Heimskringla


Heimskringla - 29.12.1937, Qupperneq 1

Heimskringla - 29.12.1937, Qupperneq 1
THE PAR-T-DRINK Good Anytime In the 2-Glass Bottle ® M \n íil AVENUE Dyers & Cleaners Fatahreinsun vor er þess verð að reyna hana. Hvergi betri. SÍMI 33 422 658 St. Matthews LII. ÁRGANGUR WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 29. DES. 1937 NÚMER 13. HEIMSKRINGLA ÓSKAR LESENDUM SÍNUM GOÐS OG FARSÆLS ARS ' séra ÓLAFUR ÓLAFSSON PRIKIRKJUPRESTUR DÁINN Minningarorð eftir séra Árna Sigurðsson og séra ólafur og birti ýmsa fyr- Þaðan fékk hann lausn 9. 8. árið irlestra og ritgerðir um merkileg 1902. Frá 1902—1904 var hann menningar- og mannúðarmál. — ritstjóri Fjallkonunnar og frí- Nefni eg þar til bindindismálið kirkj uþrestur í Reykjavík var og dýraverndunarmálið. — Menn hann 1903—22; jafnframt frí- muna og eftir því, að séra Ólafur kirkjuprestur í Hafnarfirði frá var einn af forvígismönnum 1913. Séra Ólafur var 2. þingm. Séra ólafur ólafsson andaðist 1 fyrrinótt eftir langa vanheilsu, rúmlega 82 ára að aldri. Er með honum í valinn hniginn sá mað- Ur> er jafnan var talinn meðal ^öfuðskörunga íslenzkrar kenni- ^annastéttar. hess hafa ýmsir minst við mig, hversu persóna og kennimenska séra ólafs hreif hugi þeirra við fyrstu sýn og heyrn. Á eg einn- P >nína minningu um það’, er eg Sem 9 ára drengur fór með for- elörum mínum til Arnarbælis- ^rkju í ölfusi og hlýddi messu hja séra ólafi í fyrsta sinn. Þótti ^ér^ drengnum, alt haldast í oendur hjá þessum áhrifamikla ^nni. Mikill var hann að vall- ursýn og að öllu hinn stórmann- e£asti, haukfrán augun og snör, röddin mikil og fögur, jafnt í stól sem fyrir altari. Dýpst læsti sig * nieðvitund mína augnatillitið uvassa og djarfa, er hann leit yflr kirkjusöfnuðinn. Það var auðséð og auðfundið, að þar var jhaður, þrunginn af lífi, fjöri og £rafti, maður, sem var til þess jörinn, að vekja til trúar og hvetja til starfa. Lengi býr að fyrstu gerð. uPp frá þessu var séra Ólafur í j'num huga ímynd skörungs- s«apar í kennimensku. Og þótt e£ hafi síðan kynst fleiri hliðum ^restsstarfs, og komið auga á eiri hæfileika, sem verðmætir ®ru í þv{ gtarfi, er mín upphaf- e&a skoðun á séra ólafi óbreytt. ann var alveg óvenju áhrifa- ^kiH maður, er hann flutti og r>Ikaði skoðanir sínar og áhuga- ^jál, hvort heldur það var boð- áapur kristinnar trúar, eða önn- ^5 rnálefni, sem hann tók að sér ann var hugdjarfgur, vígreifur ardagamaðúr, sem ekki kunni að hræðast, hvort heldur hann s°tti fram í fylkingum kirkjunn- manna, eða hann gekk fram fyr lr skjöldu í landsmálasnerrum fyrri ára. Alllangt fram á fimtugsaldur Var séra ólafur prestur í sveit- u^n, fyrst rúm þrjú ár í Selvogs- ^lngum, þá í níu ár í Holtaþing- . og loks önnur níu ár prestur _narbæli í ölfusi. Var hann í ^Veit sinni atkvæðamikill for-!var Aliuui „..............., _____ ^umaður, eigi aðeins í andleg-1 krýndi hinar hvítu hærur öld- rn niálum, heldur og þeim, sem ^yralöieg eru kölluð. Aflaði hann r nieð stöfum sínum öllum 1killa vinsælda og aðdáunar ,ustur þar. Vitum þeirrar sóknar, sem hafin var gegn holdsveikinni hér á landi með þeim góða árangri, sem nú er kunnur. Þá gleymist ekki hið fagra starf, sem séra Ólafur vann í sambandi við jarð- skjálftana miklu 1896, og sú hjálparstarfsemi, sem hann átti —Mbl. 26. nóv. svo góðan þátt í að hrinda af _______ stað. Séra ólafur var, eins og fyr var vikið að, vígreifur bardaga- maður. Var það svo, að langt farm á elliár þótti honum gam- an að minnast þeirra tíma, er hann háði marga hildi, einkum á vígvelli stjórnmálanna. Kunni hann þar, eins og á öðrum svið- um, vel vopnum að beita, eldheit- ur, harðskeyttur og hvassyrtur stundum. Þann tíma, er hann sat á þingi, var hann einn mælsk- ustu manna í þeirri sveit. Annars kann eg ekki að dæma um stjórn- málastarfsemi séra ólafs. En hitt veit eg, að til dauðadags átti hann lifandi og vakandi áhuga á öllum málum lands og þjóðar, og lifnaði allur við, er um þau mál var rætt. Leiftraði þá ein- att gamli glampinn í augum öld- ungsins, og smellnar setningar féllu af vörum hins aldraða mælskumanns. Ellin varð séra ólafi að sumu leyti þung. Honum förlaðis sýn smám saman; máttur og fjörið þvarr. Hann gat því ekki lengur tekið þátt í lífi, starfi og stríði mannanna kring um sig; hann fjarlægðist lífið. Það féll honum ekki vel. Það var svo gagnstætt eðli hans að verða ófær til þátt- töku í stríði lífsins. Þar að auki sótti þungbær sorg þau hjónin heim, er Guðmundur sonur þeirra andaðist skyndilega. Þeg- ar á alt er litið, mun því mega telja sr. ólaf sælan þess að hafa fengið lausn frá sinni þungbæru- elli. En með samúð hverfur hug- ur vor til hans ágætu konu, frú Guðríðar Guðmundsdóttur, sem ein er eftir látin um stund, sjálf háöldruð og þrotin að kröftum — -----Eg kom heim til séra ólafs í gærmorgun, og sá hann liðinn á banabeði. Djúpur og heilagur friður hvíldi yfir ásjónu hins látna stríðsmanns. — Það friður eilífðarinnar, sem Rangæinga 1891, þm. Austur- Skaftfellinga 1901, 2. þm. Árnes- ingja 1903—07. Sr. ólafur kvæntist árið 1880 eftirlifandi konu sinni, frú Guð- ríði Guðmundsdóttur, prests í Arnarbæli Johnsen. BARÁTTAN UM GYÐINGALAND Að nokkru leyti tekið úr grein í tímnritinu “The Standard”, Des. l ■“* vai'. vhuiii ver, sem in '1Um sögu fríkirkjusafnaðar- •j s hér í Reykjavík, hversu mik- S ^öðs söfnuðurinn varð að- °tandi vegna þessa álits, sem tja]^afUr haf^* unniö sér austan atb"*nS °g vænta rnátti um slíkan afna~ °g dugnaðarmann sem ra ólafur var, lagði hann fram na miklu krafta við fleira en e^estsstarfið í sóknum sínum t>að S’ SV° ve1 sem hann rækti ao- Hann var prýðilega ritfær alk -Ur’ ha^j tök á kjarnmiklu, jj yölegu, íslenzku máli. Leysti örn11 ^ hen<fr a prestsskaparár- sj... smum eystra talsverð rit- sem öll miðuðu til fræðslu lý -au^mnar menningar og upp- Slngar alþýðumanna. Þá flutti ungsins, þegar starfi og stríði langrar æfi var lokið. — Hann hafði sjálfur í nafni Drottins síns boðað hinn eilífa veg, og bent hugum mannanna til hæða. Nú fær hann sjálfur að reyna sannleik þess, er hann kendi. Guð gefi honum raun lofi betri. Árni Sigurðsson Séra ólafur ólafsson var fædd- ur 24. sept. 1855 í Viðey. For- eldrar hans voru ólafur (d. 12. 11. ’ll) ólafsson, síðar bæjar- fulltrúi í Reykjavík, og fyrri kona hans, Ragnheiður (d. 7, 9, ’82) Þorkelsdóttir bónda í Norð- urhjáleigu Gíslasonar. ólafur varð stúdent 1877, cand. theol. 1880 og veittur Selvogur síðar sama ár. Árið 1884 fluttist hann til Guttormshaga og 9 árum síð- ar var honum veitt Amarbæli. Blöðin flytja daglega fréttir af óeirðum á Gyðingalandi. :— Arabar og Gyðingar eiga þar í sí- feldum erjum, og þykjast hvor- ugir ná rétti sínum. Bretar, sem hafa yfirstjórn landsins á hendi, eiga fult í fangi með að stilla til friðar. Sem stendur lítur helzt út fyrir að skifta verði landinu í tvent milli Araba og Gyðinga, til að firrast áframhaldandi vandræði, og er þó langt frá því, að allir geri sig ánægða með þá úrlausn. Gyðingaland er lítið land, að- eins 11,000 enskar fermílur á stærð. Það er 193 mílur á lengd og um 75 mílur á breidd til jafn- aðar. Það er miklu minna en nokkurt fylki hér í Canada, að undanteknu Prince Edward Is- \ land. Mikið af landinu er hálent og hrjóstrugt, en meðfram Mið- jarðarhafinu er frjósamt slétt- lendi, sem liggur fyrir neðan 500 fet fyrir ofan hafflöt. Af þessu sléttlendi eru Filistea-sléttan, Saronsléttan og Esdraelon-slétt- an frjósamastar. Jórdan dalur- inn, sem er mjór og djúpur, er líka frjósamur og sömuleiðis aðr- ir smádalir til og frá um hálend- ið. En mestalt miðbik landsins er grýtt hálendi, sem liggur frá 500 til 1500 fet yfir hafflöt. Landið hét upprunalega Kan aansland eftir Kanaanítum, sem bjuggu þar, þegar fsraelsmenn eða Hebrear komu þangað. Nú á dögum er landið kallað Pale- stína, þ. e. Filistealand; en Fili- stear voru, eins og kunnugt er, einn þjóðflokkurinn, sem bjó þar, og sem ísraelsmenn áttu afar lengi í höggi við og yfirunnu að líkindum aldrei til fulls. Kan- aanítarnir voru semitisk þjóð eins og fsraelsmenn, sem að lík- indum hafði fluzt vestur að haf- inu austan frá stórfljótunum Tígirs og Efrat. Voru forfeður þeirra ef til vill komnir austan af hálendi Mið-Asíu einhvern tíma um 3,000 árum fyrir Krist. Hebrearnir hafa líklega kom- ið til Kanaanslands fyrst á tíma- bilinu frá 2,000 til 1700 f. K. Sögurnar um Abraham í gamla testamentinu skýra frá fólks- flutningum að austan. En ekki settust þeir þá að þar fyrir fult og alt. Voru þeir hirðingjaþjóð, sem ekki kunni að akuryrkju, en flakkaði með hjarðir sínar hvar sem haglendi var gott og þeir gátu haldist við fyrir öðrum, líkt og hirðingjaþjóðir þar eystra gera enn í dag. Einhver hluti þeirra komst til Egyptalands, komst burt þaðan undir forystu Móse og fór aftur til Kanaan- lands, líklega um 1300 árum fyr- ir Krist. Fleiri skyldir flokkar slóust í för með þeim, eða komu síðar, og lögðu þeir landið undir sig. Voru þeir lengi að ná þar fótfestu, en með tímanum sam- einuðust þeir í eina þjóðarheild og mynduðu konungsríki. Kon- ungsríkið var fyrst eitt, en skift- ist síðan í tvö. Blómaöld þess var á stjórnarárum þeirra Davíðs og Salómons á tíundu öld f. K.; en rúm 400 ár liðu frá stofnun þess þar til Nebúkad- nezar tók Jerúsalem og flutti fjölda Gyðinga í útlegð til Babý- lon. Rúmlega hundrað árum áður höfðu Assýríumenn lagt Norður- ríkið undir sig og flutt fjölda fólks burt þaðan. Þegar Persar unnu Babýlon, 539 f. K., fengu Gyðingar, sem í útlegðinni voru, leyfi til að fara heim. Persar réðit svo yfir landinu um tvö hundruð ára skeið. Síðan varð það hluti af ríki Alexanders mikla og svo Egyptalands kon- unga, eftir skiftingu ríkis Alex- anders, þar til það komst undir stjórn Rómverja á fyrstu öld f. K. Árið 70 e. K. var Jerúsalem lögð í eyði af rómverska hers- höfðingjanum Títusi, vegna stöðugra óeirða meðal Gyðing- anna; þeir voru reknir úr landi og dreifðust víðsvegar út um rómverska ríkið; en fjöldi af þeim var áður kominn í allar stærri borgir umhverfis Miðjarð- arhafið. Á sjöttu öld lögðu Arab- ar landið undir sig og var það í höndum þeirra þar til Serkir tóku það á tólftu öld. Loks komst það undir yfirráð Tyrkja og var hluti af ríki þeirra þar til eftir heimsófriðinn, er Bretum var fengin í hendur yfirstjórn þar af þjóðabandalaginu. Á síðastliðnum tuttugu árum hafa margir Gyðingar, einkum úr Mið-Evrópu, fluzt til Gyðinga lands, og sezt þar að. Að vísu voru þar til nokkrar smáar Gyð- inga nýlendur áður, sem voru stofnaðar um og eftir aldamótin síðustu, er Rothschild barón gekst fyrir flutningi Gyðinga þangað. Tala Gyðinga á Gyð- ingalandi nú er um 400,000. — Arabar voru þar um 600,000 árið 1920, en eru nú orðnir ein miljón. Aröbum er afar illa við komu Gyðinga til Gyðingalands, eins og sjá má af því að ekki færri en sjö alvarleg uppþot hafa orðið þar á síðastliðnum fimtán árum; og hafa margir menn verið drepnir og særðir í þeim. Arabar þykjast hafa verið sviknir; segja þeir, að sér hafi verið lofað yfir- ráðum yfir landinu og sjálf- stjórn, fyrir að vera á móti Tyrkjum í stríðinu. Ennfremur þykjast þeir eiga meira tilkall til landsins en nokkrir aðrir, þar sem forfeður þeirra hafi búið þar í 1300 ár. Gyðingar aftur á móti þykjast rétthærri þar, af því að landið var áður þjóðar- heimili þeirra og sökum loforða, sem þeim voru gefin um, að þeir af þeim, sem þangað vildu flytja, skyldu eiga þar griðland. Arab- ar hafa afarsterka þjóðernis- kend, sem er nátengd trúar- brögðum þeirra og hugmynd um stjórnarfarslega einingu allra Múhamedstrúarmanna; þeir eru um 200,000,000 í heiminum. — Gyðingar þeir, sem fluzt hafa til Gyðingalands, eru allmargir full- hefir ef til vill verið hertekinn í ófriði, og var þar um tíma. Hann I ir af einskonar Messíasar von- um, og trúa því fastlega, að þeir eigi að verða hinir einu yfirráð- endur landsins. Gyðingar þeir, sem til landsins hafa fluzt, hafa flutt með sér nýjar starfsaðferðir í öllum greinum, sem Arabarnir þektu ekki áður. Þeir hafa ræktað landið með nýtízku vinnuvélum, og komast vel af. Arabarnir hafa lært af þeim og hafa haft mikinn hagnað af komu þeirra ó- beinlínis, ekki hvað sízt vegna þess að heilbrigðisráðstafanir allar eru þar nú miklu betri en áður var. Að vísu hefir yfir- stjórnin brezka gert mikið til að bæta atvinnuvegi, mentun og heilbrigði í landinu, en að miklu leyti eru þó framfarirnar þar Gyðingum að þakka. Hin mikla fjölgun Arabanna sjálfra bendir ótvíræðilega á að hagur þeirra hafi batnað, því hún er að mjög litlu leyti því að þakka að Arabar hafi fluzt þangað annarsstaðar að. Margir meðal Araba kann- ast við þetta; en hatur þeirra á Gyðingunum er svo mikið, að jafnvel þeir Arabar, sem grun- aðir eru um að vera vinveittir Gyðingum og yfirstjórninni órezku, eru ekki óhultir um líf sitt; hafa sumir þeirra verið myrtir og einnig nokkrir em- Dættismenn stjórnarinnar. Arab- arnir halda því fram, að alt of margir Gyðingar hafi verið flutt- ir inn í landið, og að ekki sé rúm fyrir svo margt fólk í land- inu. Fleiri Gyðingar hafa fluzt þangað en gert var ráð fyrir í fyrstu vegna hinna miklu of- sókna gegn Gyðingum, sem geys- að hafa í ýmsum löndum Evrópu síðustu árin, en sá innflutningur var ófyrirsjáanlegur fyrir tutt- ugu árum. f fyrra setti brezka stjórnin nefnd til þess að rannsaka alt á- standið á Gyðingalandi. ‘Nefndin lauk starfi sínu á átta eða níu mánuðum, og gerði tillögur um að skifta landinu í tvent, pg eiga Arabar að búa í öðrum hlutan- um en Gyðingar í hinum. Báðir hlutar eiga að hafa jafnan að- gang að höfnum við hafið, og ennfremur á að tryggja, að Gyð- ingar, Múhameðstrúarmenn og kristnir menn hafi aðgang að hinum svonefndu ‘helgu stöðum’ til trúarbragðalegra iðkana. Seg- ir nefndin að þetta sé eini vegur- inn til að binda enda á hinar ó- þolandi illdeilur og uppþot, sem nú eigi sér stað. Brezka stjórnin hefir tjáð sig meðmælta þessari úrlausn, en margir Arabar og Gyðingar eru henni mótfallnir. Þó er líklegt að þetta verði reynt, enda virðist það eina úrræðið nú sem stendur. Málið er afar erfitt viðfangs, einkum vegna þess að bæði Múhameðstrúarmenn og Gyðingar í öðrum löndum láta sig það miklu skifta, að hlutur trúbræðra þeirra á Gyðingalandi verði ekki fyrir borð borinn. ftal- ir, sem vilja spilla fyrir Bretum í löndunum umhverfis Miðjarð- arhafið, róa að því öllum árum, að auka óánægju Araba. Hefir brezka stjórnin orðið að skora á ítölsku stjórnina, að hætta á- róðri sínum þar eystra. Einnig er í ráðagerð að nota útvarpið til þess að breiða út frá Bretlandi réttari skilning á stjórnmála- ástandinu í heiminum meðal þjóða eins og Araba, sem mjög áríðandi er að gera ánægða, ef það er mögulegt. G. Á. GÓÐ KONA OG VINSÆL Fyrra þriðjudag 21. þ. m. átti Guðlaug Sigfúsdóttir Lifman 75 ára aldursafmæli. Var þessa ninst með samsæti er vinir henn- ar og fósturbörn héldu henni að heimili Mr. og Mrs. P. S. Pálsson, 796 Banning St. Um 20 konur voru þar samankomnar. Fyrir samsætinu stóð aðallega ung fósturdóttur dóttir hennar Mrs. Fjóla Lambert. Guðlaug mun fædd að Veiga- stöðum við Eyjafjörð 21. des. 1862, þar sem foreldrar hennar bjuggu fyrst eftir að þau gift- ust, en þau voru Sigfús ólafsson og fyrri kona hans Elin Jóns- dóttir ættuð úr Mývatnssveit. Þau giftust árið 1860 og fluttu til Nýja-fslands 1876 og svo þrem árum síðar til Sandhæða- bygðar í Dakota þar sem Sigfús bjó til dauðadags (15. sept. 1914). Elinu konu sína misti Sigfús árið 1881 og kvæntist aftur, tveimur árum seinna, Guð- jónínu Einarsdóttur Hnappdal er bjó með honum myndarbúi fram til æfiloka (29. okt. 1913). Guðlaug giftist árið 1881, Kristjáni Lifman ágætum manni og vinsælum á hinum fornu land- námsárum Dakota-bygðar. — Námu þau land við hlið föður hennar en bjuggu þar aðeins skamma stund. Fluttust þau til baka aftur til Nýja-fslands og settust að á Gimli. Þar andaðist Kristján 2. sept. 1898. Börn eignuðust þau ekki, en ólu upp tvö fósturbörn, Mrs. Lilju Þor- steinsson og Bjarnþór Lifman, nú oddvita Bifröst-sveitar og til heimilis í Árborg. Guðlaug hefir alla dag^ verið hin prúðasta kona, en óauglýs- ingagjörn og ekki haft hátt um sig fram á lífsleiðinni. Hún hef- ir verið þrauttryggur vinur vin- um sínum og fylgt bókstaflega hinum fornu fyrirmælum: “Vini sínum skyldi maður vinur vera, þeim og þess vin”. Hún hefir jafnan fylgt hinni frjálslyndu stefnu í kirkjumálum og voru þau, hún og maður hennar með þeim fyrstu er beittu sér fyrir þeim málum í Nýja-íslandi. Heimskringla óskar hinu aldna afmælisbarni og hinni mætu sæmdarkonu allra framtíðar heilla. R. íslenzkur fiðlunemi í Vínarborg Einhverjir hafa e. t. v. veitt því athygli í frásögninni af Mið- Evrópuför Karlakórs Reykjavík- ur í blaðinu áður, að á hljómleik- unum í Vínarborg lék ungur ís- lenzkur fiðlunemi, Björn Ólafs- son, nokkur lög. Björn hefir stundað fiðlunám í Vín í fjögur ár, en hafði áður lokið prófi við Tónlistarskólann í Reykjavík. Hann er aðeins tvítugur að aldri. C(arl) L(afite), einn af kunn- ustu tónlistargagnrýnendum í Vín, ritar í Volks-Zeitung eftir samsönginn, “að íslenzku söngv- ararnir hafi unnið algeran sig- ur”. Um Björn segir C. L.: “ó- svikinn Norðurlanda-afkomandi er . . . hinn ungi Bjöm ólafsson Björnsson, einn hinna fáu fslend- inga, sem hér eru búsettir, búinn augljósum fiðluhæfileikum, með hljómmiklum söngtón, geðríki og fjaðurmagnaðri tækni, og vakti hann, ásamt Schulhof (prófess- or), sem lék undir, mestan fögn- uð þetta kvöld .. .”—Mbl. 1. des.

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.