Heimskringla - 18.10.1939, Blaðsíða 3
WINNIPEG, 18. OKT. 1939
HEIMSKRINGLA
3. SÍÐA
ráðlagði stjórninni að hverfa frá
gullinnlausn. Honum var svar-
að að slíkít uppátæki mundi
steypa fjárhag ríkisins í voða,
en eigi að síður var hann kvadd-
ur á fund stjórnarinnar til
Whitehall fimm dögum síðar og
tilkynti, að England hyrfi frá
gullgenginu. Hann er alkunnur
ræðurmaður hjá verkamanna-
flokknum, er hálffertugur og
hefir verið aðalritstjóri í eitt ár.
—Mbl. 30. júlí.
BRÉF
Campbell River, B. C„
3 okt. 1939
Kæri ritstj. Hkr.:
Hér með sendi eg þér 3 dali
fyrir blaðið. Þú gerir svo vel að
senda mér kvittun.
Það er lítið að frétta nema alt
bærilegt. Um tíðarfar er það
að segja, að það hafa verið ó-
vanalegar rigningar en ekki
mikið til skaða, þó -getur verið
að hey hafi hrakið dálítið hjá
sumum, en allan nýliðin sept.
hefir verið sól og sumar. Ágæt
uppskera alt yfir, laxveiði með
meira móti og mun ekki af veita,
þegar í stríð er komið. Nú er
ekki um annað talað. Landar
eru einlægt að smá koma austan
úr kuldanum til að setjast hér
að; þeir eru nú orðnir 20 og von
á fleirum; einn af þeim sem
seinakt komu var Ásgeir H. Bald-
vin og kona hans; hann er son-
ur Baldvins Helgasonar, alkunn-
ur maður frá fyrri tíð. Sú fjöl-
skylda kom vestur um haf 1873,
hann var elstur af börnum Bald-
vins, 23 ára, svo hann varð víst
að sjá um alla fjölskylduna alt
hvað hann gat. Þau hjónin eru
nú orðin öldruð, hann nærri ní-
ræður, hún dálítið yngri; þau
eru bæði furðu hress; þau geta
bæði lesið og skrifað ennþá;
hann lítur út fyrir að vera í
mesta lagi 70 ára gamall. Hann
segir mér að það muni ekki vera
nema þrjár manneskjur lifandi
af þeim hóp sem kom með hon-
um vestur. Það er hann og ein
systir hans og einhver Brynjólf-
ur á gamalmennaheimilinu á
Betel. Hann er einn af þeim
sem einlægt hefir komist áfram
sem sjálfstæður maður; það er
dásamlegt hvað sumir menn eru
þróttmiklir.
Það eru aðrir þrír sem eg vildi
g'eta, sem komu hér vestur í
sumar. Þeir komu frá Árborg,
Man. Einn var Óskar K. Sig-
urðsson, sonur Sigurðar Gutt-
°rms frá Galtastöðum fram í
Hróarstungu í N.-Múlasýslu. Eg
sá alla þá fjölskyldu áður en þau
fóru vestur um haf og nú er eg
farinn að sjá sumt af þeirri fjöl-
skyldu eftir öll þessi ár. Hinir
eru 2 bræður, Þorsteinn og Lúð-
vík, synir Þorsteins Einarsson-
ar- Þeir eru allir ágætis dreng-
ÍL Þorsteinn er horfinn austur
aftur en Lúðvík er að vinna hér
skamt frá. En Óskar er að sækja
foreldra sína, koma þeim hér
vestur á ströndina.
Að endingu skal eg geta þess
að það er mikið af góðu landi
eftir hér í kringum Campbell
Biver, útmælt í smá bújarðir,
sem hægt er að fá með vægum
kjörum. Sumt af því er stjórn-
arland, 10 dali ekran. Jæja,
^etta er nú orðinn altof mikill
vaðall svo eg kveð þig herra rit-
stjóri með ósk um alls góðs.
K. Eiríksson
Kínverjar skýra orðið “lúxus”
tannig: Það var einu sinni
roandarín, sem lét vekja sig
Þrisvar á hverjum morgni til
^ess eins að hafa þá ánægju að
vita af því að hann mætti sofa
lengur.
* * HC
f Transvaal hafa bændurnir
tekið upp á því, að setja upp
kríðarstórar rafmagns engi-
sprettugildrur, sem drepa þessi
ieiðu kvikindi. Á fáum dögum
lágu í valnum 150 smálestir af
engisprettum.
ÍSLANDS-FRÉTTIR
Guðmundur Kamban
rithöfundur hefir lokið við að
semja nýtt leikrit, og hefir það
þegar verið tekið upp til leiks
á konunglega leikhúsinu í Kaup-
mannahöfn. Leikritið heitir á
dönsku “De tusind Mil”. Leik-
ritið gerist í einni af höfuð-
borgum Norðurlandanna.
—Alþbl. 18. sept.
* * *
Bardstrendingar drepa
180 marsvín
f fyrradag voru rekin á land
undan Hvammi á Barðaströnd,
skamt fyrir innan Haga, 180
marsvín sum geysistór.
Marsvínin tóku niðrí í sandi,
sem er á þeim slóðum og busl-
uðu svo mikið, að þau grófust í
sandinn og komust ekki út aftur.
Voru þau síðan drepin.
—Alþbl. 12. sept.
* * *
Byssa springur og veldur slysi
S. I. miðvikudag varð það slys
í Höfn í Hornafirði, er 16 ára
gamall piltur, ólafur Sigurðsson
að nafni, var að skjóta til marks
úr haglabyssu, að byssan sprakk
í höndum hans og lenti brot úr
henni í enni piltsins. Hlaut hann
mikinn áverka og brotnaði enn-
isbeinið. Læknir bjó um sárið,
en Ólafur fékk brátt mikinn
sótthita og var á milli heims og
helju í 4 daga. Hann er nú á
góðum batavegi.
—Alþbl. 12. sept.
* * *
Krónan losuð við sterlingspundið
til þess að afstýra verðhækkun
Landsbankinn hefir óskað
þess, að ríkisstjórnin aflaði sér
heimildar til að losa íslenzku
krónuna við sterlingspundið
vegna áframhaldandi gengisfalls
sterlingspundsins, en það hefir
nú falið yfir 20%, síðan stríðið
byrjaði.
öll norðurlöndin hin hafa þeg-
ar af þessari ástæðu losað sig
við pundið, þó þannig, að Dan-
mörk og Noregur hafa fylgst
með falli pundsins dálítið niður
á við, en síðan bundið gjaldeyri
sinn við dollarinn. Danmörk
hefir þó það fyrirkomulag á
gengisskráningu hjá sér, að
krónan á aftur að miðast við
pundið, ef það skyldi stíga upp í
ákveðið hlutfall við dollarinn.
íslenzka ríkisstjórnin mun
hafa tekið ákvörðun um að taka
hér upp svipað fyrirkomulag á
gengisskráningunni og í Dan-
mörku. Danska krónan fylgdi
falli pundsins niður í 8%, en
ætlunin mun vera að íslenzka
krónan fylgi því niður um 11%.
Með þeirri skráningu á ster-
lingspundinu, sem var síðast-
liðinn laugardag, stóð það í 27
krónum íslenzkum, en eftir þessa
breytingu mun það verða, miðað
við laugardagsgengi þess, um
24 íslenzkar krónur og tilsvar-
andi lækkun yerður um leið á
N orðurlandagj aldeyri.
Með þessari ráðstöfun er verið
að reyna að koma í veg fyrir
verðhækkun á erlendum vörum
hér á landi, sem orðin var og fór
vaxandi vegna falls sterlings-
pundsins.—Alþbl. 18. sept.
* * *
Skömtun matvæla
Samkvæmt bréfi ríkisstjórn-
arinnar og nýútgefinni reglu-
gerð, hefst skömtun á kaffi,
sykri, haframjöli, hrísgrjónum,
hveiti, rúgmjöli, svo og hveiti-
og rúgbrauðum, frá 18. þ. m. —
Samkvæmt reglugerðiíini verður
vikuskamtur hvers einstaklings
sem næst þessi:
500 gr. sykur
75 gr. kaffibaunir eða
62 gr. brent og malað kaffi,
250 gr. haframjöl, -
125 gr. hrísgrjón eða aðrar teg
600 gr. hveiti eða
750 gr. hveitibrauð
750 gr. rúgmjöl eða
1125 gr. rúgbrauð.
(Til að finna hverju skamtur-
inn nemur á vog þessa lands
þarf ekki annað en að deila 28.4
í ofanskráðar tölur og þá kemur
únzutala út. T. d. 500 grömm af
sykur verða 17V^ únza eða rúm-
lega eitt pund; og 62 grömm af
kaffi eru rúmar 2 únzur eða einn
áttundi úr pundi o. s. frv. —
Hkr.)
í hvert slátur, sem sönnur eru
færðar á, að maður hafi fengið,
eru ætluð 2 kíló af rúgmjöli.
Svo er til ætlast, að skömtun
ifari fram mánaðarlega í kaup-
stöðum. En í sveitum, þar sem
ekki verður við komið mánaðar-
legum aðdráttum, má afhenda
ávísanir til lengri tííma, en gæta
skal þess, að skömtunarseðlum
sé skilað iit á þessar ávísanir.
Já. Eg fæ lánuð hingað öil
handritin sem til eru af þeim í
Höfn. Má vera að eg geti líka
fengið lánuð handritin frá Sví-
þjóð. Annars verð eg að hafa
einhver ráð með að fá vitneskju
um hvað þar er. Af handritum
sem til eru í Englandi og víðar
býst eg yið að fá ljósmyndir.
Inngangar að sögunum verða
allir samdir á ensku. Þegar búið
er að gefa út textana með inn-
aöngum og skýringum, þá verða
gefin út ein 2 bindi um Forn-
aldarsögurnar, þar sem gerð er
grein fyrir þeim alment, og
hverri fyrir sig.
í fyrsta sinn verður þó skömt-
unin aðeins fyrir hálfan mánuð
— síðari hluta september.
Jafnframt fyrstu skömtun,
sem hér í bænum fer fram laug-
ardaginn og sunnudaginn 16. og
17. september, ber öllum heim-
ilisfeðrum að mæta á bæjarskrif-
stofunni annan hvorn nefndra
daga og gefa þar upp, að við-
lögðum drengskap, upp á pund
og jafnvel hálfpund — svo segir
í reglugerðinni — hvað til sé á
heimilinu af ofangreindum
skömtunarvörum. Liggja við
háar sektir, ef síðar sannast, að
rangt hafi verið skýrt frá birgð-
um.
f matvöruverzlunum, sem með
þessar vörur verzla, skal fram
■ fara birgðatalning í dag og á
morgun, og liggur við alt að bænum þessar (talið í smálest-
Bindin verða 8, og er búist við
að út komi eitt bindi á ári, eða
2 á þrem árum.
—Mbl. 5. sept.
* * *
Helstu matvælabirgðir
Reykvíkinga
Talningu á matvælabirgðum
þeim, sem almenningur á að gefa
upp, er nú lokið hér í bæ.
Samkvæmt talningunni voru
birgðir heimila sem hér segir:
Kaffi 1935 kg., sykur 28,963
kg., hveiti 40,633 kg., rúgmjöl
9632 kg. haframjöl 13,759 kg.,
og aðrar kornvörur 8414 kg.
Birgðir af kolum námu 2622
smálestum og 38 smál. af koksi.
Eftir því sem næst verður
komist eru heilarbrigðir af fram-
angreindum matvörum þér í
10,000 króna sekt, ef ranglega
verður frá birgðum skýrt.
f fyrsta sinn verða allir heim-
ilisfeður að mæta eða láta mæta,
hvort sem þeir þurfa á skamti
sínum að halda eða ekki, til þess
að fullnægjandi og semfeld vit-
neskja fáist um það, hvað til er
á heimilum í landinu af þessum
skömtunarvörum.
Er heitið á alla að taka þess-
um ráðstöfunum vel, þ'ýí að
um): Kaffi 123 smál., sykpr 194
smál., hveiti ca. 560 smál. rúg-
mjöl 642 smál. (þar af munu
verzlanir úti á landi eiga all-
verulegan hluta), haframjöl 146
smál., aðrar kornvörur 81 smá-
lest.
Til samanburðar má geta þess,
að samkvæmt verzlunarskýrsl-
um síðustu ára hefir innflutn-
ingur á kaffi numið 6.5 kg. á
mann á ári. Má því áætla, að
þær veita almenningi aukið ör-1 kaffineyslan hér f bæ nemi um
yggi, og eru alveg sjálfsagðar 250 smálestum. — (Núverandi
eins og á stendur.
—Skutull, Isafirði, 16. sept.
Útgáfa Árnanefndar
Árna Magnússonar
Saltsíldin 80 þús. tn.
minni en [ fyrra
Um síðustu helgi var búið að
salta á öllu landinu 243,927
tunnur af síld. Á sama tíma í
birgðir 123 smál).
Sykurneyslan hefir numið um
45 kg. á mann á ári, og eftir því
ætti neyslan hér í bæ að nema
nefndin|ca. 1700 smál. á ári. — (Birgðir
hefir nýlega lokið fundum sínum 194 smál.).
í Höfn að þessu sinni. Einn j ^f 0fan^ituðu má ,sjá, að
nefndarmanna, Einar Arnórsson birgðirnar af kaffi og sykri, og
hæstaréttardómari, er kominn j,é sérstaklega sykri, eru mjög
^eim‘ j takmarkaðar, og því nauðsyn-
Blaðið spurði hann um hvaða |egi- ag a]menningUr gæfi hins
verkefni nefndin hafði haft að ifrasfa sparnaðar.
þessu sinni. Skýrði hann svo1_____Mbj 20. sept.
frá: Merkustu fundarmálin voru'
útgáfa orðabókarinnar yfir forn-
málið og útgáfa Foraldarsagn-
anna. Til undirbúnings undir
útgáfur þessar hefir ríkissjóður
Dana veitt Árnanefnd 25 þús. kr.
á ^ , fyrra var saltsíldaraflinn 325,-
Stefan Einarsson professor i , ....
Baltimore hefir verið ráðinn til 337 tn- ' hltte5f!'n'a 206'147
tunnur.
Vantar því rúmlega 80 þús-
und tunnur upp á 'að sama salt-
síldarmagn sé nú og á sama tíma
í fyrra.
Bræðslusíldaraflinn var um
síðustu helgi 1,159,998 hektó-
lítrar, í fyrra 1,523,704 hl. og í
hitteðfyrra 2,165.640 hektólítr-
ar.
Reknetaveiði heldur áfram
fyrir Norðurlandi og er einnig
stunduð hér í Faxaflóa eins og
Morgunblaðið hefir skýrt frá.
—Mbl. 20. sept.
* * *
Eimskip sendir skip
til New York
Eimskipafélag fslands gaf út
svohljóðandi tilkynningu í gær:
Ákveðið hefir verið að láta eitt
af skipum félagsins fara til New
York í þessum mánuði. Brott-
farardagur er ekki ákveðinn
ennþá, en verður auglýstur síð-
ar.—Mbl. 20. sept.
þess að taka að sér undirbúning
orðabókarinnar. Hann er vænt-
anlegur til Hafnar í haust. En
honum til aðstoðar hafa þeir
verið ráðnir Jakob Benediktsson
magister og Ole Vidding magi-
ster. Jakob hefir tekið próf í
klassisku málunum við Hafnar-
háskóla, en Vidding í norrænu.
En Einar Ól. Sveinsson hefir
verið ráðinn til að annast útgáf-
*
una á Fornaldarsögunum.
Fornaldarsögur i 8 bindum
' Blaðið spurði Einar ól. SveinS-
son magister um þessa fyrirhug-
uðu útgáfu sem hann á að ann-
ast. Hann sagði m. a.:
Tvær útgáfur eru til af Forn-
aldarsögunum og er önnur þeirra
yfir 100 ára. Hin er almikið
yngri. En báðar eru þær lang-
samlega úreltar. Auk þess hafa
einstaka sögur verið gefnar út í
“krítiskum” útgáfum.
Ætlast er til, að við þessa út-
gáfu verði rannsakað hvert ein-
asta handrit, sem af sögunum
er til, kanna það í eitt skifti
fyrir öll, hvað nýtt kemur í leit-
irnar. Á útgáfan að vera þann-
ig, að textunum sé gerð veruleg
skil, svo að því megi búa í fram-
tíðinni.
Ætlið þér að vinna að þessu
hér heima?
Bókhaldarinn: Starfsfólkið
bað mið að grenslast eftir hvað
forstjóranum kæmi bezt í brúð-
kaupsgjöf.
Forstjórinn: Haldið þér að
það væri of langt gengið ef eg
færi fram á lítilsháttar kaup-
lækkun.
KLETTAFJÖLL OG
KYRRAHAF
Eftir Sig. Júl. Jóhannesson
Framh.
Til þess að hægra sé að njóta
útsýnisins á ferðinni um Kletta-
fjöllin, eru opnir vagnar í lest-
inni með þægilegum sætum;
þangað þyrpist fólkið og getur
horft þaðan í allar áttir.
Þegar komið er vestur fyrir
Calgary, fer lestin eftir Bogár-
dalnum (Bow River), ýmist
sunnan árinnar eða norðah yfir
meira en 120 mílna svæði. Er
þessi á með allra stærstu vatns-
föllum í Vesturheimi. Hún renn-
ur út í Saskatchewan ána og
með henni í Winnipegvatn.
Hér um bil 22 mílur fyrir vest-
an Calgary byrja fjöllin; heitir
fyrsta járnbrautarstöðin í þeim
að austan Cochrane; er frá
þeirri stöð til síðustu stöðvanna
í fjöllunum að vestan, sem Mis-
sion heitir, 600 mílur, og
er fljótasta ferð yfir fjöllin 23
klukkustundir.
Fjörutíu mílur fyrir vestan
Calgary er stöð sem Morley
heitir. f því héraði býr flokkur
Indíána, Sem “Steingervingar”
nefnast (Stoney Indians). Voru
þeir fyr meir afar illvígir og
.herskáir, en eru nú hinir mestu
friðsemdar.-, dugnaðar- og iðju-
menn. Til er fjöldinn allur þjóð-
sagna, sem skapst hefir af hjá-
trú og hindurvitnum meðal þess-
ara Indíána. örnefnin segja
þessar sögur að nokkru leyti.
Þær eiga flestar upptök sín í hér
uðunum umhverfis stóra fossa,
sem Kananaskis heita, og eru í
Bogánni. Alla hlíðina í þeim
hluta dalsins hugsuðu Indíánar
sér eins og heljarstóra veru í
mannslíki, sem sé hálfliggjandi
og hálfsitjandi. Er þessi vera
verndarvættur héraðsins og
þeirra, sem í því búa. Örnefnin
í hlíðinni eru öll í samræmi við
þessa sögu; þau tákna hvert um
sig einhvern vissan lim eða lík-
amshluta hins mikla verndara.
Þar eru t. d. “Olnbogahæðir”,
“Hnéhæðir”, Handhæðir”, “Höf-
uðhæð”, “brjósthæð” o. s. frv.
Þegar allar þessar og fleiri hæð-
ir eru skoðaðar samtímis og
hver um sig í vissri afstöðu til
annara, mynda þær heilan lík-
ama, sem Indíánarnir hafa séð í
huga sínum með augum ímynd-
unaraflsins.
Jafnvel ferðamaðurinn, sem
gys gerir að þessum barnslegu
hugsunum getur tylt saman öll-
um þessum limum í huga sér og
horft á hinn mikla jötun eða
verndarguð þeirra Indíánanna,
þegar honum eru sýndai; hæðirn-
ar, sögð örnefnin og skýrðar
sögurnar.
Sálarlíf hins rauða manns er
ekki eins snautt og fáskrúðugt
og margir halda, þeir eiga
margar merkilegar sagnir, sem
geymast og ganga mann frá
manni alveg eins og sögurnar
okkar gerðu á íslandi í gamla
daga. Væri þar djúpur og auð-
ugur brunnur úr að ausa fyrir
einhvern, sem vildi skrifa merki-
lega og fróðlega bók um hið and-
lega líf Indíánanna.
Svo telst til að þessir Stein
Indíánar séu milli 300 og 400;
fækkaði þeim afar mikið um
tíma, en er nú aftur að fjölga.
í Morley, sem er dálítill bær
mitt á milli Calgary og Banff
(fjörutíu mílur fyrir vestan Cal-
gary og 40 fyrir austan Banff),
halda þessir Indíánar nokkurs
konar hátíð á hverju sumri; er
það kölluð Indíánahátíðin og tal-
in mesta hátíð, sinnar tegundar
í Norður-Ameríku.
Halda þeir glæsilega skrúðför
á hverjum morgni meðan hátíð-
in stendur yfir, sumir ríðandi og
aðrir gangandi. Eru bæði menn
og skepnur hlaðin svo marg-
breyttu skrauti að ekki verður
með orðum lýst. Sjást þar alls-
konar handaverk, sem lýsa hinni
mestu list og nákvæmni, smekk-
vísi og hugviti.
Sjötíu mílur fyrir vestan Cal-
gary sjást háir steindrangar í
þyrpingu, mjóir og beinir. Er
það stuðlaberg sem staðist hefir
allar árásir náttúrunnar, þó alc
annað hafi skolað burt umhverf-
is það. Þessir drangar eru sum-
ir tíu mannhæðir, eru þeir
nefndir “Hoodoos” eða skrípildi.
Skamt þaðan sjást þrír háir
tindar í röð, sem líta út alveg
eins og horft sé á vangann á
þremur konum, enda heita þess-
ir tindar “Sytsurnar þrjár”. —
Hæsti tindurinn er um 10,000
fet.
Framh.
HITT OG ÞETTA
— Eg var 30 ár að komast að
því, að eg hefi ekkert vit á tón-
list, sagði Auber við Wagner.
— Ertu þá hættur við tón-
smíðar? spurði Wagner.
— Nei, það var um seinan,
eg var orðinn frægur.
* * • *
Hún: Var kossinn, sem eg
gaf yður í gærkveldi, einhvers
virði?
Hann: Já, hann kostaði mig
krónu. . . . Litli bróðir yðar sá
til okkar.
* * *
Eins og kunnugt er voru vega-
lengdir á Vestfjörðum til
skamms tíma reiknaðar í
“skrápskóm” eða “roðskóm”,
eftir því hvað mörgum skóm
maður slítur við að ganga á-
kveðna vegalengd. En í Kína
reikna menn veðrið í frökkum,
eftir því hvað menn þurfa að
klæða sig mikið. Á sumrin er
vanalega “eins frakka” veður,
en á veturnar getur það orðið
“tíu frakka” veður.
Jóns Sigurðssonar félagið I.O.
D.E., hefir beðið “Heimskr.” að
minna fólk á, sem ekki hefir enn
eignast bókina “Minningarrit
íslenzkra hermanna”, sem félag-
ið gaf út fyrir mörgum árum
síðan, að enn gefist því kostur á
að eignast bókina, því fáein ein-
tök eru enn eftir óseld hjá for-
s^ta félagsins, Mrs. J. B. Skapta-
son, 378 Maryland St., Winni-
peg. Bókin kostaði upphaflega
$10.00 í góðu bandi, en er nú
færð niður í þriðjung þess
verðs, auk burðargjalds. Pant-
anir ætti að gera sem fyrst, því
| ólíklega endist upplagið lengi úr
þessu.
This advertisement is not published or displayed by the
Liquor Control Board or by the Govemment of Manitoba.