Heimskringla - 29.07.1942, Síða 5
WINNIPEG, 29. JÚLl 1942
HEIMSKRINGLA
5. SlÐA
FJALLKONAN
Frú Gerður Steinþórsson
Á Islendingadegi Winnipeg-manna, sem haldinn verð-
ur n. k. mánudag (3. ágúst) á Gimli, verður frú Gerður
Steinþórsson fjallkonan; hún er kona dr. Eggerts Stein-
þórssonar, sem við fullnaðar læknisfræðisnám er hér
vestra staddur.
v*
HELZTU FRÉTTIR
En hvassastur allra út af
Rostov fallin—Stalingrad
í hættu
1 fréttum frá Rússlandi í gær,
var þess getið að Þjóðverjar
hefðu tekið Rostov; urðu Rúss-
ar að sleppa hendi af borginni
til þess að geta veitt frekari
mótspyrnu á svæðinu milli
Svarta- og Kaspiska hafsins.
Sækja Þjóðverjar þar suður til
olíulindanna í Kákasus.
Með þeim yfirgnæfandi her-
afla sem Þjóðverjar hafa á
þessu svæði, er Stalingrad í
hættu, önnur aðalborgin í
Volga héruðunum. 1 Rostov
eru sagðir um y2 miljón íbúar
og svipað í Stalingrad. Þessar
borgir eru þó ekki nema lítið
eitt af því sem Rússar tapa
þarna. Landið sem Þjóðverjar
hafa þegar tekið er nálega
helmingur af öllu hveiti og
kornræktarlandi í Rússlandi.
I gær, þegar þetta er skrifað,
sýnist lítil von um að Þjóð-
verjar verði stöðvaðir eða hald-
ið frá því að taka Kákasus.
Blöð í Rússlandi kalla sam-
herja sína sér til aðstoðar. Þau
benda á, að Hitler hafi kallað
11 hersveitir frá Frakklandi á
skömmum tima til þess að
bæta sér mannfallið, fylla upp
í skörðin, með fersku og ólúnu
liði í Volga-héruðunum.
Útlitið er ljótt í Rússlandi. I
Egyptalandi halda samherjar
vel í við her Rommels.
FJÆR OG NÆR
Messur í Piney
séra Philip M. Pétursson
messar í Piney, sunnudaginn 9.
ágúst á vanalegum stað og
tíma. Messað verður bæði á
ensku og íslenzku.
FRÉTTIR FRÁ ÍSLANDI
Jón Hj. Sigurðsson
kjörinn háskólarektor
Jón Hj. Sigurðsson prófessor
var í gær kjörinn rektor Há-
skólans frá 15. sept. n. k. til
þriggja ára. — Núverandi rekt-
or, próf. Alexander Jóhannes-
son, hefir gegnt starfinu í 6 ár.
—Mbl. 16. maí.
* * *
Ragnheiður Jónsdóttir ráðin
forstöðukona Kvennaskólans
Ragnheiður Jónsdóttir ken-
slukona hefir verið ráðin for-
stöðukona Kvennaskólans. Tók
hún við því starfi, er frk. Ingi-
björg H. Bjarnason andaðist.
En síðar var það ráðið, að hún
hefði þá stöðu á hendi fram-
vegis.
Frk. Ragnheiður hefir verið
kennari við skólann í mörg ár,
sem kunnugt er, og hefir rækt
starf sitt með mikilli kostgæfni.
Skólanum verður að þessu
sinni sagt upp kl. 2 í dag. Það
an útskrifast nú 15 stúlkur. En
alls hafa þar verið 124 nemend-
ur í vetur í 5 deildum.
—Mbl. 16. maí.
• • •
Amerískur blaðafulltrúi
í Reykjavík
Fyrir nokkrum dögum er
kominn hingað til bæjarins Mr.
Porter McKeever blaðamaður
frá Washington. Hann verður
hér hjá ameríska sendiráðinu,
sem aðstoðarmaður sendiherr-
ans og blaðafulltrúi sendisveit-
arinnar. .
Mr. McKeever skýrði blaða-
manni frá Morgunblaðinu, að
skömmu áður en hann fór frá
New York hefði hann setið Is-
lendingamót í Hendrik Hudson
gistihúsinu, þar sem voru sam-
an komnir rúmlega 100 Islend-
HIRÐMEYJAR A ÍSLENDINGADEGINUM A GIMLI 1942
Ungfrú Ragna Johnson Ungfrú María Josephson
Winnipeg Gimli
SPURNINGAR
Það tíðkast bæði í blöðum
og útvarpi að spurningar séu
lagðar fyrir menn til að svara.
Þykir oft að því góð skemtun.
Heimskringla mun nú við og
við gera svipað þessu og birta
spurningar, sem lesendur geta
átt við að svara, hafi þeir gam-
an af því.
Svörin verða birt í sama
tölublaði en á öðrum stað, svo
þau gleþji ekki fyrir.
1. I þjóðsöngnum “Eld-
gamla Isafold” eftir Bjarna
Thórarensen, er ein hendingin
í fyrstu vísunni þannig: “Og
gumar girnast mær.” Þó hend-
ingin sé þannig prentuð og
sungin er hún röng. Hvernig
er hún rétt?
2. Hvaða tilbúinn drykkur
er algengastur í heimi?
3. Hvað er Panama-skurð-
urinn langur, 5, 25, 50, 100 eða
500 mílur?
4. Hvað er Ástralía stór?
Er hún á stærð við Texas,
Mexikó eða Bandaríkin?
5. Áður hétu nokkur lönd
þessum nöfnum: (1) Cathay,
(2) Muscovy, (3) Persia, (4)
Iberia, (5) Siam; hvað heita
þau nú?
6. Hver gaf ættlandi voru
nafnið Island?
Útisamkomu efna Norðmenn
til, sem þeir árlega gera, hjá
hr. Ernest S. Parker, Oakdean
Blv.d, Sturgeon Creek, laugar-
daginn 15. ágúst. Biðja þeir
sem fyrir þessu standa Islend-
inga að minnast eþssa og mæl-
ast til ^ð þeir láti margir sjá
sig þann dag á meðal frænd-
anna. íslendingar hafa áður
sótt mót þetta.
• • •
Messur i Vatnabygðum
Wynyard kl. 3 e. h. — íslenzk
Kandahar, kl. 7.30 e. h. ensk
messa. B. T. Sigurðsson
Frh. frá 1. bls.
á slíku yrði að vera breyting.
Og þegar engu var hægt að
þoka til og stjórnin ætlaði að
draga málið á langinn með því
að fela það nefnd ennþá, að því
er virðist til frekari íhugunar
um, hvort nokkuð væri það i
skýrslunum, sem óvinunum
gæti að haldi komið að sjá,
gerði Howard Green breyting-
ar tillögu um, að þingið lýsti
sig óánægt með stríðsrekstur
stjórnarinnar og æski endur-
skipunar í ráð það, er stríðs-
reksturinn hefði með höndum.
Er þessu ekki lengra komið er
þetta er skrifað.
Z0RIC
Þur-
Hreinsuð
•
Já — fallegir kjólar
koma til baka sem
nýir, skínandi, lit-
hreinir og efnisskír-
ir eftir ZORIC
hreinsingu.
Munið eftir að ZORIC
kostar ekkert meira!
DRY CLEANERS
LAUNDERERS
strríðsrekstrinum var M. J.
Coldwell, foringi C. C. F. flokks-
ins. Hann kvað stefnu stjórn-
arinnar og auðkýfinganna þá,
að siga mönnum úr þessu landi
út í stríðið, en þegar til
kæmi og þeir væru á hólminn
komnir, væru þeir vopnlausir,
eins og í Hong Kong. En tapið
og ólukka sambandsþjóðanna í
þessu stríði stafaði af vopna-
leysi hermannanna. Með
vopnframleiðsluna í höndum
einstaklinga, er rækja hana í
gróðaskyni, væri ekki og yrði
aldrei hægt að framleiða nóg
vopn eða að vinna þetta stríð.
Það væri með öðrum orðum
vegna þess, að auður og iðnað-
ur hefði ekki verið herskyld-
aður, sem stríðið væri nú að
tapast. Hermennirnir væru að
fórna sér fyrir gróða auð-
valdsins. Þetta væri hin sanna
stefna Kings-stjórnarinnar í
stríðsmálunum.
Það er sagt að ekki hafi orð-
ið róstusamara í annan tíma á
OttaWa-þinginu, en nú út af
þessu Hong Kong máli.
Gjaíir til sumarheimilis ísl.
barna að Hnausa, Man.:
Mr. og Mrs. S. V. Sigurðs-
son, Riverton, Man......$10.00
Kvenfél. Sambandssafnaðar,
Oak Point, Man., þrjár ofnar
alullar rúmábreiður, eitt kembt
ullarteppi, eitt part af línlök-
um, tvö koddaver.
Mr. og Mrs. Wm. Reid, Ár-
borg, Man.............. $5.00
Meðtekið með þakklæti.
Emma von Renesse,
Árborg, Man.
* * *
Sunnud. 16. ág. er áætlað að
séra Sigurður ólafsson flytji
messur á íslenzku í Lundar
prestakalli á eftirfylgjandi
stöðum og tíma: Otto kirkju kl.
11 f. h. Lundar kirkju kl. 2.30
e. h. Mary Hill, kl. 8.30 e. h.
Allir boðnir velkomnir.
* * •
Föstudaginn 24. þ. m. gaf
séra Philip M. Pétursson sam-
an í hjónaband, Jacob Sarapu
og Lily Marie Christianson. —
Brúðurin er af dönskum ætt-
um, en brúðguminn er rúss-
neskur að ætt.
infar, en hann telur að alls séu!
nú um 180 íslendingar í New
York. Thor Thors sendiherra
sat þetta hóf og var gleði lengi j
nætur.
Mr. McKeever hefir kynst
Islendingum nokkuð áður, t. d.
kyntist hann Erni Johnson, erí
hann var við flugnám vestra.
—Mbl. 16. mai.
• • •
Esja strandar á Hornafirði
Þegar Esja var að koma til
Hornafjarðar í fyrrakvöld I
strandaði skipið á sandrifi rétt j
við skipaleguna við Ósinn.
Ekki tókst að ná skipinu út
á flóðinu í gærkvöldi, eins og
menn höfðu gert sér vonir um.
En Pálmi Loftsson sagði blað-
inu í gærkveldi, að engin hætta
væri á ferðum fyrir skipið og
•myndi ekki annað tjón hljótast
af þessu standi en timatöf.
—Mbl. 19. maí. '
Messa í Upham, N. Dak.,
sunnudaginn 2. ágúst kl. 2 e. h.
E. H. Fáfnis
KAUPIÐ HEIMSKRINGLU
BORGIÐ HEIMSKRINGLl
RÚSSNESKT LOFTLIÐ LEGGUR A STAÐ t NÆTURFERÐ
Bæði brezkt og rússneskt loftlið fylgir klukkunni aljan sólarhringinn í heimsóknum
sinum á óvina hersveitirnar. Myndin sýnir glampa af kastljósi á rússneskum flugvelli,
fyrir eina slíka aðsókn á herskara og varnarvirki óvinanna.
INHKÖLLUNARMENN HEIMSKRINGLU
f CANADA:
Amaranth...........
Antler, Sask.......
Árnes.............
Árborg.............
Baldur.............
Beckville..........
Belmont............
Brown..............
Cypress River......
Dafoe..............
EJbor Statlon, Man...
Elfros.............
Eriksdale.........
Fishing Lake, Sask.
Foam Lake..........
Gimli..............
Geysir.............
Glenboro...........
Hayland...........
Hecla..............
Hnausa.............
Innisfail..........
Kandahar..........
Keewatin, Ont......
Langruth..........
Leslie.............
Lundar............
Markerville........
Mozart............
Narrows ..........
Oak Point..........
Oakview............
Otto..............
Piney.............
Red Deer...........
Reykjavík.........
Selkirk, Man____
Silver Bay, Man....
Sinclair, Man......
Steep Rock........
Stony Hill........
Tantallon..........
Thornhill.........
Víðir.............
Vancouver.........
Wapah.............
Winnipegosis......
Wynyard...........
.............JK. J. Abrahamson
.............Sumarliði J. Kárdal
...............G. O. Einarsson
.............Sigtr. Sigvaldason
...............Björn Þórðarson
..................G. J. Oleson
............Thorst. J. Gíslason
...............Guðm. Sveinsson
.................S. S. Anderson
..............K. J. Abrahamson
..............J. H. Goodmundson
................Ólafur Hallsson
................Rósm. Ámason
................H. G. Sigurðsson
................ K. Kjernested
...............Tím. Böðvarsson
...................G. J. Oleson
..............Slg. B. Helgason
............Jóhann K. Johnson
................Gestur S. Vídal
..............ófeigur Sigurðsson
.................S. S. Anderson
...............Bjarni Sveinsson
................Böðvar Jónsson
...............Th. Guðmundsson
...................D. J. Líndal
............. öfeigur Sigurðsson
.................S. S. Anderson
...................S. Sigfússon
...............Mrs. L. S. Taylor
...................S. Sigfússon
..................Björn Hördal
.................S. S. Anderson
............. ófeigur Sigurðsson
................Ingim. ólafsson
Mrs. David Johnson, 216 Queen St.
................Hallur Hallson
K. J. Abrahamson
.......Fred Snædal
......Björn Hördal
..Árni S. Árnason
..Thorst. J. Gíslason
....~Aug. Einarsson
..Mrs. Anna Harvey
...Ingim. Ólafsson
............S. Oliver
....S. S. Anderson
í BANDARfKJUNUM:
Bantry...............
Bellingham, Wash....
Blaine, Wash.........
Grafton..............
Ivanhoe..............
Milton...............
Minneota.....:.......
Mountain.............
National City, Calif....
Point Roberts, Wash
Seattle, Wash........
Upham----------------
.................E. J. Breiðfjörð
............Mrs. John W. Johnson
.............Magnús Thordarson
................Mrs. E. Eastman
.............Miss C. V. Dalmann
---------------------S. Goodman
..............Miss C. V. Dalmann
................Th. Thorfinnsson
...John S. Laxdal, 736 E 24th St
...................Ásta Norman
J. J. Middal, 6723—21st Ave. N. W
—................E. J. Breiðfjörð
The Viking Press Ltd.
Winnipeg Manitoba