Heimskringla - 14.12.1949, Blaðsíða 1
Buy and Try—
“DAILY DOUBLE
LAYER” - 35c
Different Flavor Daily
French Cream Filling
ask your grocer for them
Canada Bread Co. Ltd.
LXIV. ARGANGUR
Buy and Try-
U
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN 14, DES. 1949
DAILY DOUBLE
LAYER” - 35c
Different Flavor Daily
French Cccam Filling
ASK YOUR GROCER FOR THEM
Canada Bread Co. Ltd.
NÚMER 11.
FRÁ SENDIRÁÐINU
í WASHINGTON
6. desember, 1949
Kr. ritstj. Stefán Einarsson,
Winnipeg, Manitoba
Samkvæmt upplýsingum í sím-
skeyti, sefir sendiráðinu barst í
^ag frá utanríkisráðuneytinu í
Eeykjavík hefir forseti íslands
skipað nýtt ráðuneyti undir for-
sæti Ólafs Thors, sem tók við
störfum í dag. Er Ólafur Thors
forsætis- og félagsmálaráðherra,
Ljarni Benediktsson, utanríkis-
ráðherra, fer jafnframt með
dómsmál og mentamál; Björn
Ólafsson fjármálaráðherra, fer'
jafnframt með viðskiftamál; Jó-
hann Þ. Jósefsson sjávarútvegs-
malaráðherra, fer jafnframt með
siglingar- iðnaðarmál og flug-
mal; Jón Pálmason landbúnað-
arráðherra, fer jafnframt með
rafmagnsmál, samvinufélög,
Vegamál, póst- og símamál. '
Virðingarfylst,
F. h. sendiráðsins
Magnús V. Magnússon
Sitt af hverju um jólin
Reyniviðurinn
Hann er kallaður heilagt tré
°8 er sú saga til þess, að til forna,
Þegar komið var að reynitré á
jólanótt, brunnu ljós á öllum!
greinurn hans, og slóknuðu þau
ekki, hversu mjög sem vindur!
^iés. Lítur það svo út, sem það
Lsfi átt að vera nokkurs konarj
1Inynd jólatrésins, sem alsiða er
1 utlöndum að kveikja og prýða
með aldinum og öðru skrauti
Ungum og öldruðum til ánægjuj
en einkum á joianóttiTía, og sum-j
staðar er farið að tíðkast hér á
^andi (fslandi) í kaupstöðum.
Jón Árnason
★
Krossgötur
Sumir segja að krossgötur séu
^ar. t. d. á fjö'llum eða hæðumj
sem sér til fjögurra kirkna.
Llzta trúin er sú, að menn skulij
^Sgja úti á jólanótt, því þá eru1
araskifti og enn í dag telja menn
a^dur sinn eftir jólanóttum og
^a Se t. d. kallaður 15 vetra, sem
eLr lifað 15 jólanætur. Síðar
^aerðu menn ársbyrjunina á ný-;
ársnótt. 1
^egar menn sitja á krossgöt-1
Uln' þá koma álfar úr öllum átt-j
Um °g þyrpast að manni og biðja
hann að koma með sér, en maður-
lnn má engu gegna. Þá bera þeir
manni allskonar gersemar: gull
°g silfur, klæði.mat og drykk, en
maður má ekkert þiggja. Þar
^°rna álfakonur í líki móður og
systur manns og biðja mann að
korna, 0g anra bragða et leitað.
Ln þegar dagur rennur, þá á
maður ag standa upp og segja:
Guð sé l0f( nú er dagur um alt
loft. Þá hverfa allir álfar, en
allur þessi álfaauður eftir, og
hann á þá maðurinn.
En svari maður eða þiggi boð
a^fa, þá er maður heillaður og
verður vitstola og aldrei síðan
mÖnnum sinnandi. Því varð
manni, sem Fúsi hét og sat úti
a jólanótt, og stóðst lengi þangað
ti,l
ein álfkona kom með stóra
^otskildi og bauð honum að bíta
í*á leit Fúsi við og sagði, sem
s;ðan er að orðtaki haft: “Sjald-
an hef eg flotinu neitað.”
Leit hann þá bita sinn úr flot-
®hildinum og trylist og varð vit-
*aus.
Jón Sigurðsson forseti
Ut yfir brimgarðinn
A. Tennyson
to
Stilt kvöld og stjarna blá,
Og stefnuboð eg fæ.
Og ekkert brim þá gnauði grynning á,
Er gnoð úr vör eg ræ;
En líkt og sofið undiröldu flóð,
Sem ólgar, laust við hreim,
Er það, sem lífs frá unnardjúpi óð,
Snýr aftur heim.
Hringing þá húmað er,
Svo hjúpar nóttin storð;
En berist engin kveðju-kvein að mér
Þá kominn er um borð.
Og þótt mig reki rúmi og tíma frá,
Um reginvíða dröfn,
Eg vona að fá þar lífs míns lóss að sjá
Þá loks eg berst að höfn.
—P. B.
Jólaljós
Nú fagnar heimur helgri nótt;
á himni stjörnur skína rótt,
en kertaljósin lýsa húm
á litlum kveik við Barnsins rúm.
Og þreyttir gleyma þyngstu sorg
við þrönga jötu í Davíðs borg
og eygja bjarma enn af von
— þar er hann fæddur mannsins son.
Hann brýtur ekki brákað strá
— hann brýtur fjötra og virki há,
og gerir frelsið lýðum ljóst
°g leggur elsku þeim í brjóst.
Og þótt hans bíði þyrni krans
og þeirra, er ganga í fót-spor hans,
og sálir nísti hörmung hörð —
hans hugsjón mun þó sigra á jörð.
Ó blessað ljós, svo löngu slökt,
þú lifir meðan hjarta klökt
af himin-trú á heiminn slær,
og heimsljós öll þú gerir skær.
Þorst. Valdimarsson
Jóla kveðja
— Þjóðv.
Fyrir hönd hins Sameinaða
kirkjufélags íslendinga í Vestur-
heimi óska eg öllum söfnuðum
þess og meðlimum, alls hins
bezta á jólunum og á hinu kom-
andi ári, og góðs gengis í þeim
málum sem þeir standa fyrir og
styðja að. Fyrri helmingur þess-
arar aldar er nú bráðum á enda
og síðari helmingurinn að byrja
Eg vil hvetja alla sem unnið hafa
fyrir málstað frjálstrúarmálanna,
fyrir málstað hinnar kreddu"-
lausu trúar, sem viðurkennir
rétt hvers einstaklings til sinna
skoðanna án hindrunar eða
banns, samkvæmt samvizku og
skynsemi, að leggja aldrei árar í
bát en stefna stöðugt fram, því
hin frjálsa trú er trú framtíðar-
innar, hin frjálsa, hin bjarta og
hin skynsama trú, sem engin höfí
þolir en stefnir að fullkomnun
manna, á öllum sviðum. “Þreyt-
um þólgóðir skeið það sem oss
hefir verið fyrir sett” og vinnum
eins á hinum síðari aldarhelm-
ingi eins og á hinum fyrri, að því
markmiði sem mannkyninu var
sett á hinurn fyrstu jólum, frelsi,
og friði, og kærleika meðal allra
manna.
Með beztu jóla og nýárs óskum.
Phihp M. Pétursson,
Forseti og umdæmisstjóri
hins Sameinaða kirkjufélags
íslendinga í Vesturheimi.
Álfar
Einna mest ber á álfum um
jójaleytið og nýárið og virðist
fleira en eitt bera til. Bæði er
skemtanatími þeirra mestur um
það leyti ársins, þó einnig finnist
dæmi þess, að þeir haldi til bæði
páska og sumardagsins fyrsta; en
um jólin hafa þeir samsæti og
veizlur, hljóðfæraslátt og dans-
ferð ýmist í mannabýlum eða í
álfabygðum og þar að auki halda
þeir fardaga sína um nýárið og
var þá ávalt nokkuð um dýrðir
fyrir þeim, og er einkum sagt, að
þeir hafi farið á nýársnótt úr
einum stað í annan vistferlum og
búferlum. Því var sú venja hér
lengi höfð, að konur og húsmæð-
ur létu ljós loga í hverju homi
og hverju húsi í bæ sínum, svo
hvergi bæri skugga á, alla nótt-
ina. Allar dyr áttu að standa
opnar upp á gátt, og alt að vera
sópað og hreint svo hvergi sæi
sorp né duft í krók eða kima.
Síðan skyldi kona eða húsmóðir
sjálf ganga ti'l og frá um allan
bæinn og segja: “Veri þeir sem
vera vilja”, eða “Komi þeir sem
koma vilja, fari þeir sem fara
vilja, mér og mínum að meina-
lausu.”
Jón Árnason
Merkidagar
Sé sólskin fagurt á jóladag,
verður gott ár; sé sólskin annan
dag jóla, verður hart ár. Þegar
jóladagur kemur með vaxandi
tungli, veit á gott ár, og sé hann
góður, veit á því betra. Jóladag-
urinn fyrsti merkir janúar, annar
merkir febrúar, þriðji merkir
marz, fjórði apríl. Þegar hrein-
viðri er og regnsamt aðfangadag
jóla og jólanótt, ætla menn það
boði frostasamt ár; en viðri öðru-
vísi veit á betra. Ef stilt viðrar
seinasta dag ársins, mun gott ár
verða, sem í hönd fer. Blási
f jórðu jólanótt, veit á slæmt sum-
ar; blási sjöttu verður grasvöxt-
ur lítill; blási sjöundu, verður
gott ár; blási þrettándu nótt jóla
vestanvindur, veit það á frosta
sumar. Ef jól eru rauð, verða
hvítir páskar, en rauðir, ef jól eru
hvít.
I