Heimskringla - 17.01.1945, Blaðsíða 6
6. SIÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 17. JANÚAR 1945
STÚLKAN ur
FLÓANUM
Og þannig héldu þáer *áfraíh meðan þær
óku. Elenóra vissi það ekki en á þennan hátt
varð hún félagi þessara ungu stúlkna. Hún
iheyrði nú félaginu til. Hún vissi bara að hún
var hamingjusöm, og inst í huga sínum furðaði
hún sig á hvað móðir hennar og Margrét frænka
mundu segja um það, sem gerst hafði þennan
morgun.
Fyrri hluta laugardagsins hjálpaði Elenóra
móður sinni með heimilisstörfin. Þegar þær
voru búnar sagði Mrs. Komstock henni, að nú
skyldi hún fara til Sintons og hreinsa upp ind-
versku fornminjarnar, svo að ihún gæti farið
með Wesley til bæjarins þá um kvöldið. Elenóra
flýtti sér niður veginn og var strax komin að
brunninum með þvottabala, og hamaðist nú við
að þvo örvaroddana. Sýteinaxir, pípur og
verkfæri, sem höfð voru til að hreinsa með
skinn o. s. frv. Þar voru ekki eins margir örvar-
oddar og hún hafði hugsað, og sumir, sem hún
hafði haldið að væru góðir, voru flaskaðir eða
brotnir. En samt var þarna talsvert stór kassi
með heilum áhöldum, sem hún gat farið með til
bæjarins.
Svo þurfti Elenóra heim til að klæða sig í
hrein föt og beið svo þangað til vagninn stað-
næmdist fyrir framan hliðið. Hún fór inn í
bankann, en Sinton fór að ljúka sínum erindum,
selja afurðir sínar og kaupa hitt og þetta fyrir
konuna sína.
1 nýlenduvörubúðinni hitti hann Mr.
Brownlee, sem kom til hans og sagði: “Nú, nú,
Sinton, hvernig lízt þér á hvernig fór með nest-
istínuna, sem þú keyptir hérna á dögunum?”
Svo fór hann að hlægja.
“Mér fellur aldrei að sjá mann hlægja ein-
an,” sagði Sinton. “Það lýsir svo mikilli sjálfs-
élsku. Segðu mér gleðiefnið svo að eg geti hjálp-
að þér til að ihlægja!”
Brownlee þerraði á sér augun.
“Eg hélt að þú vissir um þetta. En eg sé
nú að hún hefir ekkert sagt þér frá þessu.”
Svo kom sagan af nestistínunni hina þrjá
síðustu aagana, var hún sögð með öllum atrið-
um, og hundinum var heldur ekki gleymt.
“Nú getur íþú hlegið,” sagði Brownlee er
hann lauk máli sínu.
“Nei, það veit trúa mín, að eg sé ekkert
hlægilegt við þetta,” svaraði Sinton. “Og ef þú
hefðir keypt tínuna og hefðir svo látið mat í
hana sjálfur eins og til að vígja hana, þá mundi
þér ekki 'heldur finnast þetta hlægilegt. Eg
kalla þetta skammarlegt, og eg skal sjá um að
þetta taki bráðan endi.”
“Já, eitthvað verður auðvitað að gera í
þessu máli. Það finst mér líka. Þau eru alveg
hreint eins og blóðsugur. Faðir þeirra vinnur
sér nægilega mikið inn til að kaupa þeim mat,
en þau eiga enga móður, og flækjast um alt
umsjónarlaus. Þau eru sjálfsagt álveg óð í að
fá veltilbúinn mat. En þetta er nú samt hlægi-
legt, og þótt þér finnist það ekki nú, muntu
sjá það síðar.”
“Hvar skyldi eg geta fundið hann föður
þeirra?” spurði iSnton þurlega. Mr. Brownlee
sagði honum hvar húsið væri og lagði Wesley
af stað og fann það vonum bráðar. Húsið var
réttnefni, því að heimili gat þetta ekki kallast.
Þetta var ekkert nema tómur húskofi og í hon-
um voru þrjú vanhirt börn, sem léku sér inni í
þvi og í kringum það. Stúlkan og eldri dreng-
urinn drógu sig í hlé, en Billy sneri sér að komu-
manni og spurði: “Hvað vilt þú hérna?”
“Eg þarf að tala við hann föður þinn,”
svaraði Sinton.
“Ó, hann séfur,” svaraði Billy.
“Hvar?” spurði Sinton.
“Inni í húsinu, og þú getur ekki vakið
hann.”
“Eg mun nú samt reyna það,” sagði Wes-
ley.
Billy vísaði honum leiðina. “Þarna er
hann,” sagði hann. “Hann er fullur aftur.”
Á óhreinni undirsæng í einu horninu lá
sofandi maður. Hann virtist vera bæði hraust-
ur og sterkur.
En það var satt sem Billy sagði, að ekki
væri hægt að vekja hann.' Hann hafði n‘áð
hinsta áfanganum og var skilinn við.
Sinton gekk út úr herberginu og lokaði
hurðinni á eftir sér. “Faðir þinn er veikur og
ér hjálparþurfi,” sagði hann. “Vertu nú hérna
og eg skal sækja mann til að líta á hann.”
“Ef þú lofar honum að eiga sig þá raknar
hann bráðum úr rotinu. Svona er hann altaf.
En á milli vaknar hann og færir okkur þá eitt-
hvað að borða, en biðin verður okkur stundum
óþægilega löng.”
Drengurinn sagði ekki þetta í neinum
kvörtunárrómi. Hann sagði bara frá atriðun-
um eins og þau voru.
Wesley Sinton leit hvast á Billy. “Líður
þér illa núna?”
Billy lagði kámuga hendina á magann, sem
virtist svo saman skroppinn, að hann væri að
engu orðinn. “Já, þú getur reitt þig á það lags-
maður,” svaraði hann glaðlega.
“Hversu lengi hefir þér liðið þannig?”
spurði Sinton.
Bifly sneri sér til hinna barnanna. “Hve-
nær var það, sem við fengum alt þetta góðgæti á
brúnni?”
“I gærmorgun,” svaraði stúlkan.
“Er það alt uppgengið?” spurði Sinton.
“Hún sagði okkur að fara heim með þetta,”
svaraði Billy hryggur í bragði, “og af því að hún
sagði okkur það gerðum við það. Pabbi var
kominn heim. Hann hafði drukkið áfengi og
varð svo hundveikur er ihann hafði étið nærri
allan matinn okkar. Síðan drakk hann enn
meira brennivín og sofnaði svo út af. Við
fengum næstum ekkert af þessu.”
“Nú skuluð þið börnin sitja hérna á t'röpp-
unum þangað til maðurinn kemur,” sagði Sin-
ton, “eg skal senda ykkur eitthvað að borða.
Hvað heitir þú drengur minn?”
“Billy,” svaraði drengurinn.
“Jæja, Billy, eg hugsa að réttast sé að þú
komir með mér. Eg skal gá að honum,” sagði
Sinton og leit á hin börnin. Hann rétti út
hendina til Billy.
“Eg er ékkert barn, eg er drengur,” sagði
Billy og reyndi að fylgjast með Wesley. Á leið-
inni sparkaði hann í hvern hlut, sem hægt var
að flytja úr stað, án þess að hirða um særðar
fætur sínar.
Þeir gengu fram hjá stórum hundi, sem
fygldist með húsbónda sínum, og Billy tók að
klifra upp eftir Sinton eins og hann væri tré og
læsti hann titrandi höndunum.
“Eg er ekkert hræddur við hundinn,” sagði
Billy þegar hann var aftur látinn niður á gang-
stéttina, “en einu sinni tók hann misgrip á mér
og rottu eða einlhverju því líku, og læsti tönn-
unum í bakið á mér. Hefði eg rekið réttar míns,
hefði eg átt að kæra hann fyrir lögunum.”
Sinton leit á litla reiðulega andlitið. —
Drengurinn var nógu sniðugur og hafði góða
hæfileika, en hann var næstum afstyrmi af illu
viðurværi.
Wesley Sinton leiddi drenginn. Þeir komu
nú inn í verzlunarhverfi Onabasha bæjarins, og
göturnár voru fullar af fólki. Billy skildi það
að leiðsögumaður hans gat mist af honum í
þrönginni, og hélt sér því í hendi hans dauða
haldi. Litla, heita hendin, sem hélt svo fast í
hendi hans, særðu fæturnar, sem gengu á gang-
stéttinni án þess að Billy skeytti því neinu og
hungraður drengurinn, sem stóð á öndinni af
áreynslu að fylgjast með honum, hrærði Sinton
til meðaumkvunar.
“Heyrðu nú drengur minn. Hvernig mundi
þér falla að fá eins mikinn kvöldmat og þú
gætir í þig Látið, og fá síðan að söfa í góðu
rúmi?” spurði hann.
“Æ, blessaður vertu. Eg er nú ekki dauð-
ur ennþá. Þvílíkt fæst bara í himninum. Fá-
tæklingarnir fá ekkert því líkt. Það sagði hann
faðir minn.”
“Jú, þú getur fengið þetta alt ef þú vilt
bara koma með méf og vera drengurinn minn.”
“Get eg þá fengið eitthvað af þessu til að
færa Bellu og Jimmy?”
“Ef þú vilt koma með mér, þá skal verða
séð um þau.”
“En hvað mun pabbi segja um það?”
“Pabbi þinn hefir sofnað þeim svefni, sem
hann vaknar aldrei af, Billy,” sagði Sinton.
“Eg er næstum því viss um að dómstólarnir
leyfa mér að fá þig, Billy, sért þú viljugur að
koma með mér.”
“Þegar fólk vaknar ekki framár, þá er það
dáið,” sagði Billy. “Er pabbi dáinn?”
“Já,” svaraði Sinton.
“Og þú ætlar líka að sjá um þau Jimmy og
Bellu?”
“Eg get ekki tekið ykkur öll þrjú,” svar-
aði Sinton. “Eg skal taka þig og sjá um að
systkini þín komist í hendur góðra manna.
Viltu þá koma með mér?”
“Já, eg skal koma með þér,” svaraði Billy.
“En við skulum umfram alt fá okkúr að borða.”
“Já, það skulum við gera,” svaraði Sinton.
“Komdu með mér inn í þetta matsölúhús.”
Hann lyfti Billy upp að borðinu, sagði þjónin-
um að gefa honum eins mörg mjólkurglös og
hann gæti torgað og láta 'hann fá hveitibrauð.
“Eg hugsa að við fáum steikt hænsnakjöt þegar
við komum heim, Billy,” sagði hann, “svo þú
færð bara svolítið núna, en getur orðið reglu-
lega vel saddur seinna.”
10. Kap. — Billy gerir óskunda hjá
Sintons hjónunum.
Á meðan Billy var að borða leitaði Sinton
til ýmislegra yfirvalda, sem höfðu með þessi
atriði að gera, loks til hjálparnefndar kvenfé-
lagsins. Hann sendi körfu með matvælum til
Jimmy og Bellu, keypti Billy strigabuxur og
nýja skyrtu, og fór síðan að sækja Elenóru.
“En WeSley frændi!” kallaði hún til hans.
“Hvar fanst þú hann Billy?”
“Eg hefi tekið hann til fóstúrs um tíma,
kanske altaf,” svaraði Sinton.
“En hvar fanstu hann?” spurði Elenóra
forviða.
“Heyrðu nú góða mín,” sagði Sinton. “Mr.
Brownlee sagði mér söguna af nestistínunni
þinni. Mér fanst ekki sagan eins hlægileg og
þeim fanst hún. Þessvegna reyndi eg að ná tali
áf föður Billys til að fá hann til að sjá um fjöl-
skylduna sína, eða láta þá, sem lögin eiga að
sjá um framkvæmdir laga og réttar, sjá um
börnin.”
“Hann er alveg steindauður,” sagði Billy.
“Nú getur hann aldrei framar tekið frá okkur
alt kjötið.”
“En Billy!” hrópaði Elenóra upp óttaslegin.
“Hirtu ekki um það,” sagði Sinton. “Barn
talar aldrei svona um föður sinn, hafi hann auð-
sýnt því kærleika og alið það upp á réttan hétt.
Þegar iþað talar þannig er það eingöngu föðum-
um að kenna. Þú munt aldrei heyra Billy tala
þannig um mig þegar eg er allur.”
“Þú átt þó aldrei við að þú ætlir að taka
Billy fyrir kjörson?”
“Eg þarf bráðum á hjálp að halda,” svaraði
Sinton. “Billy verður orðinn það stór að tíu
árum liðnum, og ef eg el hann upp, þá verður
hann eins og eg vil að hann verði.”
“En Margrétu frænku feliur illa við drengi.
Hún vill ekki ihafa hann á heimili sínu.”
“Á heimili okkar,” leiðrétti Sinton.
“En hversvegna vilt þú fá hann?” spurði
Elenóra forviða.
“Það má hamingjan vita,” sagði Sinton.
“Billy er hreint ekkert fríður og hann er ekk-
ert gáfaður, eg held að það sé helzt vegna þess,
að hann er svo mannlegur. Hann vekur með-
aumkvun mína.”
“Já, þannig áhrif íhafði hann á mig,” svar-
aði Elenóra. “Mér þykir vænt um hann, og vil
heldur að hann fái matinn minn, en eg hafi
hann sjálf.”
“Hvervegna þykir þér svo’na vænt um
hann?” spurði Sinton.
“Æ, eg veit það ekki,” svaraði Elenóra
hugsandi. “Hann er svo lítill og svo fátækur,
en hann gefst aldrei upp né lætur undan, vegna
þess að hann hugsar aldrei um sjálfan sig, held-
ur um bróður sinn og systur. En við verðum
að þvo 'honum áður en Margrét frænka sér
hann. Ætli mamma--------”
“Þú skalt engar áhyggjur gera þér út af
þessu. Eg mun fara með hann heim með mér
alveg eins og hann er,” sagði Sinton. “Eg vil að
Margrét sjái hann alveg eins og ihann er í allri
sinni eymd.”
“Eg er hrædd,” sagði Elenóra.
“Það er eg líka,” svaraði Sinton. “En eg
vil ekki láta hann af hendi. Hann hefir nú þeg-
ar náð tökum á hjarta mínu. Mig ihefir altaf
langað svo innilega til að eiga dreng. En við
skulum ekki láta hann heyra til okkar.”
“Láttu þá ekki drepa ihann!” hrópaði Elen-
óra. Á meðan þau voru að tala saman hafði
Billy * gengið út á brún gangstéttarinnar og
slapp nú með naumindum við að lenda ekki
undir hjólin á bifreið, sem framihjá fór. Hann
var sem sé að reyna að bjarga ketlingi, sem
honum virtist vera í hættu.
Sinton dró Bi'lly inn á gangstéttina og hélt
fast í hendi hans. Þegar þau settust í vagninn
til að aka heim, sat Billy í framsætinu. Hann
greip í snæri í vagnbrúninni og hafði það fyrir
tauma, veifaði svipunni og æpti af gleði. Fyrst
hló Sinton með honum, en eftir að hann hafði
komið Elenóru heim fór andlit hans að fá miklu
alvarlegri svip.
Margrét stóð hjá dyrunum þegar þeir óku
upp trjágöngin heim að húsinu. Sinton lét
Billy verða eftir í vagninum, batt hestana og
gekk til hennar til að útskýra fyrir henni
hvernig stæði á því, að Billy væri með heim til
þeirra. Hann hafði ekki náð til hennar alla leið
þegar Margrét hrópaði:
“Wesley sjáðu barnið. Hestárnir eru að
fælast!” |
Wesley sneri sér við og tók til fótanna.
Billy stóð uppréttur í vagninum og barði hina
fjörugu hesta með svipunni.
“Sjáðu bara hvernig eg kem þeim úr spor-
unum!” sagði hann þegar hann sló í þá í annað
sinnið.
Hann kom þeim úr sporunum. Þeir kiptu
upp staurnum, sem þeir voru bundnir við, auk
hluta af girðingunni, sem skóf af einu vagn-
hjólinu. Fyrst náði Sinton ekki í hestana, en
af Iþví að staurinn hamlaði þeim dálítið náði
hann þeim samt. Hann leiddi þá út í hesthúsið
og sagði Billy að hann skyldi sitja í vagninum
þangað til hann hefði beitt hestunum frá. Svo
tók hann í hendi hans og leiddi hann, og bar
með sér bögglana heim að húsinu.
“Þú getur nú hlaupið um og leikið þér,”
sagði hann við Billy. “Eg ætla að tala við
fallegu konuna þarna.”
Fallega konan var heldur en ekki óttasleg-
in á 9vip, þegar Sinton kom til hennar.
“Hvar í ósköpunum hefir þú náð í þennan
andstyggilega strák?” spurði hún og nú sagði
maður hennar henni sögu Billys.
“Hann er næstum Iþví dauður úr sulti og
eg vil að hann fari í hrein föt og fái svo kvöld-
mat,” sagði hann.
“Hefir þú nokkur föt, sem hann getur far-
ið í?”
“Já.”
“Hvar fékstu þau?”
“Eg keypti þau. Það var ekki mikið. Alt
sem eg keypti handa honum kostaði tæpan dal.”
“Dalur er talsverð upphæð þegar við vinn-
um fýrir honum eins og við verðum að vinna.”
“Eg veit ekki á hvem hátt eg gæti varið
peningunum betur. Hefir þú nokkuð heitt
vatn? Eg ætla að nota þvottabalan þarna úti
hjá brunninum. Gerðu svo vel og láttu mig fá
sápu og handklæði.”
1 stað þess að svara honum hljóðaði Mar-
grét upp og þaut fram hjá honum. Billy hafði
skemt sér við það á meðan að draga upp úr
vasa sínum spotta, binda saman rófurnar á
tveimur hvítum köttum, sem Margrét átti, síðan
steing hann upp á kassa og hengdi iþá yfir
þvottasnúruna. Kettirnir, sem voru vitlausir
af hræðslu, ætluðu að rífa hvor annan .á hol,
svo að hvít hárin af þeim fuku eins og skæða
drifa. Spyrðan herti að þeim og gátu þeir ekki
af hræðslunni greint vin frá óvini. Márgrét
varð að hörfa frá öll blóðrisa á höndunum.
Sinton skar spottan sundur með ihníf, og hlupu
þá kettirnir allri blóðugir undir húsið og földu
sig þar. Margrét sneri sér til Sintons náföl af
reiði.
“Ef Iþú ekki beitir hestunum fyrir og keyr-
ir þetta kvikindi aftur til bæjarins, þá skal eg
gera það.”
Billy fleygði sér niður á jörðina og fór að
háskæla.
“Þú sagðir að eg skyldi fá steikt hænsna-
kjöt í kvöld,” æpti hann. “Þú sagðir að hún
væri góð og falleg kona.”
Sinton lyfti honum upp og hvernig hann
gerði það æsti reiðina í Margrétu, því að hann
gerði það svo vingjarnlega og ástúðlega. Hún
greip til Billy og náði í skyrtuna hans. Sinton
lagði hendina á hendi hennar.
“Farðu gætilega góða mín. Litli kroppur-
inn hans er alþakinn sárum.”
“Sárum!” sagði hún. “Sárum? Hvers-
konar sárum?”
“Ó, þau stafa kanske af höggum eða af því
að það hefir verið sparkað í hann, eða þau or-
sakast af slæmu blóði, er stafar af illri fæðu,
eða af óþrifnaði. Ætlar þú að láta mig fá hand-
klæði?”
“Nei, það geri eg ekki,” svaraði Margrét.
“Láttu mig þá fá einhverjar ihreinar tusk-
ur,” og hún fékk honum ritjur af gömlum borð-
dúk.
Sinton leiddi Bi'lly út að brunninum og
dældi vatni upp í þvottabala er þar stóð, helti
svo saman við fullum katli af heitu vatni, og
eftir að hafa þvegið drengnum um höfuðið
þvoði hann honum Öllum. Drengurinn beit á
jaxlann og sagði ekkert og kveinkaði sér ekki
heldur, þótt stundum sviði honum sárt, þegar
sápan kom í opið fleiður. Margrét horfði stöð-
ugt í gegnum gluggann á þessar aðfairir og varð
ætíð meira og meira forviða og reiðari. Hvar
hafði Wesley lært alt þetta? Hvernig gátu hin-
ar stóru hendur hans verið svona lægnár? Sin-
ton kom nú að hurðinni.
“Hefir þú nokkuirt hyperoxid?”
“Svoilítið,” svaraði hún önuglega.
“Eg Iþarf hér um bil mörk, en eg get byrjað
méð þessu, sem til er.”
Margrét fékk honum glasið. Wesley tók
bolla og blandaði vatni í meðalið og sagði Við
Billy: “Sárin sem þú hefir, drengur minn, þurfa
að læknast. Nú verður þú að borða eingöngu
þann mat, sem er við hæfi lítilla drengja. Nú
ætla eg að bera á þig þetta meðal, og þig mun
logsvíða undan því. Ef það flytur af skal eg
ékki láta meir, en ef það sýður í fleiðrinu,
þá er eitrun í sárinu, þá verður að binda um
það og setja í það nýtt meðal, og þvo það þangað
til það græ'r. Vertu nú xólegur, nú fer eg að
bera á þig.”
“Eg held að sárið á leggnum sé það versta,”
sagði Billy óskelfdur og rétti fram fótinn. Sin-
ton helti meðalinu í sárið og Billy sveið en
hörfaði hvergi.
“Sjáðu bara hvernig sýður í því,” sagði
hann. “Það er sjálfsagt eitur í því. Þú verð-
úr að gera þetta við öll sárin mín.”
Sinton klemdi vörunum saman er ihann leit
framan í denginn. Hann notaði meðalið, sem
var nægilega sterkt til að koma að tilætluðum
notum, og sárin voru meira en tylft, og síðan
batt hann um þau eins og bezt hann gat. Stund-
um titruðu varir Billys og hakan skalf, en ekki
feldihann tár'né mælti æðru orð, en hann sýndi
áhuga í hvert skifti og “sauð” í fleirðrunum.
“Er eg nú hreinn?” spurði Billy.