Heimskringla - 17.01.1945, Blaðsíða 2

Heimskringla - 17.01.1945, Blaðsíða 2
2. SÍÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 17. JANÚAR 1945 HITLER ÉTUR OFAN 1 SIG Grein þessi, sem er eftir J. C. Johnstone og þýdd úr tímaritinu World Digest, f jallar um hreysti- yrði Hitlers og samherja hans, meðan alt lék í lyndi fyrir naz- istum og hersveitum þeirra. Höf- undurdnn telur, að það myndi þyngsta refsingin, sem hægt væri að leggja á nazistana, að þeir væru látnir skrá hin fornu hreystiyrði sín eftir ósigur þeirra og hlusta á bergmál for- tíðarinnar, sem hlyti að láta þeim óþekkilega í eyrum. EF Hitler, Göring og Göbbels skyldu falla bandamönnum lifandi í hendur, væri eigi unt að búa þeim aðra refsingu verð- skuldaðri en þá að loka þá inni í fangaklefa og láta þá eyða tím- anum við að færa í letur orð sín frá velmaktardögum sínum. Það er auðvelt að gera sér í hugar- lund, hvernig þeim muni verða innanbrjósts, þegar raddir sj'álfra þeirra enduróma úr for- tíðinni að eyrum þeirra. — Það verður þeim vissulega í senn ströng og háðuleg refsing. Við skulum til dæmis hlýða á orð þau, sem Hitler mælti til Þýzka þingsins morguninn sem hersveitir hans réðust inn í Pól- land: “Frá og með þessari stundu er eg fyrsti hermaður þriðja ríkis- ins. Eg hefi klæðst þeim bún- ingi, sem er mér helgastur og kærastur, og eg mun ekki úr honum fara fyr en sigur er trygð- ur — ella mun eg ekki lifa úrslit hildarleiksins, sem nú er haf- • „ ff ínn. Og honum mæltist á líka lund til áheyrenda sinna í bjórkjall- aranum í Mundhen hinn 8. dag nóvembermánaðar árið 1940: “Eg er staðráðin í því að berj- ast til úrslita. Eg skal færa Bretum heim sanninn um það, hverjum skal verða tortímt í þessari styrjöld.” í nýársboðskap sínum árið 1941 mæltist honum á þessa lund: “Styrjöld þessi mun verða háð til úrslita — og þau úrslit eru fengin, þegar hinir ábyrgu glæpamenn hafa hlotið sinn verðskuldaða dóm. Látum þá skeggræða um “hamingjuhvörf í styrjöldinni”. En þeir munu komast að raun um það, að í þessari styrjöld er engin hamingja til önnur en réttur sigurvegaranna.” Og hann hélt þannig áfram 16. marz sama ár: “Hin eilífa forsjón mUn eigi láta sigurinn falla þeim í skaut, sem eru reiðubúnir að úthella blóði til þess eins að svala dráp- fýsn sinni.” En Ribbentrop á sinn bróður- þátt í þessum söng. Honum fór- ust þannig orð meðal annars í ræðu, sem hann hélt 27. sept. ár- ið 1942 í árdögum orustunnar um Stalingrad: “Ef til vill mun orusta þessi, þegar fram líða stundir, verða talin tákn frelsisbaráttu Ev- rópu.” Þegar þýzku hersveitirnar unnu hvern sigurinn af öðrum, kunnu forustmenn nazista sér ekki læti fyrir fögnuði. Göbbels lét eftirfarandi orð falla í ræðu, sem hann hélt 19. janúar árið 1940: “Aldrei áður hefir Þýzkalandi gefist slíkt tækifæri til þess að verða forustuþjóð heimsins. Öll þýzka þjóðin bíður óþolinmóð hinnar langþráðu stundar, þegar heimsveldisdraumur hennar rætist, og hvert mannsbarn á Þýzkalandi veit, að sú stund mun upp renna.” Hinn 10. maí árið 1940, daginn sem Þjóðverjar réðust inn í Hol- land og Belgíu, mælti Rilbben- trop hreykinn í bragði: “Þýzki herinn mun tala við Stóra-Bretland og Frakkland á því eina tungumáli, sem drotn- endur þessara landa virðast skilja og útkljá mál sín við þá í eitt skifti fyrir öll.” Hitler tók undir á þessa lund: “Orustan, sem hefst í dag, mun ákveða framtíð Þýzkalands næstu þúsund ár.” Þegar Hitler hélt ræðu sína í bjórkjallaranum í nóvember- mánuði árið 1940, kvaðst hann “hafa samúð með þeim Bretum, sem ættu herra Ohurchill þján- ingar sínar að þakka. “Herra Ohurohill hefir gert sig sekan um mestu flónsku, sem verald- arsagan kann frá að greina, með því að dirfast að ráðast á Þýzka- land með hinum brothættu vopn- um sínum, flughernum og flot- anum.” “Eg fuilvissa ykkur um það, að Ohurohill mun úr sögu áður en langt um líður, en þýzku kaf- bátarnir munu þá hins vegar enn fyrir hendi.” Göbbels gaf svohljóðandi yfir- lýsingu: “Þegar styrjöldinni er lokið með glæsilegum sigri Þjóðverja, munum við minnast með ánægju og stolti skyldna þeirra og harð- réttis, sem komið hefir í hlut okkar í hinni miklu baráttu.” Sama boðun felst í nýársboð- skap Hitlers 1941, sem svo oft hefir verið til vitnað: “Árið 1941 mun færa þýzku þjóðinni mesta sigur, sem saga vor kann fná að greina.” Hitler klifaði á því í sífellu, hvílíkur leiðtogi hann væri og kvaðst njóta hylli og verndar forsjónarinnar. — “Eg er vernd- ari framtíðar þýzku þjóðarinn- ar.” (10. des. 1940). “Eg hef ó- bifanlega trú á sigri mínum.” (8. nóv. 1940). “Eg þarf ekki á styrjöld þessari að halda til þess að gera nafn mitt ódauðlegt.” (3. október, 1941). Hinn 24. febrúar árið 1940 lét hann eftirfarandi orð falla: “Fyrir nokkrum mánuðum komst eg að raun um það, að eg nýt guðlegrar verndar forsjónar- innar. Forsjónin hefir blessað baráttu okkar og mun aldrei láta til þess koma, að þjóð vorri verði steypt í glötun.” Síðar, þegar syrta tók í álinn, talaði hann utan að því, að ef Þjóðverjar biðu ósigur í styrj- öldinni, væri það ekki sín sök: “Eg er mikill trúmaður. Eg trúi því, að þegar forsjónin hefir kjörið einlhvern til mikils ætlun- arverks, muni hún ekki láta hann bugast fyr en hann hefir OLD CARTONS CAN BE RE-USED Old cartons, if carefully opened when delivered, can be re-uséd to the great advantage of the present shortage in carton materials. When returning empty bottles, please use old carton together with any extra used cartons on hand. Cartons take material and labour and it is in the interests of conservation that your co-operation is required. DREWRYS.,.,... FRA TIDDIM BRAUTINNI Hertaka Tiddim var gerð kunnug 19. okt. s. 1. Það var 14. Hindúa herfylkingin er það gerði. Varnarlið Japana varð að láta undan stöðugum ásóknum úr loftinu og áhlaupum fimtu deildar Himdúa úr tveimur áttum. — Hér að ofan er sýndur maður að nafni H. Pracey, og er hann að leggja 25- punda sprengju á ofannefndum slóðum. lokið því ætlunarverki sínu. F þýzka þjoðin lætur nu bugast, kæmi mér ekki til hugar að fella tár vegna þess, því að þá hefði hún unnið til þess hlutskiftis.” Aðrir voru enn skáldlegri. — Göbbels lét til dæmis þessi orð falla á afmælisdegi Hitlers 1941: “Vér erum sjónarvottar að mesta kraftaverki veraldarsög- unnar. Snillingur vinnur að sköpun nýs heims.” Það er fróðlegt að kynna sér samanburðinn á “snillingnum” Hitler og andstæðingum hans. Hitler kvað að orði á þessa lund 24. febrúar 1940: “Þegar eg virði fyrir mér stjórnmálamenn lýðræðisríkj- anna og kynni mér lífsstarf þeirra, hlýt eg að láta þess getið, að eg fhefi verið svo óhamingju- samur að eiga í höggi við smá- menni. Þessir vesalingar, leyfa sér að fjölyrða um endurreisn Evrópu. Endurreisn Þýzkalands var á komið án fulltingis þeirra, og endurreisn Evrópu mun verða á komið án fulltingis þeirra.” Á tímabilinu milli orustunnar við Dunkirk og innrásarinnar, fullyrtu Þjóðverjar, að Bretar myndu aldrei stíga fæti sínum framar á meginland álfunnar. Hitler sagði 10. des. 1940: “Enginn hermaður annara þjóða mun stíga fæti sínum á nokkurn þann stað, þar sem þýzkur hermaður er fyrir. Ekk- ert mannlegt vald getur hrakið okkur gegn vilja okkar brott af landsvæðum þeim, sem við höf- um náð á vald okkar.” Hinn 30. janúar 1941 bætti hann þessum vizkuorðum við: “Bretar hafa verið hraktir brott af meginlandinu í eitt skifti fyrir öll. Geri þeir tilraun til þess að hefja sókn gegn megin- landi Evrópu, skal tekið hraust- lega á móti þeim og þeir ávarp- aðir á því máli, sem þeir skilja bezt.” t Hinn 3. október 1941, tilkynti hann eftirfarandi: “Við höfum getað leyft okkur að hætta hergagnaframleiðslu í mörgum þeim löndum, sem við höfum á valdi okkar. Ástæðan fyrir því er einfaldlega sú, að það eru engir óvinir eftir, sem við ekki getum sigrað með vopn- um þeim, sem við höfum þegar fyrir hendi. . . Gervalt mégin- landið er í þjónustu þriðja ríkis- ins.” Hinn 26. apríl árið 1942 lýsti hann því yfir, að “sér stæði hvorki ógn né ótti af herforingj- um Breta né Bandaríkjanna.” Hinn 30. september bætti hann við: “Ætti eg í höggi við hættu- lega andstæðinga, myndi eg geta sagt fyrir um ‘það, hvar aðrar vígstöðvar myndu verða. En þegar um slíka hernaaðarbjálfa er að ræða og hér er að mæta, veit maður aldrei hvaðan árásar muni von. . .” Göbbels kvað þannig að orði hinn 1. apríl þessa árs, “að hann væri þess fullviss, að Þjóðverjar myndu sigra glæsilega í styrj- öldinni.” Það leikur ekki á tveim tungum, að glæsileg úrslit verða ráðin í hildarleik þeim, sem nú er háður, en glæsisigur sá mun eigi falla Þjóðverjum í skaut. “Snillingurinn” Hitler mun eigi bjarga Þýzkalandi frá glötuninni né sjálfum sér frá þeim örlögum að verða steypt af stóli. En þegar dómurinn verð- ur honum kveðinn, færi vel á því, að hann mintist orða Göb- bels: “Vopnin eru beztu rökin. Við trúum á mátt og megin.” —Alþbl., 22. nóv. 1944. RANNSóKN I R hafa leitt í Ijós stórfeldar breytingar á jöklum landsins síðustu árin. DÁNARFREGN 1 nóvember mánuði s. 1. ár, andaðist í Calgary, Alta., Daniel Jónsson eftir langa sjúkdóms- legu, fæddur þann 17. marzmán- aðar árið 1877 á Hellu'hrauni í Borgarhrepp Austur-Skaftafells- sýslu. Foreldrar hans voru Jón Dan- íelsson og kona hans, Guðrún Runólfsdóttir. — KringuimStæð- anna vegna, varð hann að yfir- gefa föður sinn og móður á unga aldri, og því eins og margir á því tímabili að vinna sjálfur að nokkru leyti fyrir uppeldi sínu. Árið 1900*giftist hann ungfrú Önnu Sigmundsdóttir frá Engi- læk í Norður-Múlasýslu. Vann hann þá fyrir sér í vinnumensku og gíðar við dag- launavinnu, unz hann árið 1911 fluttist með konu sinni ásamt þremur ungum dætrum þeirra hjóna til Canada. Settist fjölskyldan að í Cal- gary, Alta., þar hlaut Daniel at- vinnu hjá ölgerðarfélagi, og hjá þvá vann hann að mestu leyti það sem eftir var æfinnar. 1 Daniel Jónsson gekk ekki alt- af heill til skógar, einkum sein- ustu árin, en viljinn að vinna iheimilinu og fjölskyldu sinni sem mest gagn, var hans heimur, og hélt honum vakandi til sein- ustu stundar, unz félagið sem hann vann hjá, veitti honum lausn frá starfi eftir 32 ára dygga þjónustu með nokkrum eftir- launum. Seinasta árið sem hann lifði var hann oft þungt haldinn en hélt þó altaf máli og fullum söns- um. Hann andaðist mánudaginn þann 13. nóvember, 67 ára og 8 mánaða gamall. Ekkjan lifir mann sinn, ásamt fjórum börn- um: Herborg, Sigurbjörg, Ele- nora og einn sonur, Gunnsteinn, 'öll fullorðin ok búsett í Calgary. .Einnig lætur hann eftir sig eina systir á lífi, frú Kristín Ander- ,son, til heimilis í Winnipeg, Man. S. Sigurðsson . i KAUPIÐ HEIMSKRINGLU— útbreiddasta og fjölbreyttasta islenzka vikublaðið Jón Eyþórsson, veðurfræðing- ur, hefir undanfarin 14 ár haft með höndum merkilegar jökla- rannsóknir, raunverulega þær einu, sem gerðar hafa verið hér á landi, og hafa þær leitt í ljós stórfeldar breytingar á þessu tímabili. Jón byrjaði að mæla breyt- ingar á jöklum árið 1930 og hefir því fengist 14 ára reynsla á breyt ingum þeirra jökla, sem fyrst voru mældir, en það voru Sól- heimajökull, Snæfellsjökull o. fl. jöklar. Frá því 1930 hefir Jón unnið að þessum mælingum og rannsóknum í sumarfríum sín- um. Árið 1931 setti Helgi Her- mann Eiríksson skólastjóri upp nokkur merki við jökla í Austur- Skaftafellssýslu, en síðan hefir Jón fylgst með breytingum þeirra, og séð um framlhaldand’ mælingar þar. Mælingar þessar eru allvíð- tækar. Hefir Drangajökull ver- ið mældur á fjórum stöðum, Eyjafjalla -og Mýrdalsjökull á 7 stöðum, Vatnajökull á 44 stöð- um, Langijökull með Hrútafelli á 5 stöðum, Hofsjökull á 4 stöð- um, og auk þess Kerlingarfjöll á einum stað og Heljardalsheiði á tveimur stöðum. Hafa mælingarnar leitt í ljós, að jöklarnir hafa yfirleitt bæði styzt og þynzt stórkostlega á þessu tímabili. Flest árin hafa jöklarnir styzt að meðaltalli 20— 50 metra, en sum árin hefir stytt ingin numið miklu meiru. Einu jöklarnir, sem hlaupið hafa fram, svo teljandi sé, eru skriðjöklar úr Drangajökli, Árið 1939 hljóp Reykjarfjarðarjökull á Hornströndum fram um 540 metra, en nú er hann aftur tek- inn að stytast til muna. Leiru- fjarðarjökull, sem einnig er skriðjökull úr Drangajökli, hljóp fram árið 1940 um 150 metra og 1941 yfir 200 metra. En árið 1887, þegar Þorvaldur Thorodd- sen var á ferð í Leirufirði, klapp- aði hann merki á stein um 90 metra frá jökulröndinni, og náði skriðjökullinn þá alveg niður í dalbotn. Árið 1931 var merkið 2060 metra frá jökulröndinni og Ihefir jökullinn því styzt um nærri 2000 metra á rúmlega 40 árum. Jón heldur því fram, að jökl- arnir hafi yfirleitt verið farnir að styttast fyrir síðustu aldamót, en annars lítið sem ekkert vitað um breytingar á jöklunum fyr en byrjað var að mæla þá 1930. Jón segir að margt bendi til þess, að fram undir síðustu alda- mót hafi jöklarnir verið hvað mestir frá því er landið bygðist. Það sem fyrst og fremst bendir til þessa er það, að skamt frá jöklunum eru hér um bil alls- staðar jökulöldur, sem eru grón- ar á ytra borði og hafa auðsjáan- lega verið óhreyfðar um margar aldir. Sjást óvíða nokkur merki um jökulframburð utan við þær. Um 1930 voru margar jökul- tungur rétt innan við þessar grónu öldur, eða náðu jafnvel al- veg fram að þeim, svo sem Múla- jökull vestan Arnarfells. Múl- arnir eru smáhólar með miklum hvanngróðri að framanverðu. — Innan við þá er varla stingandi strá, en nú orðið liggja um 2ja km. breiðir aurar upp að skrið- jökulsbrúninni. 1 stuttu máli sagt, virðist sem jölarnir hafi gengið fram alt til 1700, en síðan ýmist staðið í stað eða farið lítið eitt vaxandi fram á 19. öld. Hinsvegar hafa jöklarnir minkað aðallega síð- ustu 20 árin. Svipað hefir átt sér stað í Noregi, og eftir því, sem bezt er vitað eínnig á Spitz- bergen. Sem dæmi um það, hve jökl- arnir hafa minkað síðustu árin, má nefna Breiðamerkurjökul og Hrútárjökul,-en þeir náðu ekki saman undir Breiðamerkurfjalli fyr en í byrjun 18. aldar og sá- ust þá enn rústir að Breiðamörk, bæ Kára Sölmundarsonar. Árið 1904, þegar danska herforingja- ráðið mældi þetta svæði, yar jökulhaftið sunnan undir Breiða- merkurfjalli 2ja km. breitt, en nú í haust mældu feðgarnir á Kvískerjum breiddina á jökul- haftinu og reyndist það þá vera 400 metrar. Á s. 1. 40 árum hef- ir jökullinn því styzt um 1600 metra. Jöklarnir eru nátengdir veðr- áttunni, og fer það eftir henni. Hitunum á sumrin og snjókom- unni á vetrum, hvort jöklarnir minka eða stækka. Jón ihóf mælingar sínar af eig- in hvöt og án þess að fá til þess nokkurn styrk, en nú síðustu ár- in hefir ríkissjóður greitt 600 krónur á ári til þeirra, sem hjálp- að hafa til við mælingarnar, og auk þess hefir Mentamálaráð veitt nokkurn styrk til rann- sóknanna. Jón sagði að þeir, sem aðstoðað hefðu hann við mælingarnar, hefðu sýnt við það mikinn áhuga og gert það fyrir litla borgun, lengst af. En auk mælinganna hefðu þeir haldið til haga ýmsum markverðum fróðleik, og gert ýmsar athugan- ir á breytingum jöklanna, rensli jökulánna o. s. frv. Hefðu þeir því unnið mikið og markvert menningarstarf með þessari starfsemi sinni.—Vísir, 15. nóv. WARTIME PRICES AND TRADE BOARD Spurningar og svör Spurt: Eg ætla burt úr bæn- um og verð að heiman þrjá eða fjóra mánuði. Mig langar til að leigja íbúðina mína með öllum húsgögnum á meðan eg er fjar- verandi en vil fá að taka við henni aftur strax og eg kem til baka. Svar: Þú verður að láta leigu- dei'ldina ákveða sanngjarna leigu. Ef tímabilið er fimm mánuðir eða minna, þá getur þú látið útbúa sérstaka skriflega leigusamninga fyrir tiltekið tímabil og fengið íbúðina aftur fyrirvaralaust þegar tímabilið et útrunnið. Spurt: Eg er rakari, og leigi búð sem eg borga fyrir mánað- arlega. Eg hefi einnig skriflega leigusamninga. Nú hefir méi verið sagt upp búðinni með eins mánaðar fyrirvara. Mér hefii enn ekki tekist að finna aðra búC og vil því fá að vera áfram. Ei hægt að skylda mig til að fly.tja: Svar: Ef þú hefir borgað ski'l- víslega og meðferð á búðinn: hefir veirð sæmileg, þá getu: eigandi ekki heimtað að þú flytj- ir nema með sérstöku leyfi fr£ leigunefndinni, en það leyfi fæsl ekki nema eigandinn þarfnisl byggingarinnar sjálfur, eða ætl að láta rífa hana, skifta henni smáíbúðir eða gera einhverja: slí'kar meiriháttar umbi^yting- ar. Spurt: Matsalinn sem e| verzla við neitar að taka vií seðlum af spjaldi sem sonu: minn fékk frá < hernum þegai hann var heima síðast. Hanr segir að allir seðlar hafi fallið ú: gildi 31. des. Er þetta rétt? Svar: Nei. Sérstakir seðlar o£ seðlar á hermanna spjöldum err ekki gefnir út fyrir nokkurt á kveðið tímabil. Það voru aðeim seðlarnir í bókum nr. þrjú oi fjögur sem féllu úr gildi 31. des Spurt: Hvers vegna hafa fyr stu seðlarnir verið teknir úr ból nr. fimm sem eg bað um 2. jan 1945? Svar: Það er álitið að þeir sen ekki báðu um nýju bækurna innan eins mánaðar, hafi ekk nauðsynlega þarfnast fyrsti seðlanna. Ef þeirra hefði veri< þörf þá hefði verið beðið um bók ina strax. Seðla innihald bók arinnar er aldrei nema frá þein degi sem beðið er um þær.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.