Heimskringla - 29.07.1942, Qupperneq 1
NOTICE TO COMMERCIAL
FISHERMEN
We invite your enquiries íor
your bread supplies for
the coming season.
Quality and Service to your
complete satisfaction.
CANADA BREAD CO. LTD.
Winnipeg Phone 35 565
“The QualityGoes In before theNameGoesOn”
Frank Hannibal, Mgr.
NOTICE TO COMMERCIAL
FISHERMEN
We invite your enquiries for
your bread supplies for
the coming season.
Quality and Service to your
complete satisfaction.
CANADA BREAD CO. LTD.
Winnipeg Phone 35 565
"The QualityOoes In before theNameGoeaOn"
Frank Hannibal, Mgr.
LVI. ÁRGANGUR
WINNIPKG, MIÐVIKUDAGINN, 29. JÚLl 1942
NÚMER 44.
•By kind permission of The Christian Science Monitor.
<< O • fc*
oamemaöir
Með hernaðarsamtökum 26
lýðræðisþjóðanna, sem efnt
var til 1. janúar 1942 í Wash-
ington, var að líkindum stigið
eitt heillavænlegasta sporið i
þessu stríði.
Fram til þess tíma höfðu
þjóðir þessar mikið til baukað
út af fyrir sig og barist ein eða
tvær'i einu móti hinum grimma
sameiginlega óvini, öxulþjóð-
unum. Hinar drógu að fara af
stað, eins og Vesturheimsþjóð-
irnar aliar, að Canada undan-
skildu. Þetta hlutleysi var
vatn á millu öxulþjóðanna, sem
að öllu leyti voru vel undir
þetta stærsta og hrikalegasta
veraldarstríð búnar, sem sagan
getur um. Unnu þær og sigr-
ana þá, sem þær hafa búið að
síðan og sem lýðræðisþjóðun-
um hefir til þessa verið ofvaxið
að bæta sér að nokkru veru-
legu leyti aftur og höfðu
meira að segja litla von um
það fram að þessa árs byrjun.
1 júni 1941 drógust Rússar
inn í striðið og Bandarikin í
byrjun desember mánaðar. —
Þegar stríðið var orðið svo víð-
tækt, reið á miklu að samherj-
arnir skipulegðu átökin, sam-
einuðu kraftana. Og í því var
hin leyndardómsfulla ferð Win-
ston Churchill til Bandaríkj-
anna fólgin um jólaleytið 1941.
Mátti þó vita að eitthvað byggi
undir því, hafði hann frítt föru-
r ■■■ *
stöndum vér”
neyti með sér, um 80 manna.
Var og í þeirri ferð grundvöll-
ur lagður að bandalagi lýð-
ræðisþjóðanna ,uppkast gert
að samningi, er undirskrifaður
var af 26 þjóðum, (The United
Nations) að einni (Mexikó-
þjóðinni) viðbættri síðar —
fyrsta dag ársins 1942, sem fyr
segir.
Efni samningsins var það, að
þjóðir þessar hétu hver annari
allri aðstoð, bæði hernaðar-
legri og efnalegri, sem kostur
var á til að vinna stríðið. Nú
voru lýðræðisþjóðirnar orðnar
einhuga um þörfina á að vinna
stríðið, vegna þess, að ef öxul-
þjóðirnar gengu sigrandi af
hólmi, væri frelsi einstaklings-
ins, í prívat athöfnum og sam-
eiginlega eða í stjórn, skoðun-
um og trú, lokið. Engin þjóð
yrði sjálfri sér ráðandi, en yrðu
í þess stað kúgaðar til að leggja
niður venjur og siði sem sam-
grónir væru þeim og frá sjónar-
miði skoðana og tilfinninga, alt
sem þeim var hugleiknast og
hjartfólgnast. Eftir tveggja
ára rekstur stríðsins og með-
ferð öxulþjóðanna á sigruðum,
alsaklausum, varnarlausum
þjóðum, voru lýðræðisþjóðirn-
ar orðnar fyllilega, og meira
en það, sannfærðar um þetta
og að í sölur frelsisins, yrði
alt að leggja úr því sem komið
var.
KEY TO THE FLAGS
1— Guatemala.
2— Canada.
3— United States.
4— Great Britain.
5— Czechoslovakia.
6— Russia.
7— Nicaragua.
8.—Panama.
9—Haiti.
10— Belgium.
11— Yugoslavia.
12— Norway.
13— India (naval ensign).
OF THE UNITED NATIONS
14— New Zealand.
15— Costa Rica.
16— E1 Salvador.
17— Honduras.
18— Cuba.
19— Dominican Republic.
20— Union of South Africa.
21— Luxemburg.
22— Netherlands.
23— Greece.
24— Poland.
25— China.
26— Australia.
þessarar álfu og raunar hvar
sem er, blaðinu Christian
Science Monitor, var þessara
samtaka samherjanna nýlega
minst og fylgdi því hnatt-upp-
dráttur, er sýndi legu landa
samherjanna og fána hinna
sameinuðu þjóða (The United
Nations). Fórum vér fram á
það við blaðið, að leyfa oss að
nota myndirnar í Heims-
kringlu; kvaðst það fúst til að
veita íslendingum leyfið. Er
Heimskringla því yfrið þakk-
lét fyrir það. Hefir myndin
ekki fyr birst í blöðum hér
nyrðra, svo vér höfum orðið
varir.
HELZTU FRÉTTIR
Frá Ottawa
Það er í frásögur fært, að
nokkur hávaði hafi orðið á
þinginu í Ottawa s. 1. mánudag.
Lá sú ástæða til, að King for-
sætisráðherra var að halda
ræðu í Hong Kong málinu, við
lítið næði af hálfu andstæð-
inga; varð honum þá á, að
kalla þá skríl (mob), en þá
reis Hanson íhaldsleiðtogi upp
úr sæti og neitaði titlinum.
Stóðu þeir báðir foringjarnir í
einu uppi í þinginu, steyttu
hnefana og hrópuðu sem hæst
hvort til annars. Þótti þing-
heimi nóg um og kallaði: Þing-
sköp, þingsköp! Stilti forseti
þá til friðar. Er sagt að for-
sætisráðherra hefði síðar beð-
ist þess að orðið “mob” væri
úr ræðunni felt við prentun
þingtíðindanna. — Ennfremur
hefði Mr. Hanson minst þess,
að hann hefði persónulega áður
vikið orðum að Mr. King, sem
áttu ekki við í sambandi við
eitthvert stjórnarstarf, er hann
var að ræða. Voru báðir góð
börn eftir þetta.
Það sem kveikti í þinginu
var krafa frá John Diefenbaker
(íhaldsm. frá Lake Centre) um
að birta skýrslu konunglegu
rannsóknar nefndarinnar í
Hong Kong-málinu og bréf Lt.
Col. George A. Drew, íhalds-
flokksforingja í Ontario. Urðu
umræðurnar heitar um Hong
Kong-málið og ýttu þar mest á
eftir Howard Green (íhaldsm.
frá Vancouver) og Mr. Diefen-
baker. Mintu þeir forsætis-
ráðherra á, að með stefnu
sinni í að banna þinginu að sjá
skýrsluna, væri hann á móti
því, sem William Lyon Mac-
Kenzie, afi hans, hefði mest
barist fyrir.
Af fregnum þeim og upplýs-
ingum sem fengist hefðu nú
þegar af Hong Kong-málinu,
sögðu andstæðingar stjórnar-
innar engan efa á, að stjórn-
inni hefði herfilega yfirsézt í
því, að senda hálf æfða menn
og illa búna að vopnum til
Hong Kong. Töldu þeir það
svo ill meðmæli með stjórninni
í stríðsrekstrinum, sem frekast
væri hægt að hugsa sér og að
Frh. á 5. bls.
Að samningi lýðræðisþjóð-
anna undirskrifuðum, voru
strax skipaðar nefndir eða ráð,
er vissar framkvæmdir höfðu
með höndum, eins og að senda
herlið þangað sem þess var
mest þörf og vopn og vistir.
Var og ýmislegt annað, svo
sem um framleiðslu, skipulagt,
tollar allir úr lögum strikaðir
og fram úr fjármálum greitt
eins og með leigumálsskilmál-
um Bandaríkjanna. í hverri
nefnd voru fulltrúar frá hverri
sambandsþjóðinni (The United
Nations). Það hefir nú að
vísu ekki alt gengið að óskum
síðan þetta gerðist og gerir
ekki enn; hitt er víst, að það
hefði samt án þessara sam-
taka orðið drjúgum verra og
vonlausara um útkomu þessa
stríðs. Vopnabirgðir og her-
útbúnaður allur hefir stórum
fyrir það aukist og hefðu sam-
tök þessi fyr verið hafin, eða
áður en Tékóslóvakía og Pól-
land voru eldregni skírðar,
hefði striðinu nú ef til vill al-
varlegar hallað á Þjóðverja, en
raun er enn á orðin.
1 einu merkasta fréttablaði
SÆKIÐ ISLENDINGADAGINN Á GIMLI MANUDAGINN 3. AGUST 1942