Heimskringla - 28.12.1938, Side 2
2. SÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 28. DES. 1938
ÞORSTEINN GISLASON
RITSTJÓRI OG SKÁLD
Eftir prófessor
Alexander Jóhannesson
Þorsteinn Gíslason varð tæpra
72 ára að aldri (f. 26. jan. 1867
að Stærra-Árskógi í Eyjafirði).
Þeir, sem þessum aldri ná, eru
venjulega búnir að ljúka dags-
verki sínu og svo mun og að
mestu hafa verið um Þorstein.
Han"n hafði raunar í smíðum
stórt skáldverk, er átti að lýsa
baráttu íslenzku þjóðarinnar á
síðustu 40—50 árum og er mér
ekki kunnugt um, hvort hann að
fullu lauk við þetta rit sitt, er
átti að vera í 3 bindum, En til
þessa var hann manna bezt
fallinn.
Hann var bæði skáld og rit-
höfundur og hafði um langt
skeið staðið framarlega í stjórn-
málabaráttunni og kunni því
betur en flestir aðrir skil á lífi
og högum þjóðarinnar á liðnum
áratugum. Hann var mildur
maður og sanngjarn og leit á
hvert mál frá öllum hliðum, ekki
sízt á síðari árum. Kom þetta
glögglega í ljós í þáttum úr
stjórnmálasögu íslendinga, út-
varpserindum þeim, er út komu
1936. Var hann þó einn aðili
í þessari baráttu og mundu flest-
ir telja erfitt að segja hlutlaust
frá stjórnmálaban1,ttu íslend-
inga á síðustu árum. En Þor-
steinn hafði þá fyrir löngu dreg-
ið sig í hlé frá stjórnmálaaf-
skiftum, hann var orðinn áhorf-
andi og umgekst að jöfnu menn
af öllum flokkum. Skoðanir
hans voru að ýmsu leyti breyttar
og hann gerði sér far um, með
ró hins reynda manns, að athuga
kjarna hvers máls og benda á
höfuðdrættina í atburðum lið-
inna tíma. Þessi síðasti kafli
æfi hans var eins og eftirmáli
langs og viðburðaríks leiks, er
hann áður hafði tekið þátt í af
miklum áhuga og harðfylgi, er
hann stóð framarlega í baráttu
Heimastjórnarmanna. Hann má
vafalaust telja mesta blaðamann
íslands á síðasta mannsaldri, en
auk þess var hann í hópi bestu
skálda og rithöfunda þjóðarinn-
ar. Hann gerðist á unga aldri
ritstjóri Sunnanfara (1894—’95
og 96—’98), fslands (1897—’99)
Bjarka (1901—’04 og Lögréttu
og Óðins frá 1906 og alt til síð-
ustu tíma og var auk þess um 3
ára skeið ritstjóri Morgunblaðs-
ins (1921 og næstu ár). Var þá
1 raun og veru sú hugarfars-
breyting orðin, að honum var ó-
Ijúft að standa í stjórnmála-
þjarki og blaðaskömmum. Lög-
rétta tók þvi stakkaskiftum og
varð tímarit, þar sem hann birti
margar ritgerðir bókmentalegs
efnis, um hugðarefni sín um
skáldskap og listir, einkum um
íslenzk skáld eins og Jónas og
Matthías, Ben. Gröndal, Gísla
Brynjólfsson, Grím Thomsen og
Hannes Hafstein o. fl. Hvílík-
ur munur á Lögréttu síðustu
árin og t. d. 1910, er ritstjóra
Lögréttu var stefnt í 30 meið-
yrðamálum og útlit var fyrir
nokkur hundruð meiðyrðamál
út af stjórnmálum. Til hinnar
víðtæku blaðastarfsemi Þor-
steins má telja hið mikla rit
hans um heimsstyrjöldina, er
kom út 1924, nærri 1000 bls. að
stærð. Dró hann saman allar
fréttir um heimsstyrjöldina og
samdi úr þeim alþýðlegt fræði-
rit, greinargott og skilríkt, eins
og vænta mátti. En jafnframt
þessum afkastamiklu blaða-
skrifum og stjórnmáladeildum,
lifði Þorsteinn alt sitt líf í heimi
skáldskaparins. Sjálfur var hann
ágætt skáld, orðhagur og snjall
á íslenzka tungu, vandvirkur í
besta lagi, svo að varla er blett-
ur eða hrukka á flestum kvæð-
um hans. Þau eru að vísu fæst
stór eða fyrirferðarmikil, en Ijúf
og mild eins og höfundurinn.
Gaf hann út 3 söfn eftir sig,
fyrst Nokkur kvæði 1904, þá
Ljóðmæli 1920 og loks Önnur
ljóðmæli 1921 (og eru í því safni
ýmsar ágætar þýðingar), en
1925 hafði hann gefið út Dægur-
flugur er voru einkum gaman-
kvæði, er þá voru víða sungin.
Þorstenin kyntist á unga aldri á
stúdentsárum sínum í Kaup-
mannahöfn höfuðskáldritum
heimsbókmentanna í nálægum
löndum og hefir þýtt á íslenzku
margar sögur eftir ýmsa höf-
unda (Björnson, Zola, Maupass-
ant, Chamisso, Kipling, Sienkie-
wicz, Walter Scott o. fl.) og
engu síðri eru ljóðaþýðingar
hans margar eftir Shelley, Ib-
sen, Björnson,-Goethe, Fröding,
Heine, Th. Moore, Musset o. fl.
Þessi kynni hans af erlendum
skáldskap og einkum þýðingar
hans urðu til þess að skerpa
skilning hans og næmleika á
ljóðræna fegurð. Var hann því
y) Vín Vísdómur
$ eftir
BRIGHT
Það er eitthvað sem góð vín hafa
við sig. Tvefaldaðu máltíðar gleð-
ina í kvöld. Hafið HERMIT PORT
eða HERMIT SHERRY á borðum.
Með því að bragða það, skiljið þér
hvernig á því stendur að svo marg-
ir taka Bright’s vínin fram yfir
önnur.
V
Sri<s
‘óhtS
W I N E S
HERMIT PORT
C O N C O R D
HERMIT SHERRY
CATAWBA
This advertisment is not inserted by the Government Liquor Control Commission. The
Commission is not responsible for statements made as to quality of products advertised.
um langt skeið talinn meðal
helstu ljóðskálda þjóðarinnar, en
formfegurð hans, víðsýni og
snild í framsetning varð til þess,
að hann var jafnan kjörinn til
þess að yrkja hátíðaljóð við
ýmis tækifæri, t. d. háskóla-
ljóðin, er enn eru sungin í hvert
sinn við háskólasetningu.
Þorsteinn var mikill vinur
1 ýmissa skálda og gerðist hann
eitt skeið allmikill bókaútgefandi
og gaf þá út rit þeirra Jóns
Trausta, Einars H. Kvarans og
annara og á því sinn þátt í þeim
miklu vinsældum, er bækur þess-
ara manna hlutu. Það var í
raun og veru undravert, hve
miklu hann fékk áorkað af rit-
störfum, er litið er á hin um-
fangsmiklu störf hans, skáld-
skaparrit og stjórnmáladeilur,
bókaútgáfu og bókaverzlun um
eitt skeið auk allra þeirra blaða
og tímarita, er hann veitti for-
stöðu. Hann var hæglátur og
rólegur að eðlisfari og virtist
ætíð eiga nógan tíma til rabbs
og ráðagerða, þótt prófarkalest-
ur og prentsmiðjuheimsóknir
væri aðkallandi. Hann hefði
því vel getað valið sér að kjör-
orði festina lente (flýttu þér;
hægt).
Nú er hann horfinn eftir langt
og mikið dagsverk. Tímans rás
heldur áfram og ný kynslóð er
• tekin við störfum hans. En þeg-
ar saga þjóðarinnar verður rit-
uð um síðustu áratugi, um þáj
mestu framfaraöld, sem yfir ís-l
land hefir gengið, verður einnig;
minst þeirra manna, er stóðu
framarlega í fylkingu, manna
eins og Þorsteins Gíslasonar, er
áttu sinn verulega þátt í því að
vekja þjóðina af aldagömlum
svefni til dáða og framsóknar á j
öllum sviðum. íslenzkri menn-i
ing var þröngur stakkur búinn'
langt fram á 19. öld. Skáld og
hugsjónamenn ;risu upp, einn
eftir annan, er reyndu að opna
gluggana í hinum þröngu and-j
legu húsakynnum þjóðarinnar
að Evrópumenningunni, svo að
hressandi andblær sunnan úr,
löndum fengi vakið þjóðina. —
Starfi þeirra er nú haldið áfram
af enn meiri áhuga en nokkru
sinni áður og í því eru fólgin
fegurstu laun þeirra forystu-
manna, þeirra vormanna íslands,
er ruddu brautina, en í þeim
hópi var Þorsteinn Gíslason, —
Requiescat in pace.
—Mbl.
VIÐBURÐA REGISTER
YFIR ANNO 1939
sem er þriðja ár eftir hlaupár
er leyfilegt, að bæta við eftir
vild, og eins, að flytja atburðina
frá einum mánuði til hins, fram
og til baka, eins og bezt hentar.
Janúar—
Nýársdagur kemur á fyrsta
sunnudaginn. — Þann dag hand-
langa Upham-búar blessuð jólin
í endurfæddri útgáfu frá séra
Karli. — Þrettáncjinn yerður
þann sjötta. — Prestar og toll-
heimtumenn skiftast á heillaósk
um eins og undanfarið. — Allir
mæna á næstu þing, vonandi þau
verði stutt og snubbótt. — Keli
heldur veðurguðinum bankvit í
þakklætisskini fyrir gott tíðar-
far. — Það verða aðeins fjórir
borgunardagar í mánuðinum en
þyrftu að vera sex. — Heims-
kringla minnist fyrverandi
stjórnarformanns skælandi. —
Jón forseti aftur kjörinn forseti.
— Nafngreindir ' merkismenn
eiga afmæli: Tennyson, Sweden-
borg, Friðrik mikli og — eg.
Febrúar—
Dagarnir lengjast en eru að-
eins 28, svo ekkert hefir áunnist.
— Heimilisfeður panta meiri
eldivið. — Kvenfélögin senda
hvert öðru valentine þann fjórt-
ánda. — Þingið skiftist í þrjú
horn og gerir alla ánægða. —
Salóme herðir róðurinn. —
“Ladies first,”' segir Oddur. —
Þjóðræknisþingið sett, búist við
hvelli, forsetinn tekur í nefið
og ræður sínum ráðum. —
Frénsmót: Karlakórið syngur,
Ragnar slær taktinn, Gunnar sit-
ur við hljóðfærið, svo byrjar
ballið. — Fæddir eru: Edison,
Lincoln, Kopernikus, Longfel-
low og Dickens.
Marz—
Norðanvindur af vatninu ger-
ir alla óánægða nema Kela. —
Gjaldendafélagið sendir bæjar-
stjórninni þakkarávarp fyrir
sparsemi í bæjarþarfir. —
Sánkti Patrekur haldinn helgur
þann seytjánda. — Útlit fyrir að
þingið verði sammála um skatta
málin, en þá tekur stjómin til
sinna úrræða og semur nýtt
skattafrumvarp og hrærir öllu
saman, og vinnur hylli kjósenda.
— Jafndægur þann tuttugasta
og fyrsta. — Lögberg litli ber
þyngdarlögmál stjórnarinnar
fyrir brjóstinu. — Júði rekur
augun í Steina og heldur að
Hitler sé kominn; áttar sig þó er
málið skýrist. Sá eini sem getið
er um að fæðst hafi er Sigurður
Breiðfjörð.
Apríl—
og fimta ár eftir sumarauka.
Eg svaf órólega aðfaranótt
Imbrudagsins, en með aftureld-
ingunni steinsofnaði eg. Dreym-
ir mig þá, að ljómandi falleg
stúlka í skínandi klæðum, hald-
andi í hægri hendi á gullroðnum
tólfgreina kertastjaka, með log-
andi ljósi á hverri grein, stend-
ur við rúmstokkinn hjá mér og
sækir ákaft upp í til mín. Og
þar endaði draumurinn. Eg ræð
hann þannig, að mér beri að taka
saman viðburða-almanak fyrir
næsta ár. — Einu sinni í firnd-
inni samdi eg viðlíka dokúment,
og sendi það þá samstundis til
vinar míns Gunnars Björnsson-;
ar. Tókst það svo snildarlega,
að eg hefi aldrei heyrt neitt um
það meira, sem varla mun held-
ur von, því athuganir mínar
munu hafa verið talsvert á reiki,
því þá bygði eg mest á gangi
reyk- og halastjarna, og það
mun Gunnar strax hafa komið
auga á. En í þessu hérna er
öðru máli að gegna, því nú hefi
eg eingöngu farið eftir hringsóli
fasta- og lausastjarna^ með
nákvæmum samanburði við sec-
tionirnar, townshipin og range-[
in í Thorgeirsson’s almanakinu
undanfarin ár. Og það gerir all- j
an muninn. Vil eg því mælast
til, eins og Hallgrímur Péturs-
son, að góðfús lesandi láti þetta
óbreytt standa. En aftur á móti:
Austanrigning í stað kulda-
J slyddu gerir alla ánægða nema
Kela. — Fyrir sérstaka beiðni
tískukvenna verða páskar í
þessum mánuði. — Hænur hætta
að verpa og egg hrapa í verði. —
Konur trimma gamla páskahatt-
inn í tíunda sinn. — Haldið upp
á sumardaginn fyrsta með pró-
grami af eldri konum. — Frétt
frá Árborg hermir að Gísli muni
leggja Nýja-ísland undir prent-
verkið. — Þingið fýkur um koll
af rifrildi eins og fyrri. —
Fundur hjá Social Credit;
Hjálmar vatnar músum yfir
flónsku og þjösnaskap landans
sem flutti frá Edmonton. —
Fæddir eru: Lister, Zola og
Kristján IX.
Maí—
Sökkursveiði fyrir alvöru byrj-
ar hjá öllum. — Havarí í hverju
húsi útaf stormhurðum og
gluggum eins og undanfarin ár.
— Allir skifta um nærföt og iðr-
ast þess næsta dag. — Þingmenn
lofa öllu fögru, hver í sínu kjör-
dæmi, næsta ár. — Sigfús hættir
að mála. — í þessum mánuði
hefst New York-sýningin, og
sézt þá enginn landi í öllu Norð-
vesturlándinu nema doktor Sig-
urður — hann situr aðgerðalaus
heima. — Flaggað verður þann
tuttugasta og fjórða og kemur
engum saman um hvernig flagg-
ið á að snúa. — Afmæli eiga:
Viktoría drotning^ Þormóður
Torfason og Hannes biskup
Finnsson.
Júní—
#
Hlýrra veðri spáð. — Flestir
vinnulausir, lofað vinnu seinna.
— Allir bílaeigendur flytja til
Gimli, almennur fögnuður í bæn-
um. — Sólstöður þann tuttug-
asta og annan. — Kirkjuþingin
sett hvert í sínu lagi; alt fer
friðsamlega; allir endurkosnir;
ræður fluttar um umönnun
missónera og blágrýti í hjörtum
utanveltubesefa. — Þeir sem
geta, og ekkert hafa annað að
gera, trúlofast í þessum mánuði.
Þá kveður Gísli þessa vísu, eftir
skáldið á Sandi4 svo undirtekur
í púlrúminu:
“Margur blásinn belgur sprakk
—bljúgur laut aið fróni,
í sem glettin ungfrú stakk
ástar títuprjóni.”
Afmæli eiga: George VI., Jón
Sigurðsson og Sveinbjörn Svein-
björnsson.
Júlí—
Frídagur þann fyrsta, eins og
í fyrra; pólitíin biðja um róleg
og hávaðalaus hátíðahöld. —
Arinbjörn heldur ræðu og sýnir
myndir. — Einhver rakst á Can-
ada 1534 í fyrsta sinn. — Svar-
dagar í Kópavogi fyrir löngu. —
Sílagangur í Winnipeg-vatni svo
mikill að öll net rifna; Beita
verður Ijóð að munni. — Æskan
streymir til Hnausa. — Gúttar
halda pikknik og ræðu; Ásbjörn
situr iheima — engin kendur
sem hann kemur ekki; Joe stýrir
söngnum á heimleiðinni, allir
taka undir, ber ekki á neinum.
— Calvin bara fæddur en fjöldi
dáinn.
Ágúst—
Hundadagar enda þann tutt-
ugasta og þriðja. — Fimm
hundruð og seytján bílar of-
hitna af tollhækkun á gasolíu. —
Winnipeg-búar hæla loftslaginu
í bænum. — Mýið er svo mikið
á Gimli að allir fara í vatnið. —
Þjóðminning íslendinga á lei-
bordaginn; heiðursgestir hæla
þeim á íslenzku og eru langorðir^
en ákaflega spennandi og fram-
úrskarandi kitlandi; dans að
kveldinu við yngismeyjar þjóð-
flokksins. — Afmæli er talinn
að eiga Jón Eiríksson.
September—
Verkamannadagur með til-
héyrandi skrúðgöngu fyrsta
mánudag mánaðarins. — Skóla-
og mæðra-andstreymi byrjar. —
Keli spáir hörðum vetri. — Mik-
il uppskera en ekki nóg fyrir
flutningum. — Fyrsta skuld
vetrarins hafin. — Séra Baker
prédikar um kargaþýfi í vín-
garðinum undir,,berum himni. —
Jafndægur þann tuttugasta og
þriðja. — Bara tveir fæddir:
Björn Gunnlögsson og Kristján
X.
Október—
Mikið af húsmunum krambúl-
erað í flutningi. — Tré fella lauf
og hofróður fara að dæmi þeirra.
— Tóbak og brennivín og aðrar
nauðsynjavörur falla óskaplega í
verði. — Havarí í hverju húsi
út af skrínhurðum og gluggum
eins og undanfarin ár. — Vetur-
inn kemur þegar honum sýnist.
og— Nikk fer á fisk-, fugla- og
dýra-veiðar. — Halloween með
sama formála og í fyrra frá
pólitíunum. — Columbus lenti á
Ameríku þann tólfta. — Haldið
upp á Thanksgiving með pró-
grami af yngri konum. — Tyrkj-
ar ófáanlegir. — Fæddir eru:
Pétur Pétursson biskup og Jón
Thoroddsen.
Nóvember—
Vopnahlésdagurinn þann ell-
efta; allir sem gengið geta fara
í skrúðgönguna. — Bæjarráðs-
kosningar; gífurleg hátíðahöld
í vesturbænum yfir sigurvinn-
ingum landans. — Heimskringla
kemur út í 54. árgangi í sama
broti og góðu árferði. — Arin-
björn sýnir myndir og ræðu. —
Prestur safnaðarins vex upp úr
söfnuðinum og fer á vergang. —
Oddvitinn útvegar kaupendur að
heyi; öfund yfir bjargráðum
sveitarinnar magnast. — Nikk
kemur aftur með fullfermi. —
Mesti sægur afmæla: Luther,
Fiske, Herschel, Jónas Hall-
grímsson, Albert Thorvaldson og
Pétur Guðjónsson.
Desember—
Fullveldisdagur íslands þann
fyrsta; víxskeytum skifst á;
lofsöngur og þakkargjörð frá
báðum hliðum. — Húsfrúr skera
niður jólalistann. — Palli aug-
lýsir reykt sauðakjöt af íslend-
ing. — Sólhvörf þann tuttugasta
og annan. — Mikleyingar kaupa
Holiday Delivery Service
For the convenience of our customers
we will accept orders for delivery
Until 11 p
We will be closed all day January 2nd
Phone 57 241
The Riedle Brewery Limited
WINNIPEG, MAN.
Independently Owned and Operated
[BoTTLED BeErW Bníír™- ^
CuutsmsiiSw “OTTLWfc, ^
|Bmtish EKf-IRS ('.ITkeEek.eEBBíto!
. l»37/W/iXVv LTa Jfá
AWARDCO
THE OOLO CHAMPIONSHIP MEDAk
•ILVER AND BRON2C MC0AL9
LONDON ENGLAND
1937
This advertisment is not inserted by the Government Liquor Control Commission. The
Commission is not responsible for statements made as to quality of products advertised.