Heimskringla - 04.09.1940, Blaðsíða 3

Heimskringla - 04.09.1940, Blaðsíða 3
WINNIPEG, 4. SEPT. 1940 heimskringla 3. SÍÐA meðallagi og fylgdist með í al- mennum málum og einnig bygð- armálum. Skýr og ákveðin var hún í stefnu, aldrei hikandi eða myrk í málum og gat látið í ljósi skoðun sína skýrt og skorinort. Síðastliðin 6 ár, öll þessi árin síðan hún varð ekkja átti hún heimili hjá syni sínum og tengda- dóttir, Eyjólfínu, sem fyr er getið. Því verður ekki auðlýst hversu vel tengdadóttirinni fórst við hina látnu með umönnun, nærgætni og hugsunarsemi. Eins áttu börn hinnar látnu mikinn þátt í því að gleðja hana á ýmsan hátt, og með nærveru sinni gera henni lífið léttara. Ekki má heldur gleyma að geta þess að vinir hinnar látnu, karlar sem konur, sumir ná- grannar frá fyrstu frumbýlings- árum, báru henni marga verm- andi geisla á erfiðri leið, alt fram að sólarlagi lífsins.. Margs var að minnast bæði heiman frá gamla landinu og líka samtíðarlífi í þessari bygð um 46 ára skeið. Jarðarförin fór fram þann 14. maí s. 1. frá lútersku kirkjunni í Langruth að viðstöddu miklu fjölmenni. Líkmennirnir 6 voru allir barnabörn hinnar látnu. — Séra S. Christoperson stýrði út- förinni. Guðbjörg sál. var lögð til hvíldar við hlið manns síns í Langruth grafreit. . S. B. O. ABRAHAM LINCOLN Eftir Náttfara hann sagði þeim sögur. Hann lagði mikla rækt við þau mál er aðrir létu sér fátt um finnast. Fyrsta málið sem hann færði var fyrir ógifta móðir og einstæðing. — “Hversvegna er hún sér”, spyr Lincoln. “Af því einhver hefir tælt hana til þessa glapræðis. Sá er henni, að minsta kosti meðsekur, og því er hann ekki hér, sem tældi hana með fölskum játningum? Því er hann ekki hér til að játa sekt sína og heimta föðurrétt sinn eins og lieiðarlegur maður? Hún ber sekt þeirra beggja en þyngri en áfellisdómur almennings, er vitundin um svik hans, er hún treysti bezt, meðvitundin um ó- menning hans ,er hún hugði öðr- um betri. Eigum við að auka við þá sorg, brjóta hinn beigða reyr, leggja það lágt, sem er lamað og veikt? — Rétturinn var henni miskunsamur og Lincoln vann sitt fyrsta mál. Lincoln tók að sér mál fyrir ekkju, sem hafði verið féflett af öðrum lögmanni. Hún hafði verið gift hermanni úr frelsis- stríðinu og bar eftirlaun frá stjórninni. Lögmaðurinn hafði genigð í að innheimta þau en stakk mestum hluta þeirra í sinn eigin vasa. Lincoln leiddi hana fyrir réttinn og mælti á þessa leið: “Sjáið hversu elli og ör- birgð hefir leikið hana, en einu sinni var hún ung og fögur eins og ykkar eigin dætur. Þá var hún manni gefin og sá maður lagði líf sitt í sölurnar fyrir Frh. á 7 bls. Framh. Já, það er vissulega vandi hans að vísa þeim málum frá sér, sem hann vissi ranglega upp tekin. “Nei, þennan mann vil eg ekki verja, af því hann er sekur (guilty as hell) —/látið ykkur ekki detta í hug að Lincoln brúk- aði ekki bölvið til bragðbætis undir vissum kringumstæðum, þótt hann væri oftast vandur að málbragði sínu). Með þessum orðum og álíkum lét hann marg- an sökudólginn frá sér fara. — “Jú, líklega getum við nú logið okkur í gegn um það en eg myndi hafa það altaf á simvizkunni að eg væri að ljúga og ef til vill kynni eg að gleyma mér og segja það upphátt”, sagði hann eitt sinn við mann er bauð honum álitlega fjárupphæð til að verja mál sitt í réttinum. Hann. lét sér ekki nægja að málið væri verjanlegt frá lagalegu sjónar- miði ef það var ekki jafnframt á siðferðislega réttum rökum reist. “Jú,' lagalega kann það'að vera verjanlegt en það er samt sem áður á siðferislega röngum rök- um bygt.” Aðrir lögmenn brostu að slíkum athugasemdum og kölluðu það sérvizku. Hann var annars undarlegur þessi Abra- ham, þótt hann gæti stundum verið nógu skemtilegur, þegar SILFIHBRtJÐKAUP hjónanna á Fögruvöllum í Geysisbygð. Þrátt fyrir annir og óvenju mikinn hita fjölmenti fólk við samkomuhús Geysisbygðar þann 20. júlí til þess að samfagna hjón- unum Guðmundi Sigvaldasyni og Steinunni Guðmundsdóttur konu hans á 25 ára giftingaraf- mæli þeirra, er þau áttu í síð- astliðnum marz-mánuði. Salur- inn var alskipaður fólki, með gleði og sumarblæ. Samsætið hófst með því að sunginn var brúðkaupssálmur og bænarorð flutt af sóknarpresti, er bauð gesti velkomna til samfagnaðar með heiðursgestum dagsins, börnum þeirra og fjölmennu liði náinna skyldmenna. Gjafir voru afhentar, vandað “chesterfield” frá bygðarbúum og skyldfólki, og stóll, samsvarandi, frá börn- um heiðursgestanna og systur brúðarinnar, einnig peningagjöf frá almenningi. Fyrir minni brúðar mælti Mrs. Jóhanna Thor- varðarson, með einkar vönduðu erindi. Jónas G. Skúlason bóndi að Fögruhlíð mælti fyrir minni brúðgumans, með glöggu og skemtilegu erindi. Gestur bondi Oddleifsson í Haga flutti heið- ursgestunum hlýlegt erindi frá Til Mr. og Mrs. G. Sigvaldasonar Flutt í silfurbrúðkaupi þeirra að Geysir, Man., 20. júlí, 1940 Það sýnir engann tómleik þetta mikla stefnumót, Sem minnistæðast verður lengst við íslendingafljót. Og þegar landar ætla sér að breyta um hversdags brag Þá bregst þeim ekki að snuðra upp einhvern merkan tyllidag. Og fyrir “Steinu” og “Munda” okkar gamla gleðilag Skal glymja hátt til minningar um þeirra brúðkaupsdag. Því það er víst að öllum bera þjóðleg þakkargjöld Sem þrauka í sama hjónabandi fjórða part úr öld. Já, æskan gaf þeim djarfan hug, og fögur fyrirheit, Og fylling þeirra í ríkum mæli veitti þessi sveit, Og meðan yfir “Fögravöllum” morgunröðull rís Þau ríkja þar sem konungshjón í eigin Paradís. Mér finst eg býsna rétthár því í rauninni eg er Sem registeruð undirtylla kvenfélagsins hér, En náttúrlega þegar voða og vanda að höndum ber; Eg veit þær treysta Guði bezt; en þar næst kannske mér. Svo drjúpi yfir “Munda” og “Steinu”, þeirra börn og bú Öll blessun þessa kvenfélags í ást og von og trú, Og þótt mér hafi mislukkast að mæla í kvennatón Eg tel mér sæmd að vera stundum þeirra “gramafón”. Lúðvík Kristjánsson. Guðmundur og Steina Sigvaldason I silfurbrúðkaupi þeirra, Geysir 20. júlí 1940. Nú vakna aftur æskustöðva heitin Nú endurskapast mörg hin fyrri ljóð Nú brosir enn við okkur sama sveitin Og sumardagsins stund Nú kallar lífið enn á ungdóm landsins Sem okkur fyr, að renna göfugt skeið Og enn er treyst á helgi hjónabandsins Því himins dögg er oft á þeirri leið. Nú vakna aftur allar gamlar sögur Og æfintýri mörg er birtust þar Þá var bygðin, alt eins frjáls og fögur En “Framnes” búið, langt af öðrum bar. Sigvaldi með sælu bros á vörum, Sjónum rendi drengja hópinn á, En Margrét átti kjark í öllum kjörum Og kunni vel að herða og brýna þá. Þá gerðist þeta æfintýra undur Og ólst þar upp við mánaskin og nótt, Vitni gætu borið, laut og lundur Þá líður sælustundin heldur fljótt. Og Mundi fann það þá, og alt í einu, Hve ástin smýgur gegnum taugar manns Hann fann. Það líf er allslaust utan Steinu Og ekkert þvílíkt blóm á vegi hans. Hún sagði : “Já”. Þau urðu síðan saman, Og saman reistu bú á nýjum stað, Og þessi stund er góðra vina gaman, Því gleðin hefir rent í þeirra hlað. Hvergi er bygðin fegri en “Fögruvellir”, Fegurð landsins skín á búandann, Þegar guð úr himin lindum hellir Og heimsins börnum færir sáttmálann. Það er okkar ósk og allra hinna Að andi Drottins blessi þeirra rann, Að ávöxt beri barna þeirra v.inna; Á bústað þeim sem faðir þeirra ann. Gleði lífs, og heill sé þessum hjónum, Sem hlýddu þannig röddu sannleikans, Við skynjum þennan óm úr æðri tónum, Því ástin tendrar ljós á vegi manns. G. O. Einarsson Success Business College ^lrainjoy Business sjónarmiði gamals nágranna, og sagðist vel. Meðal nokkurra Winnipeg-búa er samsætið sóttu voru Mr. og Mrs. A. S. Bardal, mælti Mr. Bardal ljúfum ávarps- orðum til Margrétar móður brúð- gumans, og rifjaði upp kynningu fyrri ára við hana og látinn mann hennar, Sigvalda Símonarson. — Friðrik P. Sigurðsson, bóndi i Fagradal flutti heiðursgestunum hlýtt kvæði. Mr. og Mrs. Lúð- vík Kristjánsson frá Winnipeg voru viðstödd og einnig börn þeirra, hafa þau hjón lengi ver- ið tengd vináttuböndum við Fögruvallahjónin, flutti nú Lúð- vík skáld eitt af sínum fyndnu og hressandi ljóðum, til heiðurs- gestanna og var gerður góður rómur að kvæði hans. Söngur allur var undir stjórn Jóhannesar Pálssonar og Lilju systur hans, eru þau bæði listræn og vel kunn í öllu héraðinu fyrir hæfilegleika sína í þarfir söng- legra lista, söngflokkur hér, und- ir stjórn þeirra, en almenningur fylgdist með. Guðm. O. Einarsson, verzlun- arstjóri, flutti markvíst og skemtilegt kvæði, er færði hress- andi blæ inn í hitaþrungin salar- kynni. Ríkulegar veitingar voru fram- bornar af fjölmennum og glæsi- legum skara yngri og eldri kvenna, var samsætið og sam- fundir fólks indæl áningarstund á annaþrunginni æfileið, um há- sláttinn — úti í sveit. Fögruvallahjónin, eru þrátt fyrir 25 ára samfygld, ung, og ágætlega á sig komin, enda er Guðmundur bóndi rúmlega fim- tugur en kona hans mun yngri. Guðmundur er uppalinn í Geysisbygð, sonur Sigvalda Sí- monarsonar landnámsmanns í Framnesi ,er Sigvaldi nú látinn, en Margrét Benediktsdóttir ekkja hans er á lífi, eru og þrótt- mikil og hugarstyrk sem fyr, þrátt fyrir stórt og mikið dags- verk er hún hefir með sæmd og heiðri af hendi leyst, og allháan aldur. Eru synir hennar með umsvifamestu og gildustu bænd- um hér um slóðir: Bjarni við Ár- borg; Sigurður á Hvítarvöllum, kv. Láru Bjarna Marteinssonar á Hofi í Breiðuvík; Benedikt Valdimar, bóndi á föðurleyfð sinni, Framnesi, kv. Ingibjörgu dóttur Qlafs Anderson frá Gilsá, Arilíus, í Riverton, kv. Önnu Eastman og Jón heima, ógiftur. Guðmundur á Fögruvöllum er, sem fyr segir kvæntur Steinunni Guðmundsóttir ættaðri úr Árnes- sýslu ofanverðri, en uppalin í Reykjavík. Hún kom ung vest- ur um haf, og ung gengu þau Guðm. og Steinunn út á mikla veginn, hlið við hlið. Þau hafa barist ágætri og sigrandi bar- áttu, eru byggingar á heimili þeirra hinar fullkomnustu í öllu héraðinu, og þó víðar sé leitað; einkar vandað nýtísku hús bygðu Diego Winnipeg’s largest, most modern, and most beautifully appointed private Commercial College. Winnipeg’s only air-conditioned private Commercial College. In our Day Classes we enroll only students of Grade XI (Supplements allowed), High School Leaving, Grade XII, or University standing. Provides its students with— (a) Independent graduation examinations set and marked by the Business Educators’ Association of Canada. (b) A large staff of experts, the most of whom are University Graduates. (c) The service of an active Employment Bureau. FALL TERM Opens Monday, August 26th, and Tuesday, September 3rd As our accommodation is limited, we advise early reservations. Write now for application form and copy ohfree 40-page illustrated Prospectus. Telephone 25 843 Portage Ave. and Edmonton St. WINNIPEG þau fyrir tveimur árum síðan, er það hið ágætasta í alla staði. — Hagsýn og fumlaus framsókn, sem er ákveðin og markviss, hef- ir ávalt einkent Guðmund og konu hans, eru þau ábyggilegir og trúfastir stuðnings og mátt- arviðir þeirra mála er þau láta sig skifta. Þau eiga mannvæn- leg börn, eru synir þeirra sam- hentir og ljúfir samverkamenn foreldra sinna. Börnin eru: Guðmundur Sigmar, Guðmund- ur Pálmi, Aðalsteinn Octavíus og Hulda May. Þrjú börn mistu þau, öll í fyrstu bernsku. Syst- ur Mrs. Sigvaldason eru 3 á lífi og eru: Þórunn, gift Bjarna Brynjólfssyni þrests frá Ólafs- völlum Jónssonar, búa þau á Skeiðárholti í Árnessýslu; Anna, Mrs. B. K. Guðmundsson, San Cal., og önnur systir Anna að nafni gift kona, í sömu borg. Mikill hlýhugur og samfögn- uður með heiðursgestunum lýsti sér í ræðum, ljóðum og kvæð- um í téðu samsæti; samhuga árna héraðsbúar hjónunum á Fögruvöllum hamingju og langra lífdaga, og framhaldandi gæfu og gengis á hinum indæla stað, er þau hafa svo vel prýtt, og með sóma setið. Sigurður Ólafsson Til Guðm. og Steinunnar Sigvaldasonar á silfurbrúðkaupi. Við lékum saman, litlir ungir drengir, en leikurinn varð stundum nokkuð grár, í Munda voru sterkir ofnir strengir, Stóðst ’an enginn, þó hann væri knár. Eg held ’ann sé nú hættur við að glíma, Hefja stökk á pól og hlaupa til, Enginn sér ’ann iðjulausan híma Hann öllum gerir verkum sínum skil. Honum sendi heilla og ásta dísin, Hýra meyju vestur yfir sæ; Fjallaliljur þola eld og ísinn Og ekki fölna í hverjum mótgangs blæ. Á Fögruvöllum fögur blómin gróa. Finst þar alt sem þrífst í Bifröst sveit, Má þar líta engjar, akra og skóga, Einnig sauði, naut og hross á beit. Nú lifir Mundi í hárri og glæstri höllu, Sem hæfa mætti kóngi Bretalands. Eg veit þau hafa unnið fyrir öllu Og enginn þarf að borga skatt til hans. Yfir heilan aldarfjórðung liðinn, Þið ollu hafið sýnt hin bestu skil, Því vil eg að þið hljótið fremd og friðinn Og finnið glögt í minningunum yl. Þegar æfin ykkar verður búin Og enginn framar mæðir sorg né raun, Er mín hjartans óskin bæði og trúin, Þið öðlast megið, dýrust sigur laun. F. P. Sigurðsson - - Það er nýtt! EATON'S nýja 32 blaðsíðu Radio Verðskrá er nú til reiðu . . . þitt eintak bíður þín. 1 ár er það stærra og tilkomumeira en nokkru sinni fyr. Það inniheldur hið nýjasta í Radios, Wind chargers, Rafkæliskápum Electric Fence Controllers. Ljósaplöntum á bændabýl um, Radio Rafgeymar o. fl Sendið eftir eintaki í dag Notið miðan sem hér fylg ir. Prentið eða skrifið nafn yðar skýrt. Sendið eftir YÐAR

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.