Heimskringla - 22.09.1937, Side 5

Heimskringla - 22.09.1937, Side 5
WINNIPEG, 22. SEPT. 1937 HEIMSKRINGLA 5. SÍÐA vagn-hlöss af garðmat ókeypis, væri því sómi að því ef hægt væri að senda frá öllun^ þeim stöð- um, sem hafa haft góða upp- skeru í ár. Til þess að geta komið þessu í framkvæmd, þarf að kjósa góðar nefndir í hverjum þeim stað, sem á að senda frá, og þarf sú nefnd að sjá um að kartöflur, rófur, kál, korn, eða hvað annað sem senda á, komist á vagnstöðina á réttum tíma. — Allir kennarar og skólabörn geta hjálpað til þessa þar sem þau geta komið orðum inn á hvert heimili. Það þarf ekki mikið frá hverjum, ef allir leggja til eitt- hvað. Það þarf um sjö hundruð busjel af kartöflum til þess að fylla járnbrautarvagn. Vona eg að við verðum ekki eftirbátar í þessu fremur en öðru. Innilega þakklát er eg þeim, er máli þessu vildu sinna. Vinsamlegast, Andrea Johnson FRA LÖPPUM Á milli hinna hávöxnu og hör- undsbjörtu Svía og Norðmanna, tveggja hinna hámentuðustu þjóða á vestræna vísu, fleygar sig dökkur, lítill og lágvaxinn þjóðflokkur, sem enn lifir frum- stæðu hirðingjalífi, svipuðu því er hann 'lifði fyrir þúsundum ára. Mér hefir auðnast að kynn- ast þessum þjóðflokki, “Löppun- um”, dálítið og tel eigi illa til fallið að greina hér nokkuð frá þessum grönnum okkar. Ekki vita menn með vissu, hvaðan, eða hvers kyns Lapparn. ir eru. Lengi voru þeir taldir Mongólakyns, en nú munu flestir fræðimenn af þeirri skoðun. — Telja sumir þá afkomendur frumstæðs kynflokks, er lifað hafi við austanvert Miðjarðar- haf í lok síðustu ísaldar og síðan flutst með ísröndinni norður á bóginn. Aðrir álíta að þeir hafi bygt norður- og vesturströnd Finnmerkur þegar á síðustu ís- öld, fyrir 15—20 þúsundum ára. Halda og sumir, að hið lágvaxna, dökkhærða fólk, er víða finst í dölum Vestur-Noregs, og sjálf- sagt má finna leifar af hér á landi, sé ef til vill sama kyns og Lappar. Svo mikið má þó ráða með vissu, bæði af fornleifafundum og germönskum lánsorðum í lappnesku, að Lappar hafa búið í nágrenni Germana í nyrðri hluta Skandinavíu um fimm hundruð árum fyrir Krists fæð- ingu, eða í byrjun járnaldar. — Elstu skráðar sagnir af Löppum höfum við frá rómverska sagna- ritanum Tacitusi. Um 550 e. Kr. talar gríski sagnaritarinn Prokoþios um Skriðfinna og á þá eflaust við Lappa, því Finnar eða Skriðfinn- ar er hið gamla norræna nafn á þjóðflokknum og svo kallast þeir enn í Noregi. Skriðfinnar voru þeir kallaðir sakir fimi sinnar í því að skríða á skíðum. Adam Brimabiskup og Saxó tala báðir um Skriðfinna. Orðið Lappi er finskt lánsorð í sænskunni. — Sjálfir kalla Lapparnir sig Sapme eða Same, og margir sænsktalandi Lappar vilja ekki heyra orðið “lappa”, því þeir setja það í samband við annað sænskt orð, “lapp”, er þýðir drusla, og þykir það niðrandi. Mikilsverður fróðleikur um Lappana er og í þýðingu Elfráðs hins ríka Englakonungs á ver- aldarsögu Orosiusar. Er þar bætt inn í þýðinguna lýsing á Hálogalandi eftir hálenskan höfðingja, óttan að nafni. — Kveður hann aðaltekjulind há- lenzkra höfðingja vera skatt þann er þeir fái frá Finnum, þ. e. Löppum, sé sá skattur goldinn í grávöru, hreinafeldum, svarð- reipum, fiðri og öðru slíku. — Flestir munu og kannast við frá- sögn Eglu um ferðir Þórólfs Kveldúlfssonar til Finnmerkur. Af þeirri frásögn virðist mega ráða, að finnskatturinn hafi oft verið deiluefni með Norðmönn- um og Svíum. Af ofangreindum frásögnum og öðru má sjá, að á víkingaöld bygðu Lappar nær allan nyrðri hluta Skandinavíu, eða það sem nú kallast Finnmörk og Lapp- land. Auk þess bjuggu þeir hér og þar í Finnlandi alt suður að stórvötunum Saima og Ladoga. Síðar hafa þeir horfið úr suð- austur Finnlandi og byggja þeir nú aðeins Kolaskagann. — f Skandinavíu hafa þeir aftur á móti fært út kvíarnar. Um 1100 flytja þeir suður á heiðarnar milli Jamtalands og Þrændalaga og um 1700 alt niður í Efri-Dali. í Noregi búa nú Lappar suður undir Röras, og einstöku Lappar finnast alt suður á Harðangurs- heiðum, er liggja næstum því í hávestur frá Osló. Lappar eru nú taldir rúm þrjá- tíu þúsund. Af þeim eru í Noregi rúm tuttugu þúsund, í Svíþjóð um 8 þúsund, í Finnlandi hálft annað þúsund, og álíka margir í Sovét-Rússlandi. Eldri mann- talsskýrlsur sýna, að tala Lappa stendur því nær í stað. En þess ber að gæta, að Löppum í þrengri merkingu, eða þeim er lifa hirð- ingjalífi, hefir mjög fækkað, því æ fleiri taka upp hvítra manna hætti, gerast bólfastir og leggja stund á akuryrkju. T. d. mun nú aðeins helmingur sænsku Lappanna lifa hirðingjalífi. Eft- irfarandi lýsing á aðallega við sænsku Hjarð-Lappana, eða Fjall-Lappana, eins og þeir kall- ast, til aðgreiningar frá Skógar- Löppunum, er hafast árið um kring við í skóginum. Híbýli Lappanna er gamminn eða kahte eins og þeir kalla það sjálfir. Vanalegastur er tjald- gamminn, sem er svo gerður, að sjö birkistengur, með gati á öðrum endanum eru þræddar upp á stutta stöng, hinum endanum er stungið niður svo að steng- urnar mynda til samans keilu- lagaða grind. Á grind þessa er svo tjalddúkurinn lagður. Er hann gerður úr hreinafeldum, vaðmáli, pokum eða öðru slíku. Keilutoppurinn er ekki byrgður, svo að þar myndast stórt kringl- ótt op, reykopið. Svona gammi er venjulega 4—5 metrar í þver- mál. Á hliðinni er lítið dyraop, sem skríða þarf inn um. Er oft erfitt að komast inn, því brenni- stafli liggur allajafna rétt fyrir innan dyrnar, og þarf að klöngr- ast yfir hann. Á miðju gólfi eru hlóðirnar, “aran”, og logar þar eldur allan daginn. Yfir hlóðun- um hangir járnpottur í keðju. Svæðið innan við hlóðirnar nefn- ist passjo og var í gamla daga talið heilagt. Þar eru geymdir pottar og katlar og körfur og önnur eldhúsílát, auk ýmissa matvæla. Til beggja hliða í gammanum eru hvílufletin, “luoito”, venjulega þakin greni- barri eða feldum. Sé smábarn í gammanum hangir vagga í loft- inu öðru hvoru megin. Er hún gerð af holuðum trjábút, klædd- um leðri. Þar er krökkunum stungið niður, óreifuðum, mjúk- ur mosi er lagður kringum þau og lítið hreinsskinn lagt ofan á þau, og þau síðan reyrð niður vandlega, svo að þau velti ekki út. Á ferðalögum bera Lappa- konurnar krakkana á bakinu í þessum vöggum. Það tekur dálítinn tíma fyrir venjulegan dauðlegan mann að venjast því að búa í gamma. — Fyrst og fremst er svo lágt undir loft, að hvergi er hægt að standa uppréttur. Sæti finnast engin, en maður situr á fletunum í búddhastellingum með kross- lagða fætur. Og það er alveg ó- trúlegt hversu marga Lappa í þessum stellingum einn gammi getur rúmað, þó manni virðist alveg fult er maður kemur inn, reynist ennþá pláss þegar helm- ingi fleiri hafa bætst við. f góðu veðri getur verið nógu rómantískt að sitja í gamm og totta píppuna sína og blína út um reykopið upp í heiðbláan eða stjörnum stráðan himininn, eða stara á skíðlogandi eldinn á arn- inum. En sé úrkoma svo að byrgja þarf reykopið, eða vindur svo að reyknum slær niður tek- ur gamanið að grána. Þá ætlar reykurinn menn alveg að kæfa. Og slökkvi maður eldinn batnar sízt líðanin. Sé það að sumar- lagi æltar mývargurinn mann al- veg að æra, en sé það að vetrar- lagi ætlar kuldinn mann lifandi að drepa. Af þrennu illu er reykurinn skárstur, en ekki er að furða þótt Lapparnir séu rauðeygðir flestir. Auk tjaldgammans eru og torfgammar. Eru þeir að lögun mjög svipaðir tjaldgammanum og er munurinn aðeins sá, að birkigrindin er þakin torfi í stað tjalddúks. Auðvitað er ekki hægt að flytja slíka gamma með sér eins og tjaldagammana, en Lappar þeir, er í torfgömmunum búa, eiga venjulega fleiri slíka, sinn í hverju þeirra héraða er þeir vistast í til langframa á ferðum sínum. “Lapparnir lifa á hreindýr- um”, stóð einhversstaðar í barna skólalandafræðinni, og í þessum fáu orðum er lykillinn að lifnað- arháttum Lappanna. Hreinninn er hans eina húsdýr, auk hunds- ins, hans hestar kýr og kindur, sem fæðir hann, skæðir og klæð- bægslum og buslagangi; hrein- arnir æða þá áfram og er þá erfitt að halda sér á sleðanum, því þeir fara í ótal krókum svo að sleðarnir slengjast til hægri og vinstri, en brátt taka hrein- arnir að letjast og er þá vart mögulegt að lemja þá upp af seinagangi. Þegar vora tekur, halda Lapp- arnir af stað í vesturátt til fjall- anna og heiðanna. Um miðjan maí, þegar hreinburður byrjar, eru þeir komnir vestur í birki- skógabeltið austanvert í fjöllun- um. En sumir fara alt vestur í norsku firðina og dvelja þar yfir sumarið. Og nú byrjar erfiðasti hluti ársins. Hreinarn- ir eru eirðarlausir sakir mý- vargs og æða um svo lítt mögu- legt er að hemja þá, úlfar og jarfar sitja um kálfana; flutn- ingar eru allir erfiðir, því nú þarf að klyfja farangur. Svo þarf að marka kálfana. Lapp- arnir nota eyrnamörk líkt og við. Tarfkálfarnir eru flestir geltir snemma sumars. Um miðsumarleytið er tekið að mjólka hreipkýrnar og því haldið áfram fram á vetur. Er það erfitt verk; kýrnar þarf að elta uppi og snara með kastreipi (lasso) sem Lapparnir kunna vel að nota. Venjulega mjólkar hreinkýr aðeins fjórðung merk- Það þarf og varla að nefna, að Lapparnir eru, sem aðrar frumstæðar (og raunar fleiri) þjóðir, sólgnir í tóbak og brenni- vín.—Lesb. Mbl. ‘MÓÐIR MfN” ir að langmestu leyti. Og ekki ur, en mjólkin er kostamikil og nóg með það. Híbýli og húsgögn eru að meira eður minna leyti gerð af hreinafeldum og beinum. Hreinarnir eru oftast nær aleiga Lappans og spyrji ókunnugur Lappa um tölu hreina hans bregst hann oft reiður við yfir ókurteisi og frekju spyrjanda. Það er svipað því og ef bráðó- kunnugur maður spyrji kaup- mann í Reykjavík um það hversu margar krónur hann ætti í Út- vegsbankanum. Starf Lappans á hinum ýmsu árstíðum og flutningar hans úr einu héraði í annað byggist og alt á hrein- dýraræktinni. Hreinarnir ganga raunar sjálfala alt árið, vsvo ekki þarf að heyja í þá. En það er ærið verk að halda þeim saman, verja þá úlfum og jörf- um og flytja þá úr einu héraðinu í annað. Veturinn er rólegasti tími árs- ins. Þá heldur Lappinn sig með hreinana í stórskógunum aust- an hálendisins og dvelja þá oft einn til tvo mánuði á sama stað. Þótt þar sé snjóþungt er snjór- inn oftast laus og létt fyrir hreinana að krafsa, en hindrar að þeir rási alt of mikið/ Venju- lega er gengið til hreinanna a. m. k. einu sinni á dag og þeir reknir heim undir og taldir, dýr valin úr til slátrunar o. s. frv. Á vetrum eru og veiðar stundað- ar, einkum úlfa- og bjarndýra- veiðar. úlfurinn er versti óvin- ur Lappanna. Elta þeir hann uppi á skíðum á veturna þar til hann gefst upp og drepa hann með byssu eða spjóti. Á veturna er og unnin flest heimavinna, klæði gerð og ýms húsgögn smíðuð. Flutningar á tjöldum og öðrum farangri er léttastur á vetrum því þá má nota sleða. — Lappasleðinn “Kairo” er að lögun líkastur flat- botna pramma, þversneiddum að aftan, og um hálfan annan meter á lengd. Fyrir hvern sleða er spentur einn hreinn og fjórir til fimm hreinar bundnir saman í eina lest, raido. Ríkir Lappar hafa oft um tuttugu sleða á ferð- um sínum. Fremsta hrein í raido teymir húsbóndi eða ein- hver húskarl, á eftir koma svo konur og unglingar með hrein- dýrahjörðina. Það kvað vera all-æfintýralegt að aka hreindýrasleða. Tamning hreintarfanna er nefnilega svona og svona. Er hún venjulega að- eins fólgin í því að kenna hrein- inum að fylgja slóð og lendi hann út af hlóðinni er hann venjulega annaðhvort ramstaður eða æðir eitthvða út í buskann. Fyrsta korterið eftir að lagt þykk. Er hún oftast drukkin blönduð vatni og oft með berjum útí, bæði bláberjum og öðrum. Oft sjóða þeir í mjólkinni blöð af súru og öðrum jurtum svo af verður grænleitur grautur ekki lystilegur en furðu bragð- góður er maður venst honum. Smjör búa Lappar ekki til en gera osta, bæði hlauposta og mysuosta. Haustmjólkin er oft fryst í hreinum hreinmögum og matreidd allan veturinn sem einskonar ís. Þegar hausta tekur, og kólna fer og hvessa á fjöllum, halda Lapparnir aftur af stað til skóg- anna. Á haustin er venjulega réttað og hreinarnir aðskildir. f réttunum er glaumur mikill og gleði engu minni en í Skeiðarétt- um. f september er aðalsláturtíðin. Er þá hreintörfum og kúm slátr- að, en hreinuxunum slátra Lapp- ar sjaldan fyr en á veturna. í góðum árum borgar hrein- búskapurinn sig vel. Margir Lappar mega og teljast vel efn- aðir. Þeir geta átt yfir þúsund hreindýr og hreindýr mun nú metið á 30—40 krónur. En stop- ull er búskapurinn og auðugir Lappar geta flosnað upp á einum vetri. Hættulegastir eru blauta- snjóar á vetrum með eftirfylgj- andi frosti. Myndast þá harð- fenni tseove, sem hreinarnir fá ekki krafsað í gegnum. Horfalla þeir þá oft þúsundum saman eða æða niður í bygðir. Þykir sænsk- um bændum þeir illir gestir og er skaði á heystökkum og girðing- um, og spretta oft af því miklar deilur milli þeirra og Lappanna. Fæðu sína fá Lapparnir mest- megnis af hreinunum. Mjólkina hefi eg þegar nefnt, aðalfæðan er þó kjötið. Við slátrun er sumt af kjötinu, eða háls og hryggur, soðið strax, hitt er ýmist geymt fryst, eða hengt upp í gammanum til reyks og þerris. Strax eftir slátrunina eru og leggjarbein soðin og brot in til mergjar, en mergurinn þykir hið mesta hnossgæti, eink- um þó ef brennivín er með. úr blóðinu gera þeir einskonar slát- ur. Oft er haustblóðinu helt í belg og þeir grafnir í jörð niður og geymdir til vors og eru þá gerðir úr því grautar og aðrir miður lystugir réttir. Á sumrin veiða Lapparnir mikið af silungi til matar og skjóta rjúpur á vetrum. Auk þeirrar jurtafæðu er þegar er nefnd, borða þeir mikið af hvannarótum sem þeir safna á vorin. Kaffi þamba Lapparnir mjög. Nota þeir salt í það. í stað mjólkur er venjulegt að dýfa “Eg hefi þekt marga háa sál eg hefi lært bækur og tungumál og setið við lista lindir. En engin kendi mér eins og þú ið eilífa og stóra, kraft og trú né gaf mér svo guðlegar myndir. En þú sem ef til vill lest mín ljóð þá löngu er orðið kalt mitt blóð, ó gleym ei móður minni, en legg þú fagurt lilju-blað á ljóða minna valinn stað og helga hennar minni.” (M.J.) f síðasta tölublaði Lögbergs 16. sept. er grein með fyrirsögn- inni: Brestur, uppeldisskortur eða hvað ? Hygg eg að meining- in í spurningunni sé þessi: Hvort þarna sé um uppeldisskort að ræða, orðið “Brestur” fyrir framan uppeldisskortin, virðist vera með öllu óþarft eins og íka grein þessi í heild sinni hefði mátt vera óskrifuð. Væri hverj- um rithöfundi sæmra sjálfs síns vegna að setja ekki slík skrif í opinber blöð, sem vekja hvers manns .athlægi sem les. Eftir “uppeldisskortinn” kem- ur nokurskonar viðauki og hljóðar þannig: “Tveir dálitlir BALDURSBRÁ Stjórnarnefnd Þjóðræknisfé- lagsins hefir ákveðið að gefa út fjórða árgang af Baldursbrá. Að öllum líkindum kemur fyrsta ein- takið út fyrstu vikuna í október. Þetta ár kemur blaðið út í hverri viku og verða 25 eintök í árgang- inum. Ársgjaldið verður það sama og áður 50c og sendist fyr- irfram til ráðsmannsins B. E. Johnson, 1016 Dominion St., Winnipeg, eða til þeirra sem hafa svo góðfúslega að undan- förnu tekið á móti gjöldum í hinum ýmsu bygðum. Reynt verður innan skamms að birta lista af útsölufólki blaðsins í bygðum og bæjum. Eins og að undanförnu verður blaðið aðeins sent til þeirra sem borgað hafa fyrirfram. Er skiljanlegt að það verður að fylgja þessari reglu þar sem gjaldið er svo lít- ið og hrekkur svo skamt að borga allan kostnað. Ritstjórinn verður eins og áður dr. Sig. Júl. Jóhannesson og er hann fslend- ingum svo kunnur að ekki þarf að fjölyrða um hæfileika hans til þess starfs. Ákveðið hefir verið að hefta inn í laglega kápu þá 3 árganga af Bldursbrá sem út eru komnir og gefst fólki tækifæri á að kaupa þá í heild fyrir $1.50 og verður bókin send póstfrítt hvert sem vera vill. Þeir sem óskuðu eftir öllum fjórum árgangunum geta því gallar eru á bókinni: “Sögukafl- sent $2.00 og fengið 3 árgangana í einni bók og þann fjórða jafn- ótt og hann kemur út. Upplagið er ekki stórt og því æskilegt að fólk notfæri sér það sem fyrst ef það langar að eign- ast blaðið frá byrjun. Það er enginn vafi á nytsemi þessa starfs, sem hefir getað haldið áfram með fjárstyrk frá Þjóðræknisfélaginu og frjálsri vinnu frá einstaklingum. Er því ekki nema sjálfsagt að vonast sé eftir að almenningur styrki fyr- irtækið með því að leggja fram 50c til að kaupa blaðið, svo þeir sem að útgáfunni standa finni til þess að starf þeirra sé að ein- hverju metið. Sendið ársgjöld ykkar sem fyrst. Útgáfunefndin. ar af sjálfum mér”. Sá fyrri og smærri er það, að eg held það sé ekki greint frá hvað móðir höf- undar hét.” o. s. frv. Af því eg er vel kunnug ætt Matthíasar, get eg að nokkru bætt úr “fyrri og smærri” gallanum, með því að gefa Rannveigu Sigurbjörns- son nafnið á móðir M. J. Þóra var hún skýrð í nafni föðursins, sonarins og heilags anda. Þóra var Einarsdóttir, systir séra Guðmundar Einarssonar, prests á Kvennabrekku á Skógarströnd. Alilr þeir sem mikið vita og mik- ið lesa af íslenzkum fræðum vita föðurnafn Matthíasar. Bræður átti hann 5: Magnús, Einar, \Ara, Eggert og Sæmund. Allir voru bræður þessir skáldmæltir. Pró- fastur ólafur Johnsen á Stað á Reykjanesi var náfrændi séra Matthíasar og séra Jón Arason prestur á Húsavík var bróður- sonur hans; er fjöldinn allur af fræðimönnum og rétttrúuðum prestum, sem ekki gerist þörf hér upp að telja í ættum Matt- híasar. Það er mjög undarlegt með jafn viðurkent andans mikil- menni og Matthías, að hann skyldi víkja þannig út af hinni einu sönnu, réttu, sáluhjálpar- leið. (Sem sé “hneigð hans að unitara trú”!.). Guð fyrirgefi Matthíasi Jochumssyni lífs og liðnum öll hans afbrot. “Megi hann, sem allar undir græðir, brúa brestinn þann hinn mann- lega”(!) Ragnheiður Kristjánsson Wynyard, Sask., 18. sept. 1937. Kaupið Heimskringlu Borgið Heimskringlu G. T. Stúkan Skuld heldur sína árlegu Tombólu 4. okt. n. k. Ná- kvæmar auglýst síðar. ÍSLENZKAR BÆKUR ÍSLENDINGAR! Hér er tæki færi, sem aldrei áður hefir þekst á íslenzkum bóka mark- aði. Margar ágætar bækur svo sem Sögubækur, Ljóðmæli, Leikrit, Fræðibækur, Guðfræðirit, Barnabækur, Söngvar og nótur, verða seldar með 75-80% af- slætti meðan upplðgin endast. Sérstakt tækifæri fyrir ís- lenzka bókavini að ná í góðar og ódýrar bækur. Ný bóka- skrá send hverjum, sem óskar, THORGEIRSON CO. 674 SARGENT AVENUE WINNIPEG, MANITOBA FUNDARB0Ð er af stáð gengur alt með óskapa reyktum mörbita í það. Nefnd fslendingadagsins, boðar til almenns fundar, árs- fundar, ÞRIÐJUDAGINN þ. 28. þessa mánaðar í Góðtemplara húsinu við Sargent Ave. STÖRF FUNDARINS ERU: Lagðir fram reikningar og skýrslur yfir starfsárið. Að kjósa sjö menn í nefndina til tveggja ára í stað^ þeirra, sem endað hafa sitt starfstímabil í nefndinni. Þar á meðal er ritari og forseti nefndarinnar. Kjósa yfirskoðunmenn reikninga. Ákveða hvar íslendingdagurinn skuli haldast næsta ár. Ný mál. Ui Gleymið því ekki fslendingar, að hér er um málefni að ræða, sem “traust við ísland oss tengja—” íslendingadagurinn snertir alla, af íslenzku bergi brotna. Þessvegna er vonast til að fólk sýni áhuga sinn og löngun að viðhalda deginum, með því að sækja vel fundinn og taka einlægan og ákveðinn þátt í umræðum, og sýni einbeittan vilja sinn um úrskurð málanna á þeim grundvelli, sem heillavænlegastur þykir fyrir heill þjóð- 1. 2. 3. 4. 5. minningar-dags vors framtíðinni. Davíð Björnsson

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.