Íslenzki good-templar - 02.01.1889, Qupperneq 6

Íslenzki good-templar - 02.01.1889, Qupperneq 6
30 ísl. Good-Tetnplar. Jan. verða nr. 5. Hún var við stofn- unina skipuð 15 meðlimum, og kvað pað allt vera efnilegir ungir menn, og þannig ástæða til að ætla að þetta sje efnileg Stúka þó fámenn sje í fyrstu.—Fundar- stað sinn hefur Stúkan í barna- skólahúsinu í Gaulverjabæ. Helztu starfsmenn fyrir yfir- standandi ársfjórðung voru þessir kosnir: Æ. T. Kolbeinn porleifsson, Gaul- verjabæ. Y. T. Bjarni Jónsson, Loptstöðum. Bit. Jón Runóifsson, Gaulverjabæ. Kap. Ingvar Guðmundsson, Selja- tungu. F.-R. Sigurður Sigurðsson Hólm- um. Gk. Jón Jónsson, Meðalholtum. Dr. Guðmundur E. Guðmunds- son, Seljatungu. VörðUr. Jakob Bjarnason,Loptstöð. Út-Y. Einar Sigurðsson, Meðal- holtum. Aðst.R. Halldór Jónsson, Gaul- verjabæ. Aðst.Dr. Jón Gestsson,Sviðagörðum. F. Æ. T. Ólafur Guðmundsson, Seljatungu. Gæzlumaður Ung-Templara Jón Jónsson, Loptstöðum. Til Umbm. St.-T. var mælt með Jóni Jónssyni, Loptstöðum. Stofnandi Stúkunnar Guðmund- ur Guðmundsson, á sannarlegar þakkir skilið fyrir stofnun þessara Stúku, eins og fyrir allt hans mikla starf í parfir Reglunnar, og væri óskandi að Good-Templar Reglan mætti lengi njóta starfa hans 1 hennar þarfir. Jeg skal geta þess að hin efni- lega unga Stúka >Bára« nr. 2 1 Yestmannaeyjutn hefur fengið stofnskrá handa Ungl. Stúku þar á eynni. Ungl. Stúkan lieitir »Hamingjan« og verður hún nr. 7. Bróðurlegast. Magnús Zakaríasson St. R. Ung-Templara söngur. Sjáið barna flokkinn fríða, Fáðan ljóssins skjöld hann ber; Sóknar vopn er sannleikshjörinn; Saman fylkist ungra her. Flokkur. Fram til sigurs, fram til sigurs; Fá mun sigur vort mál rjett, » Sannlcik, elsku, hreinleik« höf- um Heilög orðtök vorn á fána sett. Lengi drykkjan valdstaf veifði Vakti synd og kvala fjöld, Nú af stöli hún skal hrakin, Hófsemd tekur ríkisvöld. Undir hófsins hreinum fána Hvergi fjendum opnist leið Vegum hart, unz voru kyni Vinnum frelsis hnossin þreyð. Blóð ei markar brautir vorar, Bros og söngvar koma oss mót;

x

Íslenzki good-templar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenzki good-templar
https://timarit.is/publication/130

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.