Heimskringla - 27.12.1939, Side 4

Heimskringla - 27.12.1939, Side 4
4. SíÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 27. DES. 1939 Itinmsknniila | (StofnuD 1888) Kemur út á hverjum miOvikudegi. Elgendur: THE VIKING PRESS LTD. 8S3 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg Talsímis 86 537 Verð blaðslns er $3.00 árgangurlnn borglst = tyrlrfram. Allar borganlr sendlst: THE VIKING PRESS LTD. 3U vlSsktfta bréf blaSinu aðlútandl sendlst: m K-'nager THE VIKING PRESS LTD 853 Sargent Ave., Winnipeg Ritstjóri STEFAN EINARSSON Utanáskrift til ritstjórans: EDITOR HEIMSKRINGLA 853 Sargent Ave., Winnipeg “Helmskringla” is publisbed and printed by THE VIKING PRESS LTD. 853-855 Sargent Avenue, Winnipeg Man Telepbone: 86 537 IIIIHIIIIIWUlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllliUIIIIHIIIIIIIIIIIIIIUIIIIIU^I^^WlUlllllllilllllllllllllllllffi WINNIPEG, 27. DES. 1939 Á R A M ó T í þetta sinn verður ekki skrifað almanak um viðburði ársins, sem er að líða, en það er einn sögulegur viðburður fyrir þetta land, sem vert er að minnast á. Það var 24. des. 1814, fyrir réttum 125 árum, sem samningurinn í Ghent var gerður, milli Breta (eða Canada) og Bandaríkjamanna og sem enda batt á stríðið 1812 milli þessara nágranna þjóða. í samningi þess- um var ákveðið, að engin varnarvirki skyldu gerð á landamærum Canada og Bandaríkjanna frá hafi til hafs, og engin herskip sigla um vötnin, sem á landamær- unum eru. Þetta þotti eflaust mörgum manni þá ekki bera mikinn vott um stjórn- vizku og mun ekki ennþá gera það, og sannar Evrópa það nú. En árangurinn af því er samt sem áður sá, að í stað her- virkjanna hafa risið upp friðarbogar og friðargarðar víðsvegar á þessum landa- mærum og þrjátíu miljónir bíla sem fram og til baka bruna yfir þau á hverju góð- viðrasömu sumri, þurfa ekki að stöðva vélarnar, meðan ferð þeirra er greidd, og sem í því einu er fólgið að sýna vegabréf. Að maðurinn er Canada eða Bandaríkja- þegn, er trygging þess að engra frekari spurninga þurfi við. Svo er traustið og bræðralagið ríkt milli þessara þjóða. Hér er aðeins um heilbrigða skynsemi að ræða. Ef stjórnmálamenn Evrópu hefðu ögn meira af henni en þeir virðast hafa, þyrfti heimurinn ekki að kvíða komandi ári. Gleðilegt ár lesari sæll. ÞJÓÐABROTIN MÖRGU f CANADA OG HITLER Eftir Watson Kirkconnell II. kafli—úkrainar í Canada ♦ Úkrainar (eða Litlu Rússar) í þessu landi eru undantekningarlaust stuðnings- menn Canada og bitrir andstæðingar Hitl- ers. Þetta nær eins til þeirra fáu sem kommúnistastefnu aðhyllast og eru í fullri sátt við Moskva enn sem fyr. Úkrainar eru fjórða fjölmennasta þjóðin í Canada. Um tölu þeirra flytja blöðin oft sundurleitar og ýktar fréttir. Eftir manntalinu 1931, og þar með til greina teknar hinar tíðu breytingar á landamær- um í Evrópu, eru þeir 244,629. Innflutn- ingar hafa litlir sem engir verið síðari árin. Áhugi þeirra fyrir stjórnmálum, mun vera meiri en nokkurs annars þjóðarbrots í Canada. Ávalt hefir það ekki svo verið. Á innflutningsárunum miklu frá 1900 til 1914, létu landnemarnir sig stjórnmál mjög lítið skifta. En myndun Úkraine- lýðveldisins og síðar fall þess (1917-1920), hafði geisimikil pólitísk áhrif á Úkraina í Canada. Eftir að ríkið hafði verið upp- leyst, kom fjöldi mentaðra Úkraina til þessa lands frá Evrópu. Blés bæði koma þeirra og tortíming ríkisinsi mjög að þjóð- ernisglæðunum, enda reis hér' upp þjóð- ernisstefna hjá þeim svo sterk, að ekkert kemst þar í jöfnuð við, nema ef væri írska Fenian hreyfingin í Bandaríkjunum á 19. öld. En Úkrainar eru miklu betur sam- taka, láta hærra og brjótast meira um, en þeir gerðu. Meginið af þessum úkrainum, sem sig svo kalla, komu fyrir stríðið mikla frá austurrísku héruðunum Galizíu og Bukov- ina, er skift var síðar milli Póllands og Rúmaníu. Trúarlega heyra þeir til róm- versk kaþólsku kirkjunni (en við þá kann- ast orþódox kirkjan rússneska þó helzt sem “grísk”-kaþólska eða “Uniata”). En sem góðir þjóðræknissinnar kálla þeir sjálfir kirkju sína: Úkrainisku orþódox kirkjuna. öll heildin af þeim er úkrainisk- ir þjóðernissinnar og hata Pólverja, Ung- ara, Rúmena og Rússa. Aðrir Ukrainar í Canada koma frá hinni eiginlegu Úkraine og fylgja yfirleitt kommúnistum í skoð- unum. Frá Rúþeníu, hinni karpatisku, hafa nálega engir innflytjendur komið. Er því á málefni þess héraðs litið, sem á úkrainiska þjóðernisstefnu eða kommún- isma. í Canada eigi síður en í Evrópu, heyra úkrainar til mörgum ólíkum stjómmála- flokkum. Veikir það þá talsvert í bar- áttunni fyrir þjóðernislegu sjálfstæði. f Canada mætti aðgreina þá á þann hátt, sem hér segir: 1. Konungssinna, sem æskja að kon- ungsríki verði endurreist í Úkraine og styðja Paul Skoropadsky, prins, til kon- ungs. Hann var “hetman” eða ríkisstjóri í úkraine 19Í8, í ríkinu sem stofnsett var af þýzka hemum, er þar hafði aðsetur. Canadisku blöðiri er stefnu þessa styðja, eru “Ukrainian Toiler” í Toronto og “Ukrainian Farmer” í Winnipeg. 2. Þá er “Ukrainian National Federa- tion”, félag, sem er grein af hinni svo- nefndu “Organization of Ukrainian Na- tionalists (O. U. N.), sem aðal bækistöð hefir í Yugoslavíu. Þeir bannsyngja Skoropadsky, en hafa fyrir leiðtoga An- drew Melnyk, hersir. Aðal verkefni þeirra er að koma af stað byltingu í Ev- rópu. Helztu bækistöðvar þeirra í Can- ada eru Saskatoon, Sudbury og Oshawa. Á Júða-hatri ber nokkuð hjá þeim og þeir eru hemaðarlega hugsandi. f Norður- Ameríku halda þeir fram að þeir séu lýð- ræðissinnar og vinna að því að skapa úkrainiskt lýðveldi í Evrópu. Blað þeirra er “The New Pathway” í Saskatoon. 3. Ukrainian Self-Reliance félagið. — Þetta félag er ólíkt hinum að því leyti, að aðalmenn þess eru innfæddir og mentað- ir Canada-menn. Þeir eru fordómalausir um liðna tíð og meta á sína vísu, hug- sjónina um úkrainiskt lýðveldi, en þeir byggja ekki neinar viðreisnarvonir sínar á Berlin eða Moskva. í trúmálum standa þeir nærri Ukrainian orþódox kirkjunni og eru 33,000 að tölu. Aðal málgagn þeirra er “The Ukrainian Voice” í Winnipeg. 4. Þá eru þeir kaþólsku. Þeir eru fylgjendur Uniata kirkjunnar hér og eru um 70 af hundraði af canadiskum Úkrain- um. Þó þeir hafi enga pólitíska stefnu- skrá, eru þeir sterkir þjóðernissinnar og eru hatursmenn kommúnista. Blöð þeirra eru “Ukrainian News” í Edmonton og “Future of the Nation” í Yorkton. í síðar- nefndu blaði vottar fyrir Júða-hatri jafn- framt óbeit á kommúnistum. 5. Orþódox flokkinum fylgja þeir er á úkrainisku mæla og tilheyra rússnesku orþódox kirkjunni í Canada; þeir eru um 100,000 og eru flestir frá Bokovina. Af öllum úkrainum eru þeir fjarstir þjóð- ernis-stefnunni og eiginlega stjórnmálum í nokkurri mynd. Fjölmennastir eru þeir í Vegreville nýlendunni miklu í Norður-Al- berta. Blað hafa þeir ekkert utan kirkju- blaðið “The Canadian Orthodox Messeng- er” í Winnipeg. 6. Kommúnistarnir. Flokkur þessi, sem hér lætur talsvert á sér bera, á fylgis- menn sína innan Labor-Farmer Temple Association. Þjóðemissinnar eru þeir sem aðrir Úkrainar, en eru þeim samt ólíkir í því, að þeir álíta þjóðbræður sína hafa öðlast þjóðríki með því að Ukraine þeirra er eitt ríkið í Sovét Rússlandi (Ukrainian Socialist Soviet Republic); að þeir af löndum þeirra sem í Póllandi voru, hafi nú sem betur fer hlotið frelsi, og að það eina sem eftir sé að gera, sé að leysa þá landa sína sem í Rúmaníu og Ungverja- landi búa, af klafanum og það sé verkefni kommúnista að koma því í verk. Þeir eru mjög andvígir Hitler og einræðis- stefnum Evrópu og eru því oft í andstöðu við þjóðbræður sína hér. Þeir gefa út dagblað í Winnipeg er heitir “People’s Gazette”,- Af flokkum þessum tsem hér hafa verið nefndir, eru það konungssinnarnir (Het- manites) og National Federation-flokk- urinn, sem fyrir ári síðan voru fylgjandi Hitler. Þeir litu á Hitler sem bjargvætt þjóðeraisstefnunnar og væntu þess að hann gerði Ukraine að sjálfstæðu ríki. En síðan að hann hrifsaði Bæheim og Moravíu og seldi Ungverjum Karpata héruðin í Ukraine, hafa tilfinningar þeirra breyst gagnvart Hitler. Og stríðið milli Breta og Þjóðverja, hefir algerlega gert þá frá- hverfa Hitler og alla með Canada-stjórn og því sem hún hefst að í stríðinu. En eins og áður er gefið til kynna, verður þetta ekki sagt um Úkrainisku kommún- istana, sem að vísu hata Hitler, en eru ennþá öflugir stuðningsmenn Sovét Rúss- lands. FERTUGASTA BREIDDAR- GRÁÐAN Það er haft eftir bændum í miðríkjum Bandaríkjanna að ekki sé til neins að keppa á ávaxta og matjurta-sýningum, við þá bændur er búa á fertugasta breidd- arstiginu, því þar nái allur jarðargróður mestum þroska. Á þeirri gráðu er sagt að kraftur sólar sé mestur, og því nái bæði aldini og annar jarðargróður þar meiri þroska en bæði fyrir sunnan hana og norð- an. Auðvitað eru miklar undantekningar á þessu lögmáli. Bezta hveiti og aðrar korn- tegundir eru nú framleiddar langt fyrir norðan fimtugustu breiddargráðuna, en það er fyrir það að þar er dagurinn lengri að sumrinu og því þroski þesis er að vorinu er sáð, fljótari. En svo er að- gætandi að bezta uppskera af korntegund- um fæst vanalega fyrst eftir að landið er plægt í fyrsta sinn. Það eru engar skýrsl- ur til svo eg viti sem sýna hvað mikið hveiti fékkst af ekrunni í miðríkjunum fyrst eftir að þau bygðust; hún getur hafa verið eins mikil eða meiri en nokkurs staðar norðar. En hvað sem þessu líður, þá er hitt víst að í nánd við ferugasta breiddarstigið hefir maðurinn náð sinni fyrstu fullkomn- un, bæði andlega og líkamlega. Því þó menning byrjaði sunijar meðfram stór- ánum Euphrates, Tígris og Níl, vegna þesisi að á ísaldar tímabilinu sem ekki end- aði fyr en fyrir 50,000 árum síðan, var ekki lifandi mikið norðar; náði sú menn- ing hámarki sínu í byggingarlist, stjórn- kænsku og lagasetningu. Það var ekki fyr en komið er til Gyðingalands, Iran (Persíu) og Grikklands að hinar háleitari listir hefjast, vís-indi, skáldskapur, hinar fögru listir, heimspeki og háleitar hugmyndir um guðdóminn; um 'hinn foma skáldskap Indverja vitum við ekkert fyrir víst, en líklegt sýnist það að hann eigi uppruna sinn norðan við Himalaya-fjöll áður en þeir lögðu Indland undir sig. Meira að segja, flest af þeim helstu trúarbörgðum sem nú eru játuð og höf- undar þeirra hafa átt upptök sín í nánd við þetta breiddarstig, einnig þeir menn er svo hafa skarað fram úr öðrum að þeir hafa verið kallaðir frelsarar heimsins. Hefir Iran þar verið fremst allra þjóða jafnvel fram á vora daga, enda eru Persar hin merkasta þjóð og hafa verið frá upp- hafi vega. Ekki er heldur langt þaðan frá til Norður-Gyðingalands þar sem höf- undur Kristninnar ól sinn stutta en að- dáanlega aldur; og þar 'sem fegursta saga allra trúarbragða, jólasagan átti uppruna sinn. Hana hlýtur hver maður að dá og elska hvert sem hann skoðar hana sem sögulegan sannleika eða skáldskap. En sýnilegasti votturinn um það hvað sérstakt þetta breiddarstig er, er það, að á því og nærri því hafa menn frá fyrstu tíð til vorra daga bygt fleiri og stærri borgir en á nokkru öðru breiddarstigi. Þetta sannast bezt með því, að fylgja lín- unni á landabréfinu frá Japan til Cali- forníu. Er það þá fyrst að Tokyo, stærsta borg í Japan er aðeins fáar mílur sunnan við línuna. Þaðan liggur hún yfir norður- hluta Chusen (Koreu), fáar mílur norðan við Tientsin en rétt meðfram Peking, stærstu og líklega elstu borg í Kína. Þaðan liggur línan vestur yfir þvera Asíu, fyrst um eyðimerkur og strjálbygð svæði en meðfram henni langt inn í land; liggur hér Kína múrinn, mesta þrekvirki allrar fomaldarinnar. Svo hittir hún tvær borg- ir, Samarkand og Bokara, þær einu á allri Asíu hásléttunni sem nokkuð kveður að. Eru þær báðar æfagamlar og nafnkunnar fyrir iðnað og verzlun. Samarkand var höfuðborg Timur halta og var hann þar jarðaður með konum sínum. Héðan liggur línan yfir suðurhluta Kaspíu hafs rétt hjá olíubænum Baku og þaðan vestur Litlu Asíu, rétt hjá Ankara, hinni nýju höfuð- borg Tyrklands, á aðra hlið er Mikligarð- ur fáar mílur til norðuns', en Smyraa álíka langt til Suðurs; og kveður svo Asíu á rústum hinnar afarfornu Troju-borgar. Sú borg var fyrst bygð langt aftur í steinöld. Hún var bygð og eyðilögð níu sdnnum áður en Grikkir gerðu útaf við hana í síðasta sinni snemma á Rómverska tímabilinu. Til Evrópu kemur línan sunn- an við Salonicu (Þessaloniku), en Aþenuborg er nokkrar mílur til suðurs, en hún var höfuðstað- ur hinnar forau grísku menning- ar sem var svo glæsileg og hald- góð að hún er enn að vissu leyti undirstaða skólamentunar nú- tímans. Er freisting að fara um hana fáum orðum en það get eg ekki vegna rúmleysis. Þó verð eg að geta þess sem er á tiltölu lega fárra manna vitorði að Fom-Grikkir vissu ekki eifnu isdnni að jörðin var hnöttótt, eins og hið forna líkneski af Atlas vottar, heldur voru þeir búnir að mæla stærð hennar svo ekki munaði nema þúsund mílum á ummáli. Þá liggur línan yfir suður hluta ítalíu, með Neapel og Róm á aðra hönd en Sykileyjar borg- irnar messina og Syracuse á hina. Á þessu svæði blómgaðist hin foraa Rómverska menning og hér hófst endurvakningar tímabilið eftir viðalda myrkrið. Hefir á ítalíu verið á öllum tím- um að finna andlega jötna, snill- inga og mikilmenni bæði til góðs og illsi. Næst liggur línan eftir Mið- jarðarhafi yfir Sardiníu og svo til Spánar, þar er höfuðborg landsins, Madrid, beint á línunni en Barcelona nokkuð til suðurs. Næst liggur hún yfir Portúgal og er Lisbon þá nokkrar mílur til til norðurs en Oporto álíka langt til suður. Þá liggur línan yfir Atlants haf og kemur til Ame- ríku fáar mílur fyrir sunnan New York með öllum þeim bæja klasa sem henni fylgir. Hún liggur beint í gegn um Phila- delfíu með Baltimore og Wash- nigton fáar mílur til suðuns. Þaðan vestur rétt hjá Columbus, Ohio og Indianapolis, Indiana með Pittsburgh, Cleveland, De- troit og Chicago til norðurs en Cincinnati, St. Louis og Kansas City til suðurs. Hún liggur rétt hjá Denver og Salt Lake City og skilur við Ameríku fáar mílur fyrir norðan San Francisco, inn- an um rauðviðarskóginn nafn- fræga, þar sem hið elsta, hæsta og tignarlegasta alls þess er á jörðinni lifir er að finna. Rétt meðfram línunni á austurströnd- inni er að fina hæstu byggingar sem menn hafa enn bygt á Vest- urströndinni, þær veglegustu brýr sem enn hafa verið bygðar. Suðurhluti þessarar jarðar er að meisitu leyti hafinu gefin. — Fertugasta breidar stigið liggur þar fyrir sunnan öll lönd nema suðurheimskauts landið, syðsta hluta Suður-Ameríku, Tasmaníu og syðri eyju Nýja Sjálands. Hér er því ekki um borgir að ræða á línunni sjálfri en allar helstu borgir í næstu löndum eru svo nærri henni sem þær geta kom- ist, isvo sem Oape Town á suður- odda Afríku, Buenos Aires og Montevideo í Suður-Ameríku, Napier og Wellington í Nýja- Sjálandi, sín hvoru megin henn- ar, og Sydney og Melboume í Ástralíu. Hobart í Tasmaníu er þar þó undantekning því sá bær er sunnan á eyjunni, en línan liggur í gegum sundið milli Ástralíu og Tasmaníu. Og sömu lögin ráða hér sem á Norðurhveli jarðar, hvað verklegar framkvæmdir snertir. New York, sem er á undan öllum borgum heims- ins í því tilliti, hafði lengi að sýna mestu brýr í heimi, en svo komst Melbourne á undan með brúarbyggingar, og nú síð- ast San Francisco. Enda er Gold- en Gate brúin hið tignasta mannvirki er eg af veit. En allar þessar borgir eru aðeins fáar mílur frá fertugasta breiddar- stiginu. Áður benti eg á, að upphaf vísinda, hinna merkari trúar- bragða og liista væri að finna í nánd við þetta breiddarstig. Það er sama sagan þegar til upp- fyndinga kemur. Fyrstu vís- indamenn Vesturheims, Priest- ley sem fann súrefnið um 1770 og Benjamin Franklin, sem fyrst sýndi að eldingin er rafmagn, áttu báðir heima í Phildelfíu, beint á fertugasta stiginu. Gufu- vélin var uppfundin á Bretlandi og þar voru fyrstu gufuvagnar bygðir, en fynsti gufubátur var bygður í New York, og þar var síðar upp fundinn fyrsti járn- barðinn, Monitor, sem var vísir- inn að allri nútíðar hernaðarað- ferð á sjó, og ennþá síðar var í því nágrenni uppfundinn og bygður fyrsti kafbáturinn. Sím- inn var fundinn upp í Baltimore. Talsíminn fullkomnaður og fyrst sýndur í Philadelfíu. f East Orange, N. J., milli New York og Philpadelfíu eyddi Edison sinni uppfyndingasömu æfi og þaðan eru komin mjög mörg af þeim þægindum er vér nú höf- um. Akuryrkju vélamar voru uppfundnar í miðríkjunum með- fram sömu línunni og þó Eng- lendingar ættu fyrstu hugmynd- ina um saumavél, var það í New York isem hún á endanum var fullkomnuð eins og vér nú þekkj- um hana. Hinar afarfornu uppfynding- ar, fleigurinn, öxin og hjólið, vitum vér ekki hvar áttu upp- runa sinn en ekki er ólíklegt að það hafi verið í suðurhluta Asíu hálendisins nærri fertugasta breiddarstiginu þar sem hvíti kynflokkurinn er talinn að eiga uppruna sinn. En þó alt þetta sé upp talið og öðru við bætt svo sem hinni að- dáanlegu byggingar íþrótt Már- anna, sem fullkomnaðist mest á Spáni og í Iran. Hernaðar í- þróttinni sem með öðru kom frá | Grikklandi og ítalíu, eða því að þrír mestu hershöfðingjar allrar veraldarsögunnar, Alexander, Cæsar og Napóleon voru allir fæddir fáar mílur frá fertugasta breiddarstiginu; þó er eitt verð- mæti, eftir því er sögurnar segja, sem þroskaðist mikD norðar. Það er almenn velsæmis jtilfinning. Hún hefir aldrei 1 1 suðurlöndum náð þeim þroska ! sem hún öðlaðist á Norðurlönd- | um og líklega mest og bezt á ís- | landi. Það var þessi almenna j velsæmis tilfinning sem orsakaði j þá miakalausu trúmensku við I sjálfan sig sem sögurnar láta j forfeður vora sífeldlega sýna- I Orsakaði það að þeir sögðu sanri' ! leikann og héldu orð sín þó það kostaði þá lífið. Það að í ölluiri fornisögunum er sagt frá aðeinS einu konuvígi og fylgdarmenij Eyjólfs Grá óhlýðnast honum 1 að lífláta Auði konu Gísla Súrs- sonar þegar hún rak sjóðinn ** nasir hans isvo blóðið lagaði nið' ur eftir honum öllum. Fyrsts og mesta orsök þessarar trá' mensku við sjálfan sig var eftií' tekt kynflokksins á því að ení' inn maður umflýr ábyrgð verk^ sinna. Það er rauði þráðuriri1 sem liggur í gegn um allar vornr fornsögur, þessvegna eru ]>&[ allar prédikanir þó ekki haf’ þær verið af stóli fluttar. að sunnan að áhrifin voru ekkj öll jafngóð sézt bert á þeirí1 breytingu á lundarfari man# frá 1000 þegar hverjum manfl1 var trúandi til 1200 þegar ení' um var lengur trúandi. En við hverju má búast þegar sjálf^ biskupinn á Hólum gefur orð*' laust aflausn fyrir annað ein5 afskaplegt hryðjuverk sef1 Flugumýrar brennu? En þrát' fyrir alt er þessi trúmenska við sjálfan sig enn ekki útdauð á landi, því það var haft eftir út' lendingum þeim er sóttu hátíð' ina á Þingvöllum 1930 að meS4 hafi þá furðað að sjá allskyt3 hluti liggja á rúi og strúi um alj11 Þingvalla sléttuna en engu veri* stolið. Við íslendingar megur1 þakka fertugasta breiddarstií' inu eins og aðrir, fyrir margt, en það dýrmætasta * öllum verðmætum er vort ei%v og mestu þjóðræknina tel eg K að halda því við. M. B. H-

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.