Heimskringla - 15.06.1949, Blaðsíða 1

Heimskringla - 15.06.1949, Blaðsíða 1
TRY A "BUTTER-NUT" LOAF CANADA BREAD CO. LTD. Winnipeg, Man. Phone 37 144 Frank Hannibal, Mgr. TRY A "BUTTER-NUT" LOAF CANADA BREAD CO. LTD. Winnipeg, Man. Phone 37 144 Frank Hannibal, Mgr. •#################################, LXIII. ÁRGANGUR WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 15. JÚNÍ 1949 NÚMER37. ísienzki skrúðvagninn á 75 ára afmælishátíð Winnipeg-borgar 1949 Hinum miklu hátíðahöldum í tilefni af 75 ára afmæli Winni- peg-borgar er nú lokið. Má með fylsta rétti um þau segja að hér hafi ekkert áður sézt er í sam- jöfnuð komist við þau. Eins og önnur þjóðabrot bæjar- fns tóku íslendingar þátt í þeim 6. júní, en þá fór skrúðför um helztu götur bæjarins. Var hún sérstaklega til þess ætluð, að sýna þróunar- og menningarsögu borgarinnar. En til hennar hefir hvert þjóðarbrotanna eitthvað lagt. Vagn íslendinga þótti sóma sér hið bezta í skrúðförinni. Eins •og sjá má á myndinni, var eld- fjallið Hekla aftast á honum og rauk úr því eins og fyrir eða eftir gos. íslenzkur bær var í hlíðum fjallsins. í sama stafni vagnsins var Fjallkonan. En yfir alt miðbik hans var regnbogi sem brú milli íslands og Mani- töba nokkurskonar merki vin- áttu. Þar var sá flatbotnaði bátur sýndur, er íslendinga flutti síð- asta áfangann frá Winnipeg til Nýja-fslands, segir á blaði, sem myndinni er lýst á. Á vagninum voru menn úr flestum þeim stöðum, sem ís- lendingar hafa hér með höndum haft. Á hlið vagnsins stóðu orðin: Law, Liberty, Literature (Lög, frelsi, bókmentir). Þar stóð ennfremur: Four generations of Icelandic descent salute Winnipeg on it’s 75 birth- day (Fjórar kynslóðir íslendinga hér fagna 75 ára afmæli Winni- pegborgar). Vagninn var um 40 fet á lengd og 12(4 fet á hæð. Á að líta í skrúðförinni minti vagninn og litir hans undir eins á ættjörðina, sögulandið. Hugmyndina að gerð vagnsins og þess er hann sýndi, átti Gissur Elíasson .starfsmaður Winnipeg School of Art. Það er nú óvíst hvað mikið sézt af því, sem skrúðvagnar sýna, er sem snöggvast bregður fyrir. En það eitt er víst, að “sögulandið” hafði því meira og lærdómsríkara að sýna, sem það var lengur skoð að. Það var engin þurð á efni. íslendingar mega vera vel ánægð' ir með sýningarvagn sinn í hinni fögru sögulegu skrúðför. ÍSLENZKT KJÖRDÆMI Séra Philip M. Pétursson Norquay kjördæmi, sem ný- lega var myndað eða klofið út úr Selkirk kjördæminu og nefnt eftir einum af ágætustu forsæt- ísráðgjöfum þessa fylkis, er ef til vill íslenzkasta kjördæmið í Canada. Bæði fyrir þessar sakir og hitt, að nú sækjir íslending- ur þar um kosningu, hefir kjör- dæmið, verið talsvert á orði með- al íslendinga. Um þingmensku, þar sækir sr. Philip M. Pétursson, sem meðal landa sinna er einn kunnasti ís- lendingur, sem fæddur er í þessu landi fyrir þátttöku sína og störf í íslenzkum málum. Hann er forseti Þjóðræknisfél- ags íslendinga í Vesturheimi og prestur Sambandskirkjunnar í Winnipeg og stýrir kirkjumála. Þó langt sé frá, að sr. Philip geri nokkra sérstaka kröfu til fylgis sér frá íslendingum fyrir að hafa lagt sig það eftir íslenzku máli, að geta veitt stofnunum þessum forstöðu, teljum vér hann eiga viðurkenningu skilið fyrir það. En auðvitað sækir hann um þing- mensku, sem einn af borgurum þessa lands og því fylgir að verða dæmdur að hæfileikum til sem aðrir fyrir stöðuna. En svo mikið leyfist manni þó að segja, að þeir séu ekki lakari fyr- ir það, að hann er íslendingur. Á móti honum sækja tveir um kosningu. Er eflaust þingmanns- efni sambandsstjórnar þar hans aðal keppinautur. En það er ein mitt höfuð atriði þessara kosn inga að gera enda á valdatíð lib- erala, sem of löng er orðin og sýkt, og spillist því meir sem lengri er. Á fundum sr. Philips hafa menn kynst viðhorfi hans til þjóðfélagsmálanna. Óbeinllínis hafa þeir um leið kynst einum hinum ágætasta og skemtilegasta manni persónulega, sem hægt er að hugsa sér. Hann ann jafnræði og bættun hag alþýðu og hverju góðu máli. Stuðningur hans eða viðhorf mun í öllum tilfellum miðast við það, sem hann veit rétt ast og sannast, en alls ekki við fyrirfram ákveðnar kreddur í nokkru máli. Eftir að við eitt kvöldið ný- lega höfðum nokkrir hlýtt á út- varpsræðu sr. Philips, varð ein- um áheyrenda að orði, að hann hefði ekki í háa tíð hlustað á pólitíska rseðu á eins fögru máli. Þetta lýsir ekki einungis góðum hæfileikum, heldur jafnframt prúðmennsku, en sem hvort- tveggja má segja um, að hinn al- máttugi sýnist oft ekki hafa haft nóg af handa öllum. Séra Philip M. Pétursson hef- ir þegar á unga aldri sýnt að hann er manndómi og góðum hæfileikum gæddur, sem vér, sem íslendingar, ættum að.fagna og sýna í verki, að við metum, þegar tækifæri gefst eins og nú gerir í íslenzkasta kjördæmi þessa lands. Það er oss heill þjóðernislega að eiga þá menn í æðri trúnaðarstöðum þessa lands sem starf sitt vinna svo, að bæði oss og þjóð þessa lands er til vegs og sæmdar. Sjötím ára tiirg Frú Hólmfríöur Pétursson Frú Hólmfríður hefir unnið mikið og göfugt starf í vestur- íslenzku þjóðlífi. Duldist ekki að gestirnir voru þarna komnir til að þakka henni það jafnfram hinu, að óska henni langrar og sólríkrar æfi. Ein af mest virtu og vinsæl- ustu íslenzkum konum hér vestra, frú Hólmfríður Péturs- son, 45 Home St., Winnipeg, átti 70 ára afmæli 10. júní. Var henni af hópi kvenna úr Sambandssöfn- uði haldið hið veglegasta sam- sæti þann dag í einnum gilda skála (Homestead) þessa bæjar. Frú Guðrún Skaptason hafði orð fyrir konunum og ávarpaði heið- ursgestinn, með því ágæta erindi, er hérmeð fylgir. Sunnudaginn 12. júní, höfðu og börn Hólm- fríðar og tengdabörn opið gesta- boð að heimili hennar og sátu það um 200 gestir. Voru komumönnum bornar hinar rausnarlegustu veitingar, bæði í sölum hússins og á svöl- um úti. Minti þetta mikla heimili mig þá sem oftar á það sem í sögunum segir af forni íslenzkri gestrisni. Ræöa frú Guörúnar Skaptasonar: Fyrst af öllu langar mig til að þakka frú Önnu Pétursson fyrir þá velvild og þann heiður er hún sýndi mér, með því að biðja mig að segja fáein orð við þetta tækifæri. Þessi samfundur er nokkuð sérstæður, afmælis barnið sem við óskum að heiðra og gleðja, er sjötugt í dag. Frú Hólmfríður Pétursson er 70 ára í dag. Hún hefir verið búsett hér í Winnipeg í 46 ár: Á því tímabili hefir hún áunnið sér ást og virð- ingu allra þeirra sem hafa haft tækifæri til þess að kynnast henni. Margfalt stærri hópur en sem er hér samankominn hefði óskað þess að vera hér til þess að gleðjast með henni og þakka henni óteljandi margar ánægju— legar samverustundir og óska henni alls þess bezta er forsjónin getur í té látið á þessu ári og mörg ókominn ár. Sérstaklega er það gleðiéfni fyrir hana, að systkini hennar hafa komið úr mikilli fjarlægð til að vera hjá henni á þessum áramótum, samgleðjast með henni yfir liðinni tíð. Þá rifjast upp svo margt, sérstaklega henn- ar óbilandi kjarkur, fórnfýsi og velvild til allra er hún náði til Það er fyrir atbeina kvenfélags Sambandssafnaðar að þessir sam- fundir hafa tekist svo vel, vina hennar og skyldmenna. Frú Hólmfríður hefir veitt þeim félagsskap stuðning allt frá byrjun til þessa dags. Hún hefir verið kjörinn heiðurs for- seti þess, þar að auk heiðurs for- seti Sambands frjálstrúar kvenn- félaganna; einnig er hún lífstíð- ar meðlimur í Unitarian General Alliance. Það má líka geta þess að hún er heiðurs forseti Jóns Sigurðssonar félagsins og ein af stofnendum þess. Stuðning hefir hún veitt þess- um félögum, svo aðdáanlega vel, ekki einu sinni með rausnarleg- um peningagjöfum heldur líka með trúfestu og hollum ráðum. Við viljum þakka henni, henn- ar góðu hæfileika og gáfur er hún notaði svo vel í þágu okkar íslenzka félagsskapar; ekki ein- ungis hér vestan hafs, það náði lengra, til ættlandsins íslands. Þeim hjónum auðnaðist að tengja saman vináttuböndin betur en nokkrir aðrir landanna beggja megin hafsins. Ung var hún gefin mikilmenni, þeirra,líf var svo samrýmt að þegar maður minnist á annað þeirra fylgir hugurinn hinu um leið. Frú Hólmfríður var fædd í Hraunkoti í Aðaldal í Suður- Þingeyjarsýslu, dóttir Jónasar Kristjánssonar. Ung kom hún til Ameríku, aðeins 14 ára. Settist fyrst að í Norður Dakota, þar kyntist hún fyrst dr. Rögnvaldi Péturssyni. Rögnvaldur var þá ungur maður með sterka löngun að mentast, en efnahagurinn lít- ill hjá flestum í þá daga. Það tók því kjark og bjartsýni, ekki síður en nú að giftast manni í þeim kringumstæðum. Þau giftust 1898, það sama haust innritaðist hann til guð- fræðisnáms við Meadville skól- ann í Pennsylvania. Eftir fjögur ár útskirfaðist hann með ágætis einkunn og styrk (Perkin’s Fellowship), til eins árs framhaldsnáms við Har- vard háskólann í Massachusetts. Enginn hefði getað verið hon- um samhentari, eða styrkt hann meira á hans mentabraut en Hólmfríður gerði. Eg man gjörla eitt kvöld er hann sagði okkur hjónum sögur frá þeim árum, með sinni skemti- legu fyndni. Sérstaklega var það frá þeim tíma er þeir voru við Harvard háskólann, Vilhjálmur Stefánsson, Thorvaldur Thor- valdson og hann sjálfur. Þá var það Fríða er bjargaði fjárhag þeirra frá strandi. Hún teygði svo úr dollurunum að það var yfirgengilegt. Og með hennar góðu glaðværð og ágætis matar tilbúningi farnaðist þetta alt vel. Við þekkjum öll sögu þeirra hjóna, þeirra baráttu fyrir frjáls- írúar hreyfingunni, og svo seinna myndun Þjóðræknisfélagsins, — myndun félaga víðsvegar um bygðir íselndinga. Þá var hús þeirra ætíð opið öllum sem komu til þeirra og var þeim veitt af mikilli rausn og innileik. Það hefir átt sér stað æ síðan. Fjórum sinnum fóru þau til ís- lands, 1912, 1921, 1930 og seinast 1937. Við hverja ferð óx ást þeirra á landinu og þjóðinni. Um leið kyntu þau góða landið okk- ar hér, og Vestur-íslendinga. — Þetta hefir haft ómetanleg áhrif til góðs fyrir framtíðina. Á þessum ferðum kyntust þau öðrum löndum og þjóðum. Eg man að hún sagði mér, að hvergi hefði farið betur um þau, en í Kaupmannahöfn. Þar hvíldust þau svo vel. Þar var líka svo margt fagurt að líta úti og inni, öll hin afar merkilegu söfn. Frú Hólmfríður hefir haft gaman að ferðast, því fátt eykur betur víðsýni andans. Hún hefir ferðast á landi, á sjó, og í loftinu. Við óskum að hún eigi eftir að ferðast meðal okkar mörg gleði- rík og farsæl ár enn, og njóta ástar og umhyggju elskulegra barna og barna barna. Guð blessi þig vina mín, hafðu þökk fyrir svo margt, sem væri hér of langt upp að telja. Guðrún Skaptason ÍSLENDINGUR ÞINGMANNSEFNI G. S. Thorvaldson, K. C. í Suður-Winnipeg-kjördæmi sækir G. S. Thorvaldson K.C. um kosningu til Sambandsþings- ins, 27. júní. Mr. Thorvaldson var fulltrúi fylkisþings Mani- toba, en sagði þeirri stöðu lausri, er hann ákvað að freista gæfunn- ar á hinu víðara sviði þjóðmál- anna. Mr. Thorvaldson vakti tals- verða athygli sem þingmaður. Hann var hispurslaus í gagn- iýni sinni jafnvel á stjórnina, sem hann fylgdi að máli eins og er um sölu á grófu korni hér var að ræða. Og með þátttöku sinni í málinu um meðferð lögreglu þessa bæjar á ölvuðum mönnum, sýndi hann vissulega hugrekki, sem óvanalegt er hjá yngri stjórnmálamönnum. Enda hefir hann þar átt hörðu að mæta. En aðalatriði máls hans var að rann- sókn yrði hafinn um hvað hæft væri í framburði ýmsra sakborn- inga um að þeim he^ði verið bannað símatal við heimili sín írá lögreglustöðum — og jafnvel sýndur hnefi lögreglunnar. Alt þetta er nú í rannsókn og er ekki að vita að eins þarflaust hafi verið að hreyfa því á þingi og margir ætla. Mr. Thorvaldson rekur lög- fræði störf í þessum bæ og fær hið bezta orð, sem dugandi og réttsýnn maður. Hann nýtur vin- sælda og trausts almennings að verðugu. Að lögin nái jafnt til allra og að réttvísinni sé sem bezt fullnægt telur hann verk- efni lögfræðinnar. Það er næsta trúlegt að Mr. Thorvaldson ætli sér að standa við þetta verkefni sitt mörgum fremur, þar sem hann ræðst á þau öfl í þjóðfélaginu, sem flest- ir veigra sér við að eiga glímuna við. Vernd laga og réttar almenn- ings er því miður oft takmörk- uð, vegna þess, að svo marga, sem eiginlega ber þar skylda til brestur þar áræði að ganga á hólminn, ef háir eiga í hlut. Ættu vesalingar hlut að máli mundi ekki á þeim standa. Mr. Thorvaldson hefir ef til vill þennan þingmannshæfileika fram yfir marga aðra og minnir um leið á uppruna sinn, forfeður, er ekki kunnu að hræðast. Petur Aksel Erikson og Lilja Sigvaldason voru gefin saman í hjónaband þ. 2. jnúí, s.l. af séra B. A. Bjarnason. Hjóna- vígslan fór fram á heimili Mr. og Mrs. Sigurður Sigvaldason, foreldra brúðarinnar, í Víðir Man. Brúðguminn er af dönsk- um ættum, sonur Mr. og Mrs. Oskar Erikson í Víðir, Man.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.