Heimskringla - 21.01.1948, Blaðsíða 3

Heimskringla - 21.01.1948, Blaðsíða 3
WINNI'PEG, 21. JANÚAR 1948 HEIMSKRINGLA 3. SIÐA septemlber 1919 á 69. aldursári.' Hún var jarðsett í grafreitnumj í Víðidalstungu að viðstöddu miklu fjölmenni. Þama inn undir heiðinni hvíla bein hennar í skjóli öræfanjia. En inni« í litlu kirkjunni hljóma enn raddir gamla orgelsins, út yfir leiðið hennar og út í ómæl- ið. í þeim tónum vakir andi hennar yfir sveit og héraði, — túlkandi þau kjörorð er mótuð- ust af persónuleika hennar. Trúin á guð, trúin á listina, trúin á lífið. IV. kafli Aldaarfur í köflunum hér að framan hefi, eg leitazt við að bregða upp smá- j myndum úr húnvetnsku menn- ingarlífi, en þó sérstaklega hefi eg getið brautryðjendastarfs úr húnvetnsku tónlistarlífi frá 19.1 öld. í>að eru næg efni til þess að rita um samskonar menningar- starf víða um land. Lísthneigð, fórnfýsi, óeigingimi og óendan- lega örðugar aðstæður. En það allt yrði langt mál og þrauta- saga. En þrátt fyrir allt hefir sótt fram. Arfur fyrri alda hefir ( verið ávaxtaður. Eins og kunn- ugt er kostuðu reykvískir borg-1 arar 1837 Pétur Guðjöhnsen til tónlistarnáms ,í Danmörku. Það Var stærsta skrefið á 19 öldinniJ Með heimkomu hans 1840 fór að anda yfir land og þjóð hinni suðrænu hlýju, er fólst í þýzku og skandinavisku þjóðlögunum,1 og víst er það að þau áhrif áttu HVERNIG RÚSSAR HNUPLUÐU RÁÐANEYTI MÍNU Eftir Ference Naegy Fyrverandi forsætisráðherra Ungverja (Þýtt úr Reader’s Digest af r. n.) Framh. Ekki leið á löngu þar til kom- j múnistar hófu árásir á Smá- J bændaflokkinn. Hvert skifti sem^ þingmaður úr okkar flokki hélt( ræðu, var hann brennimerktur' “Afturhaldsmaður” af komm- únistum, og því fylgdu venju-! lega nýjar kröfur frá Rússum. j Annhvort vorum við orðnir á eftir með stríðs'skaðábætur eða eignir Þjóðverja voru ekki af-^ hentar eins fljótt og þeir ósk-( uðu. Þessar kröfuf komu í fyrstu frá Voroshilow marsk- álki, en í marz 1946 fór hann( til Moskva sér til hvíldar, að sagt var og General V. P. Sviri- dov var settur í hans stað. Þetta var þægilegt fyrirkomulag, því í hvert skifti sem við eða full- trúar Breta eða Bandaníkja- manna í A. C. C. hreyfðum mót- mælum var okkur sagt, að þauj skyldu send Voroshilow, en það tók vikur eða mánuði að fá svar frá honum. Vissasti vegurinn til að vara stimplaður “afturhaldsmaður” af kommúnistum var það, ef á það var minst opinberlega að kröfur Rússa um vissan hluta framleiðslunnar, — sem enn var sinn þátt í listasmekk og hugs-( analífi þjóðarinnar, ekki aðeins til aldarloka, heldur og á mörg- um sviðum allt til þessa tíma. Annar stórviðburður á sviði ís-J lenzkra tónlistarmála gerðist 90 árum síðar. Þá ráðast aftur nokkurir reykvískir borgarar í að stofna tónlistarskóla, 1930,' I og fá til hans hámenntaða kenn- ara frá ýmsum Evrópulöndum. Saga hans er ekki löng enn þá og hlaðin erfiðleikum annarsvegar, en ódrepandi áhuga stöfnend- anna hinsvegar. Útkoman sýnir,i að eftir 15 ára starf er hann orð- ■inn einn af fjölsóttustu skólum landsins og aðal þröskuldurinn fyrir framgangi hans er húsnæð- isskorturinn. Tónlistarhöllin er draumur framtíðarinnar. Við hana eru tengdar vonir hinna uiörgu tónlistarunnenda í land- inu. Hún yrði heimili hinna mörgu listgreina tónlistarinnar fyrst og fremst og þar ætti Tón- listarskólinn fast athvarf, með sinni margþættu kennslu í með- ferð hinna ýmsu hljóðfæra. Auk þess kennslu í tónlistarsögu,1 formfræði allt frá byggingu lag- línunnar og í gegnum hljóm-^ fræðina, með hinum þungu og dularfullu lögmálum “kontra-j punktsins”. Þar ættu athvarf til æfingar stærri og smærri hljóm- sveitir, og ennfremur kórarnir. Þar yrði stór konsertsalur. Með, aðstoð útvarpsins ættu allir landsmenn að geta fylgzt með^ og orðið aðnjótandi árangursins af tónlistarþróun komandi tíma. j Útvarpshlustendur um land allt hljóta að hafa fundið hve virk-J an og áberandi þátt Tónlistar- skólinn hefir fyllt í dagskrá út-j varpsins. Fyrst og fremst meði tónleikum kennaranna og enn- fremur frægra útlendra tónlist-J armanna, er Tónlistarfélagið hefir beitt sér fyrir að fá hingað til lands. Ef allir verða samtaka, iöggjafarþing og þjóðin, kemst tónlistarhöllin upp og takmark-j inu verður náð. Listasmekkur-J inn þroskast og gérfimenningin j smáhverfur. Hugsjónin er arfur frá horfnum kynslóðum. Jólablað Vísis Sigurður S. Anderson, 800 Lipton St., hefir tekið að sér inn- Löllun fyrir Hkr. í Winnipeg. Áskrifendur eru beðnir að minn- ast þessa og frá þeirra hálfu gera j honum starfið sem greiðast. — Símanúmer hans er 28 168. langt undir meðallagi------væri: að einhverju leyti valdandi verð, bólgunni og öllum vandræðum’ sem henni fylgðu. Þjóðverjar áttu mikið fé í ungverskum fyrirtækjum fyrir stríðið, og á stríðs árunum juk- ust þær mikið. Bæði fluttu þeir inn verktæki frá öðrum löndum og slógu eign sinni á ungversk fyrirtæki sem þeir þörfnuðust til stríðsframleiðslu. Allt þetta kölluðu Rússar þýzkar eignir, það sem stolið hafði verið frá Ungverjum eins og hitt. Ef Þjóð- j verjar höfðu t. d. átt 20% í ein-( hverju fyriræki tóku Rússar það bezta af vélum og vörum og sögðu “Þetta er okkar 20%, —J þetta sendum við til Rússlands”, sem meinti að loka yrði verk- smiðjunni um lengri tíma. — “En”, bættu þeir við, “Ef þið takið okkur í helmingafélag, skal alt vera eins og það er. nema við skipum rússneskan^ forstjóra.” Ef ekki var um þýzkar eignir að ræða, gætu Rússar hótað að gjöra verk- smiðjuna uppæka í stríðsskaða- ibótum, eða neitað þeim um hrá- efni. Á þennan hátt tókst þeim að verða meðeigendur í mörg- um helztu atvinnuvegum lands- ins, eins og t. d. flutningum öll- um málmframleiðslu og að nokkru leyti í váíryggingum og bönkum. Eg var formaður nefndar, sem send var til Rússlands í apríl, 1946, til að reyna að fá einhverj- ar tilslakanir hjá Rússum. Okk- ur var vel tekið. Við áttum tal við Stalin, Molotov, Mikogan, og Dekanozov, og fengum nokkr ar ívilnanir. Við fengum lengd- an tíma til að borga stríðskaða- bætur úr sex árum upp.í átta.j Einnig feldu Rússar niður kröfu J um $15,000,000 fyrir viðgerð á( ungverskum járnbrautum. Alls sat eg á tali við Stalin í eina sjö ( klukkutíma. Hann lét mig á sér skilja, að hann væri okkur vel- viljaður. Fulltrúar Rússa í Ung- verjalandi væru, ef til vill nokk- uð kröfu harðir, en allt mundi fara vel á endanum. Skömmu eftir að eg kom ^ heim aftur fékk eg nýja sönn-J un fyrir Velvild Stalins. Hann sendi mér að gjöf rússneska' “Zins” bifreið. Tveimur mánuð-1 um síðar, var eg formaður ann- arar sendinefndar, nú til Banda- ríkjanna. Sú ferð bar góðan ár-( angur. Bandaríkin skiluðu oss aftur $32,000,000 í gulli, sem Nazistar höfðu stolið og flutt til Þýzkalands. Ennfremur fengum við aftur öll skip úr Donárflota vorum sem voru í þeirra hönd- um, og í þriðja lagi fengum við $15,000,000 lán til að kaupa amerískar hernaðarvörur í Ev- rópu. Gullforðinn varð okkur ó-; metanleg hjálp til að stemma sigu verðbólgunnar. 1 Ameríku sáum við meirii velmegun en við höfðum nokkru j sinni«kynst áður. En Rakosi litli | sem var einn í förinni, lét sér fátt um finnast. Dag nokkurn sáum við mann í rifnum buxum. Rakosi benti <^kkur þegar á hann og segir “Sjáið! Það flýtur ekki allt í mjólk og hunangi í Amér- íku heldur”. Seinna var okkur sýnd þyrping af nýbygðum hús- um með öllum nýtízku útbún- aði. Rakosi átti erfitt með að finna nokkuð til að setja út á, en segir þó, “Ef veggjalýsnar komast n'okkurn tíma í þessi hús verður erfitt að útrýma þeim”. “En”, tók einn úr okkar flokki fram, í “það sýnist ekki vera mikið af veggjalúsum í Ameríku.” “Veist þú ekki”, svaraði Rak- osi styggur “að veggjalýsnar eru upprunnar í Ameríku og fluttust til Evrópu og Rúss- lands”. Nokkru eftir að heim kom stakk miðstjórn bandaflokkanna upp á því að halda opna minning arsamkomu á “Sankti Stefáns- daginn”, sem lengi hefir ver- ið merkur hátíðar dagur meðal Ungverja. En Sviridov neitaði því, en gaf þó eftir, að samkom- una mætti halda síðar þ. 7. sept. Hefir sennilega haldið að þegar hátíðleiki dagsins væri ekki að- dráttarafl, mundu fáir koma. En jafnvel eg undraðist, hvað margt og hvað víða að, fólk flyktist til Budapest, þann dag. Að minsta kosti hálf milj- ón manna fylti “Hetju garðinn í Budapest. Stór ræðupallur hafði verið reistur, skreyttur þjóðlit- um Ungverja, rauðum, hvítum og grænum. Heiðursæti meðal tiginna gesta skipuðu Sviridov herforingi og aðstoðarmenn hans. Arthur Schoenfeld sendi herra Bandaríkjanna hafði stað- næmst meðal mannfjöldans niðri í garðinum. Þá kom fyrir eitt af þessum smáatvikum sem stundum verða til að breyta mannkynssögunni. Maðurinn við gjallarhornið var að kynna tigna gesti og segirrl Herra Sviridov herforingi og aðrir fuíltrúar hinna voldugu [ ráðstjórnarrlíkja hafa - heiðrað( okkur með nærveru sinni. Það( varð augnbliksþögn, en því næst var klappað hér og þar í mann- þyrpingunni. “Einnig er hér með oss í dag fulltrúi Bandaríkjanna Mr. Shoenfeld”. Samstundislaust mannfjöldinn upp fagnaðarópi, sem stóð yfir nokkrar mlínútur. Sennilega var mannfjöldinn að láta í ljós þakklátssemi sína fyr- ir UNRRA matvæli, sem útbýtt hafði verið þá um sumarið, og frelsaði fjölda manna frá hungri og harðrétti. Eg veit ekki hver áhrif þessh atburður hafði á Rússa, en hann var þeim eflaust sönnun fyrir því að allur áróður kommúnista J sem dunið hafði yfir þjóðina eins og skæðadrifa í 18 mánuði hefði borið lítinn árangur, og að nú yrði að taka til annara og alvar- legri ráða. Eg gerði mitt ítrasta til að, komast að friðsamlegum samn-J ingum við kommúnista — fór ef til vill of langt í því efni. En mér var vel kunnugt, að ef stjórnin yrði að segja af sér mundi því fylgja uppþott og ó-; eirðir, sem Rússar gætu notað sér til að hrifsa völdin í sínar hendur, til að stlila til friðar. En það mundi gjöra okkur að lepp- ríki líkt og Pólland, Rúmaníu og Bulgaríu. Árásir kommúnista blaðanna á “Afturhaldsmenn urðu hávær- 1 ari með hverjum deginum sem leið. Framkoma Rakosi á ráðu- neytisfundum breyttist einnig mjög. Áður hafði hann oft verið kátur og spaugsamur, en gerðist nú alvarlegur og drembinn. —J Hans fyrsta verk, er á fundin kom var að ná sér í pappírsörk rista hana niður í lengjur, skrifa einhverjar fyrirskipanir á hverja lengju og rétta þær síð- an félögum sínum í ráðaneytinu og jafnvel Sakasits foringi Soc- ial Demókrata, sem næstur hon- um sat fekk eina líka. Alt var þetta gert þegjandi án nokkurra svipbrigða. Nokkrum vikum seinna komst eg að því, að nokkrir þektir borg arar í Budapest höfðu verið hándteknir af herlögreglunni. Eg kallaði hermálaráðherrann Aibert Bartha á minn fund, til að fá upplýsingar, en hann vissi þá ekkert um neinar handtökur. En lofaðist til að rannsaka mál- ið, og láta mig vita næsta dag. Þegar hann kom aftur var Palfi herforingi yfirmaður lögregl- unnar í för með honum. Palfi sagði mér, að í nokkurn undan- farin tíma hefði hann haft gæt- ur á vissu húsi, og komist að því að það væri fundarstaður Sam- særismanna gegn ríkinu. Tíu menn hefðu þegar verið hand- teknir, og fleiri mundu hand- teknir síðar. Eg bað hermálaráðherran að yfirheyra fangana persónulega. En næsta dag skýrði hann mér frá því, að hann hefði farið til fangelsins, en verið sagt að fang- arnir hefðu verið fluttir, og að enginn fengi að heimsækja þá samkvæmt skipunum Sviridov hershöfðsngja. Eg fór þegar á fund Sviridovs og spurði hann hvort hann hefði gefið slíkar skipanir. Alls ekki. Hann kvaðst hafa sagt Palfi þeg- ar hann lét hann vita um sam- særið, að það mál heyrði undir ungversk yfirvöld. Því næst kom okkur Bartha saman um að víkja Palfi úr stöð- unni um stundarsakir og láta rannsaka málið frá rótum. En sama kvöldið heimsótti Kondra- tov hershöfðingi undirmaður Sviridov mig, og segir mér að Sviridov hafi heyrt um rann- sókninna gegn Palfi og áliti hana ósanngjarna. Palfi hafi að- eins misskilið Sviridov af því rangt hafi verið túlkað. “Gott og vel”, sagði eg, “rannsóknin mun þá leiða það í ljós, og sýkna Palfi”. Kondratov, sem hafði verið kurteis og brosandi skifti nú alt í einu um tón, og segir “Þú sýn- ist ekki skilja það að ef þessi rannsókn gegn Palfi er ekki lát- in falla niður, þegar í stað, verð- ur alt samsærismálið tekið yfir af rússnesku herstjórninni” Ef svo færi, yrðu allir þeir sem handteknir yrðu nú eða slíð- ar, fluttir til Rússlands, og við sæjum' þá aldrei aftur. Svo eg lét undan og rannsóknin var látin falla niður. En þessi svipa hekk yfir höfðum vorum jafn- an síðan. Næsta dag kallaði eg innan- ríkisráðherra Mr. Rajk á minn fund. Hann sagði mér að sam- særið væri víðtækara en ætlað hefði verið í fyrstu og að við það væri riðnir bæði hermenn og borgarar. Vissir fyrverandi for- ingjar hefðu tekið að sér að æfa flokka, sem síðar ættu að reka stjómina frá völdum. Eitthvað tveimur dögum síðar kom Rajk aftur, mjög alvarlegur. Fleiri handtökur hefðu verið nauðsýn- legar, og sumir fanganna höfðu þegar játað brot sín. Hann hafði meðferðis stórann bunka af skjþlum, sem hann kvað vera skrifaðar játningar fanganna, sumar þessar játningar bendla nokkra af þingmönnum smá- bændaflokksins við málið, og jafnvel einn ráðherrann And- rew Misteth viðreisnarráðherra. Við álitum að landráðamálið í heild væri aðeins uppspuni kommúnista, svo ótrúlegt var það að nokkur maður gæti látið I sér til hugar koma, að stjómar- bylting væri möguleg í hernum- j du landi, nema setuliðið væri á bak við. En sem sagt, okkue var varnað að láta óhlutdrægai rannsókn fara fram í málinu en kommúnistar höfðu í höndum sönnunargögn, sem ekki varð gengið fram hjá. Svo ákveðið var að láta opinber réttarhöld fara fram. i Blöð kommúnista heldu áfram að ásaka þingmenn smábænda- flokksins — helzt þá helstu og sjálfstæðustu — um hluttöku í samsærinu og lögreglan gat ætíð fengið einhverja af föngunum til að játa að svo væri. Nú kom það sér vel fyrir kommúnista að þeir höfðu náð valdi yfir fjölda manna í fyrstu, því nú urðu þeir að sýna hollustu siína með því að gerast njósnarar og mein- særismenn. Það var altalað að lögreglan notaði vísindalegar pyndingar ( til að fá fangana til að með-( ganga. Einum þeirra, eg þektij vel rithönd hans tókst að smygla út bréfi, þar sagði hann að sér hefði verið haldið undir afarsterkum rafmagns ljósum, hvíldarlaust í 12 kl.st. Seinna fréttist að jafnvel skurðlækn- ingar væru notað við yfirheyrsl- urnar. Þegar eg vildi vita hvort nokkur hæfa væri fyrir þessu var mér sagt, að einungis “venju legar aðferðir” væru notaðar. Réttarhöldin í landráðamál- inu fóru fram opinberlega. En 4 af 5 setudómurum voru kommúnistar. Fangarnir fengu að tala við lögmenn sína í tíu mínútur áður en rétturirm var settur, og iþó ekki nema lög- regluþjónn væri viðstaddur. En það sem mesta undrun vajcti, var þó framkoma fanganna sjálfra. Þeir stóðu upp hver á fætur öðrum og játuðu á sig hverju einustu ákæru. Jafnvel þó þeir hlytu að vita að það mundi kosta þá Mfið, eða að minsta kosti langa fangelsis vist. Áhorfendumir sátu agndofa. Það var aðeins ein undantekn- ing. Vélfræðingur Balint Arany að nafni, stóð upp og reyndi að afturkalla skrifega játningu. —1 En dómsforsetinn, sagði þegar, í stað réttinum slitið og Aranyj var leiddur út, þegar hann kom fyrir réttinn aftur viku seinna var hann búinn að læra lexíuna, I og játaði allar sakir á hendur sér. Þrír fanganna vom dæmdir til dauða, en hinir fengu allir lengri eða skemmri fangavist. Eflaust koma ný landráðamál upp síðar ef ástæða þykir til að koma inn heilsusamlegri hræðslu hjá þjóð- inni. Einhverjir munu nú líklega spyrja hvernig eg gat haldið á- fram að vera forsætisráðherra undir þessum kringumstæðumJ Eg hef þegar b%nt á hverjar af- leiðingarnar mundu hafa orðið ef stjórnin yrði að segja af sérJ En hinsvegar leit svo út, að full-' naðarsamþykt friðarsamning-1 anna mundi fara fram bráðlega,! og stjórnin sem fólkið sjálft hafði kosið var enn við líði, því( þó kommúnistum hefði tekist að veikja þing meirihluta okk-J H HAGBORG FUEL CO. H ★ Dial 2! 331 j&FX. 21 331 2 mælar af þroskuðum T ó M Ö T U M frá einni stöng 2 eðc 3 stangir fram- leiða nóga tómata fyr- ir meðal fjölskyldu. NÝ VAFNINGSJURT TRIP-L-CROP TÓMATÓS vaxa fljótt upp í 10 til 12 feta hæð —oft til 16 til 20 fet. Vaxa upp grindur við hús, fjós eða hvar sem er. Geta vaxið í görð- um sem runnar. Fal- legar, stórar, fagur- Lrauðar, þéttar, hollur lávöxtur af beztu teg- 'und. Framleiða meira en nokkur önnur teg- und tómata. (Pk. 15<) póstfrítt. FRÍ—Vor stóra útsœðisbók fyrir 1943 Stœrri en nokkru sinni fyr 33 DOMINION SEED HOUSE Georgetown, Ontario ar vorum við enn í meiri hluta. Og þegar setuliðið var farið úr landinu vonuðum vér að geta stjórnað landinu á lýðræðis grundvelli. Eg þarf ekki að lýsa því hver áhrif þessi látlausa barátta, á- hyggjur og svefnleysi hafði á heilsufar mitt. Eg, sem er hraust bygður að eðlisfari gerðist nú taugaveiklaður, slappur og sí- þreyttur. Nokkrir samverka- menn mínir í r'áðaneytinu ráð- lögðu mér að taka mér hvíld, og buðust til að semja pólitískst vopnahlé á meðan. Eg vissi að mér var þörf á hvíldinni, og tók boðinu, og ákvað að taka þriggja vikna hvíld. Þann 14. maí, 1947, lögðum við konan mín og eg á stað til Svisslands, þar sem dóttir okkar var í skóla, en son okkar, fimm ára gamlan skildum við eftir hjá vinum okkar úti í sveit. Eft- ir tíu daga dvöl í Sviss, simaði eg Tildy forseta. Hann sagði mér að alt færi friðsamlega fram, og að mér mundi óhætt að vera burfu eins lengi og ákveðið hefði verið. Þegar eg kom í hótelið í Loc- arno að kvöldi þess 28. var mér sagt að símkall biði mín frá Budapest. Það var skrifari minn, Dr. Kapocs. Honum var mikið niðri fyrir, og segir mér að eg verði að koma heim þeg- ar í stað. En vildi ekki segja hversvegna en sagði mér að kalla sig upp síðar. Klukkustund síðar símaði eg honum aftur. Hann sagði mér þá, að General Sviridov þættist hafa í höndum sannanir fyrir því að eg væri viðriðinn samsæri gegn lýðveld- inu. Nálægt miðnætti þetta sama kvöld, var mér enn símað frá Budapest. Það var starfsmaður í stjórnarráðinu, sem talaði, og sagði mér að Rajki hefði látið handtaka Dr. Kapocs strax eftir að eg talaði við hann í síðara skiftið, og ennfremur að, hann hefði látið sprengja upp örygg- isskáp minn og tekið þaðan öll skjöl, bæði opinber og mín eig- in. Snemma næsta morgun sím- aði eg Tildy forseta. Hann ráð- lagði mér að koma heim þegar stæð, og bætti við vandræðalega “Eg vona að enn sé ekki of seint að bjarga málinu”. Næst símaði eg Rakosi. Eg á- sakaði hann um að vera pottur- inn og pannan í öllu því er gerst hafði í fjarveru minni. Sérstak- lega taldi eg hantöku Dr. Kop- acs óforsvaranlega, og kvaðst leggja af stað heim eftir kl.t. Hann svaraði á sinn venju- lega kaldranalega hátt að Kap- acs væri foringi nýs samsæris og að ákærumar gegn mér sjálfum væru mjög alvarlegar. Rétt þegar eg var að sfcíga upp í bifreiðina, kom skeyti frá Ference Gordon, sendiherra Ungverja í Bern. Hann kvaðst hafa átt tal við einn vin min í Budapest sem ráðlagði mér að fara ekki út fyrir landamæri Svisslands fyr en einhver sem eg mætti treysta kæmi til fund- ar við mig frá Budapest, til að skýra mér frá öllum málavöxt- um. Eg sagði honum að eg væri rétt að leggja af stað, en mundi koma við í Bem og hitta hann að máli. Við komum til Bern um kvöld ið. Næsta morgun, sagði Gordon mér, að hann hefði átt tal við Frh. á 5. bls.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.