Heimskringla - 12.01.1949, Síða 3

Heimskringla - 12.01.1949, Síða 3
WINNIPEG, 12. JANÚAR 1949 HEIMSKRINGLA 3. SIÐA Maðurinn, sem íslenzkaði Reykjavík Þegar Ulstrup landfógeti and- aðist (1836) var Stefán Gunn- laugsson sýslumaður í Gull- 'bringu og Kjósarsýslu, settur landfógeti og bæjarfógeti í Reykjavík. Stefáni er svo lýst að hann hafi verið einkennilegur maður, gáfaður vel, en undarleg- ur 1 ýmsu, duglegur lögreglu- stjóri og að öðru leyti góður em- bættismaður. Þegar Dillon lá- varður bjó hjá Mad. Sire Ottesen (veturinn 1934 — 35) kyntist hann Stefáni og segir svo um hann: “Hann var liðlegur, skemtilegur maður, ef til vill full hreykinn af sýslumanns tign sinni og vildi gjarna að aðrir hefði sama álit á henni”. Eg hygg ag dómur sögunnar verði sá, að Reykjavík hafi aldrei átt röggsamara yfirvald en hann var. Og hann er fyrsti embættis- maðurinn hér, sem af brennandi áhuga reynir að útrýma þeirri ó menningu sem hér var á öllum sviðum, og hikaði ekki við að beita embættisvaldi sínu til þess. Hann hefir sennilega fyrstur manna hafist handa um það að koma í veg fyrir umferðaslys, þvi að hann gaf út bann við því að menn mætti ríða hart um götur bæjarins. Áður þótti hinn mesti mannsbragur að því, að spretta úr spori innanbæjar og sýna hvað klárarnir gæti. Benti landfógeti á aðgangandi fólki og bömum gæti stafað hin mesta hætta af slíkri gapareið og mundu allir dæmdir til sekta, sem ekki hlýddu banninu. Hann vissi að margir fóru óvar- lega með eld og ljós, og hver hætta gat af því stafað. Þess vegna gaf hann út áskorun til allra húseigenda um það að sjá um að allrar varúðar væri gætt um meðferð á eldi. Hann var og hvatamaður að stofnun bæjarstjórnar í Reykja vík. Það var eftir tillögu hans, að Kreiger stiptamtmaður gaf út 4. nóv., 1836 erindisbréf í 18 greinum fyrir bæjarfulltrúa í Reykjavík, en það nafn var áður óþekt hér. Eftir þessu erindis- bréfi áttu fulltrúarnir að vera fjórir — þrír kosnir af húseig- endum og úr þeirra Chópi, en sá fjórði af tómthúsmönnum, sem hæfir teldust til að fara með kosn ingar rétt. Skyldi bæjarfógeti tilnefna þrjá menn er hann teldi hæfasta úr þeirra hópi til að vera í kjöri, og svo kosið um þá. Var fyrsti fundur kosinna bæjarfull- trúa haldinn 20. nóv. 1836, og þar með hefst saga bæjarstjórnarinn- Árið 1838 fekk hann útmælda byggingarlóð fyrir austan læk- inn nokkuð fyrir sunnan brauð- söluhús Bernhofts og reisti þar timburhús, sem talið var þá feg- ursta húsið í bænum. Þetta hús stendur enn, en bygt var við það síðar. Guðmundur landlæknir Björnsson eignaðist þetta hús og bjó þar lengi, en nú er það eign ríkisins. Sá var ljóður á, að enginn veg- ur var að þessu húsi og lækurinn óbrúaður fyrir framan það. — Haustið eftir gengust bæjarfull- trúarnir fyrir borgarafundi til þess að ræða um vegarlagningu að húsi bæjarfógeta á kostnað bæjarins. Menn komu á fundinn en svo gerðist sá merkilegi at- burður, að þegar þetta mál kom á dagskrá, hurfu borgararnir allir af fundi, og varð það því hvorki rætt né atkvæði greidd um það. Varð bæjarfógeti því sjálfur að kosta vegarspottann og setja brú á lækinn. Þetta atvik lýsir ofurlítið þeim hugsunarhætti, sem þá ríkti í bænum. ar. Hann var því mjög fylgjandi að latínuskólinn væri fluttur frá Bessastöðum til Reykjavíkur vegna þess að hann sá að það mundi hafa góð áhrif á bæjarlíf- ið að helstu mentafrömuðir lands ins ætti þar heima. En lengst mun halda nafni Stefáns Gunnlaugssonar á loft barátta hans gegn dönskum á- hrifum. Hann vildi gera Reykja- vík að ‘íslenzkri menningarborg’ á fslandi og verður nokkuð sagt frá þessu hér á eftir. Hús Stefáns stendur enn Þegar Stefán varð sýslumaður í Gullbringu og Kjósarsýslu, settist hann að í svonefndum Brúnsbæ, sem var nr. 4 við Tjarn- argötu. Brúnsbær var upphaflega beykishús “innréttinganna” en svo eignaðist ekkja Bruuns fangavarðar bæinn og bjó þar lengi. Upp frá því var hann kall- aður Brúnsbær og var hinn myndarlegasti. — Um 1830 var hann rifinn og timburhús bygt á ióðinni. Bjuggu þarna margir merkir menn auk Stefáns, svo sem Savignac, Jörundur hunda- dagakonungur, Bjarni amtmaður Thorarensen, Einar Helgason snikkari, faðir Helga E. Helga- sonar skólastjóra, Gísli Magnús- son adjunkt og Steingrímur Thorsteinsson skáld. Ekki þjó Stefán þama lengi. Fyrstu tilþrifin Stefán var fyrst settur land- fógeti 1836, en sama ár var em- bættið veitt Morten Tvede sýslu- manni í Suður Múlasýslu. En honum mun hafa þótt embættið umsvifamikið og vandasamt. — Nokkuð er það, að ári seinna fengu íþeir Stefán konungsleyfi til þess að hafa embættaskifti. Gerðist nú Stefán land- og bæj- arfógeti og bélt því embætti úm 10 ára skeið. Þegar Stefán tók við bæjarfó- geta embættinu var mikill drykkjuskapur og óregla í Rvík og ryskingar tíðar. Kaupstaður- inn var að visu ekki stór, miðað við það sem nú er, því að íbúar voru ekki nema um hálft sjöunda hundrað. En þá var selt áfengi í hverri búð, bæði í flöskum og staupatali. Og menn hímdu í búð- unum alla daga ýmist til að kaupa áfengi eða þá í von um að fá einn og einn sopa úr lekabytt- unni fyrir eitthvert viðvik. Búð- ir voru þá einnig opnar á sunnu- dögum. Átti það að vera gert til þess að ferðamenn gæti verzlað en reyndin varð sú, að þá var mest megnis selt áfengi. Þá var og “Klúbburinn” og sátu menn þar að drykkju öll kvöld og fram á nætur. Enn fremur voru ýmsir sem seldu á- fengi í laumi þótt það væri ekki leyfilegt. Klúbburinn var eina samkomu- hús og veitingahús bæjarins, og var ekki í annað hús að venda fyr ir þá, sem vildu fá sér hressingu. Þetta þótti Stefáni óhæfa. Hann ákvað því að reyna að koma hér upp kaffihúsi er drægi fólk frá Klúbbnum. Gaf hann því út aug- lýsingu til borgaranna og skoraði á þá, sem vildu reka slíkt veit- ingarhús að gefa sig fram. Og nokkrum dögum síðar gaf hann út aðra auglýsingu: “Borgari í Reykjavíkurbæ, hr. Einar Hákonarson hefir öðlast rétt til að halda kaffihús, hvers vegna gestir hér eftir munu ekki þurfa að bregða þessum bæ um að hér fáist ekkert að drekka nema brennivín (Dáradrykkur), cg þess vegna hljóti aðkomu- menn jafnan að vera druknir, ser til skaða og svívirðu”. Stefáni var og mjög ant um það að koma upp sem bestu lög- reglu eftirliti í bænum. Þóttist hann vita að bæjarbragur allur mundi lagast ef hann gæti feng- ið reyndan og áreiðanlegan lög- regluþjón. Hann skrifaði því Bræstrup yfirlögreglustjóra í Kaupmannahöfp og bað hann að útvega sér úrvals lögregluþjon. Bræstrup útvegaði honum mann. En hann reyndist Stefáni illa. Þetta var Hendrichsen, er gerði sig alræmdan hér í bæ með fram- ferði sínu og drykkjuskap. Danskur bær Um þessar mundir var Reykja- vík ekki íslenzk, miklu fremur mátti telja hana danskan bæ. — “Verzlunarstéttin var enn að mestu leyti dönsk og verzlunar- mennirnir íslenzku sömdu sig að þeirra háttum. Alt var skráð á dönsku í verzlunarbækurnar. — Allar embættisbækur og nálega allar réttargerðir voru færðar og samdar á dönsku, þótt íslenzkir væru embættismenn og málsað- iljar”. Þess er getið að Hoppe stipt- amtmaður kærði það fyrir stjórn inni 1845 og Grímur Jónsson amtmaður hefði tekið upp þann sið að skrifa sér bréf á íslenzku, og vill að honum sé skipað að skrifa öll bréf til sín á dönsku*). Stefán getur þess á einum stað, að þegar hann hafi tekið við em- bættinu hafi látúnsplata verið á skrifstofuhurðinni og á henni staðið: “Contoiret er aabent fra Klokk en 9 Formiddagen til Klokken 2 Eftermiddagen og fra Klokken 4 — 7 Eftermiddagen”. Málið í bænum var danska og dönsku kaupmennirnir höfðu svo að segja ráðið hér lögum og lof- um. Þetta líkaði Stefáni illa, en það var þó ekki fyr en síðar að hann reis upp gegn dönskunni. Þá var hann þegar orðinn illa séður af kaupmönnum fyrir afskifti sín af áfengisverzluninni í bænum, og skal nú fyrst frá því sagt. Við ramman reip að draga í þessari baráttu hafði Stefán stiftsyfirvaldið oftast á móti sér og var því við raman reip að draga. Stiptamtmaður dró eigi aðeins taum kaupmanna, sem hér höfðu mestra hagsmuna að gæta, heldur stælti hann einnig fólkið gegn bæjarfógeta. Um þessar mundir tíðkuðust mjög hin orðlögðu “píuböll”, þar sem jafnan var mikið um óreglu. Stefán var ætíð tregur til að veita leyfi fyrir slíkum dansleikum, og ef hann gerði það, var það ætíð með því skilyrði að dansleiknum væri slitið eigi seinna en kl. 2 um nótt, “til þess að enginn verði ófær til vinnu næsta dag”. En oft synjaði hann um leyfi, og þá var farið til stiftamtmannsins og hann veitti leyfi. Árið 1843 fekk Stefán leyfi til ársdvalar erlendis og dvaldist þá í Kaupmannahöfn. Þar komst hann í kynni við “Hið íslenzka hófsemdarfélag”, sem Hafnar-ís- lendingar höfðu stofnað þá fyrir skemtsu. Leist honum mjög vel á þennan félagskap, og það varð fyrsta verk hans, er hann kom heim, að stofna hér bindindisfé- lag meðal borgaranna og fekk hann dr. Pétur biskup í lið við sig. Félagið var stofnað 16. jan- úar 1847 og voru stofnendur 24 en félagsmenn urðu seinna 32. Þá hafði og verið stofnað annað bindindisfélag fyrir skólapilta, og var talið að um 100 manns hefði veri& í þessum tveimur fé- lögum, er flest var. Nú mun Stefán hafa talið að hann hefði komið ár sinni vel fyrir borð og væri sér óhætt að ganga á lagið. Rúmum mánuði eftir að bindindisfélagið var stofnað, gaf hann út svofelda auglýsingu: “Þeir, sem drekka og drabba, samt styðja daglega krambúðar- borðin, verða skrifaðir í bók og fá engan styrk úr fátækrasjóði”. Stiptamtmaður mun hafa litið svo á kð bæjarfógeti hefði ekkert vald til að gefa út slíka auglýs- ingu, nema með sínu leyfi, og enginn lagastafur væri fyrir þessu. Mun úr þessu hafa orðið *) Um Hoppe stiptamtmann var kveðin þessi bænaskrá til konungs: Hvis endelig vi have maa et Bæst til Ovrighed og Stiptamtmand heroppe, saa giv os da en veritabel Hest istedetfor en dum og doven Hoppe. nokkur rekistefna, en Stefán svaraði með nýrri auglýsingu 1. júní: “Landeyður, sem daglega styðja krambúðarborðin, og sum- part leita ekki sinnar atvinnu, en súmpart svalla eða kaupa óþarfa, geta ekki vænst seinna meir, nær að herðir, að fá nokkurt lífsupp- eldi af fátækrasjóðnum, þar eð politíið mun um annast í tíma að rita nöfn þeirra í sína bók, til frekari löglegrar meðferðar skv. kgl, reglugerð frá 8. jan. 1834 6. °g 23 gr” En svo lét hann ekki sitja við þetta. Viku seinna gaf hann enn út auglýsingu og var hún á þessa leið: “Þar eð sunnudagurinn er ætl- aður til helgihalds og hátíðar fyrir menn og skepnur, en það lítur út fyrir að sumir, einkan- lega þeir, sem vanhelga hann með drykkjulátum og hangsi í búðum hafi gleymt því lögmáli, þá finn eg miig orsakaðan til að brýna fyrir almenningi, að ekki sé leyfi legt eða megi ætlast til, að kaup- menn hafi verzlunarbúðir sínar opnar nema frá kl. 4. e .h. nær nauðsyn krefur að afgreiða land- ferða- eða sjómenn, en engan veg inn fyr en kl. 4 nema í lífsnauð- syn, ef að höndum bæri, og að öll verzlun fyrir téð tímabil er . skýlaust fyrirboðin í tilskipun frá 26. marz 1845, 1., 2. og 5. gr., hvað hér með auglýsist til nauð- synlegrar eftirbreytni, undir eins og eg brýni fyrir öllum hlutað- eigendum, að skeinking áfengra drykkja er ætíð fyrirboðið í verzl unarbúðum, en þó mundi það einkum verða athugavert, ef ein- hvers staðar yrði lítið annað selt á helgidögum en áfengir drykk- ir, sem svo oft hafa orðið lands og lýðs tjón”. Þótt auglýsing þessi sé stíl- uð til almennings, er auðfundið að hún er beinlínis aðvörun til kaupmanna, enda kom það fram seinna. Rosenörn stiptamtmaður Hoppe lét af stiptamtmanns- embætti á öndverðu ári 1847 og tók þá við M. K. Rosenörn kamm- erjunkar. Segir Klemens Jóns- son að hann hafi verið duglegur embættismaður, en Jón biskup Helgason segir að hann hafi ver- ið “röggsamt og viturt yfirvald”. Þó fæ eg ekki séð að Reykjavík hafi staðið neitt gott af honum. Um afskifti hans af Reykjavík- urmálum er það helst að segja að hann fyrirskipaði að öllum götum í bænum skyldi gefin nöfn og öll hús tölusett. Hann fyrir- skipaði einnig að á Lækjartorgi skyldi haldinn markaður tvisvar á ári, eftir danskri venju, og markaðsdagar vera 8. — 10. maí og 24. — 29. september. Sú fyrir- skipun varð aldrei annað en dauð ur bókstafur. Hann ætlaði að ræna Reykja- vík Ullarstofutúni, Hólakots- túni (Biskupsstofut.) og Mels- húsatúni. Helt hann því fram að konungur ætti þessi tún. Þau hefðu sem konungseign verið af- hent “innréttingunum” á sínum tíma, en þar sem þær væri úr sög- unni ætti túnin að falla til kon- ungs aftur. Þessu mótmæltu bæj- arfulltrúar og lauk því svo að konungur slepti öllu tilkalli um túnin og fekk bærinn eignar- heimild á þeim. Barnaskóli hafði verið í Reykjavík síðan 1830 og verið haldið uppi með styrk úr Thor- killisjóði. Það var eitt af Rosen- örns verkum að taka styrkinn af skólanum og var Reykjavík síð- an barnaskóla laus í 14 ár. Aftur á móti tókst honum að hafa fé út úr íslendingum því að hann efndi til samskota fyrir ekkjur og börn danskra her- manna, er fallið höfðu í stríðinu við Þjóðverja og söfnuðust 6700 ríkisdalir. Rosenörn var hér ekki lengur en til sumarsins 1849. Þá var hann kvaddur til Danmerkur og gerður innanríkisráðherra. Von- uðu þá ýmsir fslendingar, “að hann kynni úr ráðgjafasessi að reynast fslandi vinveittur og styrkja hin stjómlegu áhugamál landsmanna. Sú von rættist þó ekki, nema síður væri”, segir dr. J- H. Framh. AFMÆLISFAGNAÐUR Laugardagskvöldið 11. des. var glatt á hjalla á heimili Páls Stefáns Stefánssonar í Framnes- þogar rúmir fimtíu vinir ruddust inn til þess að sam- gleðjast með Palla á 65. afmælis- degi hans. Þessari viðhöfn stýrði sú er þetta ritar. Var skemt með ræðum,' söng og tveimur frum- sömdum kvæðum, eitt frá B. J. Hornfjörð, hitt frá Friðrik Sig- urðson samið fyrir hönd Magnús- ar Gíslason. Var Páli gefinn hægindastóll, fótaskemill og raflampi frá gest- unum, nokkrar prívat gjafir og skrautrituð skrá frá starfsnefnd Árdals safnaðar, afhent af hr. Magnúsi Gíslason, sem vottur um hans mikla starf í kirkjumál- um. Páll þakkaði komuna með vel völdum orðum. Palli hefir lifað á fyrnefndu heimili síðan hann flutti þangað með foreldrum sínum 1901, þeg- ar þau flúðu frá ísafoldarbgyð- inni í flóðinu. Hefir það heim- ili verið eitt af helztu heimilum Framnes-bygðar, þar sem gleði og góðvild hefir ávalt ríkt. Palli er söngelskur maður og hefir ávalt tilheyrt söngflokk- um bygðarinnar, fyrir söfnuðinn, fslendingadaga o. s. frv. Hefir hann tekið þátt í sjón- leikjum, og ávalt haft vandasöm stykki og gert þeim góð skil. Munu margir muna vel eftir honum í mismunandi gerfum. Palli hefir ávalt verið tryggur vinur og góður nágranni, sýndi það sig bezt í þessu tilfelli þar sem unga fólkið í nágrenninu j stóð fyrir þessari myndarlegu veizlu. Mun það ef til vill vera í minni hans og allra vinanna fyrir lengri tíma. Andrea Johnson VINAR MÁL Vissu þá hér vita menn, vetur okkur kælir senn. íslendingar eru þar, altaf sömu hetjurnar. Þeirra lund er þannig gerð, þá ef kallar einhver ferð eða veislu ætla til, aldrei hræðast vetrar byl. — Engan byl við hingað heim, höfum fengið, — vel sé þeim, sem að veðrið góða gaf, greiði sá er sprottinn af, velvild, — máttar mætum frá, mannsins til sem heiðra á. Vinur allra víst hann er, verður reynslan þannig mér. — Hér við ljúfan höfum fund, hér er vina gleði stund. Andans f jör er einkunn hans, aldurshnigna bygðar manns. Æfin því varð aldrei dimm, árin sextíu og fimm. Landnáms rún þó líta má, letrið sézt þar höndum á. — * ' í t Félagslífi öllu ann, ætíð bygð svo reyndist hann, sannur hennar sonur var, sýndi dugnað framsóknar. Framnesbúar flytja þér, fyrir það sem liðið er, að ellin verði ætíð þín, eins, — þá sól í heiði skín. — Og nú vekja ætla eg máls, í afmæli míns vinar Páls. Hjartanlegt með handarband, hér áð venju Isalands. Þakka fyrir eitt og alt, er frá byrjun þúsund falt, sem hann hefir gert mér gott, en greiðslu fyrir sýnt ei vott. Óskum með eg ætla nú, endurgjalda, — mín er trú, signi gæfan sérhvert spor, sem hann gengur meðal vor. Og þótt verði aldur hár, SYKUR T0MATAR 127o til 147«, sykurefni Fyrstir allra tómata er framlelða þroskaða ávexti Hugsið yður marga sæta tómata ávexti með meiru en 12% sykur. Ekkert líkt því nokkru sinni áður — Veitið athygli fegurð og jafnvægi lima avaxtarins, oft tvö fet á lengd. Þœr eru smærri en vanalega, en útlitið og sætleik- inn er svo mikill, a« ekkert likt því hefii áður sézt. Þœr halda vel og eru fjarska _ íar í fína rétti, sal- at, sósur og juice o.s. frv. —Ömótstæðileg. Verið fyrstir að ná i þær. Pantið nú. (Pk. 15$ póstfrítt) ætíð drottinn sérhvert ár, gæti hans, — þá gengur vel, gegnum dauðans myrkva jél!— B. J. Horníjörð TIL PÁLS STEFÁNSONAR á 65 ára afmæli hans 11. desember 1948 Mælt fyrir munn Magnúsar Gíslason, forseta Árdalssafnaðar I. Afmælisbarn sem altaf vex um er vert að skrifa, talan fimm og tugi sex tókst þér ár að lifa. Um eygtamótin merku þín minnast allir vilja; það ljúf erískylda líka mín ljóða stef að þylja. Allir við þig eru í skuld afreks fyrir verkin; bygðin er þess ekki duld, æði víða merkin. Engann hef’ eg áður þekt, sem eins er kostum búinn: gengur fram með gleði og spekt; það gerir sanna trúin. II. í víngarði Drottins þú vinnur og vanst, og vinnur á meðan þú getur.. Aurunum betri sá arður þér fanst, sem alvitri dómarinn metur. 1 Þú hefir ei safnað þér fúlgum af fé, en fegursta líferni vandað; mætasti auðurinn meina eg sé sem mölur og ryð fær ei grandað. Fyrir safnaðarmálum og sálu- hjálp manns sigrandi hefir þú barist; og öllu sem lýtur að umbótum lands, en ástleitni kvenfólksins varist. Svo bið eg þess, vinur, þitt líf verði langt, svo ljúfur og samvinnuþjáll. Að vistast á himnum ei verður . þér strangt. Vertu svo blessaður, Páll! Frá höf.: Fræða vers þú færð hjá mér; friðar hressi sólin, gefi þessar gjafir þér gleði um’blessuð jólin. Að aftni skíni yzt frá jól, eyði pínu harma; hærur þínar signi sól ag silfur krýni bjarma. F. P. Sigurðsson Wedding Invitatlons and announcements H j úskapar-boðsbréf og tilkynningar, eins vönduð og vel úr garði gerð eins og nokkurstaðar er hægt að fá, getur fólk fengið prentuð hjá Viking Press Ltd. Það borgar sig að líta þar inn og sjá hvað er á boðstólum.

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.