Heimskringla - 16.04.1941, Síða 8
8. SIÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 16. APRÍL 1941
Hver tegund
yfirhafnar
sem er
POLO'S
REEFERS
BOXIES
Navy Blue, Beige,
Camel, Mixtures
14-95 19-75 24-75
:: Auðveldir skilmálar ::
KING’S Ltd.
396 PORTAGE AVE.
FJÆR OG NÆR
VIÐ KVIÐSLITI
Til linunar, bóta og styrktar
reynið nýju umbúðirnar, teyju-
Iausar. Stál og sprotalausar. —
Skrifið: Smith Manfg. Company,
sDept, 160, Preston, Ont.
MESSUR í ÍSLENZKU
SAMBANBSKIRKJUNUM
Messur í Winnipeg
Við guðsþjónusturnar í Sam-
bandskirkjunni í Winnipeg n.k.
sunnudag verður umræðuefni
prestsins “Freedom to Wor-
ship God” — kl. 11 f. h. og
“Framtíðarhorfur kl. 7 e. h.
Allir eru ætíð velkomnir í
Sambandskirkjuna!
* * *
Séra Guðm. Árnason messar
á Oak Point 20. apríl.
* * *
Pétur Anderson, kornkaup-
maður, kom heim um síðustu
helgi sunnan frá Florida ríki.
Hann hefir verið þar um
tveggja mánaða skeið.
, * * *
Kvenfélag Sambandssafnað-
ar efnir til mikillar samkomu á
sumardaginn fyrsta, 24. apríl.
Skemtiskráin er birt í þessu
blaði. Minna skal á það, að
þar flytur frú E. Stein-
þórsson ræðu og sýnir myndir
heiman af Islandi. Munið eftir
samkomunni í Sambandskirkj-
unni, fjölmennið á sumarfagn-
aðinn þar.
24. apríl 24. apríl
SUMARMÁLASAMKOMA
Undir umsjón Kvenfélags Sambandssafnaðar
í SAMBANDSKIRKJUNNI A BANNING OG SARGENT
— SKEMTISKRÁ —
1. O Canada
2. Söngflokkur Sambandssafnaðar:
Vorið er komið............ .0. Lindblad
Vel er mætt til vinafundar....Wetterling
Nú yfir heiði háa........August Kiefer
Stormur lægist stríður..:....Oscar Borg
3. Upplestur................Ragnar Stefánsson
4. Einsöngvar.....ví.......Miss Lóa Davidson
5. Myndir frá Islandi.......Mrs. E. Steinþórsson
(Með skýringum)
6. Einsöngur....................Mr, P. Magnús
7. Double Quartette
8. Ó Guð vors lands.
God Save the King
Inngangur 25c Byrjar kl. 8.15 e. h.
— Veitingar ókeypis — *
Young People
The Loung People of the
First Federated Church are
holding a Bowling Party next
Tuesday evening, april 22, at
the Saratoga Bowling Alleys.
They will meet at 8.30 sharp at
the Bowling Alleys, play two
exciting games, and then re-
turn to the church for refresh-
ments and social. The last
bowling party was thoroughly
enjoyed byall. This one will
be even more enjoyable. All
young people are invited!
* * *
Mrs. ól. Hallsson frá Eriks-
dale, Man., er stödd í bænum.
Hún verður á söngskemtun
Karlakórsins í kvöld.
* * *
Laugardagsskólin
og árshátið hans
Að laugardagsskóla Þjóð-
ræknisfélagsins beri virðingar-
sess í starfslífi íslendinga í
Winnipeg verður eigi efað, þó
hitt sé víst, að færa hefði mátt
sér betur kensluna í nyt, en
raun hefir á orðið, að því leyti
sem aðsókn hefði átt að vera
jafnari t»g meiri; þó verður ekki
um það vilst, að skólinn vinni
ómetanlegt gagn og eigi vafa-
laust eftir að færa út kvíarnar.
Sá maðurinn, sem drengileg-
ast og kappsamlegast hefir
unnið að starfrækslu og við-
gangi skólans, er Ásmundur P.
Jóhannsson byggingameistari,
enda verður þá jafnan eitthvað
undan að ganga þar sem hann
legst að verki. Kennarar skól-
ans hafa sannað við málstað
íslenzkunnar ást og einlægni
með óeigingjörnu og fórnfúsu
starfi í þágu skólans.
Árshátíð Laugardagsskólans
hin næsta, verður haldin í
Fyrstu lútersku kirkju á laug-
ardagskveldið þann 26. þ. m.,
og er það hrein og bein skylda
íslendinga, að sækja svo vel
samkomu barnanna, að hvert
sæti í kirkjunni verði skipað.
* * *
Guðsþjónusta í Concordia
kirkju sunnud. 20. apríl kl. 1
e. h. S. S. C.
THORVALDSON
Hinn fyrsti við útnefninguna
á fundi íhaldsmanna
Látið hann verða fyrstan 22. apríl
HANN ER MEÐ SAMVINNUSTJÓRN
MEÐAN STRÍÐIÐ STENDUR YFIR
HVERNIG MARKA SKAL ATKVÆÐASEÐILINN:
THORVALDSON, G. S. 1
Gefin saman í hjónaband af;
sr. Sigurði Ólafssyni að prests-
heimilinu í Selkirk, þann 14.
apríl, Gilbert Alfred Sigurgeirs- ■
son, Gimli, Man., og Halldóra
Jacobson, sama staðar. Fram-
tíðarheimili ungu hjónanna
verður að Gimli, Man.
* * t
Mrs. Jakobína D. Fáfnis dó í
gærkveldi á General Hospital.
Jarðarförin verður á föstudag-
inn kemur, kl. 2 e. h. frá
Fyrstu lút. kirkju. Hún var 66
ára, ættuð frá Grenjaðarstöð-
um í Suður-Þingeyjarsýslu. —
Börn hennar eru tvö á lífi hér
vestra: séra Egill Fáfnis, Glen-
boro, Man., og ungfrú Bjarney
Fáfnis í Winnipeg.
* * *
Veitið athygli
Útvarpsræður til stuðnings
við S. V. Sigurðson, frambjóð-
anda í Gimli kjördæmi' verða
haldnar sem hér segir yfir
CJRC útvarpsstöðina: Fimtu-
dagskveld þann 17. þ. m. kl.
8.30 og á laugardagskveld þann
19. þ. m. kl. 10.30.
* * *
Fimtudaginn 3. apríl voru
þau Joseph James Sneddon og
Unnur Ólöf Sædal, bæði frá
Winnipeg gefin saman í hjóna-
band af séra V. J. Eyjands að
heimili hans. Eftir giftinguna
sátu brúðhjónin og nánustu
ættingjar rausnarlega veislu
hjá systur brúðarinnar, Mr. og
Mrs. H. Hopkins, 409 Toronto
St.
* * *
Tilkynning
Dr. Eggert Steinþórsson frá
íálandi, flytur erindi í neðri
G. T. salnum annað kvöld
(fimtudag) á fundi stúkunnar
“Skuld”. Öllu íslenzku bind-
indisfólki í borginni er boðið
ásamt bindindisvinum. Komið
kl. 9 og njótið góðrar skemti-
stundar og kaffibolla með okk-
ur á eftir. Nefndin
* * *
C. Rhodes Smith
Maður sá sem hér um ræðir
er liberali og sækir í kosning-
unum 22. apríl, undir merki
samvinnustjórnar; hann er einn
af hinum þektustu borgurum
[ þessa bæjar. Hann hefir verið
í bæjarráði í sex ár og fyrirles-
ari við lögfræðiskóla Manitoba
um nokkur ár.
* * *
Mrs. Konrad Jóhannesson,
assisted by Mrs. Victor Jónas-
son are the general convenors
of the Annual Spring Tea to be
held by the Junior Ladies’ Aid
of the First Lutheran church,
Victor St., on Friday aftemoon
and evening April 18.
The table convenors are Mrs.
J. Eager, Mrs. L. Summers,
Mrs. H. Baldwin. Handicraft
convenor, Mrs. J. G. Snidal.
Home cooking, Mrs. A. H. Gray
and Mrs. H. Benson. Candy,
Mrs. Ed Stephenson and Mrs. F.
Thordarson. A feature attrac-
tion is planned for the evening.
* * *
Messur í Gimli
lúterska prestakalli
Sunnud. 20. apríl: — Betel,
morgunmessa. Víðines, messa
kl. 2 e. h. Gimli, íslenzk messa
kl. 7 e. h. Sunnudagaskóli
Gimli safnaðar kl. 2 e. h.
Fermingarbörn á Gimli mæta
föstud.' 18. apríl kl. 3 e. h. á
prestsheimilinu. B. A. B.
* • *
2 herbergi til leigu að 511
Maryland St.
• * *
Dánarfregn
Sunnudagsmorguninn 6. þ.m.
andaðist á General Hospital í
Winnipeg, Helgi Sigurðsson,
rúmlega sextugur að aldri. —
Mörg undanfarin ár hafði hann
átt heima að 709 Simcoe St.,
hér í Winnipeg.
Hann var ættaður úr Austur-
Skaftafellssýslu. — Foreldrar
hans voru þau hjónin Sigurður
Sigurðsson og Margrét Þor-
Látið kassa í
Kœliskápinn
Wv#ioIa 5c
m GOOD ANYTIME
SARGENT TAXI
and TRANSFER
SÍMI 34 555 eða 34 557
724i/2 Sargent Ave.
Contracts Solicited
steinsdóttir. Systkini hans, að
best er vitað eru systur tvær,
sem nú búa á Glæsibæ í Vopna-
firði, Þuríður og Margrét, og
systir sem á heima á Bæ í Lóni
í Austur-Skaftafellssýslu. Hálf-
systir átti hann einnig er Guð-
rún Jónsdóttir hét og sem er
nú fyrir skömmu dáin, og hálf-
bróður, Jón Jónsson Dalman,
myndasmið í Reykjavík.
Nokkuð eftir aldamótin flutti
Helgi hingað vestur og átti
heima ýmist í North Dakota
eða hér í Winnipeg. Árið 1908
kvæntist hann Sigurlaugu Sig-
ríði Jónasdóttur, á Mountain,
N. D., og nokkru seinna fluttu
þau til Winnipeg og áttu hér
heima úr því, en Sigurlaug
kona hans dó 1934. Þau áttu
tvær dætur, Octavía Anna
Margrét og Sigurrós Jónassína,
sem eru báðar giftar hérlend-
um mönnum, Mr. H Clancy og
Mr. J. West.
Miðvikudaginn 2. apríl varð
Helgi heitinn snögglega veikur,
og var fluttur á spítalann. Þar
andaðist hann sunnudagsmorg-
uninn 6. apríl. Útför hans fór
fram þriðjudaginn 8 apríl frá
útfararstofu Bardals. Séra P.
M. Pétursson jarðsöng. Jarðað
var í Brookside grafreitnum.
P. M. P.
MESSUR og FUNDIR
í kirkju Sambandssafnaðar
Messur: ó hverjum sunnudegi
Kl. 11 f. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
Safnaðarnefndin: Fundir 1.
föstudag hvers mánaðar.
Hjálparnefndin: Fundir fyrsta
mánudagskveld í hverjum
mánuði.
Kvenfélagið: Fundir annan
þriðjudag hvers mánaðar,
kl. 8 að kveldinu.
Söngœfingar: Islenzkri söng-
flokkurinn á hverju fimtu-
dagskveldi.
Enski söngflokkurinn á
hverju föstudagskveldi.
Sunnudagaskólinn: Á hverjum
sunnudegi, kl. 12.15 e. h.
* /ftVf Mf .M* Mf tjVf /jVf M* M* /JV* Mf'/fV* M
Þarfnastu fjár?
PRÍVAT LAN ER
SVARIÐ.
Þér getið samið um lán
við félag vort sé fyrirtæki
yðar nokkurs vert, greitt
það til baka mánaðarlega.
Vextir eru lægri hjá oss
en nokkrum öðrum í Win-
nipeg, þar sem við höfum
starfað í 20 ár.
Komið, símið eða skrifið
oss.
Commercial Securities
CORP. LTD.
C. H. McFadyen, stjórnandi
362 Main St. Sími 93 444
mmmmrmmmmrmmmmm
KAUPIÐ HEIMSKRINGLU—
útbreiddasta og fjölbreyttasta
íslenzka vikublaðið
GREIÐIÐ ATKVÆDI
S. V. SIGURÐSS0N
ÓHAÐU ÞINGMANNSEFNI GIMLI KJÖRDÆMIS
I FYLKISKOSNINGUNUM 22. APRÍL 1941
S. V. SIGURÐSSON
Stefna hans er: verum sameinaðir í félagsmálum,
fylkismálum og síðast en ekki sízt í landsmálunum.
Aldrei hefir meiri þörf verið á starfi en nú, starfi
bygðu á samvinnu allra borgaranna, hvað sem áður
hefir skift oss.
Sameinaðir stöndum vér; sundraðir föllum vér.”
Gimli kjördæmi þarfnast vakandi og starfandi
manns á fylkisþinginu; sá maður er S. V. Sigurðsson.
Það er hinn helgi réttur hvers manns í lýðfrjálsu
landi, að greiða atkvæði á kosningadaginn.
Bregðist nú ekki þeirri skyldu.
KOSNINGIN ER 22. APRÍL 1941.
Vinnið og greiðið atkvœði með
S. V. SIGURÐSS0N
á kosningadaginn 22. apríl 1941