Íslenzki good-templar - 01.04.1889, Síða 5
1889
fsl. Good-Templar.
Stúka á sjálfsagt ekki undir nein-
um kringumstæðum að setja sig í
skuldir, nema pegar hún parf að
byggja sjer fundarhús, eða þarfað
útvega nauðsynlegustu fundará-
höld sæti og borð, og þegar um
húsbyggingu er að tala, álítum
vjer að betra sje, að byggja held-
ur — eða kaupa húsið heldur —
árinu síðar og standa í minni
skuld, en byggja árinu fyr og
standa í meiri skuld á eptir. Til
þess að ráðast í byggingarfyrir-
tæki, þurfa sem allra flestir með-
limir að vera á það sáttir, að það
sje svo að segja óumflýjanlegt, og
allir einhuga í því að koma mál-
inu áfram.
|>að má bæta fjárhag hverrar
Stúku sem er á ýmsan hátt, og
vjer skulum hjer á eptir nefna
ýmsar aðferðir til þess.
1. Ef Stúka hefur oflítið fje
undir höndum, til að borga hin
reglulegu útgjöld sín, og hana
vantar um árið einhverja vissa
upphæð, sem ekki nemur miklu,
þá er lang eðlilegast, og rjettast
að hækka ársfjórðungsgjöldin; það
kemur jafnast niður. Ef Stúka,
sem hefur vanalega um 50 með-
limi vantar t. d. 20 kr á um árið
að tekjur hrökkvi vel fyrir út-
gjöldum, þá er bezt ef því verður
við komið, aðhækka ársfjórðungs-
gjöldin um 10 aura á hverjum
meðlim, hækkunin á að gefa af
sjer 20 kr. um árið.
2. Ef Stúku vantar fje í svip-
r>3
inn, er það mjög almenntog vana-
legt að meðlimirnir, skjóti saman
til að fá upphæðina sem vantar.
J>essi aðferð er einnig opt viðhöfð
til að fá saman peninga, semekki
verða borgaðir úr Stúkusjóði, sök-
um ákvæða aukalaganna. Við
samskot verðum vjer þó að gjöra
þá athugasemd, að sjeu þau við-
höfð að jafnaði, þá mun það sýna
sig að þau koma mest niður á
sömu meðlimunum.
3. Uppboð, eru aðeins annað
form fyrir samskotum. 1 stað þess
að gefa peninga, eins og gjört er
þegar meðlimir skjóta saman, eru
meðlimir fengir til að gefa ein-
hveru mun, þessum munum er
safnað saman til viss fundar, og
þá haldið uppboð á þeim, kaup-
endurnir borga það, sem þeir hafa
boðið í hlutinn, eins og á venju-
legu uppboði, mann til að inn-
heimta uppboðsskuldirnar — ef
gjaldfrestur er hafður — þarf nátt-
úrlega að hafa. Á slíkum upp-
boðum mega ekki aðrir vera við
en meðlimir Stúkunnar, nema
fengið sje leyfi til að halda þau í
hvort sinn. J>essi uppboð má
einnig halda svo, að hver munur
komi í umbúðum á uppboðið, og
enginn veit hvað hann kaupir,
því kaupandin'h einn hefur rjett
til að taka umbúðirnar utan af.
4. J>egar um stærri fyrirtæki
er að ræða, eins og t. d. fundar-
húsbygginu eða þess háttar, þá er
vanalegt að halda Tombólu fyrir