Heimskringla - 16.11.1938, Qupperneq 1
LIII. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 16. NÓV. 1938
NÚMER 7.
Bæjarstjórnarkosningarnar í Winnipeg
25. nóvember
skipast oft veður í lofti á
skemmri tíma en tveim árum.
Þingmannatala hvors flokks
um sig er sem hér segir eftir
kosningarnar:
Bæjarstjórnarkosningarnar í Winnipeg sem fara fram föstu-
daginn 25. nóvember, eru að því einu frábrugðnar kosningum
hér áður, að borgarstjórinn er nú kosinn til tveggja ára í stað
eins árs. Breyting þessi var samþykt með atkvæðum kjósenda á
s. 1. hausti.
Um borgarstjórastöðuna sækja þrír: núverandi borgarstjóri
John Queen; E. D. Honeyman, K.C., bæjarráðsmaður frá suður-
Winnipeg og Travers Sweatmna, K.C.
Mr. Queen hefir verið borg-
arstjóri í 3 ár alls, 1935, 1936 og
1938. Hann var bæjarráðsmað-
ur í 6 ár áður en hann varð
borgarstjóri. Bæjarmálunum er
hann því vel kunnugur. Hann er
nú sem áður tilnefndur af óháða
verkamannaflokkinum, sem
hann hefir tilheyrt og verið ó-
deigur starfsmaður í um fjórð-
ung aldar. Fylkisþingmaður
hefir hann verið í mörg ár. Vér
höfum ekki enn heyrt hann
halda ræðu á þingi, í bæjarráði
eða hvar sem er, þar sem hann
hefir ekki haldið taum alþýð-
unnar. Á stjórnartíð hans hefir
stefnan verið að létta sköttum
af hinum fátækari, en hækka
hann á þeim, sem e^ki líða
nauðþurftir við _það.
Mr. Honeyman hefir verið
bæjarráðsmaður fyrir Suður-
Winnipeg í 10 ár. Hann hefir
verið formaður fjármálanefnd-
arinnar um skeið og á herðar
hans hefir lagst að eiga við sam-
bandsstjórnina um að taka að
sér kostnað af framfærslu at-
vinnulausra og við fylkisstjórn-
ina, að ganga ekki á rétti bæjar-
ins. Hann hefir með öðrum
orðum haft mörg þýðingarmestu
störfin í bæjarráðinu með hönd-
um. Hann tilheyrir lögfræð-
ingafélaginu Scarth, Guild and
Honeyman.
Mr. Sweatman hefir aldrei
áður sótt um stöðu í bæjar-
stjórn, en hefir í félagimeð öðr-
um rekið lögfræðisstörf hér í
bæ í 30 ár. Hann er víðkunnur
maður og hefir á sér gott orð
sem fær maður í flestan sjó.
Hann er fæddur í Pembroke,
Ont., er skozkur að ætt; mentun
sína hlaut hann í Manitoba.
Hann vill lækka skatta og hvetja
með því til húsabygginga í bæn-
um og selja lóðirnar sem bærinn
situr með og með því á'fimm ár-
um hafa upp tapið sem af
skattalækkuninni leiðir. Sé þörf
fyrir hús í bænum, getur eitt-
hvað verið í þessu, en húsagerð-
armenn virðast meira hafa dreg- úrglit Bandaríkja
ið sig í hlé vegna þess að ekki kosninganna
hefir verið hægt ^ð selja en
vegna skattanna. Lítil skatta-
lækkun á lóð, gerir lítinn mun á
söluverði. .
Mr. Sweatman var fyrir
skömmu í óháðri nefnd, sem
skipuð var til að rannsaka kaup-
hækkun bæjarstjórnarþjóna. —.
Var hann með því að kaup lög- Jafnvel svo mör^- að sjaanlegt
reglumanna væri hækkað en væn’ að fyl£ið við stefnu Roose'
sammála var hann ekki hinum velts fseri hniSnandi og að þar
nefndarmönnunum, Dysart dóm- roðaðl fynr 801 fyrir republik-
hverri deild eða sex alls.
Nöfn þeirra er um bæjar-
stjórnarstöður sækja, eru birt á
öðrum stað í blaðinu.
Kosið verður með tölum, 1, 2
og 3 o. s. frv.
Atkvæðagreiðslan stendur
yfir frá kl. 9 að morgni til kl. 8
að kvöldi.
.áttÍJMí * iH! í i.
Tilnefningaskrá
Borgarstjóra-efni:
Mayor John Queen
Ald. E. D. Honeyman
Travers Sweatman
Bæjarráðsmannaefni:
Deild I.
Charles W. Brown
Ald. Harry C. Morrison
Hugh MacKenzie
Ald. R. A. Sara
Deild II.
Victor B. Anderson
Ald. Garnet Coulter
John McNeil
Ald. James Simpkin
Ald. C. Rhodes Smith.
Deild III.
Ald. M. J. Forkin
Ald. M. A. Gray
Mrs. Alice Hunt
Ald. Dan McLean
Alexander Malofie
Deild III—til eins árs
Andrew Bilecki
Angus MacKay
John Petley
Slav Rebchuk
Skólaráðsmannaefni:
Deild I.
James W. Halls.
R. B. Maclnnes
Mrs. Christine White
Deild II.
James Black
W.* R. Milton.
Mrs. Ethel Montgomery
H. B. Smith
L. M. VanKleek
Deild III.
Mrs. Mary Lowe
William C. Ross
William Scraba
Maður heyrir flesta segja, að
Bandaríkjakósningarnar hafi
farið eins og búist var við: að
demokratar mundu hafa meiri-
hluta þingmanna bæði í efri og
neðri deild, en republikanar
mundu vinna nokkur sæti, eða
önum x forsetakosningunum sem
verða 1940.
Þetta hugboð hefir ræst, svo
langt sem komlð er. Demó-
kratar sitja við völd eftir kosn-
ingarnar sem áður og meira að
Bæjarráðsmenn verða þrír se£Ja með ærnum meirihluta.
kosnir í hverri deild eða 9 alls En republikanar gerðu meira en
til tveggja ára. Til eins árs verð- gefa og taka jöfnum höndum,
ur þó fjórði maðurinn kosinn í Þeir unnu talsvert meira en þeir
ara og Marcus Hyman um kaup-
hækkun allra þjónanna.
Mr. Sweatman var um skeið
formaður viðskiftaráðsins —
(Board of Trade).
þriðju deild í stað D. M. Elche-
schen, bæjarráðsmanns, er stöðu
sinni sagði lausri á s. 1. sumri.
Sækja 14 um bæjarráðs-embætt-
in til tveggja ára en fjórir um
aukaembættið til eins árs.
f skólaráð verða tveir kosnir í
töpuðu.
Hitt bíður síns tíma og verður
ekki nú um dæmt, hvort að það
rætist í koshingunum 1940, sem
ákafir andstæðingar Roosevelts
spá eða þykjast lesa út úr úr-
slitum þessara kosninga. Það
í neðri deild:
Demókratar kosnir ......243
(Höfðuáður 325)
Republikanar kosnir ....159
(Höfðu áður 88)
Sæti í efa .............. 31
í efri deild:
Demókratar kosnir....... 21
Hafa þar nú alls 66.
Republikanar kosnir ..... 11
Hafa nú 23.
(Nægur meirihluti er 45)
Ríkisstjórar:
Demókratar kosnir........ 15
(Þessi flokkur tapar 9)
Republikar kosnir ....... 17
(Vinna 11).
Eins og bent var á fyrir kosn-
ingarnar, unnu republikar mest
í akuryrkjuríkjunum í Mið-
Vesturlandinu, og hjálpaði þar
eflaust til lágverðið á hveiti. En
þeir unnu einnig í iðnaðarríkj-
unum New England, Michigan
og Pennsylvania.
Demókratar héldu New York
og unnu Californíu, sem síðast
liðin 40 ár hefir haft ríkisstjóra
úr republikana flokki. Suður-
ríkin voru að vanda með demó-
krötum.
Þorsteinn Gíslason ritstjóri
og skáld látinn
í Morgunblaðinu frá Reykja-
vík á fslandi, dagsettu 21. okt.
er iáts Þorsteins Gíslaeonar,
ritstjóra og skálds getið. Hann
lézt að heimili sínu, Þingholts-
stræti 17, í Reykjavík að kvöldi
hins 20. okt., tæplega 72 ára að
aldri.
Fyrir tveimur árum kendi
Þorsteinn til sjúkdóms þess, sem
nú hefir bundið enda á hans
fjölþætta og merka sefiskeið. f
fyrra, segir í fregninni, var
hann um skeið á sjúkrahúsi til
þess að reyna að fá bót meina
sinna. Hann komst á fætur eft-
ir það og var allhress, en kendi
þó altaf til sjúkdómsins. Fyrir
viku lagðist hann svo banaleg-
una.
Blaðið með þesari fregn barst
vestur í gær. Æfiatriða þessa
þjóðkunna og merka íslendings
verða því að bíða næsta blaðs.
Sigursælir íslendingar
Kosningu, í Norður-Dakota
hlutu þessir íslendingar í nýaf-
stöðnu ríkiskosningunum í
Bandaríkjunum:
Fred Snowfield, Cavalier, rík-
islögsóknari í Pembina County.
Freeman Einarsson, Moun-
tain, County Commissioner.
Stoney Hillman, Akra, Sheriff
fyrir Pembina County.
Árssamkoma Karlakórsins
í kvöld heldur Karlakór ís-
lendinga í Winnipeg undir
stjórn R. H Ragnars sína aðal
samkomu á ‘árinu. Þessi árs-
samkoma kórsins hefir reynst
svo vinsæl undanfarin ár, að
hennar er beðið með eftirvænt-
ingu. íslendingum hefir þar gef-
ist kostur á skemtun, sem svo
almennar vinsældir hefir hlotið,
að hún minnir á samkomur
þjóðræknis-mótsins og önnur
þessháttar þjóðleg gleðimót. —
Winnipeg fslendingar ættu ekki
að láta undir höfuð leggjast að
sækja þessa samkomu. Það er
ávalt hressing í því fólgin, að
hlýða á kórinn, en ekki sízt þeg-
ar hann efnir til söngsins, eins
og á þessari samkomu. Og á
eftir söngnum er svo dans eigi
einungis fyrir hina ungu, heldur
einnig hina eldri, svo að þeir
lifa þar ungdómsár sín í annað
sinn.
10 þús. kr. til
íslenzkra stúdenta
Reikningar yfir fyrsta fjár-
hagsár Wenner-Green stofnun-
arinnar í Svíþjóð liggja nú fyrir.
Úthlutað hefir verið 791,000
kr. Þar af 10,000 krónum til ís-
lenzkra stúendta í Svíþjóð.
300,000 kr .hafa verið veittar
til þess að koma á fót nýrri
stofnun til norrænna rannsókna
í Stokkhólmi.
Wenner-Green gaf í fyrra kr.
30 milj., sem verja skyldi til
þess að efla norræna samvinnu.
—Mbl. 21. okt.
“Hvern á eg að kjósa?”
Þessi spurning er nú að von-
um flestum ofarlega í huga, við
bæjar-kosningarnar sem fara í
hönd í Winnipeg. Að svara henni
getur verið vandi, enda þótt
mennirnir sem sækja séu kjós-
endunum sæmilega kunnir.
Þar kemur ekki einungis til
greina hvernig maður umsækj-
andinn er, heldur hitt hvaða
kröfur kjósendur gera til hans
eða þess, sem með stjórn fer.
Til þess að geta gert sér grein
fyrir þessu, er ráðið að ryfja
upp í huga sínum þá stjórn-
málamenn, sem ódauðlega við-
urkenningu hafa hlotið.
Og hvað er það sem einkennir
þá menn? í fám orðum sagt
það, að þeir hafa helgað líf sitt
hugsjónum, sem að því hafa
lotið, að bæta hag alþýðu, eða
útrýma ójöfnuðinum, sem verið
hefir hennar hlutskifti, frá því
maðurinn var á menningarstigi
villidýrsins og er í raun og veru
leifar af því. Mennirnir sem að
þessu hafa unnið, án tillits til
þess hvað þeir sjálfir báru úr
býtum, eru í hugum flestra á-
kjósanlegir stjórnendur. Og
sagan getur um marga menn,
sem hollvættir hafa reynst
mannkyninu að þessu leyti.
Ef kjósendur í þessum kosn-
ingum sem nú fara fram í Win-
nipeg legðu þessa skoðun til
grundvallar fyrir því hvernig
þeir kjósa, hvað yrði þá uppi á
teningi? Hefir t. d. nokkur
þeirra manna, er um borgar-
stjórastöðuna sækja, nokkuð
það aðhafst, er hægt væri að
samræma við þessar kröfur
kjósenda þó ekki væri nema að
einhverju leyti, svo að styðjast
mætti við, er atkvæði er greitt?
Þetta er það sem kjósendur
skulu látnir sjálfir um að at-
huga fyrir sig. í augum þess
er þetta ritar, vekur einn þeirra
nokkra athygli, er um þetta er
að ræða. Það er núverandi
borgarstjóri, John Queen.
Frá því að hann kom til þessa
lands fyrir 32 árum, og var þá
aðeins 24 ára gamall, hefir hann
gefið verkamannamálum mik-
inn gaum. Og óháði verka-
mannaflokkurinn hlaut þar
brátt einn sinn ótrauðasta
starfsmnan. Utan þessa flokks
og innan hefir hann barist 1
fjói'ðung aldar fyrir því, að út-
breiða verkamanna hugsjónina
og vinna að bættum hag alþýðu.
Laun hans voru auðvitað engin
fyrir það fyrstu 15 til 20 árin,
önnur en ánægjan af því, að
vinna í þágu góðs málefnis. Og
þó nú sé svo hag breytt, að hann
sé bæði fylkisþingmaður og
borgarstjóri, mun það svo enn
fyrir honum, að það sé hugsjón-
in, sem hann berst fyrir, en
ekki launin. Mr. Queen er lík-
legast rétt lýst með orðum Ib-
sens, er sagði ekkert skemti-
legra en að berjast fyrir frels-
inu og þegar því lyki, væri lífið
einskis vert.
Nú jæja — veit eg að sagt
verður, en hvað hefir þá Mr.
Queen gert, síðan hann komst
til valda?
Það er nú auðvitað sitt hvað
að hafa öll völd og að vera borg-
arsjóri, því það hefir komið
fyrir að hann hefir verið í minni
hluta í bæjarráðinu. En starf
hans þar fyrst sem bæjarráðs-
manns og síðar sem borgar-
stjóra, hefir alt í eina og sömu
átt stefnt, nefnilega alþýðunni
í hag. Auk þess er sjálf stofn-
skrá bæjarins ýmsum annmörk-
um háð, fyrir þá. er róttækar
breytingar hafa á prjónunum.
En svo fátt sé nefnt, er það
Mr. Queen og látlausri baráttu
hans á fylkisþinginu manna
mest að þakka, að vinnulauna
skattinum var breytt, og honum
var af þeim létt, er alls ekki
máttu við að greiða hann. Þetta
tókst þrátt fyrir þó hann stæði
þar uppi með fáa, en að vísu
góða fylgismenn. Og á sama
hátt hefir honum ávalt verið að
mæta þar, hafi rétti alþýðunnar
hallað.
í bæjarstjórn hefir hins sama
gætt. Mætti þar margt til nefna.
Eitt af því var breyting á
skatta-álagningu þannig, að hún
var hækkuð á bönkum, peninga-
stofnunum og stórverzlunum, en
lækkuð á smærri viðskiftamönn-
um og íbúðarhúsum almennings.
Til þess að fá þessu til leiðar
komið, varð að berjast látlaust
fyrir að fá leyfi fylkisþingsins,
er að lokum hafðist fyrir harð-
fylgi af hálfu Mr. Queen.
Hann hefir ávalt verið því
andvígur, að verð á ljósi og
vatni væri hækkað, sem oft hef-
ir komið til mála.
Þegar Portage Avenue undir-
göngin voru gerð, fór hann á
fund járnbrautaráðsins og
fékk það til að leggja $100,000
til verksins.
Hann var sá er tilboð Bennett-
stjórnarinnar lét ekki lengi ó-
þegið um að leggja fram 40% af
kostnaðinum til lokræsisgerðar-
innar, er alls nam fjórum miljón
dölum og lauk því verki. Þó
enn sé sagt, að þar til þurfi
dýrari vélar, en þær, sem not-
ast er við, er ekkert við það að
athuga. Þær verða keyptar svo
fljótt sem föng eru á því.
Með húsabyggingar-áformi
sambandsstjórnarinnar er Mr.
Queen og hefir nú fengið lands-
stjórnina til að leggja fram 90%
af fénu til þessa. Telur hann
með þessu möguleika á því fyrir
þá að komast yfir íbúðarhús
sín, sem ekki gætu greitt verð
húsasmiða fyrir þau, eins og það
hefir verið.
Mikið af þessu líku mætti
halda áfram að telja upp. En
þess gerist ekki þörf. Hitt er
meira vert og þess vert að muna
það, að það er ávalt og æfin-
lega með öllu sem Mr. Queen
gerir, stefnt að því er alþýð-
unni er í hag.
Aukakosningarnar til
Sambandsþingsins
Síðast liðinn mánudag fóru
þrennar aukakosningar fram til
sambandsþingsins. Unnu íhalds-
menn í tveimur kjördæmunum,
en liberalar í einu; það var í
Brandon í Manitoba.
f kosningunum í Brandon
ÍSLENDINGAR—
KJóSIÐ LANDANN
Victor B. Anderson
í bæjarkosningunum ,sem fara
í hönd í Winnipeg, sækir einn
íslendingur um kosnnigu í bæj-
arráðsstöðu í annari deild. Það
er Victor B. Anderson. Hann
hefir áður verði 4 ár fulltrúi frá
þessari deild (1933—1936) og
leysti störf sín trúverðuglega af
hendi og kom bæði sér og þjóð-
flokki sínum fram til sóma. —
Hann er tilnefndur af óháða
verkamannaflokkinum. Hefir
hann ynt af hendi ómælt starf
í þágu þess flokks, verið ritari
hans um langt skeið. Hann nýt-
ur mikils traust á meðal sam-
verkamanna sinna, enda bregst
hann engu starfi, sem hann
hefir sannfæringu um að al-
menningi stafi heill af og
hann tekur að sér. — Árið
1936 var hann formaður nefnd-
ar þeirrar í bæjarráðinu, er vel-
ferðarmál annast (Social Wel-
fare).
Mr. Anderson er fæddur í
Norður-Dakota, en kom sex ára
gamall til Winnipeg. Hefir hann
átt hér heima síðan. Hann er
prentari að iðn.
íslendingar eru nógu fjöl-
mennir í kjördæmi hans til þess
að kjósa hann, ef þeim rennur
blóðið nógu mikið til skyldunn-
ar. Alþýðan á öruggan tals-
mann í bæjarráðinu þar sem
hann er.
sóttu þrír; íhaldsmaðurinn sem
þar sótti, var George Beaubier,
34 ára gamall maður, sonur
Lt. Col. D. W. Beaubier, er þing-
maður hafði verið þessa kjör-
dæmis síðan 1930, en dó s. 1.
sumar; hann var íhaldsmaður.
Annar sem sótti, var J. E.
Mathews, liberali og hinn þriðji
J. H. Wood, C.C.F. sinni. At-
kvæðin skiftust þannig milli
þeirra, að Mathews hlaut 6,536,
Baeubier 5,567 og Wood 3,536.
í London, Ont., fór önnur
kosning fram. Sóttu þar tveir,
Dr. R. J. Manion, leiðtogi íhalds-
manna og O. Hall C.C.F. sinni.
Dr. Manion vann með 3,000 at-
kvæða meirihluta. Liberali sótti
þarna enginn, eflaust til að taka
ekki atkvæði frá C.C.F. flokks-
manninum.
f Waterloó-South-kjördæmi í
Ontario fór ennfremur fram
kosning. Þar sóttu þrír: Karl
K. Homúth af hálfu íhalds-
manna, hlaut 7,818 atkvæði og
var kosinn. R. K. Serviss borg-
arstjóri í Galt, liberali hlaut
3,756 atkvæði og John Mitchel
frá Hamilton, C.C.F. fylgjandi,
hlaut 3,582. atkvæði.
Sigurlaug Benson lézt 12. nóv.
að heimili dóttur sinnar, Mrs. I.
Butler, ste. 1 Lori’aine Apts.,
Winnipeg. Hún var 84 ára. —
Jarðarförin fór fram í gær frá
Fyrstu lút. kirkju.