Heimskringla - 10.07.1946, Blaðsíða 1
we tecommend lor
your approval our
"BUTTER-NUT
LOAF "
CANADA BREAD CO. LTD.
Winnipeg Phone 37 144
Frank Hannibal, Mgr.
LX. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 10. JÚLl 1946
NÚMER41.
FRETTAYFIRLIT 0G UMSAGNIR
Lögð af stað
áleiðis til fslands
Mánudaginn 8. þ. m. lögðu þau
hjónin, Grettir Leó Jóhannsson
konsúll og frú hans upp í ferða-
lag sitt til Islands, en þau eru,
eins og kunnugt er, ein af þeim
Vestur-íslendingum, sem Þjóð-
ræknisfélagið á Islandi og ríkis-
stjórnin bauð heim á síðastliðn-
um vetri. Grettir konsúll hygst
að dvelja í Wa^hington í fáeina
daga, og mæta síðan samferða-
fólkinu í New York, ritstjórum
blaðanna “Heimskringlu” og
“Lögbergs”, ásamt frúm þeirra,
og einnig Mr. Hjálmari Gísla-
syni, og leggur alt þetta ferða-
fólk upp flugleiðis frá New York
20. þ. m.
Hugheilar árnaðaróskir fylgja
Gretti og frú hans — sem og öll-
um þessum hóp. — Megi það alt
njóta yndislegrar náttúrufegurð-
ar ættlandsins, og ástríkis og
ljúfmensku íbúa þess í sem fylst-
um mæli. Góða ferð! R. St.
Sá “almáttugi” fallinn
Verið róleg. Það er átt við
Bandaríkja dollarinn, þetta
skurðgoð, sem hér er dýrkað öllu
meira. Hann er nú orðinn jafn
Canada-dollarnum, sem ólíkleg
spá hefði þótt fyrir nokkru. En
þetta er afleiðing afnáms ákvæð-
isverðsins í Bandaríkjunum, ekki
hin versta fyrir Canada, þó það
verði ekki um þær allar sagt.
Stjórn Canada hefir stigið
þrjú veigamikil spor til að halda
hlutunum hér í skefjum og koma
í veg' fyrir verðhækkun. Það
fyrsta er að gengi Canada doll-
arsins sé jafnt Bandaríkjadoll-
arnum, að allar innfluttar vörur
•
séu verðlagðar til kaupenda hér,
sem áður, að viðbættri nokkurri
álagningu að viðbót frá Canada-
stjórn, eftir því hver varan er,
og í þriðja lagi, að stjórnin greiði
mikið til verðhallann sem á sölu
verðinu hér og í Bandaríkjunum
er. Þetta áhrærir nauðsynjavör-
ur mestu, svo sem þeirra, er til
lífsframfærslu heyra.
Mr. Ilsley bætti við, að svo
sé til ætlast, að engin sú vara af
þessu tæi, sem ákveðisverð er á,
breytist hér við afnám ákvaeðis-
verðsins syðra. Má þetta heita
vel fyrir séð.
Brezka pundið lækkar hér úr
$4.45 í $4.04.
Mr. Ilsley segir að sá rugling-
ur sem komi á verðlag syðra,
geti orðið hættulegur, en alt
Landstjóra-hjón Canada
heimsækja Winnipeg
Það teljast ekki aðeins tíðindi
og tilbreyting í erfiði og um-
svifum hversdagslífsins, heldur
almenn gleðifregn, og hátíðleg
tilbreyting og fágæt, að hin tig-
inbornu landstjóra-hjón Alex-
um það geri stjórn þessa lands I ander greifi og frú hans skuli
ráð fyrir að geta bægt þeirri vofu ’ heimsækja Winnipeg, þar sem
héðan að miklu leyti; afdráttar-íþúsundir manna, nýleystir frá
láusar tilraunir skuli verða í þá
átt gerðar, hvernig sem fari.
Verðlag á búnaðaráhöldum er
ætlast til að verði það sama og
bændur fyrir það hafi ekki á-
herþjónustu eiga heima, og sem
fyrir svo tiltölulega stuttum
tíma börðust hraustlega, og unnu
fræga sigra undir ágætri og mik-
ið rómaðri stjórn þessa víðfræga
stæðu til að hækka afurðir sínar yfrihershöfðingja.
í verði. j Hið heppilega val þessa ágæta
Samfara þessum traustu tök- j manns í landstjóra stöðuna, hef-
um stjórnarninar, að halda niðri (ir sannast betur og betur, þann
verðbólgu, mun spretta, að við- stutta tíma, sem hann hefir
skifti við önnur lönd en Banda- gegnt henni. Þetta er fyrsta
ríkin aukist. Mun það ekki síður heimsókn hans í Winnipeg, og er
eiga við önnur lönd en Canada. jvonandi að hann njóti hennar hið
Canada fann til þess, löngu kezta-
áður en Bandaríkin afnámu á- ; Frá vesturfylkjum þessa lands
kvæðisverðið, að gengi Banda- var fjöldi þeirra manna, sem um
ríkjadollarsins var of hátt og að langt og erfitt hernaðar-tímabil
koma hlaut að því, að það tak- börðust hreystilega, særðust, og
markaði viðskifti við þau. Þau féllu svo þúsundum skifti. Voru
virðast með öðrum orðum hafa það sigursælar árásir, og mun
verið byrjuð með genginu að loka Alexander greifi leitast við að
sig inni. i sjá svo marga af þeim hermönn-
Þessu samfara hefir stjórnin!um- er afturkvæmt áttu heim,
LANDNÁMSMAÐUR
LÁTINN
Tóm'as Björnsson
Mynd þessi af Tómasi Björns-
syni bónda á Sólheimum í Geys-
isbygð nýlega látnum, barst
blaðinu ekki nógu snemma til
þess, að birtist með æfiminningu,
er prentuð ér í þessu blaði um
hinn látna frumbyggja. (Sjá æfi-
minninguna á þriðju blaðsíðu).
birt langa skrá vörutegunda, sem
verðið á er ábyrgst að skuli ó-
breytt verða.
Sjálfstæð þjóð
Þann 4. júlí síðastliðinn, lýsti
Truman forseti því yfir, að Phil-
lipines eyjaskeggjar hefðu feng-
ið sjálfstæða stjórn, og mynduðu
þannig lýðveldi.
Þannig enda 48 ára yfirráð
Bandaríkjanna yfir einhverjum
stærsta erlendum landshluta eða
ríki, er þau hafa hingað til ráðið.
Truman forseti sagði, að Phil-
lipines-þjóðin hefði glögglega
sannað það, að hún væri því vel
vaxin að taka á hendur sjálf-
stjórn um hið 10 ára eftirlits-
tímabil, er samveldisþingið á-
kvað.
Með því að veita Phillipines-
búum sjálfstjórn, afsala Banda-
ríkin sér umráðum yfri rúmlega
16,000,000 manns, og 115,600 fer-
mílum af landi, sem nær yfir
7,000 eyjar. Réttur Bandaríkj-
anna til umráða yfir herstöðv-
um, hefir þó verið áskilinn, með
samningi milli beggja þjóðanna.
1 sérstöku útvarpserindi til Phil-
lipines-búa síðastliðið miðviku-
dagskveld, frá ríkisdeildinni, hét
forsetinn því, að Bandaríkin
myndu gera alt sem í þeirra valdi
stæði, til þess að styrkja hið nýja
lýðveldi.
Phillipines-þjóðin stóð ber-
höfðuð í dynjnadi rigningu hinn
4. júlí, meðan flagg Bandaríkj-
anna var dregið niður, en í stað
þess nýr fáni hafinn að hún yfir
eyjunum. Táknrænt merki þess,
að lýðveldi hefði verið stofnað
í Phillipines.
Forseti, Manuel A. Oxas, og
vara-forseti Elpidis Quirius unnu
eið, að því, að stjórna og styðja
að velgengni þjóðarinnar hin
fyrstu og erfiðustu reynslu-ár.
Sendiherra Bandaríkjanna,
Paul V. MacNutt,. bar fram
heillaóskir, og fullvissaði Phil-
lipines-búa um, að engar hömlur
af hendi þjóðar sinnar yrðu
lagðar á frelsi hins nýja lýðveld-
is.
Embættismenn og fulltrúar
frá 50 þjóðríkjum voru viðstadd-
ir þessa hátíðlegu athöfn, og
fluttu hinu nýstofnaða lýðveldi
heillaóskir. R. St.
og mögulegt er.
Þessi tignu hjón dvöldu hér
aðeins tvo daga á tveggja mán-
aða ferðalagi sínu um Vestur-
Canada, og var hinn stutti dval-
artími þeirra algerlega upptek-
inn við embættisverk af ýmsu
tagi, þar á meðal för til Deer
Lodge hermannaspítalans, þar
sem um 57 landhers og flugliðs-
menn nutu ljúfmannlegrar heim-
sóknar síns fyrri yfirboðara. —
Djúpar þakkir og hamingjuóskir
fylgja Alexnader greifa og frú
hans, er þau leggja af stað héðan
áleiðis vestur. R. St.
SKEYTI TIL KIRKJU-
ÞINGSINS
Reykjavík, 1. júlí
Icelandic Federated Church,
Lundar, Man.
Kærar kveðjur með óskum um
heill og blessun guðs.
Sigurgeir Sigurðsson
Friðarfundurinn 29. júlí
Það mun nú ákveðið að fund-
ur þessi fari fram eins og til var
ætlast. Hugmyndin með hann
var að ljúka við friðarsamninga
gerðina. Skömmu eftir að þetta
var ákveðið, fóru Rússar að fetta
fingur út í það, sögðu Banda-
þjóðirnar hafa lítið við friðar-
samninginn að gera, nema þær
stærstu fjórar eða fimm. Þær
máttu koma til fundarins og
ræða málin í smá hópum, eftir
því hvað þær voru við þau rið-
in. En þá leiddi til vandræða
með hvernig ætti að orða til-
kynninguna til þeirra eða heim-
boðið á fundinn. En þá sýndi
Frakkinn þá ráðsnild, að leggja
til að hafa heimboðið svo einfalt
ög óákveðið sem orðið gæti og
það hefir Molotov nú samþykt
Verða bandaþjóðirnar 21, er
fundinn sækja. Þær mega gera
illögur, en atkvæðisréttur þeirra
er enn takmarkaður. En það má
heita mikil eftirgjöf, af hálfu
Rússa, að leyfa að þjóðir þessar
skuli mega koma saman og líta
hver á aðra þegjandi, þar sem út-
litið var um skeið, að friðarfund-
urinn færist fyrir.
ÚR ÖLLITM ÁTTITM
Frá 3. sept. 1939 til 1. maí
1946 voru alls í Bretlandi 6,156,-
000 karlmenn og 656,000 konur í
þjónustu í stríðinu; í sjóliðinu
voru 964,000, í landhernum
2,927,000 og í flugliðinu brezka
(R.A.F.) 1,274,000.
• * *
Við hátíðahöldin 4. júlí í
Bandaríkjunum, biðu 142 menn
bana. Það virðist há dauðsfalla
tala af slysum, en hún er þó
lægri en s. 1. ár og oft áður.
Um 24,000 konur og börn
canadiskra hermanna, eru enn á
Englandi. Bíður hópurinn þess
með óþreyju, að komast til Can-
ada. Er vonast til að f jöldi kom-
ist vestur í júlí og ágúst, en tæp-
lega allur hópurinn fyr en undir
árslok.
* * *
Réttur til þess að framleiða
sérstaklega létta bíla með “front
wheel drive”, sem fundinn hefir
verið upp á Frakklandi hefir
verið veittur Henry J. Kaiser.
Bíllinn, sem er að mestu úr áli
(aluminum), vegur 1000 pund,
hefir 55 mílna ferðhraða og fer
60 mílur á hverju galloni af
gasolíu.
Heimsækja Winnipeg
Viscount Alexander og Viscountess
<G©<5)ir gestir
Hingað komu góðir gestir,
glatt var oft á hjalla,
fjögra radda sungu söngva,
sem að kætti alla.
Höfðingjar í lund og létu,
ljós á veginn skína,
skildu eftir brós og blíðu,
bjarta um minning sína.
Svona menn eru sómi þjóðar,
sendið fleiri slíka;
ekki þessa orða belgi, —-
eða þá, sem sníkja.
Heldur svona dáðá* drengi;
Dóra, Bensa og Munda,
þeir voru allir, og hann “Steini”,
englar gleði stunda.
Traustari væru bræðra böndin,
bjartara út um hringinn,
ef að svona sóma drengir,
sætu friðar þingin.
Látum New York, London, París,
lofa þeim að reyna,
það gæti aldrei orðið verra,
allir vita hvað eg meina.
H. E. Magnússon
25. júlí á að reyna atóm-
sprengjurnar neðansjávar. Það
sem með því á að vera unnið, er
að sjá hvað hættulegar þær geti
orðið skipum eða herflotum.
Af fyrri sprengingunni á bráð-
um að sýna myndir. Segja frétt-
irnar. Þær verða litauðugri en
nokkrar myndir áður.
* * ♦
Canada hefir eignast nýja
eyju. Hún heitir Emperors Is-
land og er í Leach Lake í Jasper
þjóðgarðinum. Eyjan hefir ver-
ið gerð af Hollywood félagi
(Paramount), aðallega til að búa
til Eden í ástarleiksýningu, sem
heitir: “The Emperor’s Waltz”.
Eyjan kvað falleg vera einkum
fyrir trén og grasið, sem þar
er. Voru merkir leikendur þarna
um tíma frá Hollywood að
skemta sér um tíma (Joan Fon-
taine, Bing Crosby, o. s. frv.). Að
verkefninu loknu, var eyjan af-
hent Canadá.
* * *
1 Cleveland fóru ræningjar
inn í banka nýlega um hábjartan
dag, náðu í $1000 og komust
undan með það, þó í bankanum
væru um 15 manns í viðskifta-
erindum. Á meðal viðskifta-
manna í bankanum voru tvö
börn um 5 ára og ræningjarnir
skýldu sér með þeim fyrir skot-
um, unz þeir komust í bíl sinn
og í burtu.
* * *
Vara-aðmíráll Ross T. Mcln-
tyre í sjóher Bandaríkjanna, seg-
ir ekki óhugsanlegt að gefa megi
blindum sýn, með aðstoð “radar”
áhaldsins, ef sjóntaugar blindra
séu í lagi, sem þær oftast eru,
þó sjónin sé farin.
KIRKJUÞING AÐ
LUNDAR
27. júní, 1946
SMÆLKI
Hæfileikar Joe Louis í hnefa-
leik, eru þakkaðir því, hve auð-
velt hann á með að sofa hvernig
sem á stendur. Og auðvitað
einnig í að kveða aðra í svefn.
—Sat. Night.
* ★ +
Hið 24. ársþing Hins Samein-
aða Kirkjufélags Islendinga í-
Norður Ameríku var sett í Sam-
bandskirkjunni á Lundar, 27.
júní, kl. 8 e. h. 1946. Þingið
byrjaði með guðsþjónustu sem
prestur safnaðarins, séra Halldór
E. Johnson, stýrði, og var ágæt-
ur rómur gerður að kirkjuþings-
ræðunni sem hann flutti. Ræðan
birtist í Hkr. 3. júlí.
Forseti kirkjufélagsins, séra
Eyjólfur J. Melan, setti þá þing,
og flutti þingsetningarræðu, sem
mintist hinna miklu starfsmögu-
leika framtíðrainnar. Hann mint-
ist starfsemi kveníélaganna í
Winnipeg og út um bygðir, og
las upp skýrslu um hið mikla
verk sem unnið hefir verið á
hinu sfðasta ári í Winnipeg, und-
ir merki Unitarian Service Com-
mittee of Canada, og taldi þar
upp fjárhæðina sem tekið hefir
verið á móti, sem er á ellefta
þúsund dollara. Fjórtán tonn af
fötum hafa verið send frá Win-
nipeg, og þar á meðal 65 bögglar
af barnafötum, og mörg hundruð
bögglaf af hreinlætismunum og
ritfærum og bókum. Tvö hundr-
uð og sjö börn hafa verið tekin
til fósturs á þann hátt að borgað
er með hverju barni til þriggja
mánaða spítala veru, fyrir $45
hvert. Fólk sem leggur svona
mikið á sig, í sambandi við líkn-
arstarfsemi, fyrir menn og konur
og börn í fjarlægum löndum, sem
það þekkir ekki og hefir aldrei
séð, getur ekki annað en haft góð
áhrif, og vakið góða von um
framtíð þeirrar hreyfingar sem
það tilheyrir. Meðal annars hafa
lútersku vinir vorir tekið undir
í þessu verki, með því að senda
inn bæði peninga samskot, fatn-
að og aðrar vörur, sem nefndin
sem stendur fyrir þessu fyrir-
tæki er mjög þakklát fyrir.
Forsetinn mintist þeirra, sem
fallið hafa í valinn á hinu síð-
asta ári og hvatti menn til að
halda áfram því starfi, sem þeir
unnu að og studdu. Hann hvatti
Okkur konum er brugðið um
að við tölum of mikið. En jafn-
vel þó það kunni satt að vera,
segjum við ekki frá helmingnum menn til að hlúa að þeim hugs
af því sem við vitum.
Lady Astor
Þau hjónin Douglas og Ruby
Mark að Lundar, Man., urðu
fyrir þeirri sorg að missa mán-
aðargamalt barn sitt, Lorne
Douglas Mark, þriðjudaginn 2.
júlí. Það fæddist og dó í Winni-
peg. Það var jarðsungið að
Lundar, fimtudaginn 4. júlí, af
séra Rúnólfi Marteinssyni.
unum og kenningum og stefnum
sem munu bera beztu og full-
komnustu ávexti í framtíðinni.
Það var ósk hans að þessir kom-
andi dagar mættu verða félags-
skap okkar til hamingju og
heilla!
Séra Halldór E. Johnson flutti
þá nokkur orð fyrir hönd safn-
aðarins og fólksins á Lundar, og
bauð alla þingmenn og gesti vel-
Frh. á 5. bls.