Heimskringla - 15.02.1939, Síða 7

Heimskringla - 15.02.1939, Síða 7
WINNIPEG, 15. FEB. 1939 HEIMSKRINGLA 7. SÍÐA SELMA LAGERLÖF 80 ÁRA Hinn 20. nóv. s. 1. varð sænska skáldkonan Selma Lagerlöf átt- ræð. Með eftirfarandi línum verður gerð tilraun, til að hnýta henni ofurlítinn blómsveig í þakklætisskyni fyrir það, sem hún hefir gefið lesendum sínum með hinum frábæru og góðu skáldritum. Selma Lagerlöf er fædd í Vermalandi í Svíþjóð, og býr í fæðingarstað sínum. Vegna heilsuleysis fékk hún næði til að lesa mikið í æsku og byrjaði snemma að skrifa sjálf. Hún var nokkur ár kenslukona við barnaskóla, en helgaði sig svo al- gerlega ritstörfum. Köllun henn- ar til að skrifa heimtaði tíma hennar allan og óskiftan. En þó hún hætti að kenna.börnum, hef- ir hin gáfaða og hugmyndaríka skáldkona ekki hætt að kenna. Allir lesendur hennar eru læri- sveinar. Og þegar hún lýsir bezt mannlífinu með sigrum þess og ósigrum, er það hart hjarta, sem ekki kemst við. Fyrsta bók hennar var “Gösta Berlings saga”. Efni bókarinn- ar eru ýmsar sagnir úr átthög- um hennar. Mikið af því eru sögur, sem amma hennar sagði henni, þegar hún var barn. Það er fjölbreytt og lifandi bók. Þó er hún ekki skrifuð um neitt vist málefni. Hún er skrifuð af þörf skáld^irts, sem þarf að túlka þær sýnir, sem það sér. f Bókin minnir á þann gamla' sannleika, að mannlifið er það dýrðlegastaf sem til er, og býr yfir ótal möguleikum. Sagan af Gösta Berling er ekki nein siðgæðisprédikun, þar er lýst drykkjuskap og slarki og ýmsu lágu og ljótu. En yfir þessum lýsingum hvelfir sér hinn blái himinn, og þó hann sé oft hulinn skýjum og þoku, sézt þó rofa í hann altaf öðru hvoru. Það er lýsingin á því að það bezta í hverri mannssál, jafnvel hjá þeim, sem dýpst eru sokknir, sigrar þó að lokum. Á þann hátt gerist hún boðberi hins göfug- asta siðgæðis. f þessari fyrstu bók Selmu Lagerlöf kemur strax fram þessi undursamlegi hæfileiki hennar, að sjá hlutina innan frá, en láta sér aldrei nægja að lýsa hinu út- liti þeirra. Þetta er aðalsmerki hennar sem skálds, og mihnir hún í því mikið á æfintýraskáld- ið fræga H. C. Andersen. Fjórar sögur Selmu Lagerlöf hafa verið þýddar á íslenzku: Jerúsalem, Föðurást, Helreiðin og Njálssaga þumalings. Jerúsalem lýsir bændum í Döl- unum og áhrifum þeim, sem heittrúarstefna í trúmálum hefir á þá. Verður þar alvarlegur á- rekstur milli átthagaástarinnar og hinna nýju kenninga. Síðari hluti sögunnar gerist í Jerúsal- em. Lýsingin á Ingimörunum í þessari bók er eitt af því bezta, sem Selma hefir skrifað. f Föðurást lætur hún vitskert- an bónda, sem þykist vera keis- ari í Portugal, túlka djúpa speki og framsýni á einfaldan hátt, sem hinir vitru menn sjá ekki. Það er eftirtektarvert, að bókin kom út sama árið og þjóðhöfð- ingjar Evrópu steyptu þjóðun- um út í hið ægilega blóðbað heimsstyrjaldarinnar. — Getur ekki skeð, að hinir vitru hefðu ástæðu til að setjast við kné ein- feldningsins og læra þar einföld, andleg lífssannindi enn þann dag í dag? Annars hefir Selma Lag- erlöf notað svipað efni í fleiri sögum sínum, þar sem hún lætur umkomulítið olnbogabarn flytja þau sannindi, sem hún vill boða mönnunum. í Helreiðinni lýsir hún sínu gamla efni á mjög einkennilegan hátt, að maðurinn sé af náttúr- unni og guði dásamlegt undur, sem búi yfir háleitum möguleik- um, hve djúpt sem hann er sokk- inn. Jafnframt er bókin vitnis- burður um hina fórnfúsu ást konunnar. Hér verður ekki getið fleiri bóka sérstaklega, þó ýmsar af smásögum hennar og líkingum séu kannske það bezta, sem hún hefir skrifað. En hvort sem Selma Lagerlöf skrifar um sænskt efni eða útan úr heimi, þá er rödd hennar auðþekt, ólík öllum öðrum. Hún hefir sam- einað það hvorttveggja prýði- lega, sem við þekkjum frá Matt- híasi Jochumssyni, að vera í senn sannur föðurlandsvinur og víðsýnn heimsborgari. Selma Lagerlöf er ein af þeim skáldum sem sér, að það er bar- átta hins góða til sigurs, sem gefur lífinu gildi, en samtímis er hún svo trú veruleikanum, að hún gengur ekki fram hjá ósigr- unum, sem óumflýjanlega fylgja með. Og undirstraumurinn í öll- um hennar ritum er trúin á það góða í hverri mannssál, sem sigri að lokum. En það, sem gefur henni þessa trú, er það, að hið góða í mönnunum standi í órofa sambandi við æðri völd. Þess vegna er grundvöllurinn undir mörgum skáldritum henn- ar dulrænn og trúarlegs eðlis. Þaðan hefir hún bjartsýnina og þann kraft, sem hefir hjálpað mörgum til að eignast meiri lífs- trú og lífsgleði. Eiríkur Sigurðsson —Dagur, 22. des. . 1 MÍN FYRSTU JóL OG NÝÁR 1 AMERÍKU Eftir Kristínu í Watertown Framh. Fallegt heimili með hreinlæti og reglusemi, sagði Sigríður frá Ljósavatni. Já, falleg kinda- hjörð með breiðu bökin og síðu ullina hvíta sem mjöll er ljóm- andi sýn sagði Stefán frá Ljósa- vatni. Já, gullfalleg sagði pabbi. Eg held eg taki undir með skáldinu, sagði Stefa frá Búa- stöðum: Ekkert fegra á fold eg leit, en fagurt kvöld á haustin. Aftan sunna þegar þíð um þúsund litan skóginn, geislum slær og blikar blíð, læði um lönd og sjóinn. Er hægt að hugsa sér nokkuð fegurra; þessir mörgu litir eru svo mildir og geðfeldir að himn- eskt og andlegt má lesa af grein- um trjánna. Já, það er dýrðleg sýn, sögðu nú margir. Það fegursta sem eg hefi augum litið, sagði Guð- rún Sigvaldason, er skrúðganga af ljósklæddum börnum. Það er yndisleg sýn. Það er svo auð- velt að biðja til Drottins fyrir börnunum. Þá kvað einhver í hópnum: Unun ljúfust er það mín, engla þíðist vörðinn, dygðum búin, dýr og fín Drottins lamba hjörðin. INNKOLLUNARMENN HEIMSKRINGLU I CANADA: Amaranth..............................J. B. Halldórsson Antler, Sask..........................K. J. Abrahamson Árnes.............................. Sumarliði J. Kárdal Árborg...............................G. 0. Einarsson Baldur...............................Sigtr. Sigvaldason Beckville...............................Björn Þórðarson Belmont....................................G. J. Oleson Bredenbury..............................H. O. Loptsson Brqwn...............................Thorst. J. Gíslason Churchbridge_________________________H. A. Hinriksson Cypress River...........................Páll Anderson Dafoe....................................S. S. Anderson Ebor Station, Man......................K. J. Abrahamson Elfros.............j.................J. H. Goodmundson Eriksdale.................\.............ólafur Hallsson Fishing Lake, Sask..............................Rósm. Árnason Foam Lake..............................H. G. Sigurðsson Gimli....................................K. Kjernested Geysir.............................................Tím. Böðvarsson Glenboro...................................G. J. Oleson Hayland................................Slg. B. Helgason Hecla.................................Jóhann K. Johnson Hnausa..................................Gestur S. Vídal Húsavík.................................John Kernested Innisfail............................Ófeigur Sigurðsson Kandahar................................S. S. Anderson Keewatin...............................Sigm. Björnsson Langruth..................................B. Eyjólfsson Leslie............................:...Th. Guðmundsson Lundar........................Sig. Jónsson, D. J. Líndal Markerville......................... Ófeigur Sigurðsson Mozart..................................S. S. Anderson Oak Point..............................Mrs. L. S. Taylor Oakview...................................[ S. Sigfússon Otto......................................Björn Hördal Piney...................................S. S. Anderson Red Deer........................................Ófeigur Sigurðsson Reykjavík..................................Árnl Pálsson Riverton...........................................Bjöm Hjörleifsson Selkirk---------------------------- Magnús Hjörleifsson Sinclair, Man.......................K. J. Abrahamson Steep Rock.................................Fred Snædal Stony Hill................................Björn Hördal Tantallon..............................Guðm. Ólafsson Thornhill...........................Thorst. J. Gíslason Vfðir...................................Aug. Einarsson Vancouver..............................Mrs. Anna Harvey Winnipegosis...................................Finnbogi Hjálmarsson Wlnnipeg Beach.........................John Kernested Wynyard...................................S. S. Anderson í BANDARÍKJUNUM: Akra..................................Jón K. Einarsson Bantry.................................E. J. Breiðfjörð Bellingham, Wash..................Mrs. John W. Johnson Blaine, Wash...................Séra Halldór E. Johnson ravalier..............................Jón K. Einarsson Crystal..............................Th. Thorfinnsson Edinburg.............................Th. Thorfinnsson Garðar...............................Th. Thorfinnsson Grafton..............................Mrs. E. Eastman Hallson...............................Jón K. Eiinarsson Hensel.................................J. K. Einarason Ivanhoe............................Miss C. V. Dalmann Los Angeles, Calif....Thorg. Ásmundsson, 4415 Esmeralda St. Milton—...-................................S. Goodman Minneota...........................Miss C. V. Dalmann Mountain.............................Th. Thorfinnsson National City, Calif......John S. Laxdal, 736 E 24th St. Point Roberts........................Ingvar Goodman Seattle, Wash.........J. J. Middal, 6723—21st Ave. N. W. Svold................................Jón K. Einarsson Upham...................................E. J. Breiðfjört The Viking Press Limiteð Winnipeg, Manitoba Það fegursta sem eg hefi séð, sagði Bjarni frá Hofi er fögur lending með skipaflota, enda er það tignarleg sýn. (Bjarni frá Hofi og Stefa frá Búastöðum eru hin alkunnu merkishjón Mr. j og Mrs. B. Jones, sem lengi hafa ! búið í Minneota). Það er hafið, sagði Jón Stef- ánsson, eitt skáldið hefir sagt að hafið sé fegursti partur hnatt- arins. Já, þegar stærsta höfuðskepn- an ræðst ekki á það, sagði Siggi Sigvaldason, og æsir það upp með hræðilegum ofsa. Það fegursta sem eg hefi séð, sagði Pabbi, er miðnætur sól- skinið á íslandi; það er himnesk dýrð; trúað hjarta krýpur á fót- skör Drottins í tilbeiðslu og þakklæti. Það fegursta sem eg hefi séð sagði Siggi Jósephson frá Hofi, eru hinir drýðlegu vormorgnar, þegar eg var á ferðum mínum frá Hofi niður á Vopnafjörð; sveitin var svo skínandi fögur, túnin blikuðu í sólskininu, fugla söngurinn svo yndislegur, alt sýndist brosa í ljósinu. Það er fullvaxin hveitiakur, sagði Aftjert á Breiðumýri, þess- ar leikandi silfuröldur á gullsjó er unaðsleg sýn. Ó, yndisleg, sögðu nú margir. Alt þetta er það fegursta á jörðunni, sagði Árni. Samt er enn eitt, sem ber af því öllu, það er sólarljósið, því það skreytir jörðina dýrðar ljóma ljóssins og döggina demants perlum. Já, það er ljósið, sögðu nú margir, þarna kom það. Eg hefi ekki sagt meining mína, sagði Siggi, Komdu þá með það, sagði Árni (þeir eru bræður). Það fallegasta sem eg hefi augum litið, er falleg stúlka. Nú varð láfaklapp mikið og hlátur. Bíddu við, sagði ein konan, þetta er ekki fjarri sanni, því eitt bezta skáldið segir í ljóði: Ei er kyn þótt barnið blíða brosi skært og mærin fríða, fegurst fold er ól.—V. B. Þetta segir skáldið; annað skáld líkir sólinni við kvenfólk- ið, ekki kvenfólkinu við sólina, eins og svo oft hefir verið gert. Með slegið gullhár gengur sól, sagði skáldið. Þarna sjáið þið, sagði Siggi, eg er skáld þó eg yrki ekki. —, Samt slæ eg því föstu, að sólin og falleg stúlka séu hver annari dýrðlegri og hvað elskar sér líkt, | segir máltækið. Enn sem komið er, sagði mamma, hefi eg ekkert séð feg- j urra en sveitina mína heima í blóma sumarsins; alt var lifandi og talandi máli gleðinnar, fugl- arnir, lömbin, blómin og punt- stráin. Þetta finst mörgum, sagði Árni. Eg hefi hér fáein orð sem eg vildi lesa, efnið er “Vor- morgun á Norður-íslandi”: Júní mánuður er í sannleika j gullöld ársins á Norðurlöndum heimsins, þegar miðnætursólin brosir við landi og lýð, steypist af vesturf jöllunum niður að haf- inu, miðast svo áfram með gull- skrúðann í sjónum, sitt eigið dýrðlega endurskin, kemur svo að austurfjöllunum, hefir sig nú upp en þarf nú að hverfa litla stund bak við yzta hnúkin á gömlu gjögrum. gægist svo út að sunnan eins og brosandi barnsandlit, sem er að fela sig fyrir leiksystkinum sínum. — Breiðir svo geislandi gullroðann um austurloftið, ljósgrá ský ofan við sólina sýnast brydd gulli og fóðruð silfri, himininn heiður og blár, hafið skínandi bjart, segir skáldið. Hreyfing og þytur heyrist nú í holtum og móum, fuglarnir spretta úr hreiðrum sínum og byrja að syngja morgunsálminn með fögnuði. Lóan syngur bíb„ dýrðin dýrðin; sólskríkjan með sinn hýra gleðisöng hoppar um loftið af fögnuði, gaukar - NAFNSPJÖLD - "1 " Dr. M. B. Halldorson 401 Boyd Bldg. Skrlístofusíml: 23 674 Stundar sérstaklega lungnasjúk- dóma. & að flnnl 6 skrifstofu kl. 10—12 f. h. og 2—6 e. h. Helmlli: 46 Alloway Aye. Talsími: 33150 Thorvaldson & Eggertson Lögfræðingar 702 Confederation Life Bldg. Talsími 97 024 Orrica Phonk Ris. Phonk 87 293 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 109 MKDICAL ART8 BUILDINO OrncK Houks: 12 - 1 4 p.m. - 6 r.M. 4ND BT APPOINTMBNT W. J. LINDAL, K.C. BJÖRN STEFÁNSSON ÍSLENZKIR LOGFRÆÐINOÁR tk öðru gólfi 325 Main Street Talsimi: 97 621 Haía einnig skrifstoíur að Lundar og Girnli og eru þax að hitta, fyrsta njiðvikuda* 1 hverjum mónuðl. Dr. S. J. Johannes.ion 272 Home St. Talsiml 30 877 VlOtalstiml kl. S—5 e. h. M. HJALTASON, M.D. ÁLMENNÁR LÆKNINGáR Sérgrein: Taugasjúkdómar Leetur úti meðöl í vlðlögum VlBtalstímar kl. 2—4 *. k. 7—8 að kveldinu Sími 80 867 666 Viotor 8t. J. J. Swanson & Co. Ltd. RKÁLTORS Rental, Inturance and Financial Ágente Slml: 94 221 600 PARIS BLDO.—WlnnlpeR A. S. BARDAL selur llkkistur og annast um útfar- ir. Allur útbúnaður sá besti. Ebmfremur selur hann allskonar nxlnnlsvarða og legsteina. 843 SHERBROOKB 8T. Phone: 06 607 WINNIPBO Gunnar Erlendsson Planokennart Kenslustofa, 796 Banning St. Simi 89 407 THL WATCH SHOP Thorlakson Baldwin Dlamonds and Wedding Rings Agents for Bulova Watcheg Marriage Licenses Issued 699 Sargent Ave. Jacob F. Bjamason —TRANSFER— Baggage and Furniture Moving 691 SHERBURN ST. Phone 35 909 Annast allskonar flutnlnga fram eg aftur um bæinn. Rovatzos Floral Shop «06 Notre Dame Ave. Phone 94 964 Freeh Cut Flowers Dally Plants in Season We specialize in Wedding & Concert Bouquets * Funer&l Desígns Icelandlc spoken V DR. A. V. JOHNSON DENTIST 506 Somerset Bldg. Office 88124 Res. 36 888 MARGARET DALMAN TEÁCHER OF PIÁNO 054 BÁNNING ST. Phone: 26 420 hneggja, spóinn vellur í löngum lotum af gleði og ánægju, kjóinn er nú á seyði með slagvizku sína. Túnin eru iðgræn, sóleyjan og fífillinn eru með blíðu brosi að tala saman um ást og fegurð. Puntstráin með gullfaxið efst á stöng, vaggast í morgunblæn- um. Fjöllin eru með flýtir að týja sig í grænan sumarskrúða og hvítar húfur hnjúkanna fær- ast ofar á ennið; ár og lækir líta út sem silfurlínur og þræðir nið- ur hlíðar og undirlendi, bullandi sinn sæta nið, fossarnir eru sem iðandi kristals búnki, syngjandi með sinni einkar fullkomnu und- irrödd, eins og djúp og fögur speki. Manni kemur til hugar: Ó foss tímans flýttu þér að um- breytast í kristals strauminn, sem rennur frá hásæti Drott- ins.—Opinb. 22. kap. Fjörðurinn fagri og lygni, sem kendur er við sviphýru eyjuna, sem liggur fyrir fjarðarmynni, speglast ljósblár í sólskininu, dökkar agnir sjást víða um fjörðinn, það eru bátar fiski- manna, sem nú eru að draga inn línur sínar þungar af fiski. — Eitt skáldið kallar sjómenskuna sigurstrit; á það vel við; eru sjó- menn vanalega glaðir og frjálsir, því sigurinn yfir stritinu gefur þeim létta lund. Litlu lömbin leika sér um móa og garða mjallahvít, grá, svört og flekk- ótt. Með hrokkin lagð reyna sig hvert við annað. Kyssast, hoppa og skoppa af gleði og sakleysi; er nokkuð að undra, þó honum meistaranum góða hafi verið líkt Office Phone 21169 Res. Phone 48 551 Dr. K. J. AUSTMANN 309-310 Medical Arts Bldg. Eye, Ear, Nose and Throat Office Hours: 9—12 a.m. Evenings—by appointment only. við lamb; nafnið táknar sak- leysi og sjálfsfórn slíka; um morgna sungu börnin fagrar vor- vísur skáldanna: Vordagar blíðu, ungu ár ilmsæti blær blómskreyttu hlíðar himin hár heiðskír og tær. Þú gullöld árs sem unun býr og yngir hug svo lifnuð önd við ljósi snýr lyftist á flug.—J. Th. Já ísland er skálda heimkynni og lista manna laufskjáli, fegurð náttúrunnar er svo víða ein- kennilega dásamleg að manni kemur til hugar guðleg opinber- un eins og dýrð drottins breiðist yfir það sýnilega. Hjartað fyllist fögnuði og lof- söng sigur hátíð lífsins. Þessi náttúrulýsing er fögur eins og kvæði sagði Árni. Framh. Kaupið Heimskringlu Lesið Heimskringlu Borgið Heimskringlu

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.