Heimskringla - 22.03.1939, Side 3
WINNIPEG, 22. MARZ 1939
HEIMSKRINGLA
3. SÍÐA
Magnús Helgason: .... Birt-
ingaholdtsbræðurnir þrír, þeir er
prestvígðir voru, mintu um
mentun sína og framgöngu á
beztu tegund kaþólskra kirkju-
höfðingja. í kaþólskum sið er
miklu meiri festa og arfgeng
menning, þar sem bezt er til
vandað, en í hinum sundurlausu
mótmælendakirkjudeildum. — í
bezt mentu leiðtogum kaþólsku
kirkjunnar, gætir hins mikla
arfs, og hins mikla andlega
valds, sem flutt er þar með érfð-
um frá kynslóð til kynslóðar.
Magnús Guðmundsson: . ... í
flokki Sjálfstæðismanna var
hann áhrifamikill maður. Hann
ýtti sér aldri fram til mann-
virðinga, en var hlýr og tillögu-
góður um alt samstarf í flokkn-
og gætinn og varfærinn um
framkvæmdir út á við„ Þegar
nýliðar komu í flokkinn á Al-
þingi, leituðu þeir venjulega á-
sjár hjá Magnúsi Guðmundssyni
um frumvörp og tillögur, meðan
þeir voru að fá æfingu um þing-
vinnuna. Og hann lét þessa
hjálp í té með þeirri óeigin-
gjörnu góðvild, sem lengi hefir
einkent íslenzka sveitamenn.
Daníel Daníelsson: .... Skip
leggur frá landi í kvöld, áleiðis
til fjarlægrar stórborgar. Með
því fer mikill ferðamaður sína
síðustu ferð. Líkami Daníels í
stjórnarráðinu er sendur með
þessu skipi til brenslu í bálstofu
Kaupmannahafnar. Svo hafði
hann mælt fyrir sjálfur.
Sveinn ólafsson: .... Skap-
ferli Sveins var þannig háttað,
að hin ensku áhrif urðu þýðing-
armest fyrir þróun hans. Hann
var í hópi íslenzkra bænda og
samvinnumanna hinn enskmót-
aði jfyrirmaður. Inni í borginni
og á þingi þjóðar sinnar var
hann hinn þjóðholli, gætni og
framsýni umbótamaður. Hann
var í bænum ti^ að hafa áhrif á
þjóðmál og hafa áhrif á samtíð
sína. En hann var í sveitinni til
að lifa þvi lífi, sem hann unni
mest. — Ferðir hans tii höfuð-
borgarinnar og til útlanda voru
honum starfsnauðsyn, eins og
Agli Skallagrímssyni, er hann
var langdvölum frá Borg.
Kristbjörg Marteinsdóttir: ...
Þau Yztafellshjónin, Kristbjörg
og Sigurður, munu lengi í minn-
um höfð í sinni sveit, Köldukinn-
inni. Þau voru nokkurskonar
Friðþjófur og Ingibjörg, endur-
borin úr hetjasögunni. Hún var
kvenleg í bezta skilningi, vel
vaxin, fríð, skörungur, þegar
þess þurfti með, en 'lvenjulega
fyrst og fremst boðin og búin til
að bera áhyggjur annara, hjálpa
öllum, sermhún náði til, einkum
þeim, sem annars voru forsælu-
megin í lífsbaráttunni.
Jón Baldvinsson: .. . . f gáfna-
fari Jóns Baldvinssonar gætti
mest þeirra hygginda, sem í hag
koma. Hann var framsýnn og
ráðagóður í bezta lagi. Hann
sá hættur og hættumöguleika
öðrum mönnum betur. Var hann
mjög sóttur að ráðum bæði af
samherjum sínum og mönnum í
öðrum flokkum. Hann var hinn
bezti ráðunautur djörfum mönn-
um og stórhuga, því hann sá
öðrum betur afleiðingar nýrra á-
taka. . . . Jón Baldvinsson minti
um gáfnafar og lífsskoðun mjög
á þá herforingja, sem ná mikilli
frægð fyrir að verja land sitt, en
hneigjast ekki til útrásar á ná-
búa sína til nýrra landvinninga.
Kristján H. Magnússon: . . . .
Kaldir voru jöklarnir í ættlandi
hans. Kaldir voru vindarnir, sem
næddu um hann, þegar hann var
að festa á línið liti og línur fs-
lands, þegar það er bundið í
klakadróma. En kaldari voru þó
kveðjur samlanda hans, lista-
mannanna, listdómaranna og
þeirra, sem unnu list með ást
hins afbrýðissama Farisea.
Sigurður Fjeldsted: .... Sig-
urður var ánægður í sínu ríki,
með jörð sína, bygðina, landið og
alla sína aðstöðu. Hann hugði
lítt á stórbreytingu og átti ekki
ætíð samleið með stéttarbræðr
um sínum, sem ekki höfðu enn
eignast nema konungsríkið hálft
eða varla það. Sigurður var í-
haldssamur að enskum sið. —
Hann hafði erft og ávaxtað þau
verðmæti, sem mikils voru verð,
og honum þótti einsýnt, að ekki
skyldi afhenda eða glata, til að
fullnægja augnablikskröfu tízk-
unnar.
Einar H. Kvaran: . . . . Og
undarlega vildi til, að þó að Ein-
ar Kvaran væri að eðlisfari mikill
friðarmaður og myndi hafa ver-
ið kærast að eyða aldri sínum
eins og Tennyson við skáldskap
á hlýrri og fagurri strönd, um-
vafinn af litfögrum og angandi
blómum, þá höguðu atvikin því
svo, að hann varð alla æfi liðs-
maður í flestum meiriháttar
herferðum, sem háðar voru á
landi hans, frá því hann varð
stúdent og þar til hann var kom-
inn á elliár.
Sigurður Kristinsson: . . . . í
stétt íslenzkra kaupmanna var
einn maður sérstaklega ritfær
og mjög vel hæfur að mörgu
leyti til að ráðast á samvinnu-
félögin. Þessi maður var Björn
Kristjánsson alþm. og fyrrum
aðalbankastjóri í Landsbankan-
um. . . . Bjöm Kristjánsson var
einlæglega sannfærður um skað-
semi kaupfélaganna. Hann hafði
auk þess átt í höggi við þau og
ekki fengið reist rönd við vax-
andi gengi þeirra. Hann var vel
gefinn, skapmikill, unni harðri
félagsmálabaráttu og að ýmsu
leyti vel vígfær. Þessi maður
tók nú að sér að senda Sam-
bandinu það tundurskeyti, er
hann hugði að því myndi endast
til aldurtila. Hann bjó til all-
stórt rit með mikilli leynd og
sendi það með pósti svo að segja
hverju einasta samvinnuheimili
á landinu. . . . Um það leyti,
sem Sigurður Kristinsson flutti
til Reykjavíkur, lýsti gáfaður
Sunnlendingur honum á þessa
leið: Hinn nýi forstjóri er með-
almaður á hæð, grannvaxinn,
fölur í andliti, dökkeygur með
hrafnsvart hár. Hann er prúður
í framkomu, kurteis og hlýr í
umgengni. Hann er fámáll en
tilllögugóður, og reynir *til
lengstu laga að bjarga við
hverju máli. En ef beitt er við
hann frekju og yfirgangi, bregð-
ur fyrir léttum roða á fölum
kinnum, og glampa í augum. Þá
víkur hann málinu til hliðar, og
er ósveigjanlegur eins og klett-
ur, unz tekin er upp betri og
drengilegri málsmeðferð.
Rögnvaldur Pétursson: . . . .
Séra Jón (Bjarnason) hafði
marga þá eiginleika, sem for-
ingi þarf að hafa. Hann hafði
brennandi trú á málefni sínu og
að barátta hans væri réttmæt.
Hann var fús að leggja alla orku
sína í þessa baráttu, án tillits til
borgaralegra hagsmuna. Hann
var alla æfi fátækur maður og
bjó í fremur þröngu og óásjó-
legu smáhýsi. Að útliti minti
hinn stórskorni alvarlegi trú-
maður á suma af skörungum
siðabótarinnar, eins og Calvin
og John Knox. Hann þótti á-
hrifamikill ræðumaður í kirkju
og rithöfundur um trúmál, en í
augum þeirra, sem ekki sáu hann
eða heyrðu, eru ræður hans og
ritgerðir aðallega sögulegar
heimildir. Hin miklu áhrif hans
lágu í því, að hann hafði óbifandi
trú á málstað sínum. Þegar
efinn heimsótti aðra, var sr. Jón
öruggur. Til hans gátu allir leit-
að, sem svignuðu undan andblæ
tímans og þurftu styrktar við.
Jafnframt hinni styrku trú, var
sr. Jón gagnsýrður af íslenzkri
þjóðernistilfinningu. Hann las
stöðugt fornsögurnar og vitnaði
að jafnaði til þeirra í ræðum
sínum og greinum, engu síður én
heilaga ritningu. Hugsjón hans
var að safna löndum sínum í
eina hjörð, bæði í trúarlegum og
þjóðernislegum skilningi.......
Rögnvaldur Pétursson gat,
vegna lífsskoðanna sinna, verið
kominn í beinan karllegg frá
Jóni Lofssyni. Hann var ná-
skyldur og mjög líkur um marga |
hluti í skapferli og gáfnafari sr. í
Arnljóti Ólafssyni. Arnljótur
var prestur og, að því er bezt
verður vitað, unitari. Hann var
hagfræðingur, spakur maður í i
lögum, þingskörungur, fésýslu-
maður og þjóðrækinn í bezta i
lagi. Jafnframt þessu lágu á
vörum sr. Arnljóts spakmæli,
gletni og stundum sárbeitt
fyndni, sem lifir enn í minnum
manna eins og vel kveðin fer-
skeytla. Sr. Rögnvaldur líkist
þessum merkilega frænda í,
mörgum efnum. Hann er í einu
trúmaður og gagnrýninn verald-
arhöfðingi. Hann ihefir erft
mikið af sjálfstæðistilfinningu
stórbændanna í Skagafirði. —
Hann var alinn upp í frjálsmann-
legu bændahéraði í Dakota. —
Það var þess vegna í ætterni,
eðli, uppeldi og samtíðaráhrifum
sr. Rögnvalds nægilega mikið til
að gera hann óhjákvæmilegan
andstöðumann sr. Jóns Bjarna-
sonar, sem um kristindóm bygði
á innblásturskenningunni. — En
auk þeirra sr. Jóns og sr. Rögn-
valds var nú fluttur til Winnipeg
úr Dakota þriðji höfuðskörung-
urinn í liði íslenzkra presta í
Vesturheimi. Það var sr. Frið-
rik Bergmann. — Sr. Friðrik
var barn hins nýja tíma. Hann
var aldavinur Einars Kvarans
og um sumt andlega skyldur
Haraldi Níelssyni. Hann lét
strauma samtíðarinnar falla yfir
sig. Framþróunarkenningin og
hin nýja þýzka biblíugagnrýni
höfðu áhrif á lífsskoðanir hans.
Honum fanst sér vera óstætt
með bókstafs- og innbláturs-
trúna í fangi. Fyr en hann vissi
af, var hann orðinn nýguðfræð-
ingur. — Séra Friðrik hafði átt
frænda sér nákominn, sem mjög i
hefir gætt í félagsmálum íslend-
inga og ekki sízt í kirkj umálun- }
um. Hjálmar Bergmann lög-
fræðingur var alinn upp í Dak-
ota, svo að segja undir vemd-
arvæng sr. Friðriks, er hann var
prestur í Dakota-bygðinni. —
Hjálmar hneigðist ungur að lög-
vísi og lauk lögfræðiprófi í
Bandaríkjunum og síðar í ensk-
um lögum í Canada og gat þess
vegna sótt og varið mál báðum
megin við landamæralínuna. —
Hann settist að loknu námi að í
Winnipeg og gerðist þar lögmað-
ur, og varð brátt einna fremstur
maður í sinni stétt. Komu þar
ekki aðeins til greina góðar gáf- j
ur og skarpskygni, heldur engu;
síður hitt, að hann var vandur
að málum og allra manna kost-
gæfnastur og þrautseigastur að
rannsaka og brjóta til mergjar
þau mál, er hann tók að sér á j
annað borð. Hann hafði óvenju-
legan áhuga á lögfræði og tók
stundum að sér mál fyrir litla}
eða enga borgun til að fylgjast j
með, hversu gangverk laganna j
starfaði við úrskurði um tiltekin j
vandaatriði. Þótti íslendingum
í Winnipeg gott að leita til Berg-
manns, sem von var. — En í
herbúðum sr. Jóns Bjarnasonar
var annar maður, er var með
vissum hætti sú brjóstvörn fyrir
sinn söfnuð, sem Hjálmar Berg-
mann var í liði sr. Friðriks. —
Þessi maður var dr. Brandson.
Hann hafði, svo sem fyr er get-
ið, komið barnungur vestur til
Dakota úr Dalasýslu með for-
eldrum sínum og frændum. Hann
hafði brotist gegnum læknis-
fræðinám á unga aldri og þótti
óvenjulega efnilegur maður. —
Hann flutti tií Winnipeg og gerð-
ist þar skurðlæknir, og fékk það
orð á sig, að hann væri einn fær-
asti handlæknir í öllu l^ndinu,
enda varð hann fljótt kennari í
sinni grein við háskólann þar í
borginni. Síðar varð dr. Brand-
son yfirmaður skurðlækninga-
deildarinnar við háskólann í
Winnipeg. Hann greiddi götu
margra ágætra íslenzkra lækna
í Vesturheimi og var af því bæði
ástsæll og mikils virtur. Dr.
Brandson var ekki aðeins mikill
læknir, heldur áhuga- og áhrifa-
maður um ýms félagsleg málefni
og tók mikinn þátt í félagslífi ís-
lendinga. Hann var snemma
öruggur fylgismaður Jóns
Bjarnasonar í safnaðarmálum,
enda líkur honum um marga
hluti, fastur og óhvikull í lund,
mikill kappsmaður í deilum en
raungóður og hjálpsamur í bezta
lagi.
Bjarni Runólfsson: ,. „ . .
Bjarni Runólfsson var maðal-
maður að hæð, fremur grannvax-
inn, og virtist ekki vera burða-
maður að afli, en mjúkur í
hreyfingum og kvikur á fæti.
Hann var dökkhærður, fölleitur
í andliti, stiltur í framgöngu og
manna háttprúðastur, hlýr og
drengilegur í allri viðbúð. Hann
var mikill vinur vina sinna, en
óáleitinn við mótgangsmenn. —
Hann var nauðleitarmaður hinn
mesti, bæði sökum meðfæddrar
hneigðar til hjálpfýsi og með
því, að hann var flestum mönn-
um snjallari að sjá úrræði og
nýjar leiðir, þegar vanda bar að
höndum.
Böðvar Bjarkan: .... Eðlis-
hneigð Böðvars Bjarkan dró
hann í aðra átt. Hann var kom-
inn af listrænni ætt. Hann var
alinn upp við mikla náttúrufeg-
urð. Og í byrjun starfsáranna
valdi hann sér heimili á Akur-
eyri, við hinn lygna djúpa fjörð,
þar sem skógur og blómjurtir
dafna einna bezt á íslandi, í
skjóli hárra fjalla. í þessum
mesta sólarbæ hérlendis reisti
Böðvar Bjarkan sér lítið en list-
rænt heimili, er hann nefndi
“Sólgarða”. Hann lukti húsið í
víðáttumiklum garði, þar sem
reyniviður og litfögur blóm fylla
loftið á sumrin með sætri angan,
en í miðjum garðinum var, að
sið Suðurlandabúa, fögur stein-
þró með tæru lindarvatni. Vinir
þeirra hjóna munu seint gleyma
heimsóknum til þeirra að Sól-
görðum.—Tíminn.
OPIÐ BRÉF TIL “P. B.”
Kæri P. B.:
Eg byrja nú bréfmiðan til þíri
með því að þakka þér innilega
fyrir góða og skemtilega við-
kynningu frá fyrri tíð.
Eg sá fyrir nokkru grein eft-
ir þig í öðru íslenzka blaðinu
sem gefið er út í Winnipeg með
fyrirsögninni “Stjörnuglópska”.
Þetta þótti mér einkennileg yfir-
skrift svo eg fór að athuga þessa
“Stjörnuglópsku” þína nokkuð
nákvæmlega. Auðvitað kann-
aðist eg strax við að eg mundi
vera nokkuð sljór í stjörnulíf-
fræði rúmmálsfræði, aflfræði og
þrýstingafræði. Nú vil eg í fá-
fræði minni spyrja þig, getur
rökrétt hugsun gert ráð fyrir
þrýsting öðru vísi en í sambandi
við afl? Er ekki afl og þrýsting
eitt og hið sama? Svo er sagt
að níu planetur og tuttugu og
sex tungl sé í voru sólkerfi er
athuga má með jarðneskum
sjónfærum og áhöldum en hve
margar ósýnilegar plánetur eru
þar vita líklega fáir, en geta
mætti þess til að hver planeta
hefði ósýnilegan fylgihnött á
svipaðan hátt og vér mennirnir
höfum allir ósýnilegar fylgjur.
Það er að segja ósýnilegar al-
mennum sjónfærum. Eg spyr
hvaðan ætti það að koma, þetta
sem þú kallar þrýsting? Úr
ljósvakanum? Sumar fræðibæk-
ur segja oss að til séu f jórar teg-
undir af ljósvaka en það vitan-
lega er smágerfara efni en loft-
tegundir, á þann hátt gera fræði-
menn oss grein fyrir uppruna
ljóss og hita og fleira. Það álíta
sumir að munurinn á þéttleika
tegundunum sé í ljósvakanum
hlutfallslega eins mikill og mun-
ur á föstu efni og fljótandi. Þá
gera vísindamenn oss þannig
grein fyrir rafmagni að það sé
hreyfingar í mismunandi ljós-
vaka tegundum er birtast oss
sem hljóð, ljós, hiti, o. s. frv.
Það er í einni ljósvakategund
þetta voða afl sem hreyfir vélar
af ýmsri gerð, stórar og smáar,
og það getum vér með sanni
sagt að framleiði “þrýsting” af
sama uppruna. Er oss tjáð það
sé það yfrirbrigði er veldur loft-
öldum þeim er vér skynjum
sem hljóð, en önnur tegund er
uppspretta ljóss <og þá líka sjón-
ar vorrar. Eftir þeirri þriðju
ljósvaka sort berst það sem kall-
að er hin æðri tegund rafur-
magnsins. Fjórða tegund ljós-
vaka er til en hún mun enn sem
komið er tiltölulega lítið hafa
verið rannsökuð. Raunvísindin
eru ágæt eins langt og þau ná,
en þeim verður svaravant við
ýmsum spursmálum er vér velt-
um oft fyrir sjálfum oss í huga
vorum.
Kæri P. B., mér þætti gaman
að heyra þig útskýra betur þessa
nýjung sem þér hefir dottið í
hug, einhverntíma við hentug-
leika. Það get eg sagt þér upp-
hátt að eg kalla að þau blöð neiti
sóma sínum sem vilja ekki birta
okkar vísindalegu hugleiðingar.
Með alúðar kveðju til þín og
þinna.
M. Ingimarsson
ALÞINGI SETT
Alþingi var sett í gær og
hófst athöfnin á guð^þjónustu í
dómkirkjunni, þar sem Sigur-
geir biskup Sigurðsson prédik-
aði.
Að því bónu var gengið til Al-
þingishússin og las forsætisráð-
herra upp konungsbréf um að
þing væri kvatt saman. Síðan
sté Ingvar Pálmason, aldursfor.
seti þingsins, í forsetastól og
mintist Guðrúnar heit, Lárus-
dóttur og Guðm. læknis Guð-
finnssonar, sem átt hefir sæti á
Alþingi.
Þrír þingmenn eru ókomnir
til þings vegna veikinda: Bergur
Jónsson, Pétur Halldórsson og
Þorb. Þorleifsson, en Jóhann Þ.
Jósefsson dvelur erlendis í er-
indum ríkisstjórnarinnar.
Þá fóru fram forsetakosning-
ar:
Sameinað þing:
Forseti: Haraldur Guðmunds-
son, 24 atkv. Auðir seðlar 21.
1. varaforseti: Jakob Möller,
15 atkv., Bjarni Ásgeirsson 3
atkv. Auðir 27.
2. varaforseti: Bjami Ásgeirs-
son, 23 atkv. Auðir 21.
Skrifarar voru kosnir Thor
Thors og Bjarni Bjarnason.
Efri deild:
'Forseti: Einar Ámasön
1. varafors.: Magnús Jónsson.
2. varafors.: Siurj. Á. ólafss.
Skrifarar: Bjarni Snæbjöms-
son og Páll Hermannsson.
Neðri deild
Forseti: Jörundur Brynjólfss.
1. varafors.: Gísli Sveinsson.
2. varafor.: Finnur Jónsson.
Skrifarar: Eiríkur Einarsson
og Emil Jónsson.
f dag eru fundir í báðum deild-
um og sameinuðu þingi.
Magnús Gíslason sýslumaður
á Eskifirði tekur sæti á þing-
GERANIUMS
18 fyrir lSc
Allir sem blómarækt
láta sig nokkuð snerta,
æbtu >að fá útsæðis-
pakka af Geraniums
hjá oss. Vér höfum úr
feikna bárgðum að velja
af öllum litum, hárauð-
um, lograuðum, dökk-
rauðuan, crimson., ma-
roon, Vermilion, scarlet, salmon, cer-
ise, orange-red, Salmon-pink, brdght
pink, peach, blush-rose, white blotch-
ed, varigated, margined. Þær vaxa
auðveldlega og blómgast á 90 dögum
frá sáningu. Pakkinn 15c, 2 fyrir 25c,
póstgj-ald borgað. Sáið nú.
SÉRSTAKT TILBOÐ: 1 pakki af
ofanskráðu útsæði á 5c, valið útsæði
fyrir húsblóm, alt ólíkit og vex auð-
veldlega inni. Verðgildi $1.25 — öll
fyrir 60c póetgjald borgað. Pantið
beint eftir þessari auglýingu.
UNDRUNIN MESTA A ARINU 1939.
Stór útsæðis og ræktunarbók, hin
bezta sem enn hefir komið út. Yfir
2000 garðávextir, blóm, rósir, hnapp-
ar, húsplöntur, hríslur, tré og ávext-
ir. Hver siða skreytt myndum, marg-
ar í náttúrlegum litum.
DOMINION SEED HOUSE
Georgetown, Ontario
inu í stað Guðrúnar heit. Lárus-
dóttur og var kjörbréf hans tek-
ið gilt án athugasemda.
Ekki bar til sérstakra tíðinda
við þingsetningu í gær, að öðru
leyti en því að fjármálaráðherra
gerði það að tillögu sinni að
flokkar skyldu skipast í sæti frá
vinstri til hægri eftir flokkslit,
en talið var alment meðal þing-
manna, að erfitt myndi reynast
að skipa rauðu flokkunum í
raðir, með því að ekki væri vit-
að að óreyndu hver þeirra væri
lengst til vinstri, og gæti svo
farið að flokksþrot í Framsókn
hlyti það hlutskiftið.
Annars munu þingmenn raða
sér endanlega í sæti í dag, hvort
sem farið verður að tilsögn
fjármálaráðherra eða ekki.
Fjárlögin lögð fram
Forseti (H. G.) lýsti yfir því
að fjárlagafrv. fyrir árið 1940
myndi verða útþýtt meðal þing-
manna, sem og var gert.
í fjárlagafrv. er gert ráð fyrir
gjöldum, sem nema 16.7 miljón-
um króna og er það mun hærra
en tíðkast hefir undanfarin ár,
þótt fjmrh. hafi ávalt kepst við
að slá eigin met.
Er það furðu einkennileg
fjármálastefna að krefjast ávalt
aukinna útgjalda samfara því
sem avtinnuvegir vorir dragast
saman og skortir fé til nauðsyn-
legra framkvæmda.
—Vísir 16. febr.
Þegar Mark Twain, kýmnis-
skáldið heimsfræga, var á yngri
árum sínum ritstjóri blaðs nokk-
urs í Missouri, skrifaði hjátrú-
arfullur gamall lesandi blaðsins
honum bréf og kvaðst hafa fund-
ið kónguló í blaði sínu, og bað
hann að segja sér, hvort þetta
væri fyrirboði góðs eða ills.
Mark Twain svaraði honum í
blaðinu þannig:
— Gamall lesandi! Það er
hvorki fyrirboði góðs né ills, að
þér finnið kónguló í blaðinu yðar.
Kóngulóin tók sig til og las blað-
ið okkar, til þess að ganga úr
skugga um, hvaða kaupmenn
auglýstu þar ekki, því þangað
ætlaði hún undir eins að fara og
vefa vef sinn í dyrunum; — hún
vissi, að þar yrði hún ékki ónáð-
uð framvegis með aðsókninni!
KOL FYRIR KALDA VEÐRIÐ
Winneco Coke ........................$14.00 perton
Algoma Coke ......................... 14.75 “
Semet-Solvay Coke ................... 15.50 “
Pocahontas Nut ...................... 14.00 “
Bighorn Saunders Creek Lump........... 13.50 “
Foothills Lump ...................... 12.75 “
Heat Glow Briquettes ................ 12.25 “
McCurdy Supply Co. Ltd.
Símið 23 811—23 812
1034 ARLINGTON ST.