Heimskringla - 01.05.1946, Side 1
vVe recommend for
your approval our
"BUTTER-NUT
LO AF "
CANADA BREAD CO. LTD.
Winnipeg Phone 37 144
Frank Hannibal, Mgr.
+’ ■ ■■—-—~ -—- - --- - • ■ i
We recommend for
your approval our
" BUTTER-NUT
LOAF"
CANADA BREAD CO. LTD.
Winnipeg Phone 37 144
Frank Hannibal, Mgr
---------------— - •»
LX. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 1. MAI 1946
NÚMER 31.
FRÉTTAYFIRLIT OG UMSAGNIR
Bandaríkjunum ekki veittar
herstöðvar á islandi
Mánudaginn 29. apríl fluttu
dagblöð þessa bæjar frekari
fregnir af málinu um bandarísk-
ar herstöðvar á Islandi.
Er í þeirri frétt alveg tekið af
skarið um það; Bandaríkin fá
ekki herstöðvar leigðar.
Ólafur Thors, forsætisráð-
herra, hefir lýst því yfir, að ’
beiðni þeirra s. 1. október um
þær, gæti ekki verið veitt.
Ástæður Bandaríkjanna fyrir
beiðninni áhræra eingöngu her-
vernd þeirra og Norður Ameríku
á Atlantshafinu.
Bandaríkin hafa nú slíkar
stöðva á fjölda af eyjum með-
fram ströndum Ameríku alla
leið suður til Argentínu.
Eyjar þessar væru allar hættu-
legar, ef óvinaher næði í þær.
Slíkar stöðvar eru á Ný-
fundnalandi, Bermuda, Baham-
as, Jamaica, Antigua, St. Lucie,
Trinidad og brezku Guiana; eiga
Bandaríkin engar af þessum eyj-
um.
Við Canada hafa Bandaríkin
sameiginlegar hervamir víða í
þessu landi.
Á stríðsárunum höfðu Banda-
ríkin herstöðvar í Suður-Ame-
ríku á nokkrum stöðum; hafa
þau nú flutt burtu af þeim.
Her hafa Bandaríkin ekki í
Canada. En þau eru með í öllu
landvarnarstarfi landsins. —
Stjórnar því sameiginleg nefnd
beggja landanna.
Fréttinni fylgir, að Bandarík-
in hefðu boðið íslandi að fylgja
því að málum, hvenær sem það
æskti að ganga í Alþjóðafélagið.
Bandaríkin skilja ástæður Is-
lands fyrir þessu og það skerðir
ekki hið minsta vináttu þessara
þjóða.
Fiiðarfundurinn
Það var látið sæmilega vel af
samkomulagi utanríkisráðherra
stóm þjóðanna fjögra á friðar-
fundinum í París í fyrstu eða til
að byrja með. Ráðherrarnir byrj-
uðu fyrir helgina að gera upp
sakir Italíu. Þó grið góð héldust,
kom brátt í ljós, að menn skifti
þar mikið á í skoðunum.
Rússar líta svo á, að ítalir
ættu, auk þess að bæta á einn
eða annan hátt fyrir skemdar-
verk sín, að greiða $300,000,000
í skaðabætur. Einn þriðji af
þeim átti að ganga til Rússa, en
afganginum að vera skift milli
Júgóslavíu, Albaníu og Grikk-
lands.
En þá kom hljóð úr horni frá
Frökkum, sem þóttust vel komn-
ir að munnbita líka af þessu fé,
þar sem Italir réðust fyrst á þá.
Skoðun Breta og Bandaríkj-
anna er sú, að ef til slíkra skaða-
bóta komi, eigi fleiri til hlutar
að telja, en þrjár eða fjórar þjóð-
ir. En þeir vöruðu strax við því,
að þær yrðu ekki greiddar með
vörum sem Italíu væru sendar
frá UNRRA á kostnað Bretlands
og Bandaríkjanna. ítalir yrðu
sjálfir að taka þær af eigin fram
leiðslu sinni.
iltalía þarf sem stendur $500,-
000,000 lán til þess að geta dregið
fram lífið og til þess að verða
ekki eilíflega ósjálfbjarga, eins
og Þjóðverjar. Ef þeir gætu auk-
ið framleiðslu sína til að greiða
þetta, væri það gott og blessað,
en af hjálp veittri þeim, yrðu
engar skaðabætur goldnar.
Nýlendur Italíu eiga Bretar og
Rússar eflaust eftir að bítast um.
Þar koma yfirráðin á Miðjarðar-
hafniu fyrst fyrir alvöru til
greina.
Næsta atriðið var Austurríki.
En þá lenti nú Frökkum og Rúss-
um saman. Það var út af Rúr-
héruðunum. Rússar vilja þau
ekki í höndum alþjóðanefndar,
eins og Frakkar fóru fram á og
Bandaríkin voru ekki á móti.
Frakkar sjá sér ekki fært að ná
sjálfir í Rúr eða Rínar héruðin,
en vilja það næst bezta, að þau
séu undir eftirliti Alþjóðafélags-
ins, en ekki Þjóðverja. Banda-
ríkin vilja veita Austurríki sjálf-
stæði. En málinu er ekki lokið.
Rússar þurftu að afla sér frekari
upplýsinga.
Frakkar áttu ekki sæti á þess-
um fundi, en var veitt það af náð
og málfrelsi, en atkvæðisrétt
ekki nema í máli Italíu.
Þetta er þriðji fundurinn, sem
haldinn hefir verið til að semja
frið. Tveir hinir fyrri hafa mis-
hepnast. Löndin, sem aðallega
koma til mála, eru Italía, Aust-
urríki, Ungverjaland, Búlgaría,
Rúmanía og Finnland. Vestur
þjóðirnar vilja, að þessum þjóð-
um sé sjálfstæði veitt í friðar-
skilmálum þeirra og eru á móti
ofmiklum afskiftum annara
þjóða af þeim. Rússinn er á
annari skoðun — og vill að sinna
áhrifa gæti í Rúmaníu, Búlgaríu
og Ungverjalandi.
En þrátt fyrir alt er búist við
að af því verði nú loks, að skrifa
f riðarsamninginn.
i
Tapar kennurum
Manitoba-háskóli tapar fimm
góðum kennurum í lok skóla-
ársins.
Ástæðan er að þeim býðsí
hærra kaup við bandaríska há-
skóla.
Dr. A. W. Trueman, forseti
Manitoba-háskóla segif ekki
hægt að sporna við þessu; þeim
bjóðist syðra alt að því helmingi
hærra kaup en hér; háskóla
þessa fylkis sé ofvaxið við það
að keppa.
Tveir af kennurunum fara að
vísu til canadisks háskóla. En
einnig þar séu laun hærri.
Að hækka svo kenslulaun, að
ekki séu lakari en við aðra skóla
í Canada, telur Trueman forseti
óumflýjanlegt.
Þeir sem burtu halda eru þess-
ir:
Próf. Roy Daniells, yfirkenn-
ari ensku deildar háskólans. —
Hann fer til Vancouver, er út-
skrifaður frá B. C. háskóla.
Próf. Milton S. Osborne, yfir-
kennari Architecture deildarinn-
ar. Hann tekur við sömu stöðu
við Pennsyjvania ríkisháskólann.
Próf. H. J. Brodie, kennari í
grasafræðisdeildinni, fer til Indi-
ana-háskóla.
Próf. Georg Brodersen, úr
enskudeildinni, fer til Vancou-
ver.
Og próf. George Ford, úr ofan-
nefndri deild, fer til Cincinnati.
Er verið að leita kennara í stað
þessara, en ráðinn hefir enginn
enn verið.
Winnipeg-flokkurinn sigrar
1 hockey-leik, sem háður var
nýlega í Maple Leaf Gardens í
Toronto, og Monarch leikflokk-
urinn frá Winnipeg tók þátt í á
móti St. Michael’s College
flokknum í Toronto, vann Win-
nipeg flokkurinn sigur, 4 vinn-
inga á móti 2 vinningum Tor-
onto-flokksins.
Arinbjörn S. Bardai 80 ára, 22. apríl 1946
Nú berst eg þá austur í Bárðardal
um bólstra og vindarann,
þar fæddist áður í fjallasal
eitt fagurt barn — þetta sveinaval
eg yrki um þann afreksmann.
1 Ódáðahrauni — það almenn var trú,
í æsku eg heyrði um það,
að útlagahöfðingi átti þar bú
með ættgöfgri stórlyndri hefðarfrú
en þjóðsögnin braut þarna blað.
En þaðan kom Bangsi þrevetur, knár
— hann þræddi með fljótinu leið —
með sívala arma og síðvaxið hár
og sólbrenda vanga og glitrandi brár,
hann glófextum gæðingi reið.
Og þarna í koti hjá kerlingu var,
og karli, að hann barnsskónum sleit
og krafta fókk hann í kögla þar
í hverjum leik hann af sveinum bar
er búfénu hélt hann á beit
Hann horfði á glitið við Goðafoss
og gufuna sem hann skóp.
hann hélt að hann geymdi enn gull og hnoss
og guðaleifar og skessu-koss
hann hugfanginn þangað hljóp.
Hann bjóst til að kafa — hinn freyðandi föll
en fossgígur hrópaði byrst—
hún sagði útdauð hin öldnu tröll
og ekkert gull þar í klettahöll
hann skyldi því fara sem fyrst.
Hann sorgbitinn ráfaði vestur veg
og varpaði á herðar sér mal,
menn urðu hans varir í Winnipeg
— við vitum það bæði þú og eg
það kemur sem koma skal.
Að segja frá öllum hans afrekum hér
það er ekki nokkur leið,
en áttræðan höfðingja sérhver sér
og sómamann hvar sem litið er
á litauðugt lífsins skeið.
Hann leikur sér enn sem lamb við stekk
og löng virtist framundan braut.
Forlögin beri ’hann í silki sekk
og að síðustu leggi hinn mæta rekk
í indæla íslenzka laut.
EFTIRMALI
Á Arinbirni er aldrei fát
þótt ótal geysi vargar,
ef hann verður alveg mát
ei mun gott til bjargar.
Varaskeifan ágæt er
ef einhver kemst í vanda
og segir: “herrann hjálpi mér
hvar á eg að standa.”
Þegar uppgefst lækna lið
og lífs er þrotið gaman,
tekur Bangsi bara við
og bjargar öllu saman.
I. Gíslason
ENDURKOSIN FORSETI
Mrs. B. Violet Isfeld
Mrs. Eric A. Isfeld var endur-
kosin forseti þess félagsskapar
er nefndur er “Registered Musie
Teachers’ Association”, 23. apríl
s. 1., á ársfundi félagsins er hald-
inn var í Hudson’s Bay bygging-
unni þann dag. Við það tækifæri
talaði Dr. P. H. T. Thorlakson
um heilsufræði og nauðsyn mið-
stöðvar-læknastofu. Dr. Thor-
lakson er, sem kunnugt er, for-
seti Manitoba Medical Centre
stofnunarinnar. Þetta er í annað
sinni sem Mrs. Isfeld hlotnast
sá heiður að verða kjörin foringi
félags síns.
FJÆR OG NÆR
Dr. Richard Beck
Þetta var úrslita leikur, en
fjórum sinnum var alls leikið.
Yfir alla flokka sem keptu, hafa
Monarch 4 vinningu á móti 3
annara flokka.
Þetta voru alt yngri flokkar.
En eftir þennan sigur eru Mon-
archs sigurvegarar Canada í
þeim flokki. 1
Þegar þeir koma heim, ætla
bæði fylkisstjórn og bæjarstjórn
að taka á móti þeim.
Bandaríkin búast við
að ráðast á Rússa
Ralph Ingersoll, ritstjóri PM,
hélt fram í blaði sínu í gær, að
Bandaríkin væru að búa sig und-
ir að herja á Rússland.
Máli sínu til sönnunar sagði
hann þau hafa komið upp atóm-
sprengjubúrum í Evrópu svo
nærri Rússlandi, að auðvelt væri
að hefja slíka árás í hasti og
kasta sprengjum yfir rússneskar
borgir, sem væru mörgum sinn-
um kröftugri en Hiroshima
sprengjan.
Mr. Ingersoll var í stríðinu,
en hið góða blað hans tapaði
kaupendum meðan hann var
burtu. Síðan hann kom heim
hefir mörg grein sem þessi birst
í PM og farast blöðum svo orð
um þær, sem skrifaðar séu til að
afla blaðinu kaupenda.
Dr. Beck heiðraður
Samkvæmt frétt í “The North
Dakota Student”, vikublaði rík-
isháskólans í Norður-Dakota,
hefir dr. Richard Beck, prófessor
við háskólann í Norðurlandamál-
um og bókmentum, verið kosinn
heiðursfélagi í skáldafélaginu
“The Midwest Federation of
Chapparral Poets”. Er honum sá
sómi sýndur fyrir bókmenta-
störf hans. En hann hefir, eins
og kunnugt er, bæði annast út-
gáfu enskra þýðinga af íslenzk-
um ljóðum og sjálfur gefið út
kvæðasöfn bæði á íslenzku og
ensku. Mörg kvæði eftir hann
hafa einnig komið í tímaritum
og ljóðasöfnum í Bandaríkjun-
um.
“ÞESS SKAL GETIÐ
SEM VEL ER GERT”
Herra ritstjóri:
Eg er svo fullur, af þakklæti,
að mig langar til að senda ein-
hvern svolítinn part af því til
þeirra mörgu sem hafa glatt mig
á þessum tímamótum æfi minn-
ar. Þá fyrst til Jón J. Bíldfells,
fyrir hans góðviljuðu grein sem
hann skrifaði um mig í blaðið
Lögberg, og fögru kvæðin frá
lækninum S. J. Jóhannessyni og
Ingólfi Gíslasyni, og skeyti frá
þeim hjónum og Thors hjónun-
um í Washington, D. C. Annað
skeyti frá Ólöfu og syni hennar.
(Hún er ekkja Péturs Halldórs-
sonar fyrrum borgarstjóra og al-
þingismanns.), Reykjavík. Þriðja
frá dr. og frú R. Beck, og mörg
önnur skeyti og bréf, lukkuóskir
ógleymanlegar. Eins er eg í
þaklætisskuld við systkini mín í
stúkunni Skuld, sem héldu mér
mjög veglegt samsæti, og þar
sem var afhend mér mjög kær
gjöf, “Dr. Jóns Bjarnasonar rit
og ræður”. Fyrsta bóikin úr
pressunni í skrautbandi. Það er
erfitt að taka á móti öllum þess-
um gleðiatlotum, þegar maður
finnur til þess að maður hefir
ekki fyllilega unnið til þess. En
maður verður að bera sig vel, og
, ^ Sumarmálasamkoman í Sam-
latast Mgaþaðaltskihð.þomað- bandskirkjunni á sumardaginn
ur hefði oskað að hafa unmð til fyrsta var vel sótt sérl á_.
þess. En þe,rsemtalaogskrifalægjuleg Ræðumar og kvæði„t
yerðaaðberaabyrgðaþvi,eneg sem þar voru flut( vonar Hkr
V’ ! U' * , r. . að birta síðar. Alt fór þar fram
Eg legg her með kvmðið fra á Islcn2ku var það eins með
Dr I Gisiason, og tek trausta- ræðu Lt .Co]. Elnara Arnasonar
taki a þvi að gera það opmbert. 'þó hér sé fæddur
og mentun
Eg held eg verði sjalfur að sína hafi alla fengið í þessu landi.
bera þessar lmur til þin, og sýna j«Þett.f var íslenzk og ánægjuieg
þer um leið sumar gjafirnar, samkoma/> eru orðin
hvað þær hafa verið skynsam- þeirraj er viðstaddir
lega valdar. Stássskyrta frá yng-
stu dótturinni, Agnes; silki háls-
bróður míns, Thórunn, Calfi.,
band frá yngstu dóttur Páls (sál.)
U. S. A.; göngustaf frá Njáli, 1“''*“““ ““
rr-a eirmm,«tii__o i,__; kaupmaður Matthiasson fra
frú hans, Matt-
hildur Kvaran. Þau komu til
a vorum
voru.
★ ★ *
Gestir frá íslandi
1 Winnipeg hafa verið stödd
nokkra daga hr. Magnús stór-
fingra skinnvetlinga frá kon- „ , . .
unni, skrautprjónaða sokka frá 6y jaV1 °g
Bandaríkjanna í desember-mán ■
uði og hafa verið hér vestra síð-
korvu Arinbjörns sonar míns,
vasaklúta frá Ingu systir, |
“Reeves Oil Colours” frá Signý, ,
okkar, svo eg geti málað myndir .an ~ 1 New York’ Washmgton
og vestur a strond.
★ * *
Vinsamleg tilmæli til velunnara
Sumarheimilisins á Hnausum
Það hefir verið ákveðið að
stækka heimilið að mun nú í vor.
af öllum gjöfunum, og söngplötu
frá Ásdís systir á Betel, “Faðir-
vorið”, það set eg á vélina áður
en eg segi góða nótt, og eg vona j
að hún endist þar til að eg heyri!
ekki til hennar lengur. Þér mun i
, i , , , Þar af leiðandi þarf að bæta við
þykja þetta nogu langt, þo eg , . * _ .
rumum og rumfotum og fleiru.
Þess vegna vill stjórnarnefnd-
in mælast til, að þeir góðu land-
ar sem að kynnu að eiga “single
beds” eða aðra nothæfa hluti,
rúmfatnað og fleira, sem að þeir
ekki sjálfir þurfa að nota, vilji
gefa þá heimilinu. Þeir sem að
góðfúslega vilja sinna þessu snúi
sér til Mrs. P. S. Pálsson, 796
Banning St., Winnipeg, Man.
★ ★ *
Gefin saman í hjónaband af
séra Sigurði Ólafssyni að 171
telji ekki upp meir. Eg bið gef-
endur fyrirgefningar á því.
Fullur af þakklæti (en ekki
áfengi). A. S. Bardal,
80 ára ungur.
ÚR ÖLLUM ÁTTUM
E. H. Macklin, fyrrum forseti
og ráðsmaður blaðsins Winnipeg
Free Press, dó í gær í þessum
bæ, 83 ára gamall.
1 Bandaríkjunum er búist við Canora St., Winnipeg, þann 26.
ekki rigni apríl, Wilfred Leo Johnson frá
Selkirk og Laura Agnes Atkin-
uppskerubresti, ef
mjög bráðlega.
son, 171 Canora St., Winnipeg.
Sinueldur hefir breiðst út yfir Svaramenn voru Alfred Bridges,
8 fermílur af landi út við Delta, °§ Miss Yeo’
norður af Portage La Prairie. ;WinniPeS- Um 60 manns satu
veglega veizlu að heimili bruð-
arinnar, að giftingu afstaðinni.
* * *
Stúkan Skuld heldur fund á
ivenjulegum stað á þriðjudags-
Jón Sigurðson félag heldur kveldið 7. maí. Kosning embætt-
fund fimtudagskvöld, 2. maí í ismanna fyrir næsta ársfjórðung,
Board Room 3, Free Press Bldg. fjölmennið.
Þar hafa brunnið 8 kofar, er
skyttur búa í, er þeir eru á fugla-
veiðum þarna.