Heimskringla - 17.10.1945, Page 4
4. SlÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 17. OKTÓBER 1945
ítrtúmskrinxilci
i ' (StofnuB lSSt)
Kemur út ó hverjum miðvikudegi.
Eigendur: THE VIKING PRESS LTD.
853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg — Talsimi 24 185
Verð blaðsins er $3.00 árgangurinn, borgist fyrirfram.
Allar borganir sendist: THE VIKING PRESS LTD.
öll viðskiftabréf blaðinu aðlútandi sendist:
The Viking Press Limited, 853 Sargent Ave., Winnipeg
Ritstjóri STEFÁN EINARSSON
Utanáskrift til ritstjórans:
EDITOR HEIMSKRINGLA, 853 Sargent Ave., Winnipeg
Advertising Manager: P. S. PÁLSSON
"Heimskringla" is published by and printed by
THE VIKING PRESS LIMITED
853-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man. — Telephone 24 185
---- ---------- " .................... ...........
WINNIPEG, 17. OKTÓBER 1945
Misklíðarefnin
Hver voru misklíðarefnin, sem fulltrúar þjóðanna á Lundúna-
fundinum gátu ekki axlað og fela' varð sérfræðingum til athug-
unar?
Þau voru að vísu mörg. En eitt lá þó að baki þeim öllum; það
var hvernig endurreisn heimsins gæti verið háttað, hvort hún
skildi gerð með sameiginlegu eftirliti eða öryggi allra þjóða, eða
með Bandaþjóðunum skiftum í tvo flokka (blocs). Spurningarnar
um hver landamæri sigruðu ríkjanna í Evrópu yrðu og hvað við
nýlendur þeirra skuli gera, áttu rætur að rekja til nefndrar skift-
ingar. Það var ekki gott að ráða fram úr þeim fyr en stórveldin
höfðu komið sér saman um hver yrði framtíðar-stjórnmálastefna
heimsins. Á hún að verða vestrænt lýðræði, með ótakmörkuðu
einstaklingsfrelsi og annmörkum auðvalds auðvitað einnig, eða á
hún að vera kommúnista-lýðræði, með valdinu komandi ofan úr
stjórnarsölunum og takmörkun einstaklingsfrelsisins?
Það er oft af vitrum mönnum sagt, er um einhver mikilvæg
atriði er að ræða, að pólitík megi ekki koma þeim nærri. Er það
nokkuð annað en bölvun sú, sem af henni leiðir, sem orsök er þess,
að upp á skerið bar á Lundúnarfundinum?
★
Hverju sem menn svara til, skal hér minst á smærri málin,
sem vegna aðal-málsins að vorri skoðun, var ekki hægt að afgreiða
á fundinum.
Friðarsamningurinn um Italíu byrjaði á því, að ákveða landa-
mærin. Varð ekki mikill árekstur um þau, nema hvað Bandaríkja-
menn vildu að borgin Trieste tilheyrði Italíu að nokkru, en væri að
öðru leyti alþjóðleg, veitti öllum Bandaþjóðunum hafnleyfi.
Rússar vildu að Júgóslavía hlyti borgina. Þetta var fyrsti ágrein-
ingurinn, en var þó stilt í hóf.
Sagan versnaði við annað ágreiningsefnið, en það var um ný-
lendur Itala og hvort stjórn þeirra og Japans ætti að vera í höndum
Bandaþjóðanna, eða einstakra þjóða. Lögðu Bandríkin til, að ný-
lendum ítalíu, Libyu og Eritrea, yrði að 10 árym veitt sjálfstjórn,
en Bandaþjóðirnar hefðu eftirlitið fram að þeim tíma. En fundin-
um til undrunar voru Rússar á móti þessu. Þeir óskuðu sjálfir að
hafa yfirráð sumra þessara nýlenda og á Miðjarðarhafinu. Það
skapaði þriðja misklíðarefnið:
Eiga tillögur San Francisoo- fundarins um að Bandaþjóðirnar
hafi fyrst um sinn yfirráð menningarsnauðra þjóða, engan rétt á
sér? Eða eiga einstakar þjóðir að brytja upp milli sín smærri
þjóðir, til þess að veita stærri þjóðum hernaðarlega betri afstöðu?
Þetta mál um yfirráð nýlenda, verður ekki jafnað fyr en aðalstefn-
an er lögð eða samþykt er eitthvað ákveðið viðvíkjandi framtíðar
stjórnarfari heimsins. En þessi árekstur Rússa og Bandaríkja-
manna um yfirráð sérstakra þjóða, í stað Bandaþjóðanna í heild,
yfir nýlendum, vakti óviðbúið upp fjórða ágreiningsefnið; en það
var um framtíð Japans.
Áður en ítölsku nýlendurnar komu til greina, höfðu Rússar
ekkert á móti því, að Bandaríkin stjórnuðu Japan í samfáði við
aðrar Bandaþjóðirnar og hefðu úrskurðarvald þar í ágreinings-
málum, er upp kynnu að koma. En þegar farið var að ræða um
nýlendur ítala, stungu Rússar alt í einu upp á því, að allar Banda-
þjóðirnar stjórnuðu í Japan, að Bandaríkin hefðu þar ekki yfir-
stjórn. Samt var þetta alveg gagnstætt því, sem Rússar fóru fram
á við umræður Miðjarðarhafsmálanna. Bandaríkin gerðu aldrei
ráð fyrir öðru en bráðabirgðarstjórn í Japan og þar sem það. mál
lá ekki fyrir á London-fundinum, kváðust Bandaríkin ekki ræða
það að sinni.
Þá eru friðarsamningar við Búlgaríu og Rúmaníu. 1 þeim
málum varð ekkert ágengt vegna þess, að Bretar og Bandaríkja-
ilienn neituðu ákveðið að skrifa undir þá, fyr en þessar þjóðir
hefðu komið á fót lýðfrjálsri stjórn, en þeim væri enn stjórnað af
Rússum. Sögðu þeir Potsdam samninginn algerlega brotinn með
þessu. En Rússar sögðu að sín stjórn þar væri lýðræðisstjórn.
En alvarlegasta misklíðarefnið á fundinum varð þó þegar
Rússar bönnuðu Frakklandi og Kína, að taka nokkum þátt í um-
ræðunum um Austur-Evrópu-málin. Bandaríkjafulltrúarnir og
Bretar sögðu óviðurkvæmilegt að útiloka þessar þjóðir, þar sem
þátttak þeirra áður hefði verið samþykt.
Út af þessum ágreiningi reis sjötta misklíðarefnið, sem er nær
því að vera grundvallaratriði, en nokkurt annað mál fundarins, en
það er útskýring á -hvað lýðræði sé. En þá fóru nú málin fyrst
fyrir alvöru að flókna. Þegar Rúmaníu og Búlgaríu málin voru
rædd af Bretum, Bandaríkjamönnum og Rússum, var ekki einungis
að á ólíkum tungum væri talað, heldur voru hugmyndirnar sjálfar
alólíkar. í augum Rússa, eru Rúmanía og Búlgaría frjálsar, þó
stjórnmálaflokkamir hafi ekki enn leitt besta sína þar saman og
engar kosningar verið. Sú skoðun Rússa kemur lýðræðisþjóðun-
um einkennilega fyrir, en er þó ljós af kosningum þeim, sem í
Rússlandi eiga að fara fram snemma á komandi ári. I þeim er
aðeins einn pólitískur flokkur liðinn-og tilnefndur af stjórninni en
með öðrum en þeim flokki er ómögulegt að greiða atkvæði. Frá
brezku og bandarísku sjónarmiði er þetta ekki í Rúmaníu eða
Búlgaríu skoðað lýðræði hvað sem það kallast í Rússlandi. Og
meðan forráðamenn heimsstjórnarinnar koma sér ekki saman um
þetta, er ekki líklegt, að samkomulag fáist í Balkan-málunum. í
Ungverjalandi er öðru máli að
gegna. Þar vottar fyrir tilraun-
um, að koma á lýðræði. Að efla
það eru Bretar og Bandaríkin á-
kveðin og Rússar einnig.
Út af þessum skoðanamun í
stjórnmálunum, sprettur ósam-
komulagið, sem varð til þess að
gera að engu þriggja vikna starf I
á London-fundinum. Og væri i
nokkur furða á því, að ýmsir
hugsuðu eða spyrðu sem svo:
Eiga eftir að rísa upp af því
tveir flokkar eða samtök (blocs)
innan forráðavaldsins í heimin-
um, er hvor vinnur á móti öðr-
um af pólitískum ástæðum, fyrst
á fundum og samkundum en síð -
ar á láði, legi og í lofti?
Síðasta misklíðarefnið var iðn-
aður Vestur-Þýzkalands. Frakk-
land fór fram á, að Rúr-héruðin
væru brytjuð utan af Þýzka-
landi og fengin einhverri eftir-
litsstjórn af hálfu Bandaþjóð-
anna í hendur. Rússar voru á
móti því, að Þýzkaland væri
frekar limað sundur en komið er,
sem nú er ekki stærra en Eng-
land og voru Bretar með því.
En á síðustu klukkustund fund-
arins hafði Stalin það á orði við
bandaríska fregnrita í Rússlandi,
“að þess gerðist í raun réttri
mikil þörf, að taka Rúrhéraðið af
Þýzkalandi.”
Þetta bar nú með sér, að Rúss-
ar, eigi síður en Bandaríkja-
menn, höfðu komið hálf illa
undirbúnir til fundarins og voru
oft efins í hvað gera skyldi. Um-
mæli Rússa í máli Japans, geta
hafa verið fljóthugsuð, og að
þeir eigi eftir að athuga það bet-
ur og breyta skoðun sinni, er
ekki ólíklegt.
Á þetta hefir hér verið bent til
þess að sýna hvað mikið starf
sérfræðingar fimm-menninga
veraldarvaldsins eiga fyrir hönd-
um og eiga úr að leysa, áður en
hinir stóru fimm koma næst
saman.
FRÉTTAPISTILL 6-10,1945
Alþingi var kvatt saman 1. okt.
og var það hið fyrsta reglulega
Alþingi eftir að lýðveldið var
stofnað. Þrír nýir þingmenn hafa
tekið sæti á þingi, Katrín Thór-
oddsen læknir, Hallgrímur Bene-
diktsson stórkaupmaður og
Björn Kristjánsson kaupfélags-
stjóri, sem varð sjálfkjörinn í
kjördæmi Gísla Guðmundssonar,
en hann sagði af sér þingmensku
vegna langvarandi veikinda. —
Forseti sameinaðs þings var kos-
inn Jón Pálmason á Akri, í stað
Gísla Sveinssonar. Þegar eftir
þingsetninguna voru þingmenn
kvaddir á lokaðan fund, en al-
menningi er ókunnugt hvað þar
gerðist. En ýmsum getum hefir
verið að því leitt, hvað þar kunni
að hafa gerst og hvert tilefnið
hafi verið, m. a. utanríkismál s. s.
afstaðan til Bandaríkjanna. En
þetta kemur í ljós á sínum tíma
•
Jón Þorleifsson listmálari opn-
aði málverkasýningu í dag. Á
henni eru 45 olíumálverk og 15
vatnslitamyndir. — Allmargar
myndir eru þegar seldar.
•
Samþykt hefir verið að leggja
nýja vatnsæð frá Gvendarbrunn-
um til Reykjavíkur og á hún að
flytja 290 lítra á sekúndu, skv.
áætlun Sigurðar Thoroddsen
verkfr. Verkinu á að vera lokið
fyrir haustið 1946.
•
Þingkosningar fara fram í
Noregi 8. október. Þrátt fyrir
að ekki tókst að sameina Verka-
mannaflokkinn og Kommúnista-
flokkinn hafa þeir sumsstaðar
haldið sameiginlega kosninga-
fundi.
Alþjóðasamband verkalýðsins
hefir nú verið stofnað í París.
Forseti þess hefir verið kosinn
Sir Walter Citrine og aðalritari
Louis Saillant. Framkvæmda-
nefnd sambandsins hvetur lýð-
ræðisþjóðirnar til að slíta stjóm-
málasambandi við Spán og Ar-
gentínu. B. G.
FRÉTTIR FRÁ ÍSLANDI
Verður Tivoliskemtistaður
stofnaður í Reykjavík?
Fyrir síðasta bæjarráðsfundi
lágu tvær umsóknir um úti-
skemtisvæði, þar sem skemtanir
yrðu hafðar með líku fyrirkomu-
lagi og í hinum fræga skemti-
stað “Tivoli” í Kaupmannahöfn.
Er önnur umsóknin frá þeim Al-
freð Andréssyni leikara, Ásberg
Sigurðssyni lögfræðing, Bjarna
Guðmundssyni blaðafulltrúa,
Lárusi Ingólfssyni leikara, Pétri
Péturssyni útvarpsþul, Steingr.
Jóhannessyni veitingaþjóni og
Vol Gíslasyni leikara. Hin um-
sóknin er frá Sigurgeir Sigur-
jónssyni hæstaréttarlögmanni.
Umsóknum þessum vísaði
bæjarráð til skipulagsmanna
bæjarins og skipulagsnefndar til
umsagnar.
í gær sneri Alþýðublaðið sér
til beggja þessara aðila, og spurði
þá um hugmyndir þeirra í sam-
abndi við hinn fyrirhugaða
skemtistað.
Samkvæmt upplýsingum sem
blaðið fékk frá fyrnefndum að-
ilum, er hugmynd þeirra sú, að
koma upp með tímanum hentug-
um skemti- og hvíldargarði, þar
sem fólk á öllum aldri geti leit-
að sér hvíldar og hressingar við
vægum inngangseyri.
Þeir félagar hafa um langan
tíma unnið að undirbúningi
þessa máls og kynt sér starf-
rækslu svipaðra garða erlendis
eftir beztu föngum með öflun
upplýsinga, fyrirkomulagsteikn-
inga og hugmynda um skemti-
atriði. Hafa þeir myndað þennan
félagsskap í því skyni að geta
hver um sig unnið sem mest að
framkvæmdum, án þess að verða
um of upp á aðra komnir um að-
stoð, enda hafa þeir allir nokkra
reynslu, hver á 'sínu sviði. Þeir
hafa einnig gert gangskör að því
að tryggja sér aðstoð færra sér-
fræðinga og afla þeirra áhalda,
sem inn þarf að flytja, en þeim
telst þó til, að meginhluti verks-
ins verði af íslenzkum höndum
unninn, enda verður að miða all-
ar framkvæmdir fyrst og fremst
við íslenzka staðhdætti.
Eins og áður er sagt sneri blað-
ið sér einnig til Sigurgeirs Sig-
urjónssonar, og spurði hann um
fyrirætlanir hans, en hann er
nýkominn heim frá Englandi,
þar sem hann hefir kynt sér
rekstur slíkra skemtistaða, og
gert samninga um útvegun nauð-
synlegra tækja og útbúnaðar í
þessu skyni. Dvaldi hann meðal
annars um tíma í Blackpool, sem
er talinn einn fullkomnasti
skemtistaður í Englandi, og einn-
ig heimsótti hann fleiri sílka
staði og átti viðtal við forstöðu-
menn þeirra.
Hefir hann nú gert samning
um kaup á nýjum fullkomnum
tækjum svo sem hringekjum,
rafmagnsbílum og fleiri hlutum
til slíkrar stofnunar og fengið út-
flutningsleyfi fyrir þeim. Telur
hann þau mjög fljótsett upp hér,
þegar búið er að ganga frá skipu-
lagsuppdrætti að skemtisvæðinu.
Yfirleitt kvaðst Sigurgeir
hugsa sér stað þennan þannig,
að hann væri jafnt fyrir börn og
fullorðna, og kappkosta að hafa
sem mesta fjölbreytni í rekstri
hans.
Fyrirtæki það sem Sigurgeir
samdi við um smíði tækjanna,
hefir boðið honum, að senda sér-
fróðan mann hingað með þeim
til að setja þau upp og leiðbeina
um starfrækslu þeirra, og telur
hann að unt verði að taka skemti-
staðinn í notkun á næsta vori, ef
bærinn afgreiðir málið af sinni
hálfu og úthlutar lóð fyrir svæð-
ið á næstunni.
Hugmyndin um útiskemtistað
í Reykjavík mun áreiðanlega
vera vinsæl meðal bæjarbúa. —
Komist hún í framkvæmd, er
bætt úr brýnni þörf, því að við
höfum til þessa að miklu leyti
farið varhluta af skemtunum
þeim, sem hér er gert ráð fyrir.
Sannleikurinn er sá, eins og
allir vita, að hér er ekki um auð-;
ugan garð að gresja, hvað skemt- ^
analíf og dægradvöl snertir. Við
höfum kvikmyndahúsin, ein- j
staka kaffihús til þess að gera
okkur daga mun, svo og leikhús.
En hitt hefir lengi vantað,
skemtistað, með öllu því, sem
honum tilheyrir, þar sem full-
orðið fólk, unglingar og börn
geta eytt tómstundum sínum,
með skemtilegra hætti en tíðkast |
hefir til þessa hér í bænum.
—Alþbl. 23. sept.
★ » ★
Séra Friðrik Hallgrímsson
fær lausn
Kirkjumálaráðuneytið hefir
nýlega veitt séra Friðrik Hall-j
grímssyni dómprófasti og presti
við Dómkirkjuna í Reykjavík
lausn frá embætti, samkvæmt
ósk hans, frá 1. des. þessa árs að
telja. Jafnframt hefir svo biskup
auglýst embætti hans við Dóm-
kirkjuna laust til umsóknar með
umsóknarfresti til 20. okt. næst-
komandi.—Tíminn, 7. sept.
★ * . ★
Þorvaldur Árnason fer utan
til að kynnast nýungum
í ullariðnaði
Nýbyggingarráð hefir í sam-
ráði við lanbúnaðarráðherra
fengið herra yfirullarmatsmann
Þorvald Árnason til þess að fara
til Bretlands til þess að kynna
sér nýungar á sviði ullariðn-
aðarins, leita eftir hentugum vél-
um til nýtízku ullariðnaðar bæði
fyrir innlendan og erlendan
markað, og athuga möguleika á
námi fyrir unga menn við þenn-
an iðnað. Fór Þorvaldur héðan
flugleiðis föstudaginn 14. sept.
til Bretlands í framangreindu
skyni.—Þjóðv. 15. sept.
★ ★ ★
Inneignir bankanna
erlendis 572 milj. kr.
Samkv. nýútkomnum Hagtíð-
indum námu inneignir bankanna
erlendis í lok júlímánaðar 572
milj. 815 þús. kr. og höfðu mink-
að í mánuðina um 7.7 milj. kr.
Innlög í bankana námu á sama
tíma 627 milj. kr. og höfðu mink-
að í mánuðinum um 1.5 milj. kr.
Útlán námu 268 milj. kr. og
höfðu aukist í mánuðinum um
4.4 milj. kr.
Seðlar í umferð í júlímánuði
námu 167.5 milj. kr. og hafði
seðlaveltan aukist í mánuðinum
um 515 þús. kr.—Þjóðv. 15. sept.
★ ★ ★
Kristján Mikaelsson,
Eyrarlandsveg 20 hér í bæ, er
nýkominn heim frá Ameríku,
þar sem hann hefir stundað flug-
nám að undanförnu. Er hann nú
ráðinn flugmaður hjá Flugfélagi
Islands h.f. — Þá er og nýkom-
inn heim úr Amerikuför Ólafur
Benediktsson, áður bókhaldari
hjá Bifreiðastöð Akureyrar. —
Stundaði hann nám í verzlunar-
skóla vestan hafs um eins árs
skeið, en vann síðan um tíma hjá
Sambandi vefnaðarvöruinnflytj-
enda.—Dagur, 16. ágúst.
★ ★ ★
42 ísl. stúlkur komnra
til New York
42 íslenzkar stúlkur, sem gift-
ar eru bandarískum hermönnum,
komu til New York í gær.
Útvarpsstöð bandaríska út-
varpsins í Evrópu skýrði frá
þessu í gærkvöld og bætti við, að
flestar þeirra myndu vera með
börn með sér og hefðu allar í
hyggju að setjast að í Bandaríkj-
unum.—Þjóðv. 29. ág.
* ★ *
Þriggja metra tunglfiskur
veiddur í Vopnafjarðarflóa
Skipið “Bjarnarey” veiddi í
gær 1 tunglfisk á Vopnafjarðar-
flóa með því að skutla hann.
Tunglfiskur þessi var 3. m. á
lengd og 280 kgr. að þyngd.
—Þjóðv. 29. ág.
★ ★ ★
Nýja símaskráin komin út
Nýja símaskráin er komin út
og verður byrjað að bera hana
til símanotenda bráðlega.
Aldrei hefir upplag símaskrá-
arinnar verið jafn mikið og nú,
enda um 440 nýir símanotendur
bætzt við í Reykjavík einni, fyr-
ir utan aðra staði á landinu.
1 gær fékk Alþýðublaðið eftir-
farandi upplýsingar hjá Ólafi
Kvaran ritsímastjóra, en hann
hefir verið ritstjóri þessarar
nýju símaskrár.
í Reykjavík eru nú 5500 síma-
númer í notkun. Gert er ráð fyr-
ir að unt verði að fjölga um 500
notendum snemma á næsta ári
og 1000 notendum að auki síðar
á árinu.
1 Reykjavík einni eru skráðir .
um 440 nýir símanotendur í þess-
ari símaskrá, en viðbætir við
skrána verður gefinn út fyrir
næstu áramót.
í símaskránni er skrá um 450
landsímastöðvar með um 3400
símanotendur, þar af á annað
þúsund notendur á sveitabæjum.
Þá hafa um 440 íslenzk skip tal-
stöðvar.—Alþbl. 24. sept.
★ ★ ★
Fáum við smjör frá Danmörku?
Heyrst hefir, að ríkisstjórnin
hafi gert ráðstafanir til þess að
rannsakaðir verði mörguleikar á
því að fá keypt smjör frá Dan-
mörku. Danir framleiða geysi-
lega mikið af smjöri, en vel má
vera að þehrhafi þegar ráðstaf-
að mest allri framleiðslu sinni.
1 Danmörk er smjör ákaflega
ódýrt á okkar mælikvarða. Þar
kostar það í búðum kr. 5.50 (ísl.
kr.), hvað svo sem hægt væri að
láta það kosta mikið hingað
komið.—Alþbl. 23. sept.
★ ★ *
Dani flytur erindi um Island
í útvarp í Bandaríkjunum
Hinn 23. ágúst flutti hr. C. H.
W. Hasselriis, forstjóri dönsku
upplýsingastarfseminnar í New
York útvarpserindi um ísland í
Bandaríkjunum. Erindið var
mjög vinsamlegt og rétt með
staðreyndir farið. Það er liður í
eirindaflokknum “Scandinavian
Highlights”, sem Hasselriis flyt-
ur tvisvar í viku í útvarp var
vestra.—Alþbl. 24. sept.
★ ★ *
Smjörkíló í dagslaun
Nú er búið að hækka mjölkina
í 1.82 lítrann, 1.90 á flöskum.
Mjólkurreikningurinn er orðinn
ískyggilega hár á barnmörgum
heimilum.
Smjörkílóið kostar 26 krónur
í heildsölu. Það er æfintýralegt
verð. Hámarkslaun verksmiðju-
kvenna eru kr. 795.50 á mánuði.
Séu reiknaðir 25 vinnudagar í
mán. verða það kr. 31.82 á dag.
Það lætur því nærri að verk-
smiðjukonan sé heilan dag að
vinna fyrir 1 kg. af smjöri.
—Þjóðv. 19. sept.
★ ★ ★
102 stúdentar innritaðir
í háskólann í vetur
Samtals 102 stúdentar hafa
látið innrita sig í háskólann í
vetur. Vekur það athygli, að
enginn hefir látið innrita sig í
guðfræðideildina, og er það í
fyrsta skifti í sögu háskólans.
Stúdentarnir skiftast þannig í
deildirnar: 29 í læknadeild, 20 í
lögfræðideild, 26 í heimspeki-
deild, 24 í verkfræðideild og 3 í
viðskiftadeild. Þessar tölur geta
átt eftir að breytast, því ein-
hverjir af þeim stúdentum, sem
nám stunda við háskólann í vet-
ur, munu eiga eftir að ljúka
prófi.
Samtals 108 stúdentar voru
innritaðir í háskólann í fyrra-
vetur.—Þjóðv. 20. sept.
★ ★ *
Dönsk guðsþjónusta í Dómkirkj-
unni á afmæli Danakonungs
1 tilefni af 75 ára afmæli Dana-
konungs 26. sept., verður dönsk
guðsþjónusta í Dómkirkjunni
þann dag, og hefst hún kl. 11 f.h.
George L. Höst, sendiherra
Dana hér, og frú hans taka á
móti gestum á afmælisdegi kon-
ungs, í sendiherrabústaðnum,
milli kl. 3 og 5.
Danir og vinilr Danmerkur
eru velkomnir.—Þjóðv. 20. sept.