Íslenzki good-templar - 01.07.1892, Blaðsíða 2

Íslenzki good-templar - 01.07.1892, Blaðsíða 2
98 fsl. Good-Tempíaí. Júlí. tugum ára saman eptir að þeir eru orðnir ofdrykkjumenn i annara augnm. Því síður geta þeir ábyrgzt, að þeir verði eigi drykkjumenn einhvern tíma, ef þeir halda á- fengisnautn sinni áfram. Líkt er um hina viðbáruna. Það er víst, að sumir, sem kalla sína sveit lausa við drykkjuskap, leggja vilj- andi eða óviljandi allt annan mælikvarða á sina sveit en aðrar sveitir. Þeir vilja nú einu sinni ekki láta það á sig ganga, að nein ástæða sje fyrir þá að ganga í bindindi. Þeir geta meira að segja átt sjer eigi einungis samsveit- unga, heldur nána ættingja og vandamenn, sem eru drykkjumenn í hvers manns augum annara, og vilja þö eigi við kannast. Og hitt, að drykkjuskapur hafi minnk- að í þeirra sveit, það er stundum ýmist alveg ósatt, eða þá að það er öðrum að þakka,—heflr meira að segja á unn- izt þrátt fyrir ýmugust eða andróður fyrnefndra sveitar- stólpa. |>að er mörg blindnin og missýningin, þegar sjerþótt- inn og hjegómaskapurinn er annars vegar. Það kemur svo sem eigi fram í þessu eina atriði, heldur i svo mörg- um öðrum. En það er eitt atriði eða eitt orð í áminnztum við- bárusvörum, er skal vakin athygli á sjerstaklega. Það er orðið jeg. — »Jeg er ekki drykkjumaður». »í minni sveit er lítill eða enginn drykkjuskapur». Hvað þýðir þetta jeg í þessu sambandi? Fyrir utan sjerþóttann og sjálfbyrgingsskapinn, sem i þvi felst, þýðir það sama sem: »Aðrir koma mjer ekki við*; eða þá í hæsta lagi: »sveitungar mínir koma mjer dálítið við, en aðrir ekki«. Er ekki dálítið undarlegt, að heyra t. d. presta í kristn- um söfnuði bregða fyrir sig slíkum svörum, — þeim söfn- uði, er játar þaðvera sitt fyrsta og æðstaboðorð: »Elska skaltu drottinn guð þinn um alla hluti fram og náungann eins og sjálfan þig«? Er ekki hálfóviðfeldið, að heyra þá segja bara; »jeg, jeg, jeg!; aðrir koma mjer ekki við«?

x

Íslenzki good-templar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslenzki good-templar
https://timarit.is/publication/130

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.