Alþýðublaðið - 14.06.1960, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 14.06.1960, Blaðsíða 5
NATO-félag ÞANN 19. maí 1960 var stofn aö á Keflavíkurflugvelli félag áhugam'anna um Atlantshafs- l>andalagið_ Nafn félagsi’ns er NATO- VINA FÉLAGIÐ (NATO FRI- ENDS AL'LIANCE). í stjórn J>ess voru kjörnir: Þorgrímur Halldórsson, form., Ólafur 'Thorderson, varaförrm, Jón Arn grímsson, gjaldkeri,1 Ingvar S. Ingvarsson, ritari og Björn Helgason, meðstjórnandi. Sætfir í vændum BUENOS AIRES, 13 júní. (NTB). NOKKRIR háttsettir liðsfor- Ingjíar sem í morgun reyndu að steypa stjórn Argentínu með valdi ,flúðu í kvöld í flugvél eftir að hersveitir, sem tryggar ©ru stjórninni flykktust inn í San Luis héraðið þar sem upp- reisnin byrjaði. Síðar um daginn flaug Fron- dizi forseti Argentínu til Róm- ar eins og fyrirhugað hafði ver- ið. Uppreisnin takmarkaðisf við San Luis héraðið og náðu upp- reisnarmenn útvarpsstöð á sitt vald. Tilgangur uppreisnarinn- ar var fyrst og fremst að koma í veg fyrir Evrópuför Frondizi forseta. Mennirnir, sem stóðu að þess- ari uppreisnartilraun tilheyra andstæðingum Peron fyrrum forseta og eru hægri menn. — Flest er enn á huldu um upp- reisn þessa. ANCHORAGE, Alaska og Tó- kíó, 13. júní (NTB). — Eisen- hower forseti Bandaríkjanna bélt í dag frá Anchorage, höf- uðborg Alaska, áleiðis til Wa- keeyju. Þetta er fyrsti áfangi hans á leiðinni tl ýmissa landa í Austurlöndum fjær. Næsti viðkomustaður hans er Manila á Filippseyjunx. Síðan heldur hann til Formósu, Suð- ur-Kóreu og Japan. Neijiro Asanurna, formaður Sósíalistaflokks Japans sagði á mánudagskvöld, að hann mundi reyna að hindra ofbeldisverk er Eisenhower Bandaríkjafor- 100 skip á íslandsmið ÁLASUND, 13. júní. (NTB). FLEST norsku skipanna, sent fara á síldveiðar við fsland í Kumar eru nú tilbúin. Rúmlega eitt hundrað skip fara til veið- anna og er það tuttugu bátmn fleira en reiknað var með í vor. Rússlands WASHINGTON, 13 júní. (NTB). OLIVER POWERS, fað- ir Francis Powers, flug- mannsins á U-2 vélinni, sem skotin var niður yfir Sovétríkjunum 1. maí s. 1. hefur fengið vegabréf, ■— sem gerir honum mögulegt að fara til Sovétríkjanna og hafa t'al af syni sínum þar. Hann gerir þó ekki ráð fyrir að fara fyrr en í ágúst. Powers ,sem er skósmið ur, ræddi á mánudag við ýmsa háttsetta rnenn í bandaríska utanríkisráðu- <[ neytinu. WWVWWWWtVWMWVW Árangurslaus bylting NEW YORK ,13. júní. (NTB-AFP). i aðalbækistöðvum Sameinuðu þjóðanna í New ,York er gefið í skyn, að deilan um framsal Adolf Eichmann, þýzka stríðsglæpamannsins, — sem ísraelsmenn tóku í Argen- tínu fyrir nokkrum dögum og fluttu til ísrael, verði leyst á íriðsamlegan hátt eftir dipló- matiskum leiðum. Aðalfulltrúi Argentínu hjá Sameinuðu þjóðunum, kom til New York í dag frá Buenos Air- es og búist er við að hann ræði við Gol'da Meir, utanríkisráð- herra ísraels á næstunni, en hún er nú stödd í New York. David Ben Gurion, forsætis- ráðherra ísraels kom í dag í opinbera heimsókn til Parísar og ræðir við de Gaulle á þriðju dag. Og síðar í mánuðihum kem ur Frondizi Argentínuforseti í opinbera heimsókn til Parísar á för sinni um Vestur-Evrópu, — Ekki er þó vitað hvort þeir ræða Eichmann-máli'ð við de Gaulle. sc-tj kemur í opinbera heim- sókn til Tókíó næstkomandi sunnudag. Á fundi með blaðamönnum sagði Asanuma, að hann væri ennþá andvígur heimsókn Eis- eriho-wers og hann krafðist þess að.stjórnin segði af sér, en hann kvaðst gera hvað hann gæti til þess að koma í veg fyr- ir óeirðir í sambandi við heim- sóknina í líkingu við þær, sem urðu er Hagerty blaðafulltrúi forsetans kom til Tókíó fyrir nokkrum dögum. Annar leiðtogi Jafnaðar- manna í Japan sagði 1 dag, að ef Eisenhower óski eftir friði í Austurlöndum, þá ætti hann að halda'sig heima. í yfirlýsingu frá miðstjórn Sósíalistaflokksins segir að flokkurinn muni nota öll tiltæk ráð til þess að koma í veg fyr- ir staðfestingu á öryggissátt- mála Bandaríkjanna og Japans. 25.000 lögreglumönnum í Tókíó hefur verið. falið að vernda Eisenhower er hann kemur til landsins og halda þeir vörð um hina 15 kílómetra löngu leið frá flugvellinum inn í borgina. Eisenhower mun aka i skotheldum vagni þessa leið en áður hafði verið gert ráð fyrir að.hann æki í opnum bíl til keisarahallarinnar. í Tókíó sjálfri eru ekki nema 15.000 lög regluþjónar, afgangurinn er úr öðrum landshlutum. Kishi forsætisráðherra Jap- ans gaf öllum lögreglustjórum í dag skipun um að gera allar nauðsynlegar ráðstafanir til þess að vernda Eisenhower. Eisenhower mun aka í 25 ára gömlum Mercedes Benz bíl, sem á að vera algerlega skot- heldur. Með honum verður Hirohito keisari. Kishi forsætisráðherra átti í dag viðræður við formann flokks sósíaldemókrata, sem miðstjóm hans hefur fallið frá andstöðu sinni gegn heimsókn Eisenhowers. Formaðurinn, Nishio, sagði að flokkur sinn hefði verið andvígur heimsókn inni en hefði nú ákveðið að bjóða forsetann velkominn, af því að heimsókn hans væri lið- ur í að efla friðinn í Austur- löndum fjær. Talsmaður frjálslynda flokks ins, flokks Kishi, sagði á mánu- dag að í athugun væri að gera pólitískt vopnahlé um sinn og fresta staðfestingu 'öryggissátt- málans í þeirri von að það vrði til þess að Sósíalistaflokkurinn léti af andúð sinni á heim- sókninni. WWWWWM\WWWWWV1 DELINDA Tanner frá Sviss, sýnir 10 myndir í Mokka á Skólavörðustíg um þessar mundir. Er hér um að ræða veggteppi, senx Delinda Tanner hefur gert í Iiöndunum með ala- dinnál. Hefur hún fram- leitt tepp' þessi í Sviss undanfarið úr íslenzkum lopa en Tanner segir, að íslenzki Iopinn sé mjög hentugur til þessara nota. Delinda Tanner dvaldizt hér síðan um áramót. Kynntist hún veggteppa- gerð hér í Reykjavík i fyrravetur. Tanner dvald- ist einnio- hér á landi árin 1949—1951 og byrjaði þá á keramik úr Laugarnes- Ieir. Sýningunni í Mokka lýkur á fimmíudag. iWWWWWWWMWWWWtWWMWWWWWStWiW! Tíðindi brá fyrsta hneykslinu ALÞÝÐUBLAÐINU barst í gær eftirfarandi frá póst- og símamálastjórninni varðandi fyrra frínterkjahneykslið í vetur; Svo sem áður er kunnugt, fór í vetur fram réttarrannsókn út af hvarfi nokkurra verðmætra frímerkja úr birgðum póstsins. Jafnframt framkvæmdi ríkis- endurskoðunin heildartalningu á birgðunum og lauk henni. Málið út af nefndu frímerkja hvarfi hefur undanfarið verið til athugunar í dómsmálaráðu- neytinu og er búizt við fyrir- mælum um málshöfðun innan skamms. Frekari rannsókn mun nú vera að héfjast hjá sakadóm- : sra á svonefndum Heklufrí- Sakar- rannsókn ákveðin ALÞÝÐUBLAÐIÐ spurð ist fyrir um það í gær hjá dómsmálaráðuiieytinu, hvort ráðuneytið hefði tekið nokkra ákvörðun um sakarrannsókn í „Lundgaard-f rímerk j a- málinu“. Baldur Möller, deildar- stjóri, skýrði blaðinu svo frá, að ráðuneytið hefði ákveðið að vísa málinu til sakadómarans í Reykja- vík til nánari aðgerða. Að sögn deildastjórans, mun sakadómari fá fyrir- mæli ráðuneytisins í dag, 14. júní. ,'merkjum (35 aura frímerki, yf-* irstimpluð með 5 aur), þar:sena | upplýst hafði verið, að yfir- ! prentanir á þeim höfðu farið fram utan stofunnar. aðildar póstmála- f # f » / l s Hvorki giot ne lán Framhald af 1. síðu. Skeyti Alþýðublaðsins til Lundgaards verkfræðings vai* svohljóðandi: „Tvær skoðanir hafa komið fram um það í íslenzkum blöð- um hvernig frímerkin frá 1904, sem nú eru til sölu á Norður- löndum, hafi komizt í yðar hencl ur: a) að þér hafið fengið þart að láni hjá póstmálastjórninnii Og b) að yður hafi verið afhenfe þau að gjöf. Alþýðublaðið væri yður, þakkþátt ef’ þér vilduð láta þvj í té skýririgu yðar á málinu. Blaðið mun greiða kostnað af svarskeyti frá yður, allt að eitfe hundrað orð“. Eins og svar Lundgaards ber með sér, telur hann fráleitt aö hann haíi fengið frímerkin að láni. Hann fékk þau sem þókn- un segir hann fyri'r unnin störS — og að viðstöddum vitiium. Alþýðublaðið birtir á f.yrstn síðu myndir af þremur forsíðum. sínum, en þær segja sögu þessa frímerkjamáls frá því það fyrsfe bar á góma. Þær lýsa líka marg- endurteknum og árangurslaus- um tilraunum biaðsins til áð fá. póststjórnina til að skýra frá á- stæðum fyrir því að frímerkin. voru flutt úr landi. íessi ivið- leitni bar ekki árangur fyrjr eni blaðið símaði til danska aðilansí — og mun það koma ýmsuni . spanskt fyrir sjónir. { Alþýðublaðið — 14. júnf 1960

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.