Heimskringla - 18.07.1945, Page 7

Heimskringla - 18.07.1945, Page 7
WINNIPEG, 18. JÚLI 1945 HEIMSKRINGLA 7. SÍÐA HÁTÍÐÞING KIRK JUFÉLAGSIN S Síðari grein Koma dr. Fry Laugardagsmorguninn hófu fundarmenn störf sín með því að taka þátt í guðræknisstund, er séra S. S. Christopherson annað- ist. Kl. 11 f. h. Tilkynti G. L. Jóhannsson ræðismaður komu forseta Hinnar Sameinuðu Lút- ersku kirkju í Ameríku, Right Rev. Franklin C. Fry, D.D. — Um sama leyti gekk inn kirkju- gólfið hár maður, þrekvaxinn. Hann leit brosandi til fólksins í kirkjunni. Þingheimur reis úr sætum. Forsetinn var kominn. -— Dr. Fry gekk upp á ræðupall- inn, þar sem dr. Sigmar ávarp- aði hann fagurlega og bauð hann hjartanlega velkominn í nafni þingsins. Síðan mælti dr. Fry nokkrum orðum til þingheims. Var það mikill fengur að fá tæki- færi til þess að hlýða á þennan mikla og mikilhæfa kirkjuleið- toga. Dr. Fry sagðist gleðjast rnjög yfir því að vera kominn til þess að taka þátt í þessu þingi, enda þótt hann, því miður, skildi ekki málið, sem talað væri. — Lét hann þó í ljós þá von, að sér myndi e. t.v. takast betur að skilja íslenzkuna en finskuna, sem hann nýlega hafði heyrt mikið talaða á þingi finsku kirkj- unnar í Ameríku! — Vakti það sérstaka athygli, hve dr. Fry flutti sitt snjalla mál tilgerðar- laust, en þó með áherzluþunga. Við og við brá yfir andlit hans snöggu brosi, er gerði bjart um allan hans boðskap. — Dr. Fry tók síðan sæti að máli sínu loknu við dynjandi lófatak fundar- manna. Kveðjur frá öðrum kirkjufél. Þá heimsóttu einnig þennan dag fulltrúar frá öðrum kirkju- deildum í Canada. Voru það þeir dr. P. G. Barker (United Church of Canada, Chairman of Mani- toba Conference) og dr. J. A. Cormie einnig frá Sameinuðu kirkjunni í Canada. Séra Krist- inn K. Ólafsson svaraði og þakk- aði kveðju þeirra. Einnig heim- sótti þingið Rev. C. C. Landon frá ensku kirkjunni. Var hann með kveðju frá erkibiskupinum af Rupertsland. Vara-forsetinn séra Valdimar J. Eylands þakk- aði kveðju hans og heillaóskir. Séra Kristinn K. Ólafsson flutti kveðju frá Illinois-synod (U.L. C.A.) og forseta þeirrar kirkju- deildar, dr. A. G. Weng. Séra Guttormur Guttormsson svaraði þeirri kveðju. Þes|si þriðji dagur þingsins endaði með hljómlistakvöldi í kirkjunni, þar sem kirkjukórar Uyrsta lúterska safnaðar sungu Undir stjórn Páls Bardal fylkis- þingmanns og organistans frk. Snjólaugar Sigurðson, sem auk þess lék undir sönginn til skiftis á bæði hljóðfæri kirkjunnar. Frú Pearl Johnson söng einsöngva aðstoðuð af kórnunum. Bar þetta hljómlistakvöld ótvíræðan vott um mikið söngstarf safnaðarins og mikinn árangur, þar sem söngurinn var með afbrigðum góður. — Dr. Fry hélt ræðu þetta kvöld og lýsti ástandinu í Evrópu og einkanlega á Norður- londum, eins og það nú er við lok Evrópustríðsins. — Var lýs- ing hans mjög átakanleg, og sagði glögt frá þeirri brýnu nauð- syn á, að kirkjudeildirnar í Ame- úku komi strax til hjálpar í end- urreisnarstarfinu þar. Sunnudagurinn Dagurinn var sannkallaður “sunnudagur”, bjartur, fagur og ekki um of iheitur. — Kl. 11 f. h. hófst guðsþjónusta og var henni útvarpað. Dr. Fry flutti þar langa og mikla prédikun. Til aðstoðar við guðslþjónustuna voru þeir séra Valdimar J. Ey- lands vara-forseti og dr. Harald- ur Sigmar forseti, er kynti dr. Fry fyrir útvarpshlustendum og kirkjugestum. — 1 messulok var tekin hópmynd af fulltrúum þingsins og kirkjufólki öllu fyrir sunnan kirkjuna. Kl. 3y2 e. h. héldu þau hjónin frú Gladys og Dr. P. H. T. Thor- láksson boð fyrir stóran hóp Is- lendinga til heiðurs forsetahjþn- unum frú Margrétu og dr. Sig- mar. — Dvöldu gestir góða stund í hinu bezta yfirlæti á þessu glæsilega heimili við rausn og höfðingskap. 100 ára minning Jóns Bjarnasoifar Séra Valdimar J. Eylands *vara-forseti stjórnaði samkom- unni um kvöldið. Það, er sér- staklega setti svip á það kvöld, var 100 ára minning Jóns Bjarna sonar og mál prófessors Ásmund- ar Guðmundssonar. Séra Valdi- mar Eylands hélt stutta ræðu í byrjun samkomunnar og gaf skýrt og gagnort yfirlit yfir sögu kirkjfélagsins og helztu starfs- menn þess. — 100 ára minning- arræðu um Jón Bjarnason flutti séra Rúnólfur Martenisson. Gat séra Valdimar þess um leið og hann kynti ræðumanninn, að ekki hefði neinn annar maður komið til greina, að flytja þá ræðu en séra Rúnólfur bæði vegna náinna tengsla og vináttu hans við séra Jón. Það kom og í ljós við ræðuflutning séra Rún- ólfs, að hann kunni glögg skil á efninu. — Gat hann þess, að sama stefna hefði ráðið í öllu lífi séra Jóns Bjarnasonar um leið og hann dró skýrt fram, hvað bjó í þeim mikla kirkjuleiðtoga. Próf. Ásmundur heiðrar dr. Sigmar Þetta kvöld flutti próf. Ás- mundur sína aðalræðu. Talaði hann þá m. a. um hin mörgu svip- mót er væru hin sömu með ís- lenzku kirkjunni heima á ís- landi og í Vesturheimi. — Líkti hann krikjunni hér vestra sem dóttur, er bæri glögg ættarein- kenni móður kirkjunnar heima. Það mun eigi hafa farið fram hjá einum einasta manni, hve ríkur hlýhugur og vinátta fölst í orð- um próf. Ásmundar. — Orð hans voru í heild hin fegursta vinar- kveðja til Vestur-lslendinga frá heimaþjóðinni á Islandi. — Við þetta tækifæri las prófessorinn upp skrautritað ávarp frá ís- lenzku þjóðkirkjunni og afhenti það forseta. Þá flutti prófessor Ásmundur einnig ræðu til for- setans séra Haraldar Sigmar, D.D. Lék þá mörgum forvitni á að vita, hvað lægi til grundvall- ar þessum sérstöku ávarpsorðum til dr. Sigmars. Það kom brátt í ljós, því að þá um leið las próf. Ásmundur upp yfirlýsingu frá Sveini Björnssyni forseta Is- lands, um að hann sæmdi dr. Sigmar riddarakrossi Fálkaorð- unnar. Kvað þá við lófaklapp mikið um kirkjuna, og lét fólkið þannig í ljós fögnuð sinn yfir hinum verðskuldaða heiðri, er dr. Sigmari var sýndur með þessari beiðursorðu hins ís- lenzka ríkis. — Þakkaði dr. Sig- mar með sínum fagra hæverska ræðumáta þessa sæmd, er sér væri sýnd og bað prófessorinn að flytja sínar beztu þakkir heim til Islands. Þá flutti séra Krist- inn K. Ólafsson kveðjuorð þetta kvöld, þar eð hann þurfti að hverfa af þingi. Var þessi heið- ursforsetti kirkjufélagsins gest- ur þess á þinginu. Mánudagurinn Guðræknisstundina annaðist séra Theódór Sigurðsson í fund arbyrjun kl. 9 f. h. Til þingsins kom þennan dag fulltrúi kirkju- félagsins í Can. Luth. Commis- sion for War Services, hr. Gissur Elíasson. Las hann fróðlega skýrslu um þing þeirrar nefnd- ar, er hann hafði nýlega setið. Var hann samhljóða kosinn til þess að hafa hinn sama starfa fyrir kirkjufél. næsta ár. ÞEGAR PÓSTURINN KEMUR TIL BURMA Svona er kátínan mikil þegar pósturinn hefir komið til Burma og hermönnunum hefir verið afhent bréf að heiman. Ungmennakvöldið Er séra Skúli Sigurgeirsson hafði flutt stutta guðsþójnustu á enskri tungu, kallaði dr. Sigmar á hr. Gunnar Eggertsson forseta Y.P.S. Fyrstu lútersku kirkjunn- ar til þess að stjórna samkom- unni. — Var fjöldi fólks bæði aí ungum og gömlum saman komið í kirkjunni þetta kvöld. — Gunn- ar Eggertsson ávarpaði samkom- una nokkrum orðum, og tilkynti hann síðan hvern liðinn af öðr- um. Er yngri söngflokkurinn hafði sungið tvö lög kom fram Eiríkur Sigmar stud. theol. og söng einsöng. Annað lagið sem hann söng var The Lords Prayer by Malotte og var það sungið af mikilli snild, enda hefir Eiríkur sérstaklega hreimfagra barytón- rödd. —• Ræður • fluttu þetta kvöld séra Harald S. Sigmar, séra Bjarni A. Bjarnason og Pét- ur Sigurgeirsson. Einnig talaði dr. Fry og var það mál margra, að í það sinn héfði hann haldið sína beztu ræðu á þinginu. Fjall- aði sú ræða hans um viðhorf hins unga til lífsins og nauðsyn þess að meta að verðleikum það, sem lífið hefði að bjóða hverjum manni. Söngurinn átti ríkan þátt í skemtiskránni þetta kvöld. Það var almennur kórsöngur, radd- aður söngur karlmanna og tví- söngur frk. Margrétar Sigmar og Alvin Blöndal. — Sýndi þessi söngur enn greinilega hið öfluga og fjöiþætta söngstarf, sem unn- ið er í þessum söfnuði. Lítil stúlka las upp þetta kvöld við hrifningu kirkjugesta. Síðar um kvöldið höfðu prests- hjónin frú Lilja og séra Valdi- mar Eylands boð inni á sínu gestrisna og fagra heimili fyrir prestana á þinginu og þeirra frúr. Nýr dagur var að renna upp um leið og gestir kvöddu. Leið nú óðum að þinglokum. Þingið lýkur störfum Seinasti dagur þingsins hófst með guðræknisstund, er séra Harald S. Sigmar stýrði. Kosnir voru emibættismenn kirkjufé- lagsins og hlutu allir aðalstarfs- menn þess endurkosningu ein- róma. Nefndarálit voru borin fram og endanlega afgreidd. Um leið og þingi átti að slíta, bað séra Valdimar J. Eylands um orðið og bar fram þá tillögu til þingsályktunar, að biskup Is- lands, dr. Sigurgeir Sigurðsson yrði, að samþykki hans fengnu, kjörinn heiðursverndari Hins ev. lút. kirkjufélags Isl. í Vestur- heimi. — Var tillagan samþykt einróma. — Prófessor Ásmund- ur og sonur biskups mæltu þá nokkur þakkarorð til þingheims fyrir þann heiður, er blskupi Is- lands væri sýndur með þessu. — Þökkuðu þeir og fyrir ógleyman- legar samverustundir og þá á- nægju að hafa getað tekið þátt í þessu hátíða þingi. Forsetinn dr. Sigmar, lauksíð- an þinginu á formlegan hátt.. Flutti hann hugnæm kveðjuorð og bað þess að blessun Guðs mætti hvíla yfir kirkjufélaginu og störfum þess á komandi tím- um. Þetta 61. ársþing kirkjufél. var í alla staði hið ánægjulegasta frá ugphafi til enda. Á Fyrsti lút- erski söfnuðurinn í Winnipeg miklar þakkir skyldar fyrir að hafa annast svo vel undirbúning þessa þings sem raun bar vitni um. Kvenfélag safnaðarins, er sá um máltíðir og kaffidrykkju í samkomusal kirkjunnar, gerði það með rausn og myndarskap. Söngkraftar kirkjunanr gerðu skemtikvöld þingsins hátíðleg og fjölbreytt að efni. Síðast en ekki sízt ber að þakka presti safnað- arins og vara-forsetanum séra Valdimar Eylands fyrir hans mikla starf og umhugsun varð- andi kirkjuþingið. Mun hann vissulega hafa átt sinn þátt í því að gera þingið ánægjulegt og minnisstætt öllum þeim er tóku þátt í þessari miklu samkomu Vestur-lslendinga. Pétur Sigurgeirsson Professional and Business — Directory —- -" OrncE Phoni Res. Phoni 94 762 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 116 MEDICAL ARTS BLDG. Office hours by appointment Dr. S. J. Jóhannesson 215 RUBY ST. Beint suður aí Banning Talsimi 30 «77 Vlðtalstími kl. 3—5 e.h. J. J. Swanson & Co. Ltd. REALTORS Rental, lnsurance and Financial Agents Simi 97 538 308 AVENUE BLDG.—Winnlpeg THE WATCH SHOP CARL K. THORLAKSON Dlamond and Wedding Rings Agent íor Bulova Waitchee Marriaoe Hcenses Issued 699 SARGENT AVE SUNNYSIDE BARBER & BEAUTY SHOP Hárskurðoi og rakara stofa. Snyrtingar salur fyrir kvenfólk. Ábyggileg og greið viðskifti. Sími 25 566 875 SARGENT Ave„ Winnipeg Clifford Oshanek, eigandi H. HALDORSON BUILDER 23 Music and Arts Building Broadway and Hargrave Phone 93 055 Winnipeg, Canada CANADIAN FISH PRODUCERS, LTD. J. H. Page, Managing Director Wholesale Distributors of Fresb and Frozen Fish 311 CHAMBERS ST. Office Phone 26 328 Res. Phone 73 917 ÁSGEIRSON’S PAINTS AND WALL PAPER 698 SARGENT AVENUE Winnipeg, Man. Telephone 34 322 Guð varðveiti drotninguna ■ Á minningarhátíð Viktoríu Englandsdrotningar árið 1897, gerði hún einn af háskólakennur- um læknaskólans að líflækni sín- um. Maðurinn var ákaflega hé- gómagjarn og langaði mjög mik- ið til þess að allir vissu sem fyrst um þessa nýju stöðu sína, svo að hann skrifar, þegar hann geng- ur inn í fyrirlestra salinn, nafn- bót sína með krít undri nafn sitt. Eftir fyrirlesturinn, þegar hann var að ganga út leit hann til hurðarinnar til að geta glatt sig við að horfa á “líflæknir drotn- ingarinnar” undir nafni sínu, en sér þá, að einhver hafði bætt neðan við ihinni alkunnu hend- ingu úr þjóðsöng Breta: “God Save the Queen” — “Guð varð-j veiti drotninguna.—Alþbl. ★ ★ * Lögregluþjónn (við mann, sem er að bora lykli í símastaur): Eg er hræddur um að það sé enginn heima þarna. Sá fulli: Það hlýtur að vera, það hlýtur að vera. Það er ljós uppi. WINDATT COAL Co. LIMITED Established 1898 307 SMITH STREET Office Phone 97 404 Yard Phone 28 745 THE BUSINESS CLINIC specialize in aiding the smaller business man to keep adequate records and prepare Income Tax Returns. ANNA LARUSSON 415 Mclntyre Blk. Ph. 92 316 THOR EGGS Specializing in FRESH EGGS 1810 W. Temple St., LOS ANGELES, CALIF. Telephone: Federal 7630 Neil Thor, Manager BORGIÐ HEIMSKRINGLU— því gleymd er goldin sknld Frá vini DR. A. Y. JOHNSON DENTIST S0I Somerset Bldg. Office 97 932 Res. 202 398 ANDREWS, ANDREWS, THORVALDSON & EGGERTSON Lögfrœðingar Bank of Nova Scotia Bldg. Portage og Garry St. Sími 98 291 DRS. H. R. and H. W. TWEED Tannlœknar 406 toront^gen. trusts Cor. Portage Ave. og Smith St. PHONE 96 952 WINNIPEG H. J. PALMASON & Co. Chartered Accountant* 1103 McARTHUR BLDG. Phone 96 010 Rovatzos Floral Shop 2S3 Notre Dame Ave., Phone 27 919 Fresh Cut Flowers Daily. Plants in Season We apeclalize in Weddlng & Concert Bouquetts & Funeral Designs Icelandic spoken A. S. BARDAL aelur iikktstur og annast um útfar- ir. Allur útbúnaður sá bestl. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarSa og legsteina. 843 SHERBROOKE ST. Phons 27 324 Winnipeg Union Loan & Investment COMPANY Rental, Insurance and Financial Agents Sími 95 061 510 Toronto General Trusts Bldg. GUNDRY-PYMORE Ltd. British Quality - Fish Netting 60 Victoria St., Winnipeg, Man. Phone 98 211 Manager: T. R. THORVALDSON Your Patronage Will Be Appreciated Halldór Sigurðsson Contractor & Builder * 594 Alverstone St., Winnipeg Simi 33 038 A. SAEDAL PAINTER & DECORATOR ★ Phone 23 276 ★ Suite 4 Monterey Apts. 45 Carlton St., Winnipeg FINKLEMAN OPTOMETRISTS and OPTICIANS KENSINGTON BLDG.. 275 Portage Ave. Winnipeg PHONE 93 942 ÍÖÓKSfÖREI Ji*i>i*tvJi 'JORNSON S 702 Sargent Ave., Winnipeg, Mam.

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.