn á ólögleg- um vopnasendingum til Spánar og síðan fór hann suður á Spán og var nýkominn þaðan er hann réðist hingað.—Vísir. 8. jan. BÚTAR ingakassa A. J. Johnsons, gjald- <era við sparisjóðsdeild Lands- oanka fslands, og þann 15. nóv. 1935 kom í ljós að 1000 kr. vantaði í 25000.00 kr. bundið seðlabúnt í sama banka. Út af peningahvörfum þessuro fór fram lögregluréttarrannsókn í febrúar 1936 án þess að upp kæmist á hvern hátt peningarnir höfðu horfið. Var síðan rann- sókn þessari frestað þar til nú fyrir skömmu að eijskur leyni- lögreglumaður var fenginn til að athuga mál þetta og eftir að hann hafði unnið að málinu í kyrþey nokkurn tíma, hófust aftur lögreglupróf í því. Hafa þau staðið yfir nú um áramótin og margir starfsmenn Lands- bankans verið yfirheyrðir. Hefir rannsókn þessi leitt til þess, að nú í morgun var aðalféhirðir bankans úrskuraður í gæzluvarð- hald. Um efni málsins eða frekara framhald rannsóknarinnar verða upplýsingar ekki gefnar að svo stöddu. Eitt af brögðum ýmsra rit- smiða, þegar þeir tilfæra orð annara, er það, að bæta við eða fella úr, en láta þau svo líta út á pappírnum sem rétt sé haft eftir. Tilgangurinn er venj ulega af ein- um og sama toga spunninn. Þess þarf ekki að leita sem liggur í hendinni eða í augum uppi. —//— Eitt er það að sjá og kannast við bölið í heiminum, annað er það að leyfa því að kvelja sig. —//— Lastafullur maður er vinur lastanna og leikbræðra sinna. “Enginn er góður nema guð einn,” stendur þar. Hvenær hefir “stefna” fundist sem reynst hafi gallalaus ? —//— Það er ekki umhverfið sem krefst endurholdgitnar, heldur afstaða einstaklingsins gagnvart því — samkvæmt þeirri grátlegu kenningu. Allir, sem “skortir vit” eru ekki “brjálaðir”. —//— Jafnvel hálfvita kemur aldrei til hugar að gera alt sem hann veit að hann getur gert. Svo alla galla mannanna er að finna í fyrirmyndinni sem hann var skapaður eftir? Ef frelsi er engum viðjum bundið, þá er það rangnefni. Fyrirgefningin er öryggispípa vanþekkingarketilsins. Trúin heldur að hún viti alt. En vitið veit að það veit lítið og verður því að spyrja. -//- á það “Svo er hvert mál sem er litið.” —//— Að segja til syndanna og gera það tafarlaust er engum heiglum hent. —//— Þegar prédikarinn leggur út af afbökuðum texta, þá bara brosir söfnuðurinn í kampinn. E. Erlendsson —14. febr. 1937. * REDERAT * Vér bióSum baendum með ánæniu ^ Vér bjóðum bændum með ánægju að heimsækja kornlyftur vorar og ráðfæra sig við umboðsmenn vora um hveitisölumál þeirra. Federal Grain Limited WINNIPEG - CALGARY FORT WILLIAM

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.