Heimskringla - 21.04.1948, Síða 5
WINNIPEG, 21. APRÍL 1948
HEIMSKRINGLA
5. SIÐA
wenntasetri landsins, þar sem
hún “ber mat á borð fyrir Fjöln-
ismenn og er í sambýli við
Sveinbjörn Egilsson”. Lífsbar-
stta og menning samtíðar henn-
ar endurspeglast því á margan
hátt í bréfum hennar.
Þó eru bréfin eðlilega ítarleg-
ust og mikilvægust heimild um
®ttmenni Ingibjargar og sjálfa
hana, og þá sérstaklega umsagnir
hennar og dómar um skáldið
Grím Thomsen, son hennar, en
við hann tengir hún miklar vonir,
enda ber hann nafn hins heitt-
elskaða bróður henriar og á að
hæta henni upp missi \veggja
annara mannvænlegra sona á
*skuskeiði. Ást hennar og um-
fyrir þessum gáfaða syni
leynir sér eigi, en jafn berorð er
hún um það, sem henni þykir
niiður fara hjá honum, eyðslu-
semi hans á háskólaárunum,
stefnuleysi um námsgreinaval og
hyskni við námið. Vitanlega er
henni, embættismannsdóttur og
embættismannssystur, sem dval-
!ó hafði langvistum á helzta em-
hættissetri landsins, það hug-
stæðast, að sonur hennar gangi
heina braut til virðulegs embætt-
ls, en í stað þess hneigist hugur
hans að bókmentum og fagur-
^ræðum, og hann er farinn, eins
°g hún orðar það gremjulega í
einu bréfa sinna til bróður síns,
að “drabba í skáldskap og skrif-
ast á við skáldin hér inni um
þessa ment”. Þótti henni og
þeim foreldrum Gríms báðum
það, að vonum, heldur óvænlegt
61 embættisframa og virðinga.
En eigi er það síður merkilegt
að kynnast Ingibjörgu Jónsdótt-
Ur sjálfri í þessum bréfum sín-
Uln, því að hin hreinskilna tján-
lng hennar verður um leið frá-
hær sjálfslýsing. Auðsjáanlega
hefir hún verið mikilhæf gáfu-
hona, að vísu nokkuð þunglynd
og bölsýn, en óvenjulega táp-
mikil og bar með hetjuskap ást-
vinamissi og aðrar æviraunir. Er
það mjög einkennandi fyrir hana,
að hún er í bréfum sínum að telja
kjark í Grím bróður sinn, þegar
hann var með umkvartanir yfir
kjörum sínum, og kveður það
mannsæmra að bera með karl
mensku það, sem að höndum ber
°g eigi verður umflúið. Merki-
legt móðerni hefir því Grími
skáldi hlotnast, og eiga íslenzk-
ar konur liðinnar tíðar þar ágæt-
an fulltrúa sem Ingibjörg Jóns-
dóttir er.
Finnur Sigmundsson, sem ann-
ast hefir útgáfu bréfanna af mik-
illi vandvirkni, fylgir þeim úr
hlaði með prýðilegum formála,
þar sem rakin er ætt og í.megin-
dráttum æviferill Ingibjargar og
Þorgríms gullsmiðs Tómassonar
manns hennar, og annara nánustu
ættmenna þeirra, en frá dætrum
þeirra, Kristínu og Guðrúnu, er
komið margt merkra manna óg
kvenna. Finnur landsbókavörðr
ur hefir einnig ritað greinagóð-
ar skýringar við bréfin; þeim
fylgir einnig nafna- og mynda-
skrá, sem auka á notagildi ritsins.
II.
Síðari bindi bréfasafnsins,
Sonur gullsmiðsins á Bessastöð-
um, eru bréf til Gríms Thomsens
og varðandi hann árin 1838-1858,
en um val bréfanna í þetta safn
farast Finni Sigmundssyni þann-
ig orð í formála sínum:
“Viðtökur þær, sem Húsíreyj-
an á Bessastöðum fékk, sýndu
ljóslega, að hlustað er með at-
hygli á alt, sem við kemur ævi
Gríms Thomsens. Mér þótti því
líklegt, að ýmsa fýsti að kynn-
ast hug ættingja hans og vina
eins og hann kemur fram í bréf-
um þeirra einmitt á þeim áfanga
í ævi Gríms, sem sumum þótti
tvísýnt, hversu úr honum mundi
rætast. Eg kaus að láta bréf móð-
ur hans marka það tímabil, sem
um væri fjallað, en þau eru rituð
á árunum 1838-1858, eða frá því
Grímur siglir ungur stúdent og
þar til móðir hans hefir sann-
færst um, að hún “eigi góðan og|
mikinn son”. Um val annara
bréfa, sem tekin eru í safn þetta, |
hafði eg fyrst og fremst í huga1
einkahagi Gríms og viðhorf ætt-
ingja hans og vina. Auðvitað
varð ekki hjá því komist, að
margt smávægilegt, sem litlu
máli skiptir, flyti með. En eg
vona þó, að við lestur þessara
bréfa í heild verði menn nokkru
fróðari um son gullsmiðsins á
Bessastöðum og umhverfi hans
meðan hann var í deiglunni og
þar til honum hafði hlotnast
meiri og fágætari frami en títt
var um íslendinga. Eg vænti þess
einnig, að gullsmiðurinn, hús-
bóndinn á Bessastöðum í nær-
fellt þriðjung aldar, hljóti þá
viðurkenningu lesenda, þrátt
fyrir efasemi hans um veraldar-
gengi sonar síns, að í honum
hafi verið ósvikinn málmur ekki
síður en í húsfreyju hans og
börnum þeirra.”
Finnur landsbókavörður hefir
og hér tekið upp þá góðu ný-
breytni að velja hverju bréfi ein-
kunnarorð úr meginmáli þess, og
auk þess sett gagnorðar skýring-
argreinar bæði á undan og eftir
hverju bréfi, sem eru hvort-
tveggja í senn smekklega gerðar
og hinar fróðlegustu, enda eru
skýringar bráðnauðsynlegar í
slíkum bréfasöfnum. Loks eru
nafna, bréfa- og myndaskrár, og
útgáfan í einu orði sagt leyst af
hendi með mikilli nákvæmni og'
alúð.
f safninu eru alls 79 bréf, mörg
þeirra frá Ingibjörgu Jónsdóttur
til Gríms skálds, sonar hennar;
The Farm Account Book
and Income Tax Guide
Sparar Bændum Tíma, Ahyggjur og Peninga
SPARAR YÐUR TÍMA—Þér munuð sannfærast um að fáeinar mínútur
á viku nægja til þess að háía þessa Farm Account Book í góðu lagi. —
Fyrstu 15 blaðsíðurnar í þessari bók útskýra hvað ætlast er til af bænd-
unum. Vandamál yðar er þar sett fram í spurningum og svörum og
efnisyfirlit vísar á hvar það er að fi nna í bókinni. Blaðsíður og dálkar
bera sömu númer eins og þau atriði sem þau fjalla um í tekjuskatts
skýrslunni sjálfri. Þér getið gert allar nauðsynlegar innfærslur við-
víkjandi búreikningum yðar jafnóðum og eitthvað þarf að færa inn.
Ef þér hafið ekki enn fengið
eintak, þá vitjið þess strax á
pósthúsi yðar. Það er ókeypis
SPARAR PENINGA MEÐ ÞVt
AÐ SÝNA YÐUR RÉTTU AÐ-
FERÐINA — Allir bændur eru
lagalega undanþegnir margskon-
ar útgjöldum við reksturs-kostn-
að. Þessi Farm Account Book hef-
ir tólf blaðsíður með dálkum fyrir
þessa innfærslu. Þar er bent á
margt sem annars gæti fallið í
gleymsku. Lækkun verðgildis er
stórt atriði, og nafngreinir 75 at-
riði sem venjulega koma til greina
við búskap.
Yður er sýndur grundvöllurinn
fyrir þriggja ára skipulaginu, sem
gefur tækifæri að borga lágmarks
skatt, og má dagsetja þá skýrslu
aftur að árinu 1946. Hér er um
beinan peninga sparnað fyrir
yður, að ræða.
ÞRIGGJA ÁRA MEÐALTAL
Þér getið ekki tapað neinu með
því að nota þessa aðferð. Tvent
er nauðsynlegt viðvíkjandi þess-
ari meðaltals-skýrslu fyrir þrjú
árin sem enda 31. desember, 1948.
1 fyrsta lagi verður skattskýrsla
yðar fyrir 1947 að sendast til
réttra hlutaðeigenda á réttum
tíma, sem er fyrir 30. apríl 1948.
Svo þegar þér sendið inn skýrslu
yðar fyrir 1948 sem þér eðlilega
gerið 1949, þá getið þér beðið um
að fá að leggja fram meðaltals-
skýrslu fyrir árin 1946-1947-1948.
Þannig löguð meðaltals-skýrsla
verður svo árleg, svo á hverju ári
verðið þér skattaðir samkvæmt
meðaltals-skýrslu þriggja ára.
MUNIÐ — ILLA RÆKTAÐ LAND VEITIR RÝRA UPPSKERU
— ÓFULLKOMIÐ BÓKHALD VELDUR LÉLEGUM ÁRANGRI
Canada bændur árið sem leið—og þeir eru næst um miljón—fram-
leiddu yfir $2,000,000,000 af allskonar bænda afurðum. Enginn ann-
ar iðnaður sýnir aðra eins framleiðslu. Og eins og á öllum starfsviðum
—jafnvel þeim minstu—verður bóndirin að senda skýi-slu sína til De-
partment of National Revenue, til þess að verða aðnjótandi þeirra
mörgu undanþágu hlunninda, sem honum ber.
DEPARTMENT OF NATIONAL REVENUE
(Taxation Division)
þá eru hér einnig bréf til hans
frá ýmsum öðrum ættmennum og
vinum, og bréf frá honum til
skyldmenna, velunnara og sam-
herja, að ógleymdum eigi allfá-
um bréfum frá Þorgrími föður
skáldsins, flest til Gríms amt-
manns, mágs hans.. Sýna þau, að
Þorgrímur hefir verið gáfu- og
merkismaður, svo sem hann var
talinn af samtíð sinni, stórlynd-
ur en heilsteyptur að skapgerð.
Annars eru öll þessi bréf í
heild sinni skemmtileg aflestr-
ar og fróðleg um margt, t. d.
bréfin frá Brynjólfi Péturssyni
til Gríms, en þó merkilegust fyr-
ir þá birtu, sem þau bregða yfir
ævi Gríms skálds á þessum um-
hleypingasömu og örlagaríku ár-
um hans, þegar mörg voru í hon-
um veðrin og framtíð hans mjög
í óvissu. Höfðu foreldrar hans og
ýmsir aðrir velunnarar hans, svo
sem Finnur Magnússon prófess-
or, af honum mikla mæðu sökum
festuleysis hans við námið og
fjáreýðslu á háskólaárunum og
lengur fram, því að hann barst
mikið á, en með fæddur stórhug-
ur og æfintýraþrá kynnti undir.
Sérstaklega athyglisverð eru
bréfin tvö frá Magdalene Thor-
esen, barnsmóður Gríms, sem var
glæsileg gáfukona, stórbrotin að
skaphöfn, og kunnur rithöfund-
ur á sínum tíma. Eigi verður sagt
að Grímur birtist þar í fögru
ljósi, en þess þó jafnframt að
gæta, að sú lýsing á ástaræfin-
týri þeirra er aðeins frá annari
hliðinni og nær því skammt til
að sýna það eða túlka í fullu
ljósi.
Móðurleg en hressilega hisp-
urslaus og hreinskilin eru bréf
Ingibjargar til skáldálns, sonar
hennar, og er hún jafn óspör á
að brýna metnað hans og hún var
að kveða kjark í Grím amtmann,
bróður sinn. Lifði hún það einn-
ig að sjá vonir sínar um hinn
hjartfólgna son sinn rætast, þó
að frami hans yrði með öðrum
hætti en hana hafði dreymt um,
og að njóta í elli sinni ræktar-
samrar umhyggju hans, þó að
hann dveldi fjarvistum. Því seg-
ir hún í síðasta bréfinu til hans á
þessu tímabili (dags. 18. júlí
1858): “Eg lifi og dey með þá
sannfærnig, að eg eigi góðan og
mikinn son.”
Mun og enginn lengur verða til
þess að neita því, að Grímur
Thomsen hafi mikilmenni verið
á sviði andans, eitt af allra frum-
legustu og svipmestu skáldum
þjóðar vorrar að fornu og nýju.
(Húsfreyjan á Bessastöðum er
til sölu í bókabúð Davíðs Björns-
son í Winnipeg, og líklegt, að
hitt bindi bréfasafnsins verði
einnig fáanlegt þar).
ig flutt. Eru allir, sem áhuga
hafa fyrir norrænum málum og
menningu, boðnir og velkomnir
á fundina, og einnig heimil þátt-
taka í veizlunni á föstudags-
kvöldið.
Félagið hefir, eins og nafnið
bendir til, það markmið, að vinna
að varðveizlu og eflingu nor-
rænna menta og menningarerfða
í Vesturheimi, og skifta félagar
þess víðsvegar í Bandaríkjunum
og annarsstaðar nokkurum
hundruðum. Núverandi forseti
þess er prófessor E. Gustav John-
son, North Park College, Chi-
cago, góður íslands-vinur, sem
sótti Alþingishátíðina 1930; vara-
forseti er Dean J. Jorgen Thomp-
son, St. Olaf College, Northfield,
Minnesota, um langt skeið for-
seti norskudeildar skólans; ritari
°g gjaldkeri er prófessor Joseph
Alexis, University of Nebraska,
sem hóf þar kenslu í íslenzku nú-
tíðarmáli fyrir nokkrum árum
síðan, og heimsótt hefir bygðir
íslendinga í Manitoba. Auk
þeirra skipa stjórnarnefndina
kunnir norrænufræðingar frá
mörgum öðrum amerískum há-
skólum.
CLUB NEWS
ÁRSFUNDUR
FRÆÐAFÉLAGS
Fræðafélagið “The Society for
the Advancement of Scandinav-
ian Study“ heldur ársfund sinn
á ríkisháskólanum í Norður Da-
kota (University of North Da-
kota) í Grand Forks, N. Dak.,
föstudaginn 30. apríl og laugar-
daginn 1. maí. Undirbúnings-
nefndina skipa þrír kennarar há-
skólans, og er dr. Richard Beck,
fyrv. forseti félagsins, formaður
hennar.
Fundarstörf hefjast eftir há-
degið á föstudaginn með því, að
forseti háskólans, dr. John C.
West, býður fundarmenn og
gesti velkomna. Síðan flytja
ýmsir háskólakennarar erindi um
norræn efni, meðal annars flytur
dr. Beck erindi um Grím skáld
Thomsen. Á föstudagskvöldið
verður hin árlega veizla í sam-
bandi við ársfundinn haldin á
Ryan Hotel. Fer þar fram söng-
ur og ræðuhöld, en aðalatriðið á
skemtiskránni verður kvikmynd
í litum af Norðurlöndum.
Fundarstörf halda áfram fyrir
hádegið á laugardaginn og fara
þá fram kosningar embættis-
manna; nokkur erindi verða einn-
Tombola — Dance
will be the main feature of a
social evening sponsored by the
Icelandic Canadian Club, Mon-
day, April 26th, at 8.15 p. m.,
in the Good Templar Hall, Sarg-
ent and MoGee.
Two club members have gen-
erously donated special prizes
for the Tombola, namely: — V.
Baldwinson, Sherbrooke Bakery,
749 Ellice Ave., phone 37 486 —
one large vínarterta. Lillian
Eyjolfson, Lil’s Beauty Shop,
802 Ellice Ave., phone 36 731 —
Shampoo and Finger wave. Be-
sides these, there will be numer-
ous draws, large and small, all
worth, as much, or more, than
the money you pay.
There will be a short program
during intermission, and good
music for dancing.
Refreshments sold — Dough-
nuts and soft drinks.
Admission, including one
draw — 25^.
Come, bring your friends, try
your luck and have a gbod time.
The more the merrier and the
more successful the social gath-
ering!
The executive and various
committees of the club work
very unselfishly for the good of
the community in the field of
culture and also, make every
effort to bring the members and
friends together in interesting
social activities. So, a good turn-
out would be most gratifying to
them.
Grand Concert
Another item of interest ann-
ounced by the IcelEmdic Canad-
ian Club, is a Grand Concert to
Ný tegund
STRÁBERJA
BARON SOLEMACHER. fcessi óvið-
jafnanlega tegund, framieiðir stærri
ber úr hvaða sæði sem er.'Blómgast
átta vikur frá sáningu. Ræktun auð-
veld. Greinar (runners) beinar og
liggja ekki við jörðu, framleiða þvi
stór og mikil ber. Hafa ilm viltra
berja. Ásjáleg pottjurt og fín í
garði. Sáið nú. Pantið beint eftir
þessari auglýsingu. (Pakkinn 25c)
(3 pakkar '50c) póstfrítt.
FRl—Vor stóra útsœðisbók fyrir 1948
Stœrri en nokkru sinni fyr 30
DOMINION SEED HOUSE
Georgetown, Ontario
be held Monday, May lOth, at
8.15 p. m. in the Good Templar
Hall, Sargent and McGee St.
This concert marks the conclus-
ion of this season’s activities,
and it promises to be highly ent-
ertaining and interesting. Com-
plete plans have already been
made for the program which is
built around the music of twelve
Icelandic composers. A fine
quartette, vocal soloists, Mrs.
Elma Gíslason and Mr. Elmer
Nordal, and violin soloist, Irene
Thorolfson, will render this
music. Mrs. Louise Gudmunds,
who is in charge of arrange-
ments, will give a sketch on —
“The History of Icelandic Mus-
ic”, which, I am told, is the first
áddress ever given on that sub-
ject on this continent.
Look for further announce-
ments about this concert during
the next few weeks. L. M. G.
Ársfundur og skemtisamkoma
Leifs Eiríkssonar félags Islend-
inga í Fargo og Moorhead verð-
ur haldinn á miðvikudaginn, 28.
apríl, klukkan 6.30 í Moorhead
Country Club.
Mr. Carl J. Freeman, forseti
félagsins, stýrir fundi og skemti-
skrá sem að fylgja kvöldverði.
Verður aðal ræðumaður sam-
komunnar, lögfræðingurinn Nels
G. Johnson, ríkislögsóknari fyr-
ir Norður Dakota, en séra Egill
Fáfnis á að skemta með ein-
söngvum. Eru þessir menn svo
vel og víðkunnir að allir hlakka
til fróðlegrar og skemtilegrar
stundar.
Er vonandi að Islendingar
víðsvegar að geti sótt þetta mót
og eru þeir beðnir að panta að-
göngumiða fyrirfram frá Mrs. P.
H. Blue, 1106—11 th St. N., Far-
go, N. Dakota, sem kosta $2.50
fyrir hvem.
Umsjónarnefnd samsætisins
eru embættisfólk félagsins: Carl
J. Freeman, forseti; John Jó-
hannesson, vara-forseti; Mrs. P.
H. Blue, skrifari; og Mrs. Sidney
S. Bjomson, féhirðir. Er það
ósk nefndarinnar og allra félags
meðlima að sem flestir komi og
njóti skemtilegs kvölds á meðal
landa sinna.
VERZLUNARSKÓLANÁM
Aldrei hefinverið eins nauðsynlegt og ein-
mitt nú, að hafa verzlunarskóla mentun,
og það fólk sem hennar nýtur hefir venju-
lega forgangsrétt þegar um vel launaðar
stöður er að ræða.
Vérhöfum nokkur námsskeið til sölu við
fullkomnustu verzlunarskóla í Winnipeg.
Spyrjist fyrir á skrifstofu vorri þessu
tviðvíkjandi, það margborgar sig.
The Viking Press Limited
Banning og Sargent
WINNIPEG MANITOBA