Heimskringla - 21.07.1943, Side 8

Heimskringla - 21.07.1943, Side 8
8. SIÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 21. JÚLI 1943 F JÆR OG NÆR MESSUR í ISLENZKU SAMBANDSKIRKJUNUM Messur í Árnesi og Gimli Sunnudaginn 25. júlí messar séra Eyjólfur J. Melan í Árnesi ki. 2 e. h. og á Gimli kl. 8 e. h. ★ ★ ★ Messa á Lundar Séra Philip M. Pétursson messar i Sambandskiékjunni á Lundar sunnudaginn 1. ágúst ★ ★ ★ Messa í Underwood, Minn. Sunnudaginn, 25.,júlí, verður séra Philip M. Pétursson stadd- ur í Underwood, Minn., og messar í únítara kirkjunni þar. ★ ★ ★ Jarðaður var í gær í River- ton, Pétur Guðmundsson, er fórst ofan um ís á Winnipeg- vatni á s. 1. vetri. Líkið fanst fyrir fáum dögum suður af Black Island. ★ ★ ★ 1 bænum hefir verið síðustu 10 dagana, Guðm. Eyjólfsson kennari frá Margaret, Man. Hann hefir verið að leiðrétta prófstíla fyrir mentamáladeild- ina. Guðmundur er sonur Mr. og Mrs. Ágúst Eyjólfsson, Otto, Man. ★ ★ * Sigurður Finnsson, bóndi í Víðirbygð, kom til bæjarins fyrir helgina. með honum var kona hans að leita sér lækn- inga. ★ ★ * Sveinn Thorvaldson, M.B.E., frá Riverton, kom snöggva ferð til bæjarins s. 1. mánudag, í verzlunarerindum. ★ ★ ★ Guðjón Kristjánsson frá Mikley, er um eitt skeið var taflkappi Canada og margir eldri Winnipeg-Tslendingar kannast við, hefir verið í bæn- um undanfarna viku. Hann fer til vinafólks síns í Saskatchew- an í dag og dvelur þar um viku tíma. Hann ætlar að vera á íslendingadeginum að Gimli og að því loknu halda heim aftur til Mikleyjar. k'jmimmnaimiiiiininniiiiiniioiiiiiiiiiiianimiimiaimiiiini# 1 ROSE THEATRE| = ----Sargent at Arlington---------- g | July 22-23-24—Thu. Fri. Sat. § = Henry Fonda , Barbara Stanwyck I "YOU BELONG TO ME" Pat O’Brien—Glenn Ford = I "FLIGHT LIEUTENANT" 5 ----------------------------------- s July 26-27-28—Mon. Tue. Wed. n Glasbake to the Ladies. "THE BIG SHOT" GEORGE FORMBY I 'SOUTH AMERICAN GEORGE' | £,iiiiiiiiiioiiiniiiiioiiiiiniiioiniiiiiiii[]||iiiiiiiiioiiiiiiiiiiii<» Bjarni Loftsson frá Lundar, Man., var staddur i bænum s. 1 mánudag. ★ ★ ★ Thorsteinn Bergmann, um boðsmaður Heimskringlu í Riv- erton, heimsótti skrifstofu blaðsins s. 1. mánudag; þökk fyrir komuna! ★ ★ ★ I bænum eru staddir P.O Carl Sveinson frá Edmonton og Pte. John Goodmundson frá Dundurn, Sask. Þeir hafa fengið að taka sér stundarhvílc frá herþjónustu. Carl var einn þeirra er á s. 1. ári fór sprengju- för til Saarbrucken, en kom þaðan nálega viðstöðulaust ti Cailada. Mintist hann á mun- inn sem sér hefði á því fundist að fljúga að nóttu til í Evrópu og hér vestra. Yfir Evrópu grúfði myrkrið, bæði á megin- landinu og á Englandi, en hér skein alt í ljósadýrð og borg irnar voru eins bjartar og um hábjartan dag væri. John og Carl fara á stað vest- ur til Elfros, Sask., í kvöld, til að heimsækja skyldmenni og vini. ★ ★ ★ Einar Eyford, Lundar, Man., kom til bæjarins fyrir helgina. Hann var á leið norður til Sel- kirk til að vera á fundi Þjóð- eyrisflokksins (Social Credit); hann var kosinn fulltrúi úr sinni bygð á fundinn. ★ ★ ★ Guðm. Jónsson frá Vogar, Man., og sonur hans, Björn, komu til bæjarins um síðustu helgi. Guðm. er að leita sér lækninga og mun verða nokkra daga í bænum. Sigurður Hornfjörð bóndi í Framnesbygð, var staddur í bænum í gær. Hann er fram- fara og áhugamaður og hefir gaihan af að ræða um þjóðmál, enda eru nú kosningar á prjón- unum í Selkirk-kjördæmi. — Hann vildi að Bryce ynni og hélt hann hafa mikið fylgi, en óttast að margur verði vöðu- selunum frá Ottawa að bráð. ★ ★ ★ Gifting Síðast liðinn laugardag (17. júlí) voru gefin saman í hjóna- band Sgt. Árni Eggertson, R.C.A.F., sonur Mr. og Mrs. Árni G. Eggertson og Pearl Josephine Irwin; brúíiurin er af enskum ættum. Séra Valdi- mar J. Eylands gifti. ★ ★ ★ Dánarfregn Katrín Sigríður Pálsson lézt að heimili sinu, 608 Toronto St., hér í borginni, á föstudag- inn var, 16. júlí. Hún var fædd að Akratungu i Hraunhrepp, í Mýrasýslu 12. ágúst 1857, og ólst upp hjá foreldrum sínum þar, þeim Sigurði Pálssyni skipstjóra og Sigriði Ögmunds dóttur, konu hans. Ung fór hún til Reykjavíkur og lærði þar saumaiðn, og starfaði við það um hríð að námi loknu Sumarið 1903 fluttist hún til Canada, settist að í Winnipeg og hefir átt hér heima síðan Hér stundaði hún iðn sína fram á síðustu ár. Hún lætur eftir sig tvær systur á lífi hér vestra Eru þær Mrs. John Ruth, Cy press River, Man., og Mrs Sarah Miller, Wetaskiwin Alta. Jarðarförin fór fram frá útfararstofu Bardals á þriðju daginn 20. júlí. Séra Valdimar J. Eylands flutti kveðjumál og jós hina framliðnu moldu Brookside grafreit. ★ ★ ★ Slagharpa (Piano) óskast til leigu á barnlaust heimili. — Heimskringla vísar á leiganda. ★ ★ ★ Til leigu Þrjú herbérgi með eða án húsmuna. — Sími 23 718. vwww‘Wwmmwmmww‘WM>wmwww<MWMMwmwmd Islendingadagurinn í Gimli Park MÁNUDAGINN 2. ÁGÚST 1943 Forseti, H. Pétursson “Fjallkona", frú Guðrún Skaptason Hirðmeyjar: Miss Guðrún H. A. Skaptason — Miss Helen K. Sigurðsson Formaður Iþróttanefndar, E. A. ísfeld, Winnipeg Klukkan tíu fyrir hádegi íþróttir á íþróttavellinum Skemtiskráin byrjar kl. 2 e. h. Dansinn byrjar kl. 9 e. h. SKEMTISKRA 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. O Canada Ó, Guð vors lands Forseti, H. Pétursson, setur sam^ •komuna. Karlakór íslendinga í Winnipeg. Ávarp "Fjallkonunnar”, frú Guðrún Skaptason Karlakórinn Hon. Stuart S. Garson, Premier of Manitoba. Karlakórinn Minni íslands, ræða, Hinrik S. Björnsson. 10. Minni íslands, kvæði, Páll S. Páls- son. 11. Canadisk borgararéttindi og borg- araskyldur, frú Ingib. Jónsson. 12. Karlakórinn 13. Landneminn, kvæði, Einar P. Jóns- són 14. Endurminningar frá^ landnámstíð, G. j. Guttormsson 15. Karlakórinn. God Save the King Kl. 4 Skrúðganga. Fjallkonan leggur blómsveig á landnema minnisvarðann. Kl. 7 — Almennur söngur, undir stjórn Paul Bardal. Kl. 9 — Dans í Gimli Pavilion. Aðgangur að dansinum 25 cent. O. Thorsteinsson Old Time Orchestra spilar fyrir dansinum. Aðgangur í garðinn: 25 cent fyrir fullorðna, 10^ fyrir börn innan 12 ára. Gjallarhorn og hljóðaukar verða við allra hæfi. Sérstakur pallur fyrir Gullafmælis- börnin og gamla fólkið á “Betel” Karlakórinn syngur undir stjórn Gunnars Erlendssonar. Takið eftir auglýsing um "Traina"-ferðir og fargjald, milli Gimli og Winnipeg Sveinn Sigmundsson dó 16. júlí á elliheimilinu í St. Boni- face. Hann var 55 ára, átti fá eða engin skyldmenni hér og hvaðan hann var ættaður af Islandi, getum vér ekki sagt um. ★ ★ ★ Fargjald milli Gimli og Win- nipeg á Islendingadaginn verð- ur $1.40 fram og til baka með járnbrautarlestunum. ★ ★ ★ f þjóðrœkniserindum Dr. Richard Beck, forseti Þjóðræknisfélagsins, kom á laugardagsmorguninn vestan úr islenzku bygðunum í Sask- atchewan, þar sem hann hafði verið i þjóðrækniserindum. — Hann var aðalræðumaður á Is- lendingadegi í Churchbridge og flutti einnig erindi á sam- komum, er þjóðræknisdeildirn- ar í Leslie og Wynyard stóðu að. flann sagði að samkomur þessar hefðu verið vel sóttar og lét hið bezta af viðtökunum vestur þar. Dr. Beck flutti aðalræðuna á norræna móti Viking Club á laugardagskvöldið. Hann hélt heimleiðis á sunnudagsmorg- uninn. ★ ★ ★ Gjafir til Sumarheimilis ísl. barna að Hnausa Man.: Mr. og Mrs. B. Kjartansson, Hecla, Man..............$5.00 í minningu um séra Guðmund Árnason frá Lundar, Man., og Jón Jónsson frá Grund í Mikl- ey, dáinn 1. júlí 1943, 97 ára. Miss TUaðgerður Kristjáns- son, Winnipeg, Man......$10.00 í minningu um þrjá vini, sem að hún saknar mjög, þau séra Guðmund Árnason, Miss Stein- unni Vídal, Hnausa, og Dr. M. B. Halldórson. Mr. Gestur Pálsson, Hecla, Man., gaf ullarteppi. Mrs. Gísli Benson, Gimli, Man., tvær sögubækur. Meðtekið með samúð og þakklæti, Emma von Renesse, Árborg, Man. ★ ★ ★ Eftirfyígjandi nemendur Mr. O. Thorsteinssonar á Gimli, Man., tóku próf við Toronto Conservatory of Music: Grade 4 piano: First class honors, Margaret Jones; Hon- ors, Elin Árnason. Grade 3 piano: Honors, María ísfeld. Grade 2 Piano: First class honors, Lucilla Jones; Honors, Lilja Danielson. Grade 1 píano: Honors, Juno Jakobson og_ Eleanor Sigurð- son. Grade 1 violin: Honors, Ragnhildur Arason; Pass, Mar- lene Flesher. ★ ★ ★ Messur í Nýja Islandi Sunnud. 25. júlí: Geysir, messa kl. 11 f. h. V-íðir, messa kl. 2 e. h. Riverton, ísl. messa kl. 8 e. h. — Séra Guðm. P. Johnson frá Blaine, Wash., pré- dikar við allar þessar guðs- sjónustur. Fólk vinsamlegast beðið að fjölmenna. B. A. Bjarnason Látið kassa í Kœliskápinn WvmoLa Æ GOOD ANYTIME Atvinna fyrir kvenmann Útlærð snyrtistúlka (hair- dresser) óskast nú þegar. Gott kaup og góður útbúnaður. — Auglýsing nr. 619, National Se- lective Service, Lindsay Bldg., Wirlnipeg, Man. ★ / ★ ★ Matreiðslubók Kvenfélags Fyrsta lúterska safnaðar í Winnipeg. Pantanir sendist til: Mrs. E. W. Perry, 723 Warsaw Ave.; Mrs. E. S. Feldsted, 525 Dominion Street /erð $1.00. Burðargjald 5í. * ★ ★ Guðsþjónusta er hér með boðuð í ísllenzku lút. kirkjunn í Langruth kl. 2 e. h. sunnud. 25. júlí. Látið þetta berast. R. Marteinsson ★ ★ ★ Bœkur til sölu á Heimskriuglu Endurminningar, 1. og II hefti, alls 608 blaðsíður, eftir Friðrik Guðmundsson. Verð upphaflega $2.50, báðar bæk- urnar; nú $1.00. Hetjusögur Norðurlanda, um 200 blaðsíður að stærð, eftir Jacob A. Riis. Islenzkað hefir Dr. Rögnvaldur Pétursson. — Verð 35c. ★ ★ * Hin nýja bók dr. R. Becks, “Icelandic Poems and Stories” er nú til sölu í Björnsson’s Book Store, 702 Sargent Ave., Winni- peg, og kostar $5.50 í Canada. BORGIÐ HEIMSKRINGLU— því gleymd er goldin skuld JOfíNSONS ÓÖkSTÖREI /Ævj 1 702 Sargent Ave., Winnipeg, Man. | ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG ÍSLENDINGA I Forseti: Dr. Richard Beck ; University Station, ; Grand Forks, North Dakota ; Allir Islendingar í Ame- ; ríku ættu að heyra til Þjóðrœknisfélaginu ; Ársgjald (þar með fylgir ; Tímarit félagsins ókeypis) - $1.00, sendist fjármálarit- ; ara Guðmann Levy, 251 | Furby St., Winnipeg, Man. Betra en ekkert Hann hafði kynst frúnni lít- ilsháttar og hún hafði boðið honum í veizlu heim til sín. Þar þekti hann afar fáa, en stóð nú við hlið frúarinnar og var að tala við hana. “Ákaflega held eg, að það sé leiðinlegur maður, sem stendur þarna yfir við p-íanóið,” sagði hann, til þess að segja eitthvað. “Jæja, haldið þér það?” sagði frúin. “Þetta er maðurinn minn.” “Já, einmitt það,” sagði gest- urinn, hugsandi. “Er það ekki einkennilegt, einmitt leiðinleg- ustu mennirnir s-kuli eignast lang-fallegustu og skemtileg- ustu konurnar?” ^?AeWAR SAVINGS *V*2>CERTIFICATES C. C. F. Fundir SÉRA PHILIP M. PETURSS0N og LLOYD C. STINS0N bæjarfulltrúi stuðningsmenn WILLIAM BRYCE I Selkirk kjördœmi flytja rœður á eftirfarandi stöðum: FRAMNES 26. júlí ÁRBORG 27. júlí GEYSIR ......_.. 28. júli M. J. C0LDWELL, M.P. aðstoðaður af séra Philip M. Pétursson talar að LUNDAR 23. júlí Fundarstjóri — B. E. Johnson Fundir byrjar kl. 8.30 Merkið kjörseðilinn | BRYCE KOSNINGAR — 9. ÁGÚST Islendingadagurinn í Blaine, Wash. Sunnudaginn 25. júlí 1943 Forseti dagsins...*............ Andrew Daníelson Framkvœmdarnefnd: Andrew Daníelson, Magnús Elías- son, A. E. Kristánsson, H. S. Helgason, Mrs. Carl Westman. Söngnefnd: H. S. Helgason, L. H. Thorláksson, E. K. Breiðford. Söngstjórar: L. H. Thorlaksson, H. S. Helgason. SKEMTISKRÁ: Ó, Guð vors lan-ds..................Söngflok-kurinn Ávarp fonseta................... Andrew Daníelson Einisöngur....................... ..Ninna Stevens Ræða......................../Séra Sigurður ólafsson Kvæði........................ Þ. Kr. Kristjáns-son Einsöngur.....................................Júl. Samúel-sson (a) Sólskrikjan, Jón Laxdal (b) Skarph-éðinn í brennunni, Helgi Helgason Ræða...............................M. M. Lind-fors Ræða...............................Hon. Knute Hill Einsöngur......................... Ninna Stevens Kvæði...............................Jón-as Pálsson Einsöngur.....................................Júl. Samúelsson (a) Nú sé eg og faðma þig, Sig. Helgason (b) Fíifilbrekka gróin grund, A. Thorsteinisson Ræða.......................Séra A. E. Kristjánsson Kvæði...................:........Jakobina Johnson Allir syngja, undir stjórn H. S. Helgasonar: (a) Ó, fögur er vor fósturjörð (b) Hvað er svo glatt (c) Eldgamla Isafold (d) America (e) God Save the King. Skemtiskráin hefst 1.30 e. h. Gjallarhorn flytur skemtiskrána til áheyrenda.

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.