Heimskringla - 07.09.1949, Page 2
2. SIÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 7. SEPT. 1949
Óskar B. Bjarnason efnaverkfr.:
LÍFIÐ 1 SJÓNUM
Hafið tekur yfir sjö tíundu hluta
af yfirborði jarðar eða 361 millj.
ferkílómetra. Rúmmál þess er
nálægt 1370 milljónum rúmkíló-
metra. En það er til lítils að
nefna slíkar tölur. Víðátta hafs-
ins og rúmmál er svo mikið, að
erfitt er að gera sér grein fyrir
því.
Á umliðnum árum jarðsög-
unnar hafa stöðugt borizt föst
og uppleyst efni af yfirborði
jarðar með framburði ánna til
sjávar.
__Aldur sjávarins og
efnasamsetning
Menn hafa reynt að reikna út,
hve langt væri síðan sjórinn varð
til, eftir magni uppleystra efna
í honum og fengið útkomuna
100 milljón ára eða þar um bil.
Þetta var um aldarmótin síðustu.
Ekki veit eg hvort þessir út-
reikningar hafa verið endurskoð-
aðir, en mér virðist aðferðin ær-
ið vafasöm.
Meira en 30 frumefni hafa
fundist í sjónum með efnagrein-
ingu, og að líkindum finnst þar
vottur af flestum, ef ekki öllum
frumefnum.
Eitt efnasamband yfirgnæfir
þó, eins og kunnugt er, nefnilega
natríumklórið eða venjulega salt.
Seltan í úthöfunum hefur reynst
nálægt 35%, nokkuð breytileg á
ýmsu dýpi og ýmsum svæðum.
í sjónum finnast semsé hin
margvíslegustu efni en hann er
einnig auðugur að lífi, einkum
þó í tempruðu beltunum yfir
landgrunninum út frá ströndun-
um og annarsstaðar, þar sem
grunnsævi er.
Jurtagróður er einnig
þar til undirstaða lífsins
Ef við skoðum sýnishorn af
sjó undir smásjánni, sést að sjór-
inn er morandi af örsmáum líf-
verum, svokölluðu svifi. Svifið
heyrir til jurtaríkinu og sumt
dýraríkinu og kallast samkvæmt
því jurtasvif og dýrasvif. Svifið
er mestmegnis einselluverur,
sem eru háðar straumum og
hreyfingum sjávarins og berast
með honum algerlega ósjálf-
bjarga. Svifinu tilheyra einnig
hrogn fiskanna og nýklaktar
lirfur fiska og skeldýra.
í sjónum eins og á landi er
jurtagróðurinn eða jurtasvifið
undirstaða dýralífsins.
Sumir hafa ætlað að samanlagt
magn jurtagróðurs sjávarins
væri engu minna en gróður þur-
lendisins.
Jurtasvifinu tilheyra ýmis-
konar þörungar, svo sem græn-
þörungar, brúnþörungar, rauð-
þörungar og kísilþörungar, einn-
ig svokallaðir flagellatar.
Kísilþörungarnir eru mikil-
vægasti flokkur svifjurtanna og
getur stundum verið svo mikið
af þeim að þeir gruggi sjóinn.
Svifþörungarnir nota hin
ýmsu ólífrænu sölt, sem uppleyst
eru í sjónum til næringar og
mynda af þeim, ásamt kolsýru
sjávarins, hin lífrænu efni, sem
þörungarnir eru gerðir af.
Þessi starfsemi fer fram með
sólarljósið sem orkugjafa, eins
og hjá jurtunum á þurrlendinu
og er þannig fótósíntesa.
Af þessu leiðir, að jurtagróður
er mestur í efstu lögum sjávar-
ins, þar sem birta nær til.
Bakteríustarfsemi mikilvæg
Auk hins eiginlega svifs, lifa
ýmsar bakteríur í sjónum og er
bakteríugróður sjávarins ekki
síður mikilvægur en bakteríu-
gróður jarðvegsins, t. d. köfnun-
arefnisbakteríur, bennisteins-
bakteríur og rotnunarbakteríur
Ýmsir telja að mikið kveði að
starfsemi baktería, sem breyta
köfnunarefni, sem uppleyst er
sjónum, í leysanleg köfnunar-
efnasambönd þ. e. nítröt, sem á-
samt fosfötum, ganga fyrst til
þurðar í yfirborðslögum sjávar
ins, þar sem birta er nægileg til
að svifþörungarnir geti vaxið.
Nitröt og fosföt eru því tak-
markandi næringarefni fyrir
sjávargróðurinn eins og gróður
landsins.
Köfnunarefnisbakteríur eru
einkum á dýpri sjávarlögum og
verður því sjórinn í djúpunum
tiltölulega auðugur að nítrötum
Einnig myndast mikil næringar-
efni í botnleðjunni, þar sem
klofnun lífrænna efna fer fram
fyrir starfsemi rotnunarbakter-
ía.
Það er því mikilvægt skilyrði
fyrir lífið í sjónum, að djúpsjór-
inn blandist yfirborðssjónum og
auki þannig næringarsöltin
þeim lögum sjávarins, sem sólar
ljósið nær til. Þetta verður eink-
um þar sem straumar ná að
blanda sjóinn svo sem á land-
grunninu við ísland, en svæðið
suður og vestur af íslandi er
eitthvert auðugasta að lífi, sem
þekkist í öllum heimshöfunum.
Við góð skilyrði verður vöxtur
svifa stórkostlegur
Þar sem næringarskilyrði eru
góð, getur vöxtur plöntusvifsins
orðið feikilega ör og stórkostleg-
ur, sjórinn getur t. d. gruggast
af kísilþörungum og litast af
kísilþörungum eða litast græn
af grænþörungum eða litast rauð
ur af flagellötum. í íshafinu
getur gróðurinn t. d. orðið svo
mikill á vorin að. ísinn litast
grænn þar sem öldurnar skola
gróðrinum upp á hann.
Einnig er það þekkt, að sjór-
inn litast af dýrasvifi, t. d. er
stundum svo mikið af rauðátu á
síldarmiðum, að sjóinn litast
rauður á stórum svæðum.
Svifplöntur sjávarins eru fæða
fyrir svifdýrin og aftur fæða
fyrir fiska og stærri dýr. T. d.
er aðalfæða síldarinnar ýmis-
konar krabbadýr, einkum kalan
us finmarkikus eða rauðátan,
sem sáður var nefnd.
Sum botndýr t. d. ostrur og
önnur skeldýr, lifa nær ein-
göngu á kísilþörungum, bæði
sem lirfur og fullorðin dýr.
Stærstu skepnur jarðarinnar
skíðishvallirnir, sem sumir geta
orðið allt að 150. tonn að þyngd,
lifa að mestu leyti á svifdýrum.
Takið eftir að nytjafiskar og
dýr sjávarins, lifa á öðrum fisk-
um og minni dýrum og dýr þau
a þurrlendinu ,sem maðurinn
hagnýtir sér til matar, eru gras-
bítir.
Undirstaða alls lífs í sjónum
verður þá jurtalífið, á sama hátt
og jurtagróðurinn er undirstaða
lífsins á þurrlendinu.
Bláminn er eyðimerkurlitur
hafsins
Hitabeltishöfin eru fátæk að
lífi og litur hafsins á þeim svæð-
um er djúpblár. Bláminn er eyði-
merkurlitur hafsins.
Orsakir þess, hve heitu höfin
eru gróðurlítil samanborið við
tempruðu höfin og íshöfin, eru
margir. Aðalorsökin er að lík-
mdum sú, að engin eða lítil lóð-
rétt blöndun milli yfirborðsins
og dýpri vatnslaga á sér stað,
gagnstætt því, sem verður norð-
ar og sunnar, þar sem vetrarkuld
inn kælir yfirborð sjávarins svo
mikið, að yfirborðsvatnið sekkur
og hið efnaauðuga vatn úr djúp-
unum kemur upp á yfirborðið
og skapar skilyrði fyrir mikinn
gróður að vorinu og framan af
sumri.
2) má nefna að efnaskiptin
verða örari við hærra hitastig og
þess vegna eyðast næringarefn-
in fyrr í heitum höfum.
3) minni forði af nítrötum
vegna starfsemi vissra baktería,
sem breyta þessum efnum alla
leið yfir í köfnunarefni, öfugt
við starfsemi köfnunarefnisbakt-
eríanna, sem áður voru nefndar.
4) örari rotnun og þar af leið-
andi eyðast fljótt ýmis lífræn
efni í sjónum, sem annars gætu
orðið næring fyrir svifdýr.
Það sem efnagreining
leiðir í ljós
Ef við rannsökum með efna-
greiningu hve mikið er af nær-
ingarsöltum í yfirborði sjávarins
í heitu höfunum, kemur í ljós
að mjög lítið er af hinum tak-
markandi efnum nítrötum og
fosfötum samanborin við það
sem er í kaldari höfum.
í samræmi við þessar niður-
stöður er svo auðvitað það, að
mjög lítið veiðist af nytjafiski
í hitabeltinu.
Einu svæðin þar, sem skilyrði
eru fyrir auðugan þörungagróð-
ur og þar með fiskveiðar, eru
við vesturströnd Afríku og vest-
urströnd Suður Ameríku, en þar
við strendurnar er stöðugur
stráumur af sjó úr djúpum hafs-
ms upp til yfirborðsins.
Hin sami munur á gróðurbelt-
um hafsins kemur í ljós ef athug-
Manitoba Birds
RING BILLED GULL
(Larus delawarensis)
Long winged swimmers. In the autumn and winter the
adult has head and neck flecked with ashy brown, and has
yellow feet. Has a black ring about the bill near the tip.
Distinctions: Smaller than other gulls, lack of red and
the presence of dark ring on bill, and yellow legs are
distinctive.
The young are comparatively light in colour, much
spotted, tail mottled with extensive subterminal band;
dark bill with flesh coloured base. m
The adult is light in colour, showing indications of the
blue mantle on the back. Underparts nearly pure white,
peppered with fine dark bands. Has a sharp white tail;
yellow or greenish yellow bill with dark ring; yellow feet
and legs, with red eyelids and gapes.
Field Marks: Size, ring on the end of the bill and yellow
legs are distinctive.
Nesting: On the ground or on rocky, stony or marshy
shores.
Distribution: Across the continent, breeding over most of
the eastern and central Canada north to Great Slave Lake.
Probably the commonest of the large gulls throughout the
intericr, and the one most often seen on or about the lakes
and sloughs of the prairie regions.
This space contributed by
SHEA’S UJINNIPEG BREWERY Ltd.
MD-237
aðar eru skýrslur um veiði frá
mismunandi svæðum. Raunar er
það svo að langmestur hluti sjá-
varafurða fæst á norðurhveli
jarðar, 30° nbr.
í tölum verður samanburður-
inn eitthvað á þessa leið:
Heildarmagn fiskveiða og
hvalveiða á norðurhveli jarðar,
norðan 30° nbr., nemur árlega
r.álægt 10 milljónum tonna.
Á öllu miðbiki jarðar, frá 30°
nbr. til 30° sbr. nemur veiðin ár-
lega 0.44 miljónum tonna.
Og á suðurhveli, sunnan 30°
sbr. er veiðin ca. 4 milljónir
tonna, en langmestur hluti þess
er afrakstur hvalveiðanna.
Möguleikar um aukna upp-
skeruaukningu með tilbún-
um áburði
Þar sem jurtirnar í sjónum
.eru háðar sömu lífsskilyrðum og
sömu ólífrænu næringarefnun-
um og landjurtirnar,, hafa menn
látið sér detta í hug að “bera á”
sjóinn eins og jörðina, auka
uppskeruna af nytjafiskum með
tilbúnum áburði. Hugmyndin er
sjálfu sér góð, en virðist vera
óframkvæmanleg. Það þyrfti því
lík firn af áburði til þess að
nokkru munaði í hinu víðáttu-
mikla hafi. Þetta er þó ekki tóm-
ur hégómi. Eg minnist þess að
tilraunir voru gerðar í þessa átt
í skozkum veiðivötnum fyrir
nokkrum árum og báru greini-
legan árangur. Þarna var um svo
takmarkað vatnsmagn að ræða
að mögulegt reyndist að auka
jurtagróður og þá um leið dýra-
líf þess, með tilbúnum áburði.
Nú væri hugsanlegt að hag-
nýta gróður sjávarins beint, án
milligöngu fiskanna, veiða svif-
plöntur og svifdýr til manneld-
is. Á þessu eu þó ýmsir erfið-
leikar, sérstaklega gerir smæð
svifsins veiðina erfiða.
Svifþörungarnir eu auk þess
sagðir heldur slæmir á bragðið
— og kísilþörungar innihalda
mikið af kísilsýru.
Aftur á móti getur maður bú-
ið sér til góða súpu úr svifdýr-
um ekki ólíka rækjum á bragð-
ið.
Gerðar hafa verið tilraunir
með ræktun svifþörunga í gróð:
úrhúsum ef svo má segja, þ. e.
ræktun þörunganna fer fram á
landi í glertönkum fylltum sjó
og næringarsöltun bætt út í sem
áburður.
Ef þannig er séð fyrir öllum
nauðsynlegum lífsskilyrðum
þörunganna vaxa þeir og marg-
faldast mjög ört. (Frá tilraunum
þessum með ræktun svifþörunga
er sagt í síðasta hefti tímarits-
ins “Úrval”.)
Hér ber þó að athuga að kol-
vetni- og prótein-þörungar hafa
yfirleitt lágan meltanleikafakt-
or fyrir menn og eru þess vegna
lélegt fóður.
Fiskveiðarnar áfram hin
aðgengilegasta aðferð
En við getum gert ráð fyrir að
fiskveiðarnar verði áframhald-
andi hin aðgengilegasta og eðli-
legasta aðferð til að afla sér
fæðu úr sjónum.
Þá vaknar spurningin um það
hvaða áhrif veiðarnar hafa á fisk
stofnana. Um þetta var rætt í
síðustu grein í þessum flokki.
Það er sem sé aklunna að
flestir botnfiskar voru ofveiddir
fyrir stríð svo að við eyðingu la.
Veiðin hefur aukist aftur á
árunum eftir stríðið, bæði á fs-
landsmiðum og öðrum miðum.
sem fengu einskonar friðun á
stríðsárunum.
Og nú er hin bljnda tillits-
lausa sókn útlendinga á miðin
hingað byrjuð á nýjan leik og
hættir vafalaust ekki fyrr en ís-
landsmið eru eydd.
Öllum fslendingum er ljóst
hversu örlagarík áhrif slíkt get-
ur haft, því það eru fiskimiðin
sem gera okkur fært að lifa
menningarlífi í landinu.
—Þjóðviljinn 7. maí
Þetta Nútíma Fljóthefandi
Dry Yeast, þarf
Engrar Kælingar Með
Hér er um að ræða undrunarvert, nýtt ger, sem verkar eins
fljótt og ferskar gerkökur, og á sama tíma heldur fersk-
leika og fullum krafti á búrhillunni. Þér getið pantað mán-
aðarforða hjá kaupmanninum yðar, í einu.
Engum nýjum forskriftum eða fyrirsögnum þarf að fara
eftir. Notið Fleischmann’s Royal Fast Rising Dry Yeast
nákvæmlega eins og ferskar gerkökur. Einn pakki jafngildir
einni ferskri gerköku í öllum forskriftum.
1 pakki jafngildir 1 köku af Fresh Yeast
FRÉTTIR FRÁ ÍSLANDl
Hátíðahöld í Skálhloti
Á sunnudaginn kemur gangst
Skálholtsfélagið fyrir hátíða-
höldum í Skálholti, og eru þang-
að velkomnir allir þeir, sem á-
huga hafa fyrir því, að þetta
fornfræga menningarsetur verði
hafið upp úr niðrrlægingu. í
sambandi við hátíðarhöldin mun
hr. biskupinn Sigurgeir Sigurðs-
son annast altarisguðsþjónustu
í Skálholtskirkju, en sr. Bjarni
Jónsson o. fl. flytja ávörp.
Blandaður kór syngur undir
stjórn Páls ísólfssonar. Að því
loknu mun Matthías Þórðarson
prófessor flytja erindi um sögu
staðarins, merkileg örnefni og
þá forna gripi sem þarna eru.
Búast má við að margt fólk
héðan úr bænum muni vilja fara
austur að Skálholti á sunnud. Er
því bent á, að það verður að
nesta sig, því að engar veitingar
eru á staðnum.
Árið 1956 eru liðnar 9 aldir
síðan biskupsstóll var settur í
Skálholti og fyrsti íslenzkur
biskup vígður. Seinna gaf Giss-
ur biskup stólnum Skálholtsland
með því skilyrði, að þar skyldi
ávalt vera biskupssetur, meðan
kristni héldist í landinu.
Margir þjóðræknir menn hafa
fundið sárt til þess hvernig kom-
ið er um Skálholt hvernig er-
lendir valdhafar, íslenzk örbirgð
og hirðuleysi hafa búið að því.
Og þar sem nú nálgast mjög níu
alda afmæli biskupsstólsins þar,
stofnuðu nokkrir þeirra félags-
skap í fyrra, sem þeir nefna Skál
holtsfélagið. Vill félagið vinna
að því, að fyrir þetta afmæli risi
þar upp kirkja, samboðin minn-
ingu biskupssetursins forna, og
að Skálholt verði framvegis að-
setur vígslubiskupsins í Skál-
holtsbiskupsdæmi, og verkefni
þess embættis aukin. Á þann hátt
væri hægt að bæta fyrir trúnað-
arbrot hinna erlendu valdhaf við
fyrirmæli Gissurs biskups fs-
leifssonar. Og þá sýndi þjóðin
það, að hún kann að virða hin
helgustu vé sín.
Hátíðahöldin í Skálholti á
sunnudaginn eiga meðal annars
að vekja og efla áhuga manna
fyrir þessu sannkallaða metnað
armáli menningarþjóðarinnar ís
lenzku.—ísafold.
Evening School Opening
Evening School will be open-
ing shortly and those interested
should follow the various news-
papers and C.J.O.B. radio pro-
grams for announcements. A des-
criptive folder giving the course
outlines with the registration and
commencement dates will be
mailed to anyone desiring to en-
roll. Prospective students should
write or telephone the School
Board Offices, 21-891, for a fold-
er.
Elementary English will be of-
fered at Daniel Mclntyre, Kelvin,
St. John’s and Isaac Newton
High Schools.
Those desiring Technical and
Commercial Courses should ob-
tain a bulletin to determine the
registration and commencement
dates at each centre.
The popular handicraft course
conducted at the Strathcona
School last year will be opening
again this year. The McGregor
Street bus leaves Portage and
Garry and stops in front of the
school. Leathercraft, Ornamental
Metal. Woodwork, Sheet Metal
and Bookbinding will be offered.
Instruction in Clothing will be
given in four high school centres
Cokery will only be offered at
Daniel Mclntyre and Kelvin
High Schools.
The course on, “Health, Home
Nursing and Emergencies,” will
be conducted at the new Cana-
dian Red Cross Society Head-
quarters, Osborne Street and
York Ave. The Parent Educa-
tion Courses, in conjunction with
the Home and School Associa-
tion, which commence on Sep-
tember 13th (Tuesdays only) will
be held in the Gordon Bell High
School.
Those desiring to know some-
thing about the operation and
running of their automobiles
should attend the Automobile
Mechanics Course which is of-
fered at the Daniel Mclntyre
Collegiate.
Elementary a n d advanced
Courses in Public Speaking will
be offered at Daniel Mclntyre
Collegiate as well as Kelvin High
School this year.
KAUPTÐ HEIMSKRTNGLU—
Qtbreiddasta oq fjölbrovttnsta
iRlettzk'a vikublaðið
•’wiiruwni —ii in ummmíii w n ii ■ m im