Heimskringla


Heimskringla - 18.06.1941, Qupperneq 1

Heimskringla - 18.06.1941, Qupperneq 1
'l” ■ .11 ■■ " —**' s I The Modern Housewife Knows | Quality That is Why She Selects l“CANADA BREAD” ! “The Quality Goes in S Before the Name Goes On” IWedding Cakes Made to Order . PHONE 33 604 ALWAYS ASK FOR— “Butter-Nut Bread” The Finest Loaf in Canada j Rich as Butter—Sweet as a Nut ! Made only by CANADA BREAD CO. LTD. Phone 33 604 -----------------.-—4 LV. ÁRGANGUR WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 18. JÚNI 1941 NÚMER 38 Fyrsta Únítarakirkja íslendinga reist 1904 við Sherbrook og Sargent strœti. Prestar Sambandssafnaðar í Winnipeg FYRSTI ÚNÍTARA PRESTUR Björn Pétursson Hér birtist mynd af mannin- um, sem stofnaði (Fyrsta) Úní- tarasöfnuð Islendinga í Winni- peg. Það var 1. febrúar 1891. Björn var prestur safnaöarins og því hinn fyrsti Únítara- prestur, og fyrsti prestur kirkjustofnunarinnar um leið, sem nýlega hélt 50 ára afmæli sitt. Skal vísað til þess er seg- ir um hann í ræðu séra Guðm. Árnasonar i þessu blaði. Hann þjónaði Únítarasöfnuðinum frá 1891—1893. ÚTBREIÐSLUSTJÓRI ÚNÍTARAFÉLAGSINS Dr. Rögnvaldur Pétursson Fáir prestar hafa skilið eftir sig gleggri spor í þarfir starf- semi Únítara, en dr. Rögnvald- ur Pétursson. Með honum má heita að starfið sé skipulagt og nái svo mikilli festu, að grund- völlur þess er ólíklegt að hagg- ist. Hann var prestur Winni- peg-safnaðar nokkuð af árinu 1900—1901, árin 1903—1909 og frá 1915—1922. Hann var útbreiðslustjóri Únítarafél. meðal íslenzku kirknanna frá 1912—1928 og kirkjufélagsins 1935—1940. — Hann var og einn af stofnend- um Heimis og ritstjóri um mörg ár. FYRSTI FORSETI KIRKJU- FÉLAGS ÚNÍTARA Séra Magnús J. Skaptason Það var 16. júní 1901, að hið Únítariska kirkjufélag Vestur- íslendinga var stofnað. Fyrsti forseti þess var séra Magnús J. Skaptason. Félagið var stofn- að á Gimli. Séra Magnús var prestur Únitarasafnaðarins í Winnipeg frá 1894—1899. Sjá ræðu séra G. Árnasonar í þessu blaði. Séra Jóhann P. Sólmundsson Hann var prestur Únítara- safnaðarins í Winnipeg frá 1902—1903. Eftir það prestur á Gimli til 1910. Séra Jakob Jónsson Hann þjónaði Sambandssöfn- FORSETI 50 ÁRA MINNING- AR-HÁTÍÐARINNAR Bergþór Emil Johnson Bergþór Emil Johnson stýrði 50 ára minningarhátíð Sam- bandssafnaðar. Hann er og hefir verið nokkur ár forseti Sambandssafnaðar, er formað- |ur leikfélagsins og vakandi og 'áhugasamur um alt stárf safn- j aðarins. Minningarhátíðinni stýrði hann með þeim ágætum er frekast verður ákosið. — Stuðlaði sú stjórn hans ekki lít- ið að því, hve vel minningarhá- tíðin fór úr hendi og verður í sögu safnaðarins ógleymanleg- ur viðburður. uði frá því í nóv. 1934 til apríl- mánaðar 1935. Árin sem hann var hér vestra, þjónaði hann Quill Laks söfnuði í Wynyard. Hann hélt til íslands 1940 og er nú prestur í Reykjavík. Séra Benjamin Kristjónsson Séra Benjamín tók við prest- starfi hjá Sambandssöfnuði í Winnipeg árið 1928. Hafði hann það á hendi í 4 ár, en þá fór hann aftur til Islands. Er hann nú þar þjóðkirkjuprestur. Að ritsnild og gáfum, á séra Benja- mín óvíða sína líka. KIRKJUFÉLAGS FORSETI 1923 — 1933 Séra Ragnar E. Kvaran Séra Ragnar var prestur FYRSTI ÍSLENZKI RÁÐ- HERRANN í SAMBANDS-1 STJóRN Fyrsta Sambandskirkja í Winnipeg. Hún var reist 1921 ó Banning strœti, skamt fró Sargent. Hon. J. T. Thotson, K.C., M.P. Minningarhátíðin í Sambandskirkjunni Sú frétt barst rétt eftir að blaðið var komið í pressuna s. 1. viku, að Joseph T. Thorson, þingmaður Selkirk-kjördæmis, hefði verið skipaður ráðherra í Kingstjórninni. Stjórnardeild- in er ný og lýtur að umsjá stríðsstarfa (War Services), og var yfirmaður hennar áður Mr. Gardiner, landbúnaðar ráð- herra. Heimskringla óskar hinum nýja íslenzka ráðherra til lukku með heiðurinn, sem honum og um leið þjóð hans hefir hlotnast með vali hans í þessa stöðu. Sambandskirkjunnar frá því árið 1922—1928. Hann var og forseti Sameinaða Kirkjufé- lagsins frá 1923—1933. Frá ár- inu 1928—1933 var séra Ragnar utbreiðslustjóri Únítarafélags- ins. Hans verður lengi minst hér af vinum hans, enda voru áhrif hans í kirkjustarfinu mjög mikil. NÚVERANDIPRESTUR SAMBANDSSAFNAÐAR Séra Philip M. Pétursson Við preststarfi hjá Sam- bandssöfnuði tók séra Philip M. Pétursson árð 1935. Var hann þá nýkominn heiman af íslandi, en þar var hann við íslenzku-nám vetrarlangt eða eitt ár. Þjónaði hann hér enskum söfnuði áður, en tók þá aftur við honum ásamt ís- lenzka söfnuðnum; hefir hann því þjónaði tveimur söfnuðum, sem ekki væri öllum hent, því samfara því er óheyrilega mik- ið starf. En séra Philip er enn ungur, fullur af lífi og fjöri og tekur verk sitt ekki neinum vetlingatökum. Hann nýtur sakir ágætra hæfileika og einkar ljúfs viðmóts, álits og vináttu bæði safnaða sinna og allra er honum kynnast. Hann mun fyrsti hérfæddi íslend- ingurinn, sem íslenzkt prest- starf hefir með höndum. Sunnudagurinn 15. júní var bjartur og dýrðlegur. Sólin skein í heiði frá morgni til kvölds. Birtan umhverfis þig, hvanngrænka grassins og ungu glóandi blómkollarnir, alt þetta minti á sól og sumar. Það duldist heldur ekki að sól og sumar bjó í hugum þeirra, er fyltu Sambandskirkjuna ’þenn- an dag, á fimtíu ára minning- arhátíð Sambandssafnaðar. — Það sem fyrst blasti við sjón- um, er inn í kirkjuna kom, voru blómin fögru er kirkjan var skreytt veggja milli, fyrir framan söngpall og ræðustól. Út frá þeim hvarflaði hugur gestanna til liðins tíma, til minningaheimsins, sem svo bjartur og töfrandi getur ver- ið, hvað sem á dagana hefir drifið, til áranna, er starf það var hafið, sem í þessari kirkju er haldið áfram. En upp af þessum hugsunum yöktu nú brátt tónar orgelsins hátíðar- gesti. Minningar hátíðin var byrjuð. Þessi 50 ára minningarat- höfn hófst með guðsþjónustu kl. 2 e. h. Tóku þrír prestar þátt í henni: séra Eyjólfur J. Melan, séra Philip M. Péturs- son og séra Guðm. Árnason (hér taldir í þeirri röð er þeir KIRKJUFÉLAGS FORSETI Séra Guðm. Árnason Séra Guðmundur Árnason flutti ræðu á minningarhátíð Sambandssafnaðar og heilla- óskir frá hinu Sameinaða Kirkjufélagi Islendinga í Vest- urheimi, er hann hefir veitt forstöðu síðan 1934, og frá söfn- uðum hans á Lundar, Oak Point, auk annara við Mani- toba-vatn, er hann hefir þjón- að síðan 1928. Hann var prest- ur Sambandssafnaðarins í Win- nipeg frá 1909—1915; hafði á þeim árum ritstjórn Heimis með höndum. Séra Guðmund- ur er einn af fremstu bók- mentamönnum vor Vestur-ls- lendinga. Ræða hans er birt á ritstjórnarsíðu þessa blaðs. fluttu ræður sínar). Eru ræð- urnar birtar á ritstjórnar síðu þessa blaðs. En sálmar voru þessir sungnir: “Ó sýng þínum drotni, Guðs helgur andi helg- ar oss, enskur sálmur: O Light From Age to Age the Same, og síðast: Faðir andanna. Auk þessa voru sungnir lofsöngvar: Einsöngur, The Lord’s Prayer, sunginn af ungfrú Lóu Davíð- son, en kórinn söng tvö lög: Lofsöng, eftir H. R. Shelley og Lofi,ð guð í helgidómi hans, eftir Gunnar Wennerberg. Mr. Pétur Magnús stjórnaði söngn- um, en Gunnar Erlendsson spil- aði á orgelið. Guðsþjónustu-athöfn þessi má segja, að verið hafi í senn sérlega vel viðeigandi við þetta tækifæri og áhrifamikil, minn- ingarík og ógleymanleg. Við guðsþjónustuna voru les- in heillaóskaskeyti frá Islandi, þau hin sömu, er birt eru í þessu blaði. • Að kvöldi eða kl. 7 þessa sunnudags, hófst samkoma í kirkjunni. Mátti heita hús- fyllir. Fóru þá fyrst fram ræð- ur og söngur uppi í kirkjunni, er stóð yfir alt að því tvær klukkustundir. Samkomunni stjórnaði Bergþór Emil John- son, forseti Sambandssafnaðar. Var fyrst sungið: Ó guð vors lands. Eftir gott forsetaávarp, sem birt er í þessu blaði skemtu með ræðuhöldum og söng þeir er hér skal greina: Friðrik Sveinsson, með ræðu um starf Menningarfélags safnaðarins í Winnipeg; mintist hann og að nokkru stofnunar safnaðarins 1. feb. 1891 og fyrstu presta safnaðarins, Björns Pétursson- ar og séra Magnúsar Skapta- sonar. Var hann einn af stofn- endum Únítarasafnaðarins og sagði frá því einu er hann hafði sjálfur heyrt og séð. Er í riti, sem söfnuðurinn hefir gefið út getið 6 annara af stofnendum á lífi. Eru þeir Magnús Péturs- son, bóksali; Árni Þórðarson, Gimli; Mrs. Anna Gíslason, Mrs. Margrét Benediktsson, Mrs. Jóhanna Merril og Sigfús Benediktsson. Að ræðu Frið- riks Sveinssonar var gerður hinn bezti rómur. Annar ræðu- maður þetta kvöld var Dr. M. B. Halldórson. Umræðuefni hans var “Menningarfélagið í Norður Dakota”, er hann kvað sögu frjálstrúarhreyfingarinn- ar vera mjög tengt, ef þar væri ekki um upphaf hennar að ræða. Mrs. A. N. Sommer- ville hélt ræðu um Ungmenna- félagið; áheyrilegt og vel flutt jerindi. Gísli prentari Jónsson flutti erindi um útgáfustarf safnaðarins, sem aðallega var fólgið í prentun tímaritsins Frh. á 5. bls.

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.