Heimskringla - 16.04.1941, Blaðsíða 7
WINNIPEG, 16. APRIL 1941
HEIMSKRINGLA
7. SIÐA
Tvær íslenzkar konur sækja um
þingmensku undir merkjum
Social Credit flokksins
Ásta Oddson
Winnipeg
Salóme Halldórson
St. George
Styðjið eina umbótaflokkinn sem nú er
starfandi í fylkinu.
Auglýsing
Loðkragi hefir glatast hjá
stúlku með kattarhaus og
grænum augum á öðrum end-
anum, en þrem hölum á hinum
endanum.
* * *
Margar frumstæðar þjóðir á-
líta ennþá, að skuggi mannsins
sé annaðhvort sál hans eða
hluti af líkama hans. Hjá þeim
er þess vendilega gætt að
skugginn verði ekki undir
trjám, sem falla, eða að hann
sé lokaður inni.
Þannig hreinsa t. d. hinir ind-
versku Hindúar nákvæmlega
alla þá hluti, sem hinn þefilli
og viðurstyggilegi skuggi Pari-
anna (hinna óhreinu) hefir
fallið á.
LEIÐRÉTTING OG OFUR-
LÍTIL ATHUGASEMD
Frá Jóni úr Flóanum
ÍSLENZKA UTANRÍKIS-
ÞJóNUSTAN
Frumvarp ríkisstjórnarinnar
um utanríkisþjónustu Islands
erlendis var til 1. umræðu í
neðri deild í gær.
Utanríkismálaráðherra hafði
framsögn um það og rakti þá
atburðarás, sem lægi til grund-
vallar þeim ákvörðunum, sem
Alþingi Islendinga hefði tekið
10. apríl s. 1. En þá lýsti Al-
þingi því yfir, eins og menn
rekur minni til, að Islendingar
tækju meðferð utanríkismála
sinna í sínar hendur. Með
þessu hefði verið stigið spor í
þá átt að landsmenn hefðu full
forráð allra mála sinna.
Frumvarp það, sem nú lægi
fyrir deildinni til staðfestingar
á bráðabirgðalögum um þessi
efni væri rökrétt afleiðing af
því sem gerst hefði s. 1. vor.
Frumvarpið kvað ráðherrann
vera samið og undirbúið af
Sveini Björnssyni sendiherra,
sem væri ráðunautur ríkis-
stjórnarinnar um utanríkismál.
Samkvæmt frumvarpinu yrði
um sjálfstæða íslenzka utan-
rikismálaþjónustu að ræða. —
Fram til 10. apríl hefði með-
ferð utanríkismála samkv.
sambandslögúnum verið í
höndum sambandsþjóðarinnar,
Dana.
Hér eftir yrðu utanríkismálin
eingöngu í höndum Islendinga.
I þessu sambandi rakti ráð-
herrann, hvað nú þegar hefði
verið aðhafst í þessum efnum.
Eitt íslenzkt sendiherraem-
bætti væri stofnað, og væri
það í Kaupmannahöfn. Er sú
ráðstöfun að vísu eldri. Sendi-
fulltrúar (charge d’affaires)
hefðu verið skipaðir í Stokk-
hólmi og London. Sendifulltrúi
íslands í London væri jafn-
framt sendifulltrúi Islands hjá
norsku stjórninni þar.
Útsendur aðalræðismaður
væri í New York en aðeins einn
kjörræðismaður hefði enn ver-
ið valinn. En ríkisstjórnin hefði
skipun kjörræðismanna allvíða
til athugunar og nyti í því að-
stoðar Sveins Björnssonar
sendiherra. Þá hefði Sveinn
Björnsson unnið að því, að
semja ítarleg fyrirmæli til leið-
beiningar fyrir fulltrúa íslands
erlendis. Yrðu þessar leiðbein-
ingar prentaðar á erlend mál
þar sem vænta mætti að víða
yrði ekki völ á íslenzkum kjör-
ræðismönnum en útlenda menn
yrði að velja til starfans. Væri
því nauðsynlegt, að þeir hefðu
sem greiðastan aðgang að þess-
um leiðbeiningum.
Að lokinni framsögu ræðu
tók Einar Olgeirsson til máls,
en síðan var frumvarpinu vísað
með samhljóða atkvæðum til
2. umræðu og allsherjarnefnd-
ar.
Til glöggvunar verða hér
birtar þær greinar frumvarps-
ins sem mestu máli skifta.
“Ríkisstjórnin ákveður með
tilskipun, á hvaða stöðum skuli
vera sendiráð. Forstöðumenn
sendiráða eru sendiherrar (en-
voyé extraordinaire et ministre
plenipotentiaire) eða sendi-
fulltrúar (chargé d’affaires) og
eru skipaðir af ríkisstjórninni.
Ef ríkisstjórnin telur æskilegt,
má fela forstöðumanni sendi-
ráðs að veita forstöðu sendi-
ráðum í fleiri löndum en einu.
— Ríkisstjórnin skipar starfs-
menn sendiráða”.
“Ræðismenn eru sumpart
sendir út af ríkisstjórninni (út-
sendir aðalræðismenn) eða
kjörnir meðal þeirra manna, er
hæfir þykja (kjörræðismenn),
á þeim stöðum erlendis, er rík-
isstjórnin telur æskilegt”.
“Rikisstjórnin ákveður með
tilskipun á hvaða stöðum út-
sendir ræðismenn skulu vera,
og skipar þá”.
“Kjörræðismenn þurfa ekki
að vera íslenzkir ríkisborgarar.
Þeir taka og engin laun.”
—Mbl. 23. feb.
* * *
Tvö systkini deyja úr
inflúenzu ó Seyðisfirði
Vilhjálmur Árnason útgerð-
armaður frá Hánefsstöðum við
Seyðisfjörð andaðist í gær. —
Hann hafði legið rúmfastur í
inflúensu í 4 daga.
Vilhjálmur var nafntogaður
dugnaðarmaður. Hann var 74
ára að aldri. Systir hans átt-
ræð, Hólmfríður að nafni, and-
aðisí úr inflúensunni fyrir
nokkrum dögum.—Mbl. 23. feb.
58. ársþing stórstúku Mani-
toba og N. W. verður haldið í
Good templara húsinu, Sargent
Ave., mánud. og Þriðjudagskv.
21. og 22. apríl n. k. Utanbæjar
stúkur eru beðnar að athuga
þetta.
Hún: Svo sagði eg við hann,
að eg vildi ekki sjá hann leng-
ur.
Vinkonan: Hvað gerði hann
þá?
Hún: Hann slökti ljósið.
Kæri ritstjóri:
Mætti eg biðja þig fyrir eft-
irfylgjandi leiðréttingar?
I greinarkorni því, sem eg
sendi þér um daginn, og sem
prentað var í síðasta tölublaði
Heimskringlu, hafa tvær setn-
ingar ruglast almikið; þar
stendur: “Eg hefi stundum ver-
ið að lesa greinar í blöðunum,
hvort að höfundarnir hafi
aldrei fengið nokkra minstu
hugmynd um, hvernig eigi að
beygja algengustu nafnorð . ..”
En þarna átti að standa: “Eg
hefi stundum verið að hugsa
um það, þegar eg hefi verið að
lesa greinar í blöðunum, hvort
o. s. frv.” Og fáeinum línum
neðar er slept úr einni eða
tveimur línum. Þar átti að
standa: “Svona setningar’ eru
mjög algengar: “Hann giftist
dóttir Jóns Jónssonar. Björn
kom til bæjarins ásamt dóttir
sinni.” Eg man nú ekki hvort
þessi dæmi eru orðrétt eins og
þau, sem stóðu í handritinu, en
svo gerir það ekkert til.
1 einni grein, sem á undan
var komin, hafði prentarinn
sett “skilyrði” fyrir “skilriki”
og gerði það setninguna næst-
um óskiljanlega.
Hvers eigum við, aumir
menn, sem ritum stundum í
blöðin, að gjalda, að orð okkar
skuli vera svona afbökuð? —
Hafa prentarar og ritstjórar
alls enga meðlíðun með okkur?
Eða éru þeir að reyna að gera
okkur hlægilega í augum hátt-
virtra lesenda? .... Það er þá
líka mest gustukin!
Og svo vil eg þá um leið
leyfa mér að gera tilraun til
að leiðrétta misskilning, sem
eg hefi orðið var við hjá ein-
stöku manni út af því, sem eg
sagði um það, sem hefir verið
ort og ritað í blöðin hér um
hina frægu söngkonu, Maríu
Markan. Eg skal viðurkennna,
að það hefði mátt komast betur
að orði. Þetta er það, sem eg
sagði: “Eg hefi ekki verið svo
heppinn að heyra þá frægu
söngkonu, Maríu Markan,
syngja, og þykir mér það leið-
inlegt. (Það, að eg hefi ekki
heyrt hana syngja.) En eg
hefi lesið sumt af því, sem um
hana hefir verið ort og ritað í
blöðin hérna, og þykir mér það
líka leiðinlegt.” .... Þetta
ber að skilja svo, að mér hafi
þótt sumt af því, sem um söng-
konuna hefir verið ort og ritað
leiðinlegt; en ekki þannig, að
mér þyki leiðinlegt, að um
hana hefir verið ort og ritað, og
að henni hefir verið hrósað,
langt frá því; enda tók eg það
fram strax í næstu setningu, að
hún ætti eflaust mikið hrós
skilið......En eg hefði líklega
átt að segja, að mér hefði þótt
sumt af sumu af því, sem um
hana hefir verið ort og ritað,
leiðinlegt, þar sem eg hafði
ekki lesið nema sumt af því; og
mér þótti sumt af því, sem eg
hafði lesið, leiðinlegt. Maður
getur aldrei verið of varkár
með það að hafa framsetning-
una nógu ljósa......Og ennþá
lifi eg í voninni um að fá að
heyra ungfrú Markan syngja.
Nú hefi eg kynst henni svo
mikið, að eg hefi talað við hana
örfá orð, og árétta eg alt það,
sem aðrir hafa sagt, um hið
mjög látlausa og vingjarnlega
viðmót hennar.
Samsveitung mínum, Manga
úr Móanum, sem var alinn upp
fyrir ustan móhraukana (ef
þetta er ekki Flóa mál!), vil eg
segja þetta: það gæti skeð að
einhverjum öðrum, sem eru
ættaðir úr óæðri héruðum
landsins, fyndist það óviðeig-
andi, að tveir Flóamenn færu
að hæla hvor öðrum of mikið.
En alt um það met eg viður-
kenninguna eins og hún er
verð. Og þar sem þitt andans
ljó.s hefir víst verið undir mæli-
keri fram að þessu, er mál til
komið, að þú farir að láta það
skína. Eg er þér alveg sam-
mála um að kvdsði dr. Björn-
sonar er ágætt og líka vil eg
Ijúka lofsorði á kvæði Ragnars
; Stefánssonar. En það segi eg
þér, að þeir eru þau einu Maríu-
skáld, sem mér þykir nokkuð
til koma. Og þá erum við lík-
lega svona hér um bil sam-
mála. Nú er víst bezt að hætta.
Og vona eg, ritstjóri góður, að
þú finnir rúm fyrir þetta ein-
hvers staðar innan um ávörpin
til háttvirtra kjósenda. En
blessaður líttu yfir próförkina.
YFIRLÝSING
til kjósenda í St. George
kjördæmi
Herra Stefán Einarsson,
ritstjóri Heimskringlu:
Þökk fyrir þitt frjálsa eðal-
lyndi að leyfa hinu litla grein-
arkorni frá mér að koma á
prent í Heimskringlu fyrir
skömmu.
Það má geta þess sem gert er
eins og altíðast er að það sem
lengst mætti leggja til hliðar.
Einar P. Johnson, ritstjóri
Lögbergs með alt frjálslyndis
gasprið fann sig knúðan til að
láta þá afmán eftir sig liggja
að búa til og láta frá sér fara,
vinstri handar afkvæmi mér til
minkunar sem hafði hvorki
upphaf né enda. Samkvæmt
grein minni (sjá Heimskr.). —
Þar er rétt sett að einu orði frá
dregnu. Tilfellið var, að grein
mín bar það eindregið með sér,
að eg var andvígur þessu ó-
myndar samsteypusulli flokk-
anna, því þeir höfðu ekkert
lagalegt vald til slíkrar sam-
steypu samkvæmt réttu og
sönnu lýðræði og sú stjórn sem
hefir sett sig þannig til valda
er fallegt sýnishorn af fasisma
eða öðru verra. Þessi stjórn
sem eg er að tala um, (ef stjórn
skyldi kalla), er að blanda sér í
hermál sem henni koma ekkert
við fremur en hinni háttvirtu
sveitarstjórn á Lundar í Cold-
well-sveit, og eg er standandi
hissa að sjálfstæðir íslendingar
skuli geta gert sig að slíkum
andlegum löðurmennum. Grein
mín viðvíkjandi því að eg ætl-
aði að sækja um þingmensku í
St. George og vera óháður og
einlægur merkisberi mannrétt-
inda en ekki *á auðvalds klíku-
klafa á Einars vísu. Eg vildi
hnekkja ráðabruggi sam-
steypunnar sem mér fanst vera
einveldi. Þetta var ástæðan til
þess að herra Einar lét ekki
grein mína sjá dagsljósið í
frjálslynda afturhalds blaðinu.
Frjálslyndi flokkurinn og aft-
urhalds flokkurinn hafa brígsl-
að hver öðrum um vammir og
skammir síðan eg kom til þessa
lands en nú eru þeir í faðm-
lögum meðan þeir skara eldinn
að afturhalds kökunni. Eg er
ekki skarpskygnari en allir
aðrir, en alstaðar kveður við
sama tón. Hví er vesalings
Skúli að vafsast í þessum
stjórnmálum? Þar sem hann
hefir aldrei haft gæfu til að
Lótið dólítið af “KAR-EAL"
í uppóhalds kaffi yðar. Það
gerir bragð kaffisins betra.
"KAR-EAL fyrir Kaffi" er
frœgt um 100 ór. Kaupið
pakka í dag. Yður mun
þykja það kaffi gott.
verða þeirrar þekkingar að- njótandi að hafa neitt vit eða stjórnsemi á því sem hann hef- ir tekið sér fyrir hendur að framkvæma. Með allri virðingu sem herra Skúla bera til beggja handa, þá þefir hann aldrei haft og hefir aldrei neina minstu hæfileika til að vera k forvígismaður framkvæmda i St. George kjör- dæmi og þar af leiðandi ætti hann nú í fyrsta sinni á æfinni að sýna viðeigandi undirgefni og draga nafn sitt til baka undir eins í stað þess að senda eftir Bracken og Thorson sér til aðstoðar svo hann tapi ekki veðfénu. Eg vona að hann skríði með það út en að hann vinni eru engin tiltök hvað mörgum leigutólum og leiru lækjan fúsum sem hann safnar að sér. Eg hefi nú ákveðið að hætta við að bjóða mig fram en bið alla þá sem mér eru vinveittir að greiða atkvæði með Salóme Halldórson. Hún hefir sýnt að hún er vel ment- uð og í alla staði vel fær til að koma fram kjördæmi sínu til sóma. Islenzkar konur, minnist þess að það var langt og erfitt stríð að fá viðurkendan atkvæðis- rétt og kjörgengi kvenna. Látið ekki pólitíska hrossakaupmenn þagga niður þessa einu kven- rödd í þinginu. Hún hefir tal- að máli mannúðar og réttlætis betur en allar hinar. Benedikt Rafnkelsson
-
- NAFNSPJÖLD -
Dr. M. B. Halldorson 401 Boyd Bldg. Skriístofusími: 23 674 Btundar sérstaklega lungnasjúk- dóma. Br aS flnnl 6 skrlfatofu kl. 10—12 f. h. og 2—6 e. h. Heimlll: 46 AJloway Ave. Taltími: 33 lSt Thorvaldson & Eggertson Lögfrseölngur 300 Nanton Bldg. Talsíml 97 024
OrriCE Phoni Rks. Phonk 87 293 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 109 MBDIOAL ABT8 BUILDINO Omci Hours: ia t i 4 P.M. - 6 P.M. áim BY APPOINTMENT M. HJALTASON, M.D. ALMENNAR LÆKNINOAR Strgrein: Taugasjúkdómar Laetur útl meBöl 1 vlðlöguia VlBtalsttmar kl. 2—4 •. h. 7—8 att kveldlnu Simi 80 857 643 Toronto St.
Dr. S. J. Johannesðon 806 BROADWAY Talaiml 30 877 ▼lOtalatiml kl. 3—6 e. h. A. S. BARDAL selur llkkistur og annast um útfar- lr. Allur útbúnaður sö bestí. Ennfremur selur hann allskonar mlnnlsvarSa og legsteina. 843 SHERBROOKB ST. Phone: 86 607 WINNIPBQ
*
J. J. Swanson & Co. Ltd. REALTORS Rental, Inturance and Financial Agentt Sími: 26 821 308 AVENUE BLDG.—Winnípeg Rovatzos Floral Shop 253 Notre Dame Ave. Phone 27 989 Fresh Cut Flowers Dally Plants in Season We specialize in Weddlng & Concert Bouquets & Fvmeral Designs lcelandic Bpoken
H. BJARNASON —TRANSFER— Boggoge and Furniture Moving 691 SHERBURN ST. Phone 35 909 Annast allakonar flutninga fram og aítur um beeinn. MARGARET DALMAN TEACHER OF PIANO 6S4 BANNINO ST. Phone: 26 420
DR. A. V. JOHNSON DENTIST 506 Someraet Bldg. Office 88124 Rea. 27 702 512 Medical Arts Bldg. Dr. K. J. AUSTMANN Stundar eingöngu Augna, eyma, nefs og kverka sjúkdóma 10 til 12 f.h.—3 til 5 e.h. Skrifstofusimi 80 887 Heimasimi 48 551
THE WATCH SHOP Thorlakson & Baldwin Diamond and Wedding Rings Agent for Bulova Watches Marriage Lícenses Issued 699 Sargent Ave. Dr. P. H. T. Thorlakson 205 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 22 866 Res. 114 Grenfell Blvd. Phone 62 200