Heimskringla - 24.05.1939, Blaðsíða 7

Heimskringla - 24.05.1939, Blaðsíða 7
WINNIPEG, 24. MAÍ 1939 HEIMSKRINGLA 7. SÍÐA The Beggar Woman Froni the Icelandic of Gestur Pálsson Huddled on the doorsteps there sat in the bitter cold And coiled up in a shapeless heap a woman bent and old, And her thin and crooked fingers with faltering movements weak Did fumble ’mong the rags, a little warmth to seek. Her eyes were dull and glassy, as if their light were lost In a wild and stormy struggle on life’s tumultous coast, They wandered without aim, as if she nought did care And saw no longer anything but stark and grim despair. Her forehead was covered with wrinkles deep and dark Which sorrows great had left there as inscrutable marks. Who tells of all oppressions and sufferings untold That Fortune’s martyrs bear in a world that’s harsh and cold? She may have been a pearl that was lost in time’s deep sea, Forgotten and neglected by all, or perhaps was she A gem that once had sparkled on a ring of purest gold? But now she was a shard on the scrap-heap of the world. X. Þeirra Hátign boðin velkomin 1 fyrsta skifti í sögunni, heimsækir Hans Hátign rikjandi konungur Breta og Hennar Hátign drotningin Canada. Um kombelti vest- landsins, kvikfjárræktar hérúðin og vestur yfir Klettafjöllin, er konungs- förinni heitið. Þetta félag tekur undir með miljónum þegnhollra Can- adamanna, að óska Þeirra Hátign ánægjulegrar ferð- ar, vellíðunar og sælla minninga um dvölina í Canada. GOD SAVE THE KING! EATON'S SAGA MÁRA Á SPÁNI Það var hátíðisdagur hjá her- mönnunum í Marokko, þegar Franco herforingi lét flytja þá frá Afríku til Algeciras, en það- an átti að senda þá út, til þess ;að berjast gegn spönsku stjórn- inni. Raunar voru þeir, Franco og fylgismenn hans, Márunum ekkert kærari en stjórnarliðið á Spáni, — þar eð allir Spánverjar tilheyra þeim hluta mannkyns- ins, sem í orðræðum Mára eru nefndir “Hinir vantrúuðu hund- ar”, en það var þó samt sem áður eitthvað hátíðlegt við það, að Allah kom því svo Vísdómslega fyrir, að það var sú sama guðs kristni, sem á sínum tíma rak börn Allah út úr Spáni, og nú leiddi þau aftur. þangað. Og jafnvel þótt það væri í þeim til- gangi gert að drepa svo marga sem kostur væri á af landsmönn- um þessara kristnu manna. Já, Marokkomennirnir höfðu sannarlega margar ástæður til að vera hrifnir af fyrirtækinu, því að í raun og veru þýddi það meira en litla breytingu á sam- búð þeirra og Spánverja. • Þann 30. apríl 711 leiddi arab- iski herforinginn Farik her yfir Miðjarðarhafið til Spánar og stökk sjálfur fyrstur á land við rætur klettsins Calpe, sem seinna var nefndur Djebel-al-Farik (Fariks fjall), — en þekkist nú undir nafninu Gibraltar. Og þar með hófst innrásin, sem á furðulega skömmum tíma kom nærri því öllum Pyrena- skaga undir arabiska stjórn, en eftir það fóru Múhameðstrúar- menn yfir Pyrenæafjöll og herj- uðu í franska héraðinu Gas- cogne, náðu Bordeaux á sitt vald og sóttu í áttina til Poiter, þar sem framrás þeirra var loks stöðvuð — árið 732 — og reknir aftur til Spánar. En á skaganúm settust þeir að, og þar gátu þeir smám sam- an skipulagt voldugt ríki, en uppgangur þess hefst fyrir al- vöru, þegar Abd-ur-Rahonon, árið 758, gerir sig að sjálfstæð- um kalífa og gerir Cordoba að höfuðborg ríkisins. Og um þrjú hundruð ára skeið stóð þar hið blómlegasta menningarríki. Bæði listir og vísindi blómguðust mj ög, og frá þessum tíma eru t. d. byggingar þær, sem enn þann dag í dag eru það merkasta, sem ferðamaður sér á Spáni (Alham- bra við Granada, bænahúsið í Cordoba o. s. frv.); ennfremur má bæta því við, að einn páfinn (Sylvester II.) fékk mentun sína við háskólann í Cordoba. Og loks má bæta því við, að verzlun, iðnaður og landbúnaður stóð með svo miklum blóma, að síðan hefir ekki annað eins þekst í sögu Spánar. En eftir þetta tímabil hófust innanlandsdeilur,' sem orsökuðu hnignun ríkisins, og smám sam- an kom að því, að hinu volduga ríki var skift niður í ótal smá- ríki, sem áttu í sífeldum erjum hvert við. annað, og voru auk þess arðrænd af hinum kaþólsku furstum, sem ekkert höfðu mátt sín gagnvart hinu volduga sam- einaða ríki. Og þegar það bætt- ist loks við, að páfinn í byrjun þrettándu aldar fór að hvetja til krossferða gegn Múhameðstrú- armönnum, streymdu skarar er- lendra riddara inn í landið og tóku þeir þátt í styrjöldunum, sem urðu nú svo harðar, að yfir- ráð Múhameðstrúarmanna, árið 1248, náðu aðeins yfir eitt ríki (Granada). En samt sem áður liðu tvær aldir áðnr en Múham- eðstrúarmenn mistu sitt síðasta ríki. Það skeði árið 1492, þegar arabiski furst'inh Boabdil lét Granada af hendi til Ferdinants konungs II. og ísabellu drotning- ar. Það er rétt að bæta því við, að árangurinn af sigri þessum varð sá, að öllu fór aftur í land- Það var á stjórnartíð Edwards VII, sem borgarar þessa bæjar ákváðu að reka raforku sína sjálfir og byrjað var á að reisa verið í Pointe du Bois. Á meðan George V var á veldisstóli, færðist starfsvið City Hydro mjög út. Því fylgdi, að nauðsynlegt var að koma upp öðru veri hjá Slave Falls, sem hafði orku tveggja “units”, er Edward ríkti. Heimsókn núverandi konungs og drotningar á sér stað rétt eftir að tveimur “units” hefir verið bætt við Slave Falls-verið, svo að þaðan kemur nú helmingur orku kerfisins. City Hydro býður Þeirra Hátign, George konung og Elizabeth drotningu velkomin til Winnipeg og vonar að minningin um komu þeirra verði þeim til ógleymanlegrar ánægju. CITY HYDRO “WINNIPEG’S OWN ELECTRIC UTILITY HBC IMPORTED F.O.B. SCOTCH WHISKY This advertisement is not lnserted by Government Liquor Control Commission. The Commission is not responsible for statements made as to quaúty oí pro- ducts advertised. inu og blómleg héruð lögðust í eyði og loks, árið 1609—10, var búið að drepa eða vísa úr landi öllum Múhameðstrúarmönnum. • Og þar með var sambandi Spánverja og Múhameðstrúar- manna slitið, þangað til í byrjun þe&sarar aldar, þegar Spánverjar og Frakkar fóru að gefa Mar- okko hýrt auga og langaði til að innleiða þar sína menningu, en það er, lauslega þýtt, þeir sáu að þeir gátu hagnast á fyrirtækinu. Árið 1904 urðu Frakkar og Spánverjar sammála um að skifta Marokko í “áhrifasvæði”, en auðvitað séu hinir slyngu, frönsku stjórnmálamenn um það að Spánverjar urðu þar mjög afskiftir, og ekki batnaði hagur Spánverja við það, þegar hérað- ið við Tangier var gert að al- þjóðaeign árið 1912. En Spánverjarnir hlutu þó j þann hagnað, að á þeirra. lands- svæði voru tvær borgir, sem frá gamalli tíð höfðu verið spanskar (Ceuta og Melilla) og frá þess- um tveim borgum reyndu þeir smám saman að selfæra sig inn í landið; en brátt kom í ljós, að það var miklum erfiðleikum bundið, þar eð Márarnir þóttust geta svo vel komist af með sína eigin menningu. Þar voru því sífeldar orustur háðar, og Spán- verjum tókst ekki að ná yfirráð- um í hinum torsóttu Rif-fjöllum, þar sem hinir herskáu íbúar, hinir svonefndu Rif-Kabylar, reyndust þeim all-skeinuhættir. Eftir skærur árum saman við höfðingjann Raisuli kom svo sá hættulegi tími, þegar hinn dug- legi Abd-el-Krim safnaði stórum herjum, og árið 1921 réðist hann á her Spánverja, sem taldi 20,000 manns, og stráfeldi hann. Því næst gerðist hann höfðingi yfir nærri því öllu landssvæði Spán- verja. — Seinna kom hann sér upp 75 þúsund manna her, og með þessum her réðist hann á her Frakka árið 1925. Ástandið var nú orðið hið al- varlegast bæði fyrir Frakka og Spánverja og þeir sáu þann kost væntsan að standa saman og með sameinuðum fransk-spönsk- um her, sem taldi 200,000 manns hepnaðist þeim loks að sigra hinn hættulega Abd-el-Krim, sem gefst upp árið 1926 og var settur í fangelsi. - NAFNSPJÖLD - Dr. M. B. Halldorson 401 Boyd Bldg. Skrlístofusíml: 23 674 Stundar sérstaklcga lungnasjúk- dóma. Er aS flnni 6 skrifatofu kl. 10—12 f. h. og 2—6 e. h. Helmlll: 46 Alloway Are. Talsimi: 33 ÍSÍ Thorvaldson & Eggertson Lögfræðingar 705 ConfederatiorTXife Bldg. Talsíml 97 024 Ornci Phone Res. Phoni 87 203 . 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 109 MEDICAL ARTS BUILDINO Ornci Houis: 12 - 1 4 P.M. - 6 P.M. ANO BT APPOINTMENT W. J. LINDAL, K.C. BJÖRN STEFÁNSSON tSLENZKIR LÖGFRÆÐINOAR á öðru gólíl 325 Main Street Talsimi: 97 621 Hafa einnig skrifstofur að Li?ndar og Gimli og eru þar ao nltta, fyrsta miðvlkudaH 1 hverjum mánuði. Dr. S. J. Johannesion 272 Home St. Talslml SO 877 ViOtalstími kl. S—5 e. h. M. HJALTASON, M.D. ALMENNAR LÆKNINGAR Sérgrein: Taugasjúkdómar Leetur úti meðöl 1 viðlögum Vifltalstlmar kl. 2—4 «. h. 7—8 að kveldtnu Sími 80 867 666 Vietor 8t. J. J. Swanson & Co. Ltd. REALTORS Rental, Inrurance and Financial ~ Agents Sími: 26 821 308 AVENUE BLDG.—Winnipeg A. S. BARDAL selur likkistur og annaat um útfar- ir. Allur útbúnaður sá bestl. Enníremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina. 843 SHERBROOKK 8T. Phone: S6 601 WINNIPBG Gunnar Erlendsson Pianokennari Kenslustofa, 796 Banning St. Simi 89 407 THL WATCH SHOP Thorlakson Baldwin Diamonds and Wedding Rlngs Agents for Bulova Watcheg Marriage Licenses Issued 699 Sargent Ave. Jacob F. Bjamason —TRANSFER— Baggage and Furniture Moving 591 SHERBURN ST. Phone 35 909 Annast ailskonar flutninga fram og aftur um bœlnn. Rovatzos Floral Shop 206 Notre Dame Ave. Phone 94 954 Fresh Cut Flowers Dally Pi&nts in Season We specialize in Wedding & Concert Bouqueta & Funeral Ðesigns Icelandlc spoken DR. A. V. JOHNSON DENTIST 506 Somerset Bldg. Office 88124 Res. 36 883 MARGARET DALMAN TBACHER OF PIANO Sti BANNINO ST. Phone: 26 420 En samt sem áður stóðu smá- skærur ennþá um skeið á hinu spanska landssvæði, og ennþá er ekki hægt að halda Márunum í skefjum, nema með öflugu setu- liði. Þessir bardagar höfðu valdið Spánverjum stórtjóni, og span- ska þjóðin var smám saman orð- in hundleið á Afríkuæfintýrinu og ekki sízt, þegar það var á al- manna vitorði, að duglausir her- foringjar höfðu hvað eftir annað att herjum sínum gegn stór- hættulegum fjandmönnum, sem þektu hvert holt og hverja hæð á vígvellinum. Og þessi óálnægja varð til þess, að Primo de Rivera mætti lítilli mótspyrnu, þegar hann lét gera sig að einræðisherra árið 1923; því að allir álitu, að hann væri sá sterki maður, sem gæti gert sæmilegan enda á Marokko- æfintýrið, sem reyndar fór á annan veg. • Um meir en tólf alda skeið hafa því Spánverjar og Múham- eðstrúarmenn staðið hvor and- spænis öðrum sem ósættanlegir féndur og ekki bætti það úr skák, að í trúarefnum eru þeir jafn óbilgjarnir. En samt sem áður kom það í Ijós í byrjun uppreisnarinnar 1936, að einmitt hinir heittrúuð- ustu kaþólikkar áttu mjög auð- velt með að hefja samstarf við “erfðaóvininn”, þegar þeir gátu notað hann í stéttabaráttunni gegn löndum sínum. Og þess vegna hafa nú Márar fengið að 410 Medical Arts Bldg. Dr. K. J. AUSTMANN Stundar eingöngu Augna, eyma, nefs og kverka sjúkdóma 10 til 12 f.h.—3 til 5 e.h. Skrifstofusími 80 887 Heimasími 48 551 gista Spán í hálft þriðja ár, und- ir stjórn þeirra manna, sem kalla sig kristna. Annars eiga þeir sennilega fullan rétt á því, því að hinn heilagi faðir í Rómaborg hefir gefið Francó hershöfðingja blessun sína.—Alþbl. Tryggvi Magnússon listmálari slasast við Ingólfsf jall S. 1. laugardag fór Tryggvi Magnússon listmálari í skemti- ferð í bíl austur yfír heiði. Austur við Ingólfsfjall fór hann út úr bílnum og var á gangi þar á veginum. Bar þá að annan bíl, G. 66, lenti Tryggvi á bílnum og féll á veginn. Var hann fluttur niður á Eyr- arbakka, en meiðsli hans voru svo alvarleg, að hann var fluttur þaðan í sjúkrabíl og hingað á Landsspítalann. Var komið með hann hingða kl. 7V2 í gærmorgun. Hefir hann hlotið mikið höf- uðhögg og liggur í dái annað slagið, en er stundum með fullri rænu. Hefir ekki verið tekin mynd af honum ennþá, svo að ekki er hægt að segja um það, hversu alvarleg meiðslin eru. —Alþbl. 24. apríl.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.